Tíminn - 28.10.1939, Blaðsíða 4
TÍMIM, lawgardaginn 28. okt. 1939
125. blat*
500
é
Yfir landamærin
1. Aðalgrein Morgunblaðsins I morg-
un væri afsakanleg, ef hún birt-
ist í ábyrgðarlausu stjórnarand-
stöðublaði eins og t. d. kommúnista-
blaðinu. En i blaði, sem styður ríkis-
stjórn á óvenjulega erfiðum tímum, er
hún bæði heimskuleg og illgjörn í
mesta máta.
2. Efni greinarinnar er það, að vegna
þess að kaupmönnum hafi ekki verið
leyft að birgja sig upp með vefnaðar-
vörur í sumar verði þjóðin að kaupa
þær miklu dýrara verði í framtíðinni.
Reynir blaðið að benda á þetta sem
sönnun þess, að höftin séu og hafi verið
til bölvunar. Því er þó mæta vel kunn-
ugt um, að þjóðin hefir tæpast haft
gjaldeyri til að greiða með daglega
notkun hinna brýnustu nauðsynja eins
og matvara, kola, olíu, salts o. s. frv.
og hefir litlum birgðum getað safnað
af þeim vörum. Mun þó öllum koma
saman um, að slíkar vörur eigi að
ganga fyrir meira og minna óþarfri
vefnaðarvöru, sem þjóðin verður að
spara við sig, ef enn harðnar í ári. Er
það því í mesta móti furðulegt og
ósvífið, að blað, sem veit um þetta
ástand, skuli reyna að verja tortryggni
gegn gjaldeyrisnefnd fyrir að hafa ekki
látið birgja landið upp af vefnaðar-
vöru, meðan ekki var hægt að safna
birgðum af vörum, sem eru margfalt
nauðsynlegri, og ekki munu síður
hækka í verði.
3. Eigi væri þó gjaldeyrisástandið
betra, ef farið hefði verið að ráðum
Mbl. og vefnaðarvöruinnflutningurinn
hafður frjáls. Hefðu vefnaðarvöru-
kaupmennirnir fengið að flytja inn
jafnmikið af vefnaðarvörum síðan
höftin komu til framkvæmda og þeir
gerðu áður, hefði þjóðin eytt röskum
20 millj. kr. meira í erlendum gjald-
eyri á undanförnum 8 árum. Enginn
hefir orðið var við neina neyð, þótt
þessar 20 millj. kr. hafi verið sparaður,
og hennar myndi áreiðanlega ekki
verða vart, þótt sparnaðurinn yrði
mikiu meiri.
x+y.
Aukinn samdrátiur
(Framh. af 1. síðu)
samhljóða ummæli hafa verið í
yfirlýsingum þýzku stjórnarinn-
ar og þýzkum blöðum. Siglinga-
bann Breta byggist á viður-
kenndum alþjóðlegum reglum
og hefir auk þess mjög lítil
áhrif á hagsmuni Rússa, þar
sem þeir flytja lítið af vörum
til Þýzkalands sjóleiðina. Þessi
mótmæli Rússa eru því auðsjá-
anlega gerð eftir „pöntun“ frá
Berlín og eiga að veita Þjóðverj-
um siðferðilegan stuðning í á-
róðri þeirra gegn siglingabann-
inu, ekki sízt innan Þýzkalands.
Bandalag Þýzkalands og So-
vét-Rússlands er enn það nýtt
af nálinni, að margir eru enn
vantrúaðir á það. Þetta kemur
til af því, að mönnum gleym-
ist að lýðræðið og vestræn
menning er kommúnismanum
erfiðari þrándur í götu en naz-
isminn; að það er margfalt
minna bil milli rússnesku ein-
ræðisstefnunnar og þýzku ein-
ræðisstefnunnar en milli rúss-
nesku einræðisstefnunnar og
lýðræðisins. Það er lýðræðis-
skipulagið og vestræn menning,
sem kommúnistar innst inni og
réttilega telja höfuðandstæðing
sinn. Þess vegna hraðar Stal-
in sókn sinni til Norðurlanda,
sem halda merkjum lýðræðis-
ins einna glæsilegast á lofti.
Samvinna hans við Þjóðverja
hefir það markmið, að tortíma
lýðræðinu og öðrum beztu ein-
kennum vestrænnar menning-
ar. Án slíkrar eyðileggingar er
ÚB BÆNUIH
Einar Jónsson myndhöggvari.
Af vangá hafði gleymzt að geta þess
í síðasta blaði, að grein J. J. um Einar
Jónsson myndhöggvara væri ekki lokið.
Mun niðurlagið birtast í næsta blaöi.
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. 11, ferming, séra
Bjarni Jónsson; kl. 2, ferming, séra
Friðrik Hallgrímsson. í Laugarnesskóla
kl. 5, séra Þorgeir Jónsson í Neskaup-
stað í Norðfirði. — í kaþólsku kirkjunni
kl. 6,30 lágmessa, biskupsmessa kl. 9 ár-
degis, guðsþjónusta með prédikun kl. 6
síðdegis.
M. A. kvartettinn
syngur í Gamla bíó á morgun, sunnu-
dag, klukkan 3 síðlegis. Búast má við
mikilli aðsókn. Á söngskránni eru mörg
ný lög, meðal annars lög úr myndinni
Mjallhvít, sem sýnd var hér í sumar.
Stúdentafélag Reykjavíkur
heldur fyrsta fund sinn á þessum
vetri í Oddfellowhúsinu á mánudags-
kvöldið kemur. Hefst hann klukkan 8,30
síðdegis. Verða sjálfstæðismál íslend-
inga þar til umræðu og er Jónas Jóns-
son alþingismaður frummælandi. Er-
indi sinn kallar hann: Sjálfstæðismál-
ið og fáninn. Að lokinni ræðu frum-
mælanda fara fram umræður um mál-
ið. Ríkisstjórn og þingmönnum hefir
verið boðið á fundinn.
Falsarar dæmdir enn.
í gær var kveðinn upp í hæstarétti
dómur yfir fjórum mönnum, sem á-
kærðir. voru fyrir fölsun ávísana. Hinir
ákærðu voru Þórarinn Vigfússon og
Magnús Jónsson, er voru hvor um sig
dæmdir til tveggja ára betrunarhúss-
vinnu, Karl Kristensen, er dæmdur til
18 mánaða betrunarhúsvinnu, og Ragn-
ar Pálsson, sem dæmdur var til 4 mán-
aða fangelsisvistar, skilorðsbundið.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir sjónleikinn Brimhljóð á morg-
un. — Frumsýning á næsta viðfangs-
efni félagsins, sem er sjónleikurinn „Á
heimleið", verður á fimmtudag í næstu
viku.
Sigurvin Einarsson
kennari er fertugur á mánudaginn.
Klukkunni seinkað.
Ákveðið hefir verið að klukkunni
verði seinkað um eina stund eftir mið-
nætti í nótt. Verður þar með horfið
frá sumartímanum, sem gilt hefir frá
því í vor, og tekinn upp hinn venju-
legi tímareikningur.
Oddur Sigurgeirsson
hinn sterki af Skaganum, biður Tím-
ann að skila því til vina og kunningja,
að á morgun, þann 29. þ. m., á hann
sextugsafmæli og að þá vanti ekki
nema tíu ár þangað til hann verði sjö-
tugur. Oddur býr hjá Guðmundi Sig-
urðssyni fyrrverandi skipstjóra og unir
sér þar ljómandi vel.
barátta kommúnismans fyrir
heimsyfirráðunum vonlaus. Sig-
ur Bandamanna í styrjöldinni
þýðir, að ekki aðeins sókn naz-
ismans heldur líka sókn komm-
únismans verður stöðvuð. Magi-
notlínan er nú jafnt varnar-
veggur lýðræðisins gegn naz-
ismanum og kommúnismanum,
eins og hinn snjalli ritstjóri
sænska blaðsins, Göteborgs Sjö-
farts- og Handelstidning, hefir
komizt að orði.Þess vegna liggur
nú leið Stalins með Hitler, en
hitt er þó víst, að ef hann sér
að Hitler muni tapa, þá mun
hann svíkja þennan nýja vin
sinn og reyna að bjarga sjálfs
síns skinni eins og bezt hann
getur. Fari leikarnir þannig er
ekki ótrúlegt að rússneski ein-
valdurinn dragi á sig lýðxæðis-
grímuna í annað sinn.
Hversvegna hefír
innSiutmngur kaup-
Sélaga aukízt?
(Framh. af 1. síðu)
á, að hér kemur annað til greina,
sem veldur engu minna um það,
að innflutningsþarfir kaupfélag-
anna hlafa aukizt.
Viðskiptamenn kaupfélag-
anna eru að yfirgnæfandi
meira hluta bændur og smáút-
gerðarmenn. Árin 1931 og fram
á árið 1934 áttu bændur við
meiri fjárþröng að búa en dæmi
höfðu verið til áður um langa
hríð. Útflutningur landbúnað-
arafurða var þessi ár á milli
3—4 milj. kr. að vexðmæti, og
verðlag á innlendum markaði,
a. m. k. á sláturfjárafurðum,
eftir því. Af þessu leiddi um
skeið hina mestu örbirgð og
kyrrstöðu í sveitunum. Bygg-
ingar féllu að miklu leyti niður.
Nýjum framkvæmdum var
frestað og menn höfðu ekki einu
sinni efni á, að kaupa bygging-
arefni til þess að dytta sóma-
samlega að húsum sínum. Allt
var sparað, sem unnt var að
vera án. T. d. munu fatakaup og
allskonar áhaldakaup hafa ver-
ið felld niður, svo sem frelcast
var kostur á. Jafnvel brýnustu
nauðsynjar, eins og kaffi, syk-
ur og kornvara, voru áreiðan-
lega einnig sparaðar mjög frá
því, sem venja hafði verið.
Rétt um sama leyti og' inn-
flutningshömlurnar voru settar
í sinni núverandi mynd, þ. e. ár-
ið 1935, fer þetta ástand að
breytast til batnaðar og síðustu
árin, 1936—1938, er fjárhagsaf-
koma landbúnaðarins alveg
gerbreytt frá því, sem var. Út-
flutningsverðmæti landbúnaðar-
afurða er orðið að meðaltali
þessi ár á milli 8—9 milj. króna,
og hefir því meira en tvöfald-
azt frá því, sem var fyrir 1935.
Verðlagi á innlendum markaði
hefir þá einnig verið breytt stór-
um í vil bændastéttinni.
Á sama tíma hefir verið veitt
^llverulegu nýju fjármagni til
bygginga í sveitum landsins,
bæði endurbygginga á eldri hús-
um og til nýbýla.
Það verður ekki nákvæmlega
mælt né vegið hver áhrif þessi
gerbreyting verðlagsins hefir
haft á afkomu bændanna og
þeirra skylduliðs, og þá um leið
á eftirspurnina eftir nauðsynja-
vörum hjá kaupfélögunum. En
það er víst, að breytingin er gíf-
urleg frá því sem áður var. Allt
hafði verið sparað. Menn höfðu
orðið að stöðva eðlilega þróun
landbúnaðarins og fresta inn-
kaupum nauðsynja svo sem frek-
ast var unnt. Nú sköpuðust
möguleikar til þess að bæta úr
sárustu vandræðunum og til
þess að gera nauðsynlegar end-
urbætur á íbúðarhúsum og úti-
húsum, ásamt nýjum fram-
kvæmdum, t. d. byggingu safn-
gryfja, hlaða, súrheysgryfja o.
s. frv.
AÖstaffan var gerbreytt, og
svo framarlega, sem ekki átti að
meina bændunum aff afla sér
þeirra nauðsynja til fatnaffar
og nauffsynlegra framkvæmda á
búum sínum, sem þeir höfffu orff-
314 William McLeod Raine:
bara hræddur um að hann reyni það,
mér sýnist helzt að hann sé að hugsa
um það.
— Þú hefir gert allt fyrir mig, Molly,
sem í þínu valdi stendur, sagði Barnett
lágt en ákveoið.
Oakland hló grimmdarlega.
Ykkur finnst það kannske, þér og
henni, en ég verð að segja að ég er þar
á annarri skoðun. Hann leit á Molly:
— Alveg eins og þú vilt, stúlka mín, ég
vil ekki neyða þig til neins. Jæja Tex-
asbúi, nú förum við af stað, þú og ég.
Gerðu engin axarsköft. Þú ert hættu-
legur maður og taugar mínar eru á viss-
an hátt óstyrkar. Ég gæti á hverri
stundu orðið hræddur um að þú ætlaðir
að flýja og skotið þig. Ég vona að þú
skiljir mig, svo að þú verðir góða barn-
ið.
Molly skildi þá ógurlegu ógnun, sem
lá að baki þessara orða. Hann myndi
myrða Barnett þegar honum sýndist og
segja svo að hann hefði reynt að flýja.
Sú afsökun myndi sennilega reynast
næg, þar sem Barnett var flóttamaður.
— Hvað áttir þú við þegar þú sagðir
að ég gæti fengið þig til að skipta um
skoðun viðvíkjandi herra Barnett?
spurði hún utan við sig.
Oakland yppti öxlum.
— Ég held að mér hafi fundizt, að ef
FlóttamaSurinn frá Texas 315
ég væri hamingjusamur maður, sem
ekki hugsaði um annað en hjónaband
og hefði hjá mér elskandi konu, sem
ætlaði að verða brúður mín, ja, þá
myndi ég tæplega hafa tíma til þess að
líta eftir undansloppnum glæpamanni.
— Hvað myndir þú gera við hann?
— Það gæti jafnvel verið að ég tæki
af honum armböndin og sleppti honum.
Ég var ekki kosinn sýslumaður hvort
sem var og mér finnst í raun og veru
lítil ástæða til þess fyrir mig, að gera
skítverkin, sem Steve Walsh á að gera.
— Allt saman lygi, sagði Barnett með
ákefð. — Trúðu ekki einu orði af því,
sem hann segir. Hann myndi ekki sleppa
mér fyrir nokkurn mun. Hann myndi
drepa mig eftir sem áður, þegar hann
hefði þig á valdi sínu. Getur þú ekki séð
það sjálf?
— Myndir þú sleppa honum núna?
— Undir eins og klerkurinn hefði
plægt okkur saman, jómfrú góð, svar-
aði Oakland.
— Þetta sagði ég þér, sagði Barnett.
— Ég fæddist ekki í gær, sagði Oak-
land. — Enginn getur látið mig fá rauð-
an belg fyrir gráan. Ég sendi til bæjarins
eftir klerki og við verðum gift í kvöld.
Þá getur Barnett lagt af stað. Er þetta
ekki sanngjarnt?
— Hvers vegna getur þú ekki verið
iff aff neita sér um undanfariff,
þá hlaut hlutfallsleg þátttaka
þeirra í heildarinnflutningnum
aff aukast.
Ef menn viðurkenna stað-
reyndir og játa, að þátttaka
bændanna í innflutningnum
hlaut að vaxa, þá er aðeins eftir
að svara því, hvort efflilegra var,
að þeir hefðu leyfi til þess aff
kaupa inn vörur sínar hjá sín-
um eigin félögum eins og verið
hafffi, effa hvort þaff átti að
neyffa þá til þess aff kaupa þær
hjá öðrum, og þá um leiff lama
og sundra félagsskap þeirra.
Það eiu þær ástæður, sem nú
hafa verið raktar, sem hafa
valdið því, að innflutningur
kaupfélaganna hefir farið nokk-
uð vaxandi hlutfallslega hin síð-
ari ár miðað við innflutning
annarra verzlana.
Vöxtur kaupfélagsviðskipt-
anna er ekki til orðinn þannig,
að þau hafi vegna aukinna inn-
flutningsleyfa eftir „höfðatölu-
reglunni" verið þess megnug, að
draga til sín viðskipti á óeðli-
legan hátt frá kaupmönnunum,
og að menn hafi horfið til þeirra
í allsnægtir, þegar kaupmanna-
verzlanirnar hafa ekki getað
sinnt óskum manna um vöru-
kaup.
„Höfðatölureglan" hefir þvert
á móti verið framkvæmd þann-
ig, að hlutfallsleg aukning inn-
flutningsleyfanna til kaupfé-
laganna hefir aldrei orðið til
jafns við vaxandi vöruþörf
þeirra.
Þarf mönnum ekki að koma
sú niðurstaða á óvart, þegar
menn athuga þær breytingar,
sem orðið hafa á afkomu og
kaupgetu í sveitum landsins
annars vegar, sem bent hefir
verið á að framan, og hina til-
tölulega litlu aukningu á hlut-
fallslegum innflutningi kaupfé-
laganna hins vegar. Það virðist
því ekki vafa undirorpið, að ein-
mitt framkvæmd innflutnings-
haftanna hefir orðið til þess að
draga úr hlutfallslegum við-
skiptum kaupfélaganna, en ekki
til þess að auka þau óeðlilega.
Er rétt að víkja enn nánar
að þessu aðalatriöi í ágreiningi
þeim, sem verið hefir um þessi
mál.
Mestum ágreiningi hefir ætíð
valdið skipting innflutnings á
vefnaðarvörum, skófatnaði, bús-
áhöldum og byggingarefni, enda
hefir allmikið verið dregið út
innflutningi allra þessara vara.
Hafi hlutur kaupfélaganna því
verið dreginn óeðlilega fram við
framkvæmd haftanna, ætti það
fyrst og fremst að koma fram í
því, að þau hefðu átt eða ættu
að eiga auðveldara með að sjá
viðskiptavinum sínum fyrir
þessum vörum heldur en kaup-
menn, og gætu með því móti
dregið viðskiptin óeðlilega mik-
ið til sín. Þessu er hinsvegar
ekki til að dreifa, heldur þvert
á móti hinu gagnstæða, og liggja
fyrir þær upplýsingar því til
stuðnings, er nú skal greina.
Á árinu 1938 var svo mikili
skortur á vefnaðarvöru hjá
kaupfélöguþum, að þau gátu
hvergi nærri fullnægt eftir-
spurninni, og má segja, að það
út af fyrir sig gefi ekki verulega
tii kynna, hvort þau hafi’ verið
betur eða verr farin en kaup-
menn. En hitt virffist skera alveg
úr um þaff, að kaupmenn voru
betur settir, að á því ári keyptu
kaupfélögin af kaupmanna-
verzlunum í Reykjavík vefnaff-
arvörur fyrir tugi þúsunda
króna. Á sama hátt hafa kaup-
félögin orðiff að kaupa gúmmí-
skófatnaff hjá verzlunum í
Reykjavík til þess að bæta úr
brýnustu þörfum félagsmanna
sinna.
Búsáhöld hafa félögin einnig
orðið að kaupa á sama hátt frá
kaupmönnum í Reykjavík, og
það er því rniður ekki óalgengt,
aff á sama tíma, sem verzlanir
í Reykjavík gera ítrekaffar til-
raunir, sumar meff árangri, til
þess aff koma inn dýrum gler-
vörum upp í búsáhaldaleyfi sín,
þá er ógerningur aff fá nauffsyn-
leg bollapör og affra leirvöru í
kaupfélögunum úti á landi.
Um byggingarefni er það að
segja, og er á almanna vitorði,
að þrátt fyrir nokkuð aukin
byggingarefnisleyfi til kaupfé-
laganna hlutfallslega frá því
sem áður var, er þaff ekki óal-
gengt aff viffskiptamenn kaup-
félaganna hafi neyffst til þess
aff kaupa byggingarefni hjá
kaupmönnum, einkanlega í
Reykjavík. Jafnvel S. í. S. keypti
< — —gamla bíó ———■
Hver var
„refurmn44?
Framúrskarandi spennandi Cow-
boy-mynd, gerð eftir einni af
hinum frægu Vesturheimsskáld-
sögum Clarence E. Mulford, um
afreksverk Hopalong Cassidy.
AÐALHLUTVERKIN LEIKA:
WILLIAM BOYD,
JIMMY ELLISON,
STEPHAN MORRIS.
NÝJA BÍÓ—
id.i
rísatrjáama
Amerísk stórmynd frá
Warner Bros.
Aðalhlutv. leika:
CLAIRE TREVOR
og
WAYNE MORRIS. !
Öll myndin er tekin í j
eðlilegum litum. j
Grula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
Í heildsölu hjá
Samband iaLsamvinnufélaga
Síml 1080.
á árinu 1938 byggingarefni í
Reykjavík fyrir 44 þús. kr. án
þess að leggja til innflutnings-
leyfi. Má geta nærri, að slíkar
ráðstafanir eru ekki gerðar
nema út úr neyð.
Eftir að þessi reynd lá fyrir
var að vísu gerð breyting til þess
að leiðrétta þetta að nokkru, en
þó mun sagan hafa endurtekið
sig á þessu ári.
Það er því áreiðanlegt, að á
sama tíma, sem kaupfélögunum
hefir verið það um megn að
fullnægja eftirspurn eftir þess-
um nauðsynjum, hafa kaup-
mannaverzlanir talið sig af-
lögufærar. Það ætti að vera ó-
þarfi að taka það fram, að yfir
þessu er ríkjandi óánægja með-
al þeirra manna, sem eru í kaup-
félögum, og sem líta þannig á,
að það sé óheilbrigt, að þeir ekki
geti fengið þessar höfuðnauð-
synjar hjá félögunum, fyrst á
annað borð er leyft að flytja þær
til landsins.
Það, sem hér hefir verið rak-
ið, ætti að nægja til þess að
sýna það, að hlutfallsleg aukn-
ing á innflutningi kaupfélag-
anna hefir verið leyfð af brýnni
nauðsyn, og að því fer fjarri að
þeim hafi verið sköpuð skilyrði
til óeðlilegs vaxtar á kostnað
annarra. Ennfremur ættu menn
að geta orðið sammála um, að
ókleift er að standa á móti þeirri
eðlilegu kröfu að framkvæmd
innflutningshaftanna sé hagað
svo, að menn geti valið um það,
hvort þeir vilji heldur hafa við-
skipti sín við kaupfélög eða
kaupmenn.
Esja
fer vestur um land þriðju-
dag 31. þ. m. kl. 9 s. d.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir og flutningi skilað á
mánudag.
I '■■■■ 1
Leihfélag Reyhjjwvíkur
„Brímhljóð1
Sýniiig á morgnn kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
A krossgötum.
(Framh. af 1. síðu)
skógræktaráhugann. Einnig hafa skóla-
börn plantað skógarplöntum við
Varmahlíð og Birkihlíð í Staðarhreppi.
Gáfu hjónin, er þar búa, dálítinn reit
til skógræktar og hafa verið settar þar
niður skógplöntur. Loks hafa verið frið-
aðar, með tilstyrk skógræktar ríkisins,
þær einu skógarleifar, sem eftir voru í
héraðinu. Eru þær í Hrolleifsdal, upp
af Sléttuhlíð. Hefir þegar verið unnið
allmikið í þágu skógræktarmálanna I
Skagafirði, þótt vonandi verði meira
gert í framtíðinni.
Meðfylgjandi mynd hefir birzt í þýzkum blöðum. Er hún frá máltíð pólskra
hermanna, sem Þjóðverjar hafa tekið til fanga. Mjög hefir farið tvennum
sögum um meðferð fanganna. Ætlunin mun, að nota þá, sem ekki verða
sendir heim, til ýmsrar erfiðisvinnu þar sem þeir hafa ekki aðstöðu til
að valda tjóni.