Tíminn - 07.07.1937, Page 3

Tíminn - 07.07.1937, Page 3
T 1 M I N N 115 Feðgarnír á Hörgfshóli Nokkur mísmingarorð Ljósmæðraskóli Islands Námíárið hefst 1. október nœstkomandi. Nemend- ur skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri en 30 ára, heilsuhraustir (heilbrigðisástand verður nánar athugað í Landspltalanum). Konur, sem lokið hafa héraðsskólaprópi eða gagnfrseðaprófi ganga fyrir öðrum. Eiginhandarumsókn sendist stjórn skólans á Landspítalanum fyrir 1. september. Um- sókninni fylgi aldurevottorð, heilbrigðisvottorð og prófvottorð frá skóla, ef fyrir hendi er. Umsækjendur, sem hafa skuldbundið sig til að gegna Ijósmdðurumdæmi að námi loknu, skulu senda vottorð um það frá viðkomandi oddvita. Landspítalnum, 30. júní 1937. Guðm. Thoroddsen. Umsækjendur Ijósmæðraskólans eru beðnir að skrifa á umsókn- ina greinilegt heimilisfang. og hver sé nœsta símastöð við heimlli þeirra. safnað í kosningasjóð. Og það, sem ríða skyldi baggamuninn, var stofnun „breiðfylkingar- innar“ með nazista í öðrum armi og „Bændaflokkinn“ i hinum. Og hver er svo niður- staðan? íhaldið tapar þrem þingsætum 'til Framsóknar- flokksins, og neyðist til að gefa Þorsteini Briem tvö af fátækt sinni! Fimm kosningar í röð eru þá búnar að sýna það, að ó- mögulegt er að skapa íhalds- meirahluta á Alþingi íslend- inga. Ætli það sé furða, þó að ein- hverjir væru famir að óltyrr- ast í röðum íhaldsins eftir að hafa komið heim úr fimm or- ustum í röð með sár á baki? Ætli það sé furða, þó að ein- hverjir þessara manna væra orðnir uppgefnir á því að hugsa sér íhaldið sem stóran flokk með meirahluta vonir? Nei, það er sannarlega engin furða. Það er ekkert óeðlilegt, þó að einhverjir af hinum gætnari mönnum Sjálfstæðis- flokksins færu að hætta að láta hafa sig að ginningarfíflum, og reyndu heldur að svipast um eftir samstarfi, sem meir er í samræmi við þjóðarviljann og þróunina í þessu landi. Innfilutniragurion og S, í. S. Málgagn heildsalanna, Morg- unblaðið, er með ónot út af því að vörusala Sambandsins til samvinnufélaga skuli hafa auk- izt til muna á árinu 1936. Þyk- ir blaðinu þetta benda til þess, að skipting innflutningsins hafi verið ranglát samvinnufé- lögunum í hag. Þess ér nú í fyrsta lagi að geta, að af vörusölu Sambands- ins, um 20 millj. kr. samtals, eru HVá rnillj. kr. innlendar vörur og þar að auki 600 þús. kr. í vörum frá verksmiðjum Sís. Aðkeyptar vörur, sem Sís hefir sel't, eru þá tæpar 8 milljónir. Enn þar af eru um 800 þús. kr. vörur frá innlend- um iðnaðarfyrirtækjum, sem ekki koma innflutningshöftun- um við í þessu sambandi. Mbl. finnst það hið mesta hneyksli, að innflutningur Sam- bandsins skuli vera lítið eitt meiri nú en hann var árið 1933. Má það teljast furðuleg dirfska hjá heildsalamálgagn- inu, að ldyfa sér að halda slíku fram. í fyrsta lagi eru erlend- ar vörur til muna dýrari nú en þá. í öðru lagi, er það vitan- legt öllum þeim, sem vita vilja, að kaupfélögin spöruðu inn- kaup sín svo sem frekast var unnt, meðan landbúnaðarkrepp- an kom þyngst niður, og sköp- uðu þannig sín eigin innflutn- ingshöft áður en ríkisvaldið tók í taumana, og það á þeim tíma þegar heildsalarnir enn fluttu inn takmarkalítið. Það má því teljast hið herfilegasta ranglæti, ef miða ætti innflutn- ing þeirra eingöngu t. d. við ár- ið 1933 og láta þau þannig gjalda varfærni sinnar. I þriðja lagi hefir félagsmönnum sam- vinnufélaganna og Sambands- ins fjölgað, og þurfa þá um leið á meiri innflutningi að halda. Þáð er óhætt að segja heild- sölunum og málgögnum þeirra það í ei'tt skipti fyrir öll, að svo lengi sem þjóðin felur Fram- sóknarflokknum að fram- kvæma innflutningstakmarkanir á þessu landi, mun réttur neyt- endanna til að kaupa sjálfir inn h'fsnauðsynjar sínar verða meir \irtur en réttur einstakra lieildsala til að flytj a inn vorur í þeim tilgangi að hafa af þeim solugróða. Enda er nauniar: liægt að hugsa sér meiri ósvinnu en þá að synja félags- skap neytendanna um innflutn- ing til eigin þarfa til þess að kaupmenn geti grætt á að selja þeim vörur, sem neytendumir sjálfir óska að flytja inn. Með því væri stöðvuð hin eðlilega þróun í verzlunarmálum, sem ev sú, að neytendurnir sjálfir og félög þeirra, auki innkaup sín ár frá ár, en kaupmanna- verzlunin minnki sama skapi. Og nú, þegar málstaður heildsalanna, sem betur fór, hefir beðið ósigur í kosningun- um, verða þeir að láta sér lynda Þegar ég fluttist hmgað að Þóreyjaraúpi fyrir 30 árum, komst ég brátt í kynni við ung- an mann á næsta bæ. Mér geðjaðist fljótt vel að hinum b'fsglaða, tápmikla, unga, manni og urðum við góðir kunningjar, sem haldizt hefir síðan. Nú hefir hinn slingi sláttu- maður kallað þennan kunn- ingja minn til æðra lífs og há- leitari starfa, og fjarlægt okk- ur um stundarsakir. Árni Sigurjón Ámason, svo hét hann fullu nafni, var fædd- ur 16. júní 1888 á Hörgshóli í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann var sonur Áma Árnasonar og konu hans Rósu Guðmunds- dóttur. Bjuggu þau hjón góðu húi á Hörgshóli í mörg ár. Er Arni látinn fyrir allmörgum árum. Rósa móðir Sigurjóns er enn á lífi, nú á níræðisaldri. Hefir hún verið hjá Sigurjóni syni sínum síðan Árni maður hennar andaðist. Árni var dugnaðarbóndi og einn af þeim, sem bjó alla sína tíð upp á gamla móðinn. Hann sótti búskapinn fast, notaði jörð sína til hins ítrasta og liélt börnum sínum mjög til vinnu. Sigurjón varð því ungur að ganga í hinn harða skóla lífsins og æfa huga og hönd við hin daglegu störf sveitafólks- ins. Úr þessum skóla kom Sig- urjón með ódeiga karlmanns- lund og kom það. honum að góðu haldi síðar, við örðugan einyrkjabúskap. að réttlæti sé fram fylgt. Nöld- ur þeirra út af skiptingu inn- flutningsins getur ekki orðið til annars en að minna á það, að ef innflutningsnefnd að ein- hverju leyti er átöluverð fyrir bessa skiptingu, þá er það frem ur .fyrir það, að hún hafi tekið óþarflega mikið tillit til áróð- urs heildsalanna, heldur en hitt, að hún hafi dregið fram rétt oeytendanna meir en rétt og s.iálfsagt var. Sigurjón dvaldi allan aldur sinn á Iiörgshóli utan 2 ár er hann hjó á Hvoli í sömu sveit. Bjó hann allmörg ár á litlum parti af jörðinni á móti föður sínum, en tók við allri jörðinni að föður sínum látnum. Á síðustu ái’unum byggði Sigurjón lítið en snoturt í- veruhús úr steinsteypu, ásamt nokkrum fleiri varanlegum ’imbótum. En árlega varð hann að verja miklum tíma og erfiði í viðhald hinna hrörlegu húsa- kynna, þar sem. efni voru af skornum skamti, og ekki fært að leggja í mikinn tilkostnað. Er það mikil fórn, sem færð hefir verið af bændum lands- ins frá fyrstu tíð, til vorra daga, í viðhaldi óviðunandi húsakynna, og óskandi væri að eftirmæli næstu kynslóðar hefðu ekkert af því a,ð segja. Sigurjón naut engrar mennt- unar í æsku, utan hinnar venjulegu bamafræðslu, sem á þeim dögum var af skomum skammti. Hugur hans mun aðallega hafa staðið til söng- r.áms. Hann var söngelskur og hafði skæra og mikla söng- •Ödd. Hann var orgelleikari í Preiðabólsstaðark rkju um 20 ára skeið, án þess að hafa notið nokkurrar tilsagnai sem heitið gat. Sigurjón var hár maður vexti og karlmannlegur, djarf- ur í framgöngu og bar höfuðið hátt. Hann var vinsæll maður og óáleitinn, og óhætt mun að fullyrða, að hann hafi engan óvildarmann átt. Hann var glað- ur og einlægur eins og bam. Ef til vill var barnshugurinn það sérkennilegasta í fari hans og þann dýrmæta eiginleika varðveitti hann til síðustu stundar. Sigurjón kenndi nokkurrar vanheilsu á síðastliðnu hausti. En hinn banvæni sjúkdómur lagði hann á sóttarsæng um síðastliðin áramót. Lá hann síðan rúmfas'tur lengst af þungt haldinn. Hann andaðist 25. marz, sem bar upp á skír- dag. Hinn kvalafulla sjúkdóm bar hann með aðdáanlegri karlmennsku og sálarró, og eft- ir að hann vissi að hverju draga mundi, ráðstafaði hann öllu, sem í hans valdi stóð, viðkomandi framtíð konu sinn- ar. Sigurjón var kvæntur Guð- björgu Sigurðardóttur, systur Stefáns heitins skálds frá Hvítadal, greindar- og mynd- arkonu. Lifir hún mann sinn á- samt fjórum sonum þeirra, sem allir eru uppkomnir og hinir efnilegustu menn. Einn sonur þeirra hjóna er nýlátinn. Við vinir hins framliðna góða manns, sem þekktum hann bezt, vitum hvað mikið þau hafa misst, söknum með þeim og blessum minningu hans. ------ Sama daginn og Sigurjón andaðist barst sú sorgarfregn vestan af Hellissandi, að Björn sonur Sigurjóns hefðí andast þann sama dag. Björn var r.æst elzti sonur Sigurjóns, 22 ára, fæddur 4. ágúst 1914. Björn hafði gengið á Laugar- vatnsskóla og síðan á Kenn- araskólann og útskrifaðist þaðan á síðastliðnu vori. Hann var kennari við barnaskóla síð- astliðinn vetur vestur á Hellis- sandi. Björa var prýðilega gef- inn, stilltur og prúður í fram- göngu, svo af bar, reglusam- ur og laus við allan útslátt. Hann var gæddur óvenjugóðum rámsgáfum. Það stóðu því bjartar vonir til hans frá fjöl- skyldu hans, sem nú eru að engu orðnar, við hið sviplega fráfall hans, þegar hann hafði stigið fyrstu sporin á mennta- braut sinni með mikilli prýði. Björn var myndarlegur á velli 0g hafði verið hraustur til heilsu. Hann lézt af afleiðing- um inflúenzu. Við fráfall þeirra feðga er þungur harmur kveðinn að eft- irlifandi eiginkonu og móður, og sonum hennar. Dauðinn kallaði þá báða sama daginn. Annan á miðjum aldri, hinn í blóma lífsins. Ég enda þessi fáu minning- arörð með þeirri ósk, að Guð- björg og synir hennar geti í fullu trausti tekið undir með trúarskáldinu góða, Matthíasi Jochumssyni: „Hvað er Hel —? öllum líkn, sem lifa vel. — Engill, sem til ljóssins leiðir, ljósmóðir, sem hvílu reiðir, sólarbros er birta él, heitir Hel.“ ól. G. bændur f ái árlega . tækif æri til að fara u'tan og ferðast um Norðurlönd er alveg ný og áreiðanlega stórmikils virði fyrir þróun íslenzkrar landbún- aðarmenningar. Ekki er bænd- um síður þörf að kynnast stéttarbræðrum sínum í öðrum londum en t. d.: prestum, læknum, kennurum og iðnaðar- mönnum o. fl„ en u'tanferðir þessara stétta eru að verða nokkurn veginn fastar og sjálf- sagðar. Sem betur fer virðist svo sem ráðherrann ætl: ekki að láta lenda við orðin tóm um þetta mál. Síðastliöið sumar voru fyrir hans tilstuðlan styrktir fimm bændur 'til ferða- laga um Norðurlönd og dvalar á búnaðarnámskeiði Norræna félagsins er haldið var við há- skólann í Ultuna í Svíþjóð. Það mun vera eins dæmi í nútímasögu þjóðarinnar að svo margir bændur hafi farið utan í einu til að kynna sér búskap nágrannaþjóðanna, en ætti að verða að fastri reglu í framtíð- inni. Það er féleysið, sem hér strandar á sem oftar. Ríkis- sjóður hefir haft mörgu að sinna og sumu allstóru viðkom- andi okkur bændunum nú um tíma. En nú er komin fram ný hugmynd að leysa málið á hinn hagkvæmasta hátt, það er: að bændurnir leggi fram nokkuð af fénu sjálfir, þó þannig, að þeir finni alls ekkert til þess. Hugmyndin er að taka 1— 2% af veittum jarðræktar- styrk hvers árs og leggja í sjóð sem nefnist „Ferðasjóður bænda“. Að sjálfsögðu á ríkis- sjóður að leggja eitthvað á móti. Ef áætlað er að venjulegur jarðræktarstyrkur nemi árlega 500 þús. kr. og tekið væri 11/4%, yrði sú uphæð, sem sjóðnum hlotnaðist 7500 kr. Framlag ríkissjóðs yrði að vera það mikið, að samanlagð- ar árlegar tekjur sjóðsins yrðu ekki undir 12.000 kr. öll ferðalög sem sjóðurinn veitti fé til þurfa að vera vel undirbúin og skipulögð. Væri að sjáífsögðu heppilegast að Búnaðarfélag íslands og bún- aðarsamböndin hefðu það mál með höndum. Tækju á móti umsóknum, ákvæðu hverjum yrði veitt, sæju um leiðbein- ingar fyrir ferðaflokka o. fl„ allt eftir reglugerð, sem samin væri fyrir sjóðinn. Eins og vi’tað er, eru hús- freyjur til sveita mest bundn- ar við störf og stað af öllum þegnum okkar þjóðfélags. Þeim er 'því ekki síður þörf en bænd- unum að njóta þeirrar hvíldar og hressingar, sem góð ferða- lög veita. Er því í alla s'taði sjálfsagt að þær njóti styrks af sjóðnum eins og bændur og bændaefni. Það má hugsa sér, að skipta sjóðnum í tvennt, verja öðrum belmingnum 'til styrktar kynn- ingaferðalögum innanlands, en hinum til að styrkja bændur og bændaefni til ferðalaga um Norðurlönd. Vil ég nú skýra nánar hvern- ig þetta má takast og hve margir er hugsanlegt að geti notið styrks árlega. Ferðalagið innanlands sé miðað við tveggja vikpa tíma nokkru fyrir slátt. Ferðast sé í bílum 15—18 manna, þó aldrei svo þröngt, að ekki sé sæti fyrir 1 eða 2 aukamenn, því leiðsögumann um hvert svæði þarf nauðsynlega. Verð- ur sá maður að vera ákveðinn íyrirfram t. d. af Búnaðarfé- lagi Islands eða búnaðarsam- bandi og vera til taks á vissum stað og tíma um leið og ferð ei hafin um það svæði, sem hann á að leiðbeina um. Til þess að gera ferðalagið sem ódýrast er sjólfsagt að hafa með sér tjald 'til að sofa í þegar gott er veður, nokkrir geta sofið í bílnum. Annað at- i'iði er að hafa nesti að ein- bverju leyti og hitunartæki. (Slík ferðamannahitunartæki eru orðin ákaflega handhæg og fyrirferðarlítil, t. d. nýjasta gerð af sænskum ferðaprímus- um, sem brenna bensíni). — Það mundi auka samhygð og giaðværð meðal samferðamann- anna og oft flýta ferð. Það er engu síður ánægjulegt að stansa á fögrum stað, taka upp r.esti sitt og snæða með góðum ferðafélögum, en fara heim á bæ eða gististað og, bíða þar fcftir hressingu, þar sem oft geta verið misjafnar ástæður tll að taka á móti fólki. Eins og áður er framtekið, er æ'tlast til að verja helmingi sjóðsins eða ca. 6 þús. kr. til innanlands ferðalaga Með þeirri upphæð mætti styrkja 75 manns árlega. Það er: 15 bændur og bænda- efni með 100 kr. styrk hvem cg 30 bændahjón með 150 kr. bver hjón. Þetta verður alls: 15 bændur með 100 kr. = 1500 kr. 30 hjón með 150 kr. = 4500 — Samtals 6000 kr. Þessar 100 kr. á mann munu nær hrökkva fyrir bílfarinu og útbornum eyri við ferðalagið, ef komizt verður að hagkvæm- um samningum um bílana. — Sanngjarnt þykir að bóndi, sem ferðast með konu sína þurfi nokkuð á sig að leggja. Hvað ferðalaginu um Norð- urlönd viðvíkur, þá eru það gjaldeyrisvandræðin, sem mest- um erfiðleikum valda eins og nú standa sakir, en maður von- ar að þau standi ekki til ei- lífðar. Þetta ætti að vera 5—8 vikna ferðalag. — Lagt af stað héðan snemma vors t. d. um sumarmál og komið aftur fyrir slátt. Enginn efi er á því, að flokk- urinn (6—8 menn) á að hafa með sér bíl til ú'tlanda og nota liann þar. (Eimskip kvað flytja bil ókeypis í fari minnst 5 manna). Auðvitað þarf cinhver í flokknum að kunna að aka bíl og akstur á hinum góðu veg- um erlendis er ákaflega auð- veldur. Mjög skýr og greinagóð kort eru til yfir alla vegi svo auðvelt er að rata eftir þeim. Þannig ætti bíllinn að vera útbúinn, að hægt væri að taka upp sæti og búa um sig til svefns í honum. Nokkrir geta sofið í litlu tjaldi, sem hafa þarf með sér. Ekki þarf að ótt- ast kuldann eða rosann því hit- inn og staðviðrið utanlands á þeim tíma árs er okkur ís- lendingum óþekkt. Þetta að hafa með sér bíl, mundi mjög spara gjaldeyri cg færa ferðakostnaðinn til stórra muna niður. Því stærstu útgjaldaliðir við ferðalög er- lendis eru járnbrautar- og bfla- gjöld og gistingar á hótelum. Að kaupa sér mat og aðra hressingu á matsöluhúsum, er tiltölulega ódýrt. Nauðsynlegt er að fararstjóri flokksins hafi farið utan einhverntíma áður og þekki inn á ferðalög erlend- is. — U'tanfararstyrknum má verja þannig: Styrkja árlega tvenn bænda- hjón með 1500 kr. = 3000 kr. cg þrjá bændur 0g bændaefni með kr. 1000 kr. == 3000 kr. En það gerir samtals 6000 kr. Ég hefi í þessum línum bent á og fært nokkur rök fyrir, að íerðalög og kunningsskapur bænda og sveitafólks er minni nú en áður og um leið bent á þá þörf, sem á því er, að bænd- mn landsins gefist kostur á að kynnast og sjá framkvæmdir hver annars og hvemig það mætti helzt takast. Þá er einnig opnaður mögu- leiki fyrir allmarga bændur að sjá önnur lönd, og kynnast starfsbræðrum sínum þar, og á þann hátt draga fróðleik, víð- cýni og framkvæmdahug heim í byggðir okkar lands. Að síðustu er bent á leið til að afla fjár til þessara ferða- laga, sem hefir það til síns á- gætis að þar er að litlu leyti knúið bein't á ríkissjóð og mjög auðvelt er að safna fénu. Ég veit og hefi nokkurn kunnugleika þar á að það verða fáir bændur sem láta sig’muna um 1—2 kr. af hverjum 100 dögum, sem þeir vinna og fá styrk fyrir, og um leið eiga von á að njóta skemmtilegrar ferð- ar, þó ekki sé nema einu sinni eða tvisvar á æfinni. ólafur Sigurðsson Hellulandi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.