Tíminn - 04.02.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
23. árg.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
Rcykjavík, laugardaglnn 4. febrúar 1939
15. blað
Aiikniii^ framleiðslannar er
höfuðTerkefni Framsóknar-
flokksins
Nokkrar álykianir adallundar
miðstjórnarinnar
Mussolini flytur rœðu í dag og er búizt við að hann muni þar í fyrsta
sinn tala opinberlega um landakröfur á hendur Frökkum, og er rœðunnar
því beðið með mikilli eftirvœntingu um allan heim. Hefir hún veríð boðuð
með þriggja vikna fyrirvara. — Hér á myndinni sézt Mussolini vera að flytja
rœðu, þar sem mikill mannfjöldi hlýðir á mál hans.
Aðvörun Roosevelts
Aðalfundi miðstjórnar
Framsóknarflokksins lauk
síðastl. fimmtudagskvöld.
Hafði fundurinn þá staðið í
sex daga.
Á fundinum var einkum rætt
um þau mál, sem nú þyrftu
skjótastra úrlausna, og stjórn-
málaástandið yfirleitt. Fara
nokkrar helztu ályktanir fund-
arins hér á eftir:
I.
Affalfundur miffstjórnar Fram-
sóknarflokksins telur þaff eiga
aff vera höfuðviðfangsefni
flokksins, aff stuðla aff aukinni
framleiðslu, bæffi til útflutn-
ings, svo aff hægt verffi aff nota
alla sölumöguleika fyrir íslenzk-
ar afurðir erlendis, og á nauð-
synjxun til notkunar innan-
lands. Gerir fundurinn í því
sambandi svohljóðandi álykt-
anir:
1. Eins og nú standa sakir,
telur fundurinn nauðsynlegt,
aff gerffar verffi ráffstafanir til
þess aff bæta rekstrarafkomu
sjávarútvegsins, svo aff ætla
megi, að sá atvinnuvegur geti
boriff sig í meffalárferffi, ef hag-
sýni og sparnaffar er gætt í
rekstrinum. Koma hér til greina
ráðstafanir til hækkunar á
verffi afurffa, lækkunar á út-
gjöldum, eða hvorutveggja. —
Jafnhliða þeim ráffstöfunum,
sem gerffar verffa til stuffnings
sjávarútveginum, telur fundur-
inn óhjákvæmilegt, aff rekstri
þeirra fyrirtækja, sem ekki eiga
fyrir skuldum, verffi komiff á
heilbrigffan grundvöll.
2. Fundurinn telur áríffandi aff
haldiff sé áfram að styffja og
efla íslenzkan landbúnaff, og
bendir þar sérstaklega á nauff-
syn þess, aff reisa viff atvinnu-
lífiff í fjárpestarhéruðum, svo
og að stuðla að því, að enn
fleiri bændur fái árlega styrk til
endurbygginga á býlum sínum;
aff efld verffi starfsemi nýbýla-
sjóffs og hafizt handa um stofn-
un samvinnubyggffa, m. a. þar,
sem hentugt er aff koma upp
iffnaffi viff hæfi og þarfir sveit-
anna. Fundurinn telur og nauff-
synlegt, aff rannsakaff verffi til
Fískaflinn
í janúarlok
Hann er fafnmikill og
í febrnarlok í fyrra
Samkvæmt upplýsingum Fiski-
félags íslands var fiskaflinn á
öllu landinu í janúarmánuði
síðastliðnum 3221 smál. Á sama
tíma í fyrra var aflinn orðinn
368 smál. Er aflinn jafnmikill
í janúarlok nú og hann var í
febrúarlok í fyrra.
í janúar 1939 og 1938 skipt-
ist aflinn þannig eftir verstöðv-
um:
1939 1938
Vestmannaeyjar 697 0
Grindavík 136 0
Hafnir 40 0
Sandgerði 384 76
Garður og Leira 195 48
Keflavík og Njarðv. 659 41
Reykjavík 65 14
Akranes 444 87
Vestfirðir 601 71
í þessari viku hefir verið góð-
ur afli og ágætar gæftir í ver-
stöðvum við Faxaflóa.
hlítar á hvern hátt muni til-
tækilegast aff framleiða raforku
til afnota fyrir sveitabýli og
jafnframt meff hverju móti
verði greitt fyrir þeim fram-
kvæmdum.
3. Fundurinn ályktar, aff
Framsóknarflokkurinn beiti sér
fyrir því, aff gerffar verffi öfl-
ugar ráffstafanir til þess aff
vinna á móti dýrtíð í landinu,
svo sem meff eflingu samvinnu-
félagsskaparins, ströngu verff-
lagseftirliti og húsaleigulögum.
4. Fundurinn telur nauffsyn-
legt að hafnar verffi, I framhaldi
af núverandi affgerffum, skipu-
legar rannsóknir á aufflindum
og náttúrugæffum landsins og
lögð verffi um stund méginá-
herzla á aff búa þjóðina undir
að geta lifaff sem allra mest af
framleiffslu landsins, ef sigling-
ar stöffvast aff meira effa minna
leyti um lengri effa skemmri
tíma.
5. Fundurinn bendir á affkall-
andi þörf á því aff leiffrétta hina
ráffdeildarlausu framkvæmd
framfærslulöggjafarinnar I
kaupstöffunum og affrar hlið-
stæffar ráffstafanir þeirra.
II.
Flokkurinn vill vinna aff þeirri
skipulagningu, aff allir, sem
vinna viff útgerff á sjó og
landi, taki laun sín í hlut af
afla, til þess aff tryggff verffi
réttlát laun og vinnufriffur við
þenna atvinnuveg; ennfremur
aff því, aff sett verffi lög um laun
opinberra starfsmanna, er
tryggi þaff í framtíffinni, að
launin taki breytingum til
hækkunar effa lækkunar eftir
verffi á framleiffsluvörum
Iandsmanna á hverjum tíma og
vinni gegn ósamræmi á kjörum
framleiffenda og launastétta.
Jafnframt verffi gerffar ráffstaf-
anir til þess aff launagreiffslur
viff önnur fyrirtæki í landinu
Nú um síðustu áramót var hinum
foma Vindhælishreppi skipt í þrjú
hreppsfélög. Vindhælishreppur var áð-
ur með stærstu hreppum landsins, taldi
61 býli og auk þess allstórt þorp, Skaga-
strandarkauptún, Einnig var um nokk-
urt skeið smáþorp í Kálfshamarsvík, en
nú er byggð þar að mestu eydd. Hinir
nýju hreppar heita: Vindhœlishreppur,
er nær frá Laxá að Hrafná og telur
25 býli; Höföahreppur, á milli Hrafn-
ár og Harastaðaár; sá hreppur er
kauptúnið og 4 jarðir. Nyrzti hreppur-
inn heitir Skagahreppur og nær frá
Harastaðaá norður Skagann að sýslu-
mótum Skagafjarðarsýslu og tel-
ur hann tuttugu og níu býli. Góð sam-
vinna var um skiptingu þessa, og má
telja hreppsbúa hafa sýnt hina mestu
víðsýni í skiptingunni, t. d. með því áð
láta 4 jarðir fylgja þorpinu og mun
það mjög hjálpa þorpsbúum til að geta
rekið landbúnað samhliða útgerð, sem
þar hlýtur ávallt að verða aðalat-
vinnuvegur.
t t t
Sunnudaginn 15. janúar fóru fram
sveitarstjómarkosningar í hinum nýju
hreppum. Sýslunefndarmenn voru
kjörnir: í Vindhælishreppi Magnús
Björnsson, Syðra-Hóli. í Höfðahreppi
Gunnar Grímsson, kaupfélagsstjóri. í
Skagahreppi Sigmundur Benediktsson
verffi ekki hærri en hjá ríkinu
og stofnunum þess.
III.
Enda þótt mikilsverffar um-
bætur hafi orffiff í skólamálum
landsins á síffari árum telur
flokkurinn nauðsyn bera til aff
taka til ýtarlegrar athugunar
allt uppeldis- og menntakerfi
þjóffarinnar í heild, og þá sér-
staklega með hliðsjón af aukn-
ingu verklegs náms, meffal ann-
ars meff það fyrir augum:
a. Aff viff fræffslu barna verði
miklu meira en nú hefir tíffk-
azt um skeiff, höfff til hliðsjón-
ar þau atriffi í uppeldis- og
fræðslustarfinu, er sýnt þykir,
að fyrverandi kynslóffum hafa
gefizt vel.
b. Aff í öllum skólum landsins
verffi hafin öflug hvatning
meffal æskunnar, kvenna jafnt
sem karla, um að temja sér
dugnaff, ráffdeild og reglusemi,
og búa sig meff þvi móti undir
sjálfstætt starf til stuffnings at-
vinnulífi landsmanna.
IV.
Affalfundur miffstjórnar Fram-
sóknarflokksins vill styffja þá
hugsjón Bjama Runólfssonar,
að iffjuver geti risiff á Hólmi í
Landbroti, er vinni fyrst og
fremst í þágu landbúnaffarins.
Væntir fundurinn, aff Búnaffar-
samband Suðurlands, Búnaffar-
félag íslands og Alþingi styðji
framkvæmd þessa máls.
Auk þessara tillagna voru
gerðar ýmsar ályktanir varð-
andi flokksstarfsemina og
flokksblöðin.
í lok fundarins fór fram kosn-
ing formanns, ritara og gjald-
kera. Voru þeir menn, sem hafa
gegnt þeim störfum undanfarið,
allir endurkosnir: Jónas Jóns-
son formaður, Eysteinn Jónsson
ritari og Vigfús Guðmundsson
gj aldkeri.
í stjórn Tímans voru kosnir:
Aðalsteinn Kristinsson, Ey-
steinn Jónsson, Guðbrandur
Magnússon, Hermann Jónasson,
Jón Árnason, Jónas Jónsson,
Sigurður Kristinsson, Skúli
mundsson og Vigfús Guðmunds-
son.
bóncli Björgum. Menn þessir eru alllr
Framsóknarmenn.
t r t
Síðastliðið sumar reisti Verzlunarfé-
lag Vindhælinga með tilstyrk Sam-
bands islenskra samvinnufélaga frysti-
hús á Skagaströnd, bæði fyrir kjöt-
frystingu og hraðfrystingu fiskjar.
Vona memi að framkvæmd þessi verði
stórt átak tll að rétta við hag þorps-
búa því fiskimið — ekki sizt kola — eru
ágæt skammt frá landi. Allmikil brögð
voru að landhelgisveiðum botnvörp-
unga í Húnaflóa s. 1. sumar og verður
að telja brýna þörf að fá bát á Húna-
flóa til strandgæzlu.
r t t
Tiðarfar í héraðinu hefir verið frem-
ur gott. Nokkru fyrir jól var orðið nær
haglaust um allt héraðið, en þá brá
til hláku. 27. des. snerist til norðanátt-
ar og stóð þá hriðarveður í allt að 10
dögum með mikilli fannkomu. Samt
voru jarðir góðar eftir þá hrið og mega
teljast það enn.
r t r
Mæðiveikin drepur ennþá með svip-
uðum hætti og síðastliðið ár. Þegar
veikin hefir verið í fénu í 2 ár, má telja
augljóst, að eitthvað dregur úr veik-
inni. Reynslan ein sýnir hversu því
reiðir af.
; t t
Héraðsbúar hugsa mjög til þurmjólk-
Undanfarna daga hefir verið
rætt um fátt meira í heims-
blöðunum en ummæli, sem
Roosevelt forseti lét falla nýlega
á fundi hermálanefndar öld-
ungadeildarinnar. Hann gaf
í skyn, að í næstu Evrópustyrj-
öld yrðu landamæri Banda-
ríkjanna í Frakklandi. Hann
kvaðst þó ekki meina með
þessu, að Bandaríkin ættu að
senda her til Evrópu, en þau
ættu að styrkja Breta og
Frakka á allan hátt. Ósigur
lýðræðisríkjanna í Evrópu væri
jafnframt ósigur Bandarikj-
anna og afstöðu þeirra yrðið ó-
metanlega hnekkt, ef brezka
heimsveldið. liði undir lok.
í Frakklandi og Englandi hef-
ir þessum ummælum verið stór-
kostlega fagnað, en i þýzkum
og ítölskum blöðum eru Roose-
velt valin hin verstu nöfn og
hann ásakaður um þann til-
urvinnslu og hefir Sláturfélagið á
Blönduósi fengið leyfi til þeirrar
vinnslu, en ekki hafa ennþá fengizt
svo ábyggilegar kostnaðaráætlanir að
hægt hafi verið að ákveða hvort í slíka
framkvæmd yrði ráðizt.
t t t
Fjárhöld hafa verið í betra lagi í
Norður-Þingeyjarsýslu, vestan Öxar-
fjarðarheiðar. Þó bar talsvert á þara-
veiki á nokkrum bæjum í Núpasveit
og Vestur-Sléttu í byrjun októbermán-
aðar. Mun á nokkrum bæjum hafa
drepizt um 60 fjár af völdum þessarar
veiki. — Um 11.200 dilkum var slátrað
á Kópaskeri í haust og var meðal-
kroppþyngd þeirra 15,07 kg. Er það um
hálfu kílógrammi betri jafnaðarþyngd
heldur en í fyrrahaust. Þyngstir voru
dilkar af Hólsfjöllum, 16,83 kg. til jafn-
aðar. Hæstri meðalþyngd náðu dilkar
Þorsteins Björnssonar á Víðihóli á
Hólsfjöllum, 14 að tölu, 18.89 kg.
r r t
Níu íbúðarhús voru reist í héraðinu
síðastliðið sumar, þar af eitt nýbýli að
Austurgarði í Kelduhverfi. Öxarfjarð-
arhreppur lét reisa leikfimishús við
heimavistarskóla sinn í Lundi. Mun
það vera stærsti samkomusalurinn í
héraðinu og vel 1 sveit settur. Fast leik-
svið er í salnum með tveim búnings-
herbergjum beggja megin leiksviðsins.
(Framh. á 4. síðu)
gang, að vilja steypa þjóðunum
út í styrjöld. í Bandaríkjunum
hafa ýmsir talsmenn einangr-
unarstefnunnar mótmælt þess-
um ummælum Roosevelts, en
þó ekki með verulegum þrótti.
Annars er afstaða Roosevelts
miklu sterkari í utanrikismál-
um en innanríkismálum, því
samkvæmt stj órnarskránni hef-
ir forsetinn næstum ótakmark-
að vald í utanríkismálum og er
þvi að mjög litlu leyti háður
vilja þingsins.
Fyrir þá, sem vel hafa fylgzt
með undanfarið, kemur þessi
afstaða Roosevelts ekki á ó-
vart. Þegar hann lagði fjár-
lögin fyrir þingið, lét hann þau
orð falla, að hið ískyggilega á-
stand í heiminum gerði það ó-
hjákvæmilegt, að Bandarikin
ykju hervarnir sínar stórkost-
lega. Slíkum aðgerðum mættu
Bandarikin ekki fresta og hefðu
þeir gamalt víti til varnaðar í
þeim efnum. Þau hefðu lýst
yfir þátttöku sinni í heims-
styrjöldinni 6. apríl 1917, en það
hefði ekki verið fyrr en i mai
1918, sem her Bandaríkjanna
tók verulegan þátt í orustum í
Evrópu. Ástæðan til þessa hefði
verið fullkomið undirbúnings-
leysi fram til 1917. Slíkt mætti
ekki koma fyrir aftur. Hann
kvaðst að vísu ekki meina, að
Bandaríkin ættu aftur að senda
her til Evrópu. En ástandið væri
þannig, að hyggilegast væri að
vera undir allt búinn.
Samkvæmt þessu lagði
Roosevelt til, að útgjöld til her-
mála væru aukin um rúmar 500
milj. dollara (tæpl. 2400 milj.
ísl. kr.) eða um næstum þvl ý3
hluta frá því, sem áætlað væri
á yfirstandandi fjárhagsári.
Meginhlutanum af þessu yrði
varið til að kaupa flugvélar og
önnur tæki handa landhem-
um. Framlagið til flotans yrði
einnig hækkað og yrði m. a. 27
milj. dollara varið til að styrkja
varnir hans við Panamaskurð-
inn.
Um áramótin voru sendiherr-
. ar Bandaríkj anna í París og
London kvaddir heim til að gefa
stjórninni nákvæma skýrslu um
ástandið í Evrópu. Við komu
sína til Bandarikjanna létu
báðir ótvírætt í ljós, að þeir
teldu styrj aldarhorfurnar mikl-
ar og vaxandi í Evxópu. Er víst
að þær upplýsingar, sem sendi-
herrarnir hafa gefið stjórninni,
hafa verið meginorsök þess að
(Framh. á 4. síðu)
A víðavangi
í dag kemur hið nýja Bún-
aðarþing saman í baðstofu iðn-
aðarmanna í Reykjavík. Má
betta því teljast merkisdagur í
sögu íslenzkrar bændastéttar.
Þingið mun taka mörg merk
mál til meðferðar, þar á meðal
ýms verkefni, sem því eru falin
til meðferðar af landbúnaðar-
ráðuneytinu. í framtíðinni ætti
hið myndarlega stéttarþing
bændanna að geta leyst af
hendi verulegan hluta af þeim
störfum, sem hingað til hefir
verið að unnið á Alþingi og í
landbúnaðarnefndum þess. Á
Búnaðarþinginu eiga nú sæti
25 fulltrúar með atkvæðisrétti.
* * *
Samkv. upplýsingum Bjarna
Ásgeirssonar — í grein hans um
verzlunarárferði landbúnaðarins
— hafa tekjur af garðyrkju ver-
ið 1 millj. 660 þús. kr., af ali-
fuglarækt 900 þús. kr. og af
refarækt um 360 þús. kr. á árinu
1938. Alifuglaræktin, refaræktin
og á að gizka helmingur garð-
ræktarinnar, er ný framleiðsla,
sem ekki var til fyrir nokkrum
árum — og samsvarar það sam-
tals rúmlega 2 milljónum króna,
sem hinir nýju möguleikar hafa
gefið landbúnaðinum. Slíks er
vert að minnast.
* * *
Fiskaflinn í verstöðvunum á
Suður- og Vesturlandi er nú
orðinn 8—9 sinnum meiri en
hann var á sama tíma í fyrra.
Vertíðin byrjar því álitlega, en
af því má þó varlega draga á-
yktanir um framhald hennar.
í Vestmannaeyjum var enginn
uggi kominn á land í fyrra um
þetta leyti en nú nærri 700 smá-
lestir, miðað við fullverkaðan
fisk.
* * s}c
Árni frá Múla er á ný látinn
boða þá kenningu í Mbl. í fyrra-
dag, að ráðstafanir hins opin-
bera, svo sem innflutningshöft
og tollahækkanir, valdi hinu
háa verði á sumum vörum í Rvík
og tilgreinir hann þar sérstak-
lega „fatnað, skófatnað og alls-
konar vefnaðarvöru“. En Árni
ætti ekki að vera að gera vinum
sínum, heildsölunum í Rvík,
þann ógreiða, að rifja upp þetta
mál. Mbl. hefir áður reynt að
skrökva því, að verðhækkun
þessara vara væri að kenna
tollahækkun. Þessu svaraði Tím-
inn með upplýsingum, sem Mbl,-
heildsalarnir áreiðanlega óska
ekki eftir að verði endurteknar.
En ef þjónar þeirra við Mbl.
gefa tilefni til, er það meira en
velkomið.
* * *
Árni frá Múla talar um, að
„óreyndur unglingur“ hafi verið
settur í fjármálaráðherrastól og
ekki sé við því að búast að hann
hafi vit á viðskiptunum við út-
lönd. Sjálfur hefir Árni gamla
„reynslu“ í afskiptum af utan-
ríkisverzluninni og mun því
þykjast geta djarft úr flokki tal-
að. En óvlst er, að aðrir verði á
sama máli.
* * *
Það er sennilega vonlaust verk
að ætla að koma sumum Sjálf-
stæðismönnum í .skilning um
það að ekki geti gengið, að halda
því fram samtímis: Að of mikið
sé flutt inn og að sjálfsagt sé að
slaka á innflutningshöftunum.
Þessar ósamhljóða staðhæfingar
getur nú að líta hlið við hlið svo
að segja daglega I blöðum Sjálf-
stæðisflokksins. Það er ólíklegt,
að almenningur taki slíkan
hugsanagraut fyrir góða og
gilda vöru.
sfc sfc
Dagblöð Sj álfstæðisflokksins í
Reykjavik, Mbl. og Vísir, eru
sýnilega í mestu vandræðum út
af grein í síðasta blaði Tímans
um samvinnu Sjálfstæðismanna
og kommúnista í Rvík, Hafnar-
firði og Neskaupstað. Enda munu
nú ýmsir góðir og gegnir Sjálf-
stæðis-kjósendur vera farnir að
heimta skýringar á þessum
skollaleik.
.A. KROSSG-OTUM
Ný hreppsfélög. — Sveitarstjórnarkosningar. — Frá Skagaströnd. — Tíðar-
far. — Mæðiveikin. — Mjólkurvinnsla á Blönduósi. — Úr Norður-Þingeyjar-
sýslu. — Byggingar og búnaðarframkvæmdir.
I