Tíminn - 26.08.1939, Blaðsíða 4
392
TÍMIM, laugartlagiiin 26. ágiist 1939
98. blað
Yfir landamærin
1. Barði Guðmundsson heldur því
fram að ísland hafi aðallega byggzt af
Dönum, en ekki Norðmönnum, því hér
á landi hafi ekki verið settur óðalsrétt-
ur eins og í Noregi. Með slíkri rök-
semdafœrslu mætti alveg eins komast
að þeirri niðurstöðu að mongólar eða
blökkumenn hefði numið ísland, því
óðalsréttur mun ekki hafa verið ríkj-
andi í löndum þeirra.
2. Barði Guðmundsson heldur því
fram að Danir hafi aðallega numið ís-
land, því hér hafi til forna verið minni
stéttaskipting en í Noregi. Með sams-
konar röksemdafærslu mætti halda því
fram, að brezkir menn hefðu ekki verið
helztu landnámsmennirnir í Banda-
ríkjunum, því ekki hafi verið mynduð
þar nein aðalsstétt eins og í Englandi.
3. Pramangreindar röksemdir Barða
og nokkrar fleiri, sem sanna eiga land-
nám Dana á íslandi, virðast stafa af
vöntun á þeirri sagnfræðilegu þekk-
ingu, að útflytjendur frá einhverju
landi flytja yfirleitt ekki með sér til
hins nýjan lands allar þær venjur og
siði, sem tíðkuðust í þeirra fyrri heim-
kynnum. Ástæðan til þess er sú, að
skílyrðin eru oft mjög ólík og þau ráða
mestu um breytni manna og venjur.
Hefði Barði gert sér þetta fullljóst,
myndi hann sennilega aldrei hafa
uppgötvað landnám Dana á íslandi!
4. Kommúnistablaðið veit tæpast
upp á hverju það á að taka til að
dreifa athyglinni frá svikum Rússa-
stjórnar og sambræðslu hennar við fas-
ismann. Til þess að reyna að sanna, að
islenzku kommúnistaforingjarnir séu
ekki eins djúpt soknir, krefst kommún-
istablaðið þess á fimmtudaginn, að all-
ir fasistar verði tafarlaust reknir úr
Reykj avíkurlögregiunni!
5. Vesalings kommúnistablaðið er
seinheppið í vörn sinni fyrir vináttu-
samning kommúnista og fasista í
Moskva. Seinasta röksemd þess er sú,
að Stalin hafi ekki þorað að semja við
Breta af ótta vlð það, að Chamberlain
myndi svíkja samninginn! Stalin hefir
eftir þessu að dæma haft það álit á
Hitler, að hann væri manna líklegastur
til að virða og halda samninga og
stingur það álit talsvert í stúf við það,
sem íslenzkir kommúnistar hafa hald-
ið fram um orðheldni Hitlers!
x—y.
MOLAR
Samkvœmt „Götéborgs Handels- og
Sjöfartstidning" hafa Frakkar í hyggju
aS byggja ski-p til Ameríkuferða, sem
yrði langtum stœrra en ,JJormandié‘
og „Queen Mary". Rússneskur verk-
frœðingur hefir þegar lokið fyrsta upp-
drœttinum. Samkvœmt honum á skip-
ið að verða um 100 þús. smál., 350 m.
langt og fara 34 hnúta (knots á klst.
Það á að geta flutt 5000 farþega, en
með nokkuð breyttum útbúnaði er því
œtlað að geta flutt 13 þús. hermenn,
ef þörf krefur.
Líklegt þykir, að Frakkar muni ráð-
ast í byggingu skipsins, ef ekki yrði a)
styrjöld. Helsti ókosturinn við slíkt
stórskip er sá, að ekki er enn til nein
þurkví, sem getur tekið það.
Öll Evrópa
viðbúin styrjöld
(Framh. af 1. siðu)
BANDARÍKIN: Amerísku
blöðin fordæma mjög harðlega
þýzk-rússneska samninginn,
telja hann svik af hálfu Rússa,
en mikinn sigur fyrir Þjóðverja.
Roosevelt forseti hefir sent
Hitler, Póllandsforseta og Ítalíu-
konungi orðsendingu og beðið
<JR BÆNUM
Messur á morgun:
í dómkirkjunni klukkan 11, séra
Garðar Svavarsson. í fríklrkjunni
kólukkan 5, séra Árni Sigurðsson.
Meistaramót í. S. í.
hefst á íþróttavellinum á morgun.
Áður en hinir venjulegu kappleikar
fara fram keppa stjórnir íþóttafélag-
anna í bænum í boðhlaupi og sömu-
leiðis gamlir íþróttamenn.
Hvidbjörnen,
hið danska eftirlitsskip hér, var
skyndilega kvatt heim í gærkvöldi,
litlu eftir klukkan níu. Lá það þá í
höfn hér í Reykjavík. Margir skips-
manna voru í landi, er þessi fyrir-
skipun kom og var hafin leit að þeim
frá skipinu. Allmargt sjóliða var í
Gamla Bió og var sýning nýbyrjuð,
þegar þeir fengu fyrirmælin. Hurfu þeir
þá þegar brott og til skips. Annarra
var leitað um bæinn á bifreiðum og
fannst sá síðasti ekki fyrr en langt var
liðið á kvöld. Hvidbjörnen lét úr höfn
um miðnætti.
Hitaveitan.
Skrifstofa, sem Reykjavíkurbær hef-
ir sett á stofn vegna hinnar fyrirhug-
uðu hitaveitu í bænum, hefir sent út
tilkynningu, þar sem öllum er byggja
ný hús eða breyta gömlum, er ráðlagt
að haga hitalögnum þannig, að fullt
tillit sé við það tekið til hinnar nýju
hitaveitu.
Stallari Kristjáns konungs X.
er á ferðalagi hér á landi um þessar
mundir. Hann heitir Olaf Dalberg
ofursti. Hann hefir komið hingað til
lands nokkrum sinnum áður og var
meðal annars í fylgdarliði konungs á
alþingishátíðinni 1930. Hann mun
dvelja hér í einn mánuð.
Enskir laxveiðimenn,
sem verið hafa í Borgarfirði í sum-
ar, komu með Laxfossi í fyrradag
hingað til bæjarins. Suðurferð skips-
ins hafði verið fiýtt og náðu þeir því
Lyra og fóru utan með henni um
kvöldið.
í grein Jónasar Jónssonar,
Stefánsljós i Skagafirði, i síðasta
tölublaði Timans hafa slæðst prent-
villur. í fimmta dálki á annari síðu,
í níundu línu neðan frá stendur orðið
gufuorka í stað hitaorka. í sjötta dálki
á annari síðu í 4.—9. línu neðan frá
stendur: „Litlu síðar vorum við Mag-
nús Guðmundsson að því komnir að
fá Varmahlíð viðurkennda sem vænt-
anlegan héraðsskólastað í Skagafirði."
Þessi setning á að hljóða þannig:
Litlu síðar fengum við Magnús Guð-
mundsson Varmahlíð viðurkennda o.
s. frv. í þriðja dálki á þriðju siðu,
17.—19. línu að neðan, stendur: „þess-
vegna verður að reisa stóran, einfald-
an vinnuskóla." Á að vera: .. stóra,
einfalda vinnuskála. Loks er sú prent-
villa í fjórða dálki á fjórðu síðu, að í
16. línu að ofan stendur „fyrir haust-
ið“, en á að vera: fyrir héraðið.
Lokadansleikur
verður haldinn við Hreðavatnsskála
á morgun. Sumargistihúsinu þar verð-
ur lokað nú um mánaðamótin. Óvenju-
lega mikill berjavöxtur hefir verið þar
um slóðir í sumar, eins og reyndar við-
ar, mest krækiber og bláber, en einnig
nokkuð af hrútaberjum, einiberjum og
jarðarberjum.
þá að’ vinna að friðsamlegri
lausn málanna.
RÚSSLAND: Rússneska þing-
ið, sem er í svipuðum stíl og
þýzka þingið, hefir verið kvatt
saman næstkomandi mánudag
til að samþykkja þýzk-rúss-
neska samninginn. „Times“ og
fleiri áreiðanleg blöð telja, að
Rússar og Þjóðverjar hafi gert
baktjaldasamning um skiptingu
Póllands.
UNGVERJALAND: Það hefir
vakið mikla athygli, að ung-
verska stjórnin hefir bannað
hátíðahöld, sem nazistar ætl-
in.^-ihn
M. s. ,,Esja“
fer frá Danmörku kringum
15. september n. k. beint til
Vestmannaeyja og Reykja-
víkur.
Tekur farþega og flutning
eftir því sem rúm leyfir.
í Danmörk fást nánari
upplýsingar hjá: Samb. ísl.
samvinnufélaga, Khöfn og
Johs. Utzon, Aalborg.
uðú að haida í Budapest á morg-
un. Undanfarnar vikur hafa
verið miklar viðræður milli
þýzkra og ungverskra stjórn-
málamanna og er talið, að Þjóð-
verjar hafi m. a. krafizt þess, að
Horthy ríkisstjóri og núverandi
ríkisstjórn færi frá völdum,
þýzkum her yrði leyft að fara í
gegnum landið o. s. frv. Það er
talið að Ungverjar hafi hafnað
þessu, enda er gott samkomulag
milli þeirra og Pólverja. Ung-
verjar munu einnig hafa leitað
sér hjálpar hjá ítölum, en milli
þeirra hefir verið náin vinátta
síðastl. 15 ár. Hinsvegar stend-
ur þeim ógn af Þjóðverjum og
vilja hafa sem minnst saman
við þá að sælda.
BÚLGARÍA: Það vekur at-
hygli, að Búlgaría hefir bannað
útflutning hráefna og fyrir
nokkrum dögum var tilkynnt, að
búlgarski forsætisráðherrann
ætlaði til London. Þykir þetta
benda til að Búlgaría ætli ekki
að bindast of nánu sambandi við
„öxulríkin".
JÚGÓSLAVÍA: Það þykja mik-
il tíðindi að sættir hafa náðst í
deilum Króata og Serba. Paul
ríkisstjóri hefir nýlega verið á
ferð í London og bæði hann og
ríkisstjórnin eru mjög vinveitt
Bretum. Talið er að stjórnin hafi
synjað beiðni Þjóðverja um að
mega fara með her yfir landið,
ef þörf krefði, og hótað því, að
reyna að hindra slíkt með vopn-
um.
Framkoma stjórnanna í Ung-
verjalandi, Búlgaríu og Júgó-
slavíu virðist bera þess merki, að
þessi lönd ætli ekki að ganga
Þýzkalandi á hönd, heldur reyna
að verja hlutleysi sitt til hins
ítrasta. Yfirlýsingar Hitlers um
rétt Þjóðverja til að ráða einir
málum í Mið-Evrópu og á Balk-
anskaganum lætur þeim að von-
um illa í eyra og gerir þau vin-
veittari Bretum. Þessi afstaða
þeirra getur haft mikil áhrif á
Mussolini, þar sem Ungverja-
land og Júgóslavía myndu fylgja
honum eindregið, ef hann reynir
að miðla málum og eins, ef hann
færi úr bandalaginu við Þjóð-
verja.
Börn Abrahams
og saga peírra
(Framh. af 3. síðu)
inn í Ungverjalandi, Bela Kun,
var Gyðingur. En hvorki Lenin
né Stalin eru af Gyðingaættum.
Og fjármála- og kaupsýslu-
mennirnir í hópi Gyðinga, höfðu
beinlínis hagsmuna að gæta í því
að viðhalda ríkjandi þjóðskipu-
lagi, enda urðu margir þeirra
mjög hart úti í rússnesku bylt-
ingunni. Þýzkir nazistar segja,
að Gyðingar hafi svikið Þýzka-
land í ófriðnum og viljað láta
standa við skaðabótagreiðslurn-
ar. Þar vitna þeir löngum í Rat-
henau, Gyðinginn og heimspek-
inginn, sem varð þýzkur ráð-
herra eftir stríðið, en myrtur af
æsingamönnum. Það er satt að
Rathenau vildi, að Þýzkaland
stæði í skilum. En Wirth og
Stresemann, sem báðir voru
hreinir „aríar“ voru áreiðanlega
eigi síður ákveðnir í því efni, þótt
um það sé nú fremur þagað
Sumt mun þó vera rétt í hinum
þýzku ákærum.
í menntamanna- og embætta-
stétt landsins voru menn af
Gyðingaættum áberandi fjöl-
mennir og það svo, að óvið-
kunnanlegt mátti telja. Þar
höfðu þeir orðið öðrum hlut-
skarpari. Það mun líka vera
rétt, að fjármálamenn Gyðinga-
ættar hafi haft séraðstöðu til
að græða á gengisfallinu, vegna
þess að þeir áttu hægt með að
fá erlendan gjaldeyri gegnum
viðskiptasambönd við ættbræð-
ur sína í öðrum löndum og
kaupa upp ódýrar þýzkar eignir.
En sjálfsagt hefðu „hreinir Ar-
íar“ gert nákvæmlega það sama,
ef þeir hefðu getað. Og hvað
sem nú er sagt um Gyðinga og
siðleysi þeirra í ríki Hitlers, þá
er það a. m. k. víst, að þúsundir
þeirra þóttu nógu góðar til að
deyja fyrir Þýzkaland á vígvöll-
um heimsstyrjaldarinnar.
Það er talið, að ættstofn Gyð-
inga telji nú um 15 miljónir
manna víðsvegar um heiminn.
Þar af eru 3 miljónir í Rúss-
landi, 3 y2 milj. í Póllandi, 1
miljón í Rúmeníu, y2 miljón í
Þýzkalandi, auk 300—400 þús. í
Tékko-Slovakíu o. s. frv. En
fjölmennastir eru Gyðingar þó í
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Nú er það eitt mesta vanda-
mál heimsins, hvað gera skuli
við þessa menn, ef einstök xíki
halda fast við þá miðaldahátt-
semi að gera þá útlæga eða gera
þeim ómögulegt að vinna fyrir
daglegu brauði. Því að um allan
heim er nú af atvinnuástæðum
lokað fyrir innflutning fólks í
stórum stíl.
í því sambandi er vert að
minnast á þá tilraun, sem gerð
hefir verið til að fá Gyðingum
aftur í hendur hið forna föður-
land þeirra í Austurvegi. Seint
á 19. öld var stofnaður félags-
skapur Gyðinga í því skyni að
stuðla að „heimflutningi“
þeirra til hins helga lands. En
á stríðsárunum fékk þessi hreyf-
ing nýjan vind í seglin. í Bret-
landi var á þeim árum — og er
enn — mikill vísindamaður af
Gyðingaættum, Weissmann að
nafni. Þessi vísindamaður gerði
stórmerka uppgötvun á sviði
hergagnaframleiðslunnar, svo
sem lesa má um í endurminn-
ingum Lloyd George frá þeim
tíma. Þegar brezkir og franskir
stjórnmálamenn skoruðu á hann
að kjósa sér þá sæmd, er þessi
ríki mættu mesta veita í launa-
skyni, svaraði dr. Weissmann:
Leyfið mér að hjálpa þjóð minni,
svo að hún þurfi ekki lengur að
reika föðurlandslaus um jörðina.
Þá var stofnað hið nýja ríki
í Palestinu undir brezkri vernd
og innflutningur Gyðinga haf-
inn. Nú búa í landinu um 400
þús. Gyðingar. Þeir hafa sýnt
aðdáunarverðan dugnað í að
rækta landið. Við Jordan, þar
sem Jóhannes skírari starfaði
forðum, rísa nú voldugar orku-
stöðvar, sem lýsa börnum Ab-
rahams við hinn nýja arin á
landi feðranna og knýja vélar
hins uppvaxandi iðnaðar. En
það lítur út fyrir, að gleðin yfir
heimkomunni ætli að verða
„lævi blandin". Hið litla land
getur ekki rúmað stóra þjóð,
jafnvel þó hún væri ein um það.
En hið versta er þó, að ara-
biskir menn eru búnir að eiga
landið í þúsund ár. Landnáms-
mennirnir nýju eru þeim óvel-
komnir. Og nú er það ekki leng-
ur nóg, að prestar ísraels blási
í lúðra til þess að guð láti múra
206 William McLeod Raine:
þorparar þurfi að hafa bein í nefinu,
sagði Frank Oyler. — Þessi er heigull.
Peters var ekki viss um að svo væri.
Rás viðburðanna benti til þess, en eitt-
hvað ákveðið og hart var í vöðvastæltu
órökuðu andlitinu, sem ekki gat sam-
þýðst neinum aukvisahætti. Andlitið
bar vott um viljafestu, var beinabert,
kjálkarnir sterkbyggðir, grá augun voru
hörð, stöðug og rannsakandi.
Þegar þorparinn hafði kastað riffl-
inum frá sér í lækinn forðum, hafði
enginn ótti lýst sér í augum hans. Það
virtist fremur vera af hyggindum
sprottið og gert af því, að það væri eina
leiðin til að ná vopnahléi.
Wagner læknir kom másandi inn í
skálann.
— Ég er sendur til þess að gera að
særðum handlegg, sagði hann.
— Hvernig líður Steve, spurði Peters.
— Það er langt frá því að hann sé
frískur, lagsmaður. Ég vildi síður að ég
yrði mataður með því síðar, ef ég hefi
ekki rétt fyrir mér, en ég held hann
ætli að skjóta tilræðismanninum ref
fyrir rass.
— Húrra!
— Það væri betra að þú færir úr jakk-
anum, sagði Wagner við sjúklinginn.
Taylor hló. — Eg er enginn töfra-
maður.
Flóttamaðurinn frá Texas 207
— Losið hendur hans! skipaði lækn-
irinn.
— Hver skipar svo fyrir, spurði Slim
hvatskeytlega.
Læknirinn glápti á hann.
— Clint Prescott, auðvitað? Ertu
hræddur við að losa snöggvast um hend-
ur hans af þvi, að þið verðið ekki nema
sex hér inni?
Peters gekk glottandi fram til þess að
losa um böndin.
— Þú verður að hafa Slim afsakaðan,
læknir. Ef þú kynntist honum betur,
myndir þú komast að raun um, að það er
ekki allt takandi bókstaflega, sem hann
segir.
Fanginn fór úr jakkanum og braut
upp skyrtuermina.
— Ef þú gerir minna að en að taka af
mér handlegginn, verður þú ekki vin-
sæll hérna, læknir, sagði hann biturt.
— Hver skaut þig? spurði læknirinn,
þegar hann fór að fást við handlegginn.
— Maður með byssu.
— Eg hugsa, að það hafi verið eg,
læknir, sagði Peters, nema það hafi ver-
ið Steve.
— Hvar stóðst þú, þegar þú skauzt á
hann?
— í fyrra sinnið var ég á hestbaki, en
í seinna sinni stóð ég r.'iðri í læknum.
~GAML.'. BtÓ"0"0—D*
Kreutzer-
sónatan
Áhrifamikil mynd tekin
eftir skáldsögu
Leos Tolstoi.
Aðalhlutv. leika:
LIL DAGOVER,
PER PETERSEN
og
ALBR. CHOENHALS
NÝJA BÍÓ—
Frjálslynd
æska
Hrífandi fögur og skemmti-
leg amerísk kvikmynd frá
COLUMBIA FILM, um
glaða og frjálslynda æsku.
Aaðalhlutverkin leika:
GARY GRANT,
KATHERINE HEPBURN,
DORIS NOLAN,
LEW AYRES.
14 vcdjussiRiiSi'rli
heldur Knattspyrnufélag Reykjavíkur þjálfara sínum, Mr. L.
Bradbury, n. k. sunnudag kl. 9 sd. að Hótel Skjaldbreið. Sam-
sætið hefst með kaffidrykkju og síðan verður dansað.
K. R.-félagar fjölmennið!
Stjórn K. R.
Jerikoborgar hryja, það þarf
brezkar hersveitir og brezkar
sprengjuflugvélar til að gera
börnum Abrahams líft í landi
föður síns. G. G.
Húsmæðraskólarnír
(Framh. a) 1. síðu)
húsmæðraskólanna, tók til
starfa haustið 1937. Hann getur
veitt 30 nemendum viðtöku. Um
60 stúlkur hafa þegar sótt um
skólavist, eða því næst helmingi
fleiri en til greina getur komið,
að fái inntöku. Forstöðukona
hans er Valgerður Halldórsdótt-
ir frá Hvanneyri og hefir verið
frá upphafi.
Auk þessara fimm húsmæðra-
skóla, sem hið opinbera starf-
rækir úti á landi, heldur Árný
Filippusdóttir uppi kvennaskóla
í Hveragerði á eigin vegum. Get-
ur húsmæðraskóli Árnýjar tek-
ið 16 nemendur, en 26 hafa sótt
inntöku í hann.
Eins og sést á þessu yfirliti er
áskipað í öllum húsmæðraskól-
um dreifbýlisins löngu fyrir-
fram og verða jafnvel fleiri
stúlkur frá að hverfa árlega
heldur en inntöku geta fengið.
Auk hinnar eiginlegu hús-
mæðrafræðslu er mikið haldið
af námskeiðum, þar sem kennd-
ir eru einn eða fleiri þættir al-
mennrar húsmæðrafræðslu. Til
þessara námskeiða er bæði efnt
af einstaklingum, félögum og fé-
lagasamböndum. Mörg þessara
námskeiða eru haldin í hús-
mæðraskólunum að vorinu, að
afstaðinni vetrarkennslunni, og
njóta kennslukrafta þeirra. Yf-
irleitt eru þessi námskeið fjöl-
sótt og vilja oftast fleiri kom-
ast að en hægt er að veita kost
á því.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
yfirleitt vel. Var sá afli lagður á land
í Reykjavík.
r t r
Sunnudaginn 6. ágúst síðastliðinn
fóru sex menn á bifreiðinni Þ-12 yfir
Pljótsheiði frá Bjarnarstöðum í Bárð-
ardal um Engidal að Gautlöndum í
Mývatnssveit. Hefir bifreið aldrei ver-
ið ekið áður milli Engidals og Gaut-
landa. Mennirnir, sem til fararinnar
réðust, voru Jón Marteinsson á Bjarn.
arstöðum, sem var aðalforgöngumaður
hennar, Jón og Þorsteinn, synir hans,
Ingvi M. Gunnarsson, fóstursonur
hans, og tveir bræður frá Lundar-
brekku, Sigurður og Jónas Baldurs-
synir. Ók Sigurður bifreiðinni. Vega-
lengd milli Bjarnarstaða í Bárðardal
og Gautlanda er 21—22 kílómetrar, og
voru þgir félagar fimm klukkustundir
á leiðinni. Austan til á heiðinni urðu
þeir fyrir töfum vegna ókunnugleika.
Leiðin var seinfarin og tafsöm, en
engar meiriháttar torfærur eru á
henni. Mætti gera hana dável færa
bifreiðum, án stórmikils tilkostnaðar.
Á Fljótsheiði er á þessum slóðum eitt-
hvert fegursta gróðurfar, sem er að
finna á íslenzkum heiðum, og mundi
leiðin verða vinsæl af ferðamönnum.
Orðsending
(Framh. af 2. síðu)
að kaupa, lesa og borga Tímann.
Innheimtumenn! Vinnið af
fullum krafti og áhuga í haust
að innheimtu og útbreiðslu Tím-
ans. Hver nýr, skilvís kaupandi
er stór ávinningur, og með auk-
inni skilvísi kaupenda skapa þeir
Nú hlakka ég til að fá kaffi-
sopa með Freyjukaffibætis-
dufti, þvi þá veit ég að kaff-
ið hressir mig
Hafið þér athugað það, að
Freyju-kaffibætisduft inni-
heldur ekkert vatn, og er
því 15% ódýrara en kaffi-
bætir í stöngum
REYNIÐ FREYJU-DUFT
tsrr**
gll//ffp
ifgjfö; PFREYJA” 7 1 ■wim
NÝk' KBBffgLy*
- KAFFIBÆTIrNj—n
Áætlunarfcrðir að
Kirkjubæjarklaustri:
Frá Reykjavík á þriðjudög-
um. — Til Reykjavíkur á föstu-
dögum.
Afgreiðsla í Reykjavík:
á B. S. í.
Annast kaup og sölu verðbréfa.
KE1\TVSLA.
ENSKA: Oddný E. Sen.
ÞÝZKA: Elisabeth Göhlsdorf.
Áhersla lögð á, að tala málið.
Sín.i 3172.
ÞÉR ættuð að reyna kolin og
koksið frá
Kolaverzlun
Sigurðar Ólafssonar.
Símar 1360 og 1933.
sér sjálfir möguleika til þess að
fá enn vandaðra og fjölbreytt-
ara blað en nú er. Framsóknar-
menn! Vinnið allir sem einn
fyrir blað ykkar og um leið fyr-
ir flokkinn í heild.
Egill Bjarnason.