Tíminn - 09.12.1939, Blaðsíða 4
572
TlMIM, langardaginn 9. des. 1939
143. blað
tin BÆJVUM
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, séra Bjarni
Jónsson, altarisganga; kl. 3, séra Prið-
rik Hallgrímsson, barnaguðsþjónusta;
kl. 5, séra Friðrik Hallgrímsson. —
í fríkirkjunni kl. 5, séra Arni Sigurðs-
son. — í Laugarnesskóla kl. 5, séra
Garðar Svavarsson; barnaguðsþjón-
usta kl. 10 árdegis. — í Landakots-
kirkju, lágmessur kl. 6.30 og kl. 8 árd.,
hámessa kl. 10; bænahald með pré-
dikun kl. 6 síðdegis.
Félag ungrra Framsóknarmanna
í Reykjavík heldur fund í Sam-
bandshúsinu á þriðjudagskvöldið og
verður þar rætt um starfsemi íslenzkra
kommúnista. Málshefjandi Þórarinn
Þórarinsson. Pundurinn hefst kl. 8.30.
Félagar eru áminntir um að fjölmenna
og koma réttstundis á fundinn. Þess
er óskað,- að félagsskírteini verði
sýnd við innganginn og er fólk því
beðið um að taka þau með sér.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
minnist 40 ára afmælis síns að Hó-
tel Borg með samsæti í kvöld. Sam-
sætið hefst kl. 7.30.
Skíðafélögin
efna til skíðaferða um helgina, ef
veður leyfir. K.R.-ingar hafa í hyggju
að fara í skála sinn í kvöld og á að
leggja af stað frá K.R.-húsinu kl. 8 í
kvöld. Ármenningar ætla í Jósefsdal
og verður lagt af stað frá íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar í kvöld kl. 8 og í
fyrramálið kl. 9. Skíðafélag Reykjavík-
ur efnir til ferðir á Hellisheiði og á að
leggja af stað frá Austurvelli kl. 9 í
fyrramálið. Skíða- og skautafélag
Hafnarfjarðar efnir til ferðar og verð-
ur lagt af stað kl. 9 í fyrramálið. —
íþróttafélag kvenna efnir til skíða-
farar að skála sínum í Skálafelli, og
verður lagt af stað frá Gamla Bíó kl.
9 í fyrramálið.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Sherlock Holmes annað kvöld.
Nokkrir aðgöngumiðar að þessari sýn-
ingu verða seldir mjög ódýrt.
Vísurnar til Þuru í Garði.
Prentvilla var það í síðasta blaði,
að Pétur Jakobsson væri höfundur
vísnanna um ljóðakver Þuru í Garöi,
er birtust á sínum tíma hér í blaðinu.
Hann óskaði þess þvert á móti getiö,
að hann væri eigi höfundur þeirra.
Neville Chamberlaín
(Framh. af 2. síðu)
Chamberlain stofnaði síðan
bæjarbankann í Birmingham
og fékk hinar beztu undirtektir.
Fyrir atbeina hans var því af-
stýrt, að bankinn var lagður
niður að styrjöldinni lokinni. í
stað þess að lána ríkinu skyldi
starfsemi hans eftirleiðis bein-
ast að því, að styrkja borgar-
stjórnina í framkvæmdum
hennar. Hefir starfsemi bank-
ans gengið mjög vel og hann
veitt Birmingham mjög hag-
kvæm lán til framkvæmda
sinna. Utan Birmingham fékk
hugmynd Chamberlains um
bæjarbanka lítið fylgi.
Framkoma Cham-
Vonbrigði. berlains í þ e s s u
máli varð til þess
að vekja athygli Lloyd George
á honum. Kvaddi Lloyd George
Chamberlain á fund sinn og
bað hann að veita forstöðu nýju
ráðuneyti, sem hefði það hlut-
verk að koma á hagkvæmari
verkaskiptingu í iðnaðinum, svo
að fleiri menn gætu farið í her-
inn. Chamberlain vildi ekki
skorast undan þessu, en varð
fyrir miklum vonbrigðum þegar
til kom. Hann hafði gert sér
vonir um að ganga að ákveðnu
starfi og framkvæma ákveðnar
fyrirætlanir, en Lloyd George
Reikningur R.víkur
(Framh. af 1. síðu)
farið fram úr áætlun, en aðal-
hækkunin á tekjunum er þó í
því falin, að útsvörin, sem voru
áætluð kr. 4.126.520.00 urðu
kr. 4.631.727.94. Rekstrarhalli á
árinu varð kr. 231.171.14.
Á árinu 1937 höfðu gjöldin
á rekstrarreikningi bæj arsj óðs
orðið kr. 6.469.571.23 og hafa
útgjöld bæjarins því orðið kr.
617.429.54 hærri á árinu 1938
en á árinu 1937.
Þá átaldi S. J. það, að allar
skýringar vantaði með reikn-
ingunum. Það væri nauðsyn-
legt bæði fyrir bæjarfulltrúana
og eins fyrir bæjarbúa sjálfa,
sem vildu gera sér einhverja
grein fyrir því, hvernig fjármál-
um bæjarins væri varið, að ýt-
arleg skýrsla væri látin fylgja
ársreikningnum. Það hefði verið
siður fyrir nokkrum árum, og
væri þess mikið frekar þörf nú,
þar sem reikningshald bæjarins
og fyrirtækja hans yrði æ um-
fangsmeira. Þá gagnrýndi Sig-
urður, að reikningum vatns-
veitu og hitaveitu væri bland-
að saman, þannig, að ómögu-
legt væri að sjá, hvernig hvort
fyrirtæki um sig stæði.- Bar
hann fram tillögu þess efnis,
að reikningarnir yrðu aðskildir
fyrir þetta ár og framvegis og
var hún samþykkt.
Jón Axel Pétursson, sem er í
bæjarráði fyrir hönd Alþýðu-
flokksins upplýsti, að mest
af greiðslunum hefði farið fram
án þess að bæjarráð hefði verið
látiö vita, og benti á það sem
dæmi, að „Vetrarhjálpinni"
hefðu verið greiddar rúmar 30
þús. kr., enda þótt á áætluninni
hefði aðeins verið leyft að greiða
henni 15 þúsund krónur. Hin
stöðugt hækkandi útgjöld Reyk-
javíkurbæjar fara því orðið fram
að miklu leyti bak við tjöldin.
hafði ætlað honum að gera
hvorttveggja, leggja fram hug-
myndirnar og framkvæma þær.
Það seinna hefði Chamberlain
getað gert, hið fyrra var honum
ofvaxið. Hann hafði ekki hug-
kvæmni Lloyd George eða
Churchills. Vinnubrögð hans
lentu í handaskolum og hann
sagði af sér eftir nokkra mán-
uði. Sjðan hefir jafnan verið
mjög kalt milli Lloyd George og
Chamberlains og kenna hvor
öðrum um, að fyrirætlun þessi
misheppnaðist. Lloyd George á-
sakar Chamberlain um skort á
hugkvæmni, en Chamberlain
átelur hann fyrir stofnun ráðu-
neytis, sem hann hafi sjálfur
ekki verið búinn að gera sér
ljóst, hvernig ætti að starfa.
Þessar málalyktir höfðu mik-
il áhrif á Chamberlain. Hann
taldi sig hafa beðið ósigur og
vildi fá uppreisn. Sennilega hef-
ir ekkert ráðið meira um það,
að hann vildi freista hamingj-
unnar á stjórnmálasviðinu, og
það er vafalaust rétt, að kona
hans hefir hvatt hann til þess.
Hann bauð sig fram til þings í
Birmingham í næstu kosning-
um (1918) og vann glæsilegan
sjgur. Síðan hefir hann stöðugt
gengt þingmennsku fyrir sama
kjördæmi. Frh. Þ. Þ.
Ráðstafanir
vegna stríðsins
(Framh. af 1. síðu)
útvarpsstjóra. Skal honum falið
að annast daglega stjórn og
fjárreiður útvarpsins, eftir nán-
ari fyrirmælum í reglugerð, er
ráðherra setur.
Ráðherra er heimilt að gera
fréttastofu útvarpsins að sér-
stakri deild, undir stjórn út-
varpsráðs. Ennfremur er ráð-
herra heimilt að semja við blöð
lýðræðisflokkanna um þátttöku
í starfrækslu fréttastofunnar,
eftir nánari fyrirmælum í
reglugerð er ráðherra setur.
Ráðherra ræður starfsmenn
útvarpsins, að fengnum tillögum
útvarpsstjóra og útvarpsráðs.
Laun starfsfólks útvarpsins
skulu, þar til launalög eru sett,
ákveðin í fjárlögum.
9. gr. Óheimilt skal forráða-
mönnum ríkisstofnana, þar með
taldir bankar, að ráða fasta
starfsmenn, nema að undan-
gengnu samkeppnisprófi, og
hafi auglýstur umsóknarfrest-
ur eigi verið skemmri en einn
mánuður, þar sem úr því var
skorið, hver hæfastur væri til
starfsins af umsækjendum. Rík-
isstjórnin setur í reglugerð nán-
ari fyrirmæli um þessi próf.
10. gr. Óheimilt er forstjórum
ríkisstofnana að ráða nokkurn
til starfs við þær til annars en
venjulegrar daglaunavinnu,
nema með samþykki ráðherra.
Svo skal þeim og óheimilt að
greiða nokkrum starfsmanni
aukaþóknun, hvort sem um er
að ræða hreina launaviðbót eða
greiðslu fyrir aukavinnu, né á
annan hátt breyta launakjörum
án samþykkis ráðherra.
11. gr. Fresta skal að prenta
umræðupart þingtíðindanna
fyrir árið 1940.
Í2. gr. Aukatekjur, aðrar en
ríkissjóðstekjur, er tilfalla þeim
embættismönnum, og starfs-
mönnum þeirra, er fá goldinn
skrifstofukostnað eftir reikn-
ingi og þeir fá greiddar vegna
embættis síns eða stöðu, skulu
teljast skrifstofum þeirra til
tekna.
13. gr. í skrifstofum ríkisins-
og í ríkisfyrirtækjum skal dag-
legur vinnutími vera a. m. k.
frá kl. 9 árdegis til kl. 6 síðdeg-
is, að frádregnum 1V2 klukku-
tíma. Þó getur forstjóri látið
vinna á öðrum tíma dags, þar
sem vaktaskipti eru höfð við
vinnuna. Á tímabilinu frá 15.
júní til 15. sept. skal vinnutími
á laugardögum a. m. k. vera 4
stundir.
14. gr. Meðan núverandi ófrið-
ur í Norðurálfu varir, skal
kennslumálaráðherra heimilt:
a. Að stytta hinn árlega
kennslutíma í barnasóklum
landsins og draga þannig úr út-
gjöldum við skólahaldið.
b. Að sameina fámenn
fræðsluhéruð um einn og sama
kennara, þar sem því verður við
komið. Ennfremur er ráðherra
heimilt að ákveða, að fjölga
skuli kennslustundum í ís-
lenzku, tekin upp og aukin
vinnu- og íþróttakennsla, en
50 Margaret Pedler:
ég er glöð yfir því að þú skulir ætla að
koma til mín,“ skrifaði Jane. „Mér hefir
alltaf fundist, að við, þú og ég, ættum
að verða samrýmdar alveg sérstaklega, af
því að þú ert dóttir Irene. Og ég er
dauðfegin að Candy skyldi loksins leyfa
mér að eignast minn hlut í þér! .. “
Það er ákveðið að Elizabet skyldi
leggja af stað til Englands eftir nokkra
daga. Þessa daga minntist Elizabet oft
bréfsins frá Jane og hlakkaði til að
hitta hana sjálfa, og bréfið dró úr sárs-
aukanum við að skilja við Candy. Eliza-
betu fannst að hún myndi alls ekki verða
meðal ókunnugra í raun og veru. Það
var svo auðfundið af bréfinu, að Jane
bauð Elizabet innilega velkomna, og hún
fann stöðugt til velvildarinnar, þótt hún
væri langt í burtu. Elizabetu veitti held-
ur ekki af því, eins og á stóð.
Elizabet fannst sér misboðið með því,
að vera send til Waincliff, svo þau gætu
leikið sér tvö ein, Fjóla og Candy. Hún
var sár út af þessu undir niðri, en hún
vildi alls ekki viðurkenna það með
sjálfri sér. Hún hafði áður verið uppá-
halds ferðafélagi föður síns, og barns-
legt en hreinskilið viðmót hennar hafði
haft mjög góð áhrif á hann. Samband
þeirra var í raun og veru dásamlegt.
Vinátta þeirra stafaði miklu meir af
Laun þess liðna 51
gagnkvæmum skilningi og skyldleika í
hugsun en líkamlegum skyldleika, og
viðhorf þeirra hvors til annars var
miklu líkar því, að þau væru tveir sam-
rýmdir félagar en faðir og dóttir.
Það var þessvegna ekkert undarlegt,
þótt Elizabetu finndist að hún væri nú
höfð út undan, þótt hún berðist gegn
þessari tilfinningu: Hún vissi, að réttur
Fjólu til manns síns var óvéfengjanleg-
ur, og hún gladdist innilega yfir því að
sjá föður sinn ánægðan og hamingju-
saman, þátt fyrir það að henni hálf-
leiddist. Hann hafði einu sinni verið
ákaflega óhamingjusamur. Elizabet
hafði þá aðeins verið lítið barn, fyrstu
árin eftir að þau fóru frá Frayne Abbey,
en hún hafði samt greinilega fundið
söknuð hans, fundið til áhrifa einhvers,
sem hún ekki skyldi, en skyggði samt á
líf hans. Hún var innilega ánægð yfir
því núna, að hann hafði fundið ham-
ingjuna.
Samt varð því ekki neitað að kröfur
Fjólu til manns síns hlutu að koma
niður á Elizabet. í dag, síðasta daginn,
sem þau yrðu öll saman í Villa Iario,
hafði hún til dæmis fengið hann til þess
að koma í ökuferð með sér, og það var
ósennilegt að þau kæmu /yrr en undir
Ikvöld. Frayne hafði alls ekki langað til
þess að fara, hann hefði miklu heldur
Leihfél ay Reykjavíkur
„SHERLOCK
HOLMES“
Sýníng á morgnn kl. 8
NB. — NOKKRIR AÐGÖNGU-
MIÐAR AÐ ÞESSARI SÝNINGU
VERÐA SELDIR Á KR. 1.50.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
ikip
-°~-"GAMLA BÍÓ——
Ef ég
væri konimgur.
Stórfengleg og spennandi
söguleg amerísk kvikmynd
um einhvern frægasta æv-
intýramann veraldarsög-
unnar, franska skáldið
Francois Villon.
Aðalhlutv. leika:
RONALD COLMAN,
FRANCES DEE og
BASIL RATHBONE.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
“—NÝJA BÍÓ -
Beztu þakkir mr.
Moto.
Amerísk kvikmynd frá Fox
er sýnir nýjustu klæki og
skörungsskap hins snjalla
leynilögreglumanns mr.
Moto. — Aðalhlutverkið,
mr. Moto, leikur
PETER LORRE.
Aukamynd:
Bláa fljótið.
Stórmerkileg fræðimynd
frá Kína.
það,
sem
auglýst var
fyrir
Framsóknarfélag Beykjavíkur.
nokkru, lileður ekki í Kaup-
mannahöfn fyr en næstkom-
andi þriðjudag og miðvikudag.
Aðalfufltdur
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. Simi 3025.
minnka að sama skapi kennslu
í öðrum bóklegum fræðigrein-
um.
15. gr. í menntaskólana í
Reykjavík og á Akureyri skal
ekki veita inngöngu yngri nem-
endum en 15 ára að aldri.
Við inntökupróf í 1. bekk
menntaskólanna skal leggja
megináherzlu á kunnáttu nem-
endanna í íslenzku og íslenzk-
um bókmenntum, og skal
kennslumálaráðherra setja um
það nánari fyrirmæli í reglu-
gerð.
16. gr. Ríkisstjórninni er
heimilt, að fengnum tillögum
háskólaráðs og menntamála-
ráðs, að ákveða, hve margir ný-
ir nemendur skuli á ári hverju
fá inntöku í Háskóla íslands.
Ákvörðun þessi skal miðuð við
það, að árlega útskrifist svo
margir sérfróðir menn í þeim
fræðigreinum, sem þar eru
kenndar, að fullnægt sé þörfum
þjóðarinnar.
Nú sækja fleiri um inngöngu
í háskólann en hæfilegt þykir
samkv. því, sem að framan
greinir, og skal þá ráðherra
kveða á í reglugerð, að fengnum
tillögum háskólaráðs, um skil-
yrði fyrir inngöngu.
17. gr. Lækka skal afnota-
gjald þeirra útvarpsnotenda,
sem ekki hafa straumtæki, nið-
ur í 20 krónur.
18. gr. Skylt skal öllum ríkis-
stofnunum, fyrirtækjum, sem
eru stofnsett með sérstökum
lögum til almannaþarfa, bæjar-
og sveitarfélögum og fyrirtækj-
um og stofnunum, sem styrks
njóta úr ríkissjóði, eða hafa í
stjórn fulltrúa, sem ríkisstjórn-
in skipar, að senda Alþingi fyrir
lok janúarmánaðar ár hvert
ýtarlega skýrslu um tilkostnað
við starfsmannahald og starf-
rækslu á undangengnu ári. Skal
í þessari skýrslu tilgreina nöfn
allra starfsmanna hjá hverri
stofnun og fyrirtæki, annara en
daglaunamanna, tilgreina föst
laun þeirra af almannafé, auka-
laun, eftirvinnu, uppbætur,
hverskonar hlunnindi, ágóða-
hlut og ferðakostnað. Auk þess
skal tilgreina sundurliðuð út-
gjöld við húsnæði, Ijós og hita
hverrar stofnunar. Fjárveit-
inganefnd getur falið endur-
skoðendum ríkisreikninganna
eða endurskoðanda fjármála-
ráðuneytisins að fullgera skýrsl-
una með athugun á bókhaldi
hlutaðeigandi fyrirtækis.
19. gr. Lög þessi öðlast þegar
gildi.“
Jónas Jónssn gerir nokkra
grein fyrir tilgangi frv. á öðr-
um stað í blaðinu. Frv. var til
1. umr. í efri deild í gær. Stef-
án Jóhann andæfði því nokkuð
og greiddu sósíalistar atkvæði
gegn því, að frv. yrði vísað til
annarar umræðu.
félagsins verður haldinn í Kaupþingssalnum miðvikudaginn 13.
desember kl. 8 y3.
D4GSKRÁ:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Umræður.
Félagsmenn sýni skírteini við innganginn.
Stjjórnin.
C. M. Lampson & Co. Ltd.
64, Queeii, Street, Lenden E. C. 4.
Skinnauppboð 1939--40
Silfurrefaskmn:
11. desember 1939 23. september 1940
8. janúar 1940 19. nóvember 1940
1. 27. apríl maí 1940 1940 9. desember 1940
Síðasti móttökudagur í London 7 dögum fyrir uppboðin.
Önnur skfnn:
8. janúar 1940 — séruppboð fyrir mink.
1. febrúar 1940 — vetraruppboð.
1. apríl 1940 — séruppboð fyrir mink.
6. maí 1940 — voruppboð.
23. júlí 1940 — sumaruppboð.
31. okt. 1940 — haustuppboð.
Minkar seldur á öllum uppboðunum. Á sumaruppboðinu verða að-
eins seldir: otur, blárefir, bisamrottur, minkar, karkul og ind-
versk lambskinn.
Síðasti móttökudagur í London er 7—10 dögum fyrir uppboðin.
Allar sendingar eru vátryggðar fyrir reikning eiganda gegn stríðs-
og sjávarháska á meðan á flutningi stenduT. Öll skinn eru tryggð
gegn stríðshættu á meðan þau eru hjá okkur. Fer það eftir reglum,
sem stjórn Bretlands hefir sett.
Vér greiðum framvegis fyrirfram greiðslu út á skinn eftir að þau
eru komin í geymslu hjá okkur.
Sé þess óskað fást pokar til að pakka skinnunum i frá umboðs-
manni vorum í Oslo, herra Egil Gisholt, Tollbodgt. 4, Oslo, Noregi.
war Vegna vaxandi fyrirspurna um hvort endurtekið verði
tilboð mitt um f jölbreytt heimilisbókasafn fyrir 10 kr., að
viðbættu einnar krónu burðargjaldi, vil ég enn gefa
mönnum kost á slíkum kjönim:
Steingrímur Thorsteinsson: Ljóðaþ. I. með mynd (208 bls.) og Ljóðaþ. II.
með mynd .(58). Sawitri II. útg. með mynd (64). Sagan af Kalaf og kelsara-
dótturinni klnversku (64). Kftir Axel Thorsteinsson: f leikslok, sögur úr heims-
styrjöldlnni, 1.—2. útg. (148). / leikslok II. b. (58), Heim er haustar, og nokkrar
smásögur aðrar (96) .Greifinn frá Monte Christo, I. b. (128), II. b. (164), III.
(192), IV. (176). ftalskar smásögur I. (120). ítalskar smásögur II. (80). Ævintýri
og smásögur með myndum (64). Einstœðingur, hin ágæta saga Margaret Pedler
(504 bls.) og Ástarþrá, eftir sama höf. (354), líka falleg og skemmtileg saga. —
Loks: Árgangar af Rökkri (heilir árg.) um 700 bls. Hefir nokkur boðið yður betri
kjör? Pantendur sendi meðf. auglýsingu og 11 kr. (1 kr. má vera í frímerkjum)
í ábyrgðarbréfi (sendið ekki peninga í almennu bréfi) — eða póstávísun og
nægir að skrifa á afklippinginn: „Sendið mér bækurnar samkv. tilb. í Tím-
anum þ. 12. okt. 1939.“ Það er ódýrast að senda peninga þannig og tryggt, en
biðjið ávallt um kvittun fyrir póstávísun og ábyrgðarbréf, til þess að fá
ieiðréttingu ef nokkur vanskil verða.
í stað „Dokað við í Hrunamannahreppi" sem nú er uppseld kemur „Þöglar
ástir eftir Musæus, í þýðingu Steingr. Thorsteinssonar, og í stað Börn dalanna
I—II, sem er uppseld, „Sögur frá Alhambra" í nýrri útgáfu og vandaðri (þýð-
ing Steingr. Thorsteinssonar).
Virðingarfyllst.
AXEL THORSTEINSSON.
NB. — Áskilinn er réttur til að senda aðrar bækur í stað þeirra. sem upp
kunna að ganga. — Skrifstofa mín og bókaafgreiðsla er flutt í hús Pélagsprent-
smiðjunnar, efstu hæð. Viðtalstími kl. 9—4.
Komið ílöskum og glösum
í verð
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
verður ekki neitað, að skjöldur
hans hefir hreinkað nokkuð við
það, að hafa nú sagt skilið við
kommúnista, þegar hann hefir
reynt þá til fulls. Hinsvegar hefir
allur ráðahagur hans við kom-
múnista sýnt svo mikla æfin-
týramennsku og sljóleika til að
sjá augljósar staðreyndir, að ó-
liklegt mætti teljast að honum
tækist hér eftir að safna um
Næstu viku kaupum við flöskur og glös undan okkar eigin
framleiðslu. Verðið er hækkað upp í 20 aura fyrir heilflöskur og
15 aura fyrir hálfflöskur.
Gjörið nú gangskör að því að koma tómum flöskum og
glösum í peninga. Móttaka er í Nýborg.
Áfenglsverzlim ríkisins.
sig miklu fylgi. Víða erlendis er
það háttur manna, sem farið
hafa slík gönuhlaup í opinber-
um málum, að draga sig alger-
lega í hlé. Vafalaust myndi Héð-
inn hljóta mildastan dóm sög-
unnar, ef hann tæki þann lcost-
inn.