Tíminn - 28.10.1939, Side 1
'
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
E3DDXTirÖSI, Undargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSX, Llndargötu 1 D.
Slmt 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hX.
Símar 3948 og 3720.
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNS8ÓN.
ÚTGEFANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
23. árg.
£
fiteykjavík, laugardagmn 23. okt. 1939
befir iniBflutn-
Ingur kaupfélaga auklzt?
Aukinn samdráttur míllí
Þjóðverja og Rássa
Verzlunaa’árierðid hefir stórbatnað VHdi SjálfsiæðisHokk-
í SVeltum landsÍUS Og SélagSmÖnn» urinn, þegar kaupgeta
Stalín er hræddan við lýðræðíð
en nazismann
um kaupfélaganna fjölgað
Frásögn viðskiptamálaráðherra
í tilefni af þeim umræð-
um, sem undanfarið hafa
átt sér stað um það, að
innflutningur kaupfélag-
anna hafi aukizt á undan-
förnum árum, sökum mis-
beitingar innflutningshaft-
anna, hefir Tíminn átt við-
tal við Eystein Jónsson
viðskiptamálaráðherra, og
óskað eftir því, að hann gæfi
blaðinu yfirlit um afstöðu
kaupfélaga og kaupmanna
til innflutningshaftanna.
Frásögn ráðherrans fer hér á
eftir:
í starfsreglum gjaldeyris- og
innflutningsnefndar, sem sett-
ar voru á árinu 1935, segir m. a.:
„Þó skulu neytendafélög þau,
er nú starfa og síðar verða
mynduð, yfirleitt fá leyfi til
innflutnings hlutfallslega eftir
tölu félagsmanna og heimilis-
manna þeirra, miðað við fjölda
landsmanna, nema sérstakar á-
stæður mæli gegn því.“
Ennfremur segir, þar sem fram
er tekið hversu framfylgja skuli
hinum almennu reglum um inn-
flutning, að frá þeim beri þó að
víkja, ef nefndin komizt að
raun um að innflutningur ein-
stakra verzlunarfyrirtækja eftir
þeim reglum, sem settar eru,
vexði ekki i samræmi við heil-
brigða eftirspurn og vöruþörf.
Regla þessi, sem kölluð hefir
verið „höfðatölureglan“, á að
tryggja það, að innflutningur
kaupfélaga og kaupmanna
minnki eða aukist hlutfallslega,
Samhandsmálið
Ályktun fundar í Fél.
eftir því hvort menn kjósa held-
ur að vera félagsmenn og verzla
við kaupfélög eða hafa viðskipti
sín við kaupmenn. Síðan er það
lagt á vald nefndarinnar, að
sjá um að bæði þessi og aðrar
reglur um skiptingu innflutn-
ingsins, verði í sem beztu sam-
ræmi við heilbrigða eftirspurn
og vöruþörf.
Gjaldeyris- og innflutnings-
nefnd hefir fxamkvæmt þessa
reglu þannig, að jafnhliða því,
sem f ylgzt hefir verið með
breytingum á félagatölu kaup-
félaganna, hefir einnig verið
litið sérstaklega eftir sölu þeirra
á þeim nauðsynjavörum, sem
lítið eða ekki hafa verið tak-
markaðar, aðallega korn- og ný-
lenduvörum, og þannig fenginn
mælikvarði til samanburðar um
það, hvort viðskipti hlutaðeig-
andi félags og vöruþörf hafi
raunverulega vaxið.
Því hefir verið og sézt enn
haldið fram, að framkvæmd
þessaxar framangreindu reglu
hafi orðið til þess að efla kaup-
félögin á kostnað kaupmanna,
og það fært fram þessari full-
yrðingu til stuðnings, að þar
sem innflutningsleyfi til kaup-
félaganna hafi verið aukin, hafi
viðskiptin leitað þangað. Það
er þessi fullyrðing, sem er höf-
uðatriðið í ádeilu kaupmanna
á framkvæmd innflutnings-
haftanna.
Það er rétt, að innflutningur
kaupfélaganna hefix vaxið
nokkuð hlutfallslega síðustu ár-
in. Árið 1935 voru innflutn-
ingsleyfi Sambandskaupfélag-
anna 10.27% af heildarinn-
flutningsleyfum það ár. —
Árið 1938 voru innflutnings-
leyfi Sambandskaupfélaganna
13.03% af heildarleyfunum, og
innflutningsleyfi Kaupfélags |
landbunaðarins jókst
eftir kreppuna 1931-34,
hafa innflutning kaup-
félaganna óbreyttan,
svo baendur neyddust
tíl að hætta viðskipt-
um við félög sín?
Reykjavíkur og nágrennis 1.16%
af heildarleyfunum. Þannig
höfðu innflutningsleyfi Sam-
bandsfélaganna fyrix utan
Kron, hækkað um ein 2.76% á
þessum þremur árum. Rétt er
þó að taka það fram, að inn-
flutningsleyfi Sambandskaup-
félaganna munu hafa hækkað
meira hlutfallslega, ef miðað
væri einungis við • innflutning
til kaupmanna og kaupfélaga,
en innflutningi til iðnaðarfyr-
irtækja og annarra sleppt.
Liiggur það í því, að þátttaka
iðnaðarfyrirtækja í innflutn-
ingnum hefir farið mjög vax-
andi allra síðustu árin.
Nú kann einhver að segja, að
þar sem fyrir liggi að innflutn-
ingur kaupfélaganna hefir vax-
ið nokkuð hlutfallslega, miðað
við innflutning kaupmanna, þá
sé þar með sannaö, að kaup-
félögin hafi hlotið einhvex sér-
réttindi. En því fer fjarri. Kem-
ur þá að aðalatriði málsins.
Það kemur greinilega fram, að
hlutfallsleg innkaupaþörf kaup-
félaganna hefir vaxið mjög veru-
lega á þessum árum, vegna vax-
andi þátttöku manna í kaupfé-
lögunum en eins og siðar er
rakið til hlítar, hefir sá vöxtur
ekki orsakazt af því að menn
hafi oröið að leita þangað, til
þess að fá vörur, sem eigi voru
fáanlegar annars staðar.
Jafnframt vil ég leggja áherzlu
(Framli. á 4. síðu)
í samningi Rússa og Þjóðverja,
sem var undirritaður í Moskva
28. sept. síðastl., sagði m. a„ að
þessar þjóðir myndu stuðla að
því, að styrjöldinni yxði hætt, en
ef þær tilraunir misheppnuðust
myndu „stjórnir Þýzkalands og
Sovétríkjanna ráðgast um nauð-
synlegar ráðstafanir.“
Þar sem hinu svokallaða „frið-
artilboði" Hitlers, sem fékk ein-
dregin meðmæli rússneskra
blaða, hefir verið hafnað af
stjórnum Bretlands og Frakk-
lands, ætti þetta ákvæði samn-
ingsins að vera komið til fram-
kvæmda, enda bendir margt til
þess að svo sé.
Annars ex það athyglisvert
fyrir hina fávísu þjóna Stalins
utan Rússlands, sem reyna að
halda því fram að fyrir Rússum
vaki að kollvarpa nazismanum
í Þýzkalandi, að stjórnendur
Rússlands og blöð þeirra mæltu
eindregið með „friðarboði“ Hitl-
ers. Aðalatxiði „friðartilboðsins"
voru þau, að yfirráð Þjóðverja
yrðu viðurkennd í Póllandi og
Þýzkaland fengi aftur nýlend-
urnar. Hefði verið gengið að
þessum „friðarkostum" myndi
aðstaða nazismans í Þýzkalandi
hafa styrkzt um allan helming.
Meðmæli rússnesku valdhafanna
með þessu „fxiðartilboði“ virðast
því síður en svo benda til þess,
að fyrir þeim vaki að steypa
Hitler af stóli.
Það, sem einkum þykir benda
til nánari samvinnu Rússa og
Þjóðverja og að framangreind
ákvæði samkomulagsins frá 28.
sept. séu að byrja að koma til
framkvæmda, er m. a. þetta:
1. Tilkynnt hefir verið að stóx-
felld vöruskipti séu að hefjast
milli Þýzkalands og Rússlands.
Rússar selja Þjóðverjum við
allra fyrstu hentugleika mikið
af kornvörum, olíu, timbri o. s.
frv. í stað þess selja Þjóðverjar
Rússum mikið af vélum, en sumt
af vörunum fá þeix með gjald-
A KROSSGÖTTJM
Dilkar vænni nú en mörg undanfarin ár. — Vatnsskortur í Eyjafirði. —
Hrútasýningarnar á Suðurlandi. — Skógræktarfélag Skagfirðinga.
uagra Framsóknar-
rnanna í Reykjavik
Félag ungra Framsóknar-
manna i Reykjavík hélt fyrsta
fund sinn í haust síðastl. mið-
vikudag. Aðalumræðuefnið var
samband íslands og Danmerkur.
Allmiklar umræður urðu um
málið og var að þeim loknum
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum eftirfarandi tillaga:
„Fundurinn lýsir sig eindreg-
ið fylgjandi því viðhorfi til
sambandsins milli íslands og
Danmerkur, sem ltemur fram í
ávarpi þvf til íslenzkrar æsku,
er samþykkt var á aðalfundi
stjómar S. U. F. á Akureyri
11.—16. júní síðastliðinn. Beinir
fundurinn þeirri áskorun til
stjórnar S. U. F„ að hún vinni
eftir fyllstu getu að framgangi
málsins.
Fundurinn lítur svo á, að
styrjöld sú, sem nú er hafin,
auki nauðsyn þess, að haldið sé
sleitulaust uppi kröfum íslands
um fullkomið sjálfstæði. Ef þetta
verður ekki gert telur fundurinn
talsverða hættu á því, að sú
skoðun geti skapazt meðal er-
lendra þjóða, að íslendingar
treysti sér ekki til að fara með
öll sín mál, og gæti það álit orð-
ið sjálfstæði landsins hættulegt
á yfirstandandi tímum.“
Á öðrum stað I blaðinu (Á
víðavangi) er sagt nokkuð frá
umræðum á fundinum.
Næsti fundux, sem haldinn
verður í félaginu, er aðalfundur
og verður hann haldinn fljót-
lega eftir mánaðamótin.
Samkvœmt upplýsingum kjötverö-
lagsnefndar, hefir í ár verið slátrað
20—30 þúsund færri dilkum heldur en
í fyrra. Fullkomnar og ábyggilegar
skýrslur um þunga meginhluta slátur-
fjárins eru þegar fyrir hendi. Hefir
meðal kroppsþungi dilka á öllu land-
inu reynzt 14.42 kgr., en í fyrra var
meðalþunginn 14.21 kgr. Hefir reyndin
því orðið sú, að þótt dilkar væru í
fyrrahaust langt um venju fram að
vænleika, þá hafa verið enn vænni í
haust. Öll þau ár, sem kjötverðlags-
nefnd hefir starfað, og fullkomnar
heildarskýrslur eru til um þunga slát-
urdilka, hefir meðalþyngd farið hækk-
andi ár frá ári. Af einstökum slátrun-
arstöðum, reyndust dilkarnir bezt á
Hvammstanga, þar var meðalþyngdin
17,34 kgr., á Borðeyri 17.30 kgr. og á
Hólmavík 17.21 kgr. Við þetta er þó að
athuga, að nýrmörinn er hér talinn
með kroppþunganum. í Búðardal var
meðal kroppþyngd sláturdilka 16.45 kgr.
og 16.17 kgr. á Króksfjarðarnesi. Á
þessum tveim stöðum er nýrmörinn
ekki meðtalinn, svo að raunverulega
hafa dilkarnir ekki reynzt lakar á
þessum stöðum, heldur en hinum þrem-
ur fyrsttöldu. Undanfarin ár hafa dilk-
arnir einnig reynzt bezt á þessurn
stöðum.
i r t
Timinn hefir átt símtal við Jóhann
Valdimarsson bónda á Möðruvöllum í
Eyjafirði. Þar um slóðir hefir svo vikurn
skiptir verið sífelldir þurrkar, svo að til
mestu vandræða horfir á mörgum bæj-
uin, ef ekki rignir til nokkurra muna
innan skamms. Hefir vindátt tíðast
verið suðlæg eða vestlæg. Lindir,
brunnar og vatnsleiðslur eru víða löngu
þrotnar að vatni og verða menn sums-
staðar að sækja langar leiðir vatn á
vögnum til neyzlu, þvotta og annarra
þarfa. Mjög erfitt er um kælingu
mjólkur. Kýr eru víða leystar út á mál-
um og brynnt í Eyjafjarðará. Menn
eru einkum kvíðnir, ef frysta kynni
áður en úr rætist um vatnsvandræðin.
t t t
Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðu-
nautur er nýkominn til bæjarins úr
hrútasýningaferð um Suðurland. Hefir
hann lokið við að halda hrútasýningar
í Vestur-Skaftafellssýslu, Rangárvalla-
sýslu og Árnessýslu, nema í Þingvalla-
sveit. Eftir mánaðarmótin næstu mun
hann halda hrútasýningar í Gull-
bringu- og Kjósarsýslu og verður öll-
um sýningum lokið nokkru fyrir miðj-
an mánuðinn. í viðtali við Tímann
hefir Halldór látið svo um mælt, að
sýningarnar hafi yfirleitt verið vel
sóttar, sérstaklega þó í Vestur-Skafta-
fellssýslu. Þótt Halldór hafi eigi farið
um þessi héröð áður í þessum erinda-
gerðum, þá telur hann sýnilegt, að auk-
inna kynbóta gæti talsvert og féð sé
yfirleitt að batna. Þótt ennþá sé í
Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafells-
sýslu og sumum sveitum Árnessýslu
mikill fjöldi gallaðra hrúta, þá er þar
að finna ágæta einstaklinga innan um.
í sumum þessara sveita eru nú til
miklu betri hrútar en áður. Þótt til
sé í uppsveitum Vestur-Skaftafellssýslu
sæmilega vænt fé, virðist víðast tiltölu-
lega lítið hafa verið gert til þess að
kynbæta það með tilliti til nútima
markaðar. í Hvammssveit í Mýrdal er
að komast upp mjög góður fjárstofn af
Kleifakyni, ættað frá Ólafsdal og Ósi í
Steingrímsfirði. Kynstofn þessi heíir
að nokkru borizt austur þangað frá
Núpstúni í Hrunamannahrepi og er
kominn út af Óðni frá Ólafsdal, forföð-
ur hrútanna, er silfurskjöldinn hafa
hlotið á sýningunum i Hrunamanna-
hreppi. Út af þessum hrút hefir komið
mikið af sérstaklega góðum kindum,
þar á meðal nokkrir af beztu hrútun-
um, sem finnast á Suðurlandi. Eins
og frá var skýrt hér í blaðinu nýlega,
fengu 15 hrútar alls fyrstu verðlaun
í Hvammssveit, þar á meðal 4 hrútar
frá Suður-Vík.
t t t
Skógræktarfélag hefir verið í Skaga-
firði síðustu sjö árin. Telur það nú um
80 meðlimi. Ýmsar framkvæmdir hefir
félagið ráðizt í. Meðal annars keypti
það á sinum tíma landsvæði, tíu dag-
sláttur að stærð, í grennd við Varma-
hlíð. Liggur það beggja megin vegar-
ins upp á Vatnsskarð. í þetta lands-
svæði hefir verið gróðursett talsvert af
trjáplöntum, haldin þar skógarræktar-
námskeið og á annan hátt verið hlynnt
að reitnmn og miðað að því að glæða
(Framh. á 4. síSu)
Voroschilow,
yfirhershöfðingi rússneska hersins.
Lausafregnir herma, að hann muni
bráðlega fara í opinbera heimsókn
til Berlínar.
fresti. Rússnesk sendinefnd er
komin til Berlínar til að greiða
fyrir þessum viðskiptum, sem
verða mörgum sinnum stór-
felldaxi en nokkur dæmi eru áð-
ur til í viðskiptasögu þessara
þjóða.
2. Þjóðverjar tóku nýlega am-
erískt vöruflutningaskip, City of
Flint, og fóru með það til rúss-
nesku Hvítahafshafnarinnar
Murmansk. Fengu þeix þar að
skoða farm skipsins og haga sér
á allan hátt eins og þeir væru í
þýzkum hafnarbæ. Er það full-
komið einsdæmi, að hafnarbæir
landa, sem telja sig hlut-
laus, séu notaðir þannig af ó-
friðarþjóð. Mótmælum Banda-
ríkjastjórnar gegn þessari óhæfu
hafa Rússar svarað með útúr-
snúningum. Atburður þessi hef-
ir vakið feikna gremju í Banda-
rikjunum, bæði í garð Þjóðverja
og Rússa, og er talið að hann
muni mjög greiða fyxir afnámi
hlutleysislaganna.
3. Rússneska stjórnin hefir
nýlega mótmælt siglingabanni
Breta með næstum sama orða-
lagi og verið hafa á yfirlýsingum
þýzku stjórnarinnar um þessi
mál. Segir hún t. d. að siglinga-
bannið, sem hafi það markmið
að svelta konux og börn, sé engu
mannúðlegra en loftárásir, en
(Framh. á 4. síðu)
Aðrar fréttlr.
Tilkynnt hefir verið, að Paa-
sikivi muni fara aftur til
Moskva á morgun með svör
finnsku stjórnarinnar við kröf-
um rússnesku stjórnaxinnar.
Ekkert hefir verið opinberlega
birt um kröfur Rússa, en flest
bendir til, að Finnum þyki á-
standið mjög ískyggilegt, því
hernaðarlegur viðbúnaður hef-
ir verið stóraukinn seinustu
dagana.
í undirbúningi er gagnkvæm-
ur öryggissáttmáli milli Tyrk-
lands, Iraks, Iran og Afghan-
istan. Þykja þetta merkileg tíð-
indi, því afstaða þessara landa
getur orðið mikilvæg fyrir
Bandamenn í styrjöldinni og
Rússax hafa gert sitt ítrasta til
að vinna hylli þeirra.
Píus páfi XII. hefir sent út
fyrsta heimsbréf sitt. Segir þar
m. a„ að lítilsvirðing fyrir
samningum og gefnum loforð-
um sé höfuðorsök þess hörmu-
lega ástands, sem nú ríkir.
125. blað
JF
A viðav&ngi
Bóndi, sem nýlega kom á rit-
st j órnarskrif stof u Tímans, lét
svo um mælt, að sér virtist fjár-
málastefna Sjálfstæðisflokksins
næsta kynleg um þessar mundir,
ef marka mætti blöð flokksins.
Þau segöu að tolltekjur ríkisins
myndu lækka stórum, sökum
minnkandi innflutnings. En þær
einu ákveðnu tillögur, sem þau
hafi borið fram vegna þessa nýja
ástands, væru afnám ríkisverzl-
ana, lækkun skatta á hátekju-
mönnum og heyrzt hafi að kaup-
menn vildu ennfremur láta
draga úr tollgæzlunni! Þessi
stefna virtist sér einna líkust því,
að bóndi, sem þyrfti að þrengja
að sér vegna aukinna fjárhags-
erfiðleika, byrjaði á því að skera
arðsömustu mjólkurkýrnar!
* * *
Vísir segir í gær að útgerðar-
menn fái ekki að ráðstafa er-
lendum gjaldeyristekjum sínum
líkt og S. í. S. í sambandi við
þetta þykir rétt að taka það
fram, að Framsóknarflokkurinn
bauðst til þess í vetur, þegar
samningar stóðu yfir milli flokk-
anna um stjórnarmyndun, að
stuðla að því, að innkaupafélög
útgerðarmanna fengju frjálsan
gjaldeyri til greiðslu á nauð-
synjavörum útgerðarinnar. Enn
hefir ekkert verið gert til að
þiggja þetta boð, þótt það væri
útgerðarmönnum sjálfum fyrir
beztu. Ástæðan til þess er sú, að
þetta myndi svipta nokkxa
kaupmenn talsverðum gróða.
í þessu, eins og flestu öðru,
ráða kaupmannahagsmunirnir í
Sjálfstæðisflokknum mestu, og
fyrir þeim verða framleiðend-
urnir að beygja sig. Þetta er ein
af mörgum sönnunum þess, að
hagsmunir framleiðenda og
kaupmanna fara ekki saman.
* * *
Á öörum stað hér í blaðinu er
getið samþykktar um sambands-
málið, sem nýlega var gerð á
fundi Félags ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík. Þeirrar
skoðunar virðist gæta nokkuð, að
ekki sé tímabært að ræða þetta
mál meðan styrjöldin standi yfir
og fullkomin óvissa ríki um rás
heimsviðburðanna í náinni
framtíð. Á fundinum færði for-
maður S. U. F. rök að því, að
þessi skoðun væri byggð á full-
komnum misskilningi. Það varð-
aði einmitt mjög miklu, að ís-
lendingar létu nú engan bilbug
á sér finna í sjálfstæðismálum
sínum og sýndu það skýrt og
skorinort, að það væri samhuga
vilji þeirxa, að taka öll sín mál í
sínar hendur við fyrsta tæki-
færi.
* * *
Ræðumaður byggði þessa skoð-
un sína á því, að annars gæti
það álit skapazt meðal erlendra
þjóða, að íslendingar treystu sér
ekki til að fara með öll mál sín
og teldu sig þurfa að hafa stjórn-
arfarslegan stuðning af annari
þjóð. Þar sem reynslan sýndi, að
að hin litilvægustu tilefni væri
nú notuð af yfirgangssömum
stórveldum til að undiroka smá-
þjóðirnar, gæti slíkur bilbugur
hjá íslendingum hæglega orðið
þess valdandi, að eitthvert stór-
veldið gerði tilkall til valda hér á
landi með þeirri forsendu, að fs-
lendingar treystu sér hvort eð er
ekki til að vera fullkomlega
sjálfstæðir og þeir gætu þá alveg
eins verið í stjórnarfarslegu sam-
bandi við sig og Danmörku. Með
því að halda fast fram kröfunni
um fullkomið sjálfstæði íslands
væri þessari hættu afstýrt, og
enginn gæti réttlætt erlenda yf-
irgangsstefnu hér á landi með
slíkri forsendu.
„Athafnir og æfintýri".
Að gefnu tilefni skal það
tekið fxam, að Bergur Jónsson
bæjarfógeti er ekki höfundur
greinarinnar „Athafnir og æf-
intýri“, sem nýlega birtist í
Tímanum og var honum með
öllu ókunnugt um greinina fyrr
en hún var komin í blaðinu.
Ritstj. Tímans.