Tíminn - 21.02.1939, Blaðsíða 2
86
TlMIM, þrigjudaginn 21. febrúar 1939
22. blað
Frelsi og verzlunarhöft
Um nokkux- undanfarin ár
hafa blöð Sjálfstæðisflokksins
verið fjölorð og oft harðorð um
það, að Framsóknarflokkurinn
hefði hættulegar skoðanir í
verzlunarmálum. Innflutnings-
skipulag síðustu 8 ára væri
skaðlegt lífi þjóðarinnar. Fram
á síðustu ár hafa sum þessi
blöð haldið því fram, að sjálf-
sagt væri að koma á því, sem
þau kalla „frjálsa verzlun", þ. e.
að hafa engar hömlur á inn-
flutningnum til landsins.
Ekkert væri Framsóknar-
floknum kærara en að geta
verið samdóma þessum tillög-
um. Framsóknarflokkurinn lit-
ur á innflutningshömlur eins
og böl, en því miður sem alveg
óhjákvæmilegt böl eins og
heimsverzlunin hefir verið nú
um mörg ár. í stað þess að
sumir andstæðingar Framsókn-
armanna halda að verzlunar-
hömlur séu okkur hugðarmál út
af fyrir sig, þá er sannleikurinn
sá, að við lítum á þær sem
augnabliksnauðsyn, sem eigi að
hverfa jafnóðum og verzlunar-
aðstaðan breytist, þannig að
þjóðin geti staðið í skilum er-
lendis með öll sín kaup.
En þó að við Framsóknar-
menn lítum á verzlunarhöftin
sem böl, þá viljum við heldur
þola þá erfiðleika nokkur miss-
iri og nokkur ár, fremur en að
glata frelsi landsins.En það, sem
hér um ræðir, er einmitt þetta.
Land, sem stofnar til meiri
skulda erlendis en það getur
borgað, er í hættu með frelsið.
Nýfundnaland missti sjálfstæði
sitt fyrir nokkrum árum fyrir
vöntun á skynsamlegum höft-
um. Nýfundnaland fékk um
mörg ár að flytja inn meira en
það gat borgað. En um síðir tók
England í taumana og setti þeim
stjórn frá London. Nýfundna-
land er nú einskonar skylduó-
magi á brezka heimsveldinu.
í átta ár höfum við Fram-
sóknai-menn beitt okkur fyrir
takmöi’kun á innflutningi til að
lenda ekki í sömu gröf og Ný-
fundnaland með hið nýfengna
fullveldi. Ef ráð okkar hefðu
verið að engu höfð, myndi
þjóðin hafa getað sparað sér
fullveldisfögnuð 1. desember
siðastliðinn.
Saga haftamálsins íslenzka er
sú, að 1929 benti Jón Árnason á
í bankaráði Landsbankans, að
ný kreppa væri sýnilega í upp-
siglingu og réði til þess, að
bankinn drægi úr lánastarf-
semi í því skyni að verjast
komandi hættu. Fulltrúar hinna
flokkanna voru andstæðir
þessari skoðun og trúðu á á-
framhaldandi góðæri. En haust-
ið 1931 var kreppan komin í al-
gleyming. Sum stærstu ís-
lenzku útgerðarfyrirtækin töp-
uðu miljónum króna við að
koma út íslenzka saltfiskinum
í Portúgal og Spáni. Tap ís-
lenzkra framleiðenda við verð-
fallið var svo gífurlegt, að all-
ur fjárhagur lands og þjóðar
riðaði eins og veikbyggð hús í
miklum jarðskjálfta.
Aðrar stærri og ríkari þjóðir
urðu líka að beygja sig fyrir
storminum. Englandsbanki varð
að láta pundið falla stórlega og
enska þjóðin neyddist til að gera
margháttaðar varnarráðstafan-
ir gegn hruninu. Árið eftir, 1932,
voru íslenzku bankarnir og út-
gerðarmenn svo aðþrengdir, að
gerð var nokkurskonar allsherj-
ar landsverzlun um saltfisk
landsmanna. — Allir leiðtogar
og blöð Sjálfstæðisflokksins
studdu þessa breytingu, þó að
hún væri algerð afneitun á
hinu rótgróna boðorði flokks-
ins um frjálsa samkeppni og
frjálsa verzlun. Frá þeim degi
hefir öll útvegsmannastétt
landsins viðurkennt í verki, að
þeir gætu ekki haldið uppi í
sínum viðskiptamálum hinni
gömlu samkeppnislífsskoðun.
Breyttir tímar hefðu fætt af sér
breytta lífsskoðun.
Enska þjóðin tók sama árið
lang-stórfelldasta skrefið í sín-
um verzlunarmálum, sem þeir
hafa stigið í marga áratugi. Hin
gamla trú Breta var frjáls
verzlun, engir tollar, óhindruð
samkeppni. Árið 1932 lokuðu
Bretar landi sínu með tollmúr-
um og innflutningshömlum,
sem standa enn. Þrem árum
síðar lokaðist að kalla mátti all-
ur markaður fyrir íslenzkan
saltfisk á Spáni. En sá mark-
aður hafði árið 1930 gefið ís-
landi 20 miljónir króna í frjáls-
um gjaldeyri. Litlu áður hafði
Þýzkaland tekið alla verzlun
ríkisins í sínar hendur. Hömlur
á verzlun þess lands eru svo
fullkomnar, að góðir borgarar
þar fá mjög oft sem svarar 10
kr. til almennrar eyðslu, ef þeir
fá að ferðast utanlands.
Atvikin höfðu, árið 1932, kennt
þeim Sjálfstæðismönnum, sem
stunduðu útveg, að við-
skiptaástand heimsins myndi
gera þýðingarmikla breytingar-
tillögu um allmargra ára skeið
við lærdóm Adams Smiths um
ótakmarkað frelsi og samkeppni
í verzlun milli landa. En nokk-
ur hluti íslenzku kaupmanna-
stéttarinnar hefir enn ekki átt-
að sig á hinum breyttu kring-
umstæðum.
Jón Árnason hafði átt, haust-
ið 1931, i bankaráði Landsbank-
ans, meginþátt í að tekin voru
(Framh. á 3. siöu)
^ímtnn
Þriðjudaginn 21. febr.
Haínarí j ar ðar de í 1 a n
og Sjálfstæðisflokk'
urínn
Þegar þessi grein er rituð,
mánudag 20. febrúar, er vinnu-
deilan í Hafnarfirði enn óleyst.
Og hún er á leiðinni til að
verða stórpólitískt mál, sem
getur haft þýðingarmiklar af-
leiðingar fyrir alla þjóðina.
Þess vegna er það ákaflega
mikilsvert, að allur almenning-
ur í þessu landi geri sér þegar
í stað fullkomlega glögga grein
fyrir aðalatriðum þessa máls.
Og það ætti að vera auðvelt,
því að málið er ákaflega einfalt.
En sum blöð í Reykjavík hafa
reynt að þvæla málið, blanda
því saman við óviðkomandi at-
riði og rugla dómgreind manna.
Það er fullkomlega rangt, að
Hafnarfjarðardeilan, eins og
hún lítur út frá sjónarmiði rík-
isvaldsins, sé deila um það,
hvort breyta skuli umdeildum á-
kvæðum í lögum Alþýðusam-
bands íslands, eða hvaða ítök
einstakir flokkar skuli hafa i
verkalýðsfélögum landsins.
Um þetta stendur að vísu hörð
deila í Reykjavík, Hafnarfirði
og víðar, og skal hér enginn
dómur á hana lagður. En þaö er
alger óþarfi og aðeins til aff
rugla málin aff blanda henni
inn í þaff vifffangsefni, sem
Ieysa þarf í Hafnarfirffi.
Það, sem gerzt hefir í Hafn-
arfirði og ríkisvaldinu kemur
við, er að verkamönnum, sem
myndað hafa löglegt félag, sem
rétt á til að semja um kaup og
kjör meðlima sinna, hefir verið
bannað að vinna. Annað verka-
mannafélag, hefir hótað að
stöðva vinnu þessara manna
með valdi.
Deilan um lög Alþýðusam-
bandsins eru einkamál verka-
lýðsfélaganna. Það er ekki
verkefni ríkisvaldsins nú að
skipta sér af þeirri deilu. Lög
landsins skylda engan mann
til að vera í Alþýðusamband-
inu, og það er ekkert ólöglegt
við það að stofna önnur verka-
lýðssamböpd. En ofbeldið i
Hafnarfirði er ekki einkamál.
Það er mál þjóðfélagsins alls.
Og það er rétt og skylt að öll
þjóðin fái að vita það nú, að
þaff er á valdi Sjálfstæðismanna
aff leysa þetta mál algerlega á
friffsamlegan hátt.
Sjálfstæðismenn eru i meira-
hluta í verkamannafélaginu
Hlíf í Hafnarfirði. Ef þeir neita
að vera með í því að stöðva
vinnu ólöglega og með ofbeldi,
kemst ekkert ofbeldi fram og
engin vinnustöðvun. Kommún-
istarnir í félaginu eru of fáir
til að geta komið slíku fram.
En Sjálfstæðismennirnir í
verkamannafélaginu Hlíf leggja
enn ofbeldinu lið sitt af því að
þeir standa í þeirri trú, aff þaff
sé vilji forráffamanna flokksins
í Hafnarfirffi og Reykjavík og í
samræmi viff stefnu flokksins,
að þeir taki þessa afstöðu.
Það þarf ekki nema eitt orð
frá þingmanni Hafnarfjarðar,
Bjarna Snæbj örnssyni, og at-
vinnurekendum Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði til þess,
að Sjálfstæðismennirnir í Hafn-
arfirði taki þá stefnu, sem frið-
sömum og löghlýðnum borgur-
um ber að taka í þessu máli.
En þetta orff hefir enn ekki
veriff sagt.
Og það þarf heldur ekki nema
eina ritstjórnargrein í dagblöð-
um Sj álfstæðisflokksins í
Reykjavik, Morgunblaðinu og
Vísi, til þess að Sjálfstæðis-
mennirnir í Hlíf hverfi af hin-
um hættulega vegi, sem þeim á-
reiðanlega, mörgum hverjum, í
raun og veru er óljúft að fara.
En þessi grein hefir ennþá
ekki veriff skrifuð. Þvert á móti
hafa bæði þessi blöð látið á sér
skilja, að þeir, sem að ofbeld-
inu standa, hafi „siðferðilegan
rétt“ í þessu máli.
Það er skylt að segja söguna
alla. Tíminn er þess fullviss, að
innan Sjálfstæðisflokksins, og
þar á meðal í hópi þingmann-
anna, eru menn, sem eru á móti
„At du
Sú saga er sögð um Alberti
ráðherra í Danmörku, að eitt
sinn er hann kom af þingi heim
í dagstofu sína, sat nafnkennd-
ur leikari í djúpum hægindastól
og kona Albertis í fangi hans.
Alberti sýndi engin merki um
geðshræringu og vék engu orði
að konunni. í stað þess snéri
hann sér með köldum fyrirlitn-
ingarsvip að leikaranum, sem
var honum persónulega kunnur
og segir snúðugt við hann:
„At du gider“. Það er út lagt:
„En að þú skulir hafa geð á
þessu!“ Alberti hafði þá mynd-
að sér óbifanlega sannfæringu
um gildi konunnar, að hún væri
svo fullkomlega gildislaus, að
það bæri vott um afarlélegan
smekk af hálfu karlmannsins að
hafa gaman af að sitja undir
henni í mjúkum hægindastól.
Undanfarna daga hefir ís-
lenzka þjóðin horft upp á sjón,
sem er alveg sambærileg við það
atvik, sem gerðist í dagstofu
Albertis. Nokkrir af leiðtogum
Mbl.-flokksins 1 Hafnarfirði
hafa setzt í djúpan stól, og tekið
í fang sitt hina feitu og klunna-
legu rússnesku byltingardyrgju,
og látið falla í eyra hennar ekki
með öllu kuldalega mansöngva.
íslenzka þjóðin hefir litið á
þetta athæfi með kaldri fyrir-
litningu. Menn hafa undrazt
þann smekk, sem kom fram í svo
viðbjóðslegri sýningu á viður-
kvæmilegu tilfinningalífi.
í Hafnarfirði eru, að talið er,
hérumbil þrjár tylftir manna,
sem fylgja hinni föðurlands-
lausu byltingarstefnu Einars
Olgeirssonar. En út af eldri og
yngri gremju milli verkamanna,
sem fylgja Alþýðuflokknum og
Mbl.-stefnunni, hafa verka-
menn Sjálfstæðisflokksins um
nokkra stund hampað þessum
fáu kommúnistum, falið þeim
því, að Sjálfstæðisflokkurinn
stuðli að ótíðindum í þessu máli.
Þessir menn hafa góðan vilja á
því að leysa málið í samstarfi
við ríkisstjórnina. Og þeim er
það fullkomlega ljóst, að ef
þeirri afstöðu verður áfram
haldið, sem verið hefir, hlýtur
flokkurinn aff fá fyrir það ákaf-
Iega þungan dóm hjá kjósend-
um sínum.
Þess er fyllilega að vænta, að
þeim, sem svo hugsa, fari fjölg-
andi meðal ráðamanna Sjálf-
stæðisflokksins. Fari svo, má
vera, að málið verði þegar leyst,
er þessi grein kemur fyrir sjónir
lesenda Tímans. Og þá munu
líka — í meðvitund almenn-
ings — ýms þau víxlspor gleym-
ast, er stigin hafa verið í upp-
hafi i þessú alvarlega máli.
Höskuldur Hallsson:
Höf. þessarar greinar, Hösk-
uldur Hallsson frá Grfshóli,
sem nú stundar mjólkur-
fræffinám erlendis, tekur til
umræffu skipulag byggffar-
innar í sveitum landsins.
Ræffir hann affallega mun-
inn á dreifbýli og þéttbýli
o g innlenda og erlenda
reynslu i þeim efnum.
I.
Þá er land vort var numió
höfðu landnemar tvö höfuðsjón-
armið fyrir augum, er þeir völdu
bæjarstæði. Sjónarmiðin voru
mikið víðsýni frá óðalinu og
nærtækt og gott vatnsból. Út-
sýnið hefir þó ráðið meira um,
sem ráða má af því, að flest öJl
býli standa á hólum, enda nauð-
synlegt skilyrði í þá daga að sjá
vel til ferða og vera viðbúinn ef
óvinir vildu á þá ráðast. Enn
þann dag í dag er sömu býlum
viðhaldið á nákvæmlega sama
grunni og fyrir 10 öldum, enda
þótt að mörg þeirra séu illa í
sveit sett hvað snertir samgöng.
ur, félagslegt samstarf og jafn-
vel sumstaðar slæm aðstaða til
ræktunar. Það er sjónarmið, sem
réðu á landnámsöld hvar býlin
skyldu standa, er ómögulegt að
geti samrýmst kröfum þeim, er
nútíminn gerir. Þannig er lega
gidertt
félagsleg trúnaðarstörf, haldið
með þeim fundi um almenn
mál, hlustað á æsingaræður
þeirra af kolabyngjunum og lát-
ið íhaldsblöðin í Reykjavík
leggjast svo djúpt að fara um
byltingarseggina fögrum orðum
í sambandi við frelsi og mann-
réttindi. Kommúnistahópurinn
í Hafnarfirði hefir í bili fengið
tækifæri til að stöðva allt at-
vinnulíf í bænum. Það má segja,
að biksvart ský hvíli yfir kaup-
staðnum. Öll atvinna er í dái.
Og í bænum eru tvær nokkuð
jafnstórar fylkingar borgaranna
í örvæntingarfullu vonleysi, við-
búnar að þeim verði kastað út
í almenn áflog og barsmíðar um
allan bæinn, eins og einhver ill-
ur andi hefði lagt bæinn í her-
fjötur.
Og þessi illi andi hefir verið
og er í Hafnarfirði. Sendisvein-
ar erlendrar þjóðar hafa vakið
þennan eld, og íkveikjan er
langt að fengin. — Fyrir
nokkru síðan fékk kommúnista-
flokkurinn í Reykjavík stórgjöf
í prentsmiðju sína frá útibúi
því, sem rússnesku byltingar-
mennirnir hafa í Svíþjóð. Og
gjöfinni fylgdi vinarkveðja frá
hinum göfuglyndu gefendum.
Þannig er eitur ættjarðarleys-
ingjanna flutt á milli landa.
Erlendir byltingarseggir gefa
undirdeild sinni á íslandi stór-
gjafir í prentsmiðju, sem á að
bera hinar blóðugu hugmyndir
föðurlandslausra manna út um
bæi og byggðir á íslandi.
Árangurinn er sýnilegur í
Hafnarfirði. Blómlegur bær at-
orkusamra manna er tilsýndar
eins og drepsótt hafi gengið
þar. Fólkið kvíðir komu dagsins
eins og væri það sjálf nótt
hörmunga þeirra, sem fylgi-
fiskar Einars Olgeirssonar hafa
undirbúið til handa bænum.
Ef ég ætti að néfna eitthvert
eitt verk, sem ég hefi gért land-
inu til gagns í sambandi við
starf Framsóknarflokksins, þá
myndi ég nefna viðleitni mína
til að halda hinu rússneska eitri
burtu frá þjóðinni. í kosning-
unum 1923 lýsti ég því yfir í
grein í þessu blaði, að ég áliti
að við Framsóknarmenn ættum
að vinna að framförum á lýð-
ræðisgrundvelli með verka-
mannaflokknum. En ef verka-
mannaflokkurinn tæki hina
austrænu byltingatrú, þá vildi
ég snúast til varnar og standa
þá við hlið Ólafs Thors. En því
nefndi ég þá þann mann, að
hann var þá talinn einna harð-
snúnasti maður í liði íhalds-
manna. Vildi ég þess vegna
taka djúpt í árinni til að sýna
hug minn til byltingastefnunn-
ar.
fjölmargra býla óviðunandi, af-
skekkt og úr þjóðbraut.
Margar tillögur hafa komið
fram endurskipuleggingu á land-
búnaðinum. Hneig hún í þá átt
um tíma, að út frá félagslegu
og hagfræðilegu sjónarmiði
mundi landbúnaðinum beztir út-
búnir með því að stofnað yrði til
þenslu- og framfaramöguleikum
samvinnubyggða, færa byggðirn-
ar saman í stór hverfi með sam-
vinnu og samyrkju í víðtækustu
merkingu og deila síðan arðinum
af búinu á milli hlutaðeigenda.
Það, að slíkt geti komið til
greina, að færa byggðirnar sam-
an til víðtækrar samyrkju og
samvinnu er óhugsandi, þegar
tekið er tillit til þess, að land-
búnaðarmenn eru aldir upp við
mikið sjálfræði og sjálfstjórn
með mikið landrými til hægri
og vinstri. Þannig hefir sagan
sýnt það, að menn hafi oft lagt
ofurkapp á að hafa yfir að ráða
vissu afmörkuðu landi, enda
fylgja því mörg sérréttindi að
hafa stór lönd til afnota og um-
ráða, en kröfur yfirstandandi
tíma virðast nú mæla á móti því
að stórar landeignir séu heppi-
legar og verður nánar vikið að
því síðar.
Það verður að viðurkennast að
í fleiri tilfellum vill náin sambúð
Viðleitni mín og fjölmargra
annarra samherja hefir borið
tilætlaðan árangur. Kommún-
istum er ljóst, að þeir eiga aldrei
nein grið hjá Framsóknar-
flokknum. Þeir óttast, hata og
öfunda Framsóknarflokkinn.
Þessi þrjú göfugu sálareinkenni
eru i hugum byltingarmann-
anna sameinuð í einn farveg í
skiptum þeirra við Framsóknar-
menn.
Jón Baldvinsson tók sömu að-
stöðu, en Héðinn Valdimarsson
og fáeinir aðrir skaðsemdar-
menn i Alþýðuflokknum drógu
þar slagbranda frá dyrum og
hleyptu óvininum inn. Og síðan
þá er Alþýðuflokkurinn í sár-
um. Þar er því líkt umhorfs
eins og verið hefir á Sauðafelli
eftir að siðlausir ræningjar
Sturlungaaldarinnar h ö f ð u
framið þar listir sínar í skjóli
náttmyrkurs og varnarleysis.
Vel hefði Mbl.-mönnum í
Hafnarfirði mátt vera í minni
það ólán, sem allir flokkar í Ev-
rópu hafa orðið fyrir, þar sem
kommúnistum hefir verið veitt
aðstaða til félagsskapar. Hvað
er að segja um Spán, hvað um
Frakkland, sem hefir misst
stórveldisaðstöðu sína fyrir
bandalag þjóðnýtra flokka við
kommúnista. Og hvað er að
segja um England, Danmörku,
Svíþjóð og Noreg, þar sem eng-
inn sæmilegur maður vill koma
nærri byltingarflokknum. Sama
hefir raunin orðið hér á landi.
Reynsla Alþýðuflokksins mætti
vel verða hyggnum mönnum
viðvörunarefni.
Nokkrir af leiðtogum Mbl.-
manna hafa í ýmsum verka-
mannafélögum landsins dansað
vangadans við hina erlendu
byltingarnorn allan fyrra hluta
þessa vetrar. En allra síðustu
dagana hefir æfintýrið úr húsi
hins danska ráðherra verið
leikið fyrir opnum tjöldum í
Hafnarfirði. Nokkrir af leiðtog-
um þess flokks, sem talið hefir
sig mikinn verndara þjóðskipu-
lagsins, hafa í Hafnarfirði dag
eftir dag setið í hægindastól-
um með hina digru austrænu
dyrgju í faðmi sér. Og allir þeir
íslendingar, sem ætla að þetta
land skuli aldrei vera nema fyr-
ir íslendinga, og að þjóðin skuli
lifa hér frjáls og hamingju-
söm, hafa litið í hafnfirzka
stólinn, framhjá hinu aðkomna
flagði og sagt með ótvíræðri
fyrirlitningu: „Svo þú hefir þá
gefi á þessu!“
J. J.
t. d. tvíbýlis- eða margbýlisbú-
skapur oft ganga illa, þegar til
lengdar lætur, enda þótt skyld-
menni eigi í hlut. Vill oft rætast
á þeim málshátturinn: „Frænd_
ur eru frændum verstir“ og
ágreiningsatriðin í mörgum til-
fellum rísa út af réttinum til
notkunar landsins.
Það eru ekki dæmi til þess að
fleirbýli þrífist nema í tveimur
byggðarlögum, Mývatnssveit og
Öræfum. Ástæða er því til þess
að halda því fram, að íbúar þess-
ara sveita séu félagslega þrosk-
aðri og að þær gætu skipt búum
sínum saman til víðtækari sam-
yrkju og samvinnu. Það liggur
því beint við, að halda því fram,
að byggðirnar yfirleitt verði að
ná því að geta starfað saman á
jafn nánan hátt og nefndar
sveitir áður hafa gert. Það er eft-
irtektarvert að margbýlið hefir
stórvægilega yfirburði yfir ein-
býlingsbúskapinn; nægir í því
sambandi að benda á Mývatns-
sveit. Þar hefir fólkinu fjölgað
síðan 1911. Hefðu aðrar sveitir
sömu sögu að segja, væri útlitið
öðru vísi í okkar landi, þó hins-
vegar að kaupstaða. og sjávar-
þorpamyndun hafi á sínum tíma
haft mikla þýðingu, hvað snertir
hagnýtingu fiskimiða og einnig
þá er þorp og bæir tóku að
myndast og stækka tók fyrir
Ameríkuferðirnar.
Mývatnssveit og Öræfin hafa
merkilega sögu að segja. í þess-
um háfjallasveitum una hag
sínum mikil skáld eins og Sig-
urður Jónsson á Arnarvatni.
— Það væri rangt að halda
því fram, að hér væri það nátt-
úran ein og hennar stórbrot-
leiki, sem valdi því að börn þess-
ara sveita uni því að heyja æfi-
starf sitt þar. Hið félagslega
samstarf, sem skapar vinnugleði
og dreifir erfiðleikum hins dag-
lega strits á margar hendur á
ekki hvað minnstan þátt í því að
gefa lífinu meira gildi og skapa
mönnum, gæddum óvenjulegum
gáfum aðstöðu til þess að skapa
bókmenntir og listaverk.
Á þeim tímum, er Öræfingar
þurftu að sækja alla verzlun til
Eyrarbakka, þá slógu þeir sér
alþr saman í eina lest og sendu
á undan sér þá, er beztir þóttu
verzlunarmenn til þess að selja
vörurnar og gera innkaup. Slík
samvinnustarfsemi hafði það í
för með sér að hægt var að ná
miklu betri kjörum en ella við
hina erlendu selstöðukaupmenn.
Samvinna í mörgum myndum og
félagsþroski þessara sveita er því
æfa gamall og stendur traust-
um fótum. Mér finnst ég ekki
hafa getað látið hjá líða að
dvelja lítið eitt við þessar merki-
legu sveitir og beina því í þessu
sambandi til annara byggða að
kynna sér samstarf- og félags-
hæfileika þeirra, er þar búa.
II.
Með stofnun alþýðuskólanna
gerðu menn sér háar vonir um
að sveitirnar mundu éiga auðvelt
uppgangs og að fólk mundi
hætta því að hverfa þeim. Sýni-
leg afstöðubreyting sveitunum í
hag er ekki merkjanleg. Þá gerðu
menn sér enn hærri'vonir um að
þá er útvarpið kom til sögunnar,
mundi einstæðingsskapur sveit-
anna með öllu hverfa og fólk una
hag sinum þar og heyja lífsstarf
sitt við ræktunina, en sjáan-
leg afstöðubreyting dreifðu
byggðunum í hag, mæla hvorki
með því að skólar, útvarp né
breyttar samgöngur hafi breytt
afstöðu fólksins með tilliti til
vals á æfistarfi. Að vísu skal það
tekið fram, að skólar, útvarp og
bættar samgöngur hafa stór-
bætt aðstöðu sveitanna, en
menningartæki þessi hafa ekki
áorkað því, að vinna það hlut-
verk er, margir virtust ætla
þeim.
Endanleg lausn þéss að fyrir-
byggja fólksflutninga frá sveit-
um og til kaupstaðanna er því
ekki ennþá fundin. Landspildur
leggjast í auðnir og ógrynni
ræktanlegs lands liggur óhreyft
meðan atvinnuleysi vex i bæjum
og kröfur frá þeim iðjulausu
aukast ár frá ári til bæjarfélaga
og hins opinbera.
Út frá þessum staðreyndum
ber því enn að horfast í augu við
mikla erfiðleika framundan fyr-
ir sveitum með að ná stórstígum
framförum í ræktun, svo hægt
verði að byggja líf sitt eingöngu
á ræktuðu landi. Einyrkjum
fjölgar og afköst einyrkjans í að
færa út ræktarlandið á býli sínu
er takmörkum bundinn, þar eð
dagleg umönnun búsins hlýtur
að taka allverulegan hluta
starfskrafta hans.
Ber því enn að gera sér glögg-
lega grein fyrir þeirri orsök, er
veldur fráhvarfi fólksins úr
sveitunum og á hvern hátt megi
ráða bót á því. Ekki í nokkru
landi býr bændastéttin jafn
dreifð og á íslandi. Án efa
liggur höfuðorsökin fyrst og
fremst í því, að mikill einstæð-
Nýir tímar kreijast
nýs skípulags