Tíminn - 07.07.1937, Qupperneq 2

Tíminn - 07.07.1937, Qupperneq 2
114 T I M I N N Samband ísl. samvínnufélagfa hefír bæft hag sínn um rúmlega eina mílfón króna áríð 1936 Skuldir kaupfélaganna vid_ S.Í.S. hafa lækkað um 4,7 milj. króna síðan 1931 Sala ínnlendra vara, og erlendra, var um 20 mílj. kr. Vaxandi iðnaður og nýting afurðanna Aðalfundur Sambands íslenzkra ‘•amvinnufélaga var haldinn að Laugarvatni dagana 1. og 2. þ. m. Mættir voru fulltrúar frá 38 sam- \ innufélögum. Tvö félög voru tek- in inn í Sambandið á þessum að- alfundi: Kaupfélag Borgfirðinga í Borgarnesi og Kaupfélag Tálkna- fjarðar á Sveinseyri. Eru • þá í Sambandinu 42 samvinnufélög og félagsmannatala þeirra samtals yfir 10 þúsundir. Auk fulltrúanna mættu á fund- inum stjórn og framkvæmda- stjórar S. í. S., skólastjóri Sam- vinnuskólans og fleiri starfsmenn samvinnufélaganna. Auk þess nokkrir gestir, þ. á m. tveir full- trúar frá Pántunarfélagi verka- manna í Reykjavik. Fundarstjóri var Sigurður Bjark- lind og fundarritarar Björn Halls- son, Sigurður þórðarson og Eyj- ólfur Leós. Sala innlandra og crlendra vara. Árið 1936 seldi Sambandið að- keyptar vörur fyrir tæpar krónur 8.000.000,00. þar af frá innlendum iðnfyrirtækjum fyrir tæpar krónur 800.000,00 eða 10% af sölunni. Inn- lendar framleiðsluvörur seldi það fyrir tæpar kr. 11.500.000,00 og frá verksmiðjum sínum seldi það auk þess fyrir rúmar kr. 600.000,00, svo að vörusalan alls 1936 var rúmar kr. 20.000.000,00, og er þa5 rúmnm kr. 4.000.000,00 meira en árið áður. Auk þess seldi Sambandið áburð og grænmeti frá Áburðarsölu rík- isins og Grænmetisverzlun ríkisins fyi'ir samtals rúmlega kr. 820.000,00. Iljá Sambandinu unnu síðastlið- ið ár við verzlunarstarfsemi 66 menn, og í verksmiðjum þess 221 fastir starfsmenn og ca. 70 starfs- rnenn, sem unnið hafa hluta úr árinu sem fastráðnir menn. Tekjuafgangur ársins nam kr. 255.336,75. Formaður Sambandsstjórnarinn- ar, Einar Árnason alþm., setti fundinn. Minntist hann í ræðu sinni sérstaklega sr. Sigfúsar lieitins Jónssonar, sem átt hafði ; sæti í stjórn Sambandsins. Heiðr- ! nðu fundarmenn minningu hans ' með því að risa úr sætum sínum. Skýrslur um hag og rekstui Sambandsins fluttu: formaður (Einar Árnason), forstjórinn (Sig- urður Kristinsson), framkvæmda- ítjóri útflutningsdeildar (Jón Arnason) og framkvæmdastjóri innflutningsdeildar (Aðalsteinn Kristínsson). Forstöðumenn ullar- \ erksmiðjunnar og skinnaverk- smiðjunnar (Jónas þór. og þor- íteinn Davíðsson) gerðu sérstak- !-ga grein fyrir starfsemi þeirra. Sæmundur Friðriksson yfirkjöt- matsmaður flutti erindi um kjöt- matið og þýðingu þess, sérstaklega iiinnar nýju aðferðar við fláningu sláturfjár. Rekstursfé. Rckstursfé Sambandsins við árs- iok skiptist þannig: Eigið fé kr. 1.438.416,08 eða 18.40% Fé samv.m. 2.208.012,87 — 28.24% Aðfengið fé 4.172.048,68' — 53.36% þessu fé var þannig varið: I húseignir, áhöld og vörubirgðir kr. 1.817.054,62 eða 23.24% Innstæða í bönkum og peningum kr. 1.699.011,02 eða 21.73% Útistandandi skuldir, víxlar & skuldabr. kr. 2.106.108,40 eða 26,94% J fyrirtækjum S. í. S. kr. 2.196.303,59 eða 28.09% Hagur Sís batnaði um 1 mlllj. 195 þús. kr. á árinu — og skuldir iélaganna við Sís hafa lækkað um 4 millj. 660 þús. kr. síðan 1931. Skuldir Sambandsins út á við lækkuðu órið 1936 um krónur 468.000,00, og inneignir þess í ijönkum uxu um kr. 727.000,00, svo að hagur Sambandsins út á vlð hefir á árinu batnað um krónur 1.195.000,00. Siðan 1931 hafa skuldir Sam- bandsféiaganna við Sis lækkað um kr. 4.660.000,00 og eru þær nú kr. 1.710.000,00. — Á sama tíma hafa inneignir Sambandsfélaganna hjá S. í. S. aukizt um tæpa eina milljón króna og áttu náiega helmingur sambandsfélaganna inn- stæðu hjá Sambandinu um ára- mótin og höfðu rúmlega 3/4 hlutar félaganna bætt hag sinn gagnvart þ\ í árið 1936. Á árinu hafði Sambandið aukið starfsemi gæruverksmiðjunnar á Akureyri, sem nú heitir Skinna- \ erksmiðjan Iðunn. Er þar nú auk gærurotunarinnar: sútun, hanzkagerð og skógerð. Einnig hefir starfsemi ullarverksmiðj- unnar Gefjun aukizt mjög á árinu. Sigurður Kristinsson forstjóri sagði í skýrslu sinni, að í heild hefði rekstur Sambandsins géngið vel síðastliðið ár, og' fjár- hagur þess stæði föstum fótum. Félagsinenn þess væru nú fleiri en þeir hafa verið nokkurntíma áður og vörusala þess og framleiðsla meiri síðasta ár, en nokkurt ár áður. Iðnrekstur S. í. S. Sambandið rekur nú, eftirtaldar verksmiðjur: Ullarverksmiðjuna Gefjun á Ak- ureyri með saumastofum á Akur- c-yri og í Reykjavík. Skinnaverksmiðjuna Iðunn á Akureyri. Garnahreinsunarstöð og reyk- bús í Reykjavík. Frystihúsið Herðubreið í Reykja- vík og frystihús í Vestmannaeyj- um. Auk þess rekur Sambandið að hálfu móti kaupfélagi Eyfírðinga: Sápuverksmiðjuna Sjöfn ó Akur- eyri og kaffibætisverksmiðjuna Freyju á Akureyri. Á fundinum voru mættir verksmiðjustjóri ullarverksmiðj- unnar Gefjun, Jónas þór, og verk- smiðjustjóri skinnaverksmiðjunnar Iðunn, þorsteinn Davíðsson, og gáfu þeir skýrslu um starfsemi verksmiðjanna, sem þeir stjórna. Klæðaverksmiðjan. þegar Sambandið keypti ullar- verksmiðjuna Gefjun 1930, vann Imn úr 40 þús. kg. af ull á ári, en síðasta ár vann hún úr 127 þús. kg. af ull og skiptist fram- ieiðslan þannig: Dúkar............ 40.954 m. Lopi............ 34.934 kg. Band............. 22.950 — Talsvert miklu var bætt við \ erksmiðjuna af vélum á árinu, þar á meðal 6 nýjum vefstólum, sem hafa gert mögulegt að tvö- íalda dúkaframleiðsluna frá því sem var næsta ár ó undan. Sala á framleiðsluvörum verk- smiðjunnar var kr. 591 þús. Skinnaverksmiðj an. I skinnaverksmiðjunni Iðunn voru afullaðar 124 þús. gærur. Sútað var: 904 húðir til sölu og 294 fy'rir aðra, 4934 sauðskinn til sölu og 166 fyrir aðra, 306 kálfs- skinn til sölu og 255 skinn fyrir aðra. Auk þess voru loðsútaðar 1356 gærur. Á árinu var sett upp skógerð í sambandi við skinnaverksmiðjuna, en vörur frá henni komu ekki á markaðinn fyr en eftir áramót. Skógerðin framleiðir nú 50 pör á dag, karlmanna og unglingaskó, en búizt er við að hægt verði að auka framleiðsluna fljótlega upp i 100 pör á dag. í sambandi við skinnaverksmiðj una, er einnig starfrækt hanzka- gerð, saumaði hún 1027 pör, aðal- lega kvenhanzka. Alls voru seldar framleiðsluvör- ur frá sútunarverksmiðjunni íyrir kr. 66.000.00. í Garnalireinsunarstöðinni voru hreinsaðar 310 þús. gamir. Sápuverksmiðjan Sjöfn seldi á árinu sápuvörur fyrir kr. 182 þús. og kaffibætisverksmiðjan Freyja seldi kaffibæti fyrir kr. 96 þús. Stofnkostnaður verksmiðja Sam- handsins, að undanskildum stofn- kostnaði Freyju og Sjafnar, sem Kaupfélag Evfirðinga á með Sambandinu, er nú orðinn rúmar kr. 1.100.000,00. Skyldí þeím vera órótt? Það er eins og Mbl. og Vísi falli illa að á það sé minnst, að Framsóknarflokkurinn þurfi ekki nema 7 manna liðsauka úr öðrum flokkum til þess að hafa nægilegan meirahluta á Alþingi og stjóma landinu til næstu kosninga. Það skyldi þó ekki vera, að kominn sé upp ótti um það, að „breiðfylkingin“ muni ekki standa alveg eins fast saman núna og ráð var fyrir gert í upphafi kosningabaráttunnar í vor! Það sltyldi þó ekki vera, að einhverjir af hinum óbreyttari liðsmönnum Kveldúlfs væru orðnir langleiðir á því að láta prédika sér væntanlega kosn- ingasigra kjörtímabil eftir kjörtímabil, kosningasigra, sem alltaf reynast ósigrar, þegar á hólminn kemur. Fyrir 10 árum tapaði íhaldið alþingiskosningum í fyrsta sinn. En það átti nú svo sem ekki að endurtalca sig eftir því sem Mbl. sagði. Þá var í- í stjórn Sambandsins voru kosn- ir Björn Kristjánsson kaupfélags- stjóri á Kópaskeri, Vilhjálmur þór kaupfélagsstjóri á Akureyri og þorsteinn Jónsson kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði (endurkosinn). Fyr- ir voru í stjóminni Einar Árnason alþm. og Jón ívarsson kaupfélags- stjóri á Hornafirði. I fundarlolc ávarpaði EinarÁrna- son Jón Gauta Jónsson, fyrv. kaupfélagsstjóra i Kaupfélagi Norður-þingeyinga,sem var mættur ur á fundinum og' sem hann taldi að mundi vera elztur kaupfélags- stjóra hér á landi og alltaf ör- uggur samvinnumaður. Bað hann fundarmenn að risa úr sætum sín- um, sem þeir gjörðu, til viðurkenn- ingar fyrir starfi þessa gamla hoiðursmanns. Jafnframt minntist fundarstjóri, Sigurður Bjarklind, tveggja deild- arstjóra mættra úr Kaupfé- lagi Svalbarðseyrar, sem væru gestir fundarins, en þeir eru Sig- urður Sigurðsson á Halldórsstöð- um og Guðni þorsteinsson, Lundi. — Minntist fundurinn samvinnu- starfs þeirra með þvi að fundar- menn risu úr sætum sínum. haldskjósendum sagt, að Fram- sóknarflokkurinn hlyti að tapa strax á því að vera í stjórnar- aðstöðu. Til frekara öryggis var tekið til þess ráðs, að inn- byrða Sigurð Eggerz og Jakob Möller og skipta um nafn á flokknum. En allt kom fyrir ekki. Ósigur íhaldsins 1931 varð enn meiri hinum fyrri. Sjálfstæðisflokkurinn nýi tap- aði nokkrum þingsætum, sem Ihaldsflokkurinn gamli hafði áður haft. Svo kom nýtt þingrof og kosningar 1933. Þá var Ásgeir Ásgeirsson búinn að hjálpa í- haldinu til að fá ráðherra í samsteypustjóm og Framsókn- arflokkurinn hafði orðið fyrir stórum óhöppum í kjördæma- málinu. Þá átti líka að láta til skarar skríða, og kosninga- skrifstofa íhaldsins var rétt búin að leggja síðustu hönd á listann yfir íhaldsandstæðinga, sem reka skyldi úr embættum — þegar fregnin barst um fall Jóns Auðuns fyrir vestan. Það var þriðji kosningaósigurinn. Og svo kom nýja kjördæma- skipunin með uppbótarsæti handa íhaldinu og nýjar kosn- ingar 1934. Og þá var fundið upp á því stóra herbragði að stofna Bændaflokkinn. Með því átti að kljúfa fylgi Framsókn- arflokksins í sveitunum. íhald- ið hjálpaði til að koma „móð- urskipinu“ á flot í Vestur- Iíúnavatnssýslu og sveik sinn oigin frambjóðanda í tryggð- nm. En all't fór á sömu leið. íhaldið gat ekki sigrað. Það tapaði kosningum í fjórða sinn. Og enn — á síðastliðnu vori — fær ihaldið nýtt tækifæri upp í hendumar. Og nú skyldi berjast til úrslita. Það var vit- ?ð, að Alþýðuflokkurinn hafði með hinum óhyggilegu sam- vinnuslitum við Framsóknar- flokkinn, skapað sér veika kosningaaðstöðu. Aldrei hafa aðrar eins stríðskvaðir verið lagðar á liðsmenn íhaldsins og einmitt í þessum kosningum. Hundruðum þúsunda var Kynningarierðir bænda Eitir Ólai Sigurðsson, bónda á Hellulandi Líklega er það enginn, sem eíast um, að margt gott mætti af því hljótast, ef bændur og sveitafólk ætti þess kost, að íerðast um aðrar byggðir og kynnast búskap og starfshátt- um þar, sjá og þekkja land og fólk víðar en í sinni eigin fæð- ingarsveit eða sýslu. Það er líka að verða viðtekinn háttur meðal nokkurra menningar- þjóða, að lyfta undir slík ferða- lög bænda með nokkrum s'tyrk af almannafé, t. d. í Þýzka- landi. I Ameríku flytja jám- brautarfélög hópa af sveita- fólki ókeypis frá einhverri til- tekinni stöð (t. d. að sunnu- dagsmorgni) á aðra stöð langt í burtu. Þar umhverfis getur svo fólkið skoðað sig um allan daginn og kynnst búskap og háttsemi þess byggðarlags. Brautarfélagið flytur svo fólkið til baka aft'ur að kvöldinu. Þrennt er það, sem sérstak- lega má telja kynningarferða- lögum mest til gildis. 1. Þau eru hvíld og hressing írá því daglega og vanalega. 2. Þau auka þekkingu og yf- irsýn. 3. Þau eru sérstaklega vel fallin til að auka þrótt og framkvæmdaþrá. Að sjálfsögðu hafa allar stéttir gagn af og þörf fyrir ferðalög til að kynnast stéttar- bræðrum sínum annarsstaðar cg starfsháttum þeirra í einu og öðru. En sérs'taklega er þó tændunum slíkt nauðsynlegt vegna þeirrar fjölbreytni sem er í atvinnurekstri þeirra. Ef vel á að vera, þurfa bændur helzt að hafa sérþekkingu á mörgum sviðum t. d. jarðrækt aliri, hirðing heys og áburðar, fóðrun og kynbótum búpen- ings, meðferð véla og áhalda o. fl. Þó er þeim það ekki sízt nauðsynlegt vegna þess að þeir fcru stað og tímabundnari, en flestar eða allar stéttir þjóð- félagsins. Þó undarlegt megi virðast, þá er það nú svo, að fólk það, cr við sveitabúskap fæst, er nú rninna kunnugt, bæði landinu og fólkinu í öðrum sýslum og landshlutum en áður var, þrátt fyrir margfaldlega auknar samgöngur. — Skulu færð að þessu nokkur rök. Allt framundir síðustu alda- mót tíðkuðust kaupafólksferð- irnar milli Suður- og Norður- lands. Það er auðvelt að álykta hvað slík ferðalög hafa haft mikla þýðingu til að auka og viðhalda þekkingu á landi og fólki í öðrum landshlutum ásamt kunnugleika á aðalfjalla- leiðunum. Skemmtileg og við- burðarík hafa þessi ferðalög oft og einatt verið og oftar hafa verið greiddir lokkar við Galtará eða einhverja aðra líka, en þegar Jónas Hallgríms- son var þar á ferð. Þá voru það útróðrarnir, sem unnu í sömu átt. Þeir voru stundaðir í gamla daga svo al- mennt úr sveitum af vestan- verðu Norðurlandi, að varla var nokkur bóndi, sem ekki hafði róið „suður“ fleiri eða færri \ertíðir á sínum yngri árum og sumir fóru til sjóróðra „suður“ eða vestur undir jökul, mikinn hlu'ta af sinni búskap- artíð. Ekki má gleyma skreiðar- ferðunum, þær skemmtilegu vorferðir hafa án efa ekki lítið aulcið þekkinguna á landi og lýð. Ég vil til gamans rifja það upp, sem athuga þurfti áður en lagt var af stað í skreiðarferð- irnar. Fyrs't voru það fjöllin — heiðarnar, þær þurftu að vera orðnar færar — runnar, sem Izallað var. I því tílliti hafði ekki þýðingu að líta í alman- akið eða telja hvað margar vik- ur voru af sumri, því færð og gróður á fjöllum uppi og heið- um, fóru auðvitað eftir fann- dýpi að vetrinum og vorveðr- á'ttunni. Menn, tóku eftir, að snjóskaflar í háfjöllum við byggðina, fylgdu mjög eftir leysingu á heiðum uppi. Þegar vissir skaflar í heima- fjöllum höfðu fengið vissa stærð og lögun var þessi eða þessi fjallaleiðin fær. Þannig er t. d. í Mælifellshnjúk í Skagafirði snjóskafl, sem líkist hesti að lögun til að sjá. Þenn- an skafl leysir þannig, að fyrst grennist hesturinn um bógana unz rifa kemur þvert í gegn- um hestinn, og þegar hestur- inn í hnjúknum var tekinn sundur um bógana var Stóri- sandur fær. Á líkan hátt lögðu menn merki til um færð fjall- vega í mörgum byggðarlögum. Þá voru það hestarnir, þeir þurftu að ganga undir próf. Ekki mátti fara með svo hold- granna hesta að þeir uppgæf- us't á miðri leið og yrðu þannig til vandræða. Þeir voru þannig prófaðir að róinn sjóvetlingur var lagður á milli lærvöðvanna að aftan, ef vetlingurinn datt ekki niður var hesturinn fær til ferðarinnar. Hann hél't sjó- vetlingi, sem kallað var. Auð- vitað þurfti allur reiðskapur að vera hinn traustasti og vel eft- irli'tinn. Að síðustu vil ég nefna grasaferðimar. Það indæla úti- líf uppi á fjöllum eða fram til heiða fyrir og um Jónsmessu hefir verið ákaflega hressandi, fcftír langan vetur, einhæf störf c-g ill húsakynni. Enda man ég að gamalt fólk í Skagafirði sagði mér frá sínum grasaferð- um með miklum fjálgleik, þar sem það hafði legið við „grös“ 2—3 vikur frammi í Guðlaugs- tungum, á Hveravöllum í Hvannadölum og víðar. Þetta sem nú var nefnt hef- ir vafalaust átt slhn þátt í því að viðhalda þeirri menningu, sem hér lifði þrátt fyrir skor- inn skammt og ýmsa óáran. Nú eru kaupafólksferðir, skreiðarferðir og grasaferðir lagðar niður, en útróðrarnir eru að mestu stundaðir af mönnum úr kauptúnum og ver- stöðvum. Sveitafólkið situr fastar og fastar bundið við sín vanastörf, eftir því sem fólkinu fækkar á heimilunum. Það smáhættir að eygja fegurð og möguleika sveitar sinnar og áhuginn dofn- ar til úrræða og átaka á sviði framkvæmdanna. Þetta hafa ýmsir góðir menn séð á undanfömum árum og beitt sér fyrir því að koma aí stað kynningarferðalögum bænda. Fyrsta tilraunin í þessa átt var „Bændaförin“ 1910, þegar 30 bændur og bændaefni úr Norðlendingafjórðungi fóru kynnisför um Borgarfjörð, Ár- nes- og Rangárvallasýslur og norður Kjöl til baka. Upptök og framkvæmd að þessu átti Ræktunarfélag Norð- urlands eða að ég hygg þáver- andi forstjóri þess, Sigurður Sigurðsson fyrverandi búnað- armálastjóri. S’tyrkti R. N. þrjá bændur úr hverri sýslu í fjórðungnum með 30 kr. hvem. Ég, sem þetta rita, var einn þátttakandinn í förinni og verð- ur hún án efa ógleymanleg skemmtiferð, fyrir u'tan ýmsa hagnýta þekkingu, sem okkur veittist á mörgum sviðum. í samsæti er Búnaðarfélag íslands hélt norðlenzku bænd- unum var mjög talað um ágæti slíkra kynnisfara og þýðingu þeirra fyrir íslenzka búnaðar- menningu. Ennig var um það talað, hver nauðsyn væri á, að slíkar reglubundnar kynnisfar- ir milli bænda af Suður- og Norðurlandi gætu hafizt sem fyrst. Annað sporið var, að 12 bændur af Suðurlandi fóm um Norðlendingafjórðung árið 1918. Styrkti Búnaðarfélag Islands för þeirra að einhverju leyti. Þessi för var nokkurskonar kvittun fyrir heimsókn norð- lenzku bændanna. Síðan þetta hafa kynnisfarir bænda legið í algerðu þagnar- gildi, þar til Hermann Jónas- son núverandi forsætisráðherra ritaði merkilega grein um mál- ið í Tímann 1933. Þar er fyrst lireyft hvílík nauðsyn það sé að nokkmm bændum gæfist kost- ur á að fara utan við og við. Þessi uppástunga að nokkrir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.