Tíminn - 07.03.1939, Síða 2

Tíminn - 07.03.1939, Síða 2
112 TÍMBVIV, frrtðjiidagiim 7. marz 1939 28. blað Matj ii r I ;i r æktnnin EStir Gísla Br. Brynjúlfsson 'gímtnn Þriðjutlaginn 7. marz Hverju svarar Sjálf- sfæðísflokkurínn? Síðan Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn tóku við völdum í landinu, hafa Sjálf- stæðismenn oft látið á sér skilja, að þeim þætti of lítið gert íyrir sjávarútveginn af hálfu þings og stjórnar. Raunar er það svo, að á þessu tímabili hef- ir meira af opinberu fé verið veitt þessum atvinnuvegi til stuðnings en dæmi eru áður til og sömuleiðis hefir verið meiri viðleitni sýnd til að létta af honum álögum en nokkru sinni fyr. Má í því sambandi nefna skuldaskilasjóðinn, styrk til frystihúsa, niðursuðu og fleiri nýbreytni, afnám eða lækkun útflutningsgj alda, eftirgjöf kola- og salttolls o. s. frv. En sumir Sj álfstæðismenn hafa látið sér fátt um þessar ráð- stafanir finnast. Á þingi báru þeir fram á sínum tíma frum- varp um miljóna eftirgjafir til stórútgerðarmanna á kostnað ríkissjóðs. Og oftast hafa þeir látið í veðri vaka, að ef það væri á þeirra valdi, myndi miklu betur hlynnt að sjávarútvegin- um en gert hefir verið og svo um séð, að ekki þyrfti að reka hann með tapi. Út af fyrir sig má segja, að ekki sé ástæða til að ætla annað en að Sjálfstæðismönnum mörgum hverjum hafi verið alvara í þessu máli. Þeim hafi runnið til rifja hin erfiða afkoma þessa stórnauðsynlega atvinnuvegar og haft fullan vilja á að leggja sitt lið til að greiða úr málum hans. En á allri afstöðu Sjálf- stæðisflokksins í þessu máli hef- ir þó verið einn veikur blettur. Flokkurinn hefir allan þennan tíma verið minnihluti í stjórn- arandstöðu. Hann þurfti ekki að bera ábyrgð á hinni fjárhags- Iegu hlið tillagna sinna og var laus við þann vanda, sem í því fólst að framkvæma þá viðreisn, sem hann í blaðagreinum og þingræðum hefir gefið í skyn að nauðsynleg væri. Og það er nokkuð algengt fyrirbrigði, að stjórnmálamenn, sem þessa að- stöðu hafa, noti sér hana til að gera kröfur um það, sem betur mætti fara, sjálfum sér til fram- dráttar meðal þeirra, sem um- bótanna þurfa, og taki ríflega til orða um vanrækslu þeirra, sem með völdin fara og ábyrgðina bera. Af þessum ástæðum hafa ýmsir ekki tekið kröfur Sjálf- stæðismanna á undanförnum árum eins alvarlega og gert myndi hafa verið, ef flokkur- inn hefði borið þær fram á hendur stjórn, sem hann sjálf- ur bar ábyrgð á. Það hefir ekki verið fullkomlega hægt að verj- ast þeirri hugsun, að tilgangur flokksins kynni fyrst og fremst að vera sá, að gera sjálfan sig góðan í augum þess hluta kjós- enda, sem viö sjávarsíðuna býr, án þess að á bak við fælist hin sanna og heilbrigða löngun til að verða sjávarútveginum að liði. Það er sjaldnast á mannanna valdi að „rannsaka hjörtun og nýrun“. Og álit manna um hinn raunverulega áhuga Sjálfstæð- ílokksins í þessu máli hefir þvi verið meira og minna á getgát- um reist. En nú er það augnablik upp runnið, að ekki er þörf á get- gátum í þessu efni. Nú er það á valdi Sjálfstæðisflokksins að sýna í verki, hversu mikill áhugi hans raunverulega er og hvað hann vill á sig leggja til þess að rétta við hag sjávarútvegsins. Nú er honum sú leið opin að hafa fullt samstarf við aðra flokka um lausn þessara mála, ekki einungis sem ábyrgðarlaus stjórnarandstöðuflokkur með yfirboðstillögur, heldur sem fullkomlega ábyrgur aðili. Hann á þess nú kost, ekki einungis að styðja að viðreisn sjávarútvegs- ins með atkvæðum sínum á Al- þingi, heldur einnig að fara með framkvæmd þeirrar viðreisnar. Hann á þess kost að hafa af því verki alla þá sæmd, sem honum mætti af því hlotnast, ef vel tækist, en verður þá auðvitað Eitt hið allra stærsta við- fangsefni bænda á komandi ár- um, er aukin matjurtaræktun. Þótt mikið hafi unnizt í því efni hin síðari ár, er ekki ann- að hægt að segja, en að stutt er komið áleiðis að því marki, að við íslendingar verðum sjálfum oss^ nógir með ræktun matjurta. Á meðan við flytjum inn kar- töflur fyrir fleiri hundruð þús- und króna á ári, en neytum þó minna af þeim en viðunandi er, verður ekki annað séð en mikil þörf sé á auknu átaki til ræktunar meiri matjurta í þessu landi en nú er almennt. Þó það ætti hverjum bónda að vera vel ljóst, að ræktun kar- taflna t. d. er vel möguleg, með sæmilegum árangri í öllum hér- uðum þessa lands. Við íslend- ingar ættum að geta ræktað eins mikið af kartöflum og þjóðin getur frekast notfært sér. Það er lífsnauðsyn fyrir okkur íslendinga, sem ekki get- um ræktað korn, nema lítið eitt, að rækta í þess stað kartöfluna, hina næringarríku, hollu og bætiefna auðugu matjurt. Þeir tímar gætu komið, að til lands- ins yrði erfitt að flytja kornvör- una, t. d. ef styrjöld brytist út. Gæti þá ekki kartöfluræktunin um leið að taka sinn þátt í þeim erfiðleikum og því starfi, sem framkvæmdinni eru samfara og taka á sig sinn hluta af þeim óvinsældum, sem þessar ráð- stafanir kunna að hljóta hjá þeim hluta þjóðarinnar, sem ekki hefir af þeim beinan hag. Því verður ekki neitað, að þennan stuðning, sem sjávar- útvegurinn nú þarf að fá hjá Sjálfstæðisflokknum, er talsvert erfiðara að veita en hina ein- faldari liðsemd, sem flokkurinn hefir á mjög svo auðveldan hátt látið í té á undanförnum árum. Það er stórum léttara verk að bera fram kröfur en að standa með þeim, þegar á reynir og að gera sj álfur það, sem með þarf þeim til fullnægingar. En einmitt nú á Sjálfstæðisflokk- urinn tækifærið til að sýna, hvort hann er sjávarútvegin- um sá „vinur sem í raun reyn- ist“, eða hvort önur sjónarmið ráða þar meir. Alþingi bíður eftir svari. Og þess er fyllilega að vænta, að ráðamenn flokks- ins sýni nú þann manndóm, sem atvinnulífi þjóðarinnar má til gagnsemdar verða — ekki hinn ódýra manndóm ábyrgð- arleysingjans, heldur manndóm þess, sem reiðubúinn er að hefj- ast handa og vill og þorir að bera ábyrgð verka sinna. Fyrir tuttugu árum kom fá- tækur sveitapiltur héðan vestur í byggðir íslendinga í Ameríku og byrjaði að vinna þar. Hann kunni ekki tungu landsmanna. Hann átti hvorki að frændur eða vini. En hann byrjaði að starfa að erfiðustu og minnst borguðu vinnunni, sem völ var á, eins og venjulega verður hlut- skipti umkomuleysingjanna í framandi löndum. Eftir fáein ár kom þessi mað- ur heim til landsins aftur. Með eljusemi og harðri vinnu hafði hann dregið saman um 10 þús. kr. En eftir eitt sumar hafði hann verið féflettur af manni nærri Reykjavík, svo að heita mátti að hann væri aftur orð- inn allslaus. Sá sem sveik af honum féð, fékk kunningja sinn til að klæðast dulbúningi og þykjast vera einn af banka- stjórum Landsbankans. Þessi gervimaður ráðlagði síðan að- komumanninum að biðja svik- arann að geyma og ávaxta féð, sem dregið hafði verið saman með margra ára striti við erfið kjör í Vesturheimi. Svikin komust upp og þeir sem þar voru að verki fengu hegn- ingu eftir fyrirmælum laganna. En pilturinn, sem misst hafði aleigu sína kunni ekki við sig í gamla landinu og fór aftur til Vesturheims. einmitt bjargað þjóðinni frá tilfinnanlegum skaða, ef rækt- unin væri rekin í stórum stíl? Hvað var það, sem talið er að hafi bjargað þýzku þjóðinni frá skorti á styrjaldarárunum? Það var einmitt hin geisimikla mat- jurtaræktun. Enda er neyzla kartaflna nú meiri í Þýzkalandi en nokkru öðru landi hér í álfu. Ég er hræddur um það, bænd- ur góðir, að við gerum okkur ekki það fullkomlega ljóst, hve sinnuleysi um ræktun matjurta getur haft alvarlegar afleiðing- ar fyrir okkur sem einstakl- inga, og líka fyrir þjóðina alla. Við megum ekki og getum ekki lengur látið það um okkur spyrjast, að við gerum ekki allt það ítrasta, sem við getum til lausnar þessu mikla vandamáli. Það er hörmulegt til þess að vita að gróðrarmáttur íslenzkr- ar moldar skuli ekki hér vera notaður til hlítar, til að birgja þjóðina upp af matarforða, sem hún getur ekki og má ekki vera án. Hefjumst því handa, beitum orku okkar og þekkingu til hins ítrasta, til sameinaðra átaka i stóraukinni matjurtarækt, og það nú þegar á þessu komandi vori. Ef til vill eru einhverjar meg- inorsakir, sem liggja til þess, að matjurtaræktunin hefir ekki orðið svo mikil sem æskilegt var. Að þeim orsökum þurfum við að leita og ryðja þeim úr vegi það allra fyrsta. Að því verða allir að vinna, sem þessu máli unna, einstaklingar, félög og ríkisvald, og enginn má láta neitt undir höfuð leggjast, sem skyldan krefur til farsældar þessa máls. Ég tel, að ein meginorsök til lítillar ræktunar hjá bændum víða um sveitir, sé skortur á hentugum sáðvörum á hverjum stað. í mörgum sveitum og jafnvel heilum héruðum, er hvergi nærri ræktað svo mikið af kar- töflum, að nægilegt sé til neyzlu heimilanna, þótt ýtrustu spar- semi sé gætt. Ég hygg að margir muni þeir bændur vera, sem eru matarkartöflulausir 2—3 mán- uði ársins. Af þessum skorti á kartöflum eru þessir bændur með mjög takmarkaðan útsæð- isforða. Það er ekki óalgengt, að heyra bændur kvarta mjög yfir því, er á líður veturinn, að þeir hafi allt of lítið útsæði. Að sig vanti til að geta haldið í horfinu með þá litlu ræktun, sem þeir hafa áður haft. Þótt kostur sé á erlendu út- sæði frá Grænmetisverzluninni, Hann byrjaði að nýju að safna sér fé og dró ekki af sér í þeirri viðleitni. Hann var talinn tveggja manna maki við erfiðis- vinnu og var eftirsóttur af mörgum gróðursælum" hús- bændum. Hann átti hvorki konu eða börn og fáa vini. Hann bjó i fátæklegu þakherbergi, eldaði mat sinn sjálfur og þvoði þvott sinn að sið einstæðinga í Amer- íku. Heimþráin var enn vakandi, og nú í haust var hann ráðinn til íslandsferðar. Hafði honum í vesturförinni lánast að draga saman nokkur þúsund krónur. Þær voru með nokkrum hætti hans eini vinur. Fyrir þeim hafði hann barizt með margra ára hörðu erfiði. Á heimleiðinni varð hann að bíða nokkra daga eftir skipi í Edininborg. Þar virtist hann hafa kynnst íslendingi, sem bú- settur er í Englandi. Samtal þeirra verður til þess, að land- inn að vestan fær þá hugmynd áð hann geti grætt nokkur hundruð krónur á því að skipta dollurum sínum í Edinborg og kaupa fyrir þá fjárhæð íslenzk- ar krónur. Og þetta gerði hann. Það er vafasamt að honum hafi verið nema að litlu leyti ljóst, að þessi athöfn var brot á íslenzkum lögum. Helzt er svo að sjá, að hann hafi með mik- þá verður það í undandrætti hjá mörgum að panta það í tímá. Er það mín skoðun, að það sé neyðarúrræði fyrir bændur að kaupa það á hverju ári, sem bæði er dýrt og óhentugt að mörgu leyti. Það er alveg víst, að hið er- lenda útsæði, komið frá mjög ó- líkum ræktunarskilyrðum, við það sem hér er, gefur því ekki góða raun á fyrsta ári, þótt góð- ar tegundir séu. Þær verða að venjast hinum breyttu ræktun- arskilyrðum og þess er varla að vænta, að þær gefi góða raun fyr en á 2.—3. ári. Það er því vitanlegt, að þessi erlendu útsæðiskaup á hverju ári, rýra mjög mikið uppsker- una hjá bændum vegna fyr- greindra ástæðna. Það getur jafnvel haft þau áhrif, að bændur missi trúna á ræktun- armöguleikana, vegna þessarar miður góðu útkomu. Ég veit einnig dæmi þess, að bændur hafi misst trúna á ágætum kartöflutegundum, vegna þess, að þær gáfu ekki eins góða raun á fyrsta ári og þeir gátu gert sér vonir um, eftir því sem af þeim hafði verið látið. Einnig eru mikil erlend út- sæðiskaup, eyðsla umfram þörf á gjaldeyri þjóðarinnar. Það er mín skoðun, að stærsta og áhrifamesta sporið í þá átt að tryggja aukna ræktun í sveitum, sé að séð sé um að allt af sé nægilegt til af innlendum útsæðiskartöflum í landinu á hverju vori. En því verður ekki náð nema með sérstökum ráðstöfunum þess opinbera, til að tryggja að ræktað sé eins mikið af út- sæði og bændur þurfa með, um- fram það sem þeir hafa sjálfir. Skal ég nú skýra frá því, er mér hefir dottið í hug í þessu sambandi. í hverri einustu sýslu á land- inu skal reist einskonar garð- ræktarstöð, sem hefir það verk- efni, að rækta útsæðiskartöflur fyrir bændur. Einnig ættu þess- ar stöðvar að gera tilraunir með ræktun kartöflutegunda, til aö vita til hlítar um ræktunar- möguleika þeirra á hverjum stað Allir flutningar útsæðis langt að eru dýrir og erfiðir. Einnig er meiri hætta á útbreiðslu ýmsra sjúkdóma í kartöflum, ef úr sýktum héruðum er dreift útsæði í ósýkt héruð. Þessar garðræktarstöðvar ættu að geta selt útsæðið ódýrara en erlent útsæði er, ef þeim væri hjálpað til með að yfirstíga byrjunarörðugleikana, með styrk frá því opinbera, og eins frá hlutaðeigandi búnaðarsam- böndum fyrstu 3 árin, sem þær störfuðu. Það yrði alltaf tölu- verður kostnaður að reisa slík- ar stöðvar. Það þyrfti að koma upp öruggum kartöflugeymsl- um, því vitanlega yrðu stöðv- illi einfeldni talað um þetta gróðabrall sitt við hvern sem var, og ekki farið dult með. En þegar skipin koma í nánd við ís- land, eru gestunum sýnd eyðu- blöð, þar sem þeir eiga að til- greina hvað þeir hafi meðferð- is af peningum og í hvaða mynt. Þá fær landinn ótvírætt aðhald um að hann hafi fest fótinn í möskvum laganna. Hann gefur ranga skýrslu um fjáreign sína og gerir viðvaningslega tilraun til að fela hina nýfengnu seðla í fötum sínum. En þegar komið er til Reykjavíkur finna toll- verðirnir peningana, og sjá hina röngu skýrslu. Málið kom að sjálfsögðu til lögreglunnar. Eftir landslögum var íjárhæðin, sem skipt hafði verið, öll fallin til ríkissjóðs. Ennfremur gróð- inn af skiptunum. Að lokum krefja lögin að dæmt sé í sekt fyrir þetta lagabrot. Maðurinn var nú samkvæmt landslögum búinn að missa aleigu sína, þá sem hann flutti heim í annað sinn. Blöðin fengu þessa frétt hjá lögreglunni, eins og tíðkast um svipuð atvik. Þau sögðu- frá málinu, nefndu ekki nafn mannsins, en gátu þess, flest eða öll, að hér væri um að ræða ís- lending frá Ameríku. Maðurinn tók sér nærri ó- happ sitt og var lasinn á vegum skyldmenna sinna. Því meira sem hann hafði haft fyrir að afla þessarar litlu fjárhæðar því þungbærari varð honum til- hugsunin um tjónið. Þegar fréttir bárust um þetta peninga-verzlunarmál til landa í Vesturheimi, varð það við- arnar að geyma útsæði yfir vet- urinn. Ég teldi það því ekki fjarri sanni, að þeir sem rækju stöðvarnar, fengju 3 kr. styrk á hverja tunnu, er þeir seldu til útsæðis á hverju ári í 3 ár. Væri þá sanngjarnt að hlut- aðeigandi búnaðarsambönd legðu fram y3 styrksins en rík- issjóður % hluta. Ef hver stöð ræktaði til jafn- aðar 400 tn. og að þær væru 20 á öllu landinu, væru það 8000 tn., sem kæmi á markaðinn á hverju ári og mundi það láta nærri, ef reiknað er út frá með- al uppskerumagni, að það yrðu um 60,000 tn., sem fengjust und- an því, ef allt væri sett niður, en það er um það leyti að vera eins og öll ræktun síðastliðið ár. En þar sem ræktunin verður að minnsta kosti að tvöfaldast, er það víst, að þörf mun vera á þessu útsæðismagni umfram það, sem bændur hafa sjálfir. Þessi styrkur mundi vera um 24000 kr. árlega, og mundi um 8000 kr. lenda á búnaðarsam- böndunum, en 16000 kr. á ríkis- sjóði. Ég tel það litlum vafa undir- orpið að þetta fjárframlag til stöðvanna mundi borga sig. Því hvað ætli fari mikið af gjaldeyri út úr landinu, ef 8000 tn. af útsæði væru fluttar inn árlega? Það yrði stór upphæð. En þetta útsæðismagn, sem garðræktarstöðvarnar ættu að framleiða til viðbótar því, sem bændur hafa, ætti að geta tryggt svo mikla ræktun, að við þyrftum ekki að flytja inn kar- töflur í landið, þótt neyzla ykist að miklum mun. Mundi þá þjóð- arbúinu sparast stórkostlegur gjaldeyrir og bændum tryggð- ur verulegur framleiðsluauki, sem gæti mikið bætt afkomu þeirra. Ég tel, að þetta mál sé vel þess vert, að það sé athugað ná- kvæmlega. Vildi ég óska að þetta mál yrði rætt á aðalfundum búnað- arsambandanna á komandi vori og hvort samböndin gætu ekki séð sér fært að styrkja slíkar stöðvar. Einnig vildi ég óska, að land- búnaðarráðherra léti taka þetta mál til nákvæmrar athugunar í landbúnaðarnefndum Alþingis í vetur. Læt ég svo máli mínu lokið að sinni, en óska öllum þeim, er við garðrækt fást, í komandi fram- tíð, heilla og hamingju í því veg- lega starfi. Hvalgröfum 10. febrúar 1929. Gfsli Br. Brynjúlfsson. Annast kaup og sölu verðbréfa. kvæmt tilfinningarmáli.Sú stað- reynd, að blöðin í Reykjavík skyldu finna ástæðu til að ein- kenna landann með þeirri ná- kvæmni, að hann væri „Vestur- íslendingur", fannst þeim köld og óviðeigandi kveðja frá því landi, sem þeir bregða hug- sjónablæ yfir í endurminning- unni, og bæði í ræðu og riti. Ég hefi fengið mörg bréf að vestan, sem bera vott um þessa særðu viðkvæmni, sum alla leið vestan frá Kyrrahafsströnd frá mönn- um, sem hafa hvorki heyrt eða séð hinn óheppna ferðamann. Nú er það mála .sannast, að fréttin um peningaverzlun landans kom að verulegu leyti afbökuð vestur. Auk þess eru skilyrði vestra svo ólik, að menn skilja ekki aðstöðu okkar, sem verðum að berjast fyrir heiðri okkar og fjárhagslegu sjálf- stæði með því að láta ekki seðla landsins vera verzlunarvöru er- lendis. Lögin um seðlaverzlun- ina eru réttlát og óhjákvæmileg á íslandi, en aðstaðan er fjarlæg almenningi í Ameríku, og mað- urinn, sem hér átti hlut að máli, var' af mörgum samsettum á- stæðum alls ófær til að skilja, að sú verzlun, sem hann gerði í góðri trú í Englandi, var ekki leyfileg að lögum landsins, og að þau lög væru nauðsynleg hinni íslenzku þjóð. Að lokum sendi Þjóðræknis- félagið fyrirspurnarskeyti til forsætisráðherra um málið. Ráðherrann svaraði aftur með ítarlegu skeyti, sem síðan var birt í vestanblöðunum. Ríkis- stjórnin leit á málavexti og lét S. XJ. ZB"1. F. U. F. á Siglufirðt efndi þar til almenns lands- málafundar síðastl. föstudags- kvöld. Var yngri mönnúm í öðrum landsmálaflokkum boðið að taka þátt í umræðunum, og þáðu íhaldsmenn og kommún- istar boðið. Jafnaðarmenn skor- uðust hinsvegar undan, enda munu þeir ekki hafa neinum ungum mönnum, sem geta tekið þátt í opinberum umræðum, á að skipa. Svipuð var og reynslan með hina flokkana, því þeir urðu að nota hina gömlu ræðu- menn sína. Kommúnistar sendu Þórodd Guðmundsson og Aðal- björn Pétursson og íhaldsmenn Jón Gíslason. Af háifu ungra Framsóknarmanna töluðu Þor- steinn Hannesson, Ragnar Guð- jónsson og Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli. Fundurinn var mjög fjölmennur og fór vel fram. Var hann ungum Fram- sóknarmönnum á Siglufirði til sóma og sýnir að þeir eiga bezt- um málsvörum á að skipa. Er mikill flokkslegur áhugi hjá ungum Framsóknarmönn- um á Siglufirði. Hafa þeir ný- lega, auk þessa fundar, haldið útbreiðslufund, sem tókst mjög vel. Stjórn F. U. F. þar skipa Þor- stein Hannesson, Garðar Guð- mundsson og Snorri Friðleifs- son. F. U. F. í Hrátafirði hefir nýlega fest kaup á sam- komuhúsinu á Borðeyri. Fær fé- lagið með því góða bækistöð fyrir starfsemi sína, en rekstri hússins mun að öðru leyti hag- að eins og áður. Ef félagið hefði ekki keypt húsið var ekki ólík- legt, að það hefði verið rifið eða tekið til annarrar notkunar.. — Félagið hefir haldið nokkra fundi í vetur. Stjórn þess skipa nú: Björn Þórðarson í Gilhaga, Bjarni Pétursson á Borðeyri, Steinunn Gunnarsdóttir í Grænumýrartungu, Óskar Helgason á Gilsstöðum og Pét- ur Matthíasson á Óspaksstöðum. Ungir Framsóknarmeim utan af landi, sem dvelja í bæn- um lengri eða skemmri tíma, eru beðnir að hafa tal af stjórn S. U. F. áður en þeir fara aftur úr bænum og helzt sem fyrst eftir að þeir koma til bæjarins. Er jafnan hægt að hitta ein- hvern úr stjórn S. U. F. á skrif- stofum Tímans frá kl. 11—12 f. h. og 1—5 e. h. alla virka daga. manninn engu tapa nema gróða þeim, sem hann hafði haft af peningaskiptunum. Ókunnug- leiki mannsins, heimför hans og öll atvik málsins voru þess vald- andi að ríkisstjórnin lét ekki þetta tilfelli verða úrskurðar- mál um óleyfilega seðlaverzlun. Enginn skyldi halda að landar í Vesturheimi geri ráð fyrir að þeir séu hafnir yfir lögin í ætt- landi sínu, er þeir koma þar. Þvi síður ætlast þeir til þess, þar sem það er reynsla í Ameríku, að engin þjóð á tiltölulega jafn- lítinn hlut í hópi dómfelldra manna vestur þar eins og ís- lendingar. En bæði áttu menn vestra erfitt með að skilja sak- arefnið, og í öðru lagi er svo fjarlægt hugsunarhætti þeirra, að blöðin skyldu, þó að það væri í fullkomnu athugunarleysi, finna ástæðu til að kenna manninn, um leið og hann var sakaður um yfirsjón, við sam- félag landanna í Ameríku. Og hér er komið að atviki, sem við Austur-íslendingar skiljum jafn lítið eins og landar vestan hafs eiga erfitt með að skilja hina umdeildu peninga- verzlun. Þegar íslendingurinn er kominn í óra fjarlægð frá ætt- landinu, þegar hann er kominn í fjarlæga heimsálfu og býst ekki við að sjá aftur land sitt og þjóð, þá verður ættjarðarástin heit og viðkvæm, miklu næmari en í hugum þeirra, sem aldrei yfirgefa landið. íslendingarnir í Ameríku hafa þau óskrifuöu lög, að þeir vilji jafnan vera ís- landi til sóma. Þessi hugsun (Framh. á 3. síðu.) Jónas Jónsson; Hínn brákaðí reyr

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.