Tíminn - 02.09.1938, Page 4
144
TlMINN
Þætftir úr
bændaförinni
(Fratnhald af 1. síOu.)
fannst þær hálf-faldar, nema
þær, sem voru önnum kafnar við
að standa okkur fyrir beina.
Það er nú orðið til svona með
blessaða hestana, að þeir eru að
víkja af vegunum fyrir bílunum.
Öllum var hvíldin vær á Hól-
um, hvort, sem þeir sváfu úti eða
inni. Það var hugarfriður yfir
öllum eins og staðnum, sem við
vorum á.
Snemma var farið á fætur á
Hólum morguninn 18. júní. Allir
höfðu það á samvizkunni, að hér
væri þess vert, að sofa ekki leng-
ur en endilega þyrfti, því að fyr-
ir langflestum yrði þetta í fyrsta
og síðasta skiptið, er við kæmum
á þennan fornhelga stað, enda
voru allir gestirnir á ferð og flugi
um staðinn úti og inni. Margur
varð hrifinn af fögru skógar-
runnunum í túninu á Hólum,
sem þeir gróðursettu þar og við
héldu, Sigurður Sigurðsson fyr-
verandi búnaðarmálastjóri og
Steingrímur Steinþórsson bún-
aðarmálastjóri, og svo núverandi
skólastjóri á Hólum, Kristján
Karlsson, sem mun halda því í
hinu bezta ásigkomulagi eins og
öllu öðru. Ekki kæmi mér á
óvart, þótt runnarnir í Hólatún-
inu yrðu til að vekja hjá ein-
hverjum Sunnlendingnum, sem
býr á skógarlausri jörð, löngun
til að taka einhvern blett úr tún-
inu sínu, eða móunum í kring og
gróðursetja þar birki og reynir.
Það væru góðar minningar um
þessa för sunnlenzkra bænda og
kvenna, ef við ættum eftir að
sjá fagra skógarbletti hér og þar
við bæi hér sunnanlands. Á Hól-
um var okkur sýnt Karakúlfé og
skozkur hrútur. Allir dáðust að
haldafari skozka hrútsins, en
hinu fénu bölvuðu allir, og þótti
ljótt í alla staði, og varð enginn
til að mæla þeim bót, sem átt
höfðu þátt í að flytja fjanda
þessa inn í landið. Má vera að
sauðfjárpestin. sem nú er að
drepa fé bænda hafi átt sinn
hlut í þeim óhuga, sem þeir lögðu
á fé þessu. Og vist er það eitt, að
miklu er fé þetta ljótara en svo,
að það geti jafnazt við okkar
gamla og góða islenzka sauðfé.
Það verða að vera aðrir en
bændur, er vilja skipta á því fé.
Hvergi var eins vel sprottið
tún sem á Hólum, enda sýni-
lega í góðri rækt. Var og öll um-
gengni þar úti og inni í hinni
fyllstu reglu og til fyrirmyndar
í öllu, smáu sem stóru.
Þegar búið var að skoða sig um
verulega fæst í brúttótekjur
fyrir lítra af 90° heitu vatni. Það
voru ca. 2800 krónur á ári. Nú
er Reykja-vatnið talið verða 80°
heitt er til Reykjavíkur kemur.
Nordenson vill láta vatnið fara
úr ofnunum með 45° hita.
Þvottalaugavatnið gefur þannig
45° hitamismun vegna þess að
það er 90°, en Reykja-vatnið
aðeins 35° hitamismun vegna
þess að það er ekki nema 80°.
Enn er fleira hagræði að 90°
heldur en 80° upphitunarvatni,
en það skal ekki rakið hér. Held-
ur skal reiknað út hve miklar
brúttótekjur myndu fást af
hverjum lítra úr hitaveitunni
frá Reykjum miðað við það
verð, sem áður var fundið við
reynsluna af Þvottalaugaveit-
unni. Það er ofur einföld þrí-
liða:
90° heitt vatn gerir 45° hita-
mismun og fyrir lítrann fæst ca.
kr. 2800,00.
80° heitt vatn gerir 35° hita-
mismun og fyrir hann fæst eftir
sama hlutfalli ca. kr. 2178,00,
sem til hægðarauka má reikna
ca. 2200 kr. i brúttótekjur pr.
lítra úr Reykjaveitu á ári.
VAKA
nýtt tímarit um þjóðfélags og menningar-
mál, byrjar að koma út um mánaðamótin
okt.—nóv. n.k.
VAKA verður óháð einstökum stjórnmála-
flokkum, en tekur ákveðna afstöðu með
núverandi stjórnskipulagi
Pálmi Hannesson
Ingimar Jónsson
Fjöldi ritfærra manna, sem skipa sér í
þrjá stærstu stjórnmálaflokka landsins, eða
eru hlutlausir um stjórnmál, hafa heitið
VÖKU stuðningi.
Af þeim skulu nefndir: Agnar Kofoed-Han-
sen, Ingimar Jónsson, Jakob Thorarensen,
Jónas Jónsson, Magnús Jónsson, Pálmi
Hannesson og Sigurður Einarsson.
Magnús Jónsson
Verð Vöku verður á þessu ári kr. 3,00. Síðan
verður verð árg. kr. 5,00 og stærð hans
18—20 arkir.
Væntanlegir áskrifendur og aðrir þeir, er
erindi hafa VÖKU viðkomandi, snúi sér til
Valdimars Jóhannssonar, Njálsgötu 13 B,
Reykjavík.
Bólusetníngarsprautur
fyrfr bæudur:
Sprautur í nikkeleruðum stokk, með 2 nálum, rúma bólu- :
efni í 10 kindur ................. kr. 12.50 |
Sprautan sjálf, án stokks og án nála . kr. 8.05 ;
Sprautur í nikkeleruðum stokk, með 2 nálum, rúma bólu-
efni í 20 kindur ................. kr. 15.50
: Sprautan sjálf, án stokks og án nála . kr. 8.75 ;
Sprautur með fingurfangi, í nikkeleruðum stokk, með 2 nál- :
um rúma bóluefni í 10 kindur ..... kr. 15.00 ;
Sprautan sjálf, án stokks og án nála . kr. 12.00 ;
I Sprautur með fingurfangi og lausu gleri, í nikkeleruðum ;
stokk, með 2 nálum, rúma bóluefni í 10 kindur kr. 15.00 :
i Laus gler m/stimpli í sömu sprautu . kr. 4.35 ;
Lausar nálar, mjólkurstílar, doðasprautur, geldingartengur, ;
heygrímur, hlustunarpípur fyrir mæðisjúkt fé, ormalyf
fyrir sauðfé o. fl. fyrir bændur ávalt fyrirliggjandi.
AHar ofangreindar tegundir og fleira, sem yður vantar, verð-
ur sent gegn póstkröfu, hverjum sem þess óskar. Skrifið okkur
livað þér þurfið og greinilegt nafn yðar og heimilisfang, og
yður verður svarað um hæl. — Utanáskrift okkar er:
Laugavegs Apótek, Reykjavík.
Kvennaskólinn í Reykjavík
og húsmæðradeíld hans
taka til starfa 1. október.
Bekkir skólans eru fullskipaðir, en á fyrra námskeiöið í hús-
mæöradeildina, sem stendur yfir í 4 mánuði, geta enn komizt að
nokkrar stúlkur og er skorað á þær, sem námskeiðið ætla að sækja,
að gefa sig fram sem fyrst við frú Guðrúnu Briem, Tjarnargötu
28. Sími 3255, sem tekur við umsóknum í fjarveru forstöðukonu.
Fyrirkomulag og meðgjöf sama og s. 1. vetur.
Inglbjörg D. Bjarnason.
Mótsetningarnar í
SjálfstæðísSlokknum
(Frh. af 1. $ÍOu.)
um, kemur þeim ekki til hugar
að halda, að þeim gangi aðeins
til skemmdafýsn og illvilji. Þeir
vilja að málin séu rædd með rök-
um, í stað brennandi ofstækis
og hleypidóma. Þeir vilja „gefa
andstæðingi sínum rétt“ ekki
síður en eigin samherjum. Þeir
telja þess líka fulla þörf á tím-
um, sem eru á ýmsan hátt erfiðir
fyrir þjóðina, að frekar sé reynt
að milda hina pólitísku baráttu
heldur en að auka æsingarnar,
svo sundurlyndið spilli ekki fyrir
sameiginlegum úrræðum þjóðar-
innar gegn erfiðleikunum.
Það er líka fleira en mismun-
andi skoðanir, sem skilur þessa
menn frá heildsölunum. Bónd-
inn, verkamaðurinn, sjómaður-
inn og útgerðarmaðurinn, sem
fylgir Sjálfstæðisflokknum að
málum, hefir allt aðra hagsmuni
en heildsalarnir. Þessir menn
byggja afkomu sína á framleiðsl-
unni. En það eru milliliðirnir,
sem eru þyngsti bagginn á fram-
leiðslunni. Öll okurálagningin
endar fyrr eða síðar á henni. Á-
lagning milliliðanna skapar
hina miklu dýrtíð, sem er undir-
staða hinna miklu krafa til
framleiðslunnar, og veldur því
að margar framleiðslugreinar
standa nú undir meiri byrðum
en þær raunverulega geta borið.
úti eftir föngum, hélt Gunnlaug-
ur Björnsson kennari fyrirlest-
ur ágætan í kirkjunni um sögu
staðarins og lýsti honum fyrir
sunnanmönnum.
Klukkan níu hófst guðsþjón-
usta í Hóladómkirkju, séra Guð-
brandur Björnsson prófastur
messaði.
Mörg var ánægjustundin í
þessari för, en hitt veit ég, að
öllum þótti sú stundin ánægju-
legust, sem við dvöldum í Hóla-
dómkirkju, hvort heldur sem var
undir fyrirlestri Gunnlaugs eða
messu prófasts. Ég átti tal um
þetta við allmarga af samferða-
mönnumim og var enginn á-
greiningur. Ég get hugsað að
fleirum en mér hafi dottið í hug,
þegar komið var út úr kirkjunni,
það sem Einar Benediktsson seg-
ir einhversstaðar, eftir að vera
búinn að hlýða messu, mig
minnir í London: „Ég var sæll.
Ég hafði farið í kirkju og heyrt
til prests“. Allt var þarna vel
sagt, og máttug áhrifin frá
kirkjunni sjálfri og því, sem þar
hefir gerzt og þeim hlutum, sem
hún geymir, svo sem Krists-
Brúttótekjur hitaveitunnar frá
Reykjum verða þvi á ári sam-
kvæmt þessu:
a. Með 168 1. veitu kr. 369.600,00.
b. — 3251. — — 715.000,00.
Ég mun ekki fara út í það að
reikna út hvað þetta allt gerir
í prósentum. Þó vil ég segja það,
að sé samkvæmt þessu reiknað
út hvað verði útkoman eftir að
rekstrarkostnaður er frádreginn.
Eftir verður ca. 1% — einn
prósent — í vexti, afborganir
og arð. Áætlunin sýnir þarna
19,9%!
Við hitaveituáætlunina er
fjölda margt annað að athuga,
sem hér skal ekki rakið. Þó skal
eitt dæmi nefnt. Áætlunin gerir
ráð fyrir að öll hús í bænum
taki við heita vatninu strax á
fyrsta ári. Fyrir því er engin
sönnun. Ekki einu sinni líkindi.
í mörgum húsum í bænum eru
alls ekki miðstöðvar og það
myndi a. m. k. dragast nokkur
ár að öll hús á hitaveitusvæðinu
tækju vatnið.
Hér að framan hefir nú verið
sýnt fram á það hvílíkt fádæma
plagg hitaveituáætlunin er.
Furðar svo nokkurn á því, að
Lækkun dýrtíðarinnar er sam-
eiginlegt áhugamál bóndans,
verkamannsins, sjómannsins og
útgerðarmannsins, en sviptir
milliliðina miklum tekjum.
Þessir menn horfa því heldur
ekki neinum harmþrungnum
augum til áranna 1924—27. Þeir
muna t. d. gerla eftir gengis-
hækkuninni miklu, sem þrengdi
kost þeirra mjög og kom mörg-
um framleiðanda á vonarvöl. En
heildsalarnir græddu.
Hér er því ekki að ræða um
skoðanaárekstra eingöngu, held-
ur líka miklar hagsmunalegar
mótsetningar. Framleiðendurnir
hafa fylgt Sjálfstæðisflokknum
í þeirri von, að hann ynni að
málefnum þeirra og þeir gætu
ráðið þar mestu. Lýðræðissinn-
arnir hafa líka fylgt honum í
þeirri von, að hann fylgdi lýð-
ræðisstefnunni í orði og verki.
En sigur heildsalanna í Knúts-
málinu ætti að sanna þeim, að
þetta hvorttveggja er misskiln-
ingur. Það eru heildsalarnir,
sem ráða, mennirnir, sem eru á
móti lýðræðinu og vilja brjóta
sér leið til valda með því að
„gefa andstæðingi sínum aldrei
rétt“, mennirnir, sem vilja
þrengja kjör framleiðslunnar
með vaxandi okurálagningu og
aukinni dýrtíð. Lýðræðismenn-
irnir og framleiðendurnir verða
að gera sér ljóst, að þeir eiga
enga samleið með flokki heild-
salanna.
myndina hangandi á krossinum,
fegurstu altaristöflu landsins,
fegursta skírnarfont o. fl. Þar
þarf jafnvel hvorki ræðu né söng
til þess að maður komist ofur-
lítið nær guði.
Undir fyrirlestri Gunnlaugs
sat ég af tilviljun hjá gömlum
Skagfirðingi. Þegar Gunnlaugur
var að skýra frá því úr sögu
Hóla, er lík þeirra Hólafeðga,
Jóns Arasonar og sona hans,
voru flutt norður frá Skálholti
og Líkaböng byrjaði að hringja
sjálf, þegar farið var af stað með
líkin, og hringdi alla tíð unz
komið var á Hrísháls, þar sem
sézt heim að Hólum, að hún
sprakk, þá tárfelldi gamli bónd-
inn. Og þegar Gunnlaugur sagði,
að allir Skagfirðingar segðu
lieim að Hólum, þá stóðst ekki
gamli bóndinn mátið og tók und-
ir með tárin í augunum:
„Já, það segjum við allir.“
Framh.
Hap'pdrœtti Reykjaskóla.
Dráttur í happdrættinu fer
ekki fram 4. september, eins
og fyrirhugað var, heldur 1. des.
erlendir bankar vilji ekki lána
út á svona „projekt"? Eða halda
menn að bankarnir hafi alls ekki
kynnt sér hve mikið af kolum
er brennt í Reykjavík. Eftir því
var meira að segja nákvæmlega
grennslast af bönkum þeim, sem
veittu Sogslánið. Rannsókn var
þá látin fara fram á kolanotkun
í Reykjavík og Hafnarfirði og
var hún þá, eftir því sem næst
varð komist, 30 þús. tonn á ári.
Það er þessvegna sannarlega
tími til kominn að láta rann-
saka hvort ekki sé hægt að
upphita Reykjavík með raforku.
Sú rannsókn er tiltölulega auð-
veld, fljótgerð og kostnaðarlítil.
Meirihluti bæjarstjórnar felldi
tillögu þess efnis frá mér á síð-
asta bæjarstjórnarfundi með
því að samþykkja óþinglega og
fruntalega dagskrá frá „pró-
fessor“ Bjarna Benediktssyni.
En það eru til aðrir aðilar en
Reykjavíkurbær, sem geta tekið
það nauðsynjamál upp.
Ég mun í næstu grein ræða
um möguleika á upphitun
Reykjavíkur með raforku frá
stækkaðri Sogsstöð.
Sigurður Jónasson.
Utan úr heimi
(Frh. af 1. síOu.)
verzlunarmálaráðherra í þjóð-
stjórn Mac Donalds, sem full-
trúi þess hluta frjálslynda flokks
ins, sem studdi stjórnina. Hann
gegndi því starfi þangað til vor-
ið 1937, er hann erfði lávarðs-
tignina eftir föður sinn og
stjórnin var endurskipulögð við
fráför Baldwins.
Runciman gat sér ágætt orö
sem verzlunarmálaráðh. Svip-
aðan vitnisburð hefir hann
hlotið fyrir önnur opinber störf,
sem hann hefir gegnt um dag-
ana. Hann er sagður raun-
hyggjumaður, forsjáll og gæt-
inn. Dugnaði hans og samvizku-
semi í störfum er viðbrugðið.
Hann er orðlagður trúmaður og
fylgir metodistum að málum.
Hann hefir aldrei fylgt fast
neinum bókstafskenningum 1
stjórnmálum. Hann hefir verið
of raunsær og gerhugull til þess
að láta þær leggja bönd á dóm-
greind sína. Það er margt sam-
eiginlegt með honum og Cham-
berlain. Skapgerð þeirra virðist
lík og starfsferill þeirra hefir
verið svipaður. Þeir eru einnig
taldir samherjar í utanríkismál-
um. Báðir eru eindregnir friðar-
sinnar. Reynslan sker úr því
hvort leiðin, sem þeir vilja fara,
er rétt. En afstaða þeirra getur
haft meginþýðingu fyrir deilu-
málin í Tékkóslóvakíu.
Aldarafmæli
(Frh. af 1. siðu.)
vanti á að vel sé í því efni. Torfi
í Ólafsdal á áreiðanlega ein-
hvern drýgsta þátt í því, sem
áunnizt hefir.
Nú, á eitt hundrað ára afmæli
Torfa í Ólafsdal, þegar athugað-
ar eru þær stórstígu framfarir,
sem orðið hafa síðustu áratugi,
þá dylst engum að til hans ber
að rekja mjög margar af þeim
umbótum. Hann var brautryðj-
andi í þess orðs beztu merkingu.
Við þökkum honum starf hans
sem skólastjóri og kennari við
fyrsta búnaðarskólann hér. Við
þökkum honum hin marghátt-
uðu störf hans á sviði jarðrækt-
ar og búfjárræktar. Við dáumst
að framkvæmdaþreki og dugn-
aði þess manns, sem skilaði öðru
eins dagsverki og Torfi gerði,
bæði sem kennari, bóndi í Ól-
afsdal og ekki sízt ber að þakka
hina óþrotlegu ástundun hans að
vara bændur við voðanum
mesta, horfellishættunni.
Torfa Bjarnasonar í Ólafsdal
mun verða minnzt, sem þess
manns, er einhvern stærsta
skerf hefir lagt til búnaðarum-
bóta á þessu landi, svo lengi sem
landbúnaður verður stundaður
hér.
Steingr. Steinþórsson.
ÁTTRÆÐUR
Annan júlí s. 1. varð Sigvaldi
Björnsson bóndi á Skeggsstöð-
um í Svartárdal áttræður.
Sigvaldi hefir gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum í sveit sinni,
meðal annars verið í sveitar-
stjórn um margra ára skeið, og
forystumaður um ýmis mál.
Hann hefir verið ákveðinn
fylgismaður Framsóknarflokks-
ins allt frá stofnun hans og
unnið honum mikið gagn í
sveit sinni, og nú fyrir skömmu
eða um það leyti, sem Sigvaldi
varð áttræður, var hann að
vinna af miklu kappi og fjöri,
að innheimtu og útbreiðslu
Tímans, og er það starf hans
mjög til fyrirmyndar þeim, sem
yngri eru að árum. — Tíminn
þakkar þessi störf og óskar hin-
um áttræða atorkumanni á-
nægjuríks æfikvölds.
Námskeíð
fyrir teiknikennara
við iðnskóla úti um land
verður haldið í Iðnskólan-
um í Reykjavík í október
næstkomandi. Farið verður
yfir undirbúningsteikning-
ar og iðnteikningar. Vænt-
anlegir þátttakendur gefi
sig fram við undirritaðan,
sem gefur allar nánari upp-
lýsingar.
Reykjavík 30. ágúst 1938
Hélgi H. Eiríksson.
Aktýgi - Reiffitýgi
fyrir liggjandi og allir sérstakir
hlutir til þeirra.
Allar aðgerðir og pantanir út
um land afgreiddar ávalt með
fyrstu ferðum.
Gísli Sigurbjörnsson
söðlasmiður
Laugaveg 72 Sími 2099
Tílkynníng
Við útdrátt vinninga í
happdrætti Ungmennafé-
lagsins „Ólafur pái“, sem
fram fór á skrifstofu Dala-
sýslu, hafa þessi númer
komið upp:
464 Lindarpenni
1517 Veggmynd
1847 Ljósmyndavél
2085 Útsögunartæki
2391 Silfurrefur
2445 Ljóðmæli Matth. Joch.
2722 Veggklukka
3231 Kaffistell
3481 Bílferð milli Dala og
Reykjavíkur
3841 Saumavél.
Stjórnin.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsm. Edda h.f.