Tíminn - 26.08.1939, Blaðsíða 3
98. blað
TÍMIM, laugardajgiim 26. ágiíst 1939
391
HEIMILIÐ
Eim iiiii matarhæflð.
í næstsíðasta tölublaði Tím-
ans var nokkuð rætt um matar-
hæfi hér á landi og deilt á það,
að ýmsu leyti. Var á það bent,
að mikil brögð væru að því að
skemmra væri gengið um notk-
un innlendra matvæla heldur
en eðlilegt væri, hvort sem litið
væri til þjóðarhagsmunanna eða
almennra hollustuhátta. Sann-
leikurinn er líka sá, að um þetta
er víða pottur brotinn að veru-
legu leyti, bæði til sjávar og
sveita. Af eðlilegum ástæðum
eru kaupstaðirnir þó ver á vegi
staddir í þessum efnum.
En víst er fólki vorkunn í þess-
um sökum. Þótt húsmæður
vildu afla sér upplýsinga um,
hvaða innlendar fæðutegund-
ir væri hentast að nota mest
af, þannig, að saman færi að
fæðið verði ódýrt, en uppfylli þó
allar þarfir líkamans, þá munu
slík gögn ekki liggja laus fyrir.
í þessu efni hefir fólk orðið að
renna nokkuð blint í sjóinn,
byggja á eigin reynslu og athug-
un, sem vitanlega er misjafn-
lega tryggur grundvöllur.
Úrbót sú, sem þarf að fást hið
bráðasta,, er að semja leiðbein-
ingar um þetta og dreifa út. Þar
þarf að leggja mikla áherzlu á
aukna notkun innlendra mat-
vara, fisks, síldar, kjöts, mjólk-
ur, smjörs í stað smjörlíkis,
kartaflna, rófna o. s. frv. Þar
þarf að segja fólki, hvernig á
að samræma notkun þessara
höfuð.framleiðsluvara þjóðar-
innar, svo að ekki bresti á um
það, að heilbrigði og líkams-
hreysti sé ágætlega borgið, og
hvernig það skilyrði verður upp-
fyllt á sem ódýrastan hátt. Þar
þarf einnig að gera ráð fyrir
hæfilegri og skynsamlegri til-
breytni í matarhæfinu, en reyna
að stemma stigu fyrir fávísleg-
um íburði um daglegt fæði.
Ég vil staðhæfa, að mörg hús-
móðir myndi geta sparað tals-
vert á þessu sviði daglegra lifn-
aðarhátta, án þess að fæðið yrði
þar fyrir kjarnminna eða að
öðru leyti lakara. Þjóðfélagið
myndi og græða á slíkri breyt-
ingu, ef almenn væri. Engin von
er til, að nein veruleg umbót fá-
ist um þetta, nema við njótum
slíks stuðnings og leiðbeiningar,
sem hér hefir verið vikið að.
Að vissu leyti gæti útvarpið
innt hér af höndum þarft verk
og mikilvægt, ef það vildi leggja
til málanna. í öðru lagi ætti
Búnaðarfélagið og samtök út-
vegsmanna að bera þetta mál
fyrir brjósti, að því leyti, sem
hægt er að auka notkun inn-
lendra framleiðsluvara.
Jóh.
Gyðinga á hinum dapra tíma
eyðileggingarinnar hafa áreið-
anlega leyst af hendi eitt hið
mesta pólitíska þrekvirki, sem
heimurinn þekkir. Þeir ályktuðu
á þessa leið: Ef þjóð drottins á
ekki að deyja út, verður hún að
eiga andlegt föðurland, ríki, sem
„ekki er af þessum heimi“.
Musterið var fallið. En frá
hinum lærðu feðrum, sem enn
héldust við í landinu helga út-
gengu ströng fyrirmæli til hinna
dreifðu Gyðinga um allt Róma-
veldi: Guð Abrahams býður yð-
ur að halda lögmál Móse og
lögmál fræðimannanna fyrr og
nú. Ekki svo mikið sem einn
stafkrók megið þér brjóta. Lög-
málið er nú föðurland yðar og
musteri.
Hér er skýring kraftaverksins.
Skilyrðislaus hlýðni við siðafyr-
irmæli hins gyðinglega lögmáls
út í yztu æsar hlaut að greina
Gyðinginn frá öðrum mönnum
um aldur og æfi. Hinar helgu
bækur og hin miklu rit fræði-
mannanna voru ótæmandi þjóð-
legt viðfangsefni fyrir andans
menn. Og hinir útlægu Gyðing-
ar á 1. öld hlýddu því, er þeir
hugðu vera rödd drottins í
þeirra miklu neyð, þeir vöndust
við að líta á sig sem samþegna
hins andlega föðurlands. Þess
vegna eru þeir enn í dag sér-
stök þjóð með margskonar smá-
smuglegar sérkreddur trúarlegs
uppruna í daglegu lífi. Þannig
varðveittu þeir ,,ríkið“. Þess
vegna hafa þeir líka orðið að
þola þjáningar, sem eru meiri
en orð lýsa.
Forn-Grikkir ogGyðingar voru
A N IV Á L L
Dánardægnr.
Ragnar E. Kvaran landkynnir
andaðist í Landsspítalanum 24.
ágúst. Hann lézt af afleiðingum
uppskurðar, sem gerður var á
honum vegna innvortismeins.
Ragnar var sonur Einars Hjör-
leifssonar Kvaran rithöfundar.
Hann gekk ungur í skóla, nam
guðfræði og gerðist prestur með-
al íslendinga í Vesturheimi.
Fyrir nokkrum árum hvarf
hann heim aftur og hefir hin
síðustu ár sinnt störfum við
ferðaskrifstofu ríkisins.
Slysfarlr.
Drengur á öðru ári, sonur Eyj-
ólfs Þorsteinssonar bónda í
Hrútafelli undir Austur-Eyja-
fjöllum og konu hans, féll í pott,
sem heitt vatn var í, síðastliðinn
mánudag. Brenndist barnið
mikið, einkum á bakinu. Læknir
frá Vík i Mýrdal var kvaddur á
vettvang. Að aflokinni bráða-
birgðaaðgerð var það flutt til
Reykjavíkur og lagt á Lands-
spítalann.
Þorgeir Sveinsson, ungUT mað-
ur frá Tjörn á Skagaströnd,
varð fyrir því slysi að kvöldi
hins 23. ágúst, er hann var á-
samt öðru fólki að koma frá
heyskap við Laxárvatn á Skaga-
heiði, að ljár stakkst i nárann
á honum. Var hann ríðandi og
reiddi ljáinn fyrir frarnan sig.
Langt er til bæja frá vatninu og
var hinn særði maður borinn
til byggða á litlum báti, sem þar
var, og tók flutningurinn á
fjórðu klukkustund. Maður hafði
verið sendur til símstöðvar til
að síma eftir lækni og var lækn-
irinn kominn á vettvang, er
komið var til byggða með Þor-
geir, sem þá var mjög aðfram-
kominn af blóðmissi. Hann var
í fyrradag fluttur á sjúkrahúsið
á Blönduósi.
óvinir. Grikkir elskuðu mynd-
listina. í augum Gyðinga var
myndlistin viðbjóðsleg skurð-
goðadýrkun. Það er lítill vafi á
því, að Grikkir, sem voru í mikl-
um metum í Rómaveldi, gerðu
sitt til að spilla fyrir Gyðingum
og vekja óbeit á þeim. Þeir
breiddu út sögur um, að Gyðing-
ar fórnuðu börnum og ýmislegt
álíka. Þar við bættist svo, að
það leyndi sér ekki, að Gyðing-
urinn var að ýmsu leyti öðru-
vísi en aðrir þegnar keisarans.
Hvíldardagurinn, umskurn
sveinbarnanna og bannið gegn
því að eta „óhreina fæðu“ —
allt þetta var hlægilegt eða ó-
viðkunnanlegt að áliti Róm-
verja. Þess vegna varð Gyðing-
urinn bitbein „skrílsins“ og átti
kulda að mæta hjá yfirvöldun-
um. En um Gyðingaofsóknir að
hætti síðari tíma var þó tæp-
ast að ræða. meðan hið forna
Rómaveldi stóð. En óbeitin á
Gyðingunum gekk í arf til síð-
ari tíma.
Ofsóknir þessar hófust í hin-
um kristnu ríkjum Norðurálf-
unnar á ofanverðum miðöldum.
Þegar fyrsta krossferðin var
farin seint á 11. öld, var fjöldi
Gyðinga myrtur. Það mun hafa
verið svo sem í hefndarskyni
fyrir dauða frelsarans. En í ríkj -
um Araba í Norður-Afríku og á
Spáni áttu Gyðingar þá öruggan
griðastað. Þar nutu þeir frænd-
semi hins semitiska kynstofns
og voru auk þess í áliti fyrir
dugnað sinn, einkum sem verzl-
unar- og fjármálamenn. í hinu
Máraríkinu spanska gegndu þeir
mörgum ábyrgðarmiklum stöð-
um. En eftir að kristnir *menn
og kaþólski rannsóknarréttur-
inn urðu ofan á á Spáni, voru
þei'i' hópum saman brenndir
sem villutrúarmenn. Sumir létu
skírast til að forða lífi sínu.
Allan síðara hluta miðalda og
allt fram á 18. öld hröktust Gyð-
ingar úr einu landinu í annað,
alstaðar óvelkomnir, hæddir og
smáðir, en með misjafnlega
mikla möguleika til að halda
lífi og limum. Þeir gátu ekki
orðið landeigendur og iðnfélög
kristinna manna voru þeim lok-
uð. í miðaldaborgunum voru
þeim ætluð til íbúðar sérstök
hverfi, sem nefndust Glætto. Á
þessum takmörkuðu svæðum
urðu þeir að hafast við. Þegar
íbúum Gyðingahverfisins fjölg-
aðí varð að þrengja göturnar,
llitavcita Reykjavíkur.
Auglfsing Yiðvíkjandi hitalögnum
Vegna væntanlegrar hitaveitu er þeim, er byggja ný hús eða
breyta gömlum húsum, ráðlagt aö haga hitalögnunum í húsun-
um þannig, að fullt tillit sé tekið til hinnar nýju hitaveitu, er
hitalagnir eru ákveðnar.
Skrifstofa Hitaveitu Reykjavíkur, Austurstræti 16, mun gefa
upplýsingar um þetta kl. 11—12 f. h. daglega.
Bæ j arverkf r æðingur.
iiiikjiiiliiuar.
ACCUMULATOREN-FABRIK,
DR. TH. SONNENCHEIN.
hækka húsin og byggja við þau
allskonar kvisti og kima. Það er
engin furða, þó að orð kæmist
á, að af Gyðingum legöi óþef
eins og af dýri.
Það hefir lengi verið talið, að
Gyðingar væru meir en aðrir
riðnir við verzlunarprang og ok-
urlánastai'fsemi. Með tilliti til
þess, hve erfitt var fyrir þá að
fá að vinna fyrir sér í öðrum at-
vinnuvegum, var þetta ekki ó-
eðlilegt. Frá upphafi virðist
þeim hafa verið sýnt um fjár-
mál. Ofsóknirnar gerðu þá slótt-
uga og árvakra og tengdu þá
saman enn órjúfanlegri bönd-
um en lögmálið eitt gat skapað.
Konungar og aðalsmenn voru
löngum fjárþurfi og þá var Gyð-
ingurinn beðinn um lán. Það gaf
honum vald. En það gat líka
sett líf hans í hættu. Það var
handhægt ráð að vísa Gyðingn-
um úr landi eða láta brenna
hann á báli til að losna við
skuldina. Og sumir höfðingjar
töldu sig kunna enn einfaldari
ráð en að taka lán. Þeir hand-
sömuðu blátt áfram efnaða
Gyðinga og píndu þá til að láta
fé sitt af höndum, sem lausnar-
gjald. í hinni frægu skáldsögu
Walter Scott, ívar hlújárn, sem
flestir íslendingar hafa lesið, er
dregin upp eftirminnileg mynd
af slíkum atburðum í Englandi
á 13. öld. En það var margur ís-
ak frá Jórvík og margur Regin-
valdur uxaskalli í Evrópu á þeim
dögum.
Og smámsaman varð það sið-
ur að kenna hinu þeldökka aust-
ræna fólki um ýmiskonar ógæfu,
sem steðjaði að almenningi. Ef
Gyðingur framdi glæp var öllum
þjóðflokknum gefin sökin. Ó-
heppinn stjórnandi gat bætt fyr-
ir mörg afglöp með því, að gera
Gyðinga útlæga úr landi sínu.
Hvað eftir annað endurtók það
sig, hið villimannlega fyrirbrigði,
er ærður mannfjöldinn réðist á
Gyðingahverfin myrðandi og
brennandi allt, sem fyrir varð.
Á 18. öld breyttist aðbúð Gyð-
inga til hins betra. Jósef II.
Austurrríkiskeisari reið á vaðið
árið 1772 og veitti þeim aðgang
að háskólanámi og ýms önnur
réttindi. Síðar kom franska
stjórnarbyltingin og hinar nýju
hugsjónir um „frelsi, jafnrétti og
bræðralag". Múrar Gyðinga-
hverfanna voru rifnir. Og á 19.
öld mátti svo heita að Gyðingar
fengji jafnrétti við aðra menn
nema í löndum Rússakeisara.
Þar áttu sér stað hópmorð Gyð-
inga að gömlum sið árið 1903.
Annarsstaðar óx vegur þeirra og
samstarf þeirra við samþegna
sína í hverju landi. Einn fræg-
asti forsætisráðherra Breta á 19.
öld, Benjamín Disraeli, var Gyð-
ingur. í hans stjórnartíð var
fyrst farið að tala um Bretland
sem heimsveldi. Og yfirleitt má
segja. að Gyðingar hafi lagt mik-
ilsverðan skerf til menningar
þeirra landa, sem þeir hafa ver-
ið búsettir í. Vísindamenn, skáld
og rithöfundar hafa verið til-
tölulega f jölmennir í þeirra hópi.
Á 19. og 20. öld, síðan þeir fóru
að njóta mannréttinda, hafa
þeir líka blandast öðru fólki meir
en áður og beinlínis talið sig til
þeirra þjóða, sem þeir bjuggu á
meðal. Og furðulegt tiltæki má
það heita nú að rekast í lang-
feðratali fólks, þó það kunni að
eiga Gyðing í ætt sinni í 2. eða
3. lið, þegar það talar sama mál
og aðrir landsmenn og jafnvel
hinir gyðinglegu forfeður þess
hafa búið í landinu mann fram
af manni og litið á það sem
raunverulegt fósturland sitt og
ættjörð.
En í Gyðingaofsóknunum í
Þýzkalandi er nú andi miðald-
anna endurvakinn á hinum allra
síðustu árum. Og víðar t. d. í
Rúmeníu og Ungverjalandi eiga
þeir mikilli óvinsemd að mæta.
Nú eru þeim gefnar ýmsar nýjar
sakir. Það er sagt, að þeir séu
upphaísmenn kommúnismans í
Evrópu, hann sé gyðinglegt fyr-
irtæki til að útrýma vestrænni
menningu. í sjálfu sér væri það
ekki óeðlilegt, þó að föðurlands-
laus og kúgaður þjóðflokkur taki
þjóðfélagsbreytingum fegins
hendi, og margir Gyðingar hafa
líka tekið þátt í byltingastarf-
semi með sínum venjulega ákafa
og dugnaði. Kommúnistaforing-
(Framh. á 4. síðu)
Hraðferðír B. S. A.
Alla daga nema mánudaga um Akranes og Borgarnes. —
M.s. Laxfoss annast sjóleiðina. Afgreiðslan f Reykjavík á
Bifreiðastöð íslands, sími 1540.
Bifreiðastöð Altoreyrar.
Mest
og bezt
fyrir krónuna,
með því að
nota
þvotta-
duftið
Perla
Nmáiöluverð
á eftirtöldum tegundum af tóbaki má eigí vera
liærra en Iiér segir:
Heller Virginia Shag .... í 50 gr. pk. kr. 1.25
Goldgulden .. . . í 50 — 1.30
Aromatischer Shag . . . .í 50 ----- 1.30
Feinriechender Shag . . . . í 50 — 1.35
Blanke Virginia Shag . .. . í 50 — 1.30
Justmans Lichte Shag .. . . í 50 — 1.20
Moss Rose .. .. 1 50 — 1.45
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má leggja allt að 3% á
innkaupsverð fyrir sendingarkostnaði til útsölustaðar.
TÓBAKSEINKASAL4 RÍKISIIVS.
KEMSLA.
Kenni þýzku, ensku og stærð-
fræði undir gagnfræðapróf og
önnur skólapróf.
Jón Á. Gissurarson,
Pósthússtræti 17.
Sími 3016 kl. 10—12.
Kopar
keyptur í Landssmiðjunni.
0 ddí ellowhúsið
s e 1 u r:
EINSTAKAR
MÁLTÍÐIR.
MÁNAÐARFÆÐI.
VIKUFÆÐI.
— Spyrjið um verð.
208
Wílliam McLeod Raine:
Flóttamaðurinn frá Texas
205
— Var hann á hlaupum frá þér, þegar
þú skauzt?
— Nei, þegar ég skaut af hestbaki,
var hann á hlaupum þráðbeint til mín.
Niðri í læknum stóðum við augliti til
auglitis hvor við annan, þó að ég gæti
ekki vel séð hann fyrir runna, sem bar
á milli.
— En hann sneri ekki bakinu að þér?
— Nei, alls ekki. Hvað er á seiði?
— Ekki annað en það, að þú skauzt
hann ekki. Það getur verið, að Steve
hafi gert það, en þú hefir áreiðanlega
ekki gert það. Kúlan hefir komið inn i
handlegginn að aftanverðu, en farið
út að framan.
Peters gretti sig. — Ert þú viss, læknir?
Eg er saklaus af því að skjóta aftan að
honum og ég sé ekki hvernig Steve hefði
átt að fara að því.
— Eg sagði Clint Prescott þetta allt
saman, en hann vildi ekki trúa mér,
sagði Taylor blátt áfram. — Eg veit hver
skaut mig.
— Komdu með það, sagði Buck Tim-
mings.
— Sá, sem skaut Steve.
— Ætlai' þú að halda því fram, að þú
hafir skotið þig sjálfur?
Fanginn leit hörkulega á Timmings.
— Vertu við því búinn að hlæja: Clem
Oakland skaut okkur báða.
XXII. KAFLI.
Webb Barnett eða Jeb Taylor, eða
hvað hann hét, sat á bekk og leit rólega
í kring um sig. Hann virtist ekki einu
sinni taka eftir því að allra augu stóðu
á hann, ýmist forvitin, nístandi eða
sigri hrósandi. Hann var svo kaldur og
rólegur, að það hefði alveg eins mátt í-
mynda sér, að hann væri heiðursgestur
þarna eins og glæpamaður, sem ætti
aðeins eftir óstigin síðustu sporin
af löngum og skuggalegum lögbrota-
ferli.
Kúrekarnir tóku ekkert tillit til til-
finninga hans og’töluðu um hann eins
og hann væri hvergi nærri.
— Hann er svipljótur, sagði Slim. —
Þegar þið sjáið mann með þennan svip
í augunum, getið þið bölvað ykkur upp
á að hann er slátrari.
— Það er ekki einu sinni svo mikið
varið í hann, að hann sé það, sagði
Buck Timmings. — Hann lítur út eins
og sá, sem er öruggur með byssuna, ef
hann getur komið náunganum að ó-
vörum, en bíður ekki boðanna ef þeir
standa jafnt að vígi.
— Það er rétt, sagði Hank fyrirlit-
lega. — Clint og Bob hittu hann á ber-
svæði og hann gafst undir eins upp,
eins og hver önnur bleyða.
— Finnst þér ekki, Dug, að svona