Tíminn - 31.10.1939, Qupperneq 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJ ÓRNARSKRIFSTOFUR :
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavík, þriðjudaglim 31. okt. 1939
126. blað
Játníng Morgunblaðsins
Blaðið viðurkennir |>að sjónarmið fyrrver-
andi f jármálaráðherra, að rikisútgjöldin
verði ekki lækkuð að ráði „nema gripið sé
inn á verksvið, sem allir eru sammála um,
að séu i eðli sínu gagnleg og nauðsynleg
a
Blöð Sjálfstæðisflokksins
hafa á undanförnum árum
haldið uppi þrálátum árás-
um á fyrrverandi fjármála-
ráðherra, Eystein Jónsson,
og stjórn hans á fjármálum
ríkisins. Þau hafa fullyrt að
lækka mætti útgjöld ríkis-
ins stórlega, ef hætt yrði
þeirri „óþörfu eyðslu og ó-
hófi“, sem nú ætti sér stað
í ríkisrekstrinum.
Eysteinn Jónsson hefir m. a.
svarað slíkum árásum á þá leið,
áð óska eftir tillögum frá Sjálf-
stæðismönnum um niðurskurð
þeirrar „óþörfu eyðslu og óhófs“,
sem þeir væru að tala um, og
myndi Framsóknarflokkurinn
fús áð taka allt slíkt til velvilj-
aðrar athugunar.
Þótt kynlegt megi virðast hafa
forvígismenn Sjálfstæðisflokks-
ins jafnan færzt undan þessum
óskum og aldrei fengizt til að
standa við orð sín um „eyðsluna
og óhófið“ með því að leggja
fram slíkar tillögur eða nefna
einhver ákveðin atriði til marks
um það, sem þeir kölluðu „fjár-
sukkið í ríkisrekstrinum."
Jafnframt því að beina slíkum
áskorunum til Sjálfstæðismanna
hefir Eysteinn Jónsson haldið
því fram, að meginhlutinn af
útgjöldum fjárlaganna væri
bundinn af sérstökum lögum,
sem yfirleitt allir stjórnmála-
flokkar viðurkenndu nauðsyn-
leg og þakka sjálfum sér nú
orðið, að hafa komið í fram-
kvæmd. Útgjöld ríkisins yrðu
því ekki lækkuð, sem neinu
næmi, öðruvísi en að dregið
væri úr framlögum, sem allir
teldu sjálfsögð á venjulegum
tímum og stjórnarandstæðing-
ar hefðu ekki lagt til að felld
yrðu niður.
Þessu hafa forvígismenn og
blöð Sjálfstæðisflokksins mót-
mælt. Þau hafa fullyrt að út-
gjöldin mætti lækka um marg-
ar miljónir króna með því að
skera niður „óþörfu eyðsluna og
óhófið", en ákveðin dæmi hafa
þau forðast að nefna þessum
staðhæfingum sínum til stuðn-
ings.
Þegar athugaður er þessi að-
dragandi og það jafnframt, að
Sj álfstæðisf lokkuxinn
fengið yfirstjórn fjármálanna í
sínar hendur og verður nú að
gera ábyrgar tillögur um þau,
hlýtur játningin, sem Mbl. gerir
í þesssum málum síðastliðinn
fimmtudag, að teljast hin at-
hyglisverðasta.
Játningin er í aðalgrein blaðs-
ins þennan dag. Fjallar grein-
in um afgreiðslu fjárlaganna á
haustþinginu og segir blaðið í
upphafi hennar að nauðsynlegt
verði að stórlækka útgjöldin.
Víkur það þar næst að því, á
hvern hátt það verði gert og
segir til að byrja með:
„Það eru að vísu margir smá-
ir útgjaldaliðir á fjárlagafrum-
varpinu, sem mega og verða að
hverfa nú, en þeir einir nægja
ekki til þess að fá fjárlög, sem
forsvaranlegt er að afgreiða á
þessum tímum.“
Blaðið nefnir ekki nánar,
hverjir þessir smáu útgjalda-
liðir eru, en sennilega eru það
ýmsir smástyrkir, sem ekki eru
síður komnir inn fyrir tilverkn-
að þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins en annarra.
Blaðið kemur nú að hinum
margnefndu rikisstofnunum og
segir:
„Einnig má án efa spara mik-
ið fé, með því að leggja niður
sumar af hinum dýru, en óþörfu
ríkisstofnunum og sameina hin-
ar, sem nauðsynlegt þykir að
ríkið reki áfram.Sjálfsagt er að
vinna að þessu, en það nægir
heldur ekki til þess að koma
ríkisútgjöldunum svo langt nið-
ur, sem nauðsynlegt er.“
Ef dæma má eftir fyrri skrif-
um íhaldsblaðanna eru það
ríkisverzlanirnar, sem blaðið
nefnir hinar „óþörfu stofnanir."
Þær veita allar meiri tekjur en
útgjöld svo niðurlagning þeirra
(Framh. á 4. síöu)
Fundahöld Fram-
sóknarilokksíns á
Vestfjörðum
Frá ferðalagi Skúla
Guðmundssonar
Skúli Guðmundsson alþm. kom
til bæjarins sl. laugardag úr
fundaferð um Vestfirði. Tilefni
ferðar hans var það, að mið-
stjórn F r a m s ó k n a r flokksins
hefir hafði fengið tilmæli frá ýmsum
Framsóknarmönnum á Vest-
fjörðum um að senda mann,
kunnugan landsmálum, þangað
vestur til að ræða við flokksfé-
lögin um stjórnmálaviðhorfið.
Tíminn hefir spurt Skúla
frétta af ferðalaginu og fer frá-
sögn hans hér á eftir:
Framsóknarmenn boðuðu til
almenns landsmálafundar í
Reykjanesi við ísafjarðardjúp
sunnudaginn 22. okt. Ég talaði
þar af hálfu Framsóknarflokks-
ins, Finnur Jónsson alþm. fyrir
Alþýðuflokkinn og Sigurður
Kristjánsson alþm. fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Auk okkar
þriggja fluttu ræður á fundinum
þeir Aðalsteinn Eiríksson skóla-
stjóri, Kristján Jónsson frá
Garðsstöðum, Jón H. Fjalldal
bóndi á Melgraseyri, Baldur
Johnsen læknir og Bjarni Sig-
urðsson bóndi i Vigur.
Sigurður Kristjánsson talaði
m. a. mikið um hátt vöruverð
og milliliðagróða á undanförn-
um árum. Hann sagði, að kaup-
mennirnir hefðu „blásið upp eins
og gorkúlur“ og ennfremur taldi
hann að Samband ísl. samvinnu-
félaga hefði grætt 20—30 mill-
jónir króna síðustu árin! Okrið
og milliliðagróðann taldi hann
hafa vaxið i skjóli innflutnings-
haftanna, sem Framsóknarmenn
hefðu komið á og haldið við,
þjóðinni til stórskaða. Sigurður
taldi að tekjur ríkisins myndu
lækka af völdum styrjaldarinn-
ar, og þjóðin gerði þær kröfur til
Alþingis, að útgjöld ríkisins yrðu
lækkuð. Ennfremur að höftum
yrði aflétt.
Finnur Jónsson óskaði að fá
að heyra tillögur Sjálfstæðis-
manna um útgjaldalækkun, en
Sigurður varðist allra frétta um
þær að svo stöddu.
(Framh. á 4. siöu)
Eitt af orustuskipum brezka flotans.
Yfirráðin á liafinu
Ylírlit um herfloia stórveldanna
Fram til þessa hefir styrjöld-
in verið fyrst og fremst háð á
sjónum. Yfirráðin yfir siglinga-
leiðum munu nú eins og í styrj-
öldinni 1914—1918 valda mestu
um úrslit styrjaldarinnar, ef
hún verður langvinn.
Til fróðleiks fer hér á eftir
yfirlit um flotaeign sjö helztu
stórveldanna um seinustu ára-
mót. Er það tekið úr bók, sem
sænski liðsforinginn, K. A.
Bratt, hefir nýlega skrifað um
vígbúnað stórveldanna. Við
samning bókarinnar mun hann
hafa stuðst við upplýsingar frá
sænska hermálaráðuneytinu.
Bretland: Bretar áttu í sein
ustu árslok 15 orustuskip (470
þús. smál.), 6 flugvélaskip (115
þús. smál.), 60 beitiskip (416
þús. smál.), 160 eltingarskip og
tundurspilla (198 þús. smál.),
53 kafbáta (55 þús. smál.) og
185 smærri skip, sem notuð eru
til hernaðarþarfa. Alls áttu þeir
479 herskip, sem voru samtals
1.372 þús. smál. Á næstu þrem-
ur árum var ráðgert að fullljúka
5 stórum orustuskipum, 5 flug-
vélaskipum, 17 beitiskipum, 40
eltingarskipum og tundurspill-
um og 19 kafbátum. Eftir þann
tíma átti flotinn að vera orð-
inn 1.905 þús. smál.
Bandaríkin: Bandaríkjamenn
áttu í seinustu árslok 15 stór
orustuskip (464 þús. smál.), 5
Eínar Benediktsson
75 ára í dag
Einar Benediktsson skáld á
75 ára afmæli í dag. Jónas
Jónsson mun innan skamms
rita ítarlega grein í blaðið um
skáldið.
Á
Bifreiðaferðirnar til Akureyrar. — Sumarhitinn. — Frá háskólanum.
Dalvík. — Skákkeppni milli Akureyringa og Reykvíkinga.
Frá
Bifreiðasamgöngum milli Akureyrar
og Borgarness eru enn haldið uppi.
Allan október komst ferðafólk mjög
greiðlega á einum degi milli Akureyrar
og Reykjavíkur. Ferðirnar hafa jafnan
verið þrisvar í viku þennan mánuð. En
nú frá nóvemberbyrjun verða aðeins
tvær ferðir á viku til Norðurlandsins,
á þriðjudögum og föstudögum. Vegir
norður hafa fram að þessu verið svo
góðir og greiðfærir, eins og þeir eru
beztir um hásumar, að undanteknu
því, að nokkuð mikinn snjó lagði á
dögunum á Öxnadalsheiði. Var þá út-
lit fyrir að vegurinn yrði þá og þegar
algerlega ófær bifreiðum. En nú hefir
þennan snjó tekið upp aftur. Er þetta
í fyrsta sinn, sem Öxnadalsheiði er
fær bifreiðum alveg út október. Eins
og á undanförnum árum er það Bif-
reiðastöð Akureyrar, sem heldur uppi
haust- og vetrarferðunum til Norður-
landsins. Nú sem endra nær verður
þessum ferðum haldið áfram meðan
tök eru á.
t t !
Samkvæmt athugunum veðurstof-
unnar var meðalhiti sumarmánaðanna
fjögra, júní, júlí, ágúst og september,
12 stig i sumar. Er það mestur meðal-
hiti, sem verið hefir í Reykjavík þessa
mánuði, síðan veðurathuganir hófust í
Reykjavik árið 1880. Síðustu átján ár-
in hefir meðalhiti þessara sumarmán-
aða verið 9,9 stig. í fyrra 10,2 stig;
í hltteðfyrra 10 stig. Heitasti mánuð-
urinn í sumar var júlímánuður, 13 stig
til jafnaðar. í ágústmánuði var hann
12,3 stig, í septembermánuði 11,8 stig
og í júnímánuði 10,9 stig.
t t t
Hátíðahöld fóru fram í háskólanum
á iaugardaginn var.og er fyrirhugað, að
slík hátíðahöld komi framvegis í stað
hinnar venjulegu háskólasetningar. í
þetta siim innrituðust í háskólann 62
nýir stúdentar. Munu 5 þeirra nema
guðfræði, 28 læknisfræði, 18 lögfræði
og 11 innrituöust 1 heimspekideildina.
Alls stunda nú um 215 stúdentar nám
við háskólann hér, en erlendis voru
143 stúdentar að námi í fyrravetur.
En margir munu hafa orðið að hverfa
frá framhaldsnámi í ár. í ræðu, sem
Alexander Jóhannesson háskólarektor
flutti við hátíðahöldin, boðaði hann
þá ákvörðun háskólaráðs, að takmarka
framvegis aðgang að hinum fjölsótt-
ustu deildum háskólans, þar eð lög-
fræðingum og læknum fjölgi meir en
þörf sé á og þar af leiðandi litlir af-
komumöguleikar fyrír ýmsa, að loknu
löngu og ströngu námi. Á 38 árum hafa
153 útskrifazt úr lagadeild og 166 úr
læknadeild. Við framhaldsnám erlendis
eru um 35 læknanemar; læknishéruð
á landinu hins vegar 49 alis.
t t r
Á Dalvík við Eyjafjörð lauk slátur-
tíð 5. október. Alls var slátrað 4500
dilkum og reyndist meðalþyngd kropp-
anna 16.1 kgr., og var það betri meöal-
þyngd heldur en nokkru sinni fyrr.
Bezta meðalþyngd eins heimilis fékk
Eiður Sigurðsson í Ingvörum, 17.75 kgr.
Kroppurinn af vænzta dilkinum, sem
í sláturhúsið kom, vóg 26 kgr., en
vænsti dilkurinn, sem slátrað var á
Dalvík í haust, hafði 30 kgr. kjöts.
Hann var frá Sökku, skozkur kyn-
blendingur. Ein ær á Dalvík gaf af
sér nær 50 kgr. kjöts í haust. Hún var
þrílembd, átti tvær gimbrar og einn
hrút. Hrútnum og annarri gimbrinni
var slátrað og höfðu þau 16 og 17 kgr.
kjöts. Þriðja lambið lifir. Mun óvenju-
legt, ef ekki einsdæmi, að ein ær gefi
svo miklar afurðir. — Þar nyrðra hefir
öðru hvoru sézt talsvert af rjúpum, og
voru þær orðnar alhvítar fyrir miðjan
mánuðinn, þótt grös stæðu enn algræn
uppi á fjöllum. — Fiskafli hefir verið
sæmilegur á Dalvík og gæftir góðar,
en feiknarlega mikið af smokkfiski.
Flestir hinna stærri báta hættu veið-
um í fyrrihluta októbermánaðar, og
flugvélaskip (120 þús. smál.),
34 beitiskip (302 þús. smál.), 221
eltingarskip og tundurspilla
(271 þús. smál.), 90 kafbáta
(85 þús. smál.) og 66 smærri
skip. Alls áttu þeir 431 herskip,
sem voru samtals 1.296 þús.
smál. Á næstu þremur árum var
ákveðið að fullljúka 3 orustu-
skipum, 2 flugvélaskipum, 7
beitiskipum, 42 eltingarskipum
og tundurspillum og 16 kafbát-
um. Eftir þann tíma átti flot-
inn að vera orðinn 1.599 þús.
smálestir.
Japan: Japanir áttu í sein-
ustu árslok 9 stór orustuskip
(272 þús. smál.), 4 flugvélamóð-
urskip (70 þús. smál.), 39 beiti-
skip (270 þús. smál.), 124 tund-
urspilla og eltingarskip (149
þús. smál.), 62 kafbáta (82 þús.
smál.) og 46 minni skip. Alls
áttu þeir 284 herskip, sem voru
samtals 868 þús. smál. Á næstu
þremur árum var ráðgert að
fullljúka 2 stórum orustuskip-
um, 2 flugvélaskipum, 2 beiti-
skipum, 2 tundurspillum og 7
kafbátum. Eftir þann tíma átti
flotinn að vera orðinn 1.002
þús. smál.
Frakkland: Frakkar áttu í lok
seinasta árs 7 orustuskip (164
þús. smál.), 1 flugvélamóður-
skip (22 þús. smál.), 19 beitiskip
(155 þús. smál.), 72 eltingarskip
og tundurspilla (120 þús. smál.),
76 kafbáta (74 þús. smál.) og
64 smærri skip. Alls áttu þeir
239 skip, sem voru samtals 586
þús. smál. Á næstu þremur ár-
um var ráðgert að fullljúka
þremur orustuskipum, 2 flug-
vélamóðurskipum, 3 beitiskip-
um, 15 eltingarskipum og tund-
urspillum og 12 kafbátum. Eftir
þann tíma átti flotinn að vera
orðinn 799 þús. smál.
Ítalía: ítalir áttu í seinustu
árslok 4 orustuskip (95 þús.
smál.), 22 beitiskip (153 þús.
smál.), 144 eltingarskip og
tundurspilla (143 þús. smál.), 96
kafbáta (72 þús. smál.) og 122
smærri skip. Alls áttu þeir 388
skip, sem voru samtals 496 þús.
smál. Á næstu þremur árum
var ákveðið að ljúka smíði fjög-
urra nýrra orustuskipa, 12
beitiskipa og 14 kafbáta. Eftir
þann tíma átti flotinn að vera
orðinn 705 þús. smál.
Þýzkaland: Þjóðverjar áttu í
seinustu árslok 5 orustuskip
(82 þús. smál.), 10 beitiskip (75
þús. smál.), 34 tundurspilla (47
búa sig undir Suðurlandsvertíð, sem þús smáL)j 43 kafbáta (17 þús.
fyrirhugað er að hefja eftir áramótin.
t r r
Á sunnudagsnóttina fór fram skák-
keppni milli Taflfélags Akureyrar og
Taflfélags Reykjavíkur. Stóð keppnin
yfir í heilt dægur, alla nóttina, og
höfðu taflmennirnir eina símalínu.til
umráða, og var sambandinu aldrei
slitið allan tímann. Teflt var á tólf
borðum og urðu úrslit þau, að sunnan-
menn sigruðu með 7:5. Sigurvegarar
úr hópi sunnanmanna voru Konráð
Ámason, Sturla Pétursson, Sigurður
Gissurarson og Hannes Arnórsson. Af
norðanmönnum unnu Unnsteimi Ei-
ríksson og Guðmundur Jónsson sínar
skákir. Sex skákir urðu jafntefli.
(Framh. á 4. siðu)
AfSrar fréttlr.
Öldungadeild Bandaríkja
þingsins hefir samþykkt frv.
um afnám vopnasölubannsins
með miklum meirahluta. Er það
nú komið til fulltrúadeildar-
innar og er gert ráð fyrir, að
hún muni afgreiða það í þess
ari viku.
Æðsta ráð Sovét-Rússlands
hefir verið kvatt saman til
fundar í Moskva í dag og er bú-
izt við meiriháttar tíðindum
þaðan. Þykir m. a. sennilegt, að
Á viðavangi
Meðal þeirra ráðstafana, sem
Danir hafa gert sökum styrjald-
arinnar, er stórfelld hækkun
tekju- og eignaskattsins til að
mæta vaxandi útgjöldum ríkis-
sjóðs. Á síðastl. vori var tekju-
skatturinn þar hækkaður um
14%, en nú hefir hann verið
hækkaður til viðbótar um 40%.
Þá hefir álagning á tóbaki og
áfengi verið hækkuð þar í landi.
Álagning á tóbaki og áfengi hef-
ir einnig verið hækkuð í Svíþjóð.
Sýnir þetta, að stjórnendur
þesssara landa treystu sér ekki
til að lækka útgjöldin til jafns
við tekj urýrnunina, enda gera
þeir vafalaust ráð fyrir að styrj-
öldin krefjist nýrra útgjalda af
ríkissjóði, bæði til atvinnubóta
og hernaðarþarfa.
* * *
Það má alveg telja víst, að
styrjöldin muni hafa sumu áhrif
hér í þessum efnum og annars-
staðar á Norðurlöndum. Hér
myndast nýir útgjaldaliðir
vegna skömmtunarráðstafana,
matvælarannsókna, ýmsra
brýnna náttúrufræðirannsókna,
sem stuðla að bættri hagnýtingu
á gæðum landsins o. s. frv. Þá
þarf að gera öflugar ráðstafan-
ir til aukinnar ræktunar og
annars þess, er miðar að því að
þjóðin geti lifað sem mest á
sínu. Ekki er ótrúlegt að ríkið
þurfi að leggja sinn skerf til
slíkra framkvæmda. Þá þarf að
vinna gegn atvinnuleysinu og
fátækraframfærinu með því að
flytja fólk til lífvænlegri staða.
Þegar athugað verður þessi og
flei'ri slik verkefni, sem vafa-
laust munu hafa einhver út-
gjöld fyrir það opinbera í för
með sér, hlýtur flestum að vera
það ljóst, að til þess eru litlar
líkur að hægt verði að skera nú-
verandi útgjöld ríkisins svo frek-
lega niður, að útgjaldalækkun
geti bæði vegið gegn tekjurýrn-
uninni og nýjum óhjákvæmileg-
um útgjöldum.
* * *
Það er vitanlega alveg sjálf-
sagt að reynt sé að færa niður öll
þau útgjöld ríkisins, sem ekki
verða talin bráðnauðsynleg. En
það verður aldrei einhlítt. Ef
mæta á tekjurýrnuninni og nýj-
um útgjaldaliðum á þann hátt,
að ríkisreksturinn verði halla-
laus, verður að afla viðbótar-
tekna. Það virðist alveg sjálf-
sagt að hækka álagninguna á
tóbaki og áfengi eins og gert
hefir verið í Danmörku og Sví-
þjóð. Sömuleiðis virðist full-
komlega réttmætt að hækkaður
yrði skattur & hærri tekjum
einstaklinga. íhaldsblöðin hafa
haldið því fram að lækka ætti
laun hjá ríkinu, en til þess að
slíkt byggðist á sanngirni, verð-
ur að lækka hliðstæð laun
annars staðar. Það verður ekki
gert öðru vísi en með sköttum.
Um slíka tekjuöflun ætti því að
geta orðið samkomulag milli
flokkanna.
Rússar fari nú að láta Balkan-
málin meira til sín taka.
Finnska samninganefndir
leggur af stað til Moskva frá
Helsingfors í kvöld og fer húr
með lokasvar Finna til Rússa
Hefjast viðræðufundir að nýjv
sennilega á fimmtudaginn.
Bretar tilkynna, að Þjóðverj-
ar hafi sökkt fyrir sér í septem-
ber skipum, sem voru 156 þús
smál., og í október skipum, sen
voru 65 þús. smál. Frakkai
segja, að alls hafi verið sökk'
fyrir sér sex skipum, samtal:
41 þús. smál.
Alvarlegar ó e i r ð i r urðu
Tékkó-Slóvakíu um helgina, er
þá var afmæli tékkneska lýð-
veldisins, sem var stofnað 1918
Minntust Tékkar afmælisins
þrátt fyrir bann Þjóðverja, 0{
lenti sumstaðar í róstum mill
Tékka og þýzkra lögreglu
manna. Fregnir herma, að einn
ig hafi bryddað á alvarlegri óá
nægju innan austurríska hers
ins í Vínarborg.