Tíminn - 17.12.1938, Side 3
79. blað
TÍMI1\N, laagardaginn 17. dcs. 1938
315
B Æ K U R
A N N A L L
Börnin skrifa. — Sögur
og ljóð eftir börn.
Látlausasta og fegursta bók-
arheiti um langan tíma! Á það
vel við, því að hér er á ferð bók,
sem einungis er skrifuð af
börnum á aldrinum 6—14 ára.
Stúlkum og drengjum úr sveit
og kaupstað. Sögurnar eru
flestar stuttar, og nokkrar
prýddar teikningum eftir börn-
in sjálf. Hvorttveggja mikill
kostur á barnabók. Frásagnar-
gleðin og hispursleysið, sem
börnunum er svo eiginlegt,
ljómar af hverri sögu og ljóði.
Engin bók getur verið börnun-
um kærkomnari. Hún er skrif-
uð á þeirra eigin máli og kom-
in beint úr þeirra hugarheimi.
Síðastliðinn vetur gafst mér
kostur á að kynnast bókum af
líku tæi suður í Genf. Það eru
smákver, sem koma út vikulega,
gefin út af C. Freinet, mjög
merkum skólamanni í Suður-
Frakklandi. Þessi kver flytja að-
eins efni, unnið af börnum.
Bækur þessar hafa reynzt eftir-
sóttari af börnum en nokkrar
aðrar. Margar kennslukonur
sögðu mér, að börnin væru
stöðugt að spyrja, hvort næsta
bók kæmi ekki bráðum. Skól-
arnir kaupa bækur þessar í
sívaxandi eintakafjölda. For-
eldrum og kennurum má vera
það mikið gleðiefni, að slík bók
sem „Börnin skrifa“, skuli vera
komin á markaðinn. Ekki ætti
það að spilla fyrir, að Aðal-
steinn Sigmundsson og Ingimar
Jóhannesson hafa valið efnið
og búið bókina undir prentun.
Nöfn þeirra ættu að vera næg
trygging fyrir, að hér er um
gott lesefni að ræða. Er von-
andi, að munað verði eftir bók
þessari nú um jólin, þegar
barnabækur eru valdar til jóla-
gjafa.
Valgerður Guðmundsdóttir.
Sigurður Einarsson: Mikl-
ir menn. Útgefandi: Ólaf-
ur Erlingsson. Reykjavík.
1938. Verð: kr. 4.60 ób.,
kr. 6.75 bundin.
í bók þessari eru greinar um
19 menn, sem mjög hafa komið
við sögu á undanförnum ár-
um. Langflestir þeirra eru á
lífi og sumir á hátindi frægðar
sinnar og valda. Greinarnar
eru allar laglega skrifaðar, enda
er Sigurður prýðilega ritfær.
Hinsvegar virðist hann ekki
hafa lagt fram mikla vinnu til
að afla sér svo víðtækra heim-
ilda, að frásögn hans gæfi
nokkurn veginn glögga heildar-
mynd af þeim manni, sem hún
fjallar um. Er líkast því, sem
hann hafi venjulega notað ein-
hverja útlenda blaða- eða tíma-
ritsgrein, sem uppistöðu, en
ekki aflað sér neinna upplýs
inga til viðbótar. Greinin um
Hitler er t. d. ljóst dæmi um
hroðvirkni í þessu efni, en meg-
inhluti hennar er einskonar
dagatal yfir atburðina í sam
bandi við Tékkó-Slovakíu sið
astl. sumar, en mörg útlend
blöð birtu slíkt yfirlit, þegar
mál þessi voru ráðin til lykta.
Hinsvegar er lítil tilraun gerð
til að gera persónunni Hitler
eða æfiferli hans nokkur skil
Einna bezt er greinin um Mac
Donald. Hún er fjörlega skrif
uð og höfundurinn hefir auð-
sjáanlega stuðst við góðar
heimildir.
Sigurður B. Gröndal:
Skriftir heiðingjans. Ljóð.
ísafoldarprentsmiðja h. f.
Reykjavík 1938. Bls. 58.
Verð kr. 4.00 ób.
Þetta er fjórða bók höfund-
arins. Áður hefir hann gefið út
eina ljóðabók og tvö smásagna
söfn, sem talsverða athygli
hafa vakið.
Skriftir heiðingjans er aðeins
einn ljóðaflokkur, sem skiptist
í 25 kafla. Ekki verður það sagt,
að hér sé um stórbrotinn skáld
skap að ræða. En höfundurinn
er vandvirkur og athugull og
velur sér oft frumleg yrkisefni
Afmæli.
Guðmundur Andrésson bóndi
í Hraunprýði i Vatnadal í Suð-
ureyrarhreppi, varð 75 ára 8.
des. Hann er
Önfirðingur að
ætt, stundaði
búskap í fyrstu,
en gaf sig síðan
að sjómennsku,
Ifyrst á opnum
'oátum, síðar á
þilskipum. Var
hann um langt
skeið stýrimað-
ur á hákarla-
veiðum og er manna fróðastur
ufn allt, er að þeim veiðiskap
lýtur. En sú veiðiaðferð er því
miður að falla i gleymsku hjá
okkur íslendingum. Guðmund-
ur er ekkjumaður og á eina
dóttur barna, Andreu, gifta
Veturliða Guðnasyni, og búa
Dau í Vatnadal. Hefir Guð-
mundur verið mikill starfsmað-
ur um æfina, enda lagvirkur
og útsjónargóður við alla vinnu.
Dugnað Guðmundar má meðal
annars marka á því, að fyrir
nokkrum árum byggði hann
upp eyðibýli, hjáleigu frá
Vatnadal, og hefir stundað þar
búskap síðan, þrátt fyrir erfiða
aðstöðu til ræktunar. Ráðs-
kona hans, Guðrún Sigurðar-
dóttir, hefir verið honum mjög
samhent í öllu, enda mesta
dugnaðarkona. Hafa þau I elli
sinni alið upp tvö barnabörn
Guðrúnar og gengið þeim í for
eldrastað.
Guðmundur fylgist enn vel
með í öllu sem við ber, þrátt
fyrir nokkra vanheilsu og
þreytu.
Dánardægur.
Guffný Gufflaugsdóttir í Ný
lendu á Akranesi varð bráð-
kvödd 12. þ. m. Hún var nær
hálf áttræð að aldri.
Elísabet Bjarnadóttir í Galt-
arholti í Skilmannahreppi and
aðist 13. þ. m.
Húsmæður:
Þegar pér biðjið um
kafii, pá biðjið um
£;A.uslurstr. ð sími 5652.Opíó Kl.1l-12o9
Annast kaup og sölu verffbréfa,
Skiptafundur
verður haldinn í dánar- og
félagsbúi Bjarria Þórðar-
sonar og Þóreyjar Páls-
dóttur, frá Reykhólum, á
skrifstofu embættisins
Hafnarflrði, þriðjudagina
29. des. n. k. og hefst kl.
1,30 e. h.
Skiptaráðandinn í Gull-
bringa- og Kjósarsýslu
Bergur Jónsson.
beinkti
- Kaup og sala -
Ullarefiil og slllti,
margar tegundir. BLÚSSUR,
KJÓLAR o. fl. nýkomiff.
SAUMASTOFAN UPPSÖLUM.
Sími 2744.
TRÚLOFUNARHRINGANA,
sem æfilöng gæfa fylgir, selur
SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Sent
gegn póstkröfu hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mál
SIGURÞÓR,
Hafnarstræti 4, Reykjavík.
hverjum pakka eru
(auglýsinga) myndir lyr-
ir krakkanas íslenzkir
leikarar, prykkimynd-
ír og glansmyndir. —
Verzlun Geirs
Konráðssonar
FALLEGAR
JÓLAGJAFIR
H13 óðf ær a ver kstæði
Pálmars Isólfssonar,
Sími 4926. Óðinsg. 8.
Allar viðgerðir á píanoum
og orgelum.
Framleiðir ný píanó.
Kaupir og selur notuð hljóðfæri.
Kristall.
Keramik.
Málverk.
Myndir.
Myndarammar
Einnig úrval af:
Kertastjökum,
Skálum
og margt fleira
í gömlum stíl.
Verzlun Geírs
veimiu uciisí o
;; Konráðssonar
:: Uaugavegl 12. JJ
l/LS 5,
Acta-bækurnar ódýru
geta menn pantað hjá bóksöl-
um, eða beint af lager hjá
skilanefndarmanni Acta
Jóni Þórffarsyni,
Sími 4392. Framnesv. 16 B.
VinniS ötullega fyrir
Tímann.
2 0 S T K. PAKKIMN KOSTAR K R . 1.70
A^GTRALARE
i förstklassigt skick med förvármare till salu. Liten
kontantinbetalning. Likvid kan om sá önskas fá er-
lággas medelst saltsillleveranser, Svar till »Förmán-
lig affár« A. B. Skandinaviska Fartrygsagen-
turen, Göteborg.
íslenzk fornrit til jólagjafa.
Borgfirðinga sogur,
EGILS SAGA — LAXDÆLA SAGA
EYRBYGGJA SAGA — GRETTIS SAGA.
Fást hjá bóksölum. Verð kr 9,00 og kr. 15,00.
Aðalútsala:
BókaverzL Síg-fúsar Eymundssonar.
Kápubúðin Laugaveg 35 tilkynnii :
Kápur, Frakkar og Undirföt í smekklegu úrvali. 10—15°/0
afsláttur gegn staðgreiðslu til jóla. Einnig úrval af dömu-
töskum — 25°/0 afsláttur, Hvergi smekklegra né betra
úrval af jólagjöfum handa börnum og fullorðnum. Allt
íslenzk vinna. — ATHUGIÐ. Jólasveinninn kemur í Kápu-
búðina á sunnudaginn klukkan 4.
Sígurður Guðmundsson
Sími 4278,
RLIKKSMIÐJAN GRETTIR
Grettisgötu 18, Reykjavík. Sími 2406.
Smiffar eftir pöntun:
Vatnskassa, oliubrúsa, ljósker og eldhúsáhöld í skip, þakrennur,
þakglugga, rennujárn og allt, sem tilheyrir blikksmíffi við húsa-
byggingar. — Sent gegn póstkröfu um land allt.
Vönduff vinna! — Fljót afgreiffsla! — Sanngjamt verff!
ÚTBREIÐIÐ TÍMANN
Sálarrannsóknariél.
(Framh. af 2. síðu)
kynsins, af því, að af niffur-
stöðum þeirrar leitar myndu
mennirnir hljóta stærstan og
hamingjumestan þroska.
Og þótt segja megi, að fé-
lagið, sem þeir stóðu fyrir, sé
í sárum við missi þeirra, er og
hins að minnast, aff málefnið,
er þeir þörðust fyrir, stendur
eftir, jafn háleitt, jafn bjart og
áhrifaríkt sem fyrr. Ef til vill
hafa sannindi þess aldrei átt
jafn brýnt erindi til mann-
kynsins, sem einmitt nú á tím-
um hnefaréttarins, ofbeldisins
og miskunnarleysisins í skipt-
um þjóða og einstaklinga.
Ég á enga ósk betri né ein-
lægari til handa Sálarrann-
sóknafélagi íslands en þá, að
það megi hér eftir sem hingað
til senda marga bjarta geisla
göfugra hugsjóna inn á sem
flest heimili þessa lands og
ryðja þangað sannindum þess
málefnis, sem margir álíta með
forystumönnum að sé „mikil-
vægasta málið í heimi.“
Hallgr. Jónasson.
Útbrelðlð TtMANN
156
Andreas Poltzer:
Patricia
153
ritara hans. Whinstone langaði ekki til
að segja yfirfulltrúanum frá grun sínum
sjálfur. En til vonar og vara ætlaði hann
að hafa gát á ungfrú Bradford.
Undir eins og Alice Bradford varð þess
vör, að hætt var að skyggja hana, fór
hún upp i þakkytruna í Upper Harley
Street. Sértrúarflokkur hélt samkomur
þar tvisvar í viku og þá var hliðið opið,
svo hún komst umsvifalaust inn. Hún
skauzt upp, svo enginn sá.
Kortéri seinna kom ungur, grannur
maður út úr húsinu. Fæstar stúlkur
geta gengið í karlmannsfötum án þess
að það sjáist. Alice var ein af undan-
tekningunum. Jafnvel skarpskyggnasti
gagnrýnýandi hefði ekki getað séð, að
þessi laglegi ungi maður, í vel sniðnum
smoking undir dökkum vetrarfrakkan-
um, var ung stúlka.
Alice Bradford rólaði niður Portland
Place. Á Langham Place hóaði hún í
bifreið. í þetta skipti steig hún líka úr
bifreiðinni aftur við Piccadilly Circus.
Fáeinum mínútum síðar hringdi hún
dyrabjöllunni í Old Man’s Club. í sama
bili og opnað var, kom óvenjulega gild-
vaxin kona, fullorðin, fram á sjónar-
sviðið. Hún hafði dökka slæðu fyrir and-
litinu, en það sást vel í skarpa hökuna.
Ungi maðurinn og gamla konan stálust
til að líta hvort á annað. Datt öðruhvoru
arann að lýsa fyrir sér brunnu trémynd-
inni ennþá einu sinni. Allt í einu tók
hann fram í fyrir honum:
— Þér sögðuð, að forkurinn, sem tré-
myndin hafði í hendinni, hefði snúið
upp? spurði hann kjallarameistarann.
— Já, herra.
— Yður skjátlast ekki?
— Nei.
Kjallarameistarinn varð ekki lítið for_
viða þegar fulltrúinn tók á rás og hvarf
á burt án þess að segja orð frekar.
Hann náði í bifreið og ók beint til
Scotland Yard og bað Forest að koma
inn til sín.
— Heyrið þér, Forest! Þér verðið að
hefja nýja grennslan eftir þessari
brenndu trémynd, sagði Whinstone.
— Ég hefi spurzt fyrir í öllum forn-
gripaverzlunum, sem komið geta til mála
— enginn þeirra kannaðist neitt við
neina Thanatosmynd....
— Þér eigið ekki að spyrja um Thana-
tosmynd, heldur um Hypnosmynd.
Forest, sem ekki var sérlega fróður um
gríska goðafræði, starði eins og flón á
yfirboðara sinn.
— Hypnos er, samkvæmt grísku goða-
fræðinni, guð svefnsins. Það er sá mun-
urinn á honum og Thanatos bróður hans,
að hann heldur forki sínum upp. Tha-
natos er alltaf sýndur með forkinn snú-