Tíminn - 29.10.1938, Side 4
236
TÍMINN, laMgardaglim 29. okt. 1938,
59. blað
Stanhope lávarður hefir verið
skípaður flotamálaráðherra í
stað Duff Cooper. Hann er 58
ára gamall. Eins og fleiri stjórn_
málamenn Englendinga hefír
hann hlotið menntun sína í
ÚR BÆIVUM
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, séra Friðrik
Hallgrímsson, ferming, kl. 2, séra Bj.
Jónsson, ferming. Messa í Laugames-
skóla kl. 5, séra Oarðar Svavarsson,
bamaguðsþjónusta kl. 10,30. í fríkirkj-
unni í Hafnarfirði kl. 2, séra Jón Auð-
uns. Að Kálfatjörn kl. 2, séra Garðar
Þorsteinsson.
Félag ungra Framsóknarmanna
Tilkynning til
innflytjenda.
Þelr, sem óska að flytja til lamlsins vörur
Eton. Hann tók þátt l heims-
styrjöldinni og hlaut mörg við-
urkenningarmerki fyrir hraust-
lega framgöngu.
John Simon gerði Stanhope að
aðstoðarráðherra slnum í jan-
úar 1934, en hann var þá utan-
ríkismálaráðherra. Áður hafði
Stanhope gegnt háttsettu em-
hœtti í hermálaráðuneytinu.
Stanhope lét af starfi sem að-
heldur aðalfund sinn í Sambands-
húsinu næstkomandi þriðjudagskvöld.
Hefst fundurinn kl. 8% stundvíslega.
Nýir félagar verða teknir inn í fundar-
byrjun.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í Sambands-
húsinu á fimmtudagskvöldið. Hefst
hann kl. 8.30. Fundurinn verður nánar
auglýstur í þriðjudagsblaðinu
Athygll skal vakin
á fyrri helmingi næsta urs, (janúar—júní),
þurfa að senda oss umsóknir 11111 gjaldeyris- og
innflutningsleyfi fyrir 20. nóvember n. k.
Reglulegri úthlutun leyfa fyrir yfirstand-
andi ár er nú lokið og verða því yfirleitt ekki
veitt frekari leyfi til innflutnings á árinu fyrir
stoðarmaður utanríkisráðherr-
ans í júní 1936. Mun þeim Eden,
sem þá var utanrikisráðherra,
ekki hafa fallið sem bezt og
Stanhope að ýmsu leyti verið ó-
samþykkur stefnu yfirmanns
síns. Frá þvl í júnl 1934 og þang-
að til Baldwin lét af stjórnar-
forystu vorið 1937 var Stanhope
verkamálaráðherra. Er Cham-
berlain myndaði nýja stjórn
varð Stanhope menntamálaráð-
herra og hefir verið það síðan.
Stanhope á ekki sœti í neðri
málstofunni. Hann er talinn
mjög fylgjandí stefnu Chamber-
lains.
á auglýslngu 1 blaðinu 1 dag um
fræðslusamkomu í fríkirkjunnl, sem
haldin verður kl. 5 nk. sunnudag. Sam-
koman verður mjög fjölbreytt að efni
og allur ágóði af henni rennur til
kristilegrar starfsemi meðal bama hér
í bænum.
Kvikmyndahúsin.
Gamla Bió sýnir nú ameríska mynd,
sem nefnist Sendiboði forsetans. Er
efni hennar einkum sótt í landnáms-
sögu Kaliforniu, gulifimdinn þar,
þrælastrlðið o. s. frv. Er myndin
skemmtileg og fróðleg að ýmsu leyti.
Nýja Bíó sýnir sænska mynd, sem
nefnist Óþekkti söngvarinn. Eitt helzta
hlutverkið leikur Jussi Björling, sem
nú er frægasti söngvari Norðurlanda,
og ber söngur hans myndina uppi.
vörum, öðrum en óhjákvæmilegum nauðsynj-
um til útflutningsframleiðslunnar, og umsókn-
ir þær sem hér eftir berast því ekki teknar til
afgreiðslu fyr en í sambandi við 1. úthlutun
næsta árs.
Athygli skal vakin á því, að á næsta ári
gerir nefndin ráð fyrir að úthluta leyfum fyr-
ir 6 mánaða tímabil í senn í stað 4 mánaða áð-
ur, og þurfa umsóknir að miðast við það.
* * *
Nýlega hafa þrir enskir bisk-
upar skorað á Chamberlain að
mótmœla við þýzku stjórnina
meðferð á Gyðíngum og katólsk-
um föngum í Þýzkalandi. Þýzka
blaðið „Schwarze Korps“, sem er
málgagn Himmlers leynilög-
regluforíngja, hefir svarað þessu
á þá leið, að slíkir biskupar
myndu verða settir á vitfirringa-
hœlí i Þýzkalandi.
* * *
1390 voru hér eldgos mikil.
Segir svo í árbókum Espólíns:
„Logaði Hekla með miklum
undrum, og Lómagnúpur og
Trölladyngja og allt suður i sjó,
og vestur af Selvogi, og allt
Reykjanes, brann það hálft af
og stendur þar eftir í sjó fram
Dýptarsteinn og Fuglasker, og er
það allt eldbrunnið grjót síðan;
einnig logaði Síðujökull, og mörg
önnur fjöll, og sveitir heilar
eyddust af eldgangi, brann og
víða eldurinn í sjónum, og
brenndi land af sumsstaðar,
hrundu brunnin fjöll, og hlupu
með brunaskriðum í sjó niður."
Stjórnmálahorfur
í Frakklandí
(Framhald af 1. sUSu.)
vinnu við ítali og Þjóðverja, og
Daladier, sem áður var talinn
einn helzti vinstri maðurinn í
flokknum, mun hallast á sömu
sveif. Hinsvegar hefir einn á-
hrifamestí maður flokksins,
Herriot, lýst sig fullkomlega
andvígan þeirri breytingu á ut-
anríkismálastefnu Frakklands,
sem dragi úr vináttu þess og
Rússlands. Herriot er þó einn af
þeim leíðtogum radikalaflokks-
ins, sem er andvígastur komm-
Reykvíkingar,
sem hafa í fórum sínum áskrifta-
lista að fyrsta bindi ritgerðasafns
Jónasar Jónssonar, eru vinsamlega
beðnir að skila þeim nú um mánaða-
mótin. Nýir áskrifendur að bókinnl
eru beðnir að snúa sér til afgreiðslu
Tímans eða hringja í síma 2353.
Gestir í bænum.
Séra Jón Guðjónsson i Holti undir
Eyjafjöllum. Ólafur Ólafsson í Króks-
fjarðarnesi, Kristján Jóhannes Sig-
urðsson í Holti undir Eyjafjöllum.
Sverrir Áskelsson, málari, frá Akureyri.
Snorri Friðleifsson á Siglufirði.
únistum og barðist á sínum
tima gegn kosningasamvinnu
við þá, en Daladier bar hann
ofurliði í það skipti og kom
henni í framkvæmd.
Stjórnmálaástandið í Frakk-
landi virðíst því mjög óráðið
eins og sakir standa. Frökkum
er orðið ljóst, að þeir eru ekki
lengur hið ráðandi stórveldi á
meginlandi Evrópu eins og þeir
voru fyrstu árin eftir heims-
styrjöldina og að með hruni
Tékkóslóvakíu hafa þeir misst
alla bandamenn sina 1 Austur-
Evrópu, nema Rússland. Þýzka-
land er orðið valdamesta stór-
veldið á meginlandi Evrópu og
við það reyna smáríkin nú að
vingast, en ekki við Frakkland.
Slíkt hlýtur að breyta utanríkis-
málastefnu Frakklands. Hvaða
leið hún eigi að taka, virðast
Frakkar tæplega hafa gert sér
ljóst enn. Við þetta bætast svo
miklir fjárhagslegir erfiðleikar.
Franskir stjórnmálamenn hafa
sjaldan haft fram úr erfiðari
verkefnum að ráða en nú.
Reykjavík, 27. október 1938.
Gjaldeyrls- oíí
innflittnings nefnd.
HBðiH
LEILNEUI UTUllíllt
„FlNT fólki,,
Sýniiig ú morgnn kl. 4.
Lækkað verð.
SÍÐASTA SINN.
NB. Nokkrir bekkir verða teknir
frá fyrir BÖRN.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un. —
Karen Agnete
Og
Sveinn Þórarinsson
opna í dag
MálYerkasfningu
í Markaðsskálanum.
Sýningin er daglega opln frá
kl. 10—9.
FRÆÐSLU-
SAMKOMA
verður haldin í Fríkirkj-
unni sunnudaginn 30. okt.
kl. 5 e. m.
Efni samkomunnar er
þetta:
Bach: Toccata og fuga d-
moll (Páll ísólfsson).
Erindi: Kirkjuhús og trú-
arþörf (Prófessor Guð-
brandur Jónsson).
Telemann: Sonata í B-dur
fyrir cello og orgen (Dr.
Edelstein og Páll ísólfs-
son).
Einsöngur: Kirkjulög —
(Gunnar Pálsson).
Erindi: Trúarleg áhrif á
afbrotamann (Pétur In-
gjaldsson cand. theol.).
Kórsöngur barna (Páll
Halldórsson stjórnar).
Allur ágóði af samkom-
unni rennur til kristilegrar
starfsemi meðal barna.
Aðgöngum. verða seldlr
við innganginn frá kl. 4.
| SENDIBOÐI | ÓKUNNI |
FORSETANS SÖNGVARINN
g Spennandi og áhrifa- DET SJUNGENDE X. |
Íj mikil amerísk stórmynd j: 8 Sænsk tal-, söngva- og skemmti- 8
j| tekin undir stjórn Frank j: 8 mynd. Aðalhlutverkið leikur og 8
| Lloyd, og fjallar um land- « 8 syngur frægasti tenorsöngvari h
jj nám Vesturheims. jj JUSSI BJÖRLING.
jj Aðalhlutverkin leika: 8 Aðrir leikarar eru: ij
| JOEL MC CREA, jj ÁKE OHBERY, AINO TAUBE g
| FRANCES DEE og :j og fleiri. 8
» BOB BURNS. 8 8 Aukamyndir: 8
8 p Æska og þróttur — j|
8 Böm fá ekki aðgang. jj jj Paradís sundfuglanna, g
|nmTtTTmunt;ui,u;ui!;nn!,n,lin,;iJ 8 fagrar, sænskar fræðimyndir.
/
00
g&cw wmum auðvddad!
Við hússtörfin er góð birta, þ. e. mikið og gott
ljós, nauðsynleg. Ljósið frá innan-möttu
Osram-D-ljóskúlunni er ódýrt, þessvegna getið
þér veitt yður góða birtu ef þér notið hana.
DekahuneH-Jiúhuta með á&yœjéae&lwtftCiMifn,
sent teyggic fotfa steaumeydstu
Bændur og mjólkurbú.
Þið, sem eigið mjólkurbrúsa hjá okkur til
tinhúðunar, eruð vinsamlega beðnir að
vitja þeirra innan tveggja mánaða frá birt-
ingu þessarar auglýsingar, annars verða
þeir seldir fyrir kostnaðinum.
GUÐM. J. BREIÐFJÖRÐ
Blikksmiðja og tinhúðun
Laufásveg 4. — Sími 3492.
Matreiðslunámskeið.
74 Andreas Poltzer:
Áður en Whinstone gafst tlmi til að
spyrja nokkurs, lagði litli maðurinn fing-
urinn á vörina og hvíslaði:
— Hr. fulltrúi, maðurinn sem kallar
sig Ray, er nýkominn inn. Hann er inni
í stofunni.
Whinstone og Patricia voru enn í her-
bergi nr. 5. Fulltrúinn hafði ekki fyrr
heyrt það sem Sluice sagði, en hann þaut
fram á ganginn. Hin eltu hann bæði.
Stofan var í hinum endanum í húsinu
og það var stórt. Eiginlega náði matsal-
an yfir margar íbúðir og voru göng á
milli. í þessum göngum var dauf skíma.
Whinstone komst fyrstur inn í stofuna.
Hann hrinti upp hurðinni. Þar var eng-
inn inni nema frú Croys.
— Hvar er hann? kallaði fulltrúinn
óðamála.
— Ég veit það ekki, svaraði húsmóðir-
in kjökrandi.
Whinstone opnaði borðstofudyrnar.
Þar var enginn maður.
— Hvað hefir orðið af manninum?
Þér hljótið að hafa séð hann, frú Croys.
Kerlingardyrgjan yppti öxlum og vissi
ekki sitt rjúkandi ráð. Nú kom Sluice inn
í stofuna ásamt Patriciu og sagði:
— Ray er líklega í herberginu sínu....
— Það getur ekki hugsazt. Við mætt-
um honum ekki á leiðinni.
HLJÓBFÆRAHÚSIP
5. Hljómleikar
FRIEDMAN
Kenni að búa til veizlumat. — Vikunámskeið. —
Kvöldtímar kl. 4—6 og 8—10. Nánari upplýsingar
í síma 3838 eða á Sjafnargötu 5
ÞÓRARNA THORLACIUS.
Patricia 75
— Það er hægt að komast um annan
gang inn í herbergi nr. 5, sagði Sluice.
— Og það segið þér ekki fyrr en nú?
Fulltrúinn spratt upp og út úr stofunni.
Þegar hann loks kom að dyrunum
heyrði hann eitthvað þrusk fyrir innan.
Hann tók í lásinn án þess að berja.
Hurðin var læst.
— Opnið hurðina! kallaði fulltrúinn
og kastaði sér á hurðina.
Hún lét ekki undan. Nú kom Whin-
stone auga á Sluice litla og kallaði til
hans:
— Standið hérna við dyrnar og látið
manninn ekki sleppa! í sama bili mínnt-
ist hann þess, að Sluice, kraftalaus ræf-
illinn, myndi lítið hafa að gera 1 hend-
urnar á manninum.
— Takið skammbyssuna mína, til von-
ar og vara! Hann þrýsti byssunni í lóf-
ann á Sluice og hljóp af stað.
Hann hljóp sem fætur toguðu niður
alla stiga. Þegar hann kom ofan, bölvaði
hann í sand og ösku. Hliðið var læst.
í sama bili heyrði hann að lykli var
stungið í skráargatið að utanverðu.
Whinstone ýtti leigjandanum, sem var
að koma heim, til hliðar og flýtti sér
fyrir hornið. Því að matsöluhúsið stóð á
götuhorni, og herbergi Rays vissi út að
hinni götunni.
Kveðju-hljómlcikar
priðjud. 1. nóv.
kl. 7,15.
MOZART: Rondo a-moll.
BACH: Chaconne.
SCHUMANN: Kreisleriane.
CHOPIN: Nocturne Fis-dur,
Valse F-dur o. fl.
Stúlka eða piltur
getur orðiö meðeig-
andi í verzlun með
framlagi.
Tilboð merkt 1000 leggist
inn á afgreiðslu Tímans
fyrir 4. nóvember.
Útsvar til bæjarsjóðs Reykjavíkur árið
1938 er allt fallið í gjalddaga og 1. nóvember
lalla dráttarvextfr á fjórða hluta ógreiddra
útsvara. —
Er skorað á gjaldendur að greiða útsvars-
skuldir sínar nú þegar.
Reykjavík, 28. október 1938.
Borgarritarinn.
fUTBREIÐID TÍMANN •