Tíminn - 03.03.1938, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.03.1938, Blaðsíða 2
36 TÍM INN Fjárlagaræðan (Frh. af 1. síðu.) uninni nær eingöngu. Rekstrar- halli þeirra hefir orðið um 235 þús. kr. meiri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Fjárveitinga- nefnd hafði að vísu gert þá breytingu á fjárlögunum, að hún áætlaði sparnað í rekstri sjúkrahúsanna 1937 10% af út- gjöldum þeirra, en hinsvegar verður að segja eins og er, að ekki var bent á neinar leiðir til þess að sparnaðurinn gæti framkvæmst, fremur en gert var í sambandi við samskonar sparnaðaráætlun árið 1936. Niðurstaðan hefir nú orðið sú sama og þá, að sparnaðurinn hefir ekki orðið framkvæmdur. Rekstrarhallinn hefir hinsvegar orðið 140 þús. kr. meiri en á- ætlað var, þótt ekki sé reiknað með 10% sparnaðinum. Halli sjúkrahúsanna hefir reynzt 75 þús. kr. hærri en 1936. Verður að álíta að sá mismunur geti ekki talizt óeðlilegur, þar sem hann mun að mestu leyti stafa af hækkuðu verðlagi á kolum og öðrum slíkum nauðsynjum. Launabreytingar skilst mér að hafi orðið sáralitlar frá því sem var árið áður. Rekstur sjúkrahúsanna er orðinn ákaflega þungur baggi á ríkissjóði, og verður að sjálf- sögðu tekinn til rækilegrar at- hugunar af fjárveitinganefnd þessa þings. Þarf að athuga á hvern hátt megi þar koma við sparnaði, en hitt er þýðingar- laust, að gera áætlun um sparn- að, sem engar leiðir virðast opn- ar til að framkvæma. Vegagerð og vega- viðhald 13. gr. A, vegamál, hefir farið verulega fram úr áætlun, eða um 334 þús. krónur. Þar af er að vísu 37 þús. kr. hækkun á þeim vegum, sem lagðir eru fyr- ir tekjur af benzínskatti, en þar sem eyðslan í þá vegi fer eftir því, hvernig ákveðinn tekjulið- ur innheimtist, þarf í rauninni ekki að telja slikt með venju- legum umframgreiðslum, og eru þær þvi rétt taldar 300 þús. kr. á þessum lið. Viðhaldskostnað- ur þjóðvega hefir farið 209 þús. kr. fram úr áætlun, tillag til sýsluvegasjóða um 19 þús. kr., framlag til brúargerða um 30 þús. kr., skrifstofukostnaður vegamálastjóra 17 þús. kr., og nokkrir aðrir liðir minna, enda hirði ég ekki að greina það hér. Eins og allir sjá, þá er það eínkum viðhaldskostnaður þjóðveganna, sem veldur þess- ari miklu umframgreiðslu til vegamála. Haí'ði þó fjármála- ráðuneytið mjög brýnt það fyrir hlutaðeigendum, að reyna að halda viðhaldskostnaðinum inn- an þess ramma, sem fjárlög á- kváðu. Fjárveitingin var kr. 650 þús. Hinsvegar er því hald- ið fram, að ómögulegt hafi ver- ið að halda þjóðvegunum við fyrir minni fjárhæð árið 1937 en kr. 859 þús. Er hér um gífurlega aukningu viðhaldskostnaður að ræða frá því sem áður hefir verið, þrátt fyrir óbreytt kaup- gjald. Verður að geta þess, að á þessu á Alþingi sjálft mikla sök, og eiga flestir þingmenn þar ó- skilið mál. Rétt um leið og gengið var frá fjárlögunum fyr- ir árið 1937, voru samþykkt hér á Alþingi ný vegalög, sem gerðu að þjóðvegum fjölmarga vegi um land allt, er áður höfðu ver- ið í sýsluvegatölu. Þrátt fyrir þessa stórfelldu breytingu, hækkaði þingið ekkert fjárveit- ingu til vegaviðhalds frá því sem var í frumvarpi stjórnar- innar, og sem var vitanlega miðað við óbreytt ástand í þess- um efnum. Samkvæmt upplýs- ingum frá vegamálastjóra eru það hvorki meira né minna en 70 þús. kr., sem viðhald þessara nýju vega hefir kostað ríkissjóð á árinu 1937. Sýnist mér aug- Ijóst, að með núverandi tekjum sínum getur ríkissjóður ekki eytt jafn miklu fé í þessu skyni og gert hefir verið síðastliðið ár. Hlýtur að reka að því fyrr eða síðar, að eitt af tvennu verði að gera: Hækka benzín- skattinn og gangi hækkunin til viðhalds eða breyta aftur um stefnu í vegamálum og færa aftur í tölu sýsluvega eitthvað af þeim vegum sem hafa verið teknir í þjóðvegatölu. Ég geri ráð fyrir, að af þessu tvennu munu margir fremur kjósa fyrri kostinn. Strandferðir, hafnir og vitur Útgjöldin samkvæmt 13. gr. B — til samgangna á sjó — hafa orðið um 83 þús. kr. meiri en fjárlög heimiluðu. Er þetta bein afleiðing af verðhækkun vara til strandferðaskipanna, eink- um kola. Þrátt fyrir þetta hefir rekstrarhalli strandferða- skipanna orðið heldur minni 1937 en 1936, enda urðu skipin fyrir óhöppum árið 1936, sem hækkuðu kostnaðinn. 13. gr. C, vita- og hafnamál, hefir farið fram úr áætlun um kr. 34 þús. Er sú hækkun ein- ungis á rekstri vitamálanna, og gefur ekki nánara tilefni til at- hugasemda að sinni, þar sem hækkunin er á mörgum liðum. Hinsvegar mun þetta auðvitað athugað af fjárveitinganefnd Kennslumál 14. gr. B, kostnaður við kennslumál, hefir farið 215 þús. kr. fram úr áætlun. Hefir það löngum viljað við brenna, að þessi grein færi fram úr áætlun, enda fræðslumálin öll orðin mikið bákn. Hækkun þessi, um- fram áætlun, er á mjög mörgum liðum og get ég ekki farið hér að rekja það til hlýtar, en tveir stærstu liðirnir eru barnakenn- aralaun, sem hafa reynzt 100 þús. kr. umfram áætlun, og rekstrarstyrkur gagnfræðaskóla, sem er 36 þús. kr. hærri en fjár- lög ráðgerðu. Nemendafjöldi í gagnfræðaskólum hefir farið mjög vaxandi, og þar af leiðandi útgjöld ríkissjóðs, því eins og kunnugt er, greiðir ríkissjóður styrk til skólanna í hlutfalli við nemendafjölda. Til verhlegra fyrir- tœhja o. fl. Útgjöld samkvæmt 16. gr., til verklegra fyrirtækja, hafa reynzt um 100 þús. kr. lægri en gert var ráð fyrir. Hafa nokkrir liðir greinarinnar verið svo ríf- lega áætlaðir að nokkur afgang- ur hefir orðið. Greiðslur samkvæmt 17. gr., til almennrar styrktarstarfsemi, hafa orðið 115 þús. kr. minni en fjárlög ráðgerðu. Stafar þetta af því, að kostnaður við alþýðu- tryggingar hefir ekki orðið eins mikill og gert var ráð fyrir. 19. gr., óviss útgjöld, hafa orð- ið 160 þús. kr. hærri en fjárlög ákveða. Sé ég ekki ástæðu til að sundurliða það frekar nú en áð- ur hefir tíðkazt við sama tæki- færi. Að sjálfsögðu koma þessar greiðslur sundurliðaðar í lands- reikningi. Umframeyðsla 19. gr. er mjög svipuð og undanfarin ár. — Nokkarar greinar fjárlaganna 1 Rekstrar yfirlít 1937 GJÖLD. Fjárlög Reikningur TEK JUR: Fjárlög Reikningur 7, gr. Vextir 1.522.000.00 1.754.642.00 2. gr. 1. Fasteignaskattur 400 000.00 410.500.00 8. - Boröfé Hans Hátignar . . . 60.000.00 60.000.00 . - 2. Tekju- og eignaskattur. . . 1.550.000.00 1.677.725.00 9. - Aljjingiskostnaður .... 225.920.00 327.500 00 . - 3- Hátekjuskattur 200.000.00 10. - I. Ráðuneytið, rikisféhirðir. . . 277.746.00 317.645.00 . - 4- Lestagjald af skipum . . . 50.000.00 52.500.00 10. - II. Ilagstofan 64.700.00 65.029.00 . " 5. Aukatekjur 620.000.00 571.624.00 10. - III. Utanríkismál 143.000.(i0 109.849.00 . - 6. Erfðafjárskattur . . . . 50.000.00 66.710.00 11. - A. Dómg'æzla, lögreglustj . . . 1.289.620.00 1.463.750.00 » - 7. Vitagjald 440.000.00 422.442.00 11. - B. /Sameiginl. embættisk. . . . 284.000.00 322.950.00 , - 8. Leyfisbréfagjöld 25.000.00 30.718 00 19. - Heilbrigðismál 774.178.00 1.010.842.00 , ~ 9- Stimpilgjald 500.000,00 529.956.00 13. - A. Vegamál 1.572.852.00 1.907.454.00 , - io. Stimpilgjald áf áv. og kv. 100.000.00 88.323.00 13. - B. Samgöngur á sjó 618.000.00 710.100.00 „ - 11. Bifreiðaskattur 370.000.00 771.324.00 13, - C. Vitamál og hafnarg. . . , 636.450.00 670.286.00 » " 12. Benzíoskattur 250.000.00 14. - A. Kirkjumál 378.120.00 383.314 00 » " 13- Útflutningsgjald . . . - . 650.000.00 871.960.00 14. - B. Kennslumál . , 1.641.567.00 1.856.979.00 , - 14- Áfengistollur 1.0110.000 00 1.226.668.00 15. - Til vísinda, bókm.og lista 216.160.00 221.912.00 , " 15. Tóbakstollur 1.200.000.00 1.491.567 00 16. ~ Til verklegra fyrirtækia . . 3.168.050.00 3.070.231.00 , - 16. Kaffi- og sykurtollur . . . 1.100.000.0(1 1.146.954.00 17. - Alm styrktarstarfsemi . . . 1 544.000.00 1.429.012.00 . - 17- Annað aðflutningsgjald. . , 80.000.00 71.376.00 18. - Eftirlaun og styrktarfé. . . 336.633.00 319.505.00 , - 18. Vörutollur 1.450.000,01) 1.485.930.00 19. - Til óvissra útgjalda .... 100.000.00 263.372.00 , - 19. Verðtollur 1.200.000.00 1.578.393 00 14.858.046.00 16.294.372.00 . - 20. Gjald af innfluttum vörum . 750.000.00 943.447.00 5.809.00 , - 21. Gjald af innl. tollv. o. fl. . . 40.0.000.00 487.151.00 Heimildarlög , " 22. Skemmtanaskattur .... 120.000.00 135.915.00 Þingsáiyktanir . . . . • . . 166.700.00 10.557.00 » " 23. Veitingaskattur 100 000.00 80.288.00 14.141.471.00 Væntanleg fjáraukalög . . . 12.005.U0U.0U Sérstök lög 674.240.00 -1- Endurgr. tollar og innh.laun 280.000.00 17.151.669.00 13.861.471.00 3. gr. A. Ríkisstofnanir: Tekjuafgangur 1.044.334.00 874.457.00 , ' 1. Póstmál 15.860.00 24.000.00 , - 2. Landsiminn 500.000 00 531.000.00 . " 3. Áfengisverziun 1.300.000.00 1.900.000,00 . - 4. Tóbakseinkasala 600.000.00 684.000.00 „ - 5. Rikisútvarp og viðtækjaverzl. 70.000.00 176 000.00 . - 6. Rikisprentsmiðjan 60.000.00 55.000.00 . ~ 7. Rikisvélsmiðjan 10.000.00 10.600.00 , - 8- Reykjabúið 4.000.00 . - 9- Bifreiðaeinkasalan .... 75,000.00 89.300.00 » - 10- Raftækjaeinkasala. . , . . 75.000.00 89.400 00 „ - 11. Grænmetisverzlun 30.000.00 3.589.300.00 -4-Restursh. Vifilsst.b. 4100.00 5.000.00 — Kleppsb. 2100.00 5.000.00 6.200.00 3.583.100.00 3.583.100.00 3. gr. B. Tekjur af fasteignum . . . 20.450 00 20.000.00 4. - Vaxtatekjur 507.070.00 4S8.000.00 5. - Óvissar tekjur 50.000.00 73 555.00 Samtals kr. | 15.902.380.00 18 026 126.00 Kr 15.902.380.00 18.026.126 00 hefi ég ekki nefnt í þessu sam- bandi. Hafa greiðslur samkvæmt þeim orðið svo nærri fjárveit- ingu, að ekki þykir taka því, að telja þær upp hér. Sérstöh lög og þingsályhtanir Þá eru loks nokkrar greiðslur samkvæmt sérstökum lögum, þingsályktunum og væntanleg- um fjáraukalögum. Greiðslur samkv. þingsályktunum hafa numið kr. 166 þús. Aðallega stafa þessar greiðslur af tapi, er ríkissjóður varð fyrir vegna gengisfalls ítalskrar myntar ár- ið 1936, og sem kemur fram í reikningum ársins 1937. Nemur hluti ríkissjóðs af þessu tapi tæpum 120 þús. kr. Það hefir svo oft og ítarlega verið gerð grein fyrir þessu máli opinber- lega, að ég sé þess enga þörf hér, en vitanlega er þetta styrkur til fiskimanna, sem áttu Labrador- fiskinn, er seldur hafði verið til Ítalíu. Ennfremur hafa verið greiddar 20 þús. kr. vegna at- hugunar á raflögnum út frá Sogsvirkjuninni, 10 þús. kr. til fiskimiðarannsókna (framlag á móti fiskimálanefnd) og 5.500 kr. kostnaður við milliþinga- nefnd í bankamálum. Sam- kvæmt væntanlegum fjárauka- lögum, hafa verið greiddar kr. 10.557.00, og eru þar taldar þær greiðslur einar, sem ekki er tal- in nein heimild frá Alþingi til þess að greiða. Þar af hafa gengið til athugunar um bygg- ingu sementsverksmiðju kr. 4.600.00, og rekstrarstyrkur til húsmæðraskólans á Laugalandi kr. 4.600.00. Þá eru ótaldar þær greiðslur á rekstrarreikn- ingi, sem greiddar eru samkv. heimild í sérstökum lögum, án þess að fjárveiting hafi verið ætluð til þeirra í fjárlögum. Að þessu sinni eru greiðslur þessar ærið háar og hafa orðið ríkis- sjóði þungar í skauti. Samtals eru þær að upphæð kr. 674.240.00. Þar af eru nokkuð margar smá- ar greiðslur, sem í raun og veru er ekki ástæða til að gera grein fyrir hér, þar sem þær birtast nákvæmlega sundurliðaðar á sínum tíma, en 3 liðir mynda að- alupphæðina. Er þá fyrst að nefna þátttöku ríkissjóðs í kostnaði af lögreglu Reykjavík- ur, ca. kr. 40 þús. Á árinu 1937 var lögregluliði Reykjavíkur fjölgað svo, að samkvæmt lög- unum um lögreglumenn, var ríkissjóði skylt að greiða % hluta kostnaðar við lögregl- una, eftir að fjölgunin hafði verið framkvæmd. Ákvörðunin um aukningu lögreglunnar var tekin eftir að gengið hafði verið frá fjárlögunum og því ekki reiknað með þessari greiðslu. Annar liður, sem verulega mun- ar um, er framlag til fiskimála- nefndar, kr. 135 þús. Þegar þing var rofið á sl. vori, hafði ekki verið gerð ráðstöfun til þess að mæta fjárþörf fiskimálanefndar þannig að nefndin gæti haldið uppi þeirri starfsemi, sem hún hafði með höndum, unz tóm gæfizt til að leysa fjármál henn- ar til frambúðar. Nú hafa þau verið leyst, en það varð ekki hjá því komizt, að leggja fram fé til starfsemi nefndarinnar á árinu 1937 og kemur það þá vitanlega sem umframgreiðsla á því ári. Vamir gegn f jár- pestinni Þá kem ég að þeim líðum, sem mestum erfiðleikum hafa valdið ríkissjóði. Eru það útgjöldin til varnar útbreiðslu sauðfjárveik- innar, og kostnaður við ýmis- konar rannsóknir og tilraunir í því sambandi. Heildarkostnað- urinn á árinu 1937 vegna veiki þessarar, hefir orðið ca. kr. 740 þús. Eru þá meðtaldar 57 þús. kr., sem greiddar voru til að halda uppi nokkrum verklegum framkvæmdum í þeim héruðum, sem harðast urðu úti vegna veikinnar, umfram það, sem gert hafði verið ráð fyrir í fjár- lögum. En sú fjárhæð er sett í fjárlög ársins 1938 og því eigi talin til útgjalda á reikningi ársins 1937. Að henni frádreg- inni er kostnaður vegna sauð- fjárveikinnar kr. 683 þús. siðast liðið ár. Kr. 120 þús. af því fé hafa verið endurgreiddar úr Bjargráðasjóði. Það, sem ríkis- sjóður hefir því beinlínis greitt í þessu skyni, eru kr. 560 þús. Samkvæmt lögum um varnir gegn útbreiðslu veikinnar, ber EIGNAREIKNINGUR 1937. Inn Fjárlög Reikningur Tekjur samkv. rekstrarreikningi kr. 15.902.380.00 kr. 18.026.126.00 I. Fyrningar................ — 294.051.00 — 357.250.00 II. Útdráttur bankavaxtabréfa — 50.000.00 — 55.000.00 III. Endurgr. fyrirframgreiðslur — 10.000.00 — 10.000.00 IV. Endurgr. lán og andvirði seldra eigna.............. — 100.000.00 — 90.000.00 Greiðslujöfnuður ............. — 82.880.00 — 390.958.00 Kr. 16.439.311.00 kr. 18.927.334.00 Út Fjárlög Reikningur Gjöld samkv. rekstrarreikn. 14.858.046.00 17.151.669.00 I. Afborganir lána: 1. Ríkissjóður: a. Innlend lán 371.969.00 375.835.00 b. Dönsk lán 326.788.00 327.621.00 c. Ensk lán 448.508.00 448.609.00 2. Landssiminn 204.000.00 204.000.00 ----------------------- 1.356.065.00 II. Eignaaukning ríkisstofnana: 1. Landssíminn 125.000.00 225.000.00 2. Ríkisprentsmiðjan 20.000.00 20.000.00 3. Ríkisvélsmiðjan 10.000.00 4. Ríkisútvarpið 39.000.00 5. Búið á Reykjum í Ölfusi 10.600.00 6. Hlutabr. í Raft.verksm. í Hf. 50.000.00 ------------------------- 344.600.00 m. Til bygginga nýrra vita 65.000.00 65.000.00 IV. Lögboðnar fyrirframgreiðslur 10.000.00 10.000.00 Kr. 16.439.311.00 kr. 18.927.334.00 SAMANBURÐUR á skulðum pr. 31. des. 1936 og 1937. 1936 1937 Innlend lán..................... kr. 3.880.240.00 kr. 3.504.405.00 Dönsk lán vegna ríkissjóðs...... — 1.401.150.00 — 1.073.529.00 Dönsk lán vegna veðdeildar...... — 5.698.232.00 — 5.541.580.00 Ensk lán ........................... —32.421.374.00 —31.306.363.00 Lausaskuldir ................... — 1.910.276.00 — 2.648.751.00 Landsíminn: Erlendlán...................... — 1.286.295.00 — 1.092.748.00 Innlend lán og lausaskuldir . . — 347.269.00 — 389.460.00 Kr. 46.944.836.00 kr. 45.956.836.00 Skuldalækkun...................................... kr. 988.000.00 BREYTINGAR á skuldum á árinu 1937: Afb. af föstum lánum rikissjóðs .. kr. 1.356.000.00 Afb. af lausaskuldum............ — 170.000.00 ------------- kr. 1.526.000.00 Hækkuð skuld í Landsbanka .... — 856.000.00 Hækkuð skuld í Handelsbanken .. — 53.000.00 Hækkun á lausask. Landssímans — 52.000.00 ------------- — 961.000.00 Kr. 565.000.00 Afborganir greiddar af öðrum en rikissjóði ...... — 423.000.00 Skuldalækkun á árinu.......................... Kr. 988.000.00 þeim héruðum, sem eigi hafa orðið fyrir veikinni, að endur- greiða ríkissjóði % hluta af beinum kostnaði við varnirnar. Nemur sú fjárhæð, sem ríkis- sjóður á útistandandi hjá hér-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.