Tíminn - 06.01.1936, Page 1
®ja(bbagi
blaboins e t J. >4t»i
Óltaanaurfau toatax 7 6c*
^fereibsla
efl lanfjclmta 4 SaugaDeg JO.
dirnl 2553 - 061
XX. árg.
Reykjavík, 6. janúar 1936.
1. blað.
Útflutningur land-
búnadarafurda 1935
Ettir Jón Arnason framkvæmdastiöra
Aðalframleiðsluvörur íslenzks
landbúnaðar, sem seldar eru
úr landi, eru sauðfjárafurðir.
Sauðfé hefir jafnan verið helzti
bústofn þeirra, sem landbúnað
hafa stundað hér á landi, enda
mestur hluti landsins bezt til
sauðfjárræktar fallinn. Og það
er ekki líklegt, að um fyrirsjá-
anlega framtíð verði hægt að
gera hin víðáttumiklu fjall-
lendi og heiðalönd betur arð-
bær á annan hátt, en til sumar-
beitar fyrir sauðfé.
Ég hefði viljað fara nokkr-
um orðum um afurðir sauð-
fjárins og meðferð þeirra, en
verð að sleppa því að mestu
að þessu sinn. En ég vil þó
geta þess, að ég álít það einna
mest aðkallandi fyrir íslenzkan
landbúnað nú, að leggja alúð
við kvikfjárræktina, einkum
ræktun sauðfjárins, til þess að
hægt sé að framleiða með sem
minnstum tilkostnaði sem
mestar og beztar afurðir, bæði
til útflutnings og notkunar í
landinu. Ýmsar tilraunir, sem
gerðar hafa verið í þessa átt,
hin síðari ár, hafa farið nokk-
uð í handaskolum, svo sem inn-
flutningur skozku holdanaut-
gripanna. En þau mistök mega
• ekki verða til þess að vér leggj-
um árar í bát, heldur verður
að stofna til nýrra tilrauna
með meiri fyrirhyggju, en
gert hefir verið hingað til —
Allar þjóðir keppast við að
framleiða sem beztar vprur og
vanda sem mest má verða alla
meðferð þeirra, svo þær þoli
samkeppni á heimsmarkaðnum.
Þessu megum við íslendingar
aldrei gleyma. Þess vegna er
vöruvöndunin eitthvert veiga-
mesta atriðið fyrir alla þá, sem
landbúnað stunda.
Eftir bráðabirgðaskýrslum
um útflutning landbúnaðarvara
fyrstu 11 mánuði ársins, sem
er að enda, var útflutningurinn
sem hér segir:
193 5: 1 934
Vöruteg. kr. kr.
Ull 699,420 kg. 1,110,370 505,630 kg. 675.610
Prjónles . . . . 800 — 4,330 320 — 1.480
Hestar 977 stk. 122,230 930 stk. 114,990
Ostur 50,530 kg. 67,180
Freðkjöt . . . . 1.529,851 — 1,286,040 1,249,890 kg. 947,500
Saltkjöt . . . . 10,863 tn. 845,040 7,743 tu. 573,020
Gærur, saltaðar 332,027 stk. 1,006,500 273,820 stk. 588,340
Do. sútaðar 4,817 — 29,950 2,034 — 11,060
Sauðskinn, afulluð 84,250 kg- 192,630 60,960 kg- 66,430
Garnir, saltaðar 39,290 — 36,730 24,750 — 15,210
Garnir, hreinsaðar 17,660 — 201,660 7,605 — 52,730
Huðir og skinn 78,730 — 136,020 36,380 — 74,010
Refaskinn . . . 693 stk. 43,350 208 stk. 14,650
Minkaskinn . . . 308 — 4,010 126 — 1,210
Rjúpur 63,360 — 81,030 7,115 2,730
Samt. nemur þessi útflutn. kr. 5,117,0,70
Á sama tíma árið 1934 nam útfl. landbúnaðarvara kr.*; S ,138,670
Hér er skýrt frá útflutningn-
um eins og hann var á þessum
11 mánuðum, en talsvert af
þeim vörum, sem taldar eru,
eru af framleiðslu ársins 1934.
Þannig eru af framleiðslu þess
árs um 885 tonn af freðkjöti,
um 8.000 tn. af saltkjöti, um
79.000 kg. sauðskinn og um
190 tonn af ull, svo aðeins séu
taldar stærstu vörumar.
Talsvert hefir verið flutt út í
desembermánuði af ársfram-
leiðslunni, en skýrslur liggja
ekki fyrir um það enn.
Eftir því sem mér er bezt
kunnugt, er öll ársframleiðsla
af ull og gærum seld og flutt
út. Þó eru eftir um 100 þús.
gærur, sem verða afullaðar í
vetur. Þvínær allt kjöt, sem
saltað var til útflutnings, er
selt, en af frosnu kjöti, sem
ætlað er til útflutnings,. eru
enn óseld um 1000 tonn.
Ég vil þá skýra með örfáum
orðum frá sölu helztu landbún-
aðarvaranna:
Ull: Islenzka ullin er frem-
ur verðlág. Hinn mikli munur
á grófleika þels og togs gerir
hana ver fallna til dúkagerðar
en jafnhærða ull. Hún er því
mikið notuð til teppagerðar,
og þá venjulega blönduð ódýr-
ari ull. Verkun ullarinnar er
víða nokkuð ábótavant. Og þó
enn vanti nokkuð á, að gott
samræmi sé í mati uUarinnar,
þá hefir ullarmatið stórbætt
meðferðina og greitt mjög fyr-
ir sölunni. Ullin er nú þvínær
eingöngu seld eftir íslenzkum
matsvottorðum.
Islenzka ullin var seld til
Bandaríkjanna, Bretlands,
Þýzkalands, Danmerkur, Sví-
þjóðar, Noregs og Italíu.
Gærur: Islenzkar gærur eru
taldar mjög góðar og eru því
yfirleitt verðháar. Dilkaskinn-
in eru mjög notuð til hanzka-
gerðar. Það spillir þó gæðum
íslenzku gæranna, að hárram-
urinn er oft skemmdur, líklega
helzt af óþrifum, en oft af illri
meðferð á gærunum. Gærumar
voru aðallega seldar til Þýzka-
lands, Bretlands og Norður-
landa, en auk þess er talsvert
af sauðskinnum (afulluðum)
selt til Bandaríkjanna.
Hestar voru eingöngu seldir
til Bretlands og Danmerkur.
Var mikið reynt til að selja
hesta í Þýzkalandi, en það
tókst ekki.
Saltkjöt var selt i Noregi,
Svíþjóð og Danmörku, lang- !
mest, þó í Noregi. Annarsstað- * 1
ar hefir ekki tekizt að selja |
íslenzkt saltkjöt svo neinu j
nemi.
Frosið kjöt: Helzti markað-
ur fyrir frosið kjöt er í Bret-
landi. Bretar flytja inn um 20
millj. skrokka af frosnu kinda-
kjöti á ári, mest er það dilka-
kjöt. Héðan er eingöngu flutt
dilkakjöt á brezkan markað.
Kjötgæðin líka fremur vel, en
íslenzka dilkakjötið lítur ekki
eins vel út og kjöt af kyn-
föstum fjárstofnum, en á út-
litinu veltur mikið um verðlag
kjötsins, eins og annarra vara.
Verkun og meðferð kjötsins
sætir ekki miklum aðfinnslum,
þó þessi verkunaraðferð sé
ekki nema 10 ára hér á landi.
Árið 1932 og 1933 gerðu
Bretar samninga við allar
þjóðir, sem þangað selja kjöt,
um takmörkun á kjötinnflutn-
ingnum. Var þetta gert til að
halda uppi verði innlendu fram-
leiðslunnar, því Bretar hafa
sjálfir mikla sauðfjárrækt.
Sauðfjáreign þeirra er talin um
85 milljónir. Eftir samningum
við aðrar þjóðir, bar Islending-
um ársinnflutningur, sem nam
aðeins 750 tonnum á ári, en
svo var liðkað til, að við feng-
um 1100 tonna innflutning.
Hafa verið gerðar ítrekaðar til-
raunir til að fá kjötmagn
þetta aukið, en það hefir ekki
tekizt ennþá.
Undanfarin ár hefir unnizt
talsverður markaður fyrir ís-
lenzkt freðkjöt í Svíþjóð og
Danmörku. Á fyrri hluta þessa
árs voru seld um 400 tonn af ís-
lenzku freðkjöti í þessum lönd-
um fyrir verð, sem var fyllilega
sambærilegt verði á brezkum
markaði. Lítur út fyrir, að um
sæmilega tryggan markað sé að
ræða í þessum löndum, þrátt
fyrir það, að aldrei hefir flutzt
þangað frosið kjöt, fyr en farið
var að flytja það héðan. Á
þessu ári hafa verið gerðar
ítrekaðar tilraunir til að fá inn-
flutningsleyfi fyrir íslenzkt kjöt
í Fralcklandi, Þýzkalandi og víð-
ar, þó það hafi ekki borið
árangur.
Útflutningur landbúnaðar-
varanna hefir yfirleitt gengið
mjög vel á þessu ári. Salan
hefir verið greið, og verðið
aldrei eins hátt, á ull og gær-
um, síðan 1929, og kjötverð
ekki eins hátt, síðan 1930. Þar
sem meginhluti útfluttra land-
búnaðarvara fer um hendur
samvinnufélaga, sem jafnan
fylgja þeirri reglu, að ákveða
ekki endanlegt verð, fyr en sölu
er að fullu lokið, get ég ekki
gefið nákvæma skýrslu um
verðlagið. Þó skal ég geta þess,
að ullarverð mun verða um
10% hærra en 1934 og gæru-
Karlakór Reykjavíkur átti 10 ára afmæli 4. þ. m. En >essi
ágæti söngflokkur er nú kunnur um land allt bæði af söng sinum
í útvarpið, og þá eigi síður vegna ferðar sinnar um Norðurlönd á
s. 1. sumri, en för sú var þjóðinni til mikils sóma. — Söngstjóri
karlakórsins er Sigurður JJórðarson tónskáld, en í stjóm hans em
Sveinn 6. Björnsson, Ámi Benediktsson og Lárus Hansson. —
Kórinn hefir á þessum 10 ámm haft samtals 840 söngæfingar, æft
150—160 lög og haldið 80—90 opinbtrar söngskemmtanir.
verð um 15% hærra. Hestar
voru 10—15% verðhærri á
þessu ári, en 1934, þegar frá
eru taldir þeir 200 hestar, sem
seldir voru til Þýzkalands síð-
astliðið ár.
Töluvert af gærum og ull,
sem selt var til Þýzkalands
síðustu 3 mánuði ársins er enn
ógreitt. Kaupendur í Þýzka-
landi hafa að vísu greitt vör-
umar í ríkismörkum, en mörk-
in verða aðeins notuð til vöru-
kaupa í Þýzkalandi, og veldur
þetta auðvitað miklum örðug-
leikum, auk áhættunnar við
gengisfall, öf lengi þarf að bíða
eftir því, að gjaldeyririnn verði
notaður. Verðlag á efnivörum
til iðnaðar, s. s. ull og gærum,
er töluvert hærra í Þýzkalandi,
en á heimsmarkaðnum, en þó er
sá munur minni nú en framan
af árinu, vegna þess, að þessar
vörur hækkuðu talsvert í verði
á heimsmarkaðnum á síðasta
ársfjórðungi, en sú hækkun
náði ekki til Þýzkalands, enda
verða innflytjendur þar I landi
að fá samþykki stjómarvald-
anna fyrir því, hvaða verð þeir
mega borga fyrir vörumar.
landi. Og vonirnar eru litlar um
það, að geta selt héðan kjöt til
annarra landa, en nú hafa verið
nefnd, þó ég telji það ekki með
öllu vonlaust.
Það hefir margt verið rætt
og ritað um landbúnaðarkrepp-
una, sem byrjaði árið 1929, þó
bún gerði lítið vart við sig hér
á landi fyr en síðari hluta árs
1930. Og enn þann dag í dag
virðist mér menn tala og rita
svo, sem lítt eða ekki sé farið
að rofa til. En ef við rennum
huganum yfir þau 5 ár, sem
hðin eru síðan verðhrunið byrj-
aði verður því ekki neitað, að
.umskiptin eru mikil. öldudalur-
inn var 1932. Þá var verð á kjöti
45-50 au. kg., á gæmm svipað og
á ull um kr. 1,20. — Árin 1933,
1934 og einkum 1935 hefir
þetta breytzt stórkostlega.
Kjötverð er nú um það bil 80%
hærra, gæmverð allt að 100%
hærra og ullarverð um 65%
hærra en það var 1932. Ég veit
að það vantar mikið á, að verð-
lagið sé orðið eins hátt og það
þyrfti að vera og æskilegt væri,
en ég álít þó, að bændum sé gert
óþarfa erfiði og hugarangur
Sigurður Þórðarson.
með því að sífelt sé klifað á
erfiðleikum og alið á vonleysi
um það, að úr geti rætzt. Verð-
lagið hefir farið batnandi und-
anfarin þrjú ár, og það er þó
alltaf nokkurs virði, þegar
þokar í þá áttina,
Ég ætla engu að spá um það,
hvað næsta ár beri í skauti
sínu. En flest bendir þó tii
þess, að verðlag á landbúnaðar-
vörum sé stöðugt og sízt fall-
andi. Að vísu getur margt
breytzt á þeim 8—9 mánuðum,
sem líða, áður en farið verður
að flytja út landbúnaðarfram-
leiðslu næsta árs. En það er
von mín, að verðið falli ekkl.
Og það er nýársósk mín til
handa íslenzkum bændum, að
náttúran verði þeim hagstæð
og gjafmild og að þeir beri sem
mest úr býtum fyrir erfiði sitt
1 háu afurðaverði,
Hannes Jónsson verzlar við socialista!
Verð á saltkjöti er um 12—
15% hærra en 1934.
Um verð á freðkjöti er fátt
hægt að segja enn. Af um það
bil 1.650 tonnum, sem fryst
voru til útflutnings er ekki bú-
ið að selja nema um 630 tonn,
sem flutt voru til Englands í
októbermánuði. Er ekki leyfi-
legt að flytja þangað meira
kjöt fyr en nú eftir áramótin.
Verð á þessu kjöti var um 25%
hærra en á því kjöti, sem selt
var í London haustið 1934. En
þar sem enn er eftir að selja
rúm 1000 tonn af útflutnings-
kjötinu, er allt óráðið um heild-
arniðurstöðuna. Verðlag er
nokkuð lægra í Bretlandi nú en
það var í haust, en þó hefir
ekki teljandi verðfall orðið á
kjöti þar í landi. Á Norður-
löndum er kjötmarkaðurinn öllu
hærri nú en hann var framan
af árinu, svo ég geri mér sæmi-
legar vonir um söluna þangað.
Helztu örðugleikamir verða í
því fólgnir, að geta selt allt það
kjöt á Norðurlöndum, sem ekki
fæst markaður fyrir í Bret-
Það vakti mikla furðu á dög-
unum, þegar alþýðutrygging-
arnar voru til 2. umræðu í
neðri deild, að Hannes á
Hvammstanga tók ekki til
máls, en annars er hann van-
ur að vaða elginn i flestum
málum, hvort sem hann hefir
vit á þeim eða ekki. Þegar
íhaldsmenn ósköpuðust mest út
af atv.leysistryggingunum, sat
Ilannes sem fastast og stein-
þagði, rétt eins og hann hefði
misst málið. Og þegar til at-
kvæðagreiðslu kom, hjálpaði
Ilannes beinlínis til að koma í
gegn tveim greinum í atvinnu-
leysistryggingunum, sem ella
hefðu fallið vegna séraðstöðu
Magnúsar Torfasonar.
Þá þegar kom upp kvittur
um það, að Hannes hefði gert
einhverskonar verzLunarsamn-
ing við socialista, enda sást
hann um það leyti á eintali
bæði við Jón Baldvinsson og
Ilarald og jafnvel Héðinn.
Viku síðar komst upp um
þetta leynimakk milli Hannesar
og þeirra félaga. Því að við at-
kvæðagreiðslu um fjárlögin,
hjálpuðu socialistar Hannesi
til að koma fram 3000 kr. fjár-
veitingu til Vesturhópsvegar,
sem hann hafði flutt tillögu
um, sem fjárveitinganefnd
mælti á móti. Sviku socialistar
þar með þá starfsaðferð, sem
stjórnarflokkarnir yfirleitt hafa
við afgreiðslu fjárlaganna, sem
er að samþykkja ekki útgjalda-
tillögur, nema fjárveitinga-
nefnd mæli með þeim.
öðruvísi hefir áður þotið í
tálknum „varaliðsmanna“ um
socialista og þeirra mál! —
Og áreiðanlega verður eftir
þessu munað, þegar þeir Hann-
es og Þorsteinn Briem hefja
næst upp rógburðarsóninn um
samvinnu Framsóknarflokksins
við socialista.