Tíminn - 24.07.1935, Síða 1

Tíminn - 24.07.1935, Síða 1
(Sjaíbbag! fe í a 6 3 i n « e t J. >4ai Átfianautfun foatoc 7 tx. ^fereifcski •# tnnfeelrota á S-auaaveg 10. GiÍBt 2353 — Póet&óii 061 30. bteð. Afkoma atvinnuvega Sjávarútvegurinn, í þeirri mynd, sem hann er nú rekinn hér á landi, má kallast nýr at- vinnuvegur, enda hafa komið fram margvíslegir byrj unarörð- ugleikar og barnasjúkdómar í rekatri hans. i Glöggt vitni í þessu efni er það, að yfirleitt mun það ekki vera regla, að aflahæstu skip skili mestum hreinum arði. Fiskveiðarnar hafa á undan- förnum árum verið reknar að , alltof miklu leyti eins og „sport“. Skipstjórar. fiskimenn og jafnvel útgerðarmenn hafa líka keppt um „sín met“, en skeytt minna um tilkostnaðinn. ; Undir þetta hefir svo riðið ! það fyrirkomulag, t. d. á stærri veiðiskipum, að launa skipstjór. ann og aðra yfirmenn í hlutfalli við aflamagn, en ekki afkomu Útvegsins. Allt þetta ástand er skiljan- legt um ungan atvinnuveg, og einkum þegar hann er rekinn af „nýríkum“ mönnum, ellegar sem algengast er, með lánsfé frá bönkunum og þá á áhættu alþjóðar. Enda hafa skakka- föllin flest lent á þeim, þegar út af hefir borið. Sjávarútvegur hlýtur um ófyrirsjáanlega fnamtíð að verða annar undirstöðuat- vinnuvegurinn hér á landi. En hvemig á að reka þenn- an atvinnuveg? Togurunum fækkar af því að þeir eru hættir að gefa gróða. Lánuveiðarar voru reyndir. Ekki munu þeir hafla gefizt vel. Vélbátar eru mjög márgir og af mjög mismunandi stærðum. Hver af þessum veiðitækjum eru til frambúðar. Hver þeirra borga sig bezt. Staðhættir grípa inn í. Heild- aryfirht er ekkert til. Og á síðustu tímum er enn eitt sjónarmið komið tii sög- únnar. Hver veiðitæki, og hvaða rekstursfyrirkomulag á fisk- veiðunum, krefur minnst af er- lendum gjaldeyri, miðað við það sem' þjóðin fær í laðra hönd? Þar er rannsóknarefni, sem vert er að gefa gauml Og alveg sama máli gegnir með liandbúnaðinn. Nú er mjólkurframleiðsla einna hagkvæmust að því er virði&t. Mjólkurbúum fjölgar og mjólkurmagn þeirra, sem fyrir voru eykst til mikilla muna. Miarkaðurinn hefir úm allmörg ár verið í landinu sjálfu og verðið hlutfallslega hátt. En nú er þessi markaður að yfirfyllast. Útflutningur stendur fyrir dyrum og jafn- vel hafinn. Erlenda verðið er mun lægra. Og samt er gjört talsvert að því að nota erlend- an fóðurbæti til mjólkurfram- leiðslu. Gæti svo farið, að af- urðir, sem fi-amleiddar væru úr öllu því mjólkurmagni seml áynnist við erlenda fóðurbætis- gjöf, hrykki ekki til endur- gjalds fyrir þennan fóðurbæti með því verðlagi, sem! nú er á mjólkurafurðum í nágranna- löndunum. Eins og viðskiptum milli Framh. á 4. aflhk. Reykjavík, 24. júlí 1935. Uppsögn Svafars Pálmi Einarsson ráðunautur gengUr fram fyrir skjöldu í blaði litla íhaldsins og freistar að gera Svavar Guðmuhdsson að píslarvætti út af því, að stjórn Sambandsins hlaut að velja á milli hans og Sigurðar Kristinssonar, eins og komið var. Morgunblaðið hafði þyrlað upp ósannindum um það, að út af garnadeilunni 1980 hafi J. .T. sem þá var dómsmálaráðherra, sótt það svo fast, að láta hand- taka Héðinn Valdimarsson og viarpa honum í fangelsi, að Tr. Þórhallsson og Sigurður Krist- insson hefðu síðast orðið að hóta því að segja af sér, Tr. Þ. forsætisráðherrastarfinu og Sig. Kristinsson forstjórastarfi sínu við Sambandið, til þess að fá þessari stjómarráðstöfun af- stýrt. Gaf Sigurður síðan út vott- orð, þar sem hann lýsir því yf- ir, að hann hafi aldrei heyrt á þetta minnst. Mbl. kallar þetta í'alsvottorð og telur Sig. Krist- insson ,.vera í þjónustu lýginn- ar“. Sigurður stefnir blaðinu og fær ummæli þess dæm dauð og ómerk. En þá rís up blað, sem einn af starfsmönnum Saml bands ísl. samvinnufélaga, Svafar Guðmundsson, ber á- byrgð á að því leyti, að hann er einn af þremur mönnum í útgáfustjórn þess, og tekur undir svívirðingar Mbl. í þessu máli. Voru ummælin með þeim hætti, að Tr. Þórhallsson, sem einnig er í útgáfustjórn blaðs- ins, lét samstundis og ummælin komu út, birta yfirlýsingu um, að hann vildi enga ábyrgð á þeim bera og að þau væru fram komin án síns vilja og vitund- ar. Nú reynir Pálmi Einarsson að halda því frkm, að hinum lúalegu ummælum hafi ekki verið beint gegn Sigurði Krist- inssyni, heldur aðeins verið hlutlaus frásögn. I grein þeirri í blaði Svafars, sem um' þetta fjallaði, er því haldið fram, að J. J. múni hafa svarið rangan eið, og þesSvegna hafi Sigurður Kristinsson feng. ið Mbl. dæmt í sektir fyrir að kalla vottorð Sigurðar falsvott- orð. Þetta sézt bezt á því, að blaðið segir: „Fengust því ekki nægilegar sannanir og var Mbl. dæmt í sektiri'. Blað Svavars Guðmúndsson- ar slær því föstu, þrátt fyrir eiðfestan framburð J. J. til stuðnings ínálstað Sig. Kr., að ekki sé afsannað að Sigurður Kristinsson hafi gefið falsvott- orð, og til þess að geta haldið í þann skilning á vottorði Sig. Kr., skirrist blaðið ekki við að telja það líklegast, að J. J. hafi unnið rangan eið. Síðar í grein inni er mál Sigurðar Kristins- sonar talið „einstakt hneyksl- ismál“. Var þessi framkoma blaðsins ærumeiðandi fyrir Sig. Kr. og varg það ekki þolað, að undir- maður hans og samstarfsmlað- ur við Sambandið gæti haldið áfram að vera í þjónustu þess, A víðavangi Bifreiðasambandið við Austurland. i Eysteinn Jónsson fjármála- ráðherra hefir vakið eftirtekt i á því í grein í Nýja dagblað- inu, að brú yfir Jökulsá á Fjöllum, sem annaðhvort múndi verða sett á móts við Gríms- staði eða Möðrudal, mundi stytta bílleiðina austur á land um 82—84 km. og jafnframt hefir ráðherrann bent á að andvirði brúarinnar múndi fljótlega innvinnast í sparnaði á bensíni og hjólbörðum. En sá spamaður er að því leyti I mikdsverðari en margur annar sparnaður, að andvirði fyrir hvorutveggja þessa vöru fer út úr landinu. Þegar brú væri ; komin yfir Jökulsá yrði vegar- lengdin frá Akureyri austur á land farin á einum degi og jafnframt yrði þá unnt að komast landleiðina úr Reykja- vík austur á tveim dögum. Skýzt, þegar skýrleik brestur. Blað litla íhaldsins tók í vet- ur í streng með Mbl. um, að forstjóri S. í. S., Sigurður Kristinsson, hefði gefið „fals- vottorð,“ í þjónustu lýginnar“. Einum ábyrgðarmanni blaðs- ins, Sv. G., sem er starfsmaður Sambandsins, voru þá gerðir tveir kostir, að segja sig úr út- gáfustjóm blaðsins og losa sig með því undan ábyrgð á um- mælunum, eða honuml yrði sagt upp starfi að öðrum kosti. Svafar kaus að bera áfram ábyrgðina á blaðinu og þar með þessum ummælum þess. Pálmi Einarsson ritar um þetta í síðasta sprengiblaðið og telur stjórn S. í. S. hafa með þessu gengið í fótspor Nazista. Reisir hann þann dóm sinn á þeim forsendum, að frásagnir blaðsins hafi aðeins verið „hlut. laus frásögn um málaferli". Þessu til áréttingar birtir hann svo „frásögnina“. í „frá- sögninni" er sagt, að ólafur Thors og Jónas Jónsson hafi í þessu máli svarið frambúrði sína hvor gegn öðrum og „feng. ust því ekki nægilegar sannan- ir og var Mbl. dæmt í sekt. — — — Svardagar þeirra ólafs og Jónasar geta vart samrýmst og er því sennilegt að annar- hvor ljúgi. Ag vísu hafa ekki að því er vitað er Verið bomar brigður á framburð ólafs, en hinsvegar mjög sveigt að Jón- asi um þá hluti“. Heldur er þessi birting frá- sagnarinnar undarleg sönnun um „hlutleysið“. „Að vísu“ er bersýnilega gerð talsverð til- raun til að hafa frásögnina loðna, en það eitt hefir tekizt að gera hana lubbalega. Blaðið segir, að svardagar þeirra ól- afs og Jónasar geti „vart“ samrýmzt, af því að það veit án þess að segja sér afhendis ábyrgð á því málgagni, sem gengið hafði í að rægja heið- urinn af forstjóra þess. Þess vegna hlaut stjórn Sam. bandsins að setja Svafari þá kosti, sem kunnir eru. Á Svafar á það við engan nema sjálfan sig hvem kost- inn hann valdi sér. að þeir geta vel samrýmzt, og sveigir svo að Jónasi um rang- an eið út frá þeirri Jorsendu, að „sennilegt“ sé að annarhvor ljúgi. Hefði það verið hyggi- legra eins og á stendur fyrir Pálma, að láta ógjört að endur- prenta þessa dæmalausu „hlut- lausu frásögn“ úr blaði Svaf- ars Guðmundssonar. Fréttirnar af landsmálafundunum. 1 nýútkominni ísafold er hreytt ónotum í blöð Fram- sóknarflokksins fyrir það, að þa.u hafi sagt satt frá tíðindum af landsmálafundunum í vor. Svo forhertir eru þeir Jón og Valtýr orðnir í ósannindaiðju sinni, að þeim finnst það ganga hneyksli næst, að ekki vilji allir fara að þeirra dæmi. Mun ýmisum ótrúlegt þykja, en geta sannfært sig um ósómann með því að lesa nefnt blað af ísa- fold. Um fréttir þær, er birtar voru af landsmálafundunum1, bæði í Morgunblaðinu, Alþýðu- blaðinu og „Framsókn“, er það annars sameiginlegt, að þær eru blöðum þessum til skamm’- ar, og eru slíkar frásagnir til þess eins, að menn hætta að trúa fundafréttum yfirleitt í þessum blöðum. Er það líka auðséð, á sumum1 fundafregn- unuiú í Mbl. (og ísafold) að þeir, sem fréttirnar skrifa, hafa alls ekki á fundunum’ verið og sennilega ekkert af þeim heyrt áður en fréttimar voru birtar. Gott dæmi um það er langloka sú, er birt var um) „hrakfarir" Hermanns Jónassonar forsætisráðherra á fundinum á Hólmavík! Er það fullyrt nú, að sú frétt hafi ver- ið skrifuð suður í Reykjavík tveim dögum áður en fundur- inn var haldinn! Þegiar for- sætisráðherra barst blaðið í hendur var hann staddur í Borgarfirði, en símaði þegar til Reykjavíkur og lét senda 30 eintök af Mbl. norður á Hólma- vík. Mun það hafa komið þeim Mbl.-mönnum nokkuð á óvart, að vera afhjúpaðir þannig frammi fyrir þeim, er fuhdinn höfðu setið. — Annað dæm|i er frásögn Mbl. af Sveinsstaða- fundinum. ólafur Thors ætlaði eins og kunnugt er, að eyði- leggja þann fund og fá flokks- menn sína til að fara, en tókst ekki. Nú segir Mbl., að það hafi verið Framsóknarm«nn sem vildu hætta við fundinn. En vel vita fundarmenn, hvað satt er 1 þessu. — Margir munu nú spyrja, hvernig á því standi, að Mbl. skuli sjá sér hag í því að segja, svona ósatt um fund- ina. Kunnugir vita ástæðuna. Tröllasögur Mbl. um hreysti- verk „íhaldsmanna" og „ófar- ir“ stjórnarflokkanna úti um sveitirnar eru settar saman til að halda upp hugrekkinu hjá hinu fjölmenna en ótrygga íhaldsliði í Reykjavík. Við þrennar undangengnar kosn- ingar hefir Mbl. haldið saman þeim’ mislita hóp með því að láta í veðri vaka, að íhaldið myndi vinna „glæsilegan“ sig- ur í sveitakjördæmunum. í hvert sinn, sem kosningaútslit- in hafa verið birt í gluggum blaðsins, hefir svo íhaldsfólkið reitt hár sitt á götrnn úti og Skúli Guðjónsson yfirlæknir í Kaupmannahöfn hefir vakið mikla athygli fyrir árangur tilrauna sinna með Spinatin vítamínstöflur. Hefir reynzt, að neyzla þeirra leiðir til eðlilegrar líkamsþyngdar, feitir menn verða magrir og magrir menn feitir. Ennfrem- ur að þeir, sem neyta Spina- tins, verði ónæmari fyrir far- sóttum. íormælt sínum litlu spámönn- um. Samt hefir það haldið áfram að trúa, og ef til vill trúir það enn. „Varað við hættunni“. Formaður íhaldsflokksins tal- aði um það á fundurh fyrir norðan, að hann hefði á und- anfömum sjö árum skrifað mesta fjölda af blaðagreinum, þar sem hann hefði „varað við þeirri hættu, sem yfir þjóðinni hlyti að vofa“ og væru nú spá- dómar sínir fram komnir. 'í’msum myndi sjálfsagt vera þökk á því, ef ólafur vildi gefa út sérprentaðar þessar greinar, þar sem| hann á sínum tíma hefir „varað við hætt- unni“. Mönnum myndi t. d. þykja fróðlegt að sjá það, sem þessi spaki maður hefir skrif- að fyrir 4—5 ámm um yfir- vofandi hömlur á sölu íslenzks saltfisks til Suðurlanda og hvar hann hefir viljað leita nýrra markaða. Gaman væri líka að fá að vita, hvort Ólafur hefir sagt það fyrir í þessum „blaða- greinum“, að Kveldúlfur myndi á því herrans ári 1935 skulda bönkunum 5 miljónir króna, og að hann sjálfur og bræður hans mýndu á sama tíma skulda Kveldúlfi 400 þúsundir. Jafn- framt vœri gott að fá skýringu á því, hvaða „rauðliðar“ það eru, sem hafia neytt ólaf sjálf- an til að byggja sér íbúðarhús, sem er svo dýrt, að hann getur ekki staðig straum af því, þrátt fyrir 15—20 þús. kr. árstekjur. Því að þar hefir einhver leikið á „spámanninn" á meðan hann var önnum kafinn að „vara við hættunni“- Fiskimaðurinn og aflaklóin. Ólafur Thors, sem talinn er meðeigandi í sjö togurum, hitti fátækan fiskimann með iaflann sinn í fjörunni. „Góð veiði hjá yður í dag, Jón minn“, segir ólafur. „Og ekki held ég, að yður finnist til um þetta smá- ræði, ólafur minn“, segir mað- urinn, „önnur eins aflakló og þér eruð“. ólafur þagði við. Hann hefir aldrei dreglð fisk úr sjó. En sjálfum sér hefir hann gefið viðumefnið „afla- kló“! XIX. árg. Utan úv heimi Nýlega hefir franska. stjórn- in fengið samþykkt lög, sem ætlað er að draga úr halla þeim, sem gert var ráð fyrir að yrði á fjárlögunum. En halli sá var áætlaður hvorki meira né minna en 10—12 miljiarðar franka. 1 lögum þessum er ákveðið, að lækka laun opinberra starfs- rhanna og eftirlaun öll. Á lægri laun nemur lækkunin 3%, en 10% á hærri laun. Tekjuskatt- urinn hækkar um 50%, þó enn meira á háum tekjum. Af tekj- um, sem fást af verðbréfum og hlutabréfum, skal borga 7% hærri skatt en öðruni tekjum. Samtímis þessu hyggst stjórn in að gera ráðstafanir til þess, að lækka verð á nauðsynjum, t. d. matvælum og eldsneyti. Er einnig í ráði að fyrirskipa 10% lækkun á húsaleigu, bæði fyrir íbúðir og skrifstofur. Þessar ráðstafanir hafa sætt töluverðri mótspyrnu hjá þeim, sem þær koma harðast við, en almennt hefir þeim þó verið vel tekið. Fyrir fáum dögum vorú hafn_ ,ai* mjög svæsnar Gyðingaofsókn ir í Þýzkalandi, en lítið hefir borið á þeim1 um skeið. 1 Berlín var lögreglustjórinn, sem þótti gæta réttar Gyðinga of míkið, látinn hverfa frá störfum, en Helldorf greifi settur í embætt- ið í hans stað. Þessi Helldorf er talinn einn af harðfylgnustu andstæðingum vinstri flokkanna og það var hann, sem fyrirskip- aði á eigin ábyrgð handtöku þingmanna úr jafnaðarmanna- flokknum kvöldið fyrir þing- húss brunann. Hefir honum því verið treyst til að vera nægilega harðdrægur við Gyðinga. Strax etfir að hann var skip- aður lögreglustjóri, hófust Gyð_ ingaofsóknirnar fyrir alvöru. Kvöld eftir kvöld „stormuðu“ fjölmennar fylkingar nazista um götumar og hrópuðu: „Nið_ ur með Gyðinga“, Auðsýnið þeim enga vægð“ o. s. frv. — Yrði Gyðingur á vegi þeirna, var hann umkringdur, valin háðuleg og hrakleg orð, jafnvel flettur klæðum og barinn til ó- bóta. Rúður í verzlunarhúsum’ þeirra voru brotnar, á veitinga. stöðum, sem þeir reka, voru stól ar og borð brotin, ljósin slökkt og fólkig látið fara út. Stund- um urðu menn fyrir þessum of_ sóknum, sem ekki voru Gyð- ingar, en voru teknir í misgrip. um. Þannig varð t. d. danskur maður fyrir mjög átakanlega illri meðferð, eftir því sem hermir í blaðinu „Politiken". Samkvæmt seinustu fréttum frá Þýzkalandi virðist ofsókn- unum halda áfram með fullum krafti og sérstaklegja hafa blöð- in gert sitt til að ýta undir of- sóknirnar. Einn háttsettur em- bættismaður hefir gefið út skýrslur, þar sem reynt er að sanna tölulega, að Gyðingar séu sá kynflokkur, sem eigi hlut- fallslega flesta glæpamenn. í Berlín eru 165 þús. Gyðing- ar og í flestum stórborgum Þýzkalands eru Gyðingar 1,8% íbúanna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.