Tíminn - 25.02.1939, Síða 4
98
TÍMINIV, laMgardagiim 25. febrúar 1939
24. blaft
MOLAR
Y firhershöfölngi rússneska
hersins, Klimenty Voroshilov, er
annar valdamesti maður Rúss-
lands og talinn líklegastur tíl að
verða eftirmaður Stalins, ef
hann léti fljótlega af völdum.
Hann er nú 58 dra gamall.
Voroshilov er af mjög fátæk-
um foreldrum. Faðir hans var
verkamaður, sem hafði mjög
stopula atvinnu, og segir sagan,
að Voroshilov og systir hans hafi
orðið að betla fyrir heímilið
meðan þau voru of ung til að
geta unnið sjálf. Fimmtán ára
gamall fékk Voroshilov atvinnu í
járnnámu og varð m. a. for-
göngumaður i verkfalli. Hann
fékk þó hrós yfirmanna sinna
fyrir dugnað og er haft eftir ein-
um þeirra: „Ef allir verkamenn-
irnir vœru jafn duglegir og Vor-
oshilov hefði ég ekkert á móti
því að afhenda þeim verksmiðj-
urnar“.
Voroshilov hélt áfram að
stunda alla algenga vinnu þang-
að til byltingin hófst. Hann sat
þó öðru hvoru í fangelsi og var
m. a. sendur til Síberíu fyrír
byltingarstarfsemi sína. Á þess-
um árum las hann eins mikið og
hann gat komizt yfir og aflað
sér því talsverðrar menntunar af
eigin ramleik. Þegar byltingin
hófst gekk hann strax í her-
sveitir kommúnista og unnu þeir
Stalin saman á vigstöðvunum.
Voroshilov gat sér mikinn orð-
stir i borgarastyrjöldinni, en
hann komst þó ekki verulega til
metorða fyr en eftir að Trotski
lét af yfirstjórn hersins. Stalin
minntist þá kunningsskapar síns
við Voroshilov, enda vantreysti
hann þá öllum helztu yfirmönn-
um hersins, sökum vináttu
þeirra við Trotski. Fyrir atbeina
Stalins hafði Voroshilov á
skömmum tlma gegnt öllum
helztu virðingarstöðum hersins,
unz hann var gerður að œðsta
yfirmanni hans.
Voroshilov er mikill starfs-
maður og frekar vínsœll af und-
irmönnum sínum. Hann nýtur
þó ekki jafnmikillar ástsœldar
meðal hersins og Trotski gerði.
Persóna Trotski var glœsilegri og
hin brennandi mœlska hans skóp
eldmóð í hersveitunum. Voros-
hilov er stuttur og gildvaxinn og
lítill ræðumaður. Það er sagt l
gamni, að hermennirnir hafi
sagt, þegar Trotski reið meðfram
hersveitunum á rauða torginu í
Moskva í liðskönnun: „Glœsileg-
ur maður“, en þegar Voroshilov
geri það nú, segi þeir: „Glæsi-
legur hestur“!
Voroshilov er hneygður fyrir
skáldskap og kann mikið af Ijóð-
um. Hann er giftur dansmey,
sem talin er ein fegursta kona
Rússlands.
Skemmtikvöld
Framsóknarmanna.
Framsóknarfélögin í Reykjavík efna
til skemmtunar að Hótel porg þriðju-
daginn 28. þ m. Hefst hún kl. 8%. Til
skemmtunar verður Framsóknarvist og
tvær eða þrjár stuttar ræður. Fram-
sóknarmönnum er ráðlagt að trycvja
sér miða sem fyrst vegna mikillar að-
sóknar að þessum skemmtunum.
ÚR BÆNUM
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, séra Bjarni
Jónsson, kl. 2 barnaguðsþjónusta, séra
Friðrik Hallgrímsson, kl. 5, séra Frið-
rik Hallgrímsson. í fríkirkjunni kl. 2,
séra Ámi Sigurðsson. í Laugarnes-
skóla kl. 5, Sigurgeir Sigurðsson biskup,
barnaguðsþjónusta kl. 10. í frikirkiunni
í Hafnarfirði kl. 2, séra Jón Auðuns.
Karlakór Reykjavíkur
hélt fyrsta samsöng sinn á þessu ári
í Gamla Bíó í fyrrakvöld. Var húsið
þéttskipað og söngnum tekið með mikl-
um fögnuði. Á söngskránni vom mörg
ágæt lög, sem kórinn hefir ekki sungið
áður. Gunnar Pálsson söng einsöng í
tveim lögum og varð að endurtaka
bæði. Auk þess söng kórinn nokkur
aukalög. Af einstökum lögum ná nefna
fyrsta lagið á söngskránni „Kveðja til
Vestur-íslendinga" gullfallegt lag eftir
Björgvin Guðmundsson við ljóð Jóns
Magnússonar. Rússneska þjóðlagið
„Tökum fast á . . .“ og lag Karls Run-
ólfssonar ,,Nú sigla svörtu skipin". —
Karlakórinn endurtekur söngskemmtun
sína næsta sunnudag kl. 3 og ættu bæj-
arbúar að nota þetta tækifæri til að
hlusta á þennan prýðilega samæfða
kór undir stjórn Sígurðar Þórðarsonar.
Lögreglusamþykkt Reykjavíkur
er komin úr sérprentuð með breyt-
ingum þeim ,sem bæjarstjórn gjörði á
henni nú í vetur. Hún verður borin út
á hvert heimili nú á næstunni og fæst
auk þess ókeypis á skrifstofu borgar-
stjóra og lögregluvarðstofunni.
Annar fundur
húsmæðrafræðslu Kaupfélagsins var
haldinn í gær í Gamla Bíó. Frú Soffía
Ingvarsdóttir flutti ávarp. Steingrímur
Steinþórsson flutti fróðlegt erindi um
íslenzkar fæðutegundir og síðan var
sýnd samvinnukvikmyndin frá Finn-
landi.
Næsti fræðslufundur
kaupfélagsins verður á mánudaginn
kemur í Gamla Bíó og hefst kl. 4.
Katrín Pálsdóttir flytur þar ávarp, dr.
Jón E. Vestdal flytur erindl um nær-
ingarefni og fæðutegundir. Að því
loknu verður sýnd fínnska kvikmyndin,
eins og verið hefir á fræðslufundunum.
Allir aðgöngumiðar að fundinum eru
uppgengnir, en sökum þess, að ekki
hafa komizt að allir, sem vildu, endur-
tekur dr. Jón Vestdal erindi sitt á
þriðjudaginn í Gamla Bíó. Miðar að
þeim fundi verða komnir í sölubúðir
KRON kl. 4 i dag.
Fræffslumynd
um kartöflurækt og kornrækt var
sýnd í gær í Nýja Bíó aö tilhlutun
Áburðarsölu rikisins og Grænmetis-
verzlunar ríkisins, að viðstöddum al-
þingismönnum, búnaðarþingsm. og
ýmsum fleiri gestum. Áður en sýningin
hófst mælti Árni G. Eylands nokkur
orð til gestanna. Fræðslumynd þessi
er norsk og svarar því eðlilega ekki
nema að nokkru leyti, til þeirra stað-
hátta, sem hér eru. — Glöggur og
fróðlegur, íslenzkur texti fylgdi.
Leikfélag Reykjavíkur.
hefir á morgun tvær sýningar. —
Kl. 4 verður sýning á barnaleiknum
Þyrnirósa, en kl. 8 verður sýning á
Fléttuð reipi úr sandi, og er alþingis-
mönnum boðið á þá sýningu.
Úrskurffur Félagsdóms
í Hafnarfjarðardeilunni er væntan-
legur í kvöld.
Samúðarskeyti Minningagjafa-
sjóðs Landsspítalans.
Það hefir hingað til verið til allmik-
illa óþæginda fyrir þá, er senda vildu
samúðarskeyti Landsspítala íslands, að
skeytunum var ekki veitt móttaka í tal-
síma ritsímastöðvarinnar hér, svo sem
á sér stað um önnur skeyti landssím-
ans. Nú hefír verið úr þessu bætt, svo
sem sjá má á bréfi póst- og símamála-
stjóra til stjórnar Minningagjafasjóðs
Landsspítalans dags. 20. þ. m. Þar
segir svo: „Til þæginda fyrir sendendur
samúðarskeyta Minningarcr-i af asj óðs
Landspítalans, verður í Reykjavík, frá
1. marz n. k. tekið á móti skeytunum i
Jarðarför móður okkar og tengdamóður
JOHÖNNU JÓHANNESDÓTTUR
frá Geitavík
fer fram frá dómkirkjunni mánud. þ. 27. febr.
og hefst með bæn á heimili hinnar látnu,
Hofsvallagötu 19, kl. 1 e. h.
Sveína Helgadóttir
Guðm. Bjarnason. Sigurrós Rósinkarsd.
Endnrbætur
Japanir og Hainan
ruuh»tm««GAMLA BíóRnanmnjJt:
H
Í
JÓMFRÉ p
I HÆTTU. H
Bráð'skemmtileg og afar-
fjörug dans- og gaman-
mynd gerð eftir gaman-
leik P. Q. Woudehouse:
„A Damsel in Distress“, en
söngvarnir og danslögin
eftir Gershwin.
Aðalhlutv. leikux:
FRED ASTAIRE.
NÝJA BÍÓtt
ÉG LAUG ÞVÍ
Frönsk stórmynd er gerist
í París. — Aðalhlutverkið
leikur fegursta leikkona
Evrópu
Danielle Darrieux.
Þetta er ein af þeim af-
burða góðu frönsku mynd-
um er allsstaðar hefir
hlotið feikna vinsældir og
mikið lof í blaðaummæl-
um.
— Börn fá ekki aðgang. —
Kynnist franskri kvik-
myndalist.
mtmt
;:ma
á útsvarslögum.
(Framh. af 1. síðu)
(Framh. af 1. síðu)
arar greinar heldur kaupgreið-
andi sérgreindum sem geymslu-
fé og stendur skil á þeim til
bæjar- eða sveitarsjóðs a. m. k.
mánaðarlega. Formaður fyrir-
tækis hlutarmanna stendur
bæjar- eða sveitarsjóði skil á
útsvarsgreiðslum þeirra, þegar
útborganir hluta fara fram.
d) Verzlanir, iðnaðarfyrir-
tæki, skráð útgerðarfélög og
önnur sambærilega útsvarsskyld
fyrirtæki, hvort sem er ein-
stakra manna eign eða félaga,
skulu greiða útsvör sín mánað-
arlega, og fellur fyrsta mán-
aðargreiðsla í gjalddaga 1. dag
næsta mánaðar eftir að niður-
jöfnun útsvara er lokið. Hin
mánaðarlega greiðsluupphæð
reiknast út á þann hátt, að
að deila mánaðafjölda þeim,
sem eftir er af gjaldárinu, þeg-
ar niðurjöfnun er lokið, í út-
svarsupphæð.
Vanræki kaupgreiðandi eða
formaður skil samkv. a, b og c-
lið þessarar greinar, má taka
upphæðir þær, er honum ber
að sjá um greiðslu á, lögtaki
hjá honum sjálfum.“
Með þessu hyggst nefndin að
tryggja það, að bæja- og sveita-
félög fái inn útsvarstekjur sín-
ar frá gjaldendum jafnóðum
og þeir fá laun sín greidd, en
þurfi ekki að bíða eftir því
þangað til langt er liðið á áxið.
Þetta fyrirkomulag ætti einnig
að koma í veg fyrir það að tals-
verðu leyti, að útsvör tapist hjá
óskila- og órei^umönnum. Inn-
heimtan verður líka fyrirhafn-
arminni og friðsamlegri með
þessum móti. Þetta ætti t. d. að
geta útilokað lögtök í mörgum
tilfellum.
Hinsvegar er reynt að gera þá
skyldu, sem þetta fyrirkomulag
leggur á atvinnuveitendur, svo
létta og auðvelda, að hún verði
þeim ekki til óþæginda. Hvað
gjaldendurna sjálfa snertir,
virðist það eðlilegt, að þeir borgi
útsvör sín jafnóðum og þeir fá
inn tekjur sínar.
síma nr. 1020, frá þeim, er þess óska,
geen venjulegu aukagjaldi, sem jafn-
framt rennur til sjóðsins". Samkvæmt
þessu er fallinn burtu sá agnúi, er áður
var á afgreiðslu samúðarskeytanna,
og er enginn vafi á því, að við það
munu gjafir almennings til Minninga-
sjóðs Landsspítalans aukast að mun,
enda er sjóðnum mikil þörf á stuðningi,
því árlega fjölgar þeim, sem án styrks
úr sjóðnum myndu með engu móti
geta klofið þann kostnað sem af
sjúkradvöl þeirra á spítalanum leiðir.
muni þeir ekki sleppa henni
aftur.
Og við það verða Bretar og
Frakkar að una. Meðan ástandið
er jafn ískyggilegt og óráðíð í
Evrópu, þora þeir ekki að gera
neinar ráðstafanir til að stöðva
sigurför japönsku heimsveldis-
stefnunnar í Austur-Asíu.
En að einu leyti hefir yfir-
gangur Japana þó styrkt lýð-
ræðisríkin. Hann hefir hjálpað
til að vekja Bandaríkin af
svefni hlutleysisins. Hin stór-
auknu framlög, sem Roosevelt
hefir beðið þingið að veita til
vígbúnaðarins, eiga að verulegu
leyti að fara til þess að styrkja
aðstöðu þeirra í Kyrrahafinu.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
„FLÉTTUÐ REIPI
ÚR SANDI“
Gamanleikur í 3 þáttum.
Sýning á morgun kl. 8.
Vanalegt leikhussverð
Affgöngumiffar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un,
„ÞYRNIRÓS A“
æfintýraleikur fyrir börn í 4 at-
riðum, eftir Zoeharias Topelfus.
/
Sýning kl. 4 á morgun.
Aðgöngumiðar á 1.00 seldir frá
kl. 5 til 7 í dag og eftir kl. 1 á
morgun.
SHIPAUTCEWP
■ WHISIWSI
M.s. Eldborg
hleffur til Vestmannaeyja n. k.
mánudag.
Flutningi óskast skilaff fyrir
hádegi samdægurs.
Skipiff losar viff bryggju í
Vestmannaeyjum, sem er til
Happdrætti Háskóla Islands.
Fyrir rúmlega 4 aura á dag
getið þér skapað yður möguleika til að vinna
46,200,00 króuiir
Verð ‘I, hlutur 6,00
- ‘|2 - 3,00
- ’|4 - 1,50
á mánuði.
Flýtið yður tU nœstsi mnboðsmtmns.
— Ekki cr nsi fínndraðið í laætttBimi. —
Umboðsineam í Reykjavík:
Frú Anna Ásmundsdóttir & frú Guðrún Björnsdóttir,
Túngötu 6, sími 4380.
Dagbjartur Sigurðssön, kaupmaöur, Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupmaður, Týsgötu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupmaður, Reykjavíkurveg 5, sími 4970.
Helgi Sivertsen, Austurstræti 12, sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61, sími 3584.
Frú Maren Pétursdóttir, Laugaveg 66, sími 4010.
Pétur Halldórsson, Alþýðuhúsinu.
Stefán A. Pálsson & Ármann, Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðsmenn í Mafnarfirði:
Valdimar Long, kaupmaður, simi 9288.
Verzlun Þorvalds Bjarnasonar, sími 9310.
Sundhöll Reykjavíkur
verður opnuð aítur á morgun sunnudag-
inn 27. þ. m. kl. 10 I. h.
ikemmtun.
Framsóknariélögin í Reykjavík eina til
skemmtunar að Hótel Borg, príðjudagínn 28.
p. m., sem hefst kl. 8,30.
Til skemmtunar:
Framsóknarwhíst,
mikils hagræffis fyrir vörumót-
takendur.
3 stuttar ræður. - Dans.
262 Andreas Poltzer:
við öll. .. . En enginn jarðneskur dóm-
ari getur kvatt hann til ábyrgðar og
sízt af öllu sæmir það sonardóttur hans.
— Á ég að flytja.... á heimili afa
míns....?
Þetta var 1 fyrsta skipti, sem Patricia
kallaði Kingsley lávarð því nafni.
Máíaflutningsmaðurinn varð vand-
ræðalegur.
— Nei, ungfrú. Afi yðar hefir ekki
óskað þess.... ekki fyrst um sinn. Ég
ræð yður líka frá að heimsækja hann
núna....
— Þér eigið við, að hann myndi ekkl
vilja taka á móti mér?
Sir Albert Thorne þagði.
— Ég skal ekki fara á fund Kingsley
lávarðar, því að mig langar ekkert til
að kynnast afa mínum! sagði Patricia.
— Kæra ungfrú Holm, afi yðar er
gamáll maður og veikur, sagði mála-
flutningsmaðurinn rólega. Við verðum
að reyna að setja okkur í hans spor. ...
Hann hefir lagt fyrir mig, að borga
yður rausnarlega fjárupphæð á hverjum
mánuði, svo að þér getið lifað áhyggju-
lausu lífi og haft úr nógu að spila....
Yður skal líða vel, ungfrú Holm.
Málaflutningsmaðurinn beið þess að
unga stúlkan svaraði, en Patricia þagði.
Og þess vegna hélt hann vingjarnlega
áfram:
Patrícia 263
— Ég skal greiða yður stóra fjárupp-
hæð þegar í stað; þér þurfið ekki annað
en að undirrita kvittun.
Patricia hafði staðið upp. Hún hafði
tekið ákvörðun og rödd hennar var föst
og róleg er hún svaraði:
— Segið Kingsley lávarði, að ég af-
þakki peningana hans!
Málaflutningsmaðurinn horfði með
saniúð á ungu stúlkuna. Á þessari
stundu, er hún hafnaði, vegna tilfinninga
sinna, áhyggjulausu lífi og allsnægtum,
var hún enn fegurri en áður. Sir Albert
Thorne brosti. Hann var gamall maður
og þekkti lífið, og þess vegna tók hann
yfirlýsingu Patriciu eins og hún var
töluð og var ekki alvarlegri en vera bar.
— Kæra barn, ég skil þessa framkomu
yðar og hvernig á henni stendur, en
leyfið gömlum manni að segja yður, að
þér farið rangt að....
Patricia ætlaði að taka til andmæla,
en málaflutningsmaðurinn hélt áfram:
— Það er ekki óhjákvæmilegt að hafa
peninga til þess að vera ánægður 1
lífinu. En það væri tvímælalaust van-
hugsað af yður, að neita að taka við
fé, sem þér eigið tilkall til, af eintóm-
um þráa.
— Ég vil ekki fé lávarðarins! hrópaði
Patricia einbeitt. En rétt á eftir fannst
henni sjálfri, að hún hagaði sér hlægi-
LÍTIL JÖRÐ
eða
Aðgöngumíðar fást á afgreiðslu Tímans,
sími 2323, og við innganginn.
JARÐARPARTUR
á fögrum stað, óskast
keypt.
Ekki mjög fjarri Reykjavík.
Verður að vera í nánd við þjóð-
veg og bílfært heim. Æskileg
hlunnindi, jarðhiti, lax- eða sil-
ungsveiði.
Tilboð sendist: Póst box 422
Reykjavík.
Notíd eíngöngu
fi V E A
eldspýtiir
FÁST I ÖLLNM VERZLUNUM.
■éfabankin
C ^ostuvstr. í> simi 5fi!)2.0piö ki.11-120íj4-3
3/
Merkir
samtíðarmeiui.
(Framh. af 3 síðu)
Annast kaup og sölu veröbvéfa.
Mreinar
léreftstnsknr
k a u p i r
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Lindargötu 1D.
sonar, og munu hin bindin
koma út á næstu árum. Allir
munu vita að hin síðari bindi
verffa að engu ómerkari. Þessi
útgáfa var ákveðin á hinu
fyrsta landsþingi þeirra. Er þar
heillavænlega af stað farið og
munu allir þeir, sem bókina
lesa, flytja þeim fyllstu þakkir
fyrir bók þessa.
ORÐSETVDUVG
til blindra manna.
Samkvæmt heimild ráðherra
lánar Blindravinafélag íslands
fyrir árið 1939 10 viðtæki til
fátækra blindra manna.
Umsóknir sendist stjórn fé-
lagsins fyrir 15. apríl n. k.
Umsóknar eyðublöð eru þeg-
ar send til allra presta landsins.
STJÓRN BLINDRA-
VINAFÉL. ÍSLANDS.