Tíminn - 04.02.1939, Page 4
60
TÍMIM, laugardaginn 4. febrnar 1939
15. blað
MOLAR
Joseph Aloysins Lyons hefir
verið forsœtisráðherra Ástralíu
síðan 1932.
Hann verður sextugur á þessu
ári. Hann er fœdáur l Tasmaníu-
fylki. Foreldrar hans voru fá-
tœkir og hann byrjaði kornung-
ur að vinna fyrir sér sem létta-
drengur. Með miklum dugnaði
brauzt hann til mennta og lauk
kennaraprófi við háskóla. Að
náminu loknu hóf hann afskipti
af stjórnmálum og var kosinn á
fylkisþingið í Tasmaníu, sem
fulltrúi verkamannaflokksins.
Nokkru seinna komst hann á
sambandsþingið og varð ráð-
herra í rikisstjórn verkamanna-
flokksins. Hann fann þó að lok-
um, að hann átti ekki samleið
með verkamannaflokknum og
gerðist því einn af stofnendum
nýs flokks, ástralska sambands-
flokksins. Þessi flokkur vann í
þingkosningum 1931 og Lyons
varð forsœtisráðherra hinnar
nýju stjórnar.
Lyons er mikill vinur Breta.
Hann er þrekvaxinn, alþýðlegur
í framkomu, starfsmaður mikill
og skapfastur. Hann er ellefu
barna faðir og þykir blaðamönn-
um það mikill fengur, þegar þeir
ná af honum mynd með konu
sinni og öllum barnahópnum.
* * *
Hér á íslandi eru talsvert fleiri
kvenmenn en karlmenn. í nokkr_
um löndum er þetta öfugt. í Ka-
nada er t. d. ekki nema 931 kona
á móti hverjum 1000 körlum. —
Svipuð hlutföll eru í Bandaríkj-
unum, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Ástœðan til þessa mun vera sú,
að af innflytjendum til þessara
landa eru rriun fleiri karlar en
konur. í öllum Evrópurikjunum,
nema í Búlgaríu og Rúmeniu, eru
kvenmenn fleiri en karlmenn.
* * *
Hœsta bygging í heimi er Em-
pire State Building l New York,
sem er 1248 fet. Nœst er Crysler
Building í New York 1030 fet,
Eiffel-turninn i París 985, Radio
Building í New York 840, Bank
of Manhattan í New York 838 fet
og Woolworth Building i New
York 792 fet.
* * *
Áríð 1933 var mannfjöldinn á
allri jörðunni talinn 1997 millj.
Eftir heimsálfum skiptist hann
þannig: Evrópa 550 millj., Asia
1044 millj., Afríka 150 millj., N.-
Ameríka 150 millj., S.-Ameríka
74 millj., Ástralía 9 millj.
Aðvörun Roosevelts
(Framh. af 1. siðu)
Roosevelt hefir talið sér skylt að
gefa framangreinda yfirlýs-
ingu. Með henni hefir hann
viljað gera einræðisríkjunum
ljósa grein fyrir afstöðu Banda-
ríkjanna og vara þau við, að
hefja Evrópustyrjöld í þeirri trú,
að Bandaríkin yrðu hlutlaus.
Hann hefir gengið eins langt og
honum var fært til að vara ein-
ræðisríkin við styrjöld og á þann
þátt hefir hann lagt fram þann
skerf, sem Bandaríkjunum var
framast fært að leggja fram til
að afstýra styrjöld.
ÚR BÆNUM
Félag ungra Framsóknarmanna
í Reykjavík heldur fund til fram-
haldsumræðna um atvinnuleysismálið
í Sambandshúsinu á morgun. Fundur-
inn hefst kl. 4.
Búnaðarþingið
tók til starfa í dag og var sett kl. 1
í baðstofu iðnaðarmanna. Búnaðar-
þingsfulltrúamir, sem eru 25 alls,
munu flestir eða allir vera komnir til
bæjarins.
Leiðrétting.
í grein J. Þ. „Fræðslumálastjórinn
nýi“ hefir misprentast neðariega í
3. dálki, „að kynnast ritum til varn-
aðar“, á að vera „að kynnast vítum
til varnaðar".
Árshátíð Samvinnuskólans
verður haldin í Oddfellowhúsinu
annað kvöld, samanber auglýsingu í
blaðinu í dag.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, séra Bjarni
Jónsson, kl. 5, séra Friðrik Hallgríms-
son, bamaguðsþjónusta. í fríkirkjunni
kl. 2 séra Árni Sigurðsson, barnaguðs-
þjónusta, kl. 5, Pétur Ingjaldsson cand.
theol. í Laugarnesskóla kl. 2, séra
Garðar Svavarsson, bamaguðsþjón-
usta kl. 10. í Hafnarfjarðarkirkju kl.
5, séra Garðar Þorsteinsson. í frikirkj-
unni í Hafnarfirði kl. 5, séra Jón
Auðuns.
Leikfélag Reykjavíkur
hafði frumsýningu síðastl. fimmtudag
á rússneska gamanleiknum „Fléttuð
reipi úr sandi“ fyrir troðfullu húsi, og
fékk leikurinn ágætar viðtökur. Næst
verður leikið á morgun.
í greín Bjarna Ásgeirssonar
um verzlunarárferði landbúnaðarins
hafa tvær tölur misprentazt. í fremsta
dálki 3. síðu 22. línu a. n. stendur: alls
úr 4500 fjár, en á að vera: alls úr 450
þús. fjár. í 2. dálki 3. síðu 6. linu a. n.
er sagt að árlega séu slegnir af 250
hestar, en á að vera 2500 hestar.
Listasafn Einars Jónssonar.
Frá og með sunnudeginum 5. febr.
verður listasafn Einars Jónssonar opið
á sunnudögum kl. 1—3.
Gestir f bænum.
Guðmundur Vilhjálmsson bóndi
Syðra-Lóni, Guðni Ingimundarson
bóndi Snartarhóli, Ingibjöm Guðnason
Presthólum, Halldór Þorsteinsson
bóndi Sætúni.
Á krossgötmn.
(Framh. af 1. síðu)
Presthólahreppur lét reisa kermarabú-
stað áfastan við heimavistarskóla sinn
hjá Snartarstöðum. Auk þess var byggt
stórt og vandað skólahús á Raufar-
höfn fyrir um 70 börn. — Unnið var
nokkuð með dráttarvél búnaðarsam-
bands Norður-Þingeyinga í vor og sum-
ar að landbroti til nýræktar í Prest-
hólahreppi og Öxarfirði.
Hreinar
léreftstusknr
kaupir
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
Kopar
keyptur í Landssmiðjunni.
Frá flotacefingu ítala í Miðjarðarhafi.
Kartöfluræktin
(Framh. af 2. síðu)
vill allt lenda í handaskolum
með ræktunina.
Hvað má sá mörg ár í sama
garðinn í röð?
Bændur eiga svo erfitt oft og
einatt með að ná í garðyrkju-
ráðunaut til að fá leiðbeining-
ar um garðrækt, og þó einstöku
menn fái upplýsingar um þetta,
þá fá þeir kannske alla roms-
una í einu og gleyma svo meiri-
partinum af þessu áður en þeir
þurfa á því að halda, til að fara
eftir því. En þetta væri öðru-
vísi, ef þeir hefðu smápésa sem
þetta stæði allt í, því þá gætu
þeir fengið þar þær upplýsing-
ar, sem þeir þyrftu helzt með í
það og það skiptið.
Ég veit að margur mundi
verða þessu feginn, og eru það
því vinsamleg tilmæli mín, að
einhverjir framtakssamir menn
tækju þetta að sér og kæmu
þessu til bænda fyrir vorið. Eitt
er líka nauðsynlegt að stæði í
pésa þessum og það er lýsing á
hverri kartöflutégund fyrir sig,
og séreinkenni, og yfirleitt all-
ar upplýsingar um þessa nytja-
jurt, sem til væru, svo það kæmi
að sem mestu gagni. Svo mætti
senda t. d. hverjum hrepp-
stjóra eða oddvita í öllum
hreppum á landinu svo mörg
eintök af þessu, að allir búend-
ur fengju eitt eintak hver,
þeim að kostnaðarlausu, og ættu
þá viðkomandi, t. d. oddvitar, að
M.s. Dronning
Alexandrine
fer mánudaginn 6. þ. m. kl. 6
síðdegis til Kaupmannahafnar
(um Vestmannaeyjar og Thors-
havn).
Farþegar sæki farseðla í
dag.
Tilkynningar um vörur komi
sem fyrst.
Skipaafgrciðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
Stúlkur, takið eítír!
Maður í góðri stöðu, vel efn-
aður, óskar að komast i bréfa-
samband við greinda og fallega
stúlku. Þær, sem vildu sinna
þessu, sendi afgreiðslu Tímans
upplýsingar ásamt mynd og
nafni, í lokuðu bréfi, merkt „Þ.
B.“. — Myndirnar verða endur-
sendar og óhætt að treysta þag-
mælsku.
útbýta þessu til allra bænda í
hverjum hreppi. Sömuleiðis ætti
að senda þetta í kaupstaðina
líka, þó ekki væri það sent
hverjum heimilisföður, því allir
eru ekki að spreyta sig á kar-
töfluræktun þar.
Gunnar Guðmundsson.
tmntnmmtGAMLA
SJÓMAMALÍF
Heimsfræg amerísk kvik-
mynd, tekin af Metro-
Gooldwyn-Mayer samkv.
hinni góðu sjómannasögu
Rudyard Kipling, og sem
birzt hefir í íslenzkri þýð-
ingu Þorsteins Gíslasonar.
Aðalhlutverkin eru fram-
úrskarandi vel leikin af
hinum ágætu leikurum:
Spencer Tracy,
Freddie Bartholomew,
Lional Barrymore.
; nýja Bíómtmnwmtm
Chicago-
briutiim 1871.
(In old Chicago).
frá
Söguleg stórmynd
Foxfélaginu.
Aðalhlutv. leika:
TYRON POWER,
ALICE FAYE,
DON AMACHI o. fl.
Mikilmetnustu kvikmynda
gagnrýnendur heimsblað-
anna telja þessa mynd
risavaxnasta listaverk.
Börn fá ekki aðgang.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Mðursuðuverksiniðj‘a. — Bjiígnagerb.
Reykhús. — Frystihús.
F'ramleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niðursoðið kjöt
og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og allskonar áskurð á brauð,
mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávalt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði. Frosið kjöt
allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir fyllstu nútíma-
kröfum.
Ostar og smjör frá Mjjólkurbúi Flóamanna.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar um
allt land.
Að gefnu tilefni
er athygli viðskiptavina minna vakin á því, að síminn 4402
á fisksölutorginu við höfnina ex mér nú óviðkomandi.
Viðskiptamenn mínir eru beðnir að hringja í síma 1456, sem
hefir verið, er og verður bezti fisksími bæjarins.
Alltaf til hrogn, lifur og hausar.
Bafllði Baldvinsson.
Ársháfíð Samvinnuskctlans
verður haldin í Oddfellowhúsinu sunnudagskvöldið 5. febrúar og
hefst kl. 8.45. — DAGSKRÁ:
1. Skemmtunin sett. 2. Söngur: Karlakór Samvinnuskólans.
3. Kaffidrykkja. 4. Ræða: Jónas Jónsson skólastjóri. 5. Kórsöngur:
Karlakór Samvinnuskólans. 6. Einleikur á pianó: Sigfús Halldórs.
7. Einsöngur: Vilhjálmur Sigurjónsson (við hljóðfærið frú Þor-
björg Halldórs). — 8. DANS til kl. 4.
Hvað skeður kl. 1? — Aðgöngumiðar fást i Samvinnuskólan-
um í dag til kl. 7 og á morgun kl. 1—5. — Sími 5099.
Jörð til sölu.
Jörðin Bryggjur í Austur-
Landeyjum fæst til kaups
og ábúðar á næstu far-
dögum. Semja ber við
eiganda jarðarinnar Tyrf-
ing Björnsson, Hávarðar-
koti í Þykkvabæ.
Símstöð: Þykkvibær.
Útbreiðið TtMANN
Reykjavíkurannáll h.f.
Refyan
Fornar dygðir
model 1939
verða leiknar á sunnudag kl. 2.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í
dag frá kl. 1—7 og eftir kl. 1 á
morgun.
226
Andreas Poltzer:
Patricia
227
ans af Harlington upp og kom í áttina
að borðinu til þeirra. Það er að segja:
hann virtist ekki hafa afráðið hvort
hann færi að því borði eða næsta borði,
þar sem ál-mjó stúlka, sem eldrauðar
varir og stórar, gular hrosstennur, brosti
örvandi til hans.
En augu Violet hlutu að hafa töfra-
mátt, því að ungi maðurinn sneri sér
loksins á hægri sveifina og staðnæmdist
fyrir framan Violet.
Á ófölsuðu cockney-máli, hinni klass-
lsku hafnarborga-ensku, bað ungi her-
toginn hina roðnandi Violet að dansa
við sig einn dans. Mínútu siðar liðu þau
um gólfið. Ungi maðurinn var eins og
heimsmeistari í dansi og nú var hægt að
sjá greinilega, að sokkarnir hans voru
með sama lit og hálshnýtið hans.
— Ungfrú Holm, eruð þér reið við mig?
spurði Whinstone og fór hjá sér.
Patricia hafði ekki ennþá sagt nokkurt
orð, hafði aðeins kinkað til hans kolli,
þegar hann kom. Svipur hennar var enn ,
eins og hún væri úti á þekju eða jafnvel
reið, er hún svaraði:
— Hversvegna ætti ég að vera reið
við yður?
Hann hafði fastlega einsett sér að gera
henni grein fyrir hvernig í öllu lá, því að
hann gat ekki þolað þá tilhugsun, að hún
héldi að hann hefði leikið sér að tilfinn-
ingum hennar.
— Patriáa, byrjaði hann og tók ekki
eftir því sjálfur, að hann notaði skírnar-
nafn hennar, — ég býst við, að þér haíið
tekið eftir því frá fyrstu stundu, að ég
.... hefi innilega samúð með yður ....
þér trúið ekki hve mér þótti vænt um,
er ég þóttist verða þess áskynja, að yður
stæði ekki heldur á sama um mig ....
Whinstone þagnaði. Hann hafði árang-
urslaust reynt að sjá það á svip Patriciu,
að þar væri hljómbotn fyrir tilfinningar
hans. Honum fannst nú að orð hans
hefðu verið innantóm og forskrúfuð ....
honum hafði aldrei verið það lagið, að
íklæða hugsanir sínar búningi.
— Ég er yður víst til leiðinda .... ég
bið yður afsökunar, sagði hann, ekki laus
við gremju.
Patricia fann, að innilukt sál var i
þann veginn að lokast fyrir fullt og allt,
og hún sagði:
— Þér eruð mér ekki til leiðinda og ég
hefi ekkert að fyrirgefa yður! Mér finnst
það vera ærlegt af yður, að viðurkenna
misgáning yðar ....
— Misgáning minn? sagði hann órór.
Svipur hennar var orðinn fjörlegri.
Léttur roði kom á andlitið. En rödd
hennar var fyllilega róleg, er hún svar-
aði:
Sjóklæðagerð Islands h.S
Allan almennan olíufatnað fyrir fólk til lands
og sjávar.
Vinnnvettlinga, ýmsar tegundir.
Gúmmifrakka fyrir karla, konur og börn.
Rykfrakka, ýmsar tegundir „Gaberdine44.
Varan er frumleultl úr beztu fáanlegum efnutn
af fugfólhi með margra ára reynslu að bahi sér.
Það bezta verður ætíð ódýrast.
SJÓKLÆÐAGERÐ ÍSLANDS H. F.
Reykjavík. Símar: 4085 — 3063