Tíminn - 18.02.1939, Qupperneq 1
23. árg. Reykjavík, laugardagiim 18. febr. 1939 21# i,iajj
Deilan i Hafnarfirði
Kommúnistar og Sjálfstæðismenn í
Hafnarfirði hóta ofbeldi og stofna
vinnufriðnum í hættu
FlóttaSólkid frá Spáni
í Hafnarfirði hefir komið
upp alvarleg deila út af
verklýðsmálum, og er niður-
staða hennar enn ófyrirsjá-
anleg, þegar blaðið fer í
prentun. Að formi til stend-
ur deila þessi milli tveggja
verkamannafélaga í Hafn-
arfirði, verkamannafélags-
ins „Hlíf“ og Verkamanna-
félags Hafnarfjarðar. En í
raun og veru skiptast menn
í deilu þessari eftir stjórn-
málaflokkum. Annarsvegar
eru Alþýðuflokksmenn (Vf.
Haf narf j arðar). Hinsvegar
kommúnistar og Sjálfstæð-
ismenn (Hlíf). En gangur
málsins hefir í aðalatriðum
verið þessi:
Hinn 29. jan. sl. fór fram
stjórnarkosning í „Hlíf“, hinu
gamla verkamannafélagi Hafn-
firðinga. Þar höfðu áður Alþýðu-
flokksmenn verið við stjórn. En
af hálfu kommúnista voru við
kosninguna aðrir menn í kjöri.
Flokkaskipting í félaginu er talin
vera þannig, að Alþýðuflokks-
menn eru fjölmennastir, þá
Sjálfstæðismenn, en kommún-
istar fámennastir. En í kosning.
unni kom það í ljós, að Sjálf-
stæðismenn í félaginu greiddu
atkvæði með frambjóðendum
kommúnista. Úrslit í formanns-
kosningu urðu þau, að kommún-
istaframbjóðandinn, Helgi Sig-
urðsson, var kosinn með 186 at-
kvæðum, en fyrrv. formaður,
Þórður Þórðarson, fékk 170 atkv.
Kommúnistar fengu einnig aðra
stjórnarmenn kosna að sínum
Ódýrar bygging-
ar í Reykjavík
Merkileg tillaga Irá
Jónasi Jónssyni
Á bæjarstjórnarfundi síðastl.
fimmtudag flutti Jónas Jónsson
svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn felur bæjarráði
að láta fara fram athugun á
því, hversu draga megi úr kostn-
aði við húsabyggingar í bænum
með því að láta gera samstæð
hverfi kjallaralausra einnar
hæðar húsa á Melunum eða
Laugarneshæðinni og skýra
bæjarstjórn frá árangrinum áð-
ur en byggingarvinna hefst á
vori komandi. Jafnframt sé at-
hugað, hver húsagerð, sambýl-
ishús eða sérstæð smáhús, sé
hagfelldust með tilliti til kostn-
aðar, rýmis og þæginda".
í framsöguræðu sinni gat
framsögumaður þess m. a., að
húsin í Norðurmýri hefðu orðið
dýrari vegna þess, hve langt er
þar niður á fastan grunn. Fjög-
ur járnbent steinsteypuloft
hleyptu bygggingarkostnaðinum
líka mjög mikið fram. Með því
að byggja einlyft kjallaralaus
hús með timburþaki, væri vinna
við þær svo óbrotin, að menn,
sem byggðu þannig yfir sig,
kynnu að geta unnið að bygg
ingunni að meiru eða minna
leyti af eigin ramleik.
Nokkrir bæj arfulltrúar tóku
til máls um tillöguna og studdu
hana allir. Var hún samþykkt
í einu hljóði.
vilja og náðu þannig yfirráðum
í félaginu með atkvæðum sín-
um og Sjálfstæðismanna.
Hinn 10. febr. gerast svo ný
tíðindi í máli þessu. Hin nýja
stjórn í Hlíf ákveður þá að víkja
12 þekktum mönnum, sem flestir
munu vera Alþýðuflokksmenn úr
félaginu. í bréfi, sem þessum 12
mönnum barst í hendur þann
12. febr. segir svo:
„Þar sem lög verkamannafélagsins
Hlíf mæla svo fyrir, að vinnuveitendur
geti ekki verið félagsmenn, ákvað stjórn
verkamannafélagsins Hlíf 10. þ. m. að
tilkynna yður, þar sem þér eruð orðinn
vinnuveitandi, að þá hafi hún sam-
þykkt, að þér getið ekki lengur talizt
meðlimur félagsins."
Samkvæmt því, sem upplýst er,
hafa tveir af þessum 12 mönn-
um verið 1 félaginu um 30 ára
skeið eða frá stofnun þess. Einn
þeirra hefir hvað eftir annað
verið formaður þess og tveir aðr-
ir stjórnarnefndarmenn í mörg
ár. Einn þessara manna, Ásgeir
Stefánsson, er forstjóri bæjarút-
gerðarinnar í Hafnarfirði. En
atvinnurekendastaða f 1 e s t r a
hinna virðist vera talin í því
fólgin, að þeir eiga hlutabréf í
fyrirtækjum, þar á meðal félagi,
sem stofnað var nú í vetur til að
gera út gamlan togara frá Hafn_
arfirði. Sá, sem skemmstan tíma
hafði verið félagsmaður, hafði
verið það í þrjú ár.
Meðal A 1 þ ý ð u fiokksmanna
vakti brottrekstur þessara 12
manna mikla gremju. Þann 13.
febr. samþykkti stjórn Alþýðu-
sambands íslands að víkja
verkamannafélaginu Hlíf úr Al-
þýðusambandinu, þar sem það
hefði „með þessari athöfn brotið
gegn 61. g. 63. gr. laga Alþýðu-
sambandsins“.
Næsta dag 14. febr., er svo
stofnað nýtt verkamannafélag í
Hafnarfirði undir nafninu Verka
mannafélag Hafnarfjarðar. Er
svo skýrt frá,að í þetta félag hafi
á stofnfundinum gengið nokkuð
á þriðja hundrað manna, þar á
meðal þeir tólf, sem vikið hafði
Línuveiðarinn Fi-óði varð fyrir miklu
áfalli á aðfaranótt fimmtudagsins. Var
hann þá staddur sunnanvert vlð
Reykjanesskaga. Reið sjór á skipið
bakborðsmegin og braut siglutréð,
stjórnpallinn, annan björgúnarbátinn,
en kastaði hinum útbyrðis, ásamt öllu
lauslegu á þilfarinu, þar á meðal mat-
arkistu, kistu með björgunarbeltum og
fleiru. Hálffylltist skipið af sjó, og
lagðist það á hliðina og köstuðust kol
og salt yfir í stjórnborðssíðuna. Tók
það hálfa klukkustund að moka til
kolum og salti og rétta skipið. Dælur
skipsins urðu fyrir skemmdum og tor-
veldaði það stórum austurinn. Bát-
verjar gerðu bál á þilfari og um há-
degi á fimmtudaginn kom loks þýzkur
togari tii hjálpar eftir að 2 enskir tog-
arar höfðu siglt fram hjá án þess að
skeyta um hinn nauðstadda bát. Fylgdi
þýzki togarinn Fróða áleiðis til Reykja-
víkur. Kom línuveiðarinn til hafnar
um klukkan sjö í fyrrakvöld. Skipstjóri
á Fróða er Þorsteinn J. Eyfirðingur.
t r r
Sigurður Jónsson bóndi í Stafafelli
hefir sagt Tímanum ýms tíðindi úr
Austur-Skaftafellssýslu. Veturinn hefir
verið einmuna góður. Alltaf næg beit
fyrir sauðfé, gefið sildarmjöl, en lítið
af heyi. Hross hafa einnig haft góða
jörð. Bílar hafa getað gengið hrukku-
laust um alla vegi, einnig yfir Al-
mannaskarð, sem oftast verður ófært
bflum i skammdegi, sökum fennls.
verið úr Hlíf. í stjórn hins nýja
félags voru kosnir sömu menn og
áður höfðu verið í stjórn verka-
mannafélagsins Hlíf. Jafnframt
sendu meðlimir hins nýja félags
úrsagnir úr hinu eldra félagi.
Jafnhliða eða rétt á eftir leit-
uðu bæði félögin samninga við
helztu atvinnurekendur í Hafn-
arfirði. Virðast þessir samningar
hafa gengið fyrir sér á þá leið, að
atvinnufyrirtæki þau, er Sjálf-
stæðismenn standa fyrir, svo
sem verzlun Einars Þorgilssonar
og fyrirtæki Lofts Bjarnasonar,
hafa samið við kommúnistafé-
lagið, en Bæjarútgerðin o. fl. við
hið nýja félag.
Þann 15. febrúar var haldinn
almennur fundur í verkamanna-
félaginu Hlíf. Þar var mættur
formaður Dagsbrúnar, Héðinn
Valdemarsson. Samkvæmt því,
sem frá er skýrt í Þjóðviljanum
16. þ. m., hélt hann var ræðu og
„lýsti yfir því, að Dagsbrún
myndi gera allt sem í hennar
valdi stæði til að hjálpa Hlíf.
Á fundinum var samþykkt i einu
hljóði svohljóðandi ályktun:
„Fjölmennur fundur í verkamanna-
félaginu Hlíf, haldinn 15. febr. 1939,
samþykkir í öllum atriðum samning
þann, er stjórn félagsins hefir í dag
gert við atvinnurekendur og undirrit-
að fyrir hönd félagsins með þeim fyrir-
vara að félagið samþykkti hann. Þá
samþykkir fundurinn að stöðva alla
vinnu hjá þeim atvinnurekendum, er
neita að gerast aðilar að samningn-
um og reyna að hefja vinnu með
utanfélagsmönnum og leggur bann við
því, að meðlimir Hlífar vinni með þeim
mönnum, er gerzt hafa meðlimir hins
svokallaða Verkamannafélags Hafnar-
fjarðar, sem er stofnað til þess eins
að kljúfa verkamannafélagið Hlíf.“
Þar sem svo margir Alþýðu-
flokksmenn voru gengnir úr fé-
laginu, þegar fundur þessi var
haldinn, er það alveg vafalaust,
að Sjálfstæðismenn hafa verið
I meirahluta á fundinum. Þeir
hefðu því getað fellt ályktunina
og þar með komið í veg fyrir, að
vinnufriðnum væri stefnt í voða.
En þvert á móti liggur það fyr-
ir, eins og áður er sagt, að á-
lyktunin hafi verið samþykkt í
einu hljóði.
Síðan hefir það gerzt, að inn
til Hafnarfjarðar er kominrt
botnvörpungurinn Júní, af ufsa-
veiðum. Það skip er eign bæjar-
(Framh. á 4. síðu)
í haust keyptl kaupfélagið húseignir
Þórhalls kaupmanns Daníelssonar í
Álaugarey, sem eru: íbúðarhús, sölt-
unar- og beitingahús, lýsisbræðslustöð,
íshús og bryggjur, allt nægilegt fyrir
6 báta og bátshafnir. Mannvirki þessi
voru reist árin 1930—37. Áður hafði fé-
lagið aðstöðu fyrir 18 báta, en nú síðan
Álaugareyjarstöðinni var bætt við,
fyrir 24 báta. Félagið leigir aðstöðu til
útgerðar á vetrarvertið, og hafa Aust-
fjarðabátar, allt frá Stöðvarfirði til
Húsavíkur, leigt þarna undanfarið. Um
20 Austfjarðabátar hafa nú sótt um
húsvist hjá kaupfélaginu í Hornafirði,
og eru nú að koma þangað.
r r r
Fiskjar varð vart í Hornafirði
snemma í janúarmánuði og allt af
síðan hefir verið þar fiskur fyrir. Nú
hefir einnig verið næg loðna til beitu
í firðinum. Heimabátarnir, Björgvin og
Ingólfur hafa farið nokkra róðra og
hafa nú fengið 50 til 80 skippund. Ó-
gæftir hafa valdið stöðvun síðustu
daga. ,
r t r
Á Hólum í Hornafirði hefir í vetur
verið sett upp 650 vatta rafstöð, sem
gengur fyrir vindi. Gefur hún nægileg
ljós í íbúðar- og peningshús, og má
notast til ýmissar smáiðju á heimilinu.
Rafgeymar endast, þótt logn sé, í 2—5
daga, og þarf aðeins 3 vindstig til þess
að stöðin gangi. Vélin temprar sig
Afstaða Rússa tíl
Síðastl. fimmtudag var talið
að 350 þús. flóttamenn frá Spáni
væru komnir til Frakklands.
Um helmingur þeirra eru her-
menn.
Móttaka þessa fólks hefir
þegar kostað Frakka margra
milj. franka útgjöld. Þeir hafa
orðið að útvega meginþorra þess
fæði og húsnæði, og mjög mörg-
um hafa þeir veitt sjúkrahús-
vist. Fæst af flóttafólkinu get-
ur endurgreitt þennan kostnað.
Róma erlendir blaðamenn mjög
hversu vel og mannúðlega
Frakkar hafa leyst úr fyrstu
vandkvæðum flóttafólksins.
En erfiðleikar þess eru samt
langt frá því leystir. Frakkar
hafa ekki möguleika til að halda
þá þannig til lengdar. Annað-
hvort verður að reyna að ráða
bót á erfiðleikum þess með
alþjóðlegum samtökum ellegar
það verður aftur að hverfa til
þess lands, sem það hefir flúið.
Vafalaust munu margir velja
þann kost frekar en æfilanga
útlegð. En þeir munu líka all-
margir, sem ekki þora að stofna
lífi sínu í hættu með því að fara
heim og telja jafnframt að þeir
geti unnið betur fyrir hugsjónir
sínar með því að dvelja utan
Spánar.
í lýðræðislöndunum hefir
undanfarnar vikur farið fram
stórfelld fjársöfnun til að
greiða fyrir spönskum flótta-
mönnum. Gangast fyrir því
menn af öllum flokkum, en
mest ber þó á fjársöfnunar-
starfsemi jafnaðarmanna og
frjálslyndu flokkanna. í sama
skyni var safnað fé í haust til
styrktar flóttamönnum frá
Tékkó-Slóvakíu.
Jafnframt hafa jafnaðar-
menn og frjálslyndu flokkarnir
reynt að greiða götu flótta-
mannanna á annan hátt, sem að
gagni hefir getað komið.
Aðalblað norska Alþýðu-
flokksins „Arbeiderbladet" hef-
ir fyrir nokkru gert allýtarlega
grein fyrir afstöðu jafnaðar-
manna til þessara mála. Þar
segir m. a.:
— Jafnaðarmenn gera allt,
sem í þeirra valdi stendur, til
að mestu sjálf í hvassviðrum og má
stöðva hana alveg, ef stórveður geisar.
Verkið önnuðust Hjalti Jónsson bóndi
í Hólum og Gísli Björnsson rafvirki í
Höfn. Reynsla af þessari vindstöð
er stutt, en Þorleifur 1 Hólum segir að
í janúarmánuði hafi þar komið niu
logndagar samfleytt, sem er mjög
sjaldgæft. Varð heimilið þá að vera án
rafljósanna í tvö kvöld, svo að raf-
geymar ekki tæmdust með öllu.
r r r
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis
hefir gengizt fyrir húsmæðrafræðslu á
félagssvæði sínu í vetur. Fer hús-
mæðrafræðsla þessi fram í Gamla Bíó.
Næstu fræðslufundir verða innan
skamms, á þriðjudaginn, föstudaginn
og mánudaginn, og hefjast klukkan
fjögur. Á þriðjudaginn flytur Rann-
veig Þorsteinsdóttir ávarp, Jón E. Vest-
dal flytur erindi um næringarefni og
fæðutegundir og að lokmn er sýnd
kvikmynd frá Finnlandi. Á föstudag-
inn flytur Soffía Ingvarsdóttir ávarp,
Steingrímur Steinþórsson erindi um
íslenzkar fæðutegundir og að lokum
verður sýnd finnska kvikmyndin. Á
mánudaginn flytur Katrín Pálsdóttir
ávarp, Jón E. Vestdal flytur erindi um
næringarefni og fæðutegundir, hið
sama og á þriðjudaginn og loks verður
kvikmyndin sýnd.
flóttamannamálanna
hjálpar þessu fólki. En það er
mörgum takmörkum bundið.
Þeir eiga ekki sæti í ríkisstjórn-
um Englands og Frakklands og
þar sem þeir eru í ríkisstjórn
eins og á Noxðurlöndum, mæta
þeim ýmsir erfiðleikar. M. a.
verður að taka tillit til atvinnu-
leysis í landinu.
En það er til land, þar sem
þessir erfiðleikar eru ekki fyrir
hendi. Land, þar sem sagt er að
atvinnuleysinu hafi verið út-
rýmt! Land, þar sem verkalýð-
urinn ræður og þarf ekki að
taka tillit til neinna andstæð-
inga á þjóðþinginu. Þetta land
er Sovét-Rússland.
Þess vegna er eðlilegt að menn
vænti mikils stuðnings frá Sov-
ét-Rússlandi við þá menn, sem
fasisminn hefir flæmt úr landi.
Þess vegna verður maður líka
agndofa yfir þeim tíðindum, að
síðan Tékkóslóvakía var undir-
okuð, hefir enginn flóttamaður
fengið leyfi til að koma til
Rússlands.
Það eina, sem kunnugt er um,
að rússneska stjórnin hefir boð-
ið flóttamönnum, er ókeypis
far yfir Rússland, ef þeir vildu
fara til Kína og berjast í styrj-
öldinni þar.
Það er ekki nóg, að rússneska
stjórnin hafi synjað hinum trúu
þjónum Stalins í Tékkóslóvakíu
um innflytjendaleyfi. Stjórnin
hefir líka neitað flóttamönnum,
sem höfðu dvalarleyfi í Rúss-
landi, en fóru til Spánar og
börðust þar í borgarastyrjöld-
inni, um leyfi til að koma
þangað aftur. Þeir dvelja nú í
Frakklandi.
Við hátíðleg tækifæri er
stundum talað um „föðurland
öreiganna". Það hljómar nú
öðru hvoru eins og bitrasta
háð. —
Afstaða rússnesku stjómar-
innar til flóttamannamálsins
sýnir bezt, hversu lítil alvara
býr á bak við hinar háværu
kröfur flokksbræðra þeirra
annarsstaðar um hjálp til
flóttamannanna. Og hún sýnir
bezt, hversu mikið far rúss-
neska stjórnin gerir sér orðið
um það, að móðga ekki hinar
einræðisþjóðirnar og þá einkum
Þýzkaland.
Utanríkisverzlun
Norðurlanda
í „Udenrigsministeriets tids-
skrift“ birtist nýlega yfirlit um
utanríkisverzlun Norðurlanda á
síðastl. ári. Samkvæmt því var
útflutningur og innflutningur
þeirra sem hér segir, reiknaður
í miljónum sterlingspunda:
Útfl. Innfl. Mism.
Danmörk 69.2 73.2 -r- 4.0
Finnland 37.1 37.9 -i- 0.8
ísland 2.6 2.2 + 0.4
Noregur 39.5 59.7 -r- 20.2
Svíþjóð 94.8 106.6 ■+- 11.8
Bæði útflutningur og inn-
flutningur allra landanna hafði
minnkað frá því árið áður. T. d.
hafði útflutningur Svíþjóðar
minnkað úr 103.1 milj. í 94.8
milj.
ísland er eina landið, sem
hefir haft hagstæðan verzlun-
arjöfnuð. En þess ber að gæta,
að hin löndin hafa miklar gjald-
eyristekjur af öðru en verzlun.
T. d. siglingum, erlendum ferða-
mönnum og lánastarfsemi, svo
þessar tölur gefa enganveginn
hugmynd um greiðslujöfnuð
þeirra.
jr
A víðavangi
Átökin í Hafnarfirði eru nú
á allra vörum. Flestir spyrja
hins sama: Hvað gera Sjálf-
stæðismenn? Þeir hafa að vísu
á undanförnum mánuðum kos-
ið með kommúnistum í verka-
mannafélögum og í bæjar-
stjórninni í Neskaupstað. En nú
er ný leið framundan: Leið of-
beldisins í Hafnarfirði. Og
spurningin er nú: Ætla Sjálf-
stæðismenn líka að fylgja kom-
múnistum inn á leið ofbeldis-
ins og ráðast með þeim á verka-
menn, sem vilja vinna, og eru
þar í fullum rétti?
* * *
Ýmsir bjuggust við því, að
Morgunblaðið, sem út kom í
morgun, myndi flytja áskorun
til flokksmanna sinna í Hafn-
arfirði um að vara sig á því að
fremja ofbeldi með kommún-
istum. En þeir, sem við þessu
hafa búizt, hafa orðið fyrir
vonbrigðum. í Mbl. í dag finnst
ekki eitt einasta aðvörunarorð
í þessu efni. Þvert á móti leggur
blaðið sig fram til að sýna fram
á, að kommúnistar hafi rétt fyr-
ir sér í málinu! Auðsætt er,
hvaða áhrif slík skrif hafa á
Sjálfstæðismennina í verka-
mannafélaginu Hlíf. En skjótra
svara mun nú um það krafizt,
hvort Mbl. tali á ábyrgð Sjálf-
stæðisflokksins í þessu máli.
* * *
Vísir telur að Tíminn hafi
skýrt rangt frá verkefni þeirra
fimm manna, sem undanfarið
hafa verið að athuga fátækra-
málin. En fyrsta verk þessara
manna var að athuga svör þau,
er borizt hafa frá bæjarstjór-
um og oddvitum við spurningum
atvinnumálaráðuneytisins. —
Þessar spurningar fjölluðu að
mjög verulegu leyti um „fram-
kvæmd" fátækraframfærslunn-
ar. Vísir hefir hlaupið óþarflega
á sig í þessu máli.
* * *
í Mbl. í gær er grein um að-
stoð til aldraðra sjómanna, og
þar um málið ritað, eins og
aldrei hafi áður verið á það
minnst. En á Alþingi í fyrra bar
Jónas Jónsson fram tillögu til
þingsályktunar um þetta mál,
og í því er nú milliþinganefnd
starfandi.
* * *
Út af fyrirspurnum, sem Tím-
anum hafa borizt í tilefni af
Hafnarfjarðarmálinu, skulu hér
tekin upp eftirfarandi atriði úr
„lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur“: „1. gr. Rétt eiga
menn á að stofna stéttarfélög
og stéttarfélagasambönd í þeim
tilgangi að vinna sameiginlega
að hagsmunamálum verklýðs-
stéttarinnar og launtaka yfir-
leitt. 2. gr. Stéttarfélög skulu
opin öllum í hlutaðeigandi
starfsgrein á félagssvæðinu,
eftir nánar ákveðnum reglum í
samþykktum félaganna. Félags-
svæði má aldrei vera minna en
eitt sveitarfélag“.
* * *
„5. gr. Stéttarfélög eru lög-
formlegur samningsaðili um
kaup og kjör meðlima sinna —
— 18. gr. Þegar vinnustöðvun
hefir verið löglega hafin, er
þeim, sem hún að einhverju
leyti beinist gegn, óheimilt að
stuðla að því að afstýra henni
með aðstoð einstakra meðlima
þeirra félaga eða sambanda,
sem að vinnustöðvuninni
standa.“
„Þegar stéttarfélag eða félag
atvinnurekenda ætlar að hefja
vinnustöðvun, þá er hún því
aðeins heimil, að ákvörðun um
hana hafi verið tekin: a) við
almenna leynilega atkvæða-
greiðslu, sem staðið hefir a. m.
k. í 24 klukkustundir-------
b) af samninganefnd eða fé-
lagsstjórn, sem gefið hefir verið
umboð til að taka ákvörðun um
vinnustöðvunina með almennri
atkvæðagreiðslu á sama hátt og
greint er undir a-lið c. af trún-
aðarmannaráði, ef lög viðkom-
andi félags fela því slíkt vald,
(Framh. á 4. síðu)
A KROSSGÖTTJM
Línuveiðari hætt kominn. — Tíðarfar suðaustan lands. — Útgerð frá Horna-
firði. — Fiskafli í Hornafirði. — Vindrafstöð. — Húsmæðrafræðsla.