Tíminn - 10.06.1939, Qupperneq 4
264
TÍMIM, langardagiim 10. |úm 1939
66. blað
Sigurganga Franco inn í Madrid, höfuðborg Spánar, átti sér stað 19. maí.
Tvö hundruð Þús. hermanna gengu' fylktu liði fram lijá leiðtoganum, Franco,
við þetta tœkifœri. Opinber málgögn ítölsku stjórnarinnar hafa undanfarið
verið að birta frásagnir um hlutdeild ítala í Spánarstyrjöldinni, sem ekki
hafi verið hægt að greina frá jyrr „af pólitískri nauösyn dagsins".
ZMZOL.A.IR,
Sá orðrómur fœrist stöðugt í
aukana, að Mussolini hafi í
hyggju að láta Ciano tengdason
son sinn leggja niður utanríkis-
ráðherrastöðuna og láta Dino
Grandi koma í hans stað.
Dino Grandi er 44 ára, kominn
af fátœkumbœndacettum.Grandi
barðist í heimsstyrjöldinni og
hlaut heiðursmerki fyrir hraust-
lega framgöngu.Eftir styrjöldina
stundaði hann blaðamennsku og
varð brátt einn af leiðtogum fas-
ista. Hann var þó frjálslyndari
en margir flokksbrœður hans og
er það frœgt orðið, að hann varð
eitt sinn að heyja einvígi við aft-
urhaldssaman flokksbróður sinn
fyrir að hafa skrifað of hlýlega
um andstœðingana i blað sitt.
Frá 1924—29 var hann aðstoðar-
ráðherra í innanríkisráðuneytinu
og 1929—32 utanríkisráðherra.
Árið 1932 varð hann sendiherra
ítala í London og hefir verið það
síðan. Hann á sœti í stórráði fa-
sista.
Grandi er tvímœlalaust einn
duglegasti og mikilhœfasti sam-
starfsmaður Mussolini. Það er
fyrst og fremst verk hans, að
Bretar hafa ekki tekið harðara
á mótgerðum ítala á undanförn-
um árum en raun er á, enda er
hann talinn frábœr samninga-
maður. Hann er glœsimenni mik-
ið og skemmtilegur í viðkynn-
ingu og á orðið fjölda vina meðal
yfirstéttarinnar í London. Hann
og Balbo eru taldir líklegastir til
að taka við af Mussolini og mœlt
er að Mussolini hafi sent þá báða
burtu, Balbo til Libyu og Grandi
til London, af ótta við vinsceldir
þeirra. Talið er að Grandi sé einn
af þeim fáu mönnum, sem þorir
að mótmœla Mussolini og segja
honum meiningu sína.
Verði Grandi aftur utanrilcis-
ráðherra, er það sökum þess, að
Mussolini treystir honum betur
en Ciano, enda er Grandi al-
mennt talinn langtum slyngari
samningamaður. Auk þess er
Grandi liklegri til þess að geta
samið við Breta, sem Mussolini
vill ekki slíta við öllu samneyti
fyrr en í seinustu lög.
4ðalfiincliir
Kaupfél. Héraðsbúa.
(Framh. af 1. siðu)
unarhúsinu. Þar hefir og líka
verið komið fyrir gistihúsi fyrir
félagsmenn og aðra ferðamenn.
Félagið keypti við síðustu ára-
mót svonefnda „Johansens-
eign“, sem eru nokkur hús utar
á Búðareyrarkauptúni, íbúðir,
sölubúð, vöruskemmur og haf-
skipabryggj a, ásamt stórri lóð.
Þessi húsakaup eru nauðsynleg
vegna skipaafgreiðslna, fiski-
töku, saltupplags og annarrar
starfsemi, sem sífellt er að auk-
ast, þar sem félagið er nú i ör-
um vexti.
Félagið var 30 ára 19. apríl s.
1. Það var stofnað 1909, þegar
séð var fyrir um örlög Pöntun-
arfélags Fljótsdalshéraðs, sem
þá hafði aðsetur á Seyðisfirði.
En það var stofnað 1886.
tJR BÆMJM
Leiðrétting.
Tvær leiðinlegar prentvillur höfðu
slæðzt inn í grein Magnúsar Stefáns-
sonar, „Íslandsglíman og íslenzk glíma“,
hér í blaðinu sl. fimmtudag. í þriðja
dálki greinarinnar, 5. línu að neðan,
stendur keyrisveiflu, en á að vera
langri sveiflu. í fjórða dálki stendur:
„Náttúrlega eru margir glímumenn
þannig skapi farnir, að þeir vilja ekki
byggja á heiðarleikanum, þó þeir ætti
auövitað að sigra á heiðarlegan hátt",
o. s. frv. Þetta á að vera svo: Náttúr-
lega eru margir glímumenn þannig
skapi farnir, að þeir vilja ekki liggja
á heiðarleikanum, þó þeir œtli auðvitað
að sigra, o. s. frv.
Barnaheimilið Vorboðinn
leitar á morgun til bæjarbúa um fjár-
söfnun til starfsemi sinnar. Verða
haldnar samkomur, hlutavelta, merkja-
sala o. fl. Nú eru liðin nokkur ár síðan
að starfsemi barnaheimilisins var hafin
fyrir atbeina nokkurra kvenna hér í
bæ. Hefir það verið starfrækt í heima-
vistarskólanum að Brautarholti á
Skeiðum. Gangi fjársöfnunin vel, er í
ráði að hafa sumarheimilin tvö í sumar
Áheit
á Laugarneskirkju, afhent Garðari
Svavarssyni: kr. 20.00 frá G. M. við
Laugarnesveg og kr. 5.00 frá ónefndum.
GÚMMÍLÍMIÐ „GRETTIR"
reynist bezt.
Sá, sem einu sinni hefir not-
að það, biður aldrei um annað.
Gúmmílímgerðin Grettir,
Laugaveg 76.-----Sími 3176.
Fréttabréf til Tímans.
Tímanum er mjög kærkomið
að menn úti á landi skrifi blað-
inu fréttabréf öðru hvoru, þar
sem skilmerkilega er sagt frá
ýmsum nýmælum, framförum
og umbótum, einkum því er
varðar atvinnulífið. Allar upp-
lýsingar þurfa að vera sem
fyllstar og gleggstar, svo að ó-
kunnugir geti fyllilega áttað sig
á atburðum, fyrirtækjum og
staðháttum, sem lýst er.
Mörgum mun ef til vill finn-
ast fátt til frásagnar úr fá-
mennum og strjálum byggðum.
En þó mun mála sannast, að í
hverju byggðarlagi gerist nokk-
uð það, sem tíðindum sæti, sé
vel að gætt.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
er því þakkarvert hvað á hef-
ir unnizt í þessu efni á hinum
síðustu og viðsjárverðu tímum.
Er það ekki vonum fyrr, að
framtakssamur ungur maður
hefir nú kynnt sér selveiðar
Norðmanna á veiðislóðum, þar
sem við eigum miklu hægari að-
stöðu en Norðmenn, og er þess
að vænta, að héðan af líði ekki
allt of langur tími þar til við
verðum liðgengir þátttakendur
við þessar álitlegu veiðar.
Stjórn félagsins skipa: Björn
Hallsson, Rangá, Páll Her-
mannsson, Eiðum, Þórhallur
Jónasson, Breiðavaði. — Endur-
skoðunarmenn eru: Guttorm-
ur Pálsson, Hallormsstað og Er-
lingur Sveinsson, Víðivöllum.
Lin timblásur.
(Framh. af 2. siðu)
einu gersamlega breytt um
stefnu. Annar greinarhöfundur-
inn játar beinlínis úrræðaleysi
fyrverandi forgöngumanna með
því, að eldur Bakkusar hafi
magnast þegar á leið kvöldið, af
því að löggæzlumenn úr Rvík
hafi orðið að hverfa burtu fyr
en skyldi vegna skipaferða. Höf.
sýnir, að honum dettur ekki í
hug að mörg hundruð ungra
karlmanna, sem raunverulega
stóðu að mótinu, gætu gert
minnsta átak til að verja heiður
sinn og samkomunnar. Mótin
virðast hafa verið á svipuðu stigi
og sum fornaldarríkin, sem
vörðu land með aðfengnum
leiguhermönnum.
VII.
Ég býst við, að þeirri kynslóð,
sem stofnuðu ungmennafélögin
og gerðu þau að því sem þau
hafa orðið mest, hafi ekki með
öllu verið sársaukalaust, að sjá
þá breytingu, sem aldarandinn
hefir gert á þeim að sumu leyti.
Sú kynslóð, sem nú ræður yfir
því, sem eftir er af hinum forna
her, getur ekki undrast, þó að
þau dæmi sem hér hafa verið
rakin, hafi orðið hinni eldri
kynslóð óhugðnæm. Félögin voru
stofnuð, sem harðfeng bindind-
isfélög og studdu hiklaust vín-
bannið meðan unnt var. Og eft-
ir nokkur ár, sjá svo þessir
gömlu félagsmenn ekki vínbind-
indið afnumið, heldur- íþrótta
mót þessara félaga vera orðin
margfallt meiri drykkjustaði
heldur en hrossamarkaðir eru í
næstu löndum.
Ég hefi um nokkur ár verið
starfsmaður ungmennafélag-
anna. Gagnvart þeirri samtíð
var ég eins og gerist um fólk í
félagsskap, ýmist þiggjandi eða
veitandi. Sagan um manndóm
þessara félaga á árunum fyrir
heimsstyrjöldina, og í sumum
landshlutum fram á þennan
dag, er mjög glæsileg, þó að þess
sjáist lítil merki í bók Geirs
Jónassonar. En þó að ég sé gam-
all ungmennafélagi álít ég mig
alls ekki skyldan til að vera
blindan fylgismann undan-
haldsins. Það er rétt skilið hjá
öðrum af andmælendum mín-
um, að ég er ekkert sérstaklega
hrifinn af þeim ágöllum, sem
ég hefi gert hér að umtalsefni.
Ég leita mér samstarfsmanna og
bandamanna í leit eftir meiri
manndómi í uppeldi æskunnar
til manna eins og Bjarna á
Laugarvatni og Runólfs á
Hvanneyri, fremur en til hinna
seinheppilegu forstöðu drykkju-
sýningarinnar við Þjórsárbrú. Ég
játa, að Bjarna á Laugarvatni
er nokkur vorkunn, þótt hann
ekki hafi sótt fyrirmyndir um
skólastjórn á þessar samkomur.
Honum hefir tekizt það þrek-
virki, sem mjög er í anda hinna
gömlu ungmennafélaga, að
gera vín, tóbak og kaffi að miklu
leyti útlægt úr stærsta skóla-
heimili landsins.
VIII.
Ég álít að ádeilugreinar þeirra
tveggja forráðamanna í ung-
mennafélögum hafi að vísu ver-
ið ritaöar af litlum sögulegum
skilningi, en þó munu þær vafa-
laust verða að nokkru gagni. Á
sama.hátt og pólska æfintýrið á
hafnarbakkanum vekur Reykja-
vík til meðvitundar um hættu
sína í sambandi við útlend skip,
þá þykist ég þess fullviss, að
umræður um svo undarlegt fyr-
irbrigði eins og almenna of-
drykkju á íþróttamótum æsku-
manna muni vekja marga mæta
menn í byggðum landsins, þar
sem enn eru allmörg ungmenna-
félög, til athugunar á því, að ef
til vill væri bezt að byrja á nýj-
um kapitula. Taka aftur upp
bindindi og harðar kröfur um
drengilega framkomu. Ef til
vill myndi þá sumum þessara
manna detta í hug, að þeir ættu
einhverja skuld að gjalda til
sinna fyrirrennara, sem skildu
þeim eftir nokkurn arf í sterkum
og heilbrigðum venjum, og nafn
í miklu áliti. Alveg sérstaklega
mætti sú kynslóð, sem varð fyr-
ir þeim vafasama gróða, að
mótast á bylgjutímabili styrj-
aldar og kreppu, finna fremur
til þakklátssemi en gremju við
þá menn, sem ekki hafa flúið
af hólmi, heldur nota haust æf-
innar til að fylkja að nýju liði
móti þeim hættum, sem þung-
bærastar eru æsku landsins,
bæði körlum og konum.
J. J.
Ath. Umræðum um þetta mál
er lokið hér í blaðinu.
Ritstjórinn.
Sígurður Olason &
Egíll Sígurgeirsson
Málflutmngsskrífstofa
Austurstrætí 3. — Sími 1712
““'"“GAMLA <h»o—«
Fornmenja-
prófessorlmi. I
Sprenghiægileg og framúr- |
skarandi spennandi ame- j
rísk gamanmynd, frá Para- !
mount-Harold Lloyd Pro- f
duction. — Aðalhlutverkið i
leikur hinn ódauðlegi j
skopleikari
HAROLD LLOYD,
er síðastl. 20 ár hefir verið j
vinsælasti gamanleikari
heimsins, og er þetta 500.
hlutverkið hans og um leið f
það langskemmtilegasta! j
NÝJA BÍÓ*0—0
GOLDWIN
FOLLIES
íburðarmikil og dásamlega
skrautleg amerísk „revy“-
kvikmynd, þar sem fræg-
ustu listamenn Ameríku
sýna listir sínar.
Myndin er öll tekin í eðli-
legum litum.
78 William McLeoá Raine:
þess að ríða yfir ána með mér, ef hún
væri í vexti. Ég get ekki trúað því, að
hann dansi eftir Oaklands pípu eða
nokkurs annars manns yfirleitt. Hann
hefir öll einkenni stjórnandans.
— Þú ferð í kring um kjarna málsins,
Steve. Hann keypti klárinn, fékk hann að
láni eða stal honum. Þú villt halda því
fram, að hann hafi ekkert af þessu gert.
Setjum svo, en hvernig komst hann þá
yfir hann?
— Það er nú einmitt það, sem ég ætla
að komast að, en það tekur sinn tíma.
9. KAFLI
Taylor hitti Molly í anddyrinu.
Hún horfði yfir dalinn, til snjóþak-
inna hæðanna hinum megin. Landið var
alþakið fönn, svo hvergi sá í dökkan
díl, nema í Svörtuklettum.
— Við eigum þá að hafa þetta litla
leyndarmál okkar svona tvö ein, út af
fyrir okkur, sagði hann og var háðskur
að vanda.
Hún snéri að honum og leit á hann.
— Heldur þú að ég vilji láta taka
föður minn fastan fyrir morð?
Hann lyfti brúnunum til merkis um
að hann efaðist.
— Heldur þú að svo illa færi, ef við
legðum spilin á borðið? Skot úr laun-
sátri, hnífstunga, nokkur hnefahögg og
Flóttamaðurinn frá Texas 79
spörk myndu vega nokkuð á móti svipu-
hirtingunni, eða heldur þú það ekki?
— Ég ætla ekki að hætta á það, sagði
hún og augu hennar skutu eldingum.
— Komstu hingað til að gera mér
erfiðara að halda því leyndu hversu illa
mér er við þig? Skilur þú ekki að ég tala
aðeins við þig af því, að þú ert gestur
okkar? Þegar þú ert ekki lengur gestur
okkar, ferð þú þína leið og ég mína.
Hann var ekki jafn öruggur og
hann hafði verið í Sjömílnakofanum.
Nú var hún klædd fötum, sem voru
keypt fyrir fáum mánuðum í San Frans-
isko. Hún var í dýrum svörtum flauels-
kjól, skreyttum steinum og hann fór
henni svo vel, að vel hefði mátt ímynda
sér að hún hefði verið steypt í hann.
Angan góðra ilmvatna lagði að vitum
hans. Fötin höfðu breytt henni. Hún var
ekki lengur stráksleg, þegar hún var
laus við samfestinginn og stígvélin. Hún
teigði fram hökuna reiðilega, augun
voru heit og ögrandi og líkamsvöxturinn
fagur. Þetta rændi allt nokkru af sjálfs-
öryggi hans, honum virtist hún eitthvað
svo fjarlæg og sterk í sinni háleitu fyr-
irlitningu. Það ruglaði hann, er honum
varð hugsað til þess, að hann hefði bol-
að henni niður með hnjám og hnúum
og förin eftir svipuólina myndu ennþá
sjást á limum hennar.
Kanptilboð
óskast í oftirtaldar eignir dánarbiis Helga
Jónssonar frá Kotvogi:
1. Jörðina Kotvojí í Hafnabrcppi, ásainl pen-
ingshiisum og fiskiliiisuni.
2. J/2 húsið IVjarðargata 33 í Reykjavík.
3. Opna vélbátinn ,,Sjöíii“ G. K. 133, ásamt
veiðarfærnm. — Bátnum getur enn-
freinur fylgt 1/7. hluti fiskgeymsluliiiss-
ins „Hraunprýði“, svo og réttindi í lifrar-
bræðslufélagi Hafnamanna.
Skiftaráðandinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
2. júní 1939.
Bergur Jóttsson
Gístihúsið á Laugarvatni
verður opnað á niorgun (sunnudag) fyrir
dvalargesti og ferðafólk.
Bergsteinn Kristjánsson
Reíkníngur
H.F. Eimskipafélags
Islands
fyrir árið 1938 liggur frammi á skrifstofu
vorri frá í dag, til sýnis fyrir hluthafa.
Reykjavík, 10. júni 1939.
STJÓRNIN
Borgarnes---------Hólmavík
Ferðir alla miðvikudaga.
BORGASNES — STAÐARFELL
Ferðir alla laugardaga.
Afgreiðsla á
BiSreíðarstöð íslands
Sími 1540
Munið
að sýníng sjómanna
er opin daglega irá 10—10
SÝNIN G ARNEFNDIN.
Lesið og útbreíðið TÍMANN