Tíminn - 17.12.1938, Qupperneq 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLX GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúsi, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA,
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
Edduhúsi, Lindargötu 1D.
Sími: 2323.
Prentsmið)an Edda h.f.
Símar: 3943 og 3720.
22. árg.
Reykjavík, laugardaginn 17. des. 1938
79. blað
Eldnr i Öskjuf
Leiptur og eldbjarmí hafa sézt úr
Mývatnssveit og Bárðardal
í Mývatnssveit og Bárð-
ardal hefir undanfarið orð-
ið vart við leyftur og dynki,
er benda til eldsumbrota í
Dyngjufjöllum.
Leiftrin sáust fyrst síðdegis
á miðvikudaginn og voru þá
talin í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit 20 leiftur á 18 mínútum.
Leiftrin sáust frá mörgum bæj-
um í Mývatnssveit og efstu
bæjunum í Bárðardal. Eru
menn sammála um það í Mý-
vatnssveit að þau hafi verið í
stefnu á Dyngjufjöll og á sömu
slóðum og þegar eldur hefir sézt
þar áður. Þó er ekki talið úti-
lokað, að þau hafi getað stafað
frá eldsumbrotum í Vatnajökli,
sem verið hafa I sömu stefnu.
Um miðjan dag á fimmtu-
daginn heyrðu menn í Náma-
fjöllum mikla dynki og varð
þeirra einnig vart í Mývatns-
sveit. Snemma í gærmorgun
sást mikill bjarmi frá ýmsum
bæjum í Mývatnssveit og var
hann í sömu stefnu og leiftrin
sáust á miðvikudaginn.
Síðdegis í gær og í morgun
hafa engin leiftur eða bjarmi
sézt, enda hefir skyggni verið
slæmt.
Aðfaranótt föstudagsins varð
vart við tvo landskjálftakippi á
Raufarhöfn. Landskjálföamæl-
arnir í Reykjavík sýndu þrjár
hræringar nálægt miðjum degi
síðastl. laugardag og virtust
þeir vera í 280 km. fjarlægð frá
Reykjavík eða í svipaðri fjar-
lægð og Askja.
Eldri gos
í Dyngjuf jöllum.
Á undanförnum árum hafa
oft verið gos í Öskju, sem er að-
algígurinn í Dyngjufjöllum.
í desember 1922 varð þar all-
mikið gos og rann talsvert
hraun frá eldstöðvunum. Næsta
gos varð 1926 og myndaðist þá
m. a. hólmi í vatninu, sem er
í Öskjugígnum, en það er all-
stórt. Um 1930 mun hafa orðið
lítið gos sunnan við Dyngju-
fjöll, en þess mun ekki hafa
orðið vart í byggð.
Mesta gosið í Öskju, sem sög
Selma Lagerlöí
ur fara af, varð síðara hluta
vetrar 1875. Barst askan þá alla
leið til Noregs og Svíþjóðar.
Féll hún yfir allt Austurland frá
Smjörvatnsheiði til Berufjarð-
ar, en vindur var suðvestlægur
þá daga, sem gosið stóð yfir.
Eyðilagði askan allan gróður á
efstu bæjum í Jökuldal og lögð-
ust margir þeirra í eyði um
stundarsakir.
Byggíngarkostnaður
í Reykjavík
Vinnulaunin hafa fimm
faldast siðan 1914
í seinustu Hagtiðindum birt-
ist fróðlegur samanburður um
byggingarkostnað í Reykjavík
1914 og 1938.
Samanburðurinn er miðaður
við steinsteypuhús, sem er að
stærð 8.5X7.2 m., ein hæð, port-
byggt, krossreist, með geymslu-
kjallara, loft og gólf úr timbri
og útveggir allir þiljaðir innan
með pappa á milli, húsið striga-
lagt innan og málað, en án allr-
ar pípulagningar.
Árið 1914 hefði byggingar-
kostnaður þessa húss numið um
7.288 kr., en nú er hann um
21.545 kr. Hefir byggingar-
kostnaðurinn því þrefaldazt á
þessum tíma.
Árið 1914 hefðu efniskaup til
hússins numið 5.177 kr., en nú
11.278 kr. Hefir hann því rösk-
lega tvöfaldazt á þessu tímabili.
Árið 1914 nam vinnukostnað-
ur 2.111 kr., en nú 10.267 kr. og
hefir hann þvi næstum fimm-
faldazt. Hefir kaup trésmiða,
múrara og málara meira en
fimmfaldazt, en erfiðisvinna er
nú h. u. b. 4y2 sinnum dýrari
en 1914.
Togaraátgerd
í Noregi
Álit sjávarútvegs-
nefndar Stórpingsins
Sjávarútvegsnefnd norska
Stórþingsins hefir undanfarið
haft til athugunar, hvort leyfa
skuli aukna togaraútgerð í
Noregi. Nefndin hefir nú ný-
lega skilað áliti og er marg-
klofin.
Þrír sósíalistar leggja til að
togaraútgerð verði algerlega
bönnuð, þar sem hún skapi
aukið atvinuleysi við sjóinn og
myndi leiða til offramleiðslu,
ef hún ykist verulega.
Tveir vinstrimenn, einn
sósíalisti og einn bændaflokks-
maður lýsa sig einnig mót-
fallna aukinni togaraútgerð, en
vilja þó ekki banna hana alger-
lega. Leggja þeir til að leyfð
verði útgerð 11 togara í stað 8
nú. Væri þá hægt að bæta við
þremur nýtízku togurum. Þeir
vilja setja það sem skilyrði fyr-
ir útgerðarleyfum fyrir nýja
togara, að sjómennirnir, sem
á þeim vinna, eigi þá að mestu
leyti, og verði þeir reknir á
samvinnugrundvelli.
Þrir íhaldsmenn lýsa sig einn-
ig mótfallna aukinni togaraút-
gerð, en telja þó ekki rétt að
leggja hana niður með öllu og
verði a. m. k. að starfrækja
nokkur skip til að sýna hvaða
raun þessi útgerð gefur. Vilja
þeir leyfa útgerð 10 togara og
sé hlutast til um að þeir hafi
sem fullkomnastan útbúnað.
Einn vinstri maður og einn
sósíalisti vilja veita togaraút-
gerðinni rýmri réttindi, en telja
sig þó geta fallizt á, að togar-
arnir verði ekki fleiri en 11
fyrst um sinn. Einn sósíalisti
hefir ekki tekið þátt í þesum
störfum nefndarinnar.
Samtök nazista og kommún-
ista bönnuð í Finnlandi
Lögregluvörður hefir verið
aukinn við bústað Staunings
forsætisráðherra, af ótta við
nazista. Nýlega var brotizt inn
á skrifstofur danska jafnaðar-
mannaflokksins og stolið miklu
af skjölum, er varðaði erlenda
flóttamenn. Ekki hefir enn
náðst í innbrotsmennina.
Finnska stjórnin ákvað fyrir
nokkru að banna stjórnmála-
starfsemi fasista, en stjórnmála-
samtök kommúnista hafa verið
bönnuð í Finnlandi síðan 1925.
Finnskur fasistaflokkur, sem
nú hefir verið bannaður, átti
14 fulltrúa í finnska þinginu.
Hann gekk venjulega undir
skammstöfuninni I. K. L. —
Isánmaallinen kansan-liike —
sem mun nánast þýða flokkur
ættjarðarinnar. Hann var
sprottinn upp af rótum Lappo-
hreyfingarinnar, sem var bönn-
uð 1932 og aldrei var eiginlegur
flokkur, en beitti hótunum og
ofbeldi í starfsemi sinni. Stefna
og skipulag I. K. L. var alger-
lega samið eftir fasistiskri fyr-
irmynd. Eitt af stefnuskrárat-
riðum I. K. L. var útrýming
Svía og Gyðinga. Flokkurinn
krafðist einnig algerðra sam-
vinnuslita við Norðurlönd og
náinnar samvinnu við Þýzka-
land.
Flokkurinn hafði aðalfylgi
sitt meðal skólafólks, einkum
stúdenta. Hann hafði 18 dag-
blöð og sýnir það, að hann
hefir stuðst við menn, sem réðu
yfir miklu fjármagni.
Það er vist, að finnska
stjórnin hefði ekki gripið til
þeirra örþrifaráða að banna
allstóran þingflokk, ef óvenju-
legar ástæður hefðu ekki verið
fyrir hendi. Eru einkum til-
greindar tvær ástæður, sem
hafi ráðið þessum gerðum
stjórnarinnar. Önnur er sú, að
flokkurinn hefir reynt að
skipuleggj a stormsveitir meðal
skólafólks og annars æskulýðs
og orðið talsvert ágengt. Hin er
sú, að komið hafi í ljós að
flokkurinn stóð í sambandi við
erlenda valdhafa og hafði á
prjónunum fyrirætlanir, sem
gengu í bága við öryggi ríkisins
og stjómarskrá þess.
Vegna þeirrar ástæðu var
finnski kommúnistaflokkurinn
bannaður 1925. Með tilstyrk
Rússa hafa þó kommúnistar
reynt síðan að halda uppi ýmsri
leynistarfsemi og voru margir
A.
Sænska skáldkonan Selma Lagerlöf
varð nýlega áttræð. Hún er enn furð-
anlega hress. Hún var fyrsta skáld-
konan. sem hlaut bókmenntaverðlaun
Nobels. Nokkrar sögur hennar hafa
verið þýddar á íslenzku og munu fáir
erlendir skáldskagnahöfundar vera
kunnugri hér á landi en hún.
Churchill hefir nýlega haldið
ræðu, sem vakti mikla athygli.
Hvatti hann til þess að mynd-
uð væri þjóðstjórn.
Samkvæmt seinustu Hagtíðindum
námu skattskyldar fasteignir hér á
iandi 217,1 milljón króna á síðastliðnu
ári (1937) og höfðu þær aukizt frá þvi
árið áður um 5,5 milljónir króna. Af
þeim voru 62,0 milljónir landverð, en
155,0 millj. kr. húsaverð. í kaupstöðum
er landverð talið 31,4 millj. kr. og húsa-
verð 110,0 millj. kr. í sveitum er land-
verð talið 30,6 millj. kr. og húsaverð
45,2 millj. kr. í Reykjavík einni er land-
verð talið 19,5 millj. kr. og húsaverð
73,0 millj. kr.
i t t
Undanfarin þrjú ár hefir nokkru fé,
um 10 þúsundum króna á ári, verið
varið til vegagerðar inn Hvalfjarðar-
ströndina frá Miðfelli. Er nú vegur
þessi fullgerður inn undir Kalastaði.
Þessi vegur, sem tengir byggðina við
Akranes, er hin mesta lífsnauðsyn
fyrir íbúa sveitarinnar, sér í lági þar eð
bændur hljóta, um stund að minnsta
kosti, að leggja mesta áherzlu á mjólk-
urframleiðslu, vegna sauðfjárpestar-
innar, sem er í þann veginn að skella
yfir alla byggðina sunnan Skarðsheiðar
og hefir þegar valdið stórfelldu tjóni
sumstaðar. Að vetrarlagi er eins og
nú standa sakir mjög erfitt um mjólk-
urflutninga, ef snjóalög gerir. Væri því
góður, upphlaðinn vegur sem allra
lengst inn Hvalfjarðarströnd, þær um-
bætur, sem byggðarlaginu væru þarf-
astar. Slíkir vegir, er grundvalla fram-
leiðslu, virðast líka eiga að ganga fyrir
vegum, sem mest eru notaðir til
skemmtiferðalaga.
son bóndi í Gerðakoti. Verzlunarstjóri
er Stefán Friðbjömsson.
r t t
Skattskyldar fasteignir. — Vegagerð um Hvalfjarðarströnd. — Sjósókn frá
Hellissandi. — Kaupfélagsstarfsemin í Sandgerði. — Eftirlit með fjárreiðum
------------------ bæjarfélaga austanlands. — Ur Stykkishólmi.---------------------------------
Undanfama daga hefir verið ágætur
afli á Hellissandi og hafa allir opnir
vélbátar og árabátar róið til fiskjar af
miklu kappi. Togarinn Kári hefir keypt
þorskinn en kaupfélagið hefir keypt
ýsuna og fryst hana. Áður hefir sjó-
mönnunum orðið lítið úr henni, og er
þessi nýbreytni kaupfélagsins drjúgur
tekjuauki fyrir sjómenn á Sandi. Til-
finnanlegur skortur er á góðum vél-
bátum þar í verstöðinni, þegar afla-
hrotur koma, því að árabátarnir eru
ónógir til sjósóknar á vetrum, ef nokk-
uð er að veðri. Undanfarna daga hefir
verið bliðuveður á Hellissandi.
t t r
í Sandgerði er nýlokið byggingu
verzlunarhúss, sem Kaupfélag Reykja-
vikur og nágrennis hefir látið reisa. Er
það kjallari og ein hæð. í kjallara er
vörugeymsla, en á efri hæðinni eru
skrifstofa, verzlunarbúð og lítil geymsla.
Sölubúðin hefir nú verið opnuð og er
þar verzlað með matvörur, kjöt, al-
gengustu tegundir búsáhalda og vefn-
aðarvöru. Var fyrir nokkm sfðan stofn-
að pöntunarfélag í Sandgerði og gekkst
það fyrir stofnun KRON, ásamt fleiri
félögum. Eru nú flestir Sandgerðisbúa
í félaginu og hafa viðskiptin stöðugt
farið vaxandi. Má þó gera ráð fyrir að
þau aukist enn meira nú, þar sem skil-
yrði hafa á margan hátt batnað með
byggingu verzlunarhússins. í stjóm
Sandgerðisdeildar KRON eru Jóhannes
Eiríksson, Hlíðarhúsum, Gunnlaugur
Jósefsson, kennari og Þorlákur Eyjólfs-
Samkvæmt lögum um eftirlit með
fjárstjórn bæjar- og sveitarfélaga, er
sett voru haustið 1937, hefir atvinnu-
málaráðherra falið Benedikt Guttorms-
syni kaupfélagsstjóra á Stöðvarfirði,
að hafa eftirlit með fjárreiðum og
fjárhag Neskaupstaðar. Er honum falið
að fylgjast með afgreiðslu fjárhags-
áætlunaf fyrir næsta ár, gæta þess, að
fyllsta spamaðar sé gætt í útgjöldum
og tekjumöguleikar hagnýttir til fulls,
innheimta opinberra gjalda rekin svo
sem lög standa til og fullrar hagsýni
gætt við framkvæmd framfærslumál
anna. Þá er Benedikt ennfremur falið
að gera tillögur um annan sparnað, er
hægt yrði að koma í framkvæmd. Hon-
um er jafnframt falið að hafa sams-
konar eftirlit með Búða- og Eskifjarð-
arhreppmn. Fyrirskipunin um eftirlit
þetta, byggist á vanskilum framan-
greindra bæjar- og sveitarfélaga við
ríkissjóð, og eitt þeirra, Eskifjarðar-
hreppur, hefir notið beins fjárstyrks úr
ríkissjóði.
t t t
Opnir vélbátar sækja nú sjó frá
Stykkishólmi og afla vel. Hafa gæftir
verið flesta daga síðastliðna viku,
Kolaveiðar voru stundaðar fram til 1.
des., en siðan hafa þorskveiðar ver-
ið stundaðar. í frystihúsi kaupfélags
ins hefir verið mikið að gera í sumar
og haust. í vor var gerð á því endur-
(Framh. á 4. síöu)
Kallio,
forseti Finnlands.
forsprakkar þeirra handsamað-
ir um líkt leyti og þessar ráð-
stafanir gegn fasistaflokknum
voru gerðar.
Margir munu telja það ganga
í bága við lýðræðið, þegar grip-
ið er til þeirra ráðstafana að
banna starfsemi vissra stjórn-
málaflokka. En þeir, sem unna
lýðræðinu, verða að gæta þess,
að litlum minnahluta takist
ekki að brjóta það niður með
ofbeldi og undirróðri, sem
studdur er af erlendum vald-
höfum í þeim tilgangi að þeir
nái þjóðinni að meira eða
minna leyti undir áhrif sín.
Undir slíkum kringumstæðum
verður lýðræðið að láta hart
mæta hörðu. Annars er það og
sjálfstæði þjóðarinnar dauða-
dæmt.
Finnar eru eina Norður-
landaþjóðin, sem þurft hefir að
fara þessa leið. Er það eðlilegt.
Lýðræðið er yngst þar og
stjórnmálaþroski minnstur. —
Lega landsins er líka sú, að
undirróður beggja öfgastefn
anna hlýtur að verða meiri þar
en annarsstaðar á Norðurlönd-
um, þvi afstaða Finnlands get-
ur haft mikla þýðingu í styrj-
öld milli Rússa og Þjóðverja.
Aðrar fréttir.
Liðsforingjar úr hópi Hvit-
Rússa (þ. e. þeirra, sem börðust
gegn kommúnistum eftir bylt
inguna) eru nú sagðir komnir
saman til fundar í Berlín. Munu
þeir ræða um baráttuna fyrir
aðskilnaði Ukrainu frá Rúss-
landi. — í pólska þinginu hefir
ukrainiskur þingmaður borið
fram frumvarp um sjálfstjórn
fyrir pólsku Ukrainu.
Anthony Eden er nýkominn
í fyrirlestraferð til Bandaríkj-
anna. Hefir hann hvarvetna
verið hylltur og hefir engum
enskum stjórnmálamanni verið
tekið þar jafn vel. Er hann tví
mælalaust sá stjórnmálaleiðtogi
Endlendinga, er nýtur mestra
vinsælda þar vestra. Eden hefir
heimsótt Roosevelt forseta og
ræddust þeir lengi við.
Þingið í Tékkóslóvakíu hefir
veitt stjórninni einræðisvald til
tveggja ára. Verður því slitið nú
um helgina og mun ekki koma
saman næstu tvö ár.
Ríkisstjórnin í Rúmeníu hefir
stofnað nýjan stjórnmálaflokk,
þjóðlega viðreisnarflokkinn.
Allir aðrir stjórnmálaflokkar
hafa verið bannaðir.
í þingkosningum í Jugoslav-
íu hefir ríkisstjórnin unnið
mikinn sigur.
Um 200 njósnarar hafa verið
dæmdir til dauða í Barcelona
Störfuðu þeir í þágu Francos.
Rússneskir njósnarar hafa
verið handsamaðir í Los Angeles
í Bandaríkjunum.
Þingið í Tanganiyka, hinni
gömlu nýlendu Þjóðverja, hefir
skipað nefnd til að greiða fyrir
innflutningi Þjóðverja.
Á víðavangi
Bjarni Bjarnason læknir frá
Geitabergi og Vilhjálmur Stef-
ánsson landkönnuður eru ósam-
lykkir i appelsínumálunum. —
Bjarni fullyrðir í útvarpi og
blöðum, að appelsínuleysi leggi
::slendinga unnvörpum í gröfina
í höndum þeirra 30 lækna, sem
gæta heilsufarsins í Reykjavik.
Vilhjálmur Stefánsson, sem er
öllu frægari vísindamaður en
Bjarni og aðstoðarmenn hans í
Mbl. og Vísi, bendir á rannsókn-
ir sínar á heilsufari íslendinga
fyrr á öldum. Vilhjálmur fann í
tugatali höfuðkúpur íslendinga
frá miðöldum í grafreitum í
Mýrasýslu með allar tennur
heilar eftir langt líf og langa
dvöl í moldinni. Og Vilhjálm-
ur dregur enga dul á, að það
fólk hér á landi, sem hefir lifað
appelsínum að miklu leyti
síðasta mannsaldurinn, undir
vernd og umsjá appelsínulækna
og manna, sem verzla með
appelsínur hér í Reykjavik,
muni alls ekki geta sýnt neitt
svipaða tanngarða eftir 500 ár.
Vilhjálmur Stefánsson hefir að-
stöðu til að þekkja appelsínur
og sítrónur miklu betur en
Bjarni Bjarnason og Jónas
Sveinsson. En hann er svo hlá-
legur að mæla miklu meira með
kjöti, fiski, smjöri, lýsi, slátri
og fleiri góðum íslenzkum mat-
artegundum fyrir íslendinga,
heldur en langfluttum appelsín-
um vestan úr Kaliforníu.Og Vil-
hjálmur stendur á grundvelli
mörg hundruð ára reynslu. —
Ungu, íslenzku læknarnir og
appelsínusalarnir byggja á
kenningum um svokölluð lífefni,
sem eru enn umdeild í svo að
segja hverju einasta atriði af
þeim, sem fást við lífeðlisrann-
sóknir. Og tennurnar í Reykvík-
ingum bera hinum nýju vitring-
um slæman vitnisburð.
í fullveldisdagsræðu sinni
sagði Pétur Magnússon m. a.:
„Þjóðin er ómótmælanlega bet-
ur undir það búin nú en nokk-
urntíma áður, að mæta hvers-
konar fjárhagserfiðleikum.“ —
Þessi ummæli eru í fullu ósam-
ræmi við lýsingar Mbl. á stjórn-
arfarinu hér seinustu árin og
er því ekki undarlegt þó ræða
Péturs hafi ekki fundið náð fyrir
augum heildsalanna, sem fylgja
reglu Knúts um „að gefa and-
stæðingi aldrei rétt“. En Mbl.
hefir enn ekki þorað að birta
ræðuna af ótta við þá.
Framangreind ummæli Péturs
Magnússonar sýna að hann hef-
ir brotizt undan áhrifavaldi
heildsalanna, a. m. k. í einn
dag. Á fullveldisdaginn hefir
hann fundið meira til þess að
hann væri íslendingur en
flokksbróðir heildsalanna. Þess
vegna hefir hann gefið aðra
lýsingu á ástandinu en blöð
heildsalanna. Vafalaust er því
þannig varið með fjölmarga
fleiri sjálfstæðismenn. En þeir
þurfa að læra að brjóta sig
undan áhrifum heildsalanna
lengur en í einn dag, ef hinn
rétti skilningur þeirra á að
koma þjóðinni að gagni.
Bonnet utanrikisráðherra
Frakka hefir lýst því yfir, að
Frakkar muni ekki láta þuml-
ung af landi til ítala og allar
slíkaT kröfur muni leiða til
styrjaldar. ítölsk blöð halda
áfram að hamra á kröfunni um
afhendingu Tunis og Korsiku til
ítala.
Beran, hinn nýi forsætis-
ráðherra Tékka, hefir haldið
ræðu, þar sem hann vék að því,
að Tékkóslovakía gæti ekki séð
fyrir öllum þeim flóttamönn-
um, sem dveldu þar nú. Hann
lofaði Gyðingum, sem hefðu
dvalið lengi í landinu, að réttur
þeirra skyldi eigi skertur.