Tíminn - 21.01.1939, Síða 4
36
TÍMINN, laiigardaginn 21. janúar 1939
9. blað
IMIOIj-A-IR,
Seinustu fregnir herma að
Hitler hafi leyst dr. Hjalmar
Schacht frá störfum, sem for-
stjóra ríkisbankans. Þykja þetta
merkileg tíðindi, þvi dr. Schacht
var nýlega i leynilegum erinda-
gerðum fyrir þýzku stjórnina i
London og hefir undanfarið
samið fyrir hennar hönd um
Gyðingamálin. Er liklegt, að
skoðanir hans og stjórnarínnar
hafi ekki farið saman.
Schacht er 61 árs. Hann er
fœddur i Suður-Jótlandi og bceði
les og talar dönsku. Hann stund-
aði nám við ýmsa þýzka háskóla
og náði doktorsprófi mjög ungur.
Hann vann síðan við ýmsa banka
og fékk fljótlega á sig mikið
dugnaðarorð. Hækkaði hann
stöðugt í tigninni, unz hann varð
ríkisbankastjóri 1923. Honum
tókst að leysa ótrúlega vel fram
úr ýmsum fjármálavandrœðum
þjóðarinnar og fékk brátt það
orð á sig, að hann væri lang-
slyngasti fjármálamaður Þýzka-
lands. 1930 lagði hann þetta
starf niður í mótmœlaskyni við
Youngsamninginn, en tókst það
aftur á hendi 1933, þegar naz-
istar komu til valda.. Hefir hann
ráðið manna mest um það fyrir-
komulag gjaldeyrismálanna og
utanríkisver.zlunarinnar, sem
Þjóðverjar hafa nú.
Það hefir löngum verið grunnt
á því góða á milli Schacht ann-
ars vegar og nazistaforingjanna
og auðmannanna hinsvegar.
Schacht er einráður og fer þvi
jafnan fram, sem hann álitur
bezt henta, án tillits til hags-
muna vissra stétta eða flokka.
Hann hefir aldrei tekið neinn
virkan þátt í starfsemi nazista-
flokksins og var áður fyr um all-
langt skeið fylgismaður mið-
flokks eins, sem stundum hafði
samvinnu við jafnaðarmenn.
Meðal erlendra fjármála-
manna verður það hnekkir fyrir
þýzku stjórnina ef Schacht verð-
ur algerlega dreginn til baka.
En nazistar hafa oft ætlað sér
það áður, en orðið að leita til
hans ráða, þegar í óefni var
komið.
* * *
V atikanið (páfarikið) er
minnsta ríki veraldar. íbúar þess
eru um 700. En það hefír líka
fleiri met. í hlutfalli við ibúa-
fjölda hefir það fleiri bíla, síma-
tœki, útvarpstœki, kœliskápa
og lyftur en nokkurt annað riki
í heimi. Það hefir hlutfallslega
miklu stœrri her en nokkurt
annað ríki, því hermennirnir eru
% hlutar ibúanna. En þessi her
hefir enga fallbyssu, vélbyssu,
flugvél eða skriðreka — og það
er líka met. Bandaríkin hafa
15.295.852 talsímanumer eða eitt
á hverja átta íbúa, en í Vatikan-
inu eru númerin nokkru fleiri en
ibúarnir. í Bandaríkjunum er
einn bíll á hverja 5 ibúa, en í
Vatikanínu á 3yz íbúa. Hest-
vagnar eru þar ekki og það mun
llka vera met. Sérhver af hinum
150 fjölskyldum í Vatikaninu
hefir útvarpstæki og kœliskáp til
umráða. Slíkt mun ekki þekkj-
ast í neinu öðru landi. (Caval-
cade, London).
ÚR BÆTVIHl
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, Sigurgeir Sig-
urðsson biskup, kl. 2 barnaguðsþjón-
usta, séra Sigurjón Þ. Ámason. í frí-
kirkjunni kl. 2, séra Árni Sigurðsson.
í Laugarnesskóla kl. 5, séra Garðar
Svavarsson. kl. 10 árdegis bamaguðs-
þjónusta. í Skerjafjarðarskóla kl. 10.
í Bethaníu kl. 2. í Hafnarfjarðarkirkju
kl. 2, Ólafur Ólafsson kristniboði pré-
dikar.
Skemmtikvöld
Framsóknarfélögin í Reykjavík efna
til sameiginlegs skemmtikvöld að Hó-
tel Borg miðvikudaginn 25. þ.m. Til
skemmtunar verður Framsóknarvist,
ræða, Skúli Guðmundsson atvinnu-
málaráðherra, og dans. Aðgöngumiðar
fást á afgreiðslu Tímans, Lindargötu
1 D, sími 2323, og við innganginn. —
Vegna mikillar aðsóknar er æskilegt
að menn tryggl sér aðgöngumiða hið
fyrsta.
Ný framleiðsla
frá S. í. F. er komln á markaðinn.
Em það fiskbúðingur og fiskbollur,
samanber auglýsingu í blaðinu í dag.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnír á morgun sjónleikinn Fróðá
fyrir lækkað verð. Þessi leikur verður
nú ekki sýndur nema einu sinni eða
tvísvar enn, því að nú hefjast á næst-
unni sýningar á nýjum sjónleik.
Thor Thors
hefir beðið þess getið, að hann hafi
ekki hótað að segja af sér störfum sem
framkvæmdarstjóri hjá S. í. F., ef til-
laga stjórnar á aðalfundinu yrði ekki
samþykkt. En hann er einn af þremur
framkvæmdarstjórum S. í. F.
Leiðrétting.
í nokkrum hluta upplagsins hefir
prentvilla orðið í greininni um fjármál
bæjarins. Þar stendur: „Það lán hefði
átt að greiðast upp á árinu 1938, en i
stað þess hefir skuldin við Landsbank-
ann einan orðið um 700.000 krónur.“
Á að vera: ... hefir skuldin við Lands-
bankann einan hækkað um 700.000 kr.
Gestir í bænum.
Sigurbjörn Snjólfsson bóndi í Gilsár-
teigi, Einar Halldórsson bóndi á Kára-
stöðum í Þingvallasveit, Björn O.
Bjömsson prestur á Höskuldsstöðum
og frú, Bjöm Stefánsson kaupfélags-
stjóri á Fáskrúðsfirði og frú, Guð-
mundur Brynjólfsson á Hrafnabjörg-
um á Hvalfjarðarströnd, Guðmundur
Ólafsson á Ferstiklu á Hvalfjarðar-
strönd, Ólafur Guðmundsson í Hellna-
túni í Ásahreppi. Gísli Jónsson á Lofts-
stöðum í Flóa, Árni Vilhjálmsson út-
gerðarmaður á Háeyri við Seyðisfjörð.
Reiabúaeigendur
Hraðfryst úrvals hvalkjöt seljum vér til refafóðurs. Verð 50
aurar kílóið í 60 kg. kössum úr frystihúsi í Reykjavík eða ísafirði.
Gerið pantanir yðar sem fyrst, þar eð birgðir eru takmarkaðar.
H. f. Kópur, Reykjavík
Símar 3201 og 5206.
LEIKFÉLAG
REYK JAVÍKIIR
„FPÓðá“
Sjónleikur í 4 þáttum, eftir
JÓHANN FRÍMANN.
Sýnmg á morgun kl. 8.
Lækkað verð.
Aðgöngumiffar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un.
Þaff nýjasta á markaffnum
er:
Fískíbollur og
Fískibúðíngur
frá
Niðuisuðuverksm.
S. í. F.
Mynciin er af
þeim brœSrun-
um, H úkoni i||||l|
Noregskonungí
og Kristjáni X.
Er hún tekin
fyrír skömmu
síðan.
Vekjaraklukkur,
Hitabrúsar,
Speglar,
Greiffur,
Handsápur,
Myndarammar,
Dömutöskur,
Barnatöskur,
Hálsfestar,
Hringar,
Nælur,
Tölur og ýmiskonar
Smávörur.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
Á vföavangi.
(Framh. af 1. síðu)
um gaf ríkisstjórnin út nýja til-
skipun um að blanda smjöri í
smjörlíki. Er íblöndunin nú 5%
og getur það ekki talizt mikið.
Áður hafði um skeið engin í-
blöndun verið framkvæmd, og
var það vegna þess, að smjör-
framleiðsla landsins hrökk ekki
til. í grein hér í blaðinu snemma
í vetur var sýnt fram á það, að
rífleg íblöndun smjörs í smjör-
líki, gæti skapað grundvöll fyr-
ir smjörbúastarfsemi verulega
fram yfir það, sem nú er, enda
er þetta úrræði mjög notað ann-
arsstaðar, svo sem á Norður
löndum og í Hollandi.
* * *
Á árinu 1938 hefir verið varið
úr Búnaðarbankanum og ríkis-
sjóði um 670 þús. kr. til að end-
urbyggja sveitabæi. Af þessari
upphæð voru 120 þús. kr. styrk-
ur, hitt lán. Árið áður var sam-
svarandi upphæð (lán og styrk-
ur) 415 þús. kr. Síðustu tvö ár-
in hefir endurbyggingarstyrk-
urinn verið veittur 211 bændum.
Á árunum 1936—1938 er búið að
veita lán og styrki til 200 nýrra
býla. Allt er þetta viðleitni af
þjóðfélagsins hálfu til að hindra
flóttann úr sveitunum.
202
Andreas Poltzer: Patricia
203
Frúin virtist vera búin að ná sér eftir
hræðsluna í fyrstu. Hún vóg orðin:
— Ég hvorki get eða vil segja yður
neitt. Og ég geri ráð fyrir, að það eina
sem þér getið vítt mig fyrir, sé, að ég
hefi notað skírnarnafn mitt hérna í Eng-
landi! En ef ég veit rétt, þá er ekki hægt
að refsa manni nema með nokkurra
punda sekt fyrir það ....
Fulltrúinn þóttist nú viss um, að frúin
ætlaði sér að þegja, og afréð þessvegna
að taka til áhrifameiri aðferða. Hann
stóð upp og sagði þurlega:
— Frú Meller, ég verð þá að taka yður
fasta, og ég ætla að benda yður á, að
hvert orð, sem þér segið héðan í frá,
verður notað sem vopn gegn yður ef
hægt er.
Þessi kalda og ótvíræða yfirlýsing
hafði tilætlaðan árangur. Franska frúin
hafði að því er virtist ekki gert ráð fyrir,
að rás viðburðanna gæti orðið þessi, því
að öryggið, sem hún hafði náð aftur,
bráðnaði nú eins og snjór í maí-sól.
Whinstone gaf henni gætur í laumi og
var ánægður. Jafnframt sannfærðist
hann um, að frúin væri ekki sá forherti
syndaselur, sem hann hafði haldið hana
vera. Hann vissi af reynslu, að virkilegur
glæpalýður, hvort heldur er karl eða
kona, taka hótun um fangelsi með miklu
meiri ró en frúin gerði, vegna þess að
þeir búast alltaf við því, að vera settir
inn þá og þegar.
— Hversvegna ætlið þér að taka mig
fasta. .. . ? gat frú Meller loksins stunið
upp.
— Við grunum yður um, að vera sam-
seka fyrverandi manni yðar um glæpi
hans.
— Hvað hefir hann gert? spurði hún,
og röddin titraði..
Fulltrúinn horfði tortryggnilega á
hana. Var hún að reyna að gabba hann?
Þó að hann hallaðist að þeirri skoðun,
að Meller hefði ekki sagt henni frá ráða-
gerðum sínum, sagði hann mjög efandi:
— Þér vitið eins vel og ég hvað Meller
hefir gert!
—- Ég sá hann seinast fyrir fjórum ár-
um, sagði hún. Jafn óvænt og þessi yfir.
lýsing kom, virtist hún eigi að síður vera
sönn.
Whinstone var svo mikill mannþekkj-
ari, að hann vissi, að eina ráðið til að fá
frúna til að tala, var að láta sem hann
tryði ekki neinu sem hún sagði. Hann
fann, að hann varð að bera fram ,ein-
hverja ákveðna staðhæfingu, og af því
að hann vildi ekki minnast á tiíræði
Mellers við Patriciu undir eins, sagði
hann:
— Yður þýðir ekki að reyna að ljúga
að mér. Maðurinn yðar hefir valdið
Það er nú áætlað, að loðdýra-
stofn landsmanna eins og hann
var á sl. hausti, sé um 2 milj.
kr. virði. Bændur geta sjálfir
reiknað út, hversu mikið t. d.
sauðfjárstofninn hefði þurft að
aukast til að ná sömu eigna-
upphæð. Loðdýrunum hefir
fjölgað um nál. helming á einu
ári. Og norski sérfræðingurinn,
sem hér var í haust, telur, að
stofninn hafi batnað.
* * *
í Vísi var nýlega deilt á húsa-
meistara ríkisins fyrir að hafa
án tilstuðlunar byggingarnefnd-
ar Reykjavíkur valið stað leik-
húsinu, Sundhöllinni og sím-
stöðinni. Allt er þetta rangt hjá
blaðinu. Zimsen ákvað Sund-
höllinni stað, en þrír Sjálfstæðis-
menn í leikhúsnefndinni völdu
stað fyrir leikhúsið. Gísli heitinn
Ólafsson símstjóri réði öllu um
löðakaupin handa símahúsinu.
Húsameistari var mjög mótfall-
inn að byggja leikhúsið og sím-
stö|Sina þar sem þau eru. Aftur á
móti hefir hann ráðið miklu um
byggingu Arnarhvols, Landspít-
alans og Háskólans.
bíói
SPANSKFLUCM
Sprenghlægileg sænsk
gamanmynd, gerð eftir
hinum góðkunna skopleik
eftir
ARNOLD og BACH.
Aðalhlutverkin leika úr-
vals sænskir leikarar:
BIRGIT TENGROTH
ERIC BERGLUND
VERA VALDOR og
NILS ERICSON.
NÝJA BÍÓ'
Priiisinn
og betlariim.
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros, samkv. hinni
heimsfrægu sögu með
sama nafni, eftir hinn
dáða ameríska ritsnilling
MARK TWAIN.
Aðalhlutv. leika:
ERRAL FIYNN
og tvíburabræðurnir
BILLY og
BOBBY MAUCH
Börn yngri en 12 ára fá
ekki aðgang.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkfö.
t heildsölu hjá
Samband í si. sam vinnuf élaga
Siml 1080.
Hkemmtun
Framsóknarfélögin í Reykjavlk efna til
sameiginlegrar skemmtunar að Hótel Borg
miðvikudaginn 25. þ. m., sem hefst kl. 8,30.
Til skemmtunar verður:
1. Framsóhnar-ivhist.
2. Rœða (Shúli Guðmundsson atvinnumála-
ráðherra).
3. Dans.
Affgöngumiffar fást á afgreiffslu Tímans, Lindargötu 1D —
Sími: 2323 og viff innganginn.
Frumsóhnarmenn! Fjölmennið stundvíslega!
Stjórnir félaganna.
Það eru skiitar skoðanir
manna á milli, hvort þeir eigi að kjósa A, B eða C, en
eitt eru allir saanmála um, og það er að hagkvæmustu
viðskiptin gera allir, hvort hejdur það eru verkamenn,
sjómenn eða aðrir, hjá OKKUR.
VIMUFATA- og SJÓKLÆÐABtÐIN.
Sími 2329 Hafnarstræti 15
^otaðnr
Dieselmotor
105 BHK með tílheyrandí
rakstraumsrafal rúml.
70 kw. 220v. selst ódýrt
Skipaútgerð ríkísíns
Spaðkjöt
er ódýrara en annað sambærilegt
kjöt.
Það kostar:
Heiltunnur kr. 165.00, eða kr. 1.27 pr. kg.
Hálftunnur — 85.00 — — 1.30 — —
Kvarttunnur — 42.00 — — 1.40 — —
Höfum einungis til sölu úrvals dilkakjöt
í ágætri verkun.
Sambandísl. samvinnufélaga
Sími 1080.
DANSLEIK
heldur Glímufélagið Ármann í Iðnó í kvöld kl. 10
(laugardag), til ágóða fyrir skíðaskála félagsins
í Jósefsdal.
Aðgöngumiðar á kr. 2.50 í Iðnó frá 5 í dag.-
Nýja bandið leikur. — — Ljóskastarar.