Tíminn - 28.12.1939, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.12.1939, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAR: GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.) ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR: JÓNAS JÓNSSON. ÚTOEFANDI: FRAMSÓKN ARFLOKKURINN. RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR: EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D. SÍMAR: 4373 og 2333. AFQREIÐSLA, INNHEIMTA OG A UGL ÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D. Sími 2323. PRENTSMHDJAN EDDA hJ. Sönar 3948 Og 3720. 23. árg. Reykjavík, fimmtudagmn 28. des. 1939 Aígreiðsla fjárlaganna ttgjjöld fjárlaganna munu seuuilega hækka talsvert á aðra miljón kr. í meðferð þingsins. Þriðja og seinasta um- ræða í sameinuðu þingi um fjárlögin hefst síðdegis í dag. Liggja fyrir nálægt 200 tillögur frá fjárveitinga- nefnd og mikill fjöldi til- lagna frá einstökum þing- mönnum. Við aðra umræðu fjárlaganna varð sú breyting gerð á fjárlög- unum að sum útgjöld voru lækk- uð um 412 þús. kr., en önnur út- gjöld hækkuð um 620 þús. kr. Raunveruleg hækkun útgjald- anna varð því um 208 þús. kr. Helztu lækkunartillögurnar, sem hlutu samþykki, voru þess- ar: Lækkun á landhelgiskostn- aði 100 þúsund kr., lækkun á strandferðakostnaði 125 þús. kr. og lækkun á framlagi til Eim- skipafélags íslands 80 þús. kr. Hefir styrjaldarástandið gert þessar lækkanir mögulegar og myndi þessi útgjöld tæpast hafa verið lækkuð að öðrum kosti. Helztu hækkanir stöfuðu af auknum vaxtagreiðslum, sökum gengislækkunarinnar, og aukn- um kostnaði við utanríkismálin af sömu ástæðu. Þá var sam- þykkt að verja 75 þús. kr. til verzlunarerindreksturs í Banda- rikjunum og 85 þús. kr. til skömmtunarskrifstofu ríkisins. Hækkanirnar áttu þannig ýmist rætur sínar að rekja til gengis- lækkunarinnar eða styrjaldar- innar. í tillögum þeim, sem fjárveit- inganefnd hefir lagt fram við 3. umræðu fjárlaganna, er gert ráð fyrir allverulegum breytingum á útgjaldabálki fjárlaganna. — Hækkunartillögurnar munu þó um einni miljón króna hærri en lækkunartilltögurnar. Má þó geta þess, að allar hækkunartil- lögurnar eru enn ekki fram komnar eins og t. d. framlög vegna garnaveiki i sauðfé, nýju héraðsskólalaganna, íþróttalag anna og fleiri laga, sem sam þykkt verða á þessu þingi. Enn hefir heldur ekki verið gert ráð fyrir hækkun á afborgunum á ýmsum lánum rlkissjóðs, sem orðið hefir sökum gengislækk- unarinnar. Heiztu lækkunartillögur nefnd- arinnar eru niðurfelling fram- lagsins til fiskimálasjóðs (450 þús. kr.), 75 þús. kr. lækkun á framlaginu til byggingar- og landnámssjóðs, 35 þús. kr. lækk- un á framlaginu til verkfæra- kaupasjóðs og 30 þús. kr. lækkun á framlaginu til Fiskveiðasjóðs. Eiga allar þessar lækkanir sam- merkt um það, að þær eru eðli- legar sökum styrjaldarástands- ins, þar sem þær draga úr kaup- um á erlendu efni. Margar hækkunartillögurnar eiga líka rætur slnar að rekja til styrj aldarástandsins eins og t. d. aukinn kostnaður við starf- rækslu ríkisspítalanna. Nokkr- ar stafa af gengislækkuninni eins og t. d. hækkun á vaxta- og afborgunargreiðslum rikis- stofnananna. Þá eru nokkrar tillögur, sem fjalla um greiðslu á áföllnum útgjöldum eins og t. d. framlög til hafnargerða og sundlaugarbygginga. Nokkrar tillögurnar eru um aukin fram- lög til atvinnuaukningar, eink- um vegagerða. Þá er gert ráð fyrir að ekki verði varið 100 þús. kr. af benzínskattinum til malbikunar á vegum í grennd Reykjavíkur, en það hefir verið gert undanfarið, heldur verði þessu fé skipt milli vega út á landi. Byggir nefndin þessa til- lögu sína á því, að ekki sé rétt á þessum tíma að leggja fé i vegagerð, sem krefst erlendra efniskaupa. Af sömu ástæðu leggur nefndin til að ekki verði bætt á frv. neinum framlögum til brúargerða eða vitabygginga, heldur verði öllu því fé, sem varið er til atvinnuaukningar, beint í vegagerðir, lendingar- bætur eða aðrar slíkar fram- kvæmdir, sem ekki krefjast inn- flutts efnis. Má geta þess í þessu sambandi, að nefndin leggur m. a. til að varið sé 25 þús. kr. til lendingarbóta í Þorlákshöfn. Eitt blað bæjarins hefir vak- ið athygli á því, að það sé í ó- samræmi við þessa stefnu, að nefndin gerir ráð fyrir nokkrum framlögum til hafnargerða og sundlaugarbygginga. Þetta er á þeim misskilningi byggt, að flest slík framlög, sem nefndin gerir ráð fyrir, fara til greiðslu á framkvæmdum, sem þegar er búið að vinna. Svipuðu máli mun gegna um 30 þús. kr. fram- lag til Akureyrarkirkju. Auk framangreindra tillagna er enn von nokkurra tillagna frá fjárveitinganefnd við tekju- bálk fjárlaganna. Auk þessa eru komnar fram margar tillögur frá einstökum þingmönnum og fjalla þær flestar um ný út- gjöld. í áliti nefndarinnar segir, að hún hafi upphaflega reynt að gera sér far um „að draga úr tilkostnaði við ríkisreksturinn, m. a. með þvi að gera ráð fyrir lengri vinnudegi, í átt við það, sem tiðkast við dagleg fram- leiðslustörf. En það kom í ljós, að engin veruleg samúð var með slíkum breytingum að svo komnu máli.“ Nýjar fjárkröfur bárust úr öllum áttum og munu slíkar kröfur, sem fjárveitinga- (Framh. á 4. síBu.) Innheimta bæjargjaldanna Tillaga frá fulltrúa Framsóknarflokks- ins á selnasta bæj- arstjórnarfundi. Hér í blaðinu hefir iðulega verið vikið að því, að nauðsyn- legt væri að birt yrði opinber- lega skrá yfir þá, sem stæðu í vanskilum með gjöld sín til Reykjavíkurbæjar. Eru mjög mikil brögð að því, að bæjar- gjöldin lendi í vanskilum. Um seinustu áramót námu t. d. úti- standandi bæjargjöld á aðra miljón króna. Með því að birta opinberlega skrá yfir vanskila- mennina myndi áreiðanlega skapast meira aðhald í þessum efnum og það koma í ljós, hvort hæft sé í þeim orðrómi, að ýmsir skjólstæðingar bæjar- stjórnarmeirihlutans njóti sér- stakrar ívilnunar. Bæj ar f ulltrúar Fr amsóknar - flokksins hafa iðulega minnst á þetta mál í bæjarstjórninni og á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn fimmtudag lagði Sigurður Jón- asson fram svohljóðandi tillögu: „Bæjarstjómin ályktar að fela borgarstjóra að láta strax eftir næstu áramót gera skrá yfir þá gjaldendur, er eigi hafa greitt útsvör sín eða önnur bæjargjöld fyrir árið 1939 eða næstu fimm ár á undan. Skal borgarstjóri síðan leggja skrána fram almenningi til sýnis.“ Að gömlum vana samþykkti bæjarstjórnarmeirihlutinn að vísa tillögunni til bæjarráðs, en þá aðferð notar hann til að koma fyrir kattarnef flestum þeim gagnlegum tillögum, sem koma fram í bæjarstjórninni. Mætti því eins vel kalla bæjar- ráðið svæfingarráð bæjarstjórn- armeirihlutans. En það má bæj- arstjórnarmeirihlutinn vita, að þessu máli verður ekki stungið svefnþorn á þennan hátt. Skatt- þegnar Reykjavikur munu telja það svo miklu skipta, að hindruð sé öll hlutdrægni í þessum efn- um og tryggt eins gott aðhald og kostur er, að undanbrögð munu ekki koma að neinu haldi og þess vegna mun bæjaTstjórn- armeirihlutinn fyrr en síðar neyðast til að taka skýra af- stöðu til þessa máls. Finnskir hermenn, sem unnið hafa að grefti skotgrafa. — Mynd þessi er tekin við rússnesfcu landamœrin nokkru eftir að styrjöldin hófst. Glæsilegir sigrar Finna Um jólin hafa staðið yfir harðir bardagar á öllum vig- stöðvunum í Finnlandi og veitir Finnum hvarvetna betur. Á tveimur nyrztu vígstöðvunum, en þar berjast aðallega sænsk- Finnar, hefir finnski herinn ekki aðeins algerlega brotið sókn Rússa á bak aftur, heldur hrak- ið Rússa á skipulagslausan flótta. Á allra nyrztu vígstöðvunum hafa Finnar hafið sókn til námubæjarins Salmijárvi, sem Rússar tóku um miðjan desem- ber og Finnar höfðu áður lagt næstum i ösku. Herma seinustu fregnir, að þeim hafi gengið svo vel, að nokkur þúsund Rússa hafi verið teknir til fanga, en talið er að Rússar hafi milli 25— 30 þús. manns á þessum víg- stöðvum, en Finnar mörgum sinnum færri. Miklir kuldar og lélegur útbúnaður hefir leikið Rússa mjög grálega á þessum slóðum og er veruleg skýring á óförum þeirra. Á næstu vígstöðvum fyrir Maður drukknar Hinn 17. desembermánaðar vildi það slys til við Englands- strendur, að maður, Davíð Krist- jánsson að nafni, úr Borgarnesi, féll fyrir borð af línuveiðaranum Eldborg og drukknaði. Nátt- myrkur var á, er atburðurinn gerðist og gátu skipverjar eigi aðhafzt til bjargar. Davíð Kristjánsson var 27 ára að aldri. .A. Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja. — Úr Loðmundarfirði - héraði. — Heiðursborgarar í New York. Af Fljótsdals- 19. desembermánaðar síðastliðinn hélt Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja aðalfund sinn fyrir árlð 1938. Hagur félagsins er með miklum blóma og samþykkti fundurinn að endurgreiða félagsmönnum fjórða hluta iðgjalda ársins og verða því raunveruleg iðgjöld til félagsins ekki nema 3.75%. Formað- ur félagsins skýrði frá því, að útlit um afkomu félagsins á yfirstandandi ári væri svo gott, að ef engin stórfelld áföll bera að fyrlr áramótin, mun á næsta ári verða hægt að v’eita að minnsta kosti 40% iðgjaldaafslátt og yrði þá hið raunverulega iðgjald 3%. Félagið stendur á gömlum merg, býr við traustan efnahag, rekstur þess til fyr- irmyndar og býr að lögum við sérstöðu meðal íslenzkra tryggingarfélaga, og var sú sérstaða og fríðindi veitt félag- inu fyrir tveim árum. Gilda þau laga- fyrirmæli I þrjú ár. Náðu þau lög fram að ganga fyrir forgöngu og atbeina formanns Framsóknarflokksins, Jón- asar Jónssonar. í fundarlok flutti Gunnar Ólafsson ræðu og vék að gangi þessara mála og nauðsyn þess, að vel væri verið á verði um réttindi félags- ins, og gat þess sérstaklega, að þessi réttindi hefðu „einvörðungu fengizt fyrir stuðning góðs manns", sem alla jafna nyti ekki sannmælis af hálfu út- gerðarmanna. t t t Baldvin Trausti Stefánsson, bóndi að Sævarenda í Loðmundarfirði, ritar Tímanum á þessa leið: Hausttíð var hér ágæt fram i nóvembermánuð, en þá gerði úrfelli, fyrst rigningar en staðar ekki. Síðustu dagana fyrir jólin hefir ekki hafizt með öllu saman, það sem þó var komið að áður. Vantar síðan í þeim veðrum nokkrar kindur, sem sennilega hafa orðið undir fönn. Ekki snjóaði þó svo mikið, að haglaust yrði og hafa hagar haldizt til þessa, svo að fullorðnu fé hefir víðast verið lítið sem ekkert gefið, en lömb hafa sums staðar verið tekin í hús, en sums staðar ekki. Síðustu dagana fyrir jólin var þíðviðri og vindur af suðri og suð- vestri, og orðið snjólítið. Heyfengur frá sumrinu er meiri og betri en áður. og fleiri lömb sett á heldur en að und- anförnu. Kartöfluuppskera var með mesta móti í haust og á sumum stöðum miklum mun meiri en áður, og hafa menn hug á að auka garðræktina framvegis. — Til tiðinda má það telja, að í Húsavík eystra var vígð ný kirkja sunnudaginn 20. nóvembermánaðar siðastliðinn. Er hún byggð úr timbri og jámi, en áður var Húsavíkurkirkja torfhús. Vigsluna framkvæmdi séra Ingvar V. Sigurðsson, sóknarprestur að Desjarmýri. Var viðstatt athöfnina hvert mannsbarn í vikinni, auk nokk- urra manna úr Borgarfirði og Loð- mundarfirði. í Loðmundarfirði voru í sumar byggð tvö ný hús, og eitt í Húsa- vík. Ein jörð lagðist í eyði í sveitinni í ár, en önnur byggðist að nýju, er áður hafði verið í eyði. — í Loðmundar- fjarðarhreppi, sem er fólksfæsti hrepp- ur landsins, eru alls 8 bæir. Slæm lendingarskilyrði torvelda þar eðlilegar framfarir, en með nokkrum lendingar- bótum mætti mjög bæta aðstöðu manna í byggðarlaginu til sjósóknar. Enginn maður er á sveitarframfærl í hreppnum. t t t Pétur Jónsson bóndi á Egilsstöðum skrifar Tímanum eftirfarandi af Fljóts- dalshéraði. Það getur tæpast heitið, að vetur sé kominn enn. Dálítið kuldakast kom í miðjum nóvembermánuði, en síðan hefir tíð verið framúrskarandi góð. Héraðið er sama sem autt. BDar ganga enn um Fagradal og alla byggð- ina, ef þörf krefur. Sauðfénaður geng- ur enn úti i flestum hreppum, nema þá helzt lömb. Lungnabólga í sauðfé er farin að gera vart við sig, og veldur sums staðar töluverðum usla. Víðast hvar hefir tekið fyrir veikina, ef tvi- bólusett heflr verið til vamar gegn hennl. Síðastllðinn vetur var mikDl lungnabólgufaraldúr i fé á Héraði. t t t Nú fyrir skömmu voru Haraldur ur Ámason stórkaupmaður, Thor Thors alþingismaður og Haukur Snorrason verzlunarmaður sæmdir heiðursborgaratitli New York borgar. sunnan, þar sem Rússar hafa sótt um Salla til Torneá, sem er við botneska flóann, skammt frá sænsku landamærunum, hafa Finnar einnig hafið sókn og tekizt svo vel, að þeir hafa al- gerlega hrakið Rússa til baka og eru komnir á einum stað 85 km. inn fyrir rússnesku landa- mærin. Er tilætlun þeirra að reyna að stöðva alla flutninga um Murmansk-járnbrautina og hindra þannig alla flutninga til Rússa á nyrztu vígstöðvunum. Á öðrum vígstöðvum eru Rússar einnig á undanhaldi, nema á Kyrjálanesi. Þar hafa þeir haldið uppi árangurslausri sókn. Skjóta þeir aðallega með langdrægum fallbyssum á ýmsa staði bak við Mannerheimlín una, m. a. á Viborg. Mun tilætl- un þeirra að reyna að hindra aðflutninga til hersins á víg stöðvunum, en þessi skothríð hefir enn engan árangur borið. Þá hafa Rússar haldið uppi flugárásum undanfarna daga og gerðu a. m. k. flugárásir á 40 bæi og þorp á jóladag og annan dag jóla. Hafa þær ollið all- miklum skaða, en þó ekki til- finnanlegum. Eru loftvarnir Finna svo góðar, að Rússar verða að fljúga mjög hátt og reynist þeim því erfitt að láta sprengjurnar hæfa hin fyrirhug- uðu mörk. Danskur fréttaritari, sem fylgzt hefir með finnska hern um, segir að erlendum frétta riturum beri saman um, að Finnar séu beztu hermenn heimi. Rólyndi þeirra og seigla tekur öllu fram, segir hann, og það er vafalaust að skotfimi þeirra á ekki sinn líka. Það gild- ir jafnt, hvort þeir handleika riffil, vélbyssu eða loftvarnar- byssu. Er það síðarnefnda eink- um þakkað hinu öfluga land varnarfélagi Finna, sem lagði mikla áherzlu á skotæfingar fé- lagsmanna sinna. Rússnesku hermennimir hljóta yfirleitt þann dóm, að þeir séu einnig mjög hugrakkir en herstjórnin er miklu lak- ari en hjá Finnum og útbúnað ur allur langtum verri. Þeir hafa líka auðsjáanlega notið mjög ófullkominnar þjálfunar Finnlandsstjrrjöldin hefir sýnt að rússneski herinn er miklu lé- legri en álitið hefir verið. Má því fyllilega taka undir þau um- mæli finnska ráðherrans K. A Fagerholm, að hvemig sem Finnlandsstyrjöldinni ljúki, þá hafi Rússar beðið þann sið- ferðislega og hernaðarlega á- litshnekki, sem muni reynast þeim þungur í skuti. 149. blað Á víðavangi Danska blaðið „Social-Demo- kraten“ skýrir frá því 14. þ. m. að íslenzka verkalýðshreyfingin muni verða endurskipulögð á næstunni og sé fyrirætlunin að gera frekari aðskilnað á hinni pólitísku starfsemi og starfi verkalýðsfélaganna. Til þess að koma þessari fyrirætlun í fram- kvæmd hafi verið leitað eftir fjárhagslegri aðstoð verkalýðs- samtakanna á Norðurlöndum og hafi niðurstaða þeirra umleit- ana orðið sú, að sænska verka- lýðssambandið hafi veitt 10,000 kr. í þessu augnamiði, sænski afnaðarmannaflokkurinn 5000 kr. og danska Alþýðusambandið og danski Alþýðuflokkurinn í sameiningu 5000 danskar krón- ur. * * * Þessi tíðindi um fjárhagslega aðstoð erlendra stjórnmála.- flokka til pólitískrar starfsemi á íslandi eru í mesta máta leið- inleg. Það er að vísu ólíku sam- an að jafna og aðstoð Rússa við kommúnista, þar sem þeir krefj- ast skilyrðislausrar hlýðni í staðinn. Hér er sennilegast ekki um nein slík skilyrði að ræða. Það er reyndar kunnugt, að ýmsir leiðtogar jafnaðarmanna 1 Svíþjóð og Danmörku muni óska eftir óbreyttu sambandi ís- lands og Danmerkur, en ekki hefir enn komið neitt frám um breytta aðstöðu Alþýðuflokksins í þvi máli, en stefna flokksins hefir verið alger skilnaður við fyrstu hentugleika. En hvað, sem iessu viðvíkur, hlýtur slík að- stoð jafnan að mælast illa fyr- ir og skapa tortryggni gegn jeim flokkum, sem telja sig hafa svo litla fótfestu í íslenzk- um jarðvegi, að þeir þurfi að styðjast við erlendar hækjur. ífc íjc ífc Nokkru eftir að styrjöldin hófst síðastl. haust lagði ríkis- stjórnin bann við notkun einka- bifreiða. Þetta var fullkomlega nauðsynleg ráðstöfun, eins og á stóð, þótt óþægileg væri fyrir þá, sem bjuggu utan við bæinn, þar sem ekki hagar vel til með ferðir strætisvagnanna, og höfðu haft eigin bifreið til afnota. Hinsvegar munu allir hafa sætt sig við þetta í trausti þess, að sama ætti yfir alla að ganga. Nú er það komið í ljós, að slík hefir ekki orðið reyndin í fram- kvæmdinni, þótt það hafi verið tilætlunin. Ýmsir menn, sem ékki vírðaAt hafa neiiía sér- staka þörf fyrir einkabifreiðar sínar, hafa fengið undanþágu til að nota þær meðan öðrum, sem virðast hafa meiri þörf fyrir þær, hefir verið meinað um það. Þannig hafa t. d. Eggert Claessen og Stefán Thorarensen fengið leyfi til að nota bifreiðar sinar, en for- stjóra Mjólkursamsölunnar, sem mjög þarf á bifreið að halda í þágu fyrirtækisins, hefir verið synjað um undanþágu. Þetta virðist sýna augljósa hlutdrægni hjá atvinnumálaráðherra, sem veitir undanþágurnar, og er full ástæða til að krefjast þess, að sama verði látið yfir alla ganga og einstakir eigendur einkabif- reiða séu ekki látnir njóta neins æðri réttar, þótt þeir séu stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins. Nýtt Framsóknarfélag Hinn 14. des. var aimennur landsmálafundur haldinn í Ól- afsfjarðarkauptúni að tilhlutun fulltrúa miðstjórnar Framsókn- arflokksins. Ennfremur mætti á fundinum Ragnar Guðjónsson kennari frá Siglufirði. Rætt var um stjórnmálaviðhorfið almennt og sjávarútvegsmálin. Fundur- inn var allfjölmennur. Á eftir honum var stofnað Framsóknar- félag Ólafsfjarðarhrepps. Stofn- endur 38. Stjórn skipa: Árni Valdemarsson útibússtjóri, for- maður, séra Ingólfur Þorvalds- (Framh. á 4. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.