Tíminn - 25.11.1939, Side 1
RITSTJÓRAR: '
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) j
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. :
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: \
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI: \
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN. j
S
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
23. árg.
Reykjavík, Isaugardagimi 25. nóv. 1939
A 1 |b i n g' :
Breytingar a log-
unnm um lögreglu
AðalSsreytingiii cr sá, að hægt verSi að flytja
lög'reglMinesim aiilli stalSa eftir |sörftim.
137. Mað
Flnnskar skriðdrekasveitir á leið um skógarþykkni að rússneskum landamœrum.
Sjóhernaður Pjóðverja
Hermann Jónasson for-
sætisráðherra hefir lagt
fram í efri deild frv. til laga
um breytingu á lögum um
lögreglumenn. Gerir það ráð
fyrir þýðingarmiklum end-
urbótum á núgildandi lög-
um.
Aðalbieytingarnar, sem felast
í frumvarpinu eru þrennskonar
og verður hér gerð grein fyrir
þeim í stuttu máli:
Þegar sérstaklega stendur á
eða dómsmálaráðherra telur
nauðsynlegt öryggi bæjar, að
lögregluliðið sé aukið meira en
lögin ákveða að það sé á venju-
legum tímum, getur ráðherra
bætt við varalögreglumönnum
og greiðir þá ríkissjóður allan
kostnað af þeirri ráðstöfun.
Samkvæmt núgildandi lögum
má ekki bæta við varalögreglu-
mönnum, nema að fengnum
tillögum bæjarstjórnar og skal
bæjarfélagið þá bera helming
kostnaðar. Af slíku getur leitt
töf, sem í ýmsurn tilfellum get-
ur reynzt óheppileg.
Þegar ríkissjóður tekur þátt
í kostnaði við lögreglulið bæjar
skal lögregluliðið, bæði fast lið
og varalið, skylt til að gegna lög-
reglustörfum, hvar sem er á
landinu, ef sérstaklega stendur
á og dómsmálaráðherra mælir
svo fyrir. Gæta skal þess þó
jafnan, aö halda eftir nægilegu
liði á þeim stað, sem lögreglu-
mennirnir eru fluttir frá. Til
skýringar skal þess getið, að
samkvæmt núgildandi lögum
greiðir ríkið y6 hluta kostnaðar,
sem leiðir af hinu venjulega að-
alliði, og kostnað við varalög-
reglumenn samkvæmt framan-
sögðu.
í sveitum landsins og kaup-
túnum, þar sem lögreglulið er
ekki starfandi, getur ráðherra
löggilt sérstaka menn til þess,
undir stjórn lögreglustjóra eða
hreppstjóra, að halda uppi reglu
á mannfundum og samkomum
innan héraða. Heimilt er að
efna til námskeiða fyrir þessa
menn.
Aukín framleíðslaog
notkun ísL prjónless
Starfsemí skrifsíef-
imnar Ísleíizk sill.
Tiðindamaður Tímans hefir
átt tal við frú Laufeyju Vil-
hjálmsdóttur, sem ásamt Önnu
Ásmundsdóttur veitir forstöðu
skrifstofunni íslenzk ull, er
stofnuö var í haust og hefir að-
setur sitt í Suðurgötu 22. Tók
skrifstofan til starfa um miðjan
þennan rnánuð. Hefir þangað
verið safnað miklu af fallegu
og vel unnu prjónlesi og tóvör-
um, svo að heita má, að þar sé
um beina prjónlessýningu að
ræða.
Laufey Vilhjálmsdóttir tjáði
blaðinu svo frá starfsemi skrif-
stofunnar:
— Að undanförnu hefir verið
stefnt að þvl að afla sem allra
beztra sýnishorna og fyrirmynda
að ýmiskonar prjónlesvarningi
og var að miklu leyti stuðst við
prjónlessýninguna í fyrra í þessu
efni. Einnig hefir verið viðað
að erlendum íyrirmyndum,
einkum norskum. Við þessar
íyrirmyndir er síðan fyrirhug-
(Framh. á 4. siSu)
AÖalbreyting frv. er fólgin í
öðru atriðinu, að lögreglulið sé
i'lytjanlegt milli staða. Hefir það
reynzt mjög mikill annmarki, að
ekki er t. d. hægt að færa lög-
reglu þaðan, sem minna er að
gera yfir sumarmánuðina, og
þangað, sem hennar er meiri
þörf, eins og t. d. á síldarvinnu-
stöðunum. Hefir þetta verið að-
algalli núgildandi lögreglulaga.
Sami ágalli hefir ekki síður
komið fram erlendis og hefir
víða verið bætt úr honum á
þann hátt, að gera alla bæjar-
lögreglu að ríkislögreglu. Greiðir
þá ríkið allan kostnaðinn við
lögregluna, en bæjarfélögin
endurgjalda sumstaðar nokkurn
hluta kostnaðarins. Það hefir
ekki þótt rétt að stíga þetta spor
til fulls hér, en hinsvegar ætlast
til með þessu frv. að gerð verði
sú breyting, sem bætir úr mesta
ágallanum. Þar sem gera má
ráð fyrir, að varalögreglumenn-
irnir eða einhver hluti lögreglu-
liðsins á þeim stað, sem þeir eru
aðallega, verði einnig notaðir
annarsstaðar, ef þörf krefur,
þykir rétt að ríkið beri allan
lcostnaðinn við varalögregluna.
Síðasttalda breytingin er gerð
til þess, að reynt verði að fyrir-
byggja óeirðir eða áberandi ölv-
un á skemmtistöðum út um
land, þar sem lögreglulið er ekki
til staðar. Hafa víða komið fram
óskir urn ráðstafanir í þá átt,
þar sem óspektarmenn hafa
stundum gert sér leik að því að
vera með uppvöðslusemi á slík-
um stöðum. Gerðist t. d. atburð-
ir í Þingeyj arsýslu síðastl. sum-
ar, er sýndi nauðsyn slíkra ráð-
stafana.
Að óbreyttum aðstæðum mun
ekki verða neinn verulegur
kostnaðarauki af þeirri breyt-
ingu, sem ráðgerð er í frum-
varpinu.
Að fyrirlagi Hennanns Jónassonar
forsætisráðherra fóru Pálmi Einarsson
ráðunautur og Gústaf E. Pálsson verk-
fræðingur nýlega austur í Álftaver til
þess, ásamt Jóni Þorsteinssyni í Norö-
ur-Vík, að athuga möguleika til örygg-
isráðstafana fyrir íbúa Álftavers, ef
til Kötlugoss kemur. Áttu þeir í þeirri
för fund að Herjólfsstöðum með flest-
um bændum byggðarlagsins. í Álftaveri
búa nú rösklega 100 manns og hefir
mannfjöldi haldizt þar lítt breyttur
hin siðustu ár. Alls eru í sveitinnl 10
jarðir, og eru þar af 2 eyðibýli, en tví-
býli á 4 jörðum. 5 jarðanna eru einka-
eign, 5 ríkiseign. Samkvæmt fasteigna-
mati, er heildarverð jarða og húsa í
Álftaveri alls 69.600 krónur. Þegar
Kötluhlaup koma, fellur vatnsflóðiö til
sjávar beggja vegna byggðarinnar. En
hólar að norðan hlífa sveitinni, svo að
flóðið klofnar í tvennt. Standa flestir
bæjanna á hólum, og fellur vatns-
flaumurinn milli þeirra og er venjulega
mestur fyrstu sólarhringana, einn eða
tvo. Fyrr á öldum hefir fólk farizt í
Kötluhlaupum og byggð eyðzt. í síðasta
hlaupi, 1918, voru menn, sem staddir
voru á Mýrdalssandi, hætt komnir, þótt
þeir björguðust undan. Að sjálfsögðu er
mjög erfitt að gera verulegar ráðstaf-
anir til þess að forða slysum af völd-
um Kötluhlaups, svo að haldi komi.
Þó hefir nefnd þessi lagt til að þessar
ráðstafanir yrðu gerðar: Lagður simi
á alla bæi í hreppnum, og séu síma-
línurnar lokaður hringur, þannig að
hægt sé að ná sambandi við alla bæina,
þótt síminn slitni á einum stað. Gerður
Alþing:
Tvískíptíng lögreglu
stjóraembættisíns
í Reykjavík
Hermann Jónasson forsætis-
ráðherra flytur i efri deild frv.
um dómsmálastörf, lögreglu-
stjórn, gjaldheimtu o. fl. í
Reykjavík. Aðalbreyting frv. frá
núgildandi lögum er sú, að
lögreglustjóraembættinu verði
tvískipt, í sakadómaraembætti
og lögreglustjóraembætti. Að
öðru leyti fjallar frv. um starfs-
svið lögmanns, sakadómara, lög-
reglustjórn og tollstjórn og er
gert ráð fyrir nokkrum breyting-
um á þeim, þannig að bætt verð-
ur við lögmann og tollstjóra
nokkrum verkefnum, er áður
hafa heyrt undir lögreglustjóra.
í greinargerð frv. segir m. a.:
„Með lögum nr. 67 frá 7. mai
1928, um dómsmálastarfa, lög-
reglustjórn, gjaldheimtu o. fl. í
Reykjavík, er svo fyrir mælt, að
í Reykjavík skuli vera tollstjóra-
embætti, lögmannsembætti og
lögreglustjóraembætti. í nefnd-
um lögum er einnig ákveðið, að
dómsvaldið skuli í lögreglu- og
flugvöllur á Mýrnahöfða, sem er einn
tryggasti staðurinn í sveitinni gegn
hlaupunum. Er þessi tillaga miðuð við
það, að hægt sé að flytja brott sjúka
og særða, ef á þarf að halda, og mat-
væli að. í stað skýla, sem talað hefir
verið um að reisa, sé bændum að Her-
jólfsstöðum og Hraungerði veitt fé til
endurbygginga á jörðum sínum, enda
séu húsin þannig gerð. að hægt sé að
veita móttöku fólki af nærliggjandi
bæjum. Öll ný bæjarhús séu reist á
hinum öruggustu stöðum, sem völ er á.
Á hverjum bæ sé til lúður, svo að hægt
sé að gera aðvart, ef flóð fer að, þvi'
fólki, er kann að vera statt á engjurn
e'ða annars staðar úti við.
r r r
Allmörg dag- og vistarheimili fyrir
börn hafa undanfarin ár verið starf
rækt hér, og var svo og í sumar. Tíminn
hefir átt tal við Arngrím Kristjánsson
skólastjóra, formann barnaverndar-
ráðs, sem hefir allmikla íhlutun um
þessi mál, og hefir hann skýrt blaðinu
svo frá: — Síðastliðið sumar nutu alls
um 560 börn dvalar á dagheimilum og
vistarheimilum, þar af um 400 börn úr
Reykjavik. Dagheimili þau, sem rekin
voru, eru Grænaborg og Vesturborg í
Reykjavík, er Sumargjöf starfrækir,
dagheimili verkakvennafélagsins í
Hafnarfirði og dagheimili kvenfélags-
ins Ósk á Siglufiröi. Einnig var nokkuð
starfað að þessum málum á ísafirði
og mun nú vera í ráði að reisa þar dag-
heimili. Svipaðar ráðagerðir munu
vera uppi um byggingu vegna dag-
Sá atburður, sem vakið hefir
langsamlega mesta athygli sein-
ustu dagana, er hinn aukni
sjóhernaður Þjóðverja, sem er
fólginn í þvi að leggja segul-
mögnuðum tundurduflum á
helztu siglingaleiðum við
strendur Englands. Hafa tund-
urdufl þessi gert hinn mesta
usla og daglega sökkt mörgum
skipum. Ef Englendingar fá
ekkert að gert, eru verulegar lík-
ur fyrir, að stöðvast muni allar
siglingar hlutlausra þjóða til
Bretlands og myndi það verða
mjög þungt áfall fyrir aðdrætti
þeirra.
Tundurduflahernaðurinn virð-
ist — eins og nú horfa sakir —
ætla að verða Bretum jafn
þungur í skauti og kafbátahern-
aðurinn i seinustu styrjöld, en
minnstu munaði þá, að hann
orsakaði ósigur Bandamanna,
því að á því veltur allt fyrir
Breturn, að geta haldið uppi
nægum aðflutningum til lands-
ins.
Þjóðverjar hafa lýst yfir því,
að það væri markmið þeirra,
að reyna að stöðva aila aödrætti
til Bretlands. Þeir reyndu fyrst
að framkvæma þetta áform sitt
með kafbátahernaðinum, en
Bretar reyndust það vel búnir í
þeim efnum, að hann virtist
Dvalarheimili voru starfrækt í sumar
að Flúðum og Brautarholti í Árnes-
sýslu. Að þeim stöð félagið Vorboðinn
sem stutt er af verkakvennafélögunum
í Reykjavík. Á Álítanesi starfrækti
kvenfélagið Hringurinn dvalarheimili.
Tvö kvenfélög á Akureyri starfræktu
dvalarheimili á Svalbarðsströnd og
kostuðu auk þess börn til dvalar að
Lundi í Öxarfírði. Á komandi árum má
gera ráð fyrir aukinni þörf fyrir slík
dag- og dvalarheimili fyrir börn, og
hefir hún þó verið næsta brýn undan-
farin ár. í vetur starfrækir félagið
Sutnargjöf dvalarheimili í Vesturborg.
r r r
Undanfarin ár hefir verið byggt all-
mikið af gróðurhúsum hér á landi á
jarðhitasvæðunum. Einkum hefir mikið
af gróðurhúsum verið reist suðvestan
lands. Hefir t. d. mikið af gróður-
húsum verið byggt í Borgarfirði og hafa
menn sífellt verið að fjölga þeim, og
stækka þau, er fyrir voru. í Reykholts-
dal eru slík gróðurhús að Reykholti,
Kleppjárnsreykjum, Sturlureykjum og
Hurðarbaki; í Lundarreykjadal að
Brautartungu og Reykjum; í Andakíl
að Bæ og Varmalæk; í Þverárhlíð að
Helgavatni og mun það vera eina gróð-
urhúsið í Mýrarsýslu. Á þrem hinum
síðasttöldu bæjum voru gróðurhúsin
býggð í vor, en á flestum hinna stað-
anna voru þau hús stækkuð í ár, sem
til voru fyrir. Sum gróðurhúsanna eru
sameign nokkurra eða allmargra
bænda, sem stofnað hafa með sér sam-
tök um þessa nýtingu jarðhitans, en
ekki ætla að koma verulega að
sök. Kafbátar Þjóðverja gera
þó enn öðru hvoru talsverðan
usla og hafa t. d. nú í vikunni
laskað verulega eitt af hinum
10 þús. smál. beitiskipum enska
flotans. Var þaö statt á Forth-
firöinum, er sá atburður varö.
Við lagningu tundurduflanna
munu Þjóðverjar nota jöfnunr
höndum kafbáta og flugvélar,
og er það síöarnefnda alveg ný
hernaðaraðferð. Sökum þess að
tundúrduflin eru segulmögnuð
eru þau stórum hættulegri járn-
skipum en tundurdufl, sem not-
uð hafa verið til þessa.
Hversu stórfelldar þessar
tundurduflalagnir eru, má m. a.
marka á því, að brezkur togari,
sem notaður er til að veiða
tundurdufi, fékk nýlega 15
tundurdufl í einu varpi.
Vísindamenn enska sjóhers-
ins vinna nú að því af miklu
kappi að finna varnir gegn seg-
ulmögnuðum tundurduflum.
Segjast þeir hafa vitað um, að
hægt væri að búa til segulmögn-
uð tundurdufl, og séu þess vegna
ekki með öllu óviðbúnir í þess-
um efnum. Brezki flotinn hefir
líka mörgum skipum á að skipa,
sem aðallega eru ætluð til að
veiða tundurdufl, en sá skipa-
kostur verður vitanlega mikið
aukinn, einkum á þann hátt,
að togarar verða teknir til þess-
ara starfa. Úrslit tundurdufla-
hernaðarins fara eftir því,
hvort. Þjóðverjum tekst að haida
áfram að leggja það mikið af
tundurduflum, að varnir Breta
komi ekki að fullum notum.
Það er Bretum einnig þyrnir
í augum, að Þjóðverjar nafa
stöðugt tvö herskip á sveimi hér
og þar á heimshöfunum, og
verða Bretar því að láta kaup-
förum sínum meiri herskipa-
fylgd í té, en þeir annars
þyrftu. Þessi þýzku herskip eru
orustuskipin ,,Deutschland“ og
(Framh. d 4. slöu)
Aðrar fréttir.
Hinn aukni sjóhernaður vek-
ur vaxandi ugg meðal hlutlausu
þjóðanna um afkomu sína. Hol-
lendingar hafa þegar mótmælt
þeim ákvörðunum Banda-
manna, að gera upptækar allar
útflutningsvörur frá Þýzka-
landi, enda kemur sú ráðstöfun
harðast niður á þeim og Belgíu-
mönnum. Meðal Norðurlanda-
þjóðanna er hins vegar ríkjandi
mikill kvíði yfir því, að Þjóð-
verjar muni reyna að stöðva
allar siglingar til Englands og
jafnvel beita einhverjum þving-
unarráðum í því sambandi.
Þýzka leynilögreglan tilkynn-
ir, að hún hafi tekið fasta tvo
enska menn, sem hafi stjórnað
brezku leyniþjónustunni í Vest-
ur-Evrópu. Voru þeir handsam-
aðir af þýzku leynilögreglunni
rétt innan við landamæri Hol-
lands, en voru þá á leið til
Þýzkalands og höfðu öll skil-
Íríki í lagi til að mega koma
Á víðnvangi
Eysteinn Jónsson viðskipta-
málaráðherra fékk því til leið-
ar komið á síðastliðnu sumri,
að farinn var leioangur undir
stjórn Helga Valtýssonar til
þess að rannsaka, hve mikið af
hreindýrum myndi hafast við á
öræfunum norðaustanlands. í
áframhaldi af niðurstöðum
þessa leiðangurs, flytur við-
skiptamálaráðherra í þinginu
frv. til iaga um friðun hreín-
dýra og eftirlit með þeim. Sam-
kvæmt frv. skulu hreindýrin
friðuð og er lögð við veruleg
fjársekt, ef út af er brugðið. Þó
er ráðherra heimilt að láta
veiða hreintarfa, ef sérstök á-
stæða virðist til, og að veita
mönnum leyfi til að handsama
aýr til eldis. Ennfremur er ráð-
herra heiinilt að skipa sérstak-
an eftirlitsmann eða menn til
þess að hafa umsjón með að
lögum þessum sé hlýtt og til
þess að hafa að öðru leyti eftir-
lit með hreindýrum. Með slíku
eftirliti, segir í greinargerðinni,
ætti að vera hægt að afla meiri
og betri þekkingar á lifnaðar-
háttum dýranna og gæti slík
þekking orðið að miklum notum
við athugun á því, hvort ekki
verður unnt í framtíðinni, að
hafa einhverjar nytjar af
hreindýrum.
* * *
í greinargerðinni segir enn-
fremur: „Hugmyndir manna
um fjölda hreindýra og viðgang
hafa verið mjög á reiki. Sumir
hafa haldið, að hreindýrin
skiptu hundruðum, næðu jafn-
vel þúsundi, en aðrir álitið, að
þau væru fremur fá. Sumir
töldu, að þeim færi fjölgandi,
en aðrir héldu því fram, að þeim
fækkaði stöðugt. Þeir, sem þátt
tóku í umræddum leiðangri,
telja nokkurnveginn öruggt, að
þeir hafi komizt að því, hve
mörg hreindýr hafist við á þess-
«m slóðum. Er það álit leiðang-
ursmanna, að dýrin séu um eitt
hundrað að tölu, þar með taldir
kálfar. Er það því augljóst mál,
að hreindýrunum hefir mjög
fækkað undanfarin ár, og að
þau eru orðin mun færri en
menn hafa gert ráð fyrir. Virð-
ist hætta á, að hreindýrin deyi
með öllu út hér á landi, og er
það hinn mesti skaði og skömm.
ef þannig tekst til. Enn er ekki
að fullu athugað, hvern hag
landsmenn gætu haft af hrein-
dýrunum, ef rétt væri að farið.
Komi það hinsvegar i ljós, að
þau gætu verið landsmönnum
mikil nytjadýr, væri það ómet-
anlegt tjón, að hafa látið hinn
innlenda stofn líða undir lok.
Virðist því brýn þörf á að gera
allar ráðstafanir, sem hægt er,
til þess að viðhalda stofninum
og skapa skilyrði fyrir fjölgun
hreindýranna.“
þangað. Jafnframt tilkynnir
þýzka leynilögreglan, að hún
hafi staðið um alllangt skeið i
sambandi við ensku leynilög-
regluna á þann hátt, að enska
lc-ynilögreglan hafi haldið að
samband hennar væri við and-
stæðinga Hitlers i Þýzkalandi.
Times varpar í þessu tilefni
fram þeirri fyrirspurn, hvers
vegna þýzka leynilögreglan hafi
þá ekki komið i veg fýrir spreng-
inguna í Múnchen, sem hún á-
sakar ensku leynilögregluna fyr-
ir að vera meðseka um, fyrst
hún þykist hafa vitað um allar
fyrirætlanir ensku leynilögregl-
unnar.
.. í málum Rússa og Finna hef ir
ekkert sérstakt gerzt seinustu
dagana. Finnar búa sig undir
„taugastríð“ af fullu kappi og
hafa m. a. veriö samþykkt mörg
ný tekjuöflunarlög til að stand-
ast straum af hinum auknu
landvörnum. Þá hafa verið sam-
þykkt lög um aukið eftirlit með
skeytasendingum, símtölum og
bréfum til útlanda til þess að
hindra að gefnar verði upplýs-
ingar hættulegar finnska ríkinu
og hervörnum þess.
(Framh. á 4. síöu)
A KROSSGÖTUM
Athugun um ráðstafanir til að draga úr slysahættu af völdum Kötluhlaups.
Dagheimili og vistar.heimili barna. — Gróðurhús í Borgarfirði.
heimilis kvenfélagsins Ósk á Siglufirði. | önnur eru einstaklingseign.