Tíminn - 19.11.1938, Blaðsíða 1
RITSTJ ÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA,
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
Sími: 2323.
Frentsmiðjan Edda h.f.
Símar: 3948 og 3720.
22. árg.
Reykjavík, laugardagiim 19. nóv. 1938
68. blað
Blágreni í HallormsstaSaskógi, gróðursett 1905. Hœsta tréð er yfir 6 m.
Stari Skógræktarfél. Islands
Félagið hefir látið gróðursetja 40 þús. plöntur
tvö undanfarin vor.
Nansenskrifstofan og flóttamennirnir
Kjör rússneskra ilóttamanna talín verst
Aðalfundur Skógræktar-
félags íslands var haldinn
síðastl. fimmtudag. Er aðal-
fundur félagsins ekki hald-
inn nema annaðhvert ár.
Formaður félagsins, Árni G.
Eylands f ramkvæmdastj óri,
gaf skýrslu um starfsemi félags-
ins. Tvö síðastl. vor hefir félagið
látið planta um 40 þús. erlend-
um trjáplöntum, eða um 20
þúsundum hvort vor. — Hefir
félagsstjórnin talið rétt, að
leggja sérstaka áherzlu á, að
planta hér norskum þarrplönt-
um (greni og furu), þar sem
sæmilegur árangur virðist hafa
náðst af gróðursetningu slíkra
plantna hér, t. d. á Hallorms-
stað og í Eyjafirði. Plönturnar
hefir félagið látið gróðursetja á
þessum stöðum: í stöð félagsins
í Fossvogi, á Þingvöllum, í
gömlu skógræktarstöðinni við
Rauðavatn, í Þrastaskógi, á
Laugarvatni, í Vífilsstaðalandi
og í Undirhlíðum, sunnan við
Hafnarfjörð, en þar hafa Hafn-
firðingar skógargirðingu. Hefir
félagið einkum fengið skólabörn
til að vinna að gróðursetningu
plantnanna undir tilsögn kenn-
ara. Á síðastl. ári fékk félagið
hingað norskan skógfræðing til
að leiðbeina við gróðursetning-
una.
Félagið fékk fyrir nokkrum
árum talsvert land í Fossvogi til
að hafa þar skógræktarstöð.
Gaf Reykjavíkurbær landið. Fé-
lagið lét strax girða það og
hefir verið unnið kappsamlega
síðan að gróðursetningu og
hirðingu ýmsra trjátegunda.
Nú hefir félagið einnig tekið
gömlu skógræktarstöðina við
Rauðavatn í umsjá sína, en þar
voru plöntur gróðursettar fyrir
allmörgum árum.
Á síðastl. hausti vakti stjórn
félagsins máls á því við bæjar-
stjórn Reykjavíkur, að hún léti
friða landið umhverfis Elliða-
vatn, en þar er mestur trjá-
gróður í nágrenni Reykjavíkur,
og kæmi þar upp skemmtistað
fyrir bæjarbúa. Eru þar fyrir
hendi mörg ágæt skilyrði fyrir
skemmtistað og útsýni fallegt.
Tillaga þessi hefir fengið á-
gætar undirtektir í öllum blöð-
um bæjarins og má vænta þess
að hún verði tekin til nánari at-
hugunar.
Félagið gefur árlega út ársrit,
sem félagsmenn þess fá ókeypis.
Hafa þar birzt margar góðar
greinar um skógræktarmál. í
seinasta ársritinu birtist m. a.
löng ritgerð eftir einn helzta
skógræktarfræðing Norðmanna,
Chr. Gjerlöff: Skógurinn og
æskulýðurinn. í ritgerð þessari
felst mikill fróðleikur og öflug
hvatning og ætti hún skilið að
verða mikið lesin. Gjerlöff hefir
komið hingað til lands og telur
hann sig sannfærðan um það,
að hér megi koma upp stórvöxn-
um skógi, engu síður en í Nor-
egi.
í Skógræktarfélagi íslands
eru nú um 500 félagsmenn. Inn-
an vébanda þess eru einnig þrjú
skógræktarfélög: Skógræktar-
félag Skagfirðinga, Skógræktar-
félag Eyfirðinga og Skógræktar-
félag Vestmannaeyja. Öll þessi
félög hafa unnið meira og
minna að eflingu skógræktar í
(Framh. á 4. síðu.)
Jón Þorvarðsson á Suðureyri i Súg-
andafirði befir sagt Tímanum eftir-
farandi fréttir: í sumar var byrjað á
hafnargerð á Suðureyri og steyptur
skjólgarður, er kostaði um fimmtán
þúsund krónur, ásamt plani. í haust
hefir verið unnið að uppfyllingu innan
við garðinn. Er fé til áframhaldandi
hafnargerðar veitt á fjárlögum næsta
árs. í vor var unnið að vegagerð yfir
Botnsheiði og lögð braut frá Breið-
dalsheiðarvegi niður í Botnsdal. Er
enn vegleysa um dalinn, ekki löng leið,
en mjög erfið og er áætlað að vegar-
lagning þar kosti um 35 þúsund krón-
ur. Þegar sú torfæra er yfirstigin er
Súgandafjörður kominn í öruggt ak-
vegarsamband víð ísafjörð og önnur
helztu byggðarlög á Vestfjörðum.
t t t
Þrátt fyrir þessar framkvæmdir hefir
verið unnið að framleiðslunni með
fullum krafti. Fimmtán bátar stunduðu
veiðar frá Suðureyri í sumar. Af þeim
var einn um þrjátíu smálesta vélbátur,
þrír 10—12 smálesta vélbátar, fimm
minni vélbátar og sex hreyfilbátar.
Stærsti vélbáturinn stundaði síldveiðar
fyrir Norðurlandi um sildarvertíðina
og aflaði vel. Tveir bátar voru að drag-
nótaveiðum framan af sumri og fluttu
aflann til Bíldudals og ísafjarðar.
Annar þeirra stundaði reknetaveiðar
er leið á sumarið. Hinir bátarnir stund-
uðu í sumar nær eingöngu veiðar á
handfæri og öfluðu ágætlega. Fengu
beztu dráttarmenn allt að 500 krónur
í hlut í júlí og litlu minna í ágúst.
Sígurgeír Sígurðsson
verður biskup
Kirkjumálaráðherra hefir lagt
til við konung að séra Sigurgeir
Sigurðsson á ísafirði verði skip-
aður biskup frá næstu áramót-
um að telja. Fékk hann flest at-
kvæði í nýlokinni biskupskosn-
ingu, en ráðherra er heimilt að
velja milli þeirra þriggja, sem
fá flest atkvæði.
Séra Sigurgeir Sigurðsson er
fæddur að Eyrarbakka 3. ágúst
1890. Foreldrar: Svanhildur Sig-
urðardóttir og Sigurður Eiríks-
son regluboði.
Séra Sigurgeir lauk stúdents-
prófi 1913 og lauk embættisprófi
í guðfræði í febrúar 1917. Vígð-
ur 7. okt. 1917 aðstoðarprestur á
ísafirði. Árið eftir fékk hann
veitingu fyrir ísafjarðarpresta-
kalli, og hefir þjónað þar alla
tíð síðan, eða í 21 ár. Hann hef-
ir jafnan verið vinsæll í söfnuði
sínum. Kvæntur er séra Sigur-
geir Guðrúnu Pétursdóttur frá
Hrólfsskála og eiga þau fjögur
börn.
Erlendar fréttir
Brezk-bandaríski verzlunar-
samningurinn var undirritaður
í gær. Kemur brezkum og ame-
rískum blöðum saman um, að
hann muni bæta og treysta vin-
áttu þessara þjóða. Hafa báðir
aðilar gert miklar tilslakanir,
Bretar með því að greiða fyrir
innflutningi á hráefnum og
Bandaríkjamenn með því að
rýmka um innflutning á ensk-
um iðnvörum.
Enska stjórnin hefir beðið ó-
sigur í tveimur nýloknum auka-
kosningum, í Doncaster og
Bridgewater. Stjórnarandstæð-
ingar höfðu sameiginlegt fram-
boð í báðum stöðunum og fengu
frambjóðenda sinn kosinn.
Hafði íhaldsflokkurinn áður
hreinan meirahluta í öðru kjör-
dæminu. Á báðum stöðunum
var kosið um utanríkismála-
stefnu stjórnarinnar.
Shetland Indlandsráðherra
hefir í ræðu deilt harðlega á
Gyðingaofsóknirnar í Þýzka-
(Framh. á 4. síðu.)
Aðalfiskislóðin liggur skammt út af
fjarðarmynninu og er venjulega um
klukkutíma sókn á miðin. í haust hafa
flestir bátar veitt á lóðir og aflinn
oftast verið seldur í togara. Hefir fisk-
azt dável og betur en undanfarin haust.
t t r
í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu
voru í sumar byggð fjögur íbúðarhús,
tvö í hvorum hreppi, öll eftir teikningu
og fyrirsögn teiknistofu landbúnaðar-
ins. Tvö þessara húsa, að Suður-Fossi
og Lækjarbakka, hafa nær eingöngu
verið byggð af heimilismönnum án
aðkeyptrar vinnu. Þau eru snotur að
útliti og vönduð að frágangi og virðast
ætla að reynast vel. Hin íbúðarhúsin
voru reist að Sólheimakoti og Eyjar-
hólum. — Auk þessa hafa víða verið
byggð fjós, áburðarskýli og votheys-
hlöður.
t t r
Búnaðarfélögin í Mýrdal hafa
undanfarin ár unnið að því að bæta
um áburðarhirðingu bænda. Hafa þau
meðal annars staðið fyrir sameiginleg-
um innkaupum á sementi, lánað fé-
lagsmönnum út á væntanlegan jarða-
bótastyrk og lánað steypumót. Hefir
með þessum hætti talsverðu verið um-
þokað í þá átt að bæta nýtingu þess
áburðar, er til fellzt.
r t t
í Víkurkauptúni hefir verið gerð ný
vatnsleiðsla. Var hin gamla mjög tak-
mörkuð og vathið ekki gott. Nú er
vatnið tekið úr tærri bergvatnslind
langt uppi í Reynisfjalli og leitt í tré-
Friðarverðlaun Nobels 1938
hafa verið veitt Nansenskrifstof-
unni, sem starfar á vegum
Þjóðabandalagsins og vinnur að
því að greiða fyrir flóttamönn-
um. Hefir Þjóðabandalagið ekki
getað veitt skrifstofunni nema
takmarkað fé undanfarið og því
komið til orða að leggja hana
niður. Má því fullyrða að friðar-
verðlaunum Nobels hafi aldrei
verið betur varið.
Það vakti mikla gremju meðal
nazista að friðarverðlaun Nobels
í fyrra voru veitt þýzka friðar-
sinnanum Ossietsky. Sennilega
verður úthlutun friðarverðlaun-
anna nú jafnmikill þyrnir í aug-
um kommúnista. Þeir hafa unn-
ið gegn Nansenskrifstofunni eft-
ir megni og á fundum Þjóða-
bandalagsins hefir fulltrúi Rússa
barizt fyrir því, að hún væri
lögð niður. Ástæðan til þess er
sú, að skrifstofan hefir greitt
götu fjölmargra pólitískra flótta
manna frá Rússlandi.
Hér á landi mun Friðþjófur
Nansen þekktastur sem land-
könnuður. En starf hans í þágu
stríðsfanga og pólitískra flótta-
manna mun þó lengur halda
nafni hans á lofti. Strax eftir
heimsstyrjöldina byrjaði hann
víðtæka starfsemi til hjálpar
herföngum erlendis og flótta-
mönnum og ávannst mikið í
þeim efnum. Árið 1921 réði
Þjóðabandalagið hann til að
veita forstöðu sérstakri stofnun,
sem það setti á laggirnar til að
annast þessi mál. Síðan Nansen
dó, vorið 1930, hefir stofnunin
venjulega verið kennd við hann
og kölluð Nansenskrifstofan.
Hér yrði of langt mál að skýra
frá öllum afrekum Nansens og
þessarar stofnunar, sem fyrst og
fremst var verk hans. Aðeins
nokkur dæmi skulu nefnd:
Um 430 þús. herfangar voru
fluttir heim frá löndum, þar sem
þeim var sama og engin björg
veitt. Mest af þessu starfi hafði
Nansen unnið áður en skrifstof-
an tók til starfa, og notið til
þess aðstoðar ýmsra alþjóðlegra
líknarfélaga. Flestir þessara her-
stokkum til kauptúnsins. Nú er og verið
að koma úpp fullkomnum slökkviút-
búnaði í Vík og er kostnaðurinn, sem
af því leiðir um átta þúsund krónur.
Rafstöðin hefir verið stækkuð að mun
og geta Víkurbúar nú fengið rafmagn
til ljósa og suðu fyrir 120 krónur árs-
„kílówattið".
r t t
í Vík var slátrað í haust öllu fé úr
Mýrdal, Álftaveri og Meðallandi. Var
nálega allt kjötið fryst í frystihúsi
kaupfélagsins og flutt daglega til
Reykjavíkur á bifreiðum. í Hólmi var
slátraö öllu sláturfé fyrir austan Skaft-
árhraun og kjötið fryst þar. Hefir að-
staðan til slátrunar stórum batnað
þar við byggingu hins nýja frystihúss,
er Bjarni Runólfsson var nýbúinn að
koma upp, þegar hann lézt. Haukur
Magnússon frá Reynisdal hefir séð um
frystinguna og verður hann þar fram
á vetur. Hafði hann unnið á verkstæði
Bjarna síðastliðin tvö ár.
r r t
Rjómabú, sem starfandi hefir verið
í Mýrdalnum undanfarin þrjátíu ár,
lagðist niður á síðastliðnu sumri, vegna
þess að reksturskostnaðurinn 6ar
framleiðsluna orðið ofurliði. Vonandi
rekur þó fljótlega að því, að Mýrdæl-
ingar geti hagnýtt betur en orðið er
hina miklu og góðu ræktunarmögu-
leika, sem þar eru víða, með aukinni
nautgriparækt. Hugsanlegt er, að til-
tækilegt þætti og framkvæmanlegt,
að flytja mjólkina i mjólkurbúin í
Árnessýslu.
fanga voru í Rússlandi og Sibir-
íu. —
Frá Litlu-Asíu voru eftir
heimsstyrjöldina reknir um 1.3
millj. Grikkja og 200 þús. Búlg-
arar. Eins og gefur að skilja, var
erfitt að koma þessu fólki fyrir
í Grikklandi og Búlgaríu, en
þangað varð það að fara. Nansen
kom því til leiðar, að þessi lönd
fengu stór lán til atvinnufram-
kvæmda og íbúðabygginga. Fyrir
beinan tilverknað Nansensskrif-
stofunnar, voru um 40 þús. íbúð-
ir byggðar í borgum Grikklands
og 27 þús. í sveitunum.
Árið 1921 var stórfelld hung-
ursneyð í mörgum héruðum
Rússlands og reyndust kommún-
istar ekki færir um að ráða fram
úr henni. Nansenskrifstofan
gekkst fyrir víðtækri alþjóðlegri
hjálparstarfsemi og er nú al-
mennt fullyrt að tekizt hafi að
bjarga um iy2 millj. frá hungur-
dauða.
Á síðari árum hefir flótta-
mannahjálpin verið aðalstarf-
semi skrifstofunnar. Vinnur hún
að því að safna skýrslum um hag
fióttamanna, hjálpa þeim til að
afla sér atvinnu og útvegar þeim
búsetuleyfi. Nema þeir flótta-
menn orðið nokkrum hundruð
þúsunda, sem skrifstofan hefir
hjálpað til að flytja þangað, sem
þeir fengu atvinnu, og hafa
margir þeirra nú unnið sér ríkis-
borgararéttindi I þeim löndum.
Þeir, sem ekki hafa ríkisborgara-
rétt í neinu landi, fá sérstakt
vegabréf frá skrifstofunni, og
veitir það þeim ýms réttindi í
mörgum löndum. Um 600 þús.
manna hafa nú slik vegabréf, og
eru það aðallega Rússar og Ar-
menar. Auk þessa fólks er skrif-
stofunni kunnugt um 400 þús.
flóttamenn, sem hvergi hafa rík-
isborgararétt og ekki heldur
Nansensvegabréf. Eru þeirra á
meðal um 130 þús. Rússa, sem
flúið hafa til Kína og Manchu-
kuo.
Kjör flestra hinna pólitisku
flóttamanna, sem orðið hafa að
flýja eignir sínar fyrirvaralaust,
hafa í langflestum tilfellum ver_
ið hörmulegri en orð fá lýst. —
Einkum er hinum bágu ástæðum
rússneskra flóttamanna við-
brugðið. Meginhluti þeirra bjó
áður við góð kjör og á því
enn ver með að una hinum nýju
lífsskilyrðum en t. d. Armenar,
Gyðingar og fleiri, sem eru van-
ari erfiðum lifskjörum.
Það er talið að alls hafi iy2
millj. manna flúið Rússland
vegna byltingarinnar. Allmargir
hafa horfið heim aftur, en meg-
inþorrinn er enn í útlegð. Reynir
rússneska stjórnin mjög að
leggja stein í götu þeirra. Rúss-
nesku flóttamennirnir, sem
hvergi hafa ríkisborgararéttindi,
mega heita dreifðir um öll lönd.
í Frakklandi eru um 120 þús., í
Póllandi um 90 þús., í Þýzka-
landi 45 þús., í Búlgaríu 16 þús.,
í Lithauen 14 þús., í Rúmeníu 10
þús., í Tékkoslóvakíu 8 þús. o. s.
frv. Flestir þeirra hafa Nansen-
vegabréf. Kjör rússneskra flótta-
manna eru yfirleitt talin bág-
bornari en nokkurra annarra
pólitískra flóttamanna.
Nansenskrifstofan hefir ekki
haft afskipti af flóttamönnum
frá Þýzkalandi. Hefir Þjóða-
bandalagið falið sérstakri nefnd
að annast þau mál. Frá því Hit-
ler kom til valda og til ársloka
1937, er talið að 130 þús. Gyð-
ingar og 15 þús. Þjóðverjar hafi
flúið Þýzkaland. Af þessum
flóttamönnum hafa 45 þús. feng-
ið landvist í Palestinu og 55 þús.
í Ameríku. Hér eru ekki taldir
með flóttamenn frá Saar, en
Nansenskrifstofan hefir annazt
fyrirgreiðslu þeirra. Eru þeir um
5 þús. Einn fimmti hluti þeirra
hefir flutzt til Paraguay, en
flestir hinna eru í Frakklandi.
w
A víðavangi
Bæjarstjórnin í Reykjavík
hefir nú nýlega samþykkt
að veita afslátt á hafnar-
gjöldum fyrir hið fyrirhugaða
millilandaskip Eimskipafélags-
ins, ef úr smíði þess verður. Er
það vel farið. Vafalaust veitir
hún hinu nýja skipi ríkisins
samskonar hlunnindi.
* * *
Gunnar Thoroddsen var ný-
lega að rifja upp barnalærdóm-
inn fyrir Heimdellingum í Rvík,
og birtist sú prédikun i dagblað-
inu Vísi tvo síðustu daga. Þar
kennir gamalla grasa. Þar er
það brýnt fyrir Heimdalls-
drengjunum, að kaupmenn og
stóratvinnurekendur séu ekki
„stéttir", að aflabresturinn og
hrun saltfisksmarkaðarins sé að
kenna rangri stjórnarstefnu, að
„stjórnarfiokkarnir hafi ekki vit
á að velja hina hæfustu menn
til forystu“, og að ef íhalds-
flokkur færi með völd, myndi
ekkert atvinnuleysi vera til!
* * *
Ef til vill mætti minna þenn-
an spámann æskulýðsins á það,
að í hinu gagnauðuga Bretlandi
hefir íhaldsstjórn setið við stýr-
ið sjö undanfarin ár. Þar er þó
tala atvinnulausra manna hærri
en í flestum öðrum Evrópu-
löndum. En Ólafur Thors er
væntanlega eitthvað snjallari
en Baldwin og Chamberlain, að
ráða fram úr slíkum vandamál-
um!
* * *
Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn
Rvíkur hafa orðið fyrir miklu
happi. Vegna hlutkestis sluppu
þeir við að fá meirahluta í nið-
ur j öf nunarnefnd bæjarins að
þessu sinni. Þeir geta þá vænt-
anlega talið einhverjum ein-
földum sálum trú um það, á
næsta ári, að útsvarshækkunin,
sem bæjarstjórnin fyrirskipar,
sé meirahluta niðurjöfnunar-
nefndarinnar og þar með
stjórnarflokkunum að kenna!
* * *
Kunnugir menn á Suðurlandi
telja, að af þeim 123 atkvæðum,
sem Bændaflokkslistinn fékk við
búnaðarþingskosninguna, hafi
um 50 kosið listann eingöngu
vegna efsta mannsins, Klemenz-
ar á Sámsstöðum. En um 30
Bændaflokksmenn þökkuðu
þetta persónulega fylgi Klem-
enzar með því, að strika nafn
hans út af listanum. Gott er að
eiga slíka vopnabræður!
* * *
Einkennileg ráðstöfun er það,
að gera lögfræðing að fram-
kvæmdastjóra fyrir Rauða
krossinn. Hafi á annað borð
verið þörf á þessu nýja starfi,
sem ekki skal í efa dregið að
svo stöddu, sýndist liggja beint
við að ráða í það áhugasaman
lækni eða hjúkrunarkonu.
* * *
Mbl. í dag gengur út frá því,
að kaupmenn noti sér innflutn-
ingshöftin til að okra á þeim
vörum, þar sem innflutningur-
inn fullnægir ekki eftirspurn-
inni. Áður hafa blöð kaupmanna
ætlað að ærast, þegar Tíminn
hefir á þetta minnst. En gott er
að heyra slíka viðurkenningu
úr ólíklegustu átt. Og vonandi
tekst verðlagsnefndinni að gera
einhverja leiðréttingu í þessum
efnum.
* * *
Jafnframt gægist það fram
hjá Mbl., að réttast myndi vera
að slaka nú eitthvað til á höft-
unum, gefa t. d. frjálsan inn-
flutning á sveskjum, rúsínum
og þurrkuðum aprikósum! Þetta
getur maður kallað að hugsa
um „landsins gagn og nauðsynj-
ar“ á erfiðum tímum.
Um 300 þús. manns hafa geng-
ið að líkbörum Mustafa Kemals
Atatúrks undanfarna daga. Ell-
efu menn hafa beðið bana vegna
þrengsla og troðnings við lík-
börurnar.
A. KROSSGÖTUM
Framkvæmdir í Súgandafirði. — Útgerð frá Suðureyri. — Byggingar í Mýrdal.
— Áburðarhirðing. — Vatnsl. í Vík. — Slátrunin í Vík.—Rjómabúlegstniður.