Tíminn - 10.10.1939, Page 4
468
TÍMlNrc, |»rið jntlaginn 10. okt. 1939
117. blað
önnur athugasemd
(Framh. af 2. síðu)
lega gegn því í nefndinni dag-
an 10.—13. apríl 1934, að
mælt yrði með því, að ríkið
keypti Raufarhafnarverksmiðj -
una, enda gerir hann enga
beina tilraun til þess að bera á
móti þeim mjög svo vægilegu
ummælum mínum um þetta,
sem ekki fylla nema um eina
linu í athugasemd minni. Hitt
er óátalið af mér, að Kr. B. fer
nú að trana því fram, að mán-
uði síðar, eða þ. 12. maí, hafi
hann verið kominn á þveröfuga
skoðun, því að þá hafi hann,
að nefndarfundum loknum, lagt
til að verksmiðjan yrði keypt.
Þetta gat Kr. B. beðið Tímann
að flytja, án þess að þyrla upp
um leið augljósum blekkingum
um afstöðu annarra nefndar-
manna.
Annars er það um tillögu Kr.
B. að segja, að henni fylgdi sá
agnúi, að hún hefði aldrei
stuðlað að kaupum Raufar-
hafnarverksmiðjunnar. í fyrsta
lagi af því, að áframhald varð
á rekstri verksmiðjunnar í
höndum fyrri eigenda, hið um-
rædda sumar, 1934, en tillaga
Kr. B„ um kaupin, var bundin
því skilyrði, að vissa væri fyrir
því, að rekstur stöðvaðist, ef
ríkið ekki keypti og starfrækti
verksmiðjuna. í öðru lagi vegna
þess, að fé það, sem Kr. B. gerði
ráð fyrir að notað yrði í þessu
skyni, undir vissum kringum-
stæðum, varð aldrei fyrir hendi.
Trausti Ólafsson.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
trúnaðarmenn skildu það, að nú
verður ekki sætzt upp á þótt
forðað yrði frá hordauða, nú er
ætlazt til að sérhver íslenzkur
bóndi geri skyldu sína. En hún
er hún er ekki minni en það, að
hverfa að fullu frá hinni þjóð-
hagslega háskalegu vanfóðrun
á fénaði, sem til þessa hefir ver-
ið svo sorglega algeng!
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir i LANDSSMIÐJUNNI.
Kaupendur Tímans
Tilkynnið afgr. blaðsins tafar-
laust ef vanskil verða á blaðinu.
Mun hún gera allt, sem í hennar
valdi stendur til þess að bæta
úr því. Blöð, sem skilvísa kaup-
endur vantar, munu verða send
tafarlaust, séu þau ekki upp-
gengin.
AFGREIÐSLAN.
ÚB BÆIVUM
Leikfélag Reykjavikur
biður blaðið að vekja athygli á því
að Brimhljóð eftir Loft Guðmundsson
verður sýnt á morgun (miðvikudag)
en ekki á fimmtudag eins og venja er.
Að þessari sýningu verða nokkrir að-
göngumiðar seldir á kr. 1.50.
Bandalag Þjóðverjja
og Rússa.
(Framh. af 3. síðu)
sá ótti, að Rússar myndu treg-
ari til samninga við Breta eftir
en áður, því hér eftir vissu þeir,
að ef Þjóðverjar ætluðu austur
á bóginn, hefðu þeir líka Bret-
um og Frökkum að mæta.
Samningaafstaðan hefði verið
auðveldari, ef Rússar hefðu átt
á hættu, að þurfa að verjast
Þjóðverjum einir.
Til þessarar skoðunar Lloyd
George hefði enska stjórnin átt
að taka fullt tillit í tíma. Orð
hans voru töluð af reynslu. Eft-
ir heimsstyrjöldina hafði hann
lagt sig í framkróka til að
hindra samvinnu Þjóðverja og
Rússa, sem hann áleit þá
hættulegasta fyrirbrigðið í al-
þjóðamálum.
En enska stjórnin trúði því,
að milli þýzkra nazista og rúss-
neskra kommúnista væri engin
samvinna hugsanleg. Hún trúði
því, að stjórn Sovét-Rússlands,
sem á seinustu árum hafði tal-
ið sig vörð friðarins og höfuð-
andstæðing nazist'a, myndi taka
því tilboði opnum örmum að
hjálpa til að afstýra styrjöld
og hamla frekari yfirgangi fas-
ismans.
Það er ekki ólíkleg tilgáta, að
rás viðburðanna væri nú önn-
ur, ef maður með skarpskyggni
Lloyd Georges hefði skipað
æðsta valdasess Breta seinustu
árin.
Framh. Þ. Þ.
M.s. Hclgi
hleður til Vestmannaeyja n. k.
fimmtudag.
Tekur einnig farþega.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.
Miðstjórn
F ramsóknarílokksins
heldur fuud í Edduhiisinu á morgun (mlð*
vikudag) kl. 5 e. h.
STJÓRNIN.
Hjartkær móðir okkar,
Malene J. Sigurhjörnsson,
andaðist sunnudaginn 8. þ. m. að heimili sínu, Freyju-
götu 25 C.
Rörn hinnar látnu.
HÚSMÆÐUR!
,\ú er rétti tíminn
r< I i er mjólkin kostameiri og næringar-
jjdiQall rlkari en síðari hluta sumars. Og
n j < hefir mjólkin hér reynzt auðugri
r\. IU i 61 a{ c-bætiefni en einmitt nú.
Þannig hafa rannsóknir þær, sem gerðar voru í þessu skyni í
síðastliðnum septembermánuði, sýnt,
að ef miðað er við að neytt sé eins
iítra á dag er mjólkin þá nægilega
auðeig af þessu bætiefni til þess að
menn geti fcngið allri C-bætiefnaþörf
sinni fullnægt í mjólkinni einni.
.. " «*>- • . * ■»
Þá munu það þykja góðar fréttir, að við rannsóknir þær, sem
gerðar hafa verið mánaðarlega, allt frá síðastliðnum áramótum,
hefir það komið í ijós,
að gerilsneyðingin (I Stassanovél)
rýrir ekki finnanlega C-f jörvismagn
mjólkurinnar. Sýnishorn af sömu
mjólk á uuduii og eftir stassaniser-
ingu sýndu sama C-fjörvismagn eftir
gerilsneyðinguna og fyrir hana.
Mjólkursamsalan.
Vegna erfíðleíka
á efnisinnkaupum sjáum vér oss ekki fært að
veita gjaldfrest á vinnu né efni meðan núver-
andi ástand helzt.
Þetta tilkynnist heiðruðum viðskiptamönnum vorum hér með.
S. f. Stálsmiðjan.
Landssmiðjan.
II. f. Hamar.
Vélsmiðjan Héðinn.
Salurinn I K.R.-húsinu uppi
fæst leigður fyrir fundi, samkvæmi og skóladansæfingar,
laugardaga, sunnudaga og ef til vill fleiri daga.
Simi 3130 og 3553.
ÚTBREIÐIÐ TÍMANN
■GAMLA BÍÓ *
Olympíu-
leikarnir
1936
Hin heimsfræga kvikmynd
LENI RIEFENSTAHL
Fyrri hlutinn:
„Hátíð þjóðanna"
sýndur í kvöld.
NÝJA BÍÓ*
Æskudagar.
Amerísk tal- og söngva-
mynd um æskugleði og
æskuþrá.
Aðalhlutverkið leikur og
syngur hin óviðjafnanlega
DEANNA DURBIN.
Aðrir leikarar eru:
MELVYN DOUGLAS,
JACKIE COOPER o. fl.
FJÖIRITUM og VÉIRITUX.
Fjölritun á allskonar eyðublöðum, skýrslum, tækifærisljóð-
um prýddum með teikningum, verðlistum, umburðarbréfum,
auglýsingabréfum o. fl. — Ýmsir 1 i t i r.
Fjölrituuarstofa
FRIEDE PÁLSDÓTTLR RRIEM.
Tjarnargötu 24. simi 2250.
Auglýsing
irá fjármálaráðuneytinu,
Með því að ákveðið hefir verið að leggja
niður Raftækjaeinkasölu ríkisius frá næstu
áramótum að telja, er liér með skorað á þá,
er kynnu að hafa í hyggju að verzla með vör-
ur þær, er Raftækjaeinkasalan hefir nú
einkasölu á, að gera ráðstafanir til að tryggja
sér innflutning á þeim vörum hið fyrsta.
Fjármálaráðuneytið, 9. október 1939.
Aðvörim.
Húseigendur og húsráðendur í Reykjavík eru
alvarlega aðvaraðir um að tilkynna Manntals-
skrifstofu bæjarins, Pósthússtræti 7, eða Lögreglu-
varðstofunni, þegar í stað, ef fólk hefir flutt úr
húsum þeirra eða í þau nú um mánaðamótin.
Vanrækzla varðar sektum.
Borgarstjórínn í Reykjavík.
Tilkynnín
Frá og með deginum í dag verður verð á
kolum hjá undirrituðum kr. 77,00 pr. tonu.
Orsök nefndrar hækkunar á útsöluverði kola er að sjá í
orðsendingu frá verðlagsnefnd í sama blaði.
Reykjavík, 9. okt. 1939.
282 William McLeod Raine:
cup og hirðir þessi verðlaun sjálfur,
sagði Taylor.
— Hver heldur þú að ég sé? sagði
Mosby og leit undrandi á Taylor. —
Ennþá hefi ég aldrei svikið félaga mína
og ég ætla ekki að fara að byrja á þvi
núna.
Suðurríkjabúinn hló háðslega.
— Clem Oakland myndi auðvitað
ekki svíkja þig.
— Ég er ekkert að hugsa um Clem,
sagði Mosby stuttur í spuna.
Taylor vissi að hann var að hugsa um
uppástunguna, en taldi víst, að hann
myndi hafna henni. Það væri of hættu-
legt að svíkjast að baki Clem.
Skoran varð brattari er þau nálguð-
ust brúnina. Handjárnaða manninum
veittist erfitt að klifra upp, þar sem
hann gat ekki haft handanna nein not.
Hann hrasaði oftar en einu sinni og var
næstum dottinn og einu sinni rann
hann til og slengdist á Mosby.
— Bratt hérna, sagði hann. — Ég hefi
aldrei tekið eftir því fyrr en núna, hvað
handleggirnir gera mikið til þess að
halda manni í jafnvægi.
— Þú kemst upp, sagði Mosby hug-
hreystandi.
— Já, ég kemst upp ef ég ekki dett
og handleggs- eða fótbrotna.
Nú komu þau að klettasnös og þar lá
Flóttamaðurinn frá Texas 283
önnur skora að þeirri, sem þau gengu
eftir. Stór björg höfðu fallið þarna nið-
ur frá brúninni milljónum ára áður en
fyrsti íbúi landsins fæddist í heiminn.
Molly snéri við. — Kannske að ég geti
hjálpað þér? Þú kemst varla upp án
þess að nota hendurnar, eða heldur þú
það?
Augu þeirra mættust og hún las augu
hans.
— Ég kemst upp ef ég dett ekki, sagði
hann. — Ég þakka, en ég býst ekki við
að þú getir neitt hjálpað mér.
— Þetta fer nú að styttast, sagði litli
maðurinn.
' Taylor hélt varlega áfram og steig
þungt á lausan stein, rúmlega hnefa-
stóran. Steinninn hrökk til og fótur
Taylors rann á hallri klöppinni. Hann
rak upp lágt óp um leið og hann steypt-
ist aftur á bak á gæzlumanninn.
Mosby reyndi að halda honum uppi
með báðum höndum, en fanginn virtist
ekki ná neinni öruggri fótfestu. Sam-
anbundnir handleggir hans luktu um
háls Mosbys og runnu niður á bakið,
utan yfir handleggina.
— Nei, nei! Reyndu að hypja þig, lágs-
maður, sagði Mosby og barðist við að
halda jafnvæginu.
Þeir féllu báðir, ultu niður brekkuna
Leikféluy Reyhjjavíkur
„Brimhljóð((
sjónleikur í 4 þáttum eftir
Loft Guðmundsson.
H.f. Kol & Salt. S.f. Kolasalan.
Kolaverzlun Signrðar Ólafssonar.
Kolaverzlun Ólafs Ólafssonar.
Kolaverzlun Guðna Einarssonar & Einars.
BJÉPNAVEIÐI
Sýning á morgun kl. 8.
(miðvikudag).
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
og annað fugladráp er stranglega bannað í Þingvallalandi,
bæði fyrir utan sem innan takmörk friðlýsta landsins.
Þingvelli 7. okt. 1939.
Lmsjónarmaðnr.
A t h. Nokkrir aðgöngnmiðar
verða seldir á 1,50 að þessari
sýningu.
í. s. I. s. R.
Sundmeistaramótið
R.
M.s. Dronníng
Alexandríne
hleður væntanlega í Kaup-
mannahöfn næstk. fimmtudag
og föstudag.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.
heldur áfram í kvöld i Sundhöllinni kl. 8%. — Aðgöngumiðar
verða seldir þar í dag.
Sundráð Reykjavíkur.
Tílkynníng irá Oddfellowhúsínu.
Þeir, sem ætla sér að halda fermingarveizlur í haust eru vin-
samlega beðnir að ákveða sig sem fyrst.
Félög og aðrir þeir, sem ætla að fá húsið leigt fyrir afmælis-
fagnaði eða aðrar skemmtisamkomur í vetur, eru einnig beðnir
að tilkynna það sem fyrst.
Restaurationin í Oddfellowhúsinu, sími 3553.