Tíminn - 29.04.1939, Síða 4
196
TÍMKViy, langardaglnn 29. apríl. 1939
49. Mað
MOLAR
Seinasta dag þingsíns urðu
talsverð átök milli þingmanna
Eyfirðinga og Árnesinga. Þing-
menn Eyfirðinga höfðu flutt tíl-
lögu um ríkisábyrgð handa raf-
veitu í Ólafsfirði, en þingmenn
Árnesinga vildu láta verða sam-
flota samskonar ábyrgðarheim-
ild handa þorpunum austan-
fjalls. Óttuðust hinir, dð það
myndi aðeins tefja málið og urðu
því nokkrar deilur. Eirikur Ein-
arsson, sem. er uppbótarþing-
tíll BÆIVUM
Framsóknarfélögin £ Reykjavíb
héldu sameiginlegan fund í Kaup-
þingssalnum í fyrrakvöld. Sóttu hann
rösklega hundraS manns. Vigfús Guð-
mundsson hafði framsögu um byggingu
samvinnuheimilis í höfuðstað landsins.
Urðu um það nokkrar umræður og
hlaut málið mjög góðar undirtektir og
kom fram ákveðinn vilji á því að
hrinda þessu í frámkvæmd. Að þessum
umræðum loknum hófust umræður um
þjóðmálaástandið í landinu og tóku
margir t'l máls. Að lokum var sam-
þykkt framkomin tillaga þess efnis, að
þakka Skúla Guðmundssyni mikið og
gott starf í þágu lands og lýðs, meðan
hann sat í ráðherrastóli.
Tilkynniné
iim liaim við fjárflutmngiim, vegna garna-
veikinnar (paratuberculosis).
1. Frá bæjum, sem garnaveikinnar hefir orðið vart
á, má hvorki flytja fé á aðra bæi, ná taka þangað fé
frá öðrum bæjum, grunuðum eða ósýktum. En leyfi-
legt er að flytja fé milli bæja, sem veikinnar hefir orðið
maður. úr .Árnessýslu, .studdi
þingmenn Árnesinga og minntist
þess m. a. i rœðu, að Eyjafjarð-
arsýsla hefði þrjá uppbótarþing-
menn og vœðu Eyfirðingar því
uppi í þinginu eins og síldar-
torfur. Um það var þetta kveðið:
Óttakennd um Eirlk fer,
ekki eru góðar horfur.
Eyfirðingar eru hér
eins og síldartorfur.
* * *
Albanskur málsháttur hljóðar
á þessa leið:
— Ef þú þarfnast góðs ráðs,
farðu þá ekki til vinar þíns,
farðu heldur til óvinar þíns og
gerðu gagnstœtt því, sem hann
ráðleggur þér. —
Það hefir oft verið sagt, að
Zogu konungur hafi fylgt þessu
ráði og þessvegna hafi hann
leitað frekar eftir vináttu við
Mussolini en aðra. Honum hefir
nú reynzt þessi aðferð nokkuð á
aðra leið, en málshátturinn gef-
ur til kynna.
* * *
Þýzki flugforinginn Dieterle,
hefir nýlega sett nýtt heimsmet
í hraðflugi. Flaug hann með
746,4 km. hraða á klukkustund.
Fyrra metið var 709,2 km., sett
af italska flugmanninum Age-
leo 1934.
Handavinnusýningar.
Á morgun verður í öllum barnaskól-
um bæjarins haldnar sýningar á
handavlnnu skólabarnanna, smíðum,
teikningum og vinnubókum. Verða
sýningarnar opnaðar klukkan tíu ár-
degis og verða opnar þar til klukkan tiu
að kvöldl.
Klukkunni flýtt.
í kvöld kl. 11 verður klukkan færð
fram um einn klukkutíma.
Endurvarp frá heimssýningunni.
íslenzka ríkisútvarpið mun gera til-
raun til þess að endurvarpa frá opnun
heimssýningarinnar í New York, ræðu
Roossevelts Bandaríkjaforseta og ræðu
formanns amerísku sýningarnefndar-
innar. Verður það kl. 6—7 annað kvöld
samkvæmt sumartíma.
Skemmtikvöld.
Nemendur Samvinnuskólans halda
skemmtikvöld í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu í kvöld. Hefst það klukkan
9. Sameiginleg kaffidrykkja, söngur og
dans, góð músík. Aðgöngumiðar fást
við innganginn meðan húsrúm leyfir og
kosta 2,50, kaffi innifalið.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, séra Friðrik
Hallgrímsson, ferming, kl. 2, séra
Bjarni Jónsson, ferming. — í fríkirkj-
unni kl. 12 séra Árni Sigurðsson ferm-
ing. — í Laugarnesskóla verður engin
siðdegismessa og engin barnaguðsþjón-
usta vegna handavinnusýningar skól-
ans. — í Hafnarfjarðarkirkju kl 5 séra
Garðar Þorsteinsson — í Bessastaða-
kirkju kl. 2, séra Garðar Þorsteinsson.
— í Keflavíkurkirkju kl. 2, séra Eiríkur
Brynjólfsson, kl. 5, bamaguðsþjónusta.
vart á, ef þeir hafa samliggjandi lönd. Ef fé frá ó-
sýktum bæ eða grunuðum, hefir verið á fóðri þar
sem veikin er, má ekki skila því heim, heldur skal það
litarmerkt á sama hátt og það fé, er það var fóðrað
með, og vera í umsjá búenda þar, unz öðruvísi verð-
ur ákveðið.
2. Milli bæja, sem grunur er að veikin geti verið á, má
ekki flytja fé, nema leyfi framkvæmdastjóra komi til.
Ekki má flytja milli grunaðra bæja og ósýktra.
3. Þegar fé er rekið til afréttar eða frá, eða til slátrunar,
ber að gæta þess vandlega, að fé af sýktum bæjum
eða grunuðum komi ekki í hús eða þröng girðingar-
hólf, sem ósýkt fé gengur um.
Hreppstjórar skulu sjá um það, hver í sínum hreppi,
að fyrirmælum þessum sé framfylgt.
Framkvæmdastjóri ákveður hvaða bæir skuli telj-
ast sýktir og hverjir grunaðir.
Reykjavík, 28. apríl 1939.
Halldor Pál^on
(í umboði landbúnaðarráðherra).
Sameignarsjóðir og
innstæda K. E. A.
(Framh. af 1. síðu)
greiða félagsmönnum af tekju-
afgangi félagsins 8% arð af
kaupum þeirra af ágóðaskyldum
vörum, brauðvörum og lyfjavör-
um. Sömuleiðis var ákveðið að
úthluta til félagsmanna arði af
kola- og saltkaupum og greiða
verðuppbætur á ull. Endanlegt
verð á kjöti var stjórninni falið
að ákveða, þegar allir reikning-
ar lægju fyrir. Á síðastliðnu ári
greiddi félagið til félagsmanna
203 þús. kr. í arð og verðupp-
bætur.
Leiðrétting.
í viðtalinu um íslandskvik-
mynd S. í. S., sem birtist í síð-
asta tbl. Tímans, hafði að
nokkru leyti víxlast meining í
svarinu við spurningunni um
það, hvort myndin væri tekin
á breiðfilmu. Svargreinin átti að
Gestir í bænum.
Níels Ingvarsson útgerðarstjóri. í
Neskaupstað í Norðfirði, Eiríkur Ein-
arsson bóndi í Hlíðarhúsum í Fljóts-
dalshéraði, Helgi Sæmundsson í Vest-
mannaeyjum, Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri á Húsavík, Sigfús Þor-
leifsson útgerðarmaður í Dalvík við
Eyjafjörð, Kristján Finnbogason í
Hítardal.
hljóða á þessa leið:
— Nei, hún er tekin á mjó-
filmu. Það fer nú mjög í vöxt
af því að það þykir oft bæði
hentugra og ódýrara. Slíkar
myndir má sýna hvar sem er, án
eldshættu, en það er ekki hægt,
ef um breiðfilmu er að ræða.
Mjófilman hefir því þann kost
að auki fram yfir, að hana má
sýna hvar sem er, jafnt í al-
mennum fundarsölum sem í
kvikmyndahúsum, en breiðfilm-
una aðeins í leikhúsunum. Mjó-
filmunni má breyta í breið-
filmu ef vill, þótt að vísu sé enn
auðveldara að breyta breiðri
filmu í mjóa.“ —
Inntökupróf í Samvínnuskólann
byrjar þriðjudagiim 2. maí kl. 9. f. h.
Fermíngargjafír
1
fallcgu úrvalí.
[ístverzlunín
W$MSS& Kirkjuhvolí.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. siðu)
verið eftir. Ef nothæft lánstil-
boð fæst nú, (sem ekkert skal
fullyrt um), er það eigi sízt að
þakka þeirri mikilsverðu aðstoð
sem fyrverandi ríkisstjórn hefir
lagt fram nú í vetur í þessu máli.
Og þó að ekki hafi verið lögð
síðasta hönd á tilboðið fyr en
nokkrum dögum eftir, að þjóð-
stjórnin var tekin til starfa, er
vitanlega ekkert orsakasamband
þar á milli, þótt Vísir ætli ein-
földum sálum að trúa því, að
svo sé.
10 William McLeod Raine:
Hún fór á bak aftur og hvarf út I drlf-
una.
Löng stund leið áður en hún kom aftur,
og þá með reiðskjóta hans í taumi. Kuld-
inn hafði aukizt að mun á meðan hún
var burtu.
— Ég hélt, að ég ætlaði aldrei að finna
hestinn þinn, sagði hún afsakándi, um
leið og hún teymdi hestinn til hans, svo
að hann gæti farið á bak.
— Ertu viss um að þú getir setið á
hestinum? spurði hún.
— Já, frú min! Ég lærði það, þegar
ég var svolítill angi.
Hún sneri þegar burt, en hann greip í
taumana á hesti hennar.
— Þú ætlar þó ekki að yflrgefa mig
án þess að ég fái að þakka þér vinarhót-
ín, eða hvað? Fyrst er það nú kúlan, sem
þú sendir mér, síðan listirnar með hnífn-
um og loks gælurnar með hnefanum.
Finnst þér ekki, að þú ættir að segja
mér nafn þessa góða Samverja míns,
svo að ég geti minnzt hans í bænum
mínum?
— Slepptu taumunum, skipaði hún..
— Farðu ekki svona, að skilja bæði
riffilinn og hnífinn eftir, þú gætir þurft
á þeim að halda aftur.
Stúlkan rykkti í taumana til þess að
losna og Gypsy prjónaði. Hreyfingin var
Flóttamaðurinn frá Texas 11
svo snögg, að maðurinn missti takið á
taumunum.
Stúlkan hvarf út í bylinn, en varð þess
þó brátt vör að hann kom á eftir. Hest-
ur hans kom nær og nær unz þau voru
samsíða.
Hríðin var nú orðin svo þétt, að vind-
hvinarins gætti ekki jafnmikið og áður,
og ekki sá nema armlengd frá sér.
— Hann virðist ætla að verða napur í
nótt, kallaði karlmaðurinn.
Nú datt henni allt í einu ráð í hug til
þess að losna við hann.
— Ég er Molly Prescott, sagði hún.
— Það er mér ánægja að kynnast þér,
svaraði hann í hæðnisróm. Eftir að mað-
ur hefir verið stunginn með hníf og orðið
fyrir byssukúlu frá stúlku, og hún þolað
svipuhýðingu af honum, eru þau, að mér
virðist, svo kunnug orðin, að þau verði
að vita hvort annars nöfn. Ég heiti Jeb
Taylor.
— Það er lygi, hvæsti hún. Ég held nú
heim og ef þú villt ekki lenda í höndum
fjölskyldu minnar, þá er þér eins gott
að hverfa á braut.
Hann hló háðslega.
— Alveg rétt, þetta er lygi, en ég get
bara ekki skilið hvernig þú fórst að því
að vita það. Hvað það snertir, að hitta
fjölskyldu þína, þá er ég áfjáður í það,
svo að ég geti óskað þeim til hamingju
Meytlð
hinna eggjahvítu-auðugu fiski-
rétta:
Fiskibuff,
Fiskibollur,
Fiskigratiu,
Fiskibúðingar,
Fiskisúpur.
Allt úr einum pakka af mann-
eldismjöli. Fæst í öllum mat-
vöruverzlunum.
Heildsölubirgðir hjá
Es, Nova
fer héðan á hádegi þriðjudag-
inn 2. maí, samkvæmt áætlun,
vestur og norður um land til
Bergen.
Flutningi veitt móttaka til kl.
3 í dag.
Farseðlar sækist sem fyrst.
P. Smith & Co.
NÝJA BÍÓ»°—'—'~~»
Amerísk
skyndifrægð
(Nothing Sacred)
Amerísk skemmtimynd frá
United Artists, þar sem ó-
spart er dregið dár að því
hvernig máttur auglýsing-
anna getur á svipstundu
gert menn að nokkurskon-
ar þjóðarhetjum í Ame-
ríku.
Aðalhlutv. leika:
CAROLE LOMBARD Og
FREDRIC MARCH.
Aukamynd
Mickey í sumarfríi
Mickey Mouse teiknimynd.
i.'v • :
Vinsældir K li O \
í > v
meðal manna úr öllum stjórnmálaflokkum, byggjast á því,
að félagið heldur fast við eftirfarandi grundvaliarregiur sínar:
1. Félagið er verzlunarsamtök neytenda í Reykjavík og ná-
grenni og samvinnufélag samkv. landslögum.
2. Tilgangur félagsins er að útvega félagsmönnum alls-
konar vörur, sem vandaðastar að gæðum á sem ódýrastan hátt.
3. Félagið verzlar aðeins gegn staðgreiðslu. Félagsmenn bera
ekki persónulega ábyrgð á skuldbindingum þess fram yfir það,
sem nemur stofnsjóðseign þeirra hvers um sig. Innganga í fé-
lagið er frjáls öllum, er gangast vilja undir lög þess. Félagið er
algerlega óháð um stjórnmál, trúmál og önnur mál, sem eru
hlutverki þess óviðkomandi.
4. Félagið starfar fullkomlega á lýðræðisgrundvelli og ráða
félagsmenn sjálfir öllum rekstri þess, þannig, að þeir kjósa full-
trúa á aðalfund, sem kjósa félagsstjórn og endurskoðendur, en
félagsstjórn ræður framkvæmdastjórn. Allir félagsmenn hafa
jafnan atkvæðisrétt um mál félagsins.
5. Til tryggingar félaginu og til þess að standa fjárhagslega
undir rekstri þess, eru sjóðir félagsins, stofnsjóður, varasjóður
og aðrir sjóðir, ef stofnaðir verða. Stofnsjóður er séreignarsj óður
íélagsmanna, ávaxtaður í vörzlu félagsins, en varasjóður er sam-
eignarsjóður allra félagsmanna.
FERMINGARGJAFIR:
Tösknr — llauzkar — Seðlaveski — Buddiur
o. fl. til gjafa.
HLJÓÐFÆRAHtSIÐ.
Barnaskólaruir
■ Reykjarík.
•»»
Viuiia skólabarna verðnr sýnd í öll-
um barnaskólum borgarlnnar sunnu-
daginn 30. apríl. Sýningin er opin frá
klukkan 10 árdegis til klukkan 10 að
kvöldi.
Skólastjórar barnaskólanna.
Lögtak.
Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur og að und-
angengnum úrskurði, verður lögtak látið fara fram, fyrir
ógreiddum fasteignagjöldum og lóðarleigu með gjalddaga
2. janúar sl., svo og dráttarvöxtum af þeim, að átta dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar.
Lögmaöurinn í Reykjavík, 28. apríl 1939.
Björn Þórðarson.
LEIKFÉLAG .
REYKJAVÍKUR
„Tengdapabbí4*
Sænskur gamanleikur í 4 þátt-
um eftir Gustaf Geijerstam.
Sýning á morgun kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
4—7 í dag og eftir kl. 1 á morg-
un. —
n: n n
i .11 VLj-rm
Skaítfellingur
hleffur til Öræfa og Skaftáróss
þriffjudaginn 2. maí n. k.
Tekur einnig flutning til Vík-
ur, ef rúm leyfir.
Útbreiðið TÍMAAA
“”°“"GAMLA bÍÓ~°~—‘”
Lofttundur-
skcyti 48
Afar spennandi og stór-
fengleg njósnarkvikmynd
tekin með aðstoð sérfræð-
inga frá tékkneska her-
málaráðuneytinu og hins
tékkneska lofthers.
Aðalhlutv. leika:
OTOMAV KORBELÁR,
ANDREJ BARAG Og
ZITA KABÁTOVA.