Tíminn - 30.03.1939, Page 4
154
TÍMIM, fimmtndaginn 30, marz 1939
38. blað
MOLAR
Um fátt eru nú meiri getgátur
en það, hvert sé nœsta mark-
mið Hitlers og hvaða ríki hann
œtli næst að leggja undir yfir-
ráð Þýzkalands.
í þessu sambandi rifjar enska
blaðið News Chronicle það ný-
lega upp, að þegar tékkneska
lögreglan framkvœmdi húsrann-
sókn á bœkistöðvum Henleins-
flokksins i Prag síðastliðið vor,
fann hún meðal annars lista yf-
ir fyrirhugaða landvinninga
Þjóðverja. Hann hljóðaði á þessa
leið:
Vorið 1938: Austurríki
Haustið 1938: Tékkoslovakia
Vorið 1939: Ungverjaland
Haustið 1939: Pólland
Vorið 1940: Júgoslavía
Haustið 1940: Rúmenia, Búl-
garia
Vorið 1941: Frakkland, Sviss,
Luxemberg, Holland, Belgia,
Danmörk.
Haustið 1941: Ukraina.
Þannig átti að halda áfram og
vorið 1948 var gert ráð fyrir þvi
að öll Evrópa og Litla-Asía lyti
yfirráðum Þjóðverja.
* * *
Árið 1930 voru búsettir í
Bandarikjunum 1,265,054 inn-
innflytjendur frá Norðurlönd-
um. Skiptust þeir þannig: Svíar
595,250, Norðmenn 347,852, Dan-
ir 179,474 og Finnar 142,478. ís-
lendingar hafa ekki verið taldir
sérstaklega. íbúar Bandaríkj-
anna sem eru af norskum œtt-
um, eru vitanlega miklu fleiri,
því margir þeirra eru fœddir
vestra. Samvinna fer nú stöðugt
vaxandi meðal hinna norrœnu
þjóðarbrota vestan hafsins og
leggja ýmsir íslendingar þar
góðan skerf til þeirra starfsemi.
* * *
/ byrjun þessa mánaðar skýrði
„Daily Telegraph“ frá því, að
síðan um áramót hefðu 12 menn
verið dœmdir til dauða i Þýzka-
landi fyrir njósnir.
* * *
Vinsœldir sjónvarpsins fara
stöðugt vaxandi i Englandi, enda
eru Englendingar komnir allra
þjóða lengst á því sviði. Viku-
lega eru nú seld í Englandi um
500 sjónvarpstœki.
* * *
Meðal ameriskra auðkýfinaa
er nú háð einskonar samkeppni
um það, hver geti haldið veizlur
með sérkennilegustum hœtti.
Eins og nú standa sakir er prent-
smiðjueigandi einn í New York
talinn methafinn. Gestirnir voru
látnir sitja á hestbaki meðan
veizlan stóð yfir. Til þess að gera
þetta enn áhrifameira höfðu
hestarnir verið látnir drekka
áfengi áður en veizlan hófst og
voru þeir því talsvert ókyrrir.
Gestunum var vitanlega veitt
áfengi eftir óskum og segir sag-
an, að þeir hafi flestir verið
margfallnir af baki, þegar veizl-
unni lauk.
Annar auðkýfingur hélt ný-
lega veizlu i stórum sal, þar sem
tamin Ijón gengu um meðal
veizlugestanna.
tR BÆNUM
Jón Ólafsson,
togarinn nýi, sem Alliance hefir
keypt hingað í stað Hannesar ráðherra,
kom hingað í gærmorgun. Var hann
fjóra sólarhringa á leiðinni frá Eng-
landi. Skipið er mjög fallegt útlits og
búið nýtízku tækjum, miðunarstöð og
dýptarmæli. Það er 423 smálestir og því
nokkru minna en Hannes ráðherra.
Smávegis óhapp vildi til, þegar skipið
var að leggjast að bryggju. Rakst það
á hafnarbakkann og varð hann fyrir
lítilsháttar skemmdum og plata sprakk
á stafni skipsins.
Verkfall trésmiða
gegn múrarameistarafélaginu hófst í
gærmorgun. Er vinna því stöðvuð við
flestar byggingar í bænum. Sáttasemj-
ari hefir málið til meðferðar og hefir
hann átt viðræður við stjórnir hlutað-
eigandi félaga, en engar sættir hafa
þó tekizt.
Sundmót
verður háð í kvöld í Sundhöllinni og
hefst það klukkan 8.30. Fer það fram
á vegum Olympíunefndar íslands og
í því skyni að afla fjár til væntanlegr-
ar þátttöku íslendinga í Olympíu-
leikjunum í Helsingfors að ári. Á sund-
mótinu verður keppt í 50 metra sundi
karla, frjáls aðferð, 100 metra bringu-
sundi kvenna og 100 metra bringusundi
karla. Ennfremur mun Jónas Halldórs-
son þreyta 800 metra sund við fjóra
ágæta sundmenn, er synda 200 metra
hver. Loks fara fram sýningar á sund-
knattleik og dýfingum, og taka bæði
konur og karlar þátt í dýfingunum.
Sundknattleiksliðin eru úr kappliðum
Ármanns og sundfélagsins Ægis.
Hin hvítu skip
heitir nýútkomin ljóðabók eftir Guð-
mund Böðvarsson. (Sjá auglýsingu hér
í blaðinu í dag.)
Ný neðanmálssaga
byrjar í blaðinu í dag. Er hún eftir
enska skáldkonu, Lettice Ulpha Cooper,
listrænan smásagnahöfund. Saga þessi
er örstutt.
Framsóknarmenn í Reykjavík
eru minntir á fundinn í Kaupþings-
salnum í kvöld. Jónas Jónsson hefur
umræður um samvinnu lýðræðisflokk-
anna.
Sænsk-íslenzka félagið
heldur aðalfund sinn í Oddfellow-
húsinu í kvöld. Félagar mega taka
með sér gesti.
Barnavernd Líknar
verður opnuð aftur á morgun, föstu-
dag.
Fiskimjöl til manneldis.
í dag verða á boðstólum í Hress-
ingarskálanum ýmsir réttir úr hinu
nýja fiskimjöli. Geta menn fengið þar
þessa rétti með sama verði og matur
er venjulega seldur fyrir i skálanum.
Verður um allmarga rétti að velja.
Réttir þessir eru tilbúnir af matsveini,
er starfar á vegum h/f. Fiskur, er
framleiðir fiskimjölið.
Fundur Framsóknarfélagsins
hefst kl. 8% í kvöld. Mætið vel og
stundvíslega!
Gestir í bænum.
Frú Sigurlína Sigurjónsdóttir, Nes-
kaupstað í Norðfirði, Jóhann Guðjóns-
son í Bolungavík.
Ungir Framsóknarm.
(Framh. af 3. síðu)
stjórn S. U. F. áður en þeir fara
aftur úr bænum og helzt sem
fyrst eftir að þeir koma til bæj-
arins. Er jafnan hægt að hitta
einhvern úr stjórn S. U. F. á
skrifstofum Tímans frá kl. 11—
12 fyrir hádegi og 1—5 eftir há-
degi alla virka daga.
Heimsfrægur skída-
garpur í heimsókn
(Framli. af 3. síðu)
tíma var nothæf stökkbraut
fullbúin. Birgir Ruud hafði ekki
aðeins stjórnað verkinu, heldur
unnið ötullega að snjómokstrin-
um. Stökkkeppnin fór fram. Og
klikkt út með hinu ótrúlega en
glæsilega heljarstökki — á skíð-
um!
Kvöldveizla á Hótel Borg.
Hinir miklu salir troðfullir af
ungu, fallegu fólki!
Úrslitum skíðamótsins lýst og
verðlaunum úthlutað.
Birgir Ruud er fagnað og
þakkað.
En svo skeður það sem minnir
á „stíl“ íslendingasagnanna.
Birgir Ruud gaf Jóni Þor-
steinssyni stökkskíðin sín.
Minnir þetta á þegar norrænn
höfðingsskapur til forna gaf
vopn úr hendi sér.
Og enn er stígandi í „stíln-
um“, Birgir Ruud afhendir litla
siglfirzka drengnum gönguskíð-
in sin!
Birgir Ruud hefir víða farið
og hvarvetna verið vel fagnað.
En hitt er ekki vitað, að hann
hafi nokkurntíma gefið skíðin
sín.
En vandi er þá nokkur við að
taka, og er þess að vænta, að
rosknir menn og ráðnir, ekki
síður en æska landsins sjálf
minnist þessara gjafa frá einum
hinum glæsilegasta íþrótta-
manni veraldar og þessir aðilar
leggist á eitt um að reynast
gjafarinnar maklegir.
G. M.
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, því þá veit ég að kaff-
ið hressir mig
•
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
Islandsmyndín
(Fravih. af 1. síðu)
myndin af Laxfossi í Borgar-
firði, þar sem laxarnir voru að
stökkva hver af öðrum í foss-
inn, en áttu mjög örðuga upp-
göngu. Síðastliðið haust var
þessi foss í Norðurá sprengdur
og búnir til í hann stallar og
raufir, svo ef teknar verða
myndir þaðan næsta sumar, er
líklegt að þá sjáist löxunum tak-
ast betur stökkin.
Skemmtanir Ferðafélagsins
eru venjulega góðar og hafa á
sér menningarbrag. En þessi í
gærkvöldi var ein af þeim beztu
og sérkennilegustu.
Ferðafélag íslands er eitt af
meiri menningarfélögum lands-
ins. M. a. starfs síns gefur það
út á hverju ári árbók, sem í eru
hinar vönduðustu héraðslýsing-
ar með fjölda ágætra mynda.
Ársgjald til félagsins er aðeins
5 krónur eða 100 kr. í eitt skipti
fyrir öll. Það er alls ekki meira
en fyrir árbókinni, sem hver fé-
lagsmaður fær ókeypis.
Ferðafélagið hefir nú reist
þrjú sæluhús á fögrum stöðum
til fjalla. Og reisir fleiri hús
strax og kraftar leyfa. Félagið
stuðlar mjög að ferðum fólks um
landið, með hópferðum á fagra
og einkennilega staði, kynnir
landið í ræðu og ritum — og
myndum. Það hjálpar til að
opna íslendingum ísland — að
gefa þeim sjálfum sitt eigið
land og kenna þeim að njóta
þess, sem fögur og einkennileg
náttúra landsins hefir að bjóða
börnum sínum.
í kvöld heldur Ferðafélag ís-
lands aðalfund sinn að Hótel
Borg. Það á marga starfsfúsa og
óeigingjarna forgöngu- og fé-
lagsmenn. Eigum við ekki, al-
mennir félagar — og nýir félag-
ar — að sýna þeim og þessum
góða félagsskap hlýhuga okkar
og þakklæti með því að fylla
Borgina stundvíslega í kvöld?
V. G.
Víkur Chamberlain?
(Framh. af 1. síðu)
innlimun Tékkóslóvakíu sé nú
nær eingöngu farið eftir vilja
hans. Milli hans og Edens er
mikil vinátta og er talið að Hali-
fax sé fylgjandi þjóðstjórnartil-
lögu Edens og vilji fá hann, Duff
Cooper og Churchill í stjórnina.
Margir telja að Halifax lá-
varður myndi íyrir margra hluta
sakir vera manna heppilegastur
til stjórnarforustu. Hann er lag-
inn samningamaður, en þó
manna fastastur fyrir, þegar svo
ber undir. En sá galli er á að-
stöðu hans, að hann á sæti í lá-
varðadeildinni og getur því ekki
orðið þingmaður, nema brotnar
séu gamlar formsreglur. En það
þykir ótiltækilegt í Englandi, að
forsætisráðherrann sé ekkiþing-
ur. —
Samkvæmt seinustu fregnum
hafa nú Eden, Duff Cooper,
Churchill og um þrjátíu íhalds-
þingmenn aðrir, sent Chamber-
lain áskorun um að gangast fyr-
ir myndun þjóðstjórnar, sem
njóti svo mikils trausts meðal
þjóðarinnar, að hún fái fullt
vald yfir iðnaði, auðlindum og
mannafla landsins og geti því
beitt sameinuðum öllum styrk-
leika Bretlands gegn yfirgangi
einræðisríkjanna, ef þörf krefur.
Við vorum á Funchalflóanum; ég hallaði mér
út yfir borðstokkinn. Þá sá ég Ellen Crane í
fyrsta skipti. Það var snemma morguns; við
vorum að bíða eftir árdegisteinu. Við höfðum
verið úti á opnu Atlantshafinu, þegar við geng-
um til svefns kvöldið áður, en vöknuðum aftur
inni í flóanum, í skjóli sólbjartra hæða ó-
kunnrar eyjar, lukt fangi grænna hlíðanna
beggja vegna fjarðarins. Hér virtist helzt vera
fljótandi markaðsstaður. Allir, sem komið höfðu
um borð í skipið, höfðu eitthvað til sölu. Nakin
börn stungu sér í sjóinn og léku þar íþróttir
sínar fyrir fáeina aura, og vörpulegir karl-
menn buðu útsaum, sjöl og ýmsa muni úr kóral
til kaups. Þeir voru mjúkir í hreyfingum og
um dökk, uppleit andlit, flökti áfjátt og ísmeygi-
legt bros. Lítill vélbátur brunaði út að skipinu,
á milli hrörlegra árakæna. í skutnum lá far-
angur og samvafið ferðateppi. í barkanum sat
stúlka í gráum sumarfrakka með grábrúnan hatt
á höfði. Bakið, beint og spengilegt, sneri að mér.
Ég gaf henni nánari gætur, þegar hún kom upp
skipsstigann. Hún var mjög föl yfirlitum og bar
gleraugu. Ég minntist þess nú, að skipstjórinn
hafði getið þess, að einn eða tveir farþegar
myndu bætast í hópinn í Madeira.
Verður klukkunni Slýtl
(Framh. af 1. síðu)
ir: „Tillaga þessi er flutt í því
skyni, að gefa mönnum kost á
að njóta betur sólar heldur en
almennt er nú, með þeim tíma-
reikningi, er tíðkast hér á landi.
Mun almennur áhugi fyrir
þessu, og hafa raddir komið
fram um það í flestum blöðum
landsins.
Flutningsmenn hafa snúið sér
til póst- og simamálastjóra og
fengið hjá honum upplýsingar
þær um búmannsklukku í öðrum
löndum er hér fara á eftir:
„í ýmsum löndum, einkum þar
sem lengd dags og nætur er
mjög misjöfn, þykir hentugt að
færa almennan starfstíma. til,
þannig að hann byrji nokkru
fyrr að sumri en að vetri. En af
því að allur þorri manna bindur
lífshætti sína við vissar klukku-
stundir og ákvæði um starfs-
, tíma manna eru almennt bund-
in við sömu ákveðnu klukku-
stundirnar allt árið, þá þykir
auðveldast að færa starfstím-
NÝJA BÍÓ
Kraftavcrka-
“~“GAMLA BÍÓ-
Konungurlnn
fyrirskfpaði.
maðurinn.
Söguleg dönsk kvikmynd
tekin af „Dansk Kultur-
film“, er lýsir tildrögum til
þess er dönsku bændurnir
voru leystir úr átthaga-
fjötrunum 20. júní 1788.
Aðalhlutv. leika:
HENRIK MALBERG,
CLARA PONTOPPIDAN,
EDITH PIO o. fl.
(The man who could work
miracles).
Afburða sérkennileg og
athyglisverð kvikmynd frá
United Artists. Eftir sam-
nefndri sögu enska stór-
skáldsins H. G. Wells.
Aðalhlutv., kraftaverka-
manninn, leikur
ROLAND SONNY.
Aukamynd
Mickey á hálum ís.
Litskreytt Mickey Mouse
teiknimynd.
Norræna félagið
-Á-rstL átí ð
að Hótcl Borg laugardaginn 1. april kl. 7.30.
Borðhald, söngur og ýms önnur skcmmtiatriði
— DANS —
Meðlimum: Norræna félagsins, Det danske Selskab, Nor-
mandslaget, félagsins ,,Svíþjóð“ og Sænska klúbbsins, ásamt
gestum þeira, er heimill aðgangur.
Aðgöngumiðar hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar og í
Gleraugnabúðinni á Laugaveg 2.
NÝ LJÓÐABÓK:
Híxí ±i-vít\a slcip
eftir Guðmnnd Böðvarsson
er nýkomin á bókamarkaðinn
Höfundurinn varð þjóðkunnur með fyrstu Ijóðabók sinni, Kyssti mig sól.
Henni var mjög vel tekið af öllum ritdómurum, og hefir hún hlotið almennar
vinsældir. Nýja dagbl. sagði m. a.: „Það þarf ekki að lesa margar línur í
bókinni til að sjá, að þetta er góð bók.... Höfundurinn er skáld, og kannske
meira skáld en þessi fyrsta bók hans vottar....“
Hin hvítu skip munu vafalaust auka vinsældir Guðmundar Böðvarssonar.
Bókin er vönduð að frágangi, kostar kr. 5.00 ób., kr. 7.00 innb., félagar í Máli
og menningu greiða kr. 4.25 og kr. 6.00.
Bókaverzlun Heimskringlu
Laugaveg 38. Sími 5055.
Saiimavclar,
Prjónavélar
„ F A F N I S «
Barnavagnar,
Barnakerrur,
Dúkkuvagnar,
Þríhjól.
Sent gegn póstkröfu.
Magnús Þorgeírsson
„Pfaff-húsið44,
Skólavörðustíg 1. Reykjavík.
LYKLAKIPPA tapaðist í gær,
sennilega á leiðinni frá íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar niður
á hafnarbakka. Á henni eru all-
margir smekkláslyklar og nokkr-
ir pípulyklar. Finnandi er vin-
samlega beðinn að gera aðvart í
síma 2353.
ann til með því að flýta klukk-
unni að sumrinu og halda
hnattstöðutíma að vetrinum
(sbr. summer time, daylight
saving time etc.).
Þessi lönd flýttu klukkunni
síðastliðið sumar: Bretland og
írland, Frakkland, Belgía, Hol-
land, Luxembourg, Finnland,
Spánn og Portugal, Grikkland,
Rúmenía, Bandaríkin og Can-
ada í Ameriku. Ennfremur
nokkur önnur fjarlæg lönd.
Ekki verður séð, að það þurfi
að valda neinum sérstökum
truflunum að því er snertir
rekstur pósts og síma, þótt
klukkunni sé flýtt á sumrin. Ef
til þess kæmi, væri sennilega
hentugt að klukkunni yrði flýtt
2. sunnudag í apríl og seinkað
aftur r. sunnudag í október, eins
og nú er gert í Bretlandi.
Þess skal getið, að íslenzkur
tími er 28 mín. á undan réttum
hnattstöðutíma í Reykjavík og
4 mín. á eftir hnattstöðutíma á
Seyðisfirði, en 1 stundu á eftir
Greenwichtíma og 2 stundum á
eftir Mið-Evróputíma. Þetta
þýðir, að þegar kl. er 12,00 á há-
degi (samkv. meðaltíma ís-
lands), er rétt klukka (þ. e.
hnattstöðuklukka) í Reykjavík
Hagkvæm
páskakaup
Allskonar vörur
til hreingerninga.
Fjölbreytt úrval
af bökunarvörum
Nýjung
Hveiti í 10 og 20
lbs. poknm, saum-
nðmn úr þurrku-
efni.
Vil kaupa
6—10 kýr.
Uppl. í sima 4257.
11,32 og á Seyðisfirði 12,04, í
Englandi 13,00 og í Mið-Evrópu
14,00.“