Tíminn - 12.06.1937, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.06.1937, Blaðsíða 1
^fgteifceia ©0 lnn|)cimta ^afnat#tt. 1Ö 0imt 2353 — P6#t|)6íf 9Ö1 (öfatbbagi t(atstn> *t I |A n t &cg«q0«i(tnn fostat 7 H- XXI. ár. Reykjavfk, 12. júni 1987. 27. blað. Lögregluransóknn staðfestir hvert ein- asta atriði í frásögn Hermanns Jónas- i sonar á Hólmavíkurfundinum Ólafur æflaði að koma upp 400 manna flokksher, sem velja átti eftir félagaskrá Varðarfélagsins og kosn- ingakjörskrá Sjálfstæðisflokksins. Hann lét skrxfstofu- stjóra sinn í dómsmálaráðuneytinu leggja til við Kr. Kristjánsson, að sér viðstöddum, að fangelsa upp- reisnarforingjana! Aðdragandi lögreglu- | rannsóknarinnar Eins og skýrt var frá í seinasta blaði Tímans, hafa risið allmiklar ! deilur út af ummælum, sem for- .sætisráðherra lét falla á Hólma- víkurfundinum, um fyrirætlanir Ólafs Thors eftir óeirðimar 9. nóv. 1932. pau unnnæli forsætisráðherrans, sem komið hafa þessum deilurn af stað, voru orðrétt svohljóðandi: „Hvað ástandið var órðið alvar- iegt fyrir kosningarnar 1934 sézt liezt á þvi, að eftir 9. nóv. 1932 gaf Óláfur Thors, sem dómsmála- í-áðherra, fyrirskipun um það, að safna saman 400 manna liði í Sundhöliinni á næturþeli, og taka lasta og varpa í fangelsi 20—30 mönnum, sem talið var, að hefðu ’ staðið að óeii’ðunum, þar á meðal nokkrum foringjum Alþýðuflokks- ins. Handtökqrnar skipaði Ólafur Thors að framkvæma kl. 6 að nóttu. Ég neitaði sem lögreglu- stjóri, að framkvæma þessa fyrir- skipun og úrskurðaði mið úr mál- inu, og Kristján Kristjánsson, sem var skipaður setudómari, hafði líka vit fyrir Ólafi Thors. Hann neitaði einnig að framkvæma þetta verk, enda hefði það senni- !ega leitt blóðbað yfir Reykjavík". Fyrst á eftir að ummæli þessi voru birt í blöðum, reyndi Ólafur Thors að hnekkja þeim með stað- hæfingu í Morgunblaðinu um það, að hann hafi aldrei gefið slíka fyrirskipun og rekið Hermann úr ombætti, ef hún hefði verið gefin eg henni ekki verið hlýtt. í Nýja dagblaðinu var þá jafn- barðan sýnt fram á, að ekki að- cins Ólafur Thors, heldur fjölmarg- ir íhaldsmenn hefðu viljað fram- kvæma slíkar fangelsanir og þá jufnframt tilgreint. ummæli úr Morgunblaðinu frá þeim tíma, sem greinilega sýndu slíkt hugarfar. var á það b.ent, að íhaldsmenn liér í bænum hefðu gert fundar- samþykktir um það, að Hermann .Tónasson yrði rekinn, Óiaf hefði langnð til að framkvæma það, en ckki þorað, er til kom. Væru því staðhæfíngar Ólafs í Morgunblað- inu fullkomlega í ósamræmi við raunveruleikann. Ólafur Thors sá því að fullyrð- ingar einar dugðu lionum ekki. Næsta tilraun hans var sú, að reyna að lienda gaman að frásögn orsætisráðherrans og láta Morg- unlilaðið kalla hana „bombu, sem liefði reynst vatnsbóla“. En háðið dugði ekki heldur. Ól- nfur sá að ef undankomu átti að vera auðið, voru góð ráð dýr. Ilann tilkynnir því í Morgun- nlaðinu sunnudaginn 6. þ. m., að hann muni stefna Hermanni fyrir timmælin, en fyrst muni hann þó spyrja liann að því, hvort þau séu rétt eftir honum höfð í blöðunum. þessa ákvörðun tekur Ólafur á tyrra laugard. En fyrirspurn sína sendir hann ekki fyr en á þriðju- dag og sýnir það bezt, að honum hefir ekki verið mikið kappsmál að flýta málinu fyrir kosningar. Forsætisráðherra svarar honum slrax um hæl, að hann kannist lyllilega við ummælin, og varar Ólaf við málshöfðun, því vitni séu til, sem geti staðfest frásögn hafls. Ólafur lét sér þó ekki segjast og tilkýnnir að hann muni stefna Hermanni fyrir ummælin, þegar hann komi í bæinn, en slíkt þýddi það, að rannsókn málsins hefði dregizt fram yfir kosningar, og það var vitanlega það, sem Ól- afur óskaði eftir, því kærunni gat hann flaggað með sem sönnun þess, að hann teldi sig hafa á réttu að standa, en þjóðin gat ekki dæmt um málið eftir rann- sókninni fyrir kosningarnar, þar sem hún var ekki afstaðin fyrir þann tíma. Til þess að fyrirbyggja slíkan drátt málsins fyrirskipaði forsætis- ráðherra því tafarlausa lögreglu- rannsókn í málinu og var hún framkvæmd á miðvikudag og fimmtudag. Fer liér á eftir yfirlit um niður- stöðu þessara rannsókna. Hafa þær eins og vænta mátti staðfest frásögn forsætisráðhorrans í öllum atriðum. Vitnin, sem voru yfirheyrð, voru Kristján Kristjánsson, settur rann- sóknardómari, Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn og lögregluþjón- arnir Guðlaugur Jónsson, Sveinn Sæmundsson og Sigurður Gísla- son, en þeir unnu alíir að hinni fyrirhuguðu liðssöfnun. Níðurstaða rannsókn- arinnar Erlingur Pálsson ber það fyrir í’éttinum, að honum hafi verið fal- ið „að undirbúa aukaliðsöfnun“ og ,.var ákveðið að því vitnið bezt man að liðið skyldi verða 400 menn". Jafnframt því, að liðsöfn- unin var undirbúin „var samið uppkast að skipunarbréfi til þeirra manna sem skipaðir yrðu, og voru þau þess efnis, að viðkomandi maður væri kvaddur til aðstoðar lögreglunni og skyldi mæta í sund- höllinni“. Eyðublöð fyrir slík skip- unarbréf. voru síðar prentuð eða fjölrituð. „Vitnið kveðui’, að það hafi vei’ið ákveðið að liði þessú yrði safnað saman i 3undhöllinni ' og liafði vitnið eftir hoði lögi’eglu- ítjórans fcngið leyfi til þess hjá borgarstjóra eða bæjarvei’kfi’æð- ingi að Sundhöllin yrði notuð í þessu skyni“. Framburður lögi’egluþjónanna, Guðlaugs Jónssonar, Sveins Sæ- mundssonar og Sigurðar Gíslason- ar, en þeir unnu eftir fyrii’skipun Erlings að undirbúningi liðssöfn- ; unarinnar, staðfesti að öllu leyt.i ofangreinda frásögn. En þeir segja líka öllu melra. þeir segja, að alræmdustu smalar , ihaldsins hafi verið látnir hjálpa til við valið á mönnunum og i þelm tllgangi hali Ludvig 0. j Magnússon komið á lögreglustöð- | ina með félagaskrár Varðarfélags- . ins og Heimdallar og Hjálmar JJor- steinsson með kosningakjörskrá Sjálfstæðisflokksins. Ekkert sann- ar það betur, að það var Ólafur Thors sem dómsmálaráðherra sem ákvað og undirbjó þessa liðssöfnun og ætlaði að láta smala sína ‘íyggja það, að í liðið veldust fyrst og fremst ihaldsmenn. Liðið átti að vera m. ö. o. nokkurskonar flokksher íhaidsins, launaður af rikinu, en notaður til að fangelsa andstæðingana og berja fram kröf- ur íhaldsins í verkföllum. En til að byrja með ætlaði Ólaf- ui’ að móta þetta lið með því að íramkvæma handtökur 20—30 helztu uppþotsmannanna. Her- mann Jónasson neitaði að hlýðn- ast þeirri fyrirskipun. Kristján Ki’istjánsson fékkst heldur ekki til að framkvæma hana. Fyrir réttinum skýrir Ki’istján grcinilega frá þessu. Ilann segir frá samræðum milli sín, Ólafs Thors og Guðmundar Sveinlxjörns- sonai’. skrifstofustjóra á þennan lxátt samkvœmt réttarbókunum: „í þeim viðræðum, sem vitnið átti þannig við skrifstofustjórann í viðurvist ráðhcrrans kveður vitnið j skrifstofustjórann hafa hreyft því, hvort ekki værl rétt að handtaka þá menn, sem grunaðir væru um þátttöku í nefndum óeirðum og fórust skrifstofustjóranum i sam- bandi við það orð eitthvað á þá ieið, að réttmætt væri og viðeig- andi að sýna borgurunum, að rík- isvaldið mætti sin einhvers þegar um slík afbrot væri að ræða, sem framin hefðu verið 9. nóvember. Vitnið kveður ráðherrann engar at- bugasemdir hafa gert við þessi ummæli skrifstofustjórans, enda kveðst vitnið þegar hafa talið það útilokað, að handtökur færu fram xneð þvi að það væri með öllu óvíst hverjir væru hinír seku. Er vitnið tók þannig i þetta, kveður það ekki frekar hafa vorið um það rætt“. 1 Enginn kunmigur maður lætur sér það 1 i 1 hugar koma, að skrif- stofustjórinn hefði gei’t slíkar til- lögui’, án þess að liafa talað um það áður við yfirmann sinn, enda saniþykkir hann þær með þögn •iuui og viðurvist. Eii þó mun þvkja líklegra, aö Kristján skorti minni frekar en hitt, að Ól. Th. hafi verið svo orð- ýai’ um fram vcnju, að hann hafi ekki lagt orð í liolg, þótt skrif- úqfustjórinn væri látinn hafa fiamsöguna. En þrátt fyi’ir það er l’cssi vitnisbui’ður næg sönnun þess, að Ólafur Thors hafi xil.iað láta framkvæma þess- ai fangelsanir, en bi’ostið kjark, þcgar bæði Hermann og Kristján noituðu að framkvæma vei’kið. Fi-ambui’ðui Erlings Pálssonar staðfestir líka fullkomlega þá frá- sögn for.sætisráðherrans, að búið hafi verið að skipuloggja hand- töknrnar. Segir um það i réttarskjölunum: „VitniS kveður að meðal lögregl- unnar hafi verið gert ráð íyrir þeim möguleika, að menn yrðu teknir fastir í sambandi við rann- sóknina. . . . Vitnlð kveður hafo verið um það rætt, að heppilegast væri, of til þess kæmi, að taka menn fasta, að framkvæma það árla morguns á tímabilinu kl. 6—8, til þess að komast hjá óspektum í sambandi vlð handtökurnar og þessvegna hafi verið ráðgort að kalla liðið saman í Sundhöllinni árla morguns þann dag, sem hand- tökurnar færu fram, svo það væri til taks*ef á þyrfti að halda. Vitnið tekur það fram, að Her- mann Jónasson forsætisráðherra hafi síðar, er mál þetta barst í tal, skýrt sér frá því, að staðið hati tii eð taka nokkra menn fasta i saín- bandi við rannsóknina, en forsæt- isráðherrann kvaðst hafa afstýrt því“. Ex’ ekki þörf að nefna fleix’i at- riði úr í’éttarskjölunum, því það sem nú hefir verið tilgreint, liefir staðfest frásögn ráðhei’rans í einu óg öllu. Héðan af hjálpa Ólafi Tlxoi’s eng- in mótmæli. Hermann Jónasson rekur sögu málsins í aðaldráttum ...» . . , ... íhaldið stofnaði eins og kunnugt er til. óeirðanna 9. nóvember. pað gerði það á þann hátt, að særa verkamenn í bænum, sem þá voru margir atvinnulausir. J)að lækkaði kaupið hjá þeim lægst launuðu. Afleiðingarnar urðu þær, að stofn- að var til kröfugangna í Reykja- vík. Síðan var efnt til bæjar- stjórnarfundar 9. nóv. JJað var ber- sýnilega gert að yfirlögðu ráði, að bátalarar voru hafðir á húsinu, og þeir, sem verst voru þokkaðir hjá verkamönnum komu með skrifað- ar skammaræður um þá til að æsa fólkið upp. Ég hefi aldrci verið i vafa um, að stofnað var til þess- ara óeirða beiniinis í þeim til- gangi að hindra, að dómurinn yfir Magnúsi Guðmundssyni, sem allir vissu að átti að koma þann dag, yrði kveðinn upp. — Ég ætla ekki að íara frekar út í það, að rekja þetta mál, því að það or mönnum i fersku miuni, en i tilefni af grein í Morgunblaðinu i dag út af vitna- leiðslum þeim, sem nú fara fram i Reykjavík, vil ég minnast á eftir- farandi: Eins og mönnum er kunnugt fór Magnús Guðmundsson frá völdum um stundarsakir eftir að dómur- inn liafði verið kveðinn upp yfir ! honum, en Ólafur Thors tók þá | við. Hann kallaði mig upp i stjórnarráð réit eftir að hann varð í ráðherra, og skýrði mér irá því, aö hann gæti ekki þolaS það, að söku- íiólgarnir, sem hann kallaði svo, mennirnir sem staðið hsfðu fyrir óeirðnnum 9. nóvember, værn látnir ganga iausir og að réttvísin og landstjórnin sýndu sig ekki það sterka, að þessir menn væru þegar í stað handteknir. Ég benti honum á, hvaða afleiðingar þetta myndi hafa, en það kom fyrir ekki, og lagði hann svo fyrir, að safnað vxeri liði, allt að 400 manns, sem stefnt væri saman i sundhöillnni, og síðan kvatt til þess ki. 6 að morgni, að handtaka þá, sem grun- aðir væru. Ég tók þá það ráð, að draga þetta mál á langinn. Skýrði óg yfirlögregiuþjóninum, Erlingi Pálssyni, tró því, 0g var Ólafi Thors sagt, að það hlyti að taka sinn tíma að þetta lið væri skráð og því snfnað saman. Leiddi þetta til Þess, að yfirlögregluþjónninn valdi þrjá menn í samráði við mig, Þá Svein Sæmundsson, Guðlaug Jónsson og Sigurð Gíslason, til þess að semja skrá yfir þá menn, sem átti að kalla saman i sund- höllinni í Reykjavík. Jafnframt voru bútn tll og fjölrituð eyðublöð iil þess að senda út með skipun til þessara manna um að mæta. Með- an þessu fór fram, og málið var þannig dregið á langinn, úrskurð- aði ég mig úr málinu, og sendi þann úrskurð til dómsmálaráðu- neytisins, og sýndi ég dómsmála- ráðherra fram á, að þar sem ég væri búinn að úrskurða mig úr málinu, gæti ég ekki framkvæmt þetta. Eftir að Kristján Kristjáns- son tók við málinu, var farið fram á hið sama við hann, en hann neit- aði að framkvæma þetta, eins og ég hefi áður skýrt frá. Ég hringdi til Kristjáns Krist- jánssonar tveim dögum áður en ég íór úr Reykjavík til þess að rifja upp þessar fyrirskipanir. Ég taiaði jafnframt um þetta mál við Erling Pálsson, sem mundi mjög greini- lcga eftir þessu öllu, og það var hann, sem rifjaði það upp fyrir mér, hverjir þelr 3 lögregluþjénar x’oru, sem voru settir til að skrá liðið, sem safna átti saman í sund- köllinni, og sem nefndir eru hér að framan. Og hann gat þess einn- • ig, að hann myndi það greinilega, að talað hefði verið um, að hand- tökurnar ættu að fara fram kl. 6 að morgni. Ennfremur tók hann það fram, að þau gögn, sem heíði vcrið biiið að undirbúa til að fram- kvæma þetta verk meðak Óiafur yhors var dreginn á langinn, hefðu legið í gömlu lögreglustöðinni uppi i Arnarhváli, og hefði hann rekizt á þau, þegar flutt var í nýju lög- reglustöðina við Pósthússtræti, og hefði þau þá verið eyðilcgð. petta er sannleikurinn i málinu, sagður i fáum orðum. Ásgarði 10. júní 1937. Hermann Jónasaon. Á víðavangi íhaldið hefir haft meirihluta í Rvík. Ihaldið hefir stjórnað Reykja- vík. En sú stjórn fer því alltaf ver úr hendi. Útsvörin fara sí- hækkandi ár frá ári, dýrtíðin vex, kaupgjaldið hækkar, og’ bærinn er að hætta að verða samkeppnisfær. Frægust er stjórn íhaldsins á fátækramál- unum. „Við viljum ekki vinnu, við viljum peninga“, segja sum- ir þurfalingarnir við fátækra- fulltrúana og rífa ávísanirnar á atvinnubótavinnuna, sem þeim eru fengnar. Þurfalingarnir hljóta að vera orðnir mjög margir, kannske fimmti hver maður í bænum. Þetta veit eng inn nema þeir fáu menn, sem með málin fara. Hifct vita menn að helmingurinn af hinum miklu útsvörum fer til þurfa- linganna, eða 2 miljónir króna á ári. Hér þykja það lítil traustspjöll að vera á sveitinni. Fátækraframfærið er ekki rekið fyrir opnum tjöldum. Og alveg sérstaklega er þefcta hættulegt eftir að búið er að afhenda þurfalingum full mann- réttindi og kosningarrétt. Þefcta er ekkert lítill „flokkur", sem þarf til ofanálags 2 milljónir sér til framfæris hér í höfuð- stað hinnar frjálsu samkeppni ofan á öll önnur gæði, atvinnu- bótavinnu og aðrar slíkar inn- réttingar og útsvarsfrjálsir eru þeir. Ihaldið hefir eins atkvæð- is meirihluta í bæjarstjórn Reykjavíkur. Þetta síðasta at- kvæði er talið að vera komið. úr höndum „huldufólksins“, þrufalinganna í bænum. Þess vegna er stjórn íhaldsins á fá- tækramálunum veik, svo veik að fái íhaldið ekki meirihluta á Alþingi nú við kosningarnar, þá tapar það meirihlutanum í Reykjavík í næstu bæjarstjórn- arkosningum. Vitundin um þetta hefir gert íhaldið mátt- laust og móðlaust, nú í kosn- ingunum, og almenningur veit hværnig landið liggur. Ihaldið verður hér aldrei framar meiri- blutaflokkur, frekar en annar- staðar á Norðurlöndum. Flóttinn frá Sjálfstæðisflokknum. Margt hefir gengið á móti íhaldinu frá því er síðast var gengið til kosninga. Þá trúðu þeir, sem flokknum fylgdu á það, að hann mundi komast í meirihluta og fara með stjórn landsins. En þetta fór á aðra lund. íhaldið varð í minni hluta, og íhaldið þolir illa að vera í minnihluta. Þessvegna hafa margir yfirgefið íhaldið síðan þetta var. Auk þess hafa orðið foringjaskipti hjá flokkn- um á þessu tímabili. Hinn nýi foringi veit um liðsmannatapið. Þessvegna reynir hann að ná sér í 'nýja með samningunum við Jón í Dal. Það skilja hinsvegar allir menn, að Framsóknarflokkur- inn gengur sterkari til kosn- inga nú en í síðustu kosning- um, þá nýklofinn, en nú með ljómann af viðreisnarmálum Framh. á 4. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.