Tíminn - 09.12.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR:
GlSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR :
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Sími 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hj.
Símar 3948 og 3720.
23. árg
Reykjavík, lauganlaginn 9. des. 1939
143. blatS
Ráðstafanir vegna stríðsínss,yW á “'‘™!
Frv. meiríhluta fjárv.neíndar
Þrír þingmenn í efri deild,
Jónas Jónsson, Þorsteinn
Þorsteinsson og Bernharð
Stefánsson, flytja frumvarp
til laga um nokkrar ráðstaf-
anir vegna styrjaldar-
ástandsins.
Segir í greinargeröinni, að frv.
sé stutt af meirahluta fjárveit-
ingarnefndar, sem hafi haft
ýms slík mál til athugunar. í
nefndinni hefði orðið samkomu-
lag um, að frv. yrði flutt af
nefndarmönnum í annari þing-
deildinni. Frv. þetta, en ýms
atriði þess munu sennilega
vekja nokkrar deilur, fer hér á
eftir í heilu lagi:
„1. gr. Ríkisstj órnin skal, eftir
tilnefningu þriggja stærstu
þingflokkanna, skipa þriggja
manna bjargráðanefnd til eins
árs í senn til að hafa á hendi
framkvæmdir til framleiðslu-
bóta og bjargráða undir yfir-
stjórn ráðherra.
Nefndin gerir tillögur um og
hefir á hendi:
1. Ráðstöfun á fé þvi, sem
veitt er í fjárlögum til fram-
leiðslubóta og bjargráða í erf-
iðu árferði. Fé þessu skal varið
til atvinnuaukningar, einkum
til garðræktar, hagnýtingar
fiskúrgangs til áburðar, þara-
Reikníngur Reykja-
víkurbæjar 1938
Utgjöldiu lóru 757 þús.
kr. fram úr áætlun og
urðu 617 þús. kr. meiri
en árið áður
Á fundi bæjarstjórnar Reykja-
víkur síðastl. fimmtudag lá
reikningur bæjarins 1938 fyrir
til fullnaðarsamþykktar.
Reikningurinn hafði borizt
bæjarfulltrúum i hendur að-
eins tveimur dögum fyrir fund
og bar Sigurður Jónasson því
fram þá tillögu, að hafðar
skyldu tvær umræður um reikn-
ingana nú og framvegis. Með
því móti gæfist bæjarfulltrú-
um nægur tími til að athuga
reikningana. Þessi tillaga Sig-
urðar var felld með 6:5 atkv.
Geta má þess, að Jakob Möller
greiddi atkvæði með tillögunni.
Sigurður Jónasson gerði all-
margar athugasemdir við reikn-
ingana. M. a. átaldi hann hve
gjaldaliðir hefðu farið fram úr
áætlun,. hefðu mikið af hinum
auknu útborgunum farið fram,
án þess einu sinni að bæjar-
stjórnin væri að spurð. Ef til
vill hefði bæjarráð eitthvað
fengið að vita um þessar greiðsl-
ur, en um það gæti hann ekki
sagt, þar sem meirihluti bæjar-
stjórnar hefði meinað Fram-
sóknarflokknum að eiga full-
trúa í bæjarráði.
Alls hafa gjaldaliðir á rekstr-
arreikningi bæjarsjóðs farið
fram úr áætlun um kr. 756.880.
77. Fer hér á eftir skrá yfir þá
liði, sem mest hafa farið fram
úr áætlun:
tekju, framræslu lands, fyrir-
hleðslu, lendingarbóta, eldivið-
arvinnslu, smíði smábáta, bygg-
ingar húsa úr innlendu efni, svo
sem vikri og torfi, vegagerðar
og annara hagnýtra fram-
kvæmda, og til þess að stuðla
að því, að atvinnulausu fjöl-
skyldufólki verði komið fyrir á
sveitaheimilum.
2. Ráðstöfun atvinnulausra
verkfærra framfærsluþurfa, er
sveitarstjórn hefir ekki komið í
vinnu. Heimilt er að ráðstafa
slíkum mönnum til starfs hvar
sem er á landinu, á heimili, til
atvinnufyrirtækja og í vinnu-
flokka undir opinberri .stjórn
eða með öðrum hætti. Nefndin
semur um starfskjör þeirra, sem
á þennan hátt er ráðstafað, og
hefir fullnaðarúrskurðarvald
um vinnuskyldu allra þeirra,
sem hún eða sveitarstjórn ráð-
stafar til vinnu.
Stjórnarráðið skal annast
skrifstofustörf fyrir nefndina.
Búnaðarfélag íslands skal veita
nefndinni hjálp við að koma
mönnum fyrir í vinnu á sveita-
heimilum.
Meðan ákvæði þessi eru í
gildi skal, að því er Reykjavík
snertir, frestað framkvæmd
laga nr. 4 S. jan. 1935, um vinnu-
miðlun, og siðari viðauka við
þau lög.
2. gr. Heimilt er ríkisstjórn-
inni að skipa svo fyrir, að á ís-
lenzkum skipum megi vera færri
skipstjórnarmenn og vélamenn
en skylt er samkvæmt 1. nr. 104
23. júní 1936, um atvinnu við
siglingar á íslenzkum skipum,
og síðari breytingum á þeim
lögum. Ekki mega þó færri slík-
ir menn vera á íslenzkum sigl-
inga- og fiskiskipum en sams-
konar skipum norskum.
3. gr. Heimilt er ríkisstjórn-
inni, meðan núverandi ófriður
í Norðurálfu varir, að ákveða
tölu matréiðslu- og þjónustu-
fólks á farþegaskipum í milli-
landasiglingum.
4. gr. Óheimilt er að setja
skorður við tölu iðnnema í
nokkurri grein, nema með sam-
þykki ríkisstjórnarinnar, og á-
kveður hún þá, hverjar þær
skulu vera.
5. gr. Ákvæði 12. og 13. gr. 1.
nr. 97 3. maí 1935, um rannsókn-
arstofu í þágu atvinnuveganna
við Háskóla íslands, falla úr
gildi, þar til öðruvísi verður á-
kveðið.
Rannsóknarnefnd ríkisins,
skipuð til þriggja ára í senn
eftir tilnefningu 3 stærstu
flokka þingsins, skal, á meðan
svo stendur, hafa á hendi stjórn
stofnunarinnar og þess hluta af
rannsóknarstofu Háskóla ís-
lands, sem hefir með höndum
rannsóknir í þágu atvinnuveg-
anna, svo og framkvæmd mat-
vælarannsóknanna. — Ríkis-
stjórnin ræður starfsmenn við
framangreindar stofnanir, að
fengnum tiilögum rannsóknar-
nefndar ríkisins. Laun þeirra
manna, sem starfa að þessum
rannsóknum, skulu ákveðin í
fjárlögum.
6. gr. Þar til öðruvísi verður
ákveðið skal leggja niður ferða-
skrifstofu ríkisins, og falla á
meðan niður 1,-—6. gr. 1. nr. 22
1. febr. 1936, um ferðaskrifstofu
ríkisins, en gjald það, sem inn-
heimt er samkvæmt 7. gr„ skal
renna í ríkissjóð, enda sé úr
honum varið svipaðri upphæð,
að fengnum tillögum fjárveit-
inganefndar, til að bæta aðbúð
á gististöðum og auka hreinlæti
á ferðamannaleiðum.
7. gr. Hreinar tekjur ríkis-
stofnana, annara en síldarverk-
smiðja, skulu mánaðarlega
greiddar til ríkisféhirðis, en þó
skulu laun fastra starfsmanna
þeirra öll vera greidd af ríkis-
féhirði með þeim hætti, að hver
stofnun fái mánaðarlega í einu
lagi greidd laun starfsmanna
hennar, og sjái hún síðan um
greiðslu til hvers einstaks
starfsmanns.
8. gr. Þar til öðruvísi verður
ákveðið skulu eftirfarandi á-
kvæði koma í stað 3. gr. 1. nr.
68 28. des. 1934, um ríkisútvarp:
Kennslumálaráðherra skipar
(Framh. á 4. slðu)
Finnskur hermaður á verði við landamœrin. Til vinstri við liann sést ein af
hinum mörgu gaddavírsgirðingum, sem Finnar hafa við landamœrin til hindr-
unar fyrir framsókn Rússa.
Styrjöldín í Fínnlandi
Engar verulegar breytingar
hafa orðið á vigstöðvunum í
Finnlandi seinustu dagana. Á
Kyrjálanesinu hefir Rússum
hvergi tekist að brjótast yfir
varnarlínu Finna. Á vígstöðv-
unum norðan við Ladogavatn
hefir Rússum aðeins þokað á-
frarp, en það mun fyrirætlun
þeirra þar, að brjótast yfir til
botneska flóans og einangra
þannig Norður-Finnland frá
Suður-Finnlandi. í Norður-
Finnlandi hafa Rússar náð
mestum árangri, enda hafa
Finnar þar veikar varnir og ætla
ekki að leggja mikið kapp á að
verja það. Þeir hafa þó veitt
A, KROSSGÖTTJM
Kartöfluuppskeran.
rannsóknir.
Möguleikar á sölu þangs og þara til útlanda. ■
Tilraunir me'Ö vothey. — Vélbátur strandar.
Þang-
Stjórn kaupst Áætlun kr. 344.160 Reikn. kr. 365.885
Löggæzla 336.000 364.981
Heilbrigðisráðst. 283.300 329.881
Ýmisk. starfræksla 292.000 426.216
Til framf .mála ... 1.608.000 1.737.020
Gjöld skv. ákv. Al- þýðutr.laganna .. 630.000 811.495
Barnaskólarnir ... 578.360 639.137
Til íþrótta, lista o.fl. 123.500 146.587
Vextir af lánum ... 325.000 436.854
Tekjuliðirnir hafa yfirleitt
(Framh. á 4. siðu)
Stjórn Búnaðarfélags íslands hefir
látið safna fullkomnum skýrslum um
kartöfluuppskeruna á síðastliðnu
hausti. Eru þegar komnar til Búnað-
arfélagsins uppskeruskýrslur úr 175
hreppum landsins og öllum kaupstöð-
unum nema Reykjavíkurbæ. Telst
kartöfluuppskeran í byggðarlögum,
sem skýrslurnar eru úr, vera alls 91.958
tunnur. Ókomnar eru skýrslur úr
Reykjavík og um 35 hreppum. í sum-
um þeirra hreppa er kartöfluræktun
mikil, en þó er hlutfallslega meira af
útkjálkasveitum, þar sem lítið er um
kartöfluræktun, meðal þessara 35
hreppa heldur en hinna, er skýrslur
eru fengnar úr. í Reykjavík hefir ver-
ið áætlað, að kartöfluuppskeran í
haust hafi verið um 10 þúsund tunn-
ur. Líklegt þykir af þessum skýrslum,
að kartöfluuppskeran á öllu land^nu
hafi verið sem næst 120 þúsund tunnur
í haust. — í fyrra var heildarkartöflu-
uppskeran 64 þúsund tunnur. Árin
1933—1937 hefir hún verið talin 56.286
tunnur til jafnaðar á ári, en árin 1914
—1918 var hún 24.800 tunnur að með-
altali. ,
t t t
Nýlega hafa borizt hingað erlendis
frá fyrirspurnir um möguleika á að
kaupa héðan þang og þara i allstórum
stíl. Mun líklegt, að hægt sé að fá
fyrir hann nokkurt verð. Við strendur
íslands er ákaflega mikið af þangi og
þara, en hins vegar hagar víða svo til,
að erfitt og kostnaðarsamt er að afla
þessa, ef um svo mlkið magn er að
ræða, að hverfa þurfi að þang- og
þaratekjunni víðast, þar sem um
þann sjávargróður er að ræða. Þyrfti
því dágott verð að fást fyrir þessa
„uppskeru", ef arðbært ætti að verða.
Ýmsar rannsóknir er verið að gera
um þessar mundir á íslenzkum þara og
þangi, bæði hvað snertir áburðargildi
og fóðurgildi og ef tU vill fleiri not.
Stendur náttúrufræðirannsóknanefnd
ríkisins að mestu leyti að þessum at-
hugunum, en framkvæmdar eru þær
í rannsóknarstofu atvinnudeildar há-
skólans. Meðal þessara rannsókna eru
efnafræðilegar rannsóknir á þangi og
þara, sem tekinn skal mánaðarlega.
Eins og kunnugt er, er sjávargróður
þessi breytilegur að efnainnihaldi eftir
árstíðum og er ætlunin, að komast að
raun um, hverjar og hve mikiar þær
breytingar eru. Var byrjað á þessum
rannsóknum í haust og voru sýnis-
hornin tekin við Eyrarbakka. Það, sem
þegar hefir vakið athygli við þessar
rannsóknir er það, að steinefnainni-
haldið hefir reynzt mun minna held-
ur en búizt hafði verið við. Þau efni,
sem mest áburðargildi hafa, eru hins
vegar kaliefni. Fullnaðarniðurstöður
af þessum rannsóknum fást að sjálf-
sögðu ekki fyrr en eftir alllangan
tima. Einnig hefir verið sinnt rann-
sóknum á gömlum og rotnuðum eða
hálfrotnuðum þara. Loks hefir búnað-
ardeild rannsóknarstofunnar með
höndum tilraunir með þangmjölsfóðr-
un. Verður hún framkvæmd á Vífils-
fullnustu munu þær tll-
byrja fyrr en eftir ára-
stöðum. Tii
raunir ekki
mótin.
t t t
Á síðasta Búnaðarþingi var sam-
þykkt að stjórn Búnaðarfélags íslands
skyldi hlutast til um að endurteknar
skyldu tilraunir, sem áður hafa verið
gerðar hér á landi um votheysgerð með
hinni svonefndu finnsku aðferð, og
láta í vetur gera fóðrunartilraunir með
votheyið. Var þessi finnska aðferð við
votheysverkun síðan höfð um hönd í
sumár á báðum bændaskólunum og á
Vífilsstöðum. Á í vetur að gera fóðr-
unartilraunir á þessum þrem stöðum,
að því er Tímanum hefir verið tjáð.
Að Vífilsstöðum hefjast þessar tilraun-
ir eftir áramótin og mun Pétur Gunn-
arsson búnaðarkandidat, starfsmaður
atvinnudeildar háskólans, hafa umsjón
með tilraunum þessum.
t t t
Seinni hluta dags i gær strandaði
vélbáturinn Jón Guðmundsson frá
Keflavík á Gerðhólma, er hann var að
koma úr fiskiróðri. Brugðu aðrir vél-
bátar fljótt við, er kunnugt varð um
strandið, og reyndu að ná lionum á
flot aftur. Tíminn hefir eigi haft frétt-
ir af því, hvort það hefir tekist ennþá,
en báturinn mun óbrotinn. Skipverj-
um var í gærkvöldi sögð engin hætta
búin og mest líkindi til að báturlnn
næðist á flot, enda var veður hið bezta.
Hinn strandaði vélbátur er 26 smá
lestir að stærð.
Rússum harða mótspyrnu þar og
hefir orðið furðanlega ágengt,
þótt’ við margfallt ofurefli sé að
etja.
Erlendum fréttariturum kem-
ur saman um, að Rússar hafi
orðið fyrir margfallt meira
mannfalli og hergagnatjóni en
Finnar.
Tveir viðburðir hafa vakið
mesta athygli í sambandi við
styrjöldina seinustu dagana.
Annað er það, að Rússar hafa
í orustunum norðan við Ladoga-
vatn skotið gaskúlum úr fall-
byssum og hafa nokkrir finnsk-
ir hermenn fengið gaseitrun. Er
óttast að Rússar muni herða
gashernaðinn á næstunni og
hefir verið aukinn viðbúnaður
meðal hermanna og almennings
til varnar gegn gasárásum.
Hinn atburðurinn er sá, að
Rússar hafa ákveðið að setja
liafnbann á Finnland. Sam-
kvæmt alþjóðalögum er þetta
ólöglegt með öllu, þar sem Rúss-
ar hafa lýst yfir, að þeir teldu
sig ekki eiga í styrjöld við
Finnland. Stjórn Bandaríkj-
anna hefir líka lýst yfir því, að
hún teldi hafnbannið ólöglegt
og myndi gera Rússa ábyrga
fyrir öllu því tjóni, sem það
kunni að valda Bandaríkjunum.
Telja má víst, að aðrar þjóðir
fylgi þessu fordæmi Bandaríkj
anna.
Finnska stjórnin vekur at-
hygli á því, að Rússar muni
ekki geta stöðvað siglingar milli
Finnlands og Svíþjóðar um
Botneska flóann, þar sem Á-
landseyjar séu í höndum Finna
og þeir geti því bægt rússnesk-
um herskipum frá flóanum
Jafnframt geti þeir hindrað
kafbátaárásir á siglingaleiðir
um flóann.
Daladier forsætisráðherra
Frakka flutti ræðu í gær um
Finnlandsstyrjöldina. Kallaði
hann árás Rússa glæp og kvaðst
vona, vegna sæmdar mann
kynsins, að Finnum yrði látin
sú hjálp í té, sem þeir þörfn-
uðust. Frakkar dæmdu ekki
þjóðirnar eftir fjölmenni, held-
ur eftir menntun og manngildi,
og þeir hefðu horft á það með
djúpri aðdáun og þakklæti,
hversu finnska þjóðin sýni mik
ið hugrekki og staðfestu í því
að verja frelsi sitt.
A víðavangi
Héðinn Vaidimarsson og
fimm menn aðrir, sem sæti áttu
í miðstjórn Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokknum,
létu birta þá yfirlýsingu í út-
varpinu i fyrrakvöld að þeir
hefðu þá um daginn sagt sig úr
flokknum. Jafnfr. var greind sú
ástæða, að Héðinn Valdimarsson
hefði fyrir nokkru borið fram i
miðstjórn flokksins, sem er eins-
konar framkvæmdanefnd hans,
tillögu um að flokkurinn lýsti
samúð sinni með finnsku þjóð-
inni og finnsku verkalýðshreyf-
ingunni, sem berðist gegn vopn-
aðri árás Rússa. Þessi tillaga
var samþykkt í miðstjórninni
með 6:5 atkvæðum. Kommúnist-
ar tóku þá það ráð að vísa mál-
inu til flokksstjórnarinnar, sem
hefir æðsta úrskurðarvald og
skipuð er 33 mönnum. Þar var
tillaga Héðins felld með 18:14
atkv., en einn maður greiddi ekki
atkvæði. Þegar Héðinsmenn sáu
hvernig komið var og að kom-
múnistar myndu fara sínu fram
í þjónustunni við Moskvavaldið,
ákváðu þeir að segja sig úr
flokknum og gerðu það síðastl.
þriðjudag eins og áður segir.
* * *
Það virðist koma greinilega
fram, bæði hér og út um land,
að allur meginþorri hins svo-
nefnda sameiningarflokks muni
fylgja dæmi Héðins og segja
skilið við kommúnista. Eru i
hópi þeirra allmargir menn, sem
fylgdu kommúnistum fyrir sam-
eininguna svokölluðu. Hinsvegar
er það ekki séð hver verður
pólitísk framtíð þessara manna,
en heyrzt hefir að Héðinn hafi
í undirbúningi að stofna nýjan
flokk og vonist eftir liðveizlu
þeirra. Hvort þeir draumar ræt-
ast skal ósagt látið, en trúlegra
virðíst þó, að margir séu nú
farnir að þreytast á hinni ófor-
sjálu forystu hans.
* * *
Fyrsta afleiðing þessa atburð-
ar er sú, að hinir raunverulegu
kommúnistar einangrast meira
en áður og þeim mun takast
enn ver að sigla undir fölsku
flaggi. Þá hefir það sést enn
greinilegar en áður hversu þræl-
bundnir þeir eru Moskvavaldinu,
þar sem þeir hika ekki við að
kljúfa flokk sinn til að þjóna
því. Þeir segja fullum fetum, að
milli þeirra og Héðins sé enginn
skoðanamunur um lausn mála
innanlands. Ef þeir settu ís-
lenzk málefni ofar en þjónust-
una við Moslcva var ástæðulaust
fyrir þá að kljúfa flokkinn.
Þetta er vissulega ein bezta
sönnunin, sem fengizt hefir um
hina takmarkalausu undirgefni
þeirra við Moskvavaldið og að
þeir bera málefni Rússa miklu
meira fyrir brjósti en málefni
íslenzkra verkamanna. Eftir
þetta ætti enginn íslenzkur
verkamaður að þurfa að láta þá
gabba sig til fylgis.
* * *
Með þessum klofningi Sam-
einingarflokksins svokallaða, er
líka genginn endanlegur dómur
um það, að öll viðleitni Héðins
Valdimarssonar til að reyna að
sameina Kommúnistaflokkinn
og Alþýðuflokkinn hefir verið
byggð á þeim reginmisskilningi
hans, að taka fleðulæti komm-
únista trúanleg og treysta því,
að þeir hefðu sagt skilið við
byltingarstefnuna. Það er nú
komið eins greinilega fram og
verða má, að barátta Jóns Bald-
vinssonar gegn öllu samstarfi
við kommúnista var hárrétt.
Þeir voru menn, sem ekki var
hægt að semja við, því að þeir
meintu ekki það, sem þeir sögðu,
og ætluðu sér ekki að efna það,
sem þeir lofuðu meðan þeir voru
að leiða Alþýðuflokkinn í fall-
gryfjuna. Vegna þessa hlaut lið
kommúnistanna og Héðin Valdi-
marssonar að skilja fyr eða sið-
ar svo framarlega, sem hann
gengi ekki kommúnistum alveg
á hönd. Það hefir auðsjáanlega
ekki verið meining hans, og því
(Framh. á 4. siðu)