Tíminn - 17.03.1938, Blaðsíða 4
46
TÍMINN
Komandi ár
(Frh. af 1. síöu.)
mannssálunum var jafn grunn-
múrað og fyr.
Einni öld eftir að hinir
frönsku heimspekingar höfðu
sótt að kirkjunni, birti Charles
Darwin höfuðrit sitt um upp-
runa tegundanna og skyldleika
alls lífs á jörðunni. Darwin var
sízt af öllu í árásarhug gagn-
vart kirkju og kristindómi.
Hann var eingöngu þjónn vís-
indanna. En uppgötvun hans
gerði að engu bókstafstrúna
um sköpunarsögu biblíunnar.
Þá varð mörgum manni að segja
að úr því náttúrufræðin hefði
haggað eins verulegu atriði í
frásögn ritningarinnar, þá gæti
allt verið rangt, sem stóð skrif-
að í hinni helgu bók. Um stund
stóðu harðar deilur um óskeik-
ulleik biblíunnar. Kirkjan varð
fyrir hörðum árásum og missti
um stund nokkurt fylgi. En
eftir eins mannsaldurs átök
hafði kirkjan fórnað sköpunar-
sögunni 'í hendur vísindanna,
en stóð jafnsterk og fyr. Hún
átti enn óskertar hugsjónir
sínar báðar: Siðspeki Krists og
ódauðleikatrúna. Og með þessi
tvenn andleg verðmæti í hönd-
um var kirkjan voldug yfir hug-
um mannanna.
Kirkjan er þess vegna varan-
legur þáttur í andlegu lífi þjóð-
anna, fyrst og fremst fyrir
þann mikla meirahluta manna,
sem fylkir sér um meginefni
hennar. Auk þess hefir kirkjan
almenna þýðingu fyrir menn,
sem standa utan við kenningar-
svið hennar. Þó að veldi henn-
ar nái ekki til þeirra, þá vita
þeir um mátt hennar í mann-
félaginu. Slíkir menn hafa þá
enga eðlilegri ósk en þá, að
kirkjan verði sem áhrifamestur
andlegur máttur. Að hún leggi
sem mesta áherzlu á kjarna
kristindómsins, en það er lífs-
skoðun Krists sjálfs, og að hún
að öðru leyti taki allar greinar
listarinnar í þjónustu slna. Frá
þessu sjónarmiði er skynsam-
leg efling og göfgun hinnar ís-
lenzku kirkju ekki aðeins á-
hugamál hinna trúhneigðu,
heldur almennt áhugamál allra
sem unna fögru andlegu lifi og
menningu í landinu.
Frh. J. J.
Æfintýrið frá íslandi
til Brazilíu,
ný bók um 400 bls. að stærð,
eftir Vestur-íslendinginn Þor-
stein Þ. Þorsteinsson, hefir ver-
ið send Tímanum. Útgefandi
bókarinnar er Sígurgeir Frið-
riksson bókavörður. Hennar
verður nánar getið síðar.
lag alls þessa fá á sinar herðar
framfærslu þess hlutans, sem
eigi stæðist fjármissinn og
hröklaðist á brott.
Afleiðing alls þessa yrði full-
komið fjárþrot og sú mannraun
að landið yrði að njóta erlends
náðarbrauðs, meir en nokkru
sinni fyr á liðnum hörmunga-
tímum, ef það missti ekki sjálf-
stæði sitt gersamlega.
Vonandi ræðst betur úr en
svo.
Undir framsýni og fyrir-
hyggju komandi Alþingis eigum
við nú hvort við stöndum eða
föllum.
Fjalli í Aðaldal 31. jan. 1938.
Ketill Indriðason.
Tímamannabréf
(Frh. af 1. síðu.)
Nú stendur yfír verkfall á
togaraflotanum, af því að sjó-
menn heimta hærra kaup, en
þeir hafa fengið áður. Eftir fáa
daga má búast við að sjómenn
stöðv i á sama hátt strand-
feröir, og siglingar Eimskipafé-
lagsins milli íslands og annara
landa. Þá hafa verkamanna-
samtökin boðað almennt verk-
samtökin boðað almenna kaup-
deilu í Reykjavík við allar vega-
gerðir og síldarverksm. ríkis.
ins. Jafnhliða þessu banna ná-
lega öll iðnfélög í Reykjavík,
nema trésmiðir, að unglingar
séu teknir til verklegs náms,
og sýna auk þess margháttað-
an yfirgang af öðru tægi, svo
að við má búast, að nýbyggingar
og viðgerðir húsa stöðvist að
mestu fyrst um sinn.
Þannig eru skifti stéttanna
nú sem stendur. Samt er engin
ástæða til að örvænta. Hér þarf
ró, festu og framsýni. Hin
mikla framför undangenginna
ára verður ekki látin leggjast í
rústir, þó að innbyrðiskröfur
stéttanna virðist nú í bili meiri
heldur en efni landsmanna
leyfa. Þeir sem hafa skapað
framfarirnar, munu bera giftu
til að gera þær að þjóðarham-
ingju. J. J.
Steinunn Sigurgeirsdóttir
í Árbót í Suður-Þingeyjarsýslu
átti sjötugsafmæli 12. þ. m. Hún
er fædd í Haga í Aðaldal, dóttir
Sigurgeirs Magnússonar bónda
þar og konu hans, Arnþrúðar
Magnúsdóttur föðursystur Jóns
Trausta.
A víðavangi
Kveldúlfsmáiið í fyrra.
Á Alþingi í fyrravetur reis um
það deiia, sem umtöluð varð um
allt landið, hvort löggjafarvald-
ið ætti að hlutast til um það,
að skuldugasta fyrirtæki lands-
ins, Kveldúlfur, yrði látið af-
henda bönkunum eignir sínar
og gera skil, eftir því sem verða
mætti. Framsóknarflokkurinn
beitti sér þá gegn því, að þessi
aðferð yrði viðhöfð. Hér var ver-
ið að fara inn á nýja leið, sem
telja varð að lægi utan við verk-
svið löggjafarvaldsins, og var
varhugavert fordæmi. í stað þess
beitti Framsóknarflokkurinn á-
hrifum sínum til þess, að láta
hið illa stadda fyrirtæki setja
veð fyrir skuldum sínum, þar á
meðal um 1 millj. kr. verðmæti,
sem bankarnir höfðu ekki rétt
til, ef gengið hefði verið að fyr-
irtækinu. Framsóknarflokkurinn
taldi þann kostinn beztan, ef
unnt væri að rétta Kveldúlf við,
svo að hann gæti haldið áfram
rekstri sínum og fært hann á
heilbrigðan grundvöll. Þessvegna
unnu Framsóknarmenn að því,
að Kveldúlfi yrði gert mögulegt
að koma upp nýtízku síldarverk-
smiðju, þvi að síldin var þá sú
framleiðsla, sem flestir höfðu
trú á, og það með fullum rökum.
Alvarleg mistök.
Það er enginn vafi á því, að
með þessum hætti hefir tekizt
að bjarga handa bönkunum all-
miklum verðmætum, sem annars
hefðu úr greipum þeirra gengið.
Og þrátt fyrir það, sem síðan
hefir gerzt, sýnir það sig, að enn-
þá er bönkunum hagur að því,
að ekki var tekið til hinna
glæfralegu aðgerða, sem sumir
vildu. En því miður hefir björg-
unarstarfið gagnvart Kveldúlfi
sjálfum eigi tekizt svo sem æski-
legast hefði verið.
Svo óheppilega hefir sem sé
til tekizt, að sú björgunarstarf-
semi, sem aðallega var á treyst,
hefir rýran árangur gefið. Enn
þá situr Kveldúlfur uppi með
mestallt sildarlýsið óselt, og
verðið er komið niður í rúman
helming af því, sem það var
þegar fyrirframsölur voru gerðar
seinni partinn í fyrravetur.
Uppgripavon spákaup-
mennskunnar.
Þessi mistök liggja í því, að
forráðamenn Kveldúlfs höfðu
ekki trú á fyrirframsölu. Þeir
héldu, að verðið myndi hækka,
þegar kæmi fram á sumar. Og
í haust, eftir að verðið var farið
að falla, héldu þeir, að það
myndi hækka aftur um nýárið.
Uppgripavon spákaupmennsk-
unnar, sem fyrir 18 árum leiddi
til þess, að saltsíldinni var mok-
að í sjóinn, hefir enn á ný brugð-
izt á tilfinnanlegan hátt.
Allt síldarlýsi landsins frá
fyrra ári, mun nú vera selt,
nema Kveldúlfslýsið. En Kveld-
úlfslýsið, sem enginn veit, hve-
nær kemst í peninga, myndi með
meðalverði sl. árs, hafa numið
mikið á aðra milljón króna í er-
lendum gjaldeyri. Ef bankarnir
nú, sem eðlilegt var að gera ráð
fyrir, hefðu haft þann gjaldeyri
til umráða, um áramót, myndu
yfirfærslumöguleikarnir hafa
verið allt aðrir en raun er á.
Það má vel segja, að hægðar-
leikur sé að vera vitur eftir á,
En mistök eins og þessi, hjá
framkvæmdastjórum Kveld-
úlfs, eru þó ekki afsakanleg.
Það er allt of mikið ábyrgðar-
leysi, að hætta hinum takmörk-
uðu sölumöguleikum íslenzkrar
framleiðslu í fallvaltri von um
stríðsgróða eða þvílík höpp, sem
geta komið, en engin vissa er
fyrir. Þjóðin má ekki við því, að
sú saga endurtaki sig oftar.
Hvað lfður borgarstjóranum?
Aðalkosningamatur Sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórnarkosn-
ingunum í Reykjavlk í janúaT
síðastl. var sá, að Pétur Hall-
dórsson væri búinn að útvega
erlent lán til hitaveitunnar.
Þetta átti að vera sama sem
komið í kring í byrjun desem-
bermánaðar, svo að ekki stæði á
öðru en forml. samþykki brezku
stjórnarinnar, og ef svo ólíklega
færi, að það samþ. ekki fengist,
átti það samt að vera tryggt, að
lánið fengist í Englandi á þann
hátt aö stjórnarsamþykki þyrfti
ekki. Það var gefið í skyn, eftlr
að borgarstjóri kom úr fyrri ut-
anförinni, að lántökunni yrði
ráðið til lykta á bæjarstjórnar-
fundi eftir fáa daga.
En nú er liðinn desember, jan-
úar- og febrúarmánuður og
komið fram í miðjan marzmán-
uð — og enn liggur ekkert fyrir
um það, að staðhæfing Sjálf-
stæðisflokksins ætli að rætast.
Borgarstjórinn er farinn utan í
annað sinn en í Mbl. og Vísi er
dauðahljótt um afrek hans í
hinum brezka fjármálaheimi.
Jafnvel þótt svo kynni að fara,
að lán fengist með meiri eða
„Allir góðir Framsóknarmenn
eru Timamenn. Allir Tímamenn
lesa, kaupa og borga Tímann“.
„Heíur þú reynt þvottaduftíð
PERLA, sem allír lofa svo míkíð“
„Já. jeg held pað nú, það er hreint
það bezta þvottaduít, sem ég nokk°
urntíma hefi notað. Þú ættir að nola
það í næsta þvott“.
minni ókjörum, er það þó þegar
orðið deginum ljósara, að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefir sagt bæj-
arbúum ósatt fyrir kosningarn-
ar, um þaö, hvernig málið hafi
legið fyrir í desembermánuði.
■tg.
Orð og efndir
Sjálfstæðisflokksins.
En enginn, sem fylgzt hefir
með oröum og gerðum Sjálf-
stæöismanna síðustu árin, þarf
að furða sig á þessu. Hjá þeim
hefir aldrei skort stór orð og
mikió yfirlæti um sína eigin yf-
irburði á þessum sviðum. Með
stórkarlalegum fyrirsögnum og
feitletruðum svigurmælum, hafa
þeir deilt á stjórn ríkisins fyrir
þaö, að útgjöld ríkissjóðsins
væru óhófleg, skattarnir dráps-
klyfjar á þjóðinni og ríkisskuld-'
irnar alltof háar. En sjálfir hafa
þeir haft óskert tækifæri til að
láta ljós sitt skína í fjármála-
stjórn Reykjavíkurbæjar. Hvern-
ig standast þeir samanburðinn,
og hvernig hefir þeim tekizt að
lifa eftir sinum eigin heilræðum?
Á sama tíma sem heildarupp-
hæð skatta og tolla til ríkissjóðs
hækkaði um 4}4%, hækkaði
heildarupphæð útsvaranna, sem
Sjálfstæðisflokkurinn lagði á
Reykvíkinga, um hvorki meira
né minna en 70%.
Á sama tíma sem skuldir vegna
ríkisrekstrarins ekki hækkuðu
um einn eyri (1934—36) ukust
skuldir bæjarsjóðs Reykjavíkur
um nærri 2 milljónir, eða 55%.
Og á árinu 1937, þegar ríkið
lækkaði skuldir sínar um 1 millj.
króna, héldu skuldir bæjarsjóðs
Reykjavíkur, undir stjórn Sjálf-
stæðismanna, enn áfram að
vaxa.
„Þóttust menn —
og voru ekki!“
Öll þessi skuldaaukning og
hækkun útsvaranna hjá Sjálf-
stæðisflokknum í Reykjavíkurbæ
stafar af nýrri og aukinni
„eyðslu“, því að bærinn hefir
ekki fyrir þetta fé lagt í neinar
óvenjulegar — því síður arðbær-
ar — framkvæmdir fyrir bæjar-
félagið. Sogsvirkjunin kemur
þessu máli ekki við, því að hún er
Reykjavík. Sími 1249.
Dliðursuðuverksmiðja
Reykhus.
Tniloiunar-
hrínga
smíðar Jón Dalmannsson gull-
smiður, Vitastíg 20, Reykjavík.
Ritstjóri: Glsli Guðmundsson.
að öllu leyti unnin fyrir erlent
lánsfé, sem hér er ekki meðtalið.
Þannig hafa Sjálfstæðismenn
í einu og öllu látið verk sín orð-
unum til skammar verða. Þannig
hefir yfirlæti þeirra reynzt, þeg-
ar þeir sjálfir hafa átt að horfast
í augu við viðfangsefni fjármál-
anna. Þannig hefir sérhver á-
Símnefni: Sláturfélag.
Bjúgnagerð.
Frystihns.
Dönsk stúlka 17 ára gömul
óskar eftir vist á íslenzu sveita-
heimili helzt langt frá Reykja-
vík. Er hraust og heilbrigð, hefir
góð meðmæli og er fús á að taka
þátt í hvaða vinnu sem er. Til-
boð með upplýsingum um kaup
og annað sendist til Dansk-Is-
landsks Samfund, Krystalgade
22. Köbenhavn K.
deila þeirra á pólitíska andstæð-
inga fallið um sjálfa sig, sökum
getuleysis þeirra sjálfra til að
framkvæma það, sem þeir
heimtuðu af öðrum.
Drátturinn, sem orðinn er á
hitaveituláninu, er bara eitt
sýnishornið enn af því að „þykj-
ast menn og vera ekki“.
Framleiðir og selur i heildsöki og smásölu: Niðursoðlð kjöt
og fiskmeti fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fyrst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Ostur og smjör frá Mjálhurhúi Flóamanna.
Veröskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
NÝÚTKOMIP:
Æfintýríð frá Islandi
tíl Brasilíu
eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson
Fœst hjá öllum bóksölum.
Prentsmiðjan EDDA h.f.
MWilHillÉWagHBaBM—BBB