Tíminn - 22.11.1938, Page 4
276
TÍMIM, þriðjudaginn 22. nóv. 1938
69. blað
Skemmtikvöld
F ramsóknarmanna
Vegna heimkomu Jónasar Jónssonar
efna Framsóknarfélögin I Reykjjavlk tll
skemmtikvölds að Hótel Borg á morgun (mið>
vikudag) kl. 8,15.
KAFFI - RÆÐUS -
SÖTVGUR - SPIU - »\\S.
Aðsókn verður mikil, og því vissast að
panta miða I dag eða tímanlega á morgun.
Þeir fást á afgreiðslu Tímans, sítni 2323.
STJÓRAIR FÉLAGAMA.
Tilkynniné
Skv. heimild í 4. gr. laga nr. 70, 31. des. 1937, er hér með lagt
fyrir alla þá, sem verzla með vefnaðarvörur, byggingarefni eða
búsáhöld í umboðssölu, heildsölu eða smásölu að gera verðlags-
nefnd grein fyrir hvaða reglum þeir nú fylgja um verzlunará-
lagningu á vörur þessar.
Samkvæmt sömu heimild ex hér með einnig lagt fyrir allar
saumastofur, þar með taldar kjóla- og kápusaumastofur, klæð-
skerasaumastofur, skyrtugerðir, húfu- og hattagerðir, háls-
bindagerðir, vinnufatagerðir og hverskonar aðrar fatagerðir, er
sauma og selja til verzlana eða beint til neytenda, að gera
verðlagsnefnd grein fyrir hvaða reglum nefndar stofnanir nú
fylgja um verzlunarálagningu -á framleiðslu sína.
Nefndar skýrslur um verzlunarálagningu skulu gefnar á
eyðublöðum, sem verðlagsnefnd leggur til og fást á skrifstofu
nefndarinnar í Atvinnudeild Háskólans, Reykjavík, og hjá lög-
reglustjórum eða umboðsmönnum þeirra úti um land, eftir
komu fyrsta pósts frá Reykjavík eftir 21. þ. m.
Með nefndum skýrslum skulu fylgja til verðlagsnefndar
ýms gögn og upplýsingar, sem nánar er kveðið á um á skýrslu-
eyðublöðunum sjálfum.
Pyrnefndar skýrslur og gögn skulu vera komin til skrifstofu
verðlagsnefndar í Reykjavík svo sem hér greinir:
1. Úr Reykjavík og næsta nágrenni ekki síðar en 6. des n. k.
2. Annarsstaðar að af landinu ekki síðar en 22. des. n. k.
Reykjavík, 22. nóvember 1938.
Verðlagsnefnd.
„Lenin treystir Stalin, en Sta-
lin treystir engum,“ var einu
sinni máltæki í Rússlandi. Það
síðara hefir sannazt áþreifan-
lega, þvi enginn einvaldi nú á
dögum hefir jafn öflugan lífvörð
og hinar stöðugu aftökur á
helztu valdamönnum kommún-
ista sýna að Stalin treystir eng-
um. Hinsvegar vita menn nú, að
fyrri hluti máltœkisins er rang-
ur. Lenin vantreysti Stalin, vildi
ekki að hann yrði ritari flokksins
og óskaði að Trotski yrði eftir-
maður sinn.
Stalin heitir réttu nafni Jo-
seph Djugashvilij og er fœddur
í Georgíu 1879. Foreldrar hans
sendu hann á katólskan presta-
skóla. Stalin var iðinn nemandi,
en lagði þó meiri rœkt við bylt-
ingarrit Karl Marx en bibliuna,
og var því rekinn úr skólanum,
þegar hann var 18 ára. Fjórum
árum síðar gekkst hann fyrir
verkfalli, var dœmdur í }/2 árs
fangelsi og sendur til Sibiriu, en
tókst að strjúka þaðan von bráð-
ar. Á nœstu árum stjórnaði hann
skipulögðum árásum á gull-
flutninga bankanna, var enn
nokkrum sinnum sendur til Si-
biríu, en tókst jafnan að strjúka.
Óljósar sagnir herma, að hann
hafi dvalið nokkurn tíma í Lon-
don 1906. Annars var hann stöð-
ugt í Rússlandi og sýndi með því
meira árœði en aðrir foringjar
kommúnista, sem bjuggu yfir-
leitt erlendis. Áhrif hans ukust
stöðugt í flokknum, en hann
kom þó lítið fram opinberlega.
í byltingunni sýndi hann mikinn
dugnað. Á nœstu árum notaði
hann sér veikindi Lenins og ann-
ríki Trotskis við skipulagningu
hersins, til að koma fylgismönn-
um sínum í helztu trúnaðarstöð-
ur flokksins. Hann vann því auð-
veldan sigur í valdabaráttunni
gegn Trotski, eftir að Lenin dó,
enda honum langtum snjallari í
allri baktjaldavinnu.
Stalin er sagður mikill starfs-
maður. Hann er hneigður fyrir
tónlist og er góður taflmaður.
Hann býr oftast í stórri höll
skammt frá Moskva og er hún
umkringd skotgröfum og vig-
girðingum. Hann hefir verið þrí-
kvœntur og á þrjú börn á lífi.
* * *
„Daily Express“ segir að Eng-
lendingar hafi látið gera öflug-
ustu loftvarnabyssu heimsins.
Hún dregur 9000 metra og skýtur
12 skotum á mínútu.
* * *
Nýlega gerðist sá atburður í
Jótlandi, að kýr ól fimm kálfa
og fœddust fjórir þeirra lifandi.
Hefir þetta ekki komið fyrir áður
í Danmörku svo vitað sé. Kálf-
arnir vógu samtals 170 pund, en
þyngd kýrinnar sjálfrar var 800
pund.
* * *
í Þýzkalandi er byrjað að
framleiða gasgrímur fyrir ný-
fœdd börn, en það hefir hvergi
verið gert áður.
tR BÆNTJM
Skemmtikvöld
halda Framsóknarfélögin í Reykjavík
að Hótel Borg annað kvöld. Hefst það
kl. 8,15. Til skemmtunar verður sam-
eiginleg kaffidrykkja, ræðuhöld, söng-
ur, spil o,t dans. — Samkoma þessi
er haldin í tilefni af heimkomu Jón-
asar Jónssonar, sem væntanlegur
er úr Vesturheimsför sinni með Gull-
fossi í dag. Aðgöngumiðar fást á af-
greiðslu Tímans til kl. 6 í dag og á
morgun, og við innganginn, ef nokkuð
verður óselt.
Skíffaferðir.
Um 600 manns fór á skíði um þessa
helgi, þótt enn sé snjórinn helzt til
lítill. Flestir voru í Flengingarbrekku,
Innstadal og Bláfjöllum. Nokkrir KR-
ingar voru í Skálafelli og nutu fremur
góðs færis. Kringum Kolviðarhól var
fremur lítill snjór.
Kirkjugarffurinn viff Suffurgötu
er 100 ára á morgun. Var hann vígð-
ur af sr. Helga Thordarson 23. nóv.
1838. Verður afmælisins minnzt með
sérstakri minningarathöfn í líkhúsinu
í kirkjugarðinum og hefst hún kl 1
eftir hádegi.
Skautasvell
allgott er nú komið á Tjörnina og
hefir verið óspart notað af unglingum
bæjarins undanfarin tvö kvöld. Var
mesti fjöldi af börnum og unglingum
þar á skautum bæði kvöldin.
Vinninga
í happdrætti fyrir skíðaskála Reyk-
holtsskóla, hlutu þessi númer: 5953
hálfur dvalarkostnaður í Reykholts-
skóla, 3490 skíðabúningur, 3384 hickory
skíði, 5533 kaffistell, 3002 veggfóður,
3429 hálfur dvalarkostnaður í Reyk-
holtsskóla, 4593 kaffistell, 1006 listmál-
arakassi, 2649 peningar kr. 50, 1863
fargjald með ríkisskip 872 peningar
kr. 50, 3334 landslagsnr’nd, 5581 skíði,
5603 kaffistell, 3591 peningar kr. 50,
1712 skíði, 1496 Fuglarnir eftir Bj. Sæm.
4651 peningar kr. 25, 645 peningar kr.
25, 1152 skíði.
Gestir í bænum.
Sigurður Tómasson bóndi, Barkar-
stöðum í Fljótshlíð, Árni Einarsson,
bóndi, Múlakoti í Fljótshlíð, Hallgrím-
ur Þórarinsson bóndi, Ketilsstöðum á
Völlum. Jón Ólafsson bóndi, Austvaðs-
holti í Rangárvallasýslu, Guðmundur
Ólafsson bóndi, Sámsstöðum í Hvítár-
síöu, Ólafur Bjarnason bóndi á Brim-
ilsvöllum og kona hans.
Tízkusýníng
verzlunarinnar „GuIIfoss“ verff-
ur haldin aff Hótel Borg n. k.
fimmtudag kl. 4 og kl. 9 síffdegis.
Þar eð oss vantar heimilisfang
margra viðskiptavina vorra, eru
þeir, er láðst hefir að senda
kort til, en mættu óska að fara
á sýninguna, vinsamlegast
beðnir að vitja aðgöngumiða i
verzlun vora hið fyrsta, því pláss
er mjög takmarkað.
Virðingarfyllst
Verzlunin, Gullfoss,
Austurstræti 1.
HÚS.
Nýtízku steinhús af ýmsum
gerðum til sölu. Ennfremur mik-
ið úrval af eldri húsum.
Hús og jarðir tekið í umboðs-
sölu.
Nýjar kirkjur.
(Framhald af 3. síðu.)
hugaðrar stórkirkju á Skóla-
vörðuhæð.
%>að eru skátar bæjarins, sem
hafa tekið að sér þetta söfnun-
arstarf af fúsleik sínum og
drengskap og eiga þessar línur
að vera hvöt til bæjarbúa að
taka þeim vel, er þeir koma með
lista sína, því hér er vissulega á
ferðinni mál, sem varðar mjög
framtíð alls kirkju- og kristni-
lífs þessa bæjar.
Þess má og geta í þessu sam-
bandi, að það er langt síðan
frændþjóðir vorar á Norðurlönd-
um hafa kippt þessum málum í
lag í sínum borgum.
Lönd fyrir Gyðinga.
(Framh. af 1. síðu)
irnar. Sagði hann, að þær hefðu
vakið viðbjóð og meðaumkv-
un og hefði gert ástandið í al-
þjóðamálum stórum viðsjár-
verðara. Er búizt við að Gyð-
ingaofsóknirnar hafi haft þau
áhrif, að samningar við Þýzka-
land verði alls ekki ræddir á
viðræðufundi ensku og frönsku
ráðherranna, sem hefst í París
á morgun, heldur muni þar rætt
um sameiginleg landvarnarmál
þessara rikja og Spánarmálin.
Aðrar fréttir.
Maud Noregsdrottning and-
aðist eftir uppskurð á sjúkra-
húsi í London aðfaranótt laug-
ardagsins. Hún var fædd 1869 og
giftist 1896 Karli Danaprinsi, en
hann var kjörinn konungur
Norðmanna 1905, eftir skilnað
Noregs og Svíþjóðar og tók sér
konungsheitið Hákon VII. —
Einkabarn þeirra er Ólafur
krónprins. Maud var dóttir
Játvarðar VII. Bretakonungs.
Enska þingiff hefir samþykkt
með öllum greiddum atkvæð-
um tillögu, sem jafnaðarmenn
báru fram, þar sem lýst var
vanþóknun á öllum þjóðernis-
legum, trúarlegum og pólitísk-
um ofsóknum á hendur minni-
hlutum og óskað eftir samvinnu
allra þjóða til að greiða úr
flóttamannamálum.
Þýzkt stjómarblaff hefir skýrt
frá því, að sett verði lög, sem
geri Gyðinga í Þýzkalandi á-
byrga fyrir hverju því ofbeldis-
verki, sem Gyðingur fremur
gegn þýzkum manni erlendis.
f Ungverjalandi er nú verið
að undirbúa ráðstafanir, sem
gera kjör Gyðinga þar lakari en
þau hafa verið..
- Kaup og sala -
Ullarefni og silki,
margar tegundir. BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomiff.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
Gísli Björnssoii.
Barónsstíg 19. Sími 4706.
Garffar Svavarsson.
114
Andreas Poltzer:
— Þá horfir málið öðruvísi við, Sir!
sagði Philip og fyrirgaf húsbóndanum
undir eins, að hann hafði komið seint
heim. Það er ekki á hverjum degi, sem
slitnar upp úr trúlofun.
Þó að Whinstone væri æði þreyttur,
gat hann ekki sofnað strax. Hann var
alltaf að hugsa um Patriciu og það voru
ekkert skemmtilegar hugsanir. Hafði
hann ekki teflt of djarft kvöldið áður?
Hann hafði hagað sér eins og þjösni og
móðgað stúlkuna að yfirlögðu ráði. Hann
áleit sig að vísu enn hafa gert rétt í því
að gefa ekki erfingjanum að auðnum
mikla undir fótinn — hér tók hann kald_
hæðilega fram í fyrir sér: Það er eins
og ég haldi að hún sé viðbúin að taka
mér. En því fer víst fjarri, því er nú ver.
Annars er mér það víst fyrir beztu, eins
og nú er komið.
Þegar Philip vakti hann, hafði hann
ekki sofið öllu meira en hálftíma, fannst
honum.
— Hvað er klukkan? sagði hann geisp-
andi.
Philip var kænni en svo, að hann svar-
aði spurningunni nema óbeint.
Scotland Yard hringdi, Sir. Lögreglu-
stjórann langar til að tala við yður.
Whinstone glaðvaknaði, þótt enn væri
hann jafn þreyttur og áður.
Patricia 115
— Klukkan er tuttugu mínútur yfir
ellefu, Sir! sagði Philip nú ótilkvaddur.
Og Whinstone fór á fætur.
Sir William var að tala við mann, þeg-
ar Whinstone kom í Scotland Yard. Hann
fór því inn til Duffy yfirfulltrúa á með-
an, en hann var ekki við.
Ungfrú Bradford sat við ritvélina sína.
Hún hætti að skrifa þegar Whinstone
kom inn, og svaraði kveðju hans hispurs-
laust og án þess að fara hjá sér.
Hún virtist vera dálítið hissa á því, að
fulltrúinn fór að tala við hana. Alice
Bradford, ein af þeim fáu stúlkum, sem
störfuðu í Scotland Yard, átti ekki því
að venjast, að karlmennirnir þar skiptu
sér mikið af henni. Þessi hægláta unga
stúlka vann í kyrrþey það sem fyrir hana
var lagt, og það bar afar lítið á henni.
Það var alkunna, að Duffy hafði litla
trú á starfhæfni kvenna yfirleitt. En að
því er virtist, var hann ánægður með
ritarann.
Eftir dálitla stund fór Whinstone aftur
af skrifstofu Duffys með þeirri óbifan-
legu sannfæringu, að annaðhvort hefði
sér skjátlazt kvöldið áður, eða að stúlk-
an væri slægvitur meira en í meðallagi.
Loks fór gesturinn frá Sir William og
Whinstone flýtti sér inn til húsbóndans.
— Fáið yður sæti, fulltrúi, ég verð að
Óheiðarleg
blafSameimska
Stórmerkileg og afar-
spennandi sakamálamynd
Aðalhlutv. leika:
FRED MAC MURRAY,
CHARLIE RUGGLES
og
FRANCES FARMER.
Börn fá ekki aðgang.
nýja Bíó^ítnavrtmih
Njósnaramiðstöð |
i Stokkhólmi \\
Ensk kvikmynd, er styðst
að ýmsu leyti við sanna
viðburði, er gerðust í
Stokkhólmi síðustu mán-
uði heimsófriðarins.
Aðalhlutverkin leika:
VIVIAN LEIGH og
CONRAD VEIDT.
Aukamynd:
Mickey Mouse I flutningum
Börn fá ekki aðgang.
Blindrakerti og stjakar
fást í öllum verzlnnum bæjarins
og Ilafnarf jarðar.
Styðjið gott málefni.
Kaupið blindrakerti og stjaka.
TJmsóknir
nm námsstyrk samkvæmt ákvörðun
Meimtamáiaráðs (kr. 10,000), sem
veittur er á fjárlögum ársins 1939,
sendist ritara Menntamálaráðs, Ás-
vallagötu 64, Reykjavík, fyrir 1. jan.
1939.
Styrkinn má veita konum sem körl-
um, til hvers þess náms, er Mennta-
málaráð telur nauðsyn að styrkja.
IPPBOB.
Opinbert uppboð verður haldið í Goodtemplarahúsinu
fimmtudaginn 24. nóvember n. k. og hefst kl. iy2 eftir hádegi.
Verffa þar seld húsgögn, þ. á m. borffstofuhúsgögn, dagstofu-
húsgögn, borff og stólar, kommóffur, skápar, dívanar, klukkur, þ. á
m. rafmagnsklukka, útvarpstæki, grammófónar, orgel, klarinett,
rafmagnsbökunarofn, saumavélar, hefilbekkir, rennibekkur, bif-
reiff, peningaskápur, ritvél, dómkröfur, útistandandi skuldir og
loks nokkur eintök af verffmætum bókum, einnig upplög.
Munimir verffa til sýnis á uppboffsstaðnum, uppboffsdaginn
kl. 11—1 e. h.
Greiffsla fari fram við hamarshögg.
LÖGMAÐURINN í REYKJAVÍK.
Umsóknír
um styrk til skálda og listamanna,
sem veittur er á f járlögum ársins
1939 (kr. 5000,00), sendist ritara
Menntamálaráðs, Ásvallagötu 64,
Reykjavík, fyrir 1. janúar 1939.
Tliricosan - S
heitir ný hárvatnstegund, sem nu kemur á markaðinn.
Er henni sérstaklega stefnt gegn flösunni.
Notkunarreglur fylgja hverju glasi.
Útsöluverð 4 krónur.
Heildsalan hjá
ÁFENGISVERZLUIV RÍKISINS.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
#
t heUdsölu hjá
Samband ísl. sam vínnuf élaga
Sími 1080.