Tíminn - 01.04.1939, Side 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353. *
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 d.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h. f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
«r> ;
Rcykjjavík, laugardagiim 1. apríl 1939
39. blað
Viðræður um þjóðstjórn
halda enn áiram
Omögulegt reyndíst að ljúka þeim í
þessari viku
Hið mikla herskipalagi Englendinga í Gibraltar.
F
Furðulegar fregnír um Island
í erlendum blöðum
Umræður um myndun
þióðstjórnar halda enn á-
fram milli þriggja aðal-
flokka þingsins og mun
þeim sennilega ekki verða
lokið fyrir helgi.
Eins og skýrt hefir verið frá
hér í blaðinu, barst Framsókn-
arflokknum síðastliöið laugar-
dagskvöld 25. marz svar frá
Sjálfstæðisflokknum, þar sem
tilkynnt var, að hann hefði
samþykkt að ganga til sam-
starfs við Framsóknarflokkinn
og Alþýðuflokkinn, en setti þó
fram nokkur ný skilyrði fyrir
þátttöku sinni í því samsta'rfi.
Framsóknarflokkurinn snéri
sér svo eftir síðustu helgi bréf-
lega til Alþýðuflokksins og ósk-
aði eftir að fá svar um afstöðu
hans í þessu máli.
Mun málið, eftir móttöku
Ólafiur Thorlacíus
lætur afi starfii
Ólafur Thorlacius forstöðu-
maður lyfjadeildar Áfengis-
verzlunar ríkisins varð sjötugur
11. marz, og lætur nú af starfi.
Að þessu tilefni höfðu sam-
starfsmenn þau hjón, Ólaf og
Ragnhildi, i boði sinu i gær-
kvöldi, að Hótel Borg.
Fáir menn bera aldur sinn
betur en Ólafur Thorlacius,
enda er hann beinni í baki og
léttari í sþori en allur fjöldinn,
en þetta stendur jafnan í hlut-
falli við hið andlega fjör. Vekur
þetta til umhugsunar um, að
nokkur vandi sé á höndum þeirri
kynslóð, sem við tekur, og talið
er að þurfi friðunarlög fyrir
jafnöldrum Ólafs, „landnáms-
kynslóðinni nýju“, sem séð og
lifað hefir að kalla allar fram-
farir, sem orðið hafa í landinu,
kynslóð, sem aldrei sást fyrir,
hugsaði oftast um annað en
sjálfa sig og samdi sér engin
tryggingarlög, að láta þessi
nýju friðunarlög ekki koma allt
of harkalega niður fyrst í
stað.
Ólafur Thorlacius var áður
bóndi, læknir og héraðshöfð-
ingi. Um hann blésu þá hinir
hressandi vindar hins orku-
mikla, starfandi lífs. Va'r á Ólafi
Thorlacius að skilja í ræðu, sem
hann flutti i gærkvöldi, að það
væri ekki vonum fyrr að hann
hlyti sitt „útfararsamkvæmi“.
Hann hefði flutt úr sveitinni,
frá umsvifamiklum búskap,
læknisstörfum, ferðalögum og
fjölbreytni fásinnisins, þar sem
menn þyrftu að vera allt í senn:
kerra, plógur, hestur, læknir og
prestur. Þetta hefðu orðið um-
skipti meiri en hann hefði bú-
izt við, úr því hann flutti í höf-
(Framh. á 4. siðu)
þessa bréfs, hafa veriö allmikið
rætt í Alþýðuflokknum og at-
kvæðagreiðsla farið fram um
það í Alþýðusambandsstjórn-
inni, hvort taka skyldi þátt í
þjóðstjórnarmynduninni á þeim
grundvelli óbreyttum, sem lagð-
ur hafði verið í bréfaviðskiptum
flokkanna.
Bréflegt svar Alþýðuflokksins
barst svo Framsóknarflokkn-
um í gærmorgun. Kveðst Al-
þýðuflokkurinn þar munu taka
þátt í þjóðstjórn, en setur hins-
vegar fyrir þeirri þátttöku
nokkur ný skilyrði.
Enn sem komið er, eru hin
nýju skilyrði, bæði frá Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðu-
flokknum eigi útrædd milli
flokkanna. En stöðugar viðræð-
ur hafa farið fram síðan svar
Alþýðuflokksins kom. Og þeim
mun verða áf-ram haldið.
Þingmenn Framsóknarflokks-
ins héldu fund í gærkvöldi og
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
höfðu, eftir því sem Tíminn
hefi'r frétt, verið kallaðir á fund
fyrir hádegi í dag.
Merkir meon látnír
Indriði Einarsson rithöfundur
andaðist að heimili sinu hér í
bænum í gær, nær 88 ára að
aldri. Verður þessa merka
manns nánar getið í blaðinu
síðar.
Harald Gustafsson fyrv. for-
stjóri sænsk-íslenzka frysti-
húússins í Reykjavík, andaðist, í
Stokkhólmi í gær. Gustafsson
flutti héðan síðastliðið haust,
en þá varð hann að láta af
störfum sökum heilsubrests.
Hann hafði getið sér gott orð
hér og hafði forgöngu um ýmsar
merkilegar nýjungar, sem
reynzt hafa þarflegar fyrir ís-
lenzkt atvinnulíf.
Himi nýi garðyrkjuskóli að Reykjum
í Ölfusi tekur til starfa í dag, en form-
legri setningu er frestað, þar til
hinn fyrsta sumardag. Nemendur skól-
ans verða tuttugu, þar af þrjár stúlk-
ur. Eru þeir flestir komnir, en aðrir
væntanlegir á næstunni. í vor og
sumar mun fara fram verkleg kennsla
og er þegar hafin vinna í gróðurhúsum
og við undirbúning ræktunar úti. í
haust hefst bóklegt nám. Skólastjóri
er Unnsteinn Ólafsson og kennarar
Stefán Þorsteinsson og Sigurður Ingi
Sigurðsson, er kemur í haust.
t t r
Síðastliöið ár var kartöfluuppskera
hér á landi víðast neðan við meðallag,
og í sumum landshlutum brást liún
aö miklu leyti. í ár viröast menn
yfirleitt hafa fullan hug á því, að
vinna kartöfluræktina upp. Er eftir-
spurn eftir útsæðiskartöflum mjög
mikil og meiri en verið hefir að undan-
förnu. Grænmetisverzlun ríkisins hefir
fest kaup á rösklega 11 þúsund sekkj-
um af erlendum útsæðiskartöflum og
er það nær allt upppantað. Langmest
hefir eftirspurnin eftir útsæðinu verið
suðvestanlands, en einnig mikil annars
staðar á landinu, meðal annars á
Norðurlandi.
t r t
Mesta veðurblíða er nú um allt land
og hefir verið hina síðustu daga. Snjó-
laust er með öllu á Suðurlandi, og al-
staðar annars staðar á landinu er
snjólítið á láglendi, en samt nokkur
Seinustu vikurnar hafa ýms
erlend blöð birt allskonar kvik-
sögur um íhlutun útlendinga
hér á landi, einkum Þjóðverja.
Er greinin í Manchester Guar-
dian eitt frægasta dæmið í
þeim efnum. Ýmislegt framferði
kommúnista hér — eins og t. d.
fréttaskeytið til kommúnista-
blaðsins danska — virðist stað-
festa þann grun, að mest af
þessum kviksögum, sem vafa-
laust munu verða okkur til al-
varlegra óþæginda, séu runnar
undan 'rifjum þeirra.
Hversu fréttir þessar ýkjast
og aflagast eftir því, sem þær
breiðast meira út, má marka á
grein, sem birtist 22. f. m. í
franska blaðinu „Vu“, en það
hefir allmilcla útbreiðslu. —
Greinin lieitir : Hakakrossinn í
Norður-íshafinu. Meðan hr.
Hitler hreiðrar um sig' í Prag,
hefir Göring yngri áhuga fyrir
íslandi.
snjóalög í sumum fjallabyggðum og
snjóþyngslasveitum norðanlands. í
gærmorgun var hiti 2—7 stig um allt
land og víðast 6—7 stig. í morgun var
hiti 2—6 stig. í uppsveitum suðvestan-
lands, t. d. á fremstu bæjum í Borgar-
fjarðardölum og sumstaðar í efstu
byggðum Árnessýslu og víðar á kjarn-
góðum beitarjörðum, hefir sauðfé verið
sleppt.
r r t
í sjávarþorpunum við Eyjafjörð eru
rnenn að hefja fiskiróðra, bæði á þilju-
bátum og hreyfilbátum. Búizt er við
að fiskur sé á miðunum. Hreyfilbátar,
sem róið hafa frá Akureyri að undan-
íörnu, hafa yfirleitt aflað dável. —
Hrognkelsaveiði er hafin fyrir nokki'u
og er sæmilega ör. Góðviðri er nú þar
nyrðra.
r r r
í Vestmannaeyjum hefir afli verið
ákaflega tregur að undanförnu. í
fyrradag voru um fimmtán bátar á
sjó og fengu lítinn afla, að þremur
undanskildum, er fiskuðu 1100—1300 af
vænum þorski hver. Voru þeir allir
með net sín vestur af svonefndum
Dröngum. í gær voru allir bátar á
sjó. — Á Akranesi eru aflabrögð enn
léleg, en hafa þó heldur glæðzt hina
síðustu daga. Aðeins tveir bátar hafa
net og öfluðu þeir vel í fyrradag.
r r r
Svo sem kunnugt er, var það fyrir-
hugað, að Karlakór Reykjavíkur færi
á þessu ári söngför til Ameríku, og
Greinin sjálf er svohljóðandi:
„Það eru nokkrir mánuðir síð-
an vísindaleiðangur undir stjórn
manns að nafni Wegener, kom
til íslands. Leiðangursmennirn-
ir voru tólf. Allir voru leiðang-
ursmenn vel holdugir, höfðu
snoðklippt höfuð og hið sér-
kennandi þýzka yfirbragð.
Wegener tjáði öllum að eini
tilgangur ferðarinnar værf að
sanna þá vísindalegu skoðun,
að Ameríka og Evrópa hefði áö-
ur fyr verið samfastar, en land-
ið milli þeirra sigið í sjó og væri
ísland eitt af seinustu leifum
þess.
Nú hafa íbúar Reykjavíkur
byrjað að gefa til kynna nokk-
urn kvíða: Wegener og föru-
nautum hans — doktorunum —
dettur ekki í hug að yfirgefa
eyjuna, heldur hafa þeir farið
að vinna að staðarrannsókn-
um með myndatökum og dýpt-
armælingum, sem ekkert eiga
hafði kórinn náð samkomulagi við
amerískt íélag um vesturförina. Því
samkomulagi var rift, eins og frá hefir
verið skýrt í blöðum og hófu umboðs-
menn hins ameríska félags í þess stað
samningaumleitanir við karlakórinn
Fóstbræður um söngför til Vestur-
heims. Nú er málum svo komið, að með
öllu er útilokað, að úr slíkri söngför
verði af hálfu neins kórs á þessu ári,
og mjög ósennilegt að til þess komi
heldur á næsta ári.
/ r r
Sjómannadagsráðið hefir ákveðið að
efna til samkeppni meðal íslenzkra
ljóðskálda og tónskálda um sérstök
sjómannaljóð og göngulag við þau.
Verður fyrst látin fara fram sarn-
keppni um ljóðin og verðlaun veitt
fyrir tvö beztu kvæðin, sem ort verða
og verðlaunahæf þykja. Verða verð-
launin 150 krónur og 50 krónur. Dóm-
nefndina, sem fær kvæðin til umsagn-
ar, skipa Guðmundur Finnbogason
landsbókavörður, Sigurður Nordal pró-
fessor og Geir Sigurðsson skipstjóri.
Skáld, sem sinna þessu, eiga að senda
kvæði sín til sjómannadagsráðsins 1
Ingólfshvoli, Reykjavík, fyrir 20. apríl
og á að fylgja kvæðinu nafn höfund-
arins í sérstöku umslagi, er sé merkt
á sama hátt og umslagið, sem kvæðið
er í. Kvæðin eiga að vera minnst þrjú
erindi og sé hvert eigi styttra en sex
ljóðlínur og sé bragarhátturinn vel til
þess fallinn að semja við það göngu-
lag. Síðar veröur leitað til tónskáld-
anna um lag við kvæðið, er bezt þykir.
skylt við hina fornsögulegu til-
gátu þeirra, en auk þess hefir
þýzkt skip, „Meteor“, sem fæst
við hafrannsóknir, varpað akk-
erum í hinum stóra Faxaflóa
framan við höfuðborgina, og
virðist eiga að liggja þar til
frambúðar. Daglega koma dát-
arnir og hásetarnir, raða sér
upp og ganga á hermannavísu
um götur Reykjavíkur meðan
þeir syngja Horst Wessel söng-
inn eða: „Deutchland uber
alles“ fyrir nefinu á fólkinu, sem
er undrandi og hneykslað, og
yfirvöldunum, sem ekki þora að
andæfa. —
En allt þetta er þó ekki nema
smáleikur. Hið alvarlegasta er
að þessir boðberar nazismans
gera sig ekki ánægða með taum-
lausa útbreiðslustarfsemi (sem
hefir snert Sjálfstæðisflokkinn
og íhaldsflokkinn, og oröið til
þess að stofnaður hefir verið
þjóðlegur nazistaflokkur) held-
ur hafa þeir einnig byrjað að.
smygla á land fyrir nokkrum
vikum vopnum, sem þeir deila
út meðal þeirra, sem eru vel-
viljaðir.
ísland, sem skildi við Dan-
mörku 1918 og er nú í því eina
sambandi við hana, að vera hluti
af danska konungsríkinu, virðist
i dag — þrem mánuðum eftir 20.
sjálfstæðisafmæli sitt — vera
umsetið fórnardýr þriðja ríkis-
ins. —
Enginn efast nú lengur um
að leiðangur Wegeners leitar
þar að lendingarstöðum fyrir
flugvélar og lægjum fyrir neð-
ansjávarskip. Bróðir Görings
marskálks hefir komið í heim-
sókn til eyjarinnar með mikilli
leynd og hefir átt leyndardóms-
full viðskipti við vissa íhalds-
leiðtoga. Loks er hin fjárhags-
lega yfirdrottnun hafin:
Þýzkaland hefir keypt mikinn
hluta saltfisksins (einu auðæfi
eyjarinnar) gegn vöruskiptum.
Vegna þess flæða nú hinar
þýzku vörur yfir eyjuna. —
Skýringin á öllu þessu hátta-
(Framh. á 4. síðu)
Stjórn Francos
viðurkennd
Ríkisstjórnin gaf út svo-
hljóðandi tilkynningu í gær:
Að fengnum konungsúrskurði
hefir stjórn Francos hershöfð-
ingja í Burgos í dag verið til-
kynnt, að stjórn hans væri af
íslands hálfu viðurkennd sem
lögleg stjórn Spánar.
Samskonar tilkynning mun
stjórninni í Burgos einnig hafa
borizt frá stjórnum hinna
Norðurlandaríkjanna samkv.
áður gerðu samkomulagi þeirra
um að ákvörðun um viðurkenn-
ingu skyldi tilkynnt Franco-
stjórninni samtímis af hálfu
allra Norðurlandaríkjanna.
A víðavangi
Óþarfi er fyrir Mbl. að vera
með dylgjur um það, að Fram-
sóknarmenn hafi sýnt kommún-
istum einhverja sérstaka „lin-
kind“ á undanförnum árum af
ótta við að „missa kjósendur í
kjördæmunum“. Blaðið ætti
heldur að segja frá því, þegar
Árni frá Múla var að smjaðra
fyrir konnnúnistum á Jökuldal
í síðustu kosningum.
* * *
Vísir gefur í gær ýmsar nýjar
upplýsingar viðkomandi starfs-
háttum í Sjálfstæðisflokknum.
Hann skýrir frá því, að at-
kvæðagreiðslur þær, er farið
hafa fram um þjóðstjórnar-
myndun í þingflokki og flokks-
ráði Sjálfstæðismanna, þar sem
meirihluti (á báðum stöðum)
var fylgjandi þjóðstjórn, beri
ekki að skoða sem samþykkt, er
gildi hafi fyrir flokkinn í heild.
Segir hann að þingmenn flokks-
ins hafi, þrátt fyrir slíkar at-
kvæðagreiðslur algerlega ó-
bundnar hendur um afstöðu til
mála og sé ekki ætlazt til, að
þeir taki tillit til meirahlutans.
* * *
Samkvæmt þessum upplýsing-
um Vísis eru atkvæðagreiðslur í
þingflokki Sjálfstæðismanna og
flokksráði ekkert annað en yfir-
lýsingar frá einstökum þing-
mönnum um, hvaða afstöðu þei'r
ætli sér að taka. Þær hafa ekki
nægilegt gildi sem samþykkt og
má ekki taka mark á þeim sem
slíkum. í raun og veru þýðir þá
heldur ekkert að snúa sér til
flokksins í heild til að fá að vita
afstöðu hans. Rétta leiðin er að
snúa sér til hinna einstöku þing-
manna flokksins.
* * *
Skætingi þe^im, sem Vísir er
með um Framsóknarflokkinn í
þessu sambandi, er fljótsvarað.
Það er alveg rangt* að þingmenn
Framsóknarflokksins séu skyldir
til að greiða atkvæði í þingi
samkvæmt samþykkt miðstjórn-
ar-, ef fyrir liggur. Reglan er sú,
samkvæmt lögum flokksins, að
ef meirihluti miðstjórnar og
meirihluti þingmanna samþykk-
ir að mál skuli gert að flokks-
máli, ber öllum þingmönnum
flokksins að fara eftir þeirri
samþykkt, ef þeir kjósa að vera
áfram í flokknum. Þetta ákvæði
hefir margsinnis verið birt op-
inberlega og ritstjóra Vísis því
vorkunnarlaust að fara rétt
með.
* * *
Það kemur sannarlega úr
hörðustu átt og er broslegt í
meira lagi, þegar „Þjóðviljinn"
í dag tekur það upp eftir liði
Jóns í Stóradal að býsnast yfir
„handjárnunum“ i Framsókn-
arflokknum!! Er Einar Olgeirs-
son kannske búinn að gleyma
því, þegar við lá, að hann yrði
rekinn úr kommúnistaflokknum
fyrir „hægri villu“ og Hallgrím-
ur Spánarfari, sem seinna
reyndist haldinn af „vinstri
villu“ var látinn lesa yfir honum
áminningarræðu í útvarpinu
rétt fyrir kjördag? Eða þegar
ísleifur Högnason var látinn
biðja fyrirgefningar á prenti og
Brynjólíi Bjarnasyni varð næst-
um fótaskortur á línunni —
hafði sýnt „sáttfýsi við tæki-
færisstefnuna“ eftir því sem
Verklýðsblaðið sáluga sagði? En
þessi æfintýri verður sjálfsagt
tækifæri til að rifja nánar upp,
þegar „línudansararnir“ fara að
sýna listir sínar í sambandi við
lausn þeirra stórmála, sem nú
liggja fyrir.
* * *
Kommúnistar hafa aldrei sýnt
betur kæruleysi sitt og andúð
gegn frelsi þjóðarinnar en und-
anfarnar vikur. Þeir hafa breytt
út erlendis fréttir, sem eru skað-
legar hlutleysi og sjálfstæði
landsins. Þeir hafa gert kröfur
til áð óþekktum útlendum fjár-
plógsmönnum væri afhent um-
boð frá þjóðinni til að leita eftir
lánsfé fyrir hennar hönd. Þeir
hafa heimtað að félagsskapur,
(Framh. á 4. síðu)
A. KROSSGÖTTJM
Garðyrkjuskólinn á Reykjum. — Útsæðiskaup. — Veðurfarið. — Fiskiróðrar
við Eyjafjörð. — Úr verstöðvunum. — Engin söngför til Vesturheims. — Verð-
launakeppni um sjómannasöng.