Tíminn - 01.07.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
23. árg.
Verzlunarvelta S. I. S. nam
24,220 þás. kr. síðastliðið ér
I árslok voru 15,298 félagsmenn
í sambandsfélögfunum
Aðalfundur Sambands ísl.
samvinnufélaga hófst í gær
í Reykholti og mun standa
yfir næstu daga.
Á fundinum eru mættir 63
fulltrúar frá 43 félögum. Full-
trúar eru enn ekki mættir frá
fjórum félögum, en von er á
þeim.
Formaður Sambandsins, Ein-
ar Árnason alþm., setti fundinn
kl. 9 árdegis. í ræðu sinni minnt-
ist hann sérstaklega Tómas heit.
Jónassonar kaupfélagsstjóra á
Hofsós.
Aðalmálin á dagskrá í gær
voru skýrsla formanns, skýrsla
Sigurðar Kristinssonar forstjóra
um rekstur og hag S. í. S. á síð-
astliðnu ári og skýrsla Aðalsteins
Kristinssonar framkvæmda-
stjóra um 'störf innflutnings-
deildar.
Samkvæmt skýrslu forstjóra
Aukníng
vélbátaílotans
Ellefu bátar hafa
verið keyptir frá át-
löndum á þessu ári.
Samkvæmt heimild Fiskifé-
lags íslands, hafa verið keyptir
hingað til lands á þessu ári ell-
efu vélbátar frá 26—96 smál. að
stærð.
Til Vestmannaeyja hafa verið
keyptir fimm bátar. Guðlaugur
Brynjólfsson útgerðarmaður
hefir keypt 26 smál bát, sem
smíðaður hefir verið í Danmörku
á þessu ári. Karl. O. Guðmunds-
son o. fl. hafa keypt 33 smál. bát
frá Belgíu, smíðaðan 1936. Árni
Böðvarsson hefir keypt 50 smál.
bát frá Belgíu, smíðaðan 1936.
Kaupfélagið Fram hefir keypt
50 smál. bát frá Danmörku,
smíðaðan 1930. Gunnar Ólafsson
& Co. hafa keypt 50 smál. bát
frá Danmörku, smíðaðan 1930.
Til Siglufjarðar hafa verið
keyptir tveir bátar. Guðmundur
Hafliðason hefir keypt 33 smál.
bát frá Danmörku, smíðaðan
1899 og umbyggðan 1939. Ingvar
Guðjónsson hefir keypt 96 smál.
bát frá Englandi, umbyggðan í
Noregi á þessu ári.
Til Fáskrúðsfjarðar hefir Mar-
teinn Þorsteinsson keypt um 90
smál. bát frá Englandi, smíðað-
an 1913.
Til Hólmavíkur hefir Sam-
vinnufélag Hólmavíkur keypt 50
smál. bát frá Danmörku, smíð-
aðan 1930.
Til Hnífsdals hefir hf. Vörður
keypt 50 smál. bát frá Dan-
mörku.
Til Akureyrar hafa Jakob
Jónsson og Karl Friðriksson
keypt 92 smál. bát frá Englandi,
smíðaðan 1919.
Eins og getið var um í seinasta
blaði, ér nýlokið smíði 130 smál.
skips í Vestmannaeyjum og víða
á landinu er nú verið að smíða
fleiri eða færri báta með styrk
úr Fiskimálasjóði.
Mun aukning vélbátaflotans
verða óvenjulega mikil á þessu
ári og má vafalaust þakka það
...ugislækkuninni að miklu leyti.
Þótt kaup og smíði sumra þess-
ara báta væru afráðin áður en
hún kom til framkvæmda, er
víst, að þær ákvarðanir voru
teknar í von um slíka eða hlið-
stæða ráðstöfun til eflingar
sj ávarútveginum.
voru í S. í. S. um seinustu ára-
mót 46 félög með samtals 15,298
félagsmenn. Einu félagi, Verzl-
unarfélagi Norðurfjarðar var
veitt inntaka á fundinum í gær
og eru því nú 47 félög í S. í. S.
Verzlunarvelta S. í. S. á síð-
astliðnu ári nam alls 24,220 þús.
kr. og skiptist hún þannig: Að-
keyptar vörur 10,446 þús. kr.,
innlendar vörur 11,724 þús. kr.
og verksmiðjuvörur S. í. S. 2,050
þús. kr. Með aðkeyptum vörum
eru taldar innlendar iðnað.ar-
vörur, sem ekki eru unnar af
verksmiðjum S. í. S.
Rekstrarhagnaður S. í. S. varð
709 þús. kr. á árinu og verður
honum, ásamt 61 þús. kr. rekstr-
arafgangi frá 1937, ráðstafað á
þessum fundi.
Sala sambandsfélaganna á að-
keyptum vörum (innlendar iðn-
aðarvörur meðtaldar) nam á ár-
inu 18,725 þús. kr. og á innlend-
um vörum 11,500 þús. kr. Sam-
anlögð sala sambandsfélaganna
varð því 30,225 þús. kr.
Tíminn mun flytja nánari
frásögn síðar frá aðalfundinum
og rekstri og afkomu S. í. S. á
síððastliðnu ári. '
Aðalfundur Sláturfé-
lags Suðurlands
Aðalfundur Sláturfélags Suð-
urlands var haldinn í Reykjavík
fyrir nokkru síðan. Fram-
kvæmdastjóri félagsins, Helgi
Bergs, skýrði frá starfrækslu
þess síðastliðið ár.
Alls keypti félagið og slátraði
58931 kind og nam innkaupsverð
fénaðarins 1.109 þúsund krónum.
Er þetta fyllilega meðaltala slát-
urfjár, miðað við undanfarin ár,
en þó um 24 þúsundunum færra
en haustið 1937. Ennfremur
keypti félagið nautgripi og svín
fyrir 108 þúsund krónur árið
1938.
í ullarverksmiðjunni Framtíð-
in var unnið úr rúmlega fimmtíu
smálestum ullar á árinu, ýmist
lopi, band eða prjónavörur. Er
það svipað ullarmagn, sem unnið
hefir verið úr og næstu ár á
undan, en mun meira af ull-
inni var nú fullunnið í prjóna-
vörur.
Sjóðir félagsins jukust á árinu
um 64 þúsundir króna.
Úr stjórn félagsins áttu að
þessu sinni að ganga Pétur Otte-
sen alþingismaður á Ytra-Hólmi
og Lárus Helgason bóndi í
Kirkjubæjarklaustri. Voru þeir
báðir endurkosnir. Auk þeirra
skipa nú stjórn Sláturfélagsins
Ágúst Helgason bóndi í Birtinga-
holti, formaður, Guðmundur
Þorbjarnarson bóndi á Stóra-
Hofi og Kolbeinn Högnason
bóndi í Kollafirði.
Varamenn í stjórnina voru
einnig endurkosnir Hallvarður
Ólafsson bóndi á Geldingaá í
Leirársveit og Helgi Jónsson
bóndi í Seglbúðum í Landbroti.
V estmaimadagur Iim
á Þingvöllum verður sennilega
mjög fjölsóttur, ef veður helzt
gott. Undirbúningi undir hátíð-
ina er að mestu lokið. Fer sjálf
hátíðin fram í Hvannagjá, ofan
við Leirana og lítið eitt innan-
vret við þá. Hefir þar verið sleg-
ið tjöldum miklum og smíðaður
ræðupallur og fánastengur reist-
ar. Bifreiðaferðir til Þingvalla
eru frá Steindórsstöð og hefjast
klukkan 8 árdegis og verða úr
því á hverjum klukkutíma.
Mynd þessi er tekin af kennimön num þeim, sem voru viðstaddir biskupsvígsluna á sunnudaginn. Er hún
tekin í Alþingishúsgaröinum. Sjást á henni i fremstu röð (frá vinstri til hœgri):
Séra Steján Kristinsson, prófastur, Völlum, séra Böðvar Bjarnason, prófastur, Rafnseyri, Sigtryggur Guð-
laugsson, prcep. hon., Núpi, séra Magnús Bjarnarson, prœp. hon., Borg, séra Magnús Bl. Jónsson, past., em.,
Rvik, séra Friðrik Friðriksson, Rvík, séra Friðrik Hallgrímsson, prófastur, Rvík, séra Þorsteinn Briem, próf-
astur, Akranesi, séra Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup, Akureyri, séra Sigurgeir Sigurðsson, biskup, séra Jón
Helgason, dr. theol. biskup, séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup, séra Ólafur Magnússon, prófastur, Arnarbœli,
séra Jósef Jónsson, prófastur, Setbergi, séra Ófeigur Vigfússon, prófastur, Fellsmála, séra Jónmundur Hall-
dórsson, Stað, Grunnavík, séra Sigurður Einarsson, dósent, Rvík, séra Garðar Þorsteinsson, Hafnarfirði, séra
Eiríkur J. Eiríksson, Núpi, séra Ásmundur Gíslason, prœp. hon., Rvík.
Miðröð: Séra Gísli Skúlason, Eyrarbakka, séra Sigurður Stefánsson, Móðruvöllum, séra Þorsteinn Jó-
liannesson, prófastur, Vopnafirði, séra Marinó Kristinsson, ísafirði, séra Ólafur Ólafsson, Kvennabrekku, séra
Jón Pétursson, prójastur, Kálfafellsstað, séra Þorsteinn B. Gislason, Steinnesi, séra Valgeir Helgason, Hrífunesi,
séra Bergur Björnsson, Stafholti, séra Garðar Svavarsson, Rvík, séra Sveinn Guðmundsson, past. em., Rvík,
séra Brynjólfur Magnússon, Grindavík, séra Benjamín Kristjánsson, Laugalandi, séra Björn Magnússon, prófast-
ur, Borg, séra Gunnar Árnason, Æsustöðum, séra Jón Ólafsson, Holti, ön., séra Guðbrandur Björnsson, próf-
astur, Hofsós, séra Jón Þorvarðarson, prófastur, Vík, séra Guðmundur Benediktsson, Barði, séra Vilhj. Briem,
past. em., Rvík, séra Jóhann Briem, Melstað, séra Sigurður S. Haukdal, prófastur, Flatey, séra Kristinn Daníels-
son, prœp.hon., séra Einar Thorlacius, prœp. hon., séra Árni Þórarinsson, prcep.hon.,séraÞórður Ólafsson.prœp.hon.,
séra BjörnStefánsson,prófastur, Auðkúlu, séra Matthias Eggertsson, Rvík, séra Sigurjón Guðjónsson, Saurbœ, séra
Björn O. Björnsson, Höskuldsstöðum, séra Einar Sturlaugsson, Patreksfirði.séra Jón Brandsson, prófastur, Kollu-
fjarðarnesi í Str.s., séra Halldór Jónsson, Reynivöllum, séra Ásgeir Ásgeirsson, prófastur, Hvammi, séra Árni
Sigurðsson, fríkirkjuprestur, Rvík, séra Þorsteinn L. Jónsson, Söðulsholti, séra Friðrik A. Friðriksson, prófastur,
Húsavík, séra Hólmgrímur Jósefsson, Skeggjastöðum, séra Halldór Kolbeins, Stað í Súgandafirði, séra Lárus Arn-
órsson, Miklabœ, séra Magnús Guðmundsson, Ólafsvík, séra Sigurbjörn Einarsson, Breiðabólsst., séra Jón Finns-
son, past. em., Rvík. séra Eiríkur Stefánsson, Torfastöðum, séra Guðmundur Helgason, Staðarstað.
E f sta röð: Séra Siguröur Pálsson, Hraungerði, séra Gunnar Jóhannesson, Skarði, Gnúpverjahr., séra
Eiríkur Brynjólfsson, Útskálum, séra Jón Thorarensen, Hruna, séra Jón J. Auðuns, fríkirkjuprestur, Hafnarfirði,
séra Ingólfur Þorvaldsson, Ólafsf., séra Gísli Brynjólfsson, Kirkjubœjarklaustri, séra Sveinn Ögmundsson, Þykkva-
bœ, séra Erlendur Þórðarson, Odda, séra Magnús Þorsteinsson, past. em., Rvik, séra Þorvarður G. Þormar, Lauf-
ási, séra Jakob Einarsson, prófastur, Hofi, séra Einar Guðnason, Reykholti.
Nœstkomandi miðvikudag leggur Lúðrasveit Reykjavíkur af stað í skemmti-
og hljómleikaferð til Austurlands. Farið verður héðan með Súðinni og
spilað á öllum fjörðum, þar sem skipið kemur við, til Seyðisfjarðar. Þar fer
sveitin í land og verður á héraðsmóti að Hallormsstað á sunnudaginn 9.
þ. m. og fer síðan heim í bifreíðum norður um land. Lúðrasveitin hefir
áður farið tvœr slíkar ferðir til Norðurlandsins og víðsvegar um Suður-
land. Austurland hefir hingað til orðið afskipt að þessu leyti, sem og ýmsu
öðru, vegna óhagstœðra samgangna o ■ er þvi vel farið að sveitin fer þessa
för. Stjórnandinn er þýzkur maður, Albert Klahn að nafni, en að farar-
stjóra hefir sveitin fengið Sigurð Baldvinsson póstmeistara, sem er Aust-
firðingur að œtt og þaulkunnugur þar um slóðir. — Myndin er tekin af
lúðrasveitinni í hljómskálagarðinum og sést Hljómskálinn á bak við. —
K c ii ii a r a |» i 11 £ i O
A víðavangi
Ólafur Thors birtir athuga-
semd í Mbl. í dag við ummæli í
seinasta blaði Tímans um hið
fyrirhugaða tekjuhallaskip Eim-
skipafélagsins. Það má vel vera,
að Ólafur hafi eitthvað ymprað
á þessu máli við suma meðráð-
herra sína, en það breytir engu
um það, að hann hefir sem ráð-
herra, gefið Eimskipafélags-
stjórninni ádrátt um stuðning
ríkisins við tekjuhallaskipið, án
þess að hafa til þess samþykki
ríkisstj órnarinnar. Allir hinir
ráðherrarnir eru óbundnir af
loforði hans. Má vel vera, að ein-
hverjir kunni að hafa þá trú, að
starf þjóðstjórnarinnar geti lán-
ast, þótt hver einstakur ráðherra
hefði þann sið, að láta undan
hverskonar kröfum um stórfelld
útgjöld úr ríkissj óði, án sam-
þykkis — og jafnvel gegn vilja —
samstarfsmanna sinna. En hætt
er við, að þessir menn eigi eftir
að reyna, að slíkt sé oftrú.
* * *
Tímanum þykir rétt í þessu
sambandi að minna á eftirfar-
andi ummæli forsætisráðherra,
þegar hann tilkynnti myndun
þj óðstj órnarinnar á þinginu —
því þau verða aldrei of oft end-
urtekin: „Ef félagsheildir, stétt-
ir eða einstaklingar, sem standa
að baki ráðherrum í ríkisstjórn-
inni, sýna ásælni í því, að fá
dregin sinn taum eitt fet fram-
ar því, sem réttlátt er, saman-
borið við aöra, og framar því,
sem alþjóðarheild leyfir, og lát-
ið verður undan þeirri ásælni, þá
mun samstarfið,að mínu áliti sem
forsætisráðherra, mistakast.“
.A. KB O S
Hafnargerð á Dalvík. -
Fréttir úr Svarfaðardal.
S G 0 T U 3SÆ
- Byggilegt sjávarþorp. —
— Byggingar í Öxarfirði. —
Garðrækt í Dölum. — Tilraunir með votheysverkun.
Undirbúningi að hafnargerð é Dal-
vík er nú langt komið og verður innan
skamms byrjað á sjálfu verkinu. Hafn-
argarðurinn verður um 300 m. langur
og er kostnaðarverð hans áætlað 450
þús. krónur. Dýpkun hafnarinnar inn-
an garðsins og uppfylling meðfram
landi. Upp frá þorpinu er stór og
blómleg sveit, Svarfaðardalurinn, og
þorpsbúar geta haft aðgang að rækt-
unarlöndum í næsta nágrenni þorps-
ins. Dalvík er í greiðu sambandi við
bílvegakerfi landsins. Þangað er um
klukkustundar akstur á bifreið frá
Kennaraþingið eða ársþing
Sambands íslenzkra barnakenn-
ara var háð hér í bænum dagana
19.—26. þ. m. Sóttu það 52 full-
trúar, eða næstum því allir, sem
þar geta átt sæti. í S. í. B. munu
nú vera um 430 kennarar alls.
Aðalmál þingsins voru mennt-
un kennara, launamál, rikisút-
gáfa skólabóka, auka ýmsra sér-
mála S. í. B., eins og útgáfa á
almennu uppeldismálablaði og
barnabókum.
Um menntun kennara gerði
þingið þá ályktun, að skora á
stjórn háskólans, að húsrúm
það, sem ætlað er uppeldismála-
deild í hinni nýju háskólabygg-
ingu, verði búið tilheyrandi hús-
gögnum samtímis öðrum deild-
um háskólans. Jafnframt var
skorað á kennslumálaráðherra,
að hlutast til um að stofnað
verði prófessorsembætti f upp-
eldisvísindum við háskólann og
undirbúningsmenntun kennara
verði breytt þannig, að sérnám-
ið (barnasálarfræðti, uppeldis-
fræði og kennslufræði) og verk-
legt nám verði stórlega aukið.
Samþykkt var, að kennaraþing
skyldu eftirleiðis haldin annað
hvort ár. Stjórn S. í. B. skipa nú:
Sigurður Thorlacius (form.),
Arngrímur Kristjánsson, Aðal-
steinn Sigmundsson, Pálmi Jó-
sefsson, Bjarni M. Jónsson,
Gunnar M. Magnúss, og Guðjón
Guðjónson.
Á þinginu var samþykkt að
gera þá Magnús Helgason fyrrv.
skólastjóra, Þórð Thoroddsen
fyrrv. lækni, Guðmund Finn-
bogason landsbókavörð og Stein-
grím Arason kennara að heið-
. (Framh. á 4. siðu)
landi verður framkvæmd síðar. Höfuð-
atriðið fyrir bátaútveg þorpsins, er að
fá garðinn upp hið fyrsta. Bryggjur og
plön eru í yfirvofandi hættu á hverju
ári af völdum vetrarbrimanna og sjó-
gangur við bryggjurnar á öllum tímum
árs getur gert bátunum ókleift að
losa afla sinn. í sumar er ætlunin
að byggja 70—100 m. af hafnargarðin-
um. Er þá fengin vernd fyrir bryggj-
urnar á komandi vetri, en næsta sumar
verður verkinu væntanlega haldið á-
fram.
t t t
Útgerð á Dalvík fer nú vaxandi,
einkum á síldveiðar. Jafnhliða fer sölt-
un vaxandi í þorpinu. Byggist þetta
hvort tveggja að verulegu leyti á fram-
kvæmdum i hafnarmálinu. Með bætt-
um hafnarskilyrðum er Dalvík ákjós-
anlegur staður til síldarsöltunar í stór-
um stíl. Þangað er skömm og greið
sigling af síldarmiðum fyrir Norðin:-
Akureyri. Að fengnum hafnarbótum,
verður Dalvík tvímælalaust eitt byggi-
legasta þorp á landinu, ef ekkert 6-
venjulegt kemur fyrir.
t t t
Tíðarfar i Svarfaðardal hefir verið
hið ákjósanlegasta í vor og grasspretta
óvenjulega mikil. Allvíða var sláttur
byrjaður í 10. viku sumars. 21.—22. júní
hljóp mikill vöxtur í allar ár í dalnum,
af völdum hitabylgju, sem þá gekk yfir
Norðurland. Svarfaðardalsá flæddi yfir
stór engjalönd og olli leirburður árinn-
ar tjóni á engjunum, sem voru orðin
mikið sprottin. Þá ullu og þessir vatna-
vextir skemmdum á brúm á Holtsá og
Brimnesá.
r r r
Öxarfjörður er ein sú sveit hér á
landi, þar sem byggingar þykja mestar
og beztar. Þrátt fyrir það er þar enn
mikið um nýbyggingar í ár. Tvö íbúð-
(Framh. á 4. síðu)