Tíminn - 28.12.1939, Síða 2

Tíminn - 28.12.1939, Síða 2
594 TtMINN, fiiiinitiidagiim 38. des. 1939 149. blað Ungmennafélög íslands Elftir Vígfús Guðmundsson Það eru vafalaust ýmsar fé- lagsmálahreyfingar, sem gripið hafa núlifandi íslendingar föst- um tökum, en sú, sem hugljúf- ust er mörgum, sem hafa nú lifað um hálfa öld, er áreiðan- lega Ungmennafélagshreyfingin. Margir þeir, sem tekið hafa þátt í Ungmennafélögunum með lífi og sál, geta tæplega fullþakkað þá vakningu, félagsþroska og ánægjustundir, sem þeir hafa hlotið í Ungmennafélögunum. En margir halda fram, að þetta heyri nær eingöngu til hinum gömlu, góðu dögum. Samt eru Ungmennafélög ennþá vel starf- andi víða um land og er starf- semi þeirra allmargra að aukast á síðustu árum. Og ekki er efa- mál að þessi félög hafa meiri og minni áhrif á félaga sína og umhverfi. Nýlega er komið út síðara hefti af 30. árg. tímarits Ung- mennafélaganna, Skinfaxa. í því er m. a. ágrip af skýrslu ritara U. M. F. í., er skýrir frá starfi margra Ungmennafélaga á árinu 1938, víðsvegar á land- inu — svona í stórum dráttum. Skal hér tekin upp frásögn um aðeins eitt félag sem sýnishorn. Sennilega er það eitt með betri félögunum, því að í þeirri sveit, sem það starfar, er menning og félagsþroski yfirleitt með betra móti. Segja margir kunnugir, að í þeim efnum eigi Ungmenna- félag sveitarinnar — sem nú hefir starfað þar í yfir 30 ár — sinn stóra og góða þátt. M. a. kvað fjöldinn af unga fólkinu þarna vera kyrrt heima í sveit- inni sinni, þótt aðrar sveitir í nágrenninu tæmist af ungu fólki. Trúlegast á ungmenna- félagið þar í sín góðu áhrif. En umsögn ritara U. M. F. í. er þessi: „Ungm.fél. Skeiðamanna: Félagið hefir undanfarin ár unnið að sund- laugarbyggingu skammt frá Húsatóft- um, við heita uppsprettu þar. Er því verki nú að mestu lokið. í ár unnu fé- lagsmenn 308 dagsverk. Laugin er byggð úr járnbentri steinsteypu 8x12% m. að stœrð (innan mál). Áfastir við hana eru upphitaðir baðklefar og bún- ingsskýli. Þá vann hver félagsmaður dagsverk í trjágarði félagsins og 25 dagsverk voru unnin í matjurtagarði þess. Ennfremur unnu félagar mörg frumvarp um þetta samið af milliþinganefnd í lok fyrra hluta Alþingis 1939. Hefir frumvarpi þessu verið sýnt slíkt tómlæti af sumum þeirra, er miklu ráða um þessi mál eins og stendur, að það verð- ur ekki að lögum. Er þess að vænta, að svo verði ekki á næsta Alþingi, enda mun það koma í ljós, að rikissjóði og sveitasjóðum mun ekki af sínu veita. dagsverk að heyskap hjá veikum bónda. Nokkur íþróttanámskeið voru haldin, þar sem kennt var glíma, sund, fimleikar, frjálsar íþróttir o. fl. Þátt- takendur 68. Kennari Jón Bjarnason frá Hlemmiskeiði, ötull og áhugasam- ur íþróttaleiðtogi. Hefir félagið notið hans undanfarin ár. Karlakór var æfð- ur (16 menn). Leiðbeinandi Eiríkur Guðnason, Votamýri. Helztu erindi: Afleiðing styrjaldar (Bergur Vigfús- son). Fræðslustarf (Klemens Þorleifs- son). Rætt m. a. um leshringastarf- semi, jarðræktarmál, leikstarf. Minnt- ist 30 ára afmælis 24. maí. — Farin skemmtiferð í Þjórsárdal, 70 þátttak- endur. Félagar eru 83. Eignir um 6400,00 kr. Stærstu liðirnir sundlaug og fundahús."------- Svona er starfsemi ung- mennafélaganna, þar sem hún er í góðu lagi: Efling andans, skóggræðsla, íþróttaiðkanix, heilbrigðar samkomur, skemmti- ferðir o. s. frv. Og það sem dýr- mætast er, en ekki verður lýst með orðum, eru áhrifin af að vexa sjálfur starfandi að hugð- armálum sínum í heilbrigðu æskufélagi sveitunga sinna. Fleira er 1 þessu hefti Skinfaxa, er varpar ljósi yfir starfsemi ungmennafélaganna, m. a. tal- ar þessi greinarkafli sínu máli: „Vináttukveðja til Vestur-íslendinga. Á liðnum árum hafa Ungmennafé- lögin látið nokkuð til sín taka um það, að efla samúð og vinarhug milli ís- lenzku þjóðarbrotanna vestan hafs og austan. Merkustu verk þeirra í því efni eru að standa að heimboðum ís- lenzkra skálda vestan um haf. Steph- ans G. Stephanssonar og Jakobínu Johnson. — Nú hefir íslenzka ríkið tekið við forustu um heimboð Vestur- íslendinga af Ungmennafél., og fer vel á þvi. Hefir því U.M.F.Í. tekið upp aðr- ar aðferðir til að rétta sína hlýju hönd vestur yfir álana. Nú í haust hefir sambandsstjórn U. M. F. í. sent vestur um haf 500 eintök af veglegri ljósmynd af Jóni Sigurðs- syni forseta, sem gjöf til Vestur-ís- lendinga. Er til þess ætlazt, að mynd forsetans prýði 500 vestur-íslenzk heimili.Neðan við myndarhornið vinstra megin er prentað: „Jón Sigurðsson forseti er tákn alls þess, sem bezt er og göfugast í íslenzku þjóðinni“. Og hægra megin: „Ungmennafélag tslands sendir mynd þessa sem vinarkveðju til íslendinga í Vesturheimi 1939.“ Blöð Vestur-íslendinga hafa getið gjafar þessarar fagnandi og birt bréf sam- bandsstjóra U. M. F. í. um hana til forseta Þjóðræknisfélagsins vestra." Það eru víst margir, sem lítið eða ekkert hafa tekið eftir þessu starfi félaganna. En þótt ung- mennafélögin hefðu aldrei ver- ið til neins annars hér á landi en að vera völd að því, að bjóða Stephani G. Stephanssyni heim til íslands, einu sinni á hans merkilegu áefi, þá væru samt allir íslendingar í þakkarskuld við þau. • Ungmennafélögin hafa víða mjög aukið fræðslu- og menn- ingaráhrif, þar sem þau hafa starfað. T. d. hafa þau á mörg- um stöðum komið upp bókasöfn- um til afnota fyrir almenning, þar sem engin voru til áður. Ritari U. M. F. í. getur nokkurra bókasafna félaganna í skýrslu sinni. Sum félögin eiga orðið stór bókasöfn, meðal þeirra er U. M. F. Reykdæla í Borgarfirði, sem á á áttunda hundrað bindi. Leikstarfsemi og margvísleg- ar skemmtanir eru víða ofarlega á dagskrá hjá félögunum, eins og vera ber hjá ungu fólki Eitt af þeim málum, sem Ung- mennafélögunum hefir orðið mjög vel ágengt að vinna fyrir, er sundnám landsmanna. Þegar þau hófu starf sitt hefir varla meira en 2 til 3 af hundraði af íslendingum kunnað að fleyta sér, ef það hafa þá verið svo margir. Nú líður óðum að því, að íslendingar kunni almennt að fljóta í vatni, og mjög margir eru ágætlega syndir. Má segja, að í þessu máli hafi Ungmenna- félögin og Ungmennafélagar verið lífið og sálin frá byrjun. Mörg félögin hafa komið upp sundlaugum víðsvegar um land- ið og gangast þar og á fleiri stöðum fyrir fjölda sundnám- skeiða árlega. Og vel má minna á það, að það var Ungmenna- félagi, sem fyrstur manna kom verulegu skriði á að reisa hina glæsilegu sundhöll í höfuðstaðn- um. í Ungmennafélögunum sam- einast fólk í leik og starfi með ýmiskonar stjórnmálaskoðun- um. Þar er ekki neitt flokka- hyldýpi milli sveitunganna. Þar er þjálfast í starfi að góðum málefnum, sem félagarnir eiga sameiginlega. En þeir stjórn- málaflokkar, sem næst standa heilbrigðum hugsunarhætti æskumanna fá einkum stuðning þeirra, þegar lengra kemur út í lífið. Af félagsþroska þeim, sem æskumenn hafa hlotið í ungmennafélögunum mun eink- anlega einn af stjórnmálaflokk- um landsins hafa, til þessa, fengið ríkulega uppskeru. Rýrni sú uppskera, er hætt við að flokkur sá megi gæta betur í sinn eigin barm um orsakirnar. Ungmennafélögin hafa mörg látið mikið til sín taka að vinna á móti notkun eiturlyfja, þótt betur hefði oft þurft að vera, t. d. getur ritari um í fyrgreindri skýrslu sinni á einum stað, að í U. M. F. Bifröst i Önundarfirði, séu 32 félagsmenn og 29 af þeim séu í tóbaksbindindisflokki fé- lagsins. Og á móti áfengisnautn er víða barizt í félögunum með miklum árangri. Sem dæmi um það, hve áfengið á erfitt upp- dráttar meðal Ungmennafélaga, er reynsla sú, sem sá, er þetta ritar, hefir fengið í nokkra und- anfarna vetur, þegar hann hef- ir verið á mörgum Farfugla- fundum ungmennafélaganna, sem haldnir hafa verið mánað- arlega að vetrinum í Reykjavík, þar sem venjulega eru saman- komnir 100—200 Ungmennafé- lagar víðsvegar að af landinu. Halldór Krist)&n»sons Austur um Rangárþing ‘gtminrt Fimmtudaqinn 28. des. Tollskráin Tollskráin er eitt stærsta mál- ið, sem veröur afgreitt frá yfir- standandi Alþingi. Á Alþingi 1938 beitti Fram- sóknarflokkurinn sér fyrir því undir forystu fjármálaráðherra síns, Eysteins Jónssonar, að sett yrði milliþinganefnd í skatta- og tollamál. Enginn fann betur en þáver- andi fjármálaráðherra, hversu mikil þörf var á samningu allrar löggjafar um þessi mál. Guðbrandur Magnússon for- stjóri var formaður nefndarinn- ar og fulltrúi Framsóknarflokks- ins, en í henni voru fyrir hina flokkana Jón Blöndal hagfræð- ingur og Magnús Jónsson pró- fessor. Auk þess áttu sæti í henni skattstjórinn í Reykjavík og tollstjórinn í Reykjavík, til þess að tryggja það, að sérþekk- ingar yrði ekki vant í nefndinni. Á árinu 1936 hafði Eysteinn Jónsson gert ráðstafanir til þess að ungur lögfræðingur, Sigtrygg- ur Klemensson, færi utan og kynnti sér sérstaklega þessi mál með nágrannaþjóðum okkar og þá með það fyrir augum.að hann gæti átt þátt í endurskoðun skatta- og tollalöggjafar hér hjá okkur. Hann hefir starfað sem full- trúi nefndarinnar og unnið mjög mikið starf. — Þannig var þetta starf allt mjög vel undirbúið frá öndverðu. í byrjun Alþingis 1939 hafði nefndin lokið við frumvarpið til laga um tollskrá, sem hafði inni að halda öll ákvæði um aðflutn- ingsgjöld, nema ákvæðin um benzínskatt. Átti frumvarp þetta að korria í stað fjölmargra eldri ákvæða um aðflutningsgjöld. Eysteinn Jónsson lagði frum- varp þetta fyrir Alþingi það, sem nú er að ljúka störfum. Hann hafði að sjálfsögðu alla tíð fylgzt meö störfum nefndarinn- ar og verið meö í ráðum um grundvallaratriði málsins. Nú er frumvarp þetta orðið að lögum með tiltölulega litlum breytingum, þegar þess er gætt hvílíkur geysi lagabálkur hér er á ferðinni. Vitanlega eru skiptar skoðan- ir um einstaka atriði laga þess- ara, en hitt dylst engum, að lögin eru stórkostleg endurbót og leggja grundvöll að alveg nýju fyrirkomulagi þessara mála, sem ætti að verða mun hentugra almenningi og einnig löggjafarsamkundur þjóðarinn- ar en það, sem áður vat. Jafnframt eru tollaákvæðin öll endurskoðuð með tilliti til þeirra breytinga, sem orðið hafa á viðskiptum okkar og atvinnu- háttum síðustu áratugi. Það á að vera alveg tryggt, að lög þessi gefi ekki undir nein- um kringumstæðum minni tekj- ur í ríkissjþð en eldri lagaákvæði, sem lögleidd hafa verið undan- farið og oft hefir verið gerður styrr um, enda þótt allir væru nú sammála um, að lögfesta þau til frambúðar. Hinsvegar mun eins og nú standa sakir, verða meiri tekjur af lögunum en orðið hefðu af eldri lagaákvæð- um, vegna þeirrar gífurlegu hækkunar, sem orðin er á flutn- ingsgjöldum, en samkvæmt lög- unum er nú verðtollur reiknað- ur af verði vörunnar að með- töldum flutningskostnaði, en áð- ur var tollurinn reiknaður af verði vörunnar í erlendri höfn. Enginn veit með vissu um af- komu ríkissjóðs næsta ár. En hitt er eigi að síður ljóst, að lög- in um tollskrá munu verða drjúg til bjargar, og ef vel tekst um af- komuna, verður það ekki sízt þeim að þakka. Með þessari löggjöf hefir verið lagður grundvöllur að framtíð- arvelgengni ríkissjóðs, ef vel er á haldið. Áður en E. J. skipti um starf í ríkisstjórninni og eftir að hann hafði lagt grundvöllinn að þess- um lögum, hafði hann falið milliþinganefnd að halda áfram endurskoðun á tolla- og skatta- löggjöfinni og lagt svo fyrir næst skyldi athugað hvað unnt væri að gera til þess að tryggja betur innheimtu tekju- og eignaskatts af vaxtafé, sem allmjög hefir verið dregið undan sköttum, að því er talið er. Lagði E. J. fram FRAMHALD. Klemenz veit það vel, og hann hefir gaman af að benda mönn- um á það, að það er hægt að rækta hér á landi allt haframjöl, sem íslendingar nota. Til þess þyxfti samtals 1300 ha. — það er 1 ha. á hverju býli á Suðurlands- undirlendi. Og Klemenz segir líka frá því, að íslenzkir hafrar hafi reynzt feitari en norskir og danskir hafrar. Og hann bendir á það, að allan kornfóðurbæti, sem íslenzkur landbúnaður noti megi rækta hér á landi. Hann gefur kúnum sínum einungis ís- lenzkan fóðurbæti, — 75% mal- að bygg og 25% síldarmjöl. Og rúgmjölið blandar Klemenz til helminga með byggi í brauð fyr- ir fólk sitt, og þykir það til bóta, en úr bygginu tómu verða brauð- in laus. Þannig er það orðin staðreynd, að íslendingar geta ræktað allt haframjöl sitt, allt korn til fóðurbætis og a. m. k. hálft brauðkorn sitt. En nú koma varfærnir menn og hugdeigir og segja, að þessi ræktun sé ekki árviss. Það komi ísár eins og 1882, og hvar standi kornræktin þá? Það er nú raun- ar ósannað, að korn hefði ekki þroskazt sunnanlands 1882. Og það má benda á það, að akur- yrkja er stunduð víða um lönd, þar sem hún er ekki árviss. Og hvaða atvinnuvegur okkar er ár- viss? Hvar stendur sauðfjár- ræktin í markaðsári eins og 1932? Hvar stendur síldveiðin í aflaári eins og 1935? Hvar stend- ur jarðeplaræktin í árferði eins og 1938? Meira að segja gras- ræktin og túnræktin. Hún getur brugðizt verulega. En það held- ur því enginn fram, að íslend- ingar eigi ekki að stunda neina atvinnu, sem ekki getur brugð- izt, enda væri þá bezt „að skunda út og hengja sig.“ Og því fleiri stoðir, sem renna undir búskap okkar, því tryggari verð- ur afkoman. En Klemenz á Sámstöðum er meira en kunnáttumaður í bún- aði, tilraunamaður og braut- ryðjandi. Hann er hugsjónamað- ur og sér í hyllingum framtíð íslenzkra sveita. Þar er þó ekki um að ræða tóma loftkastala, því að hann sér allt í ljósi þeirra sannana, sem reynsla hans hef- ir leitt í ljós. Hannes Hafstein orti fyrir fjórum áratugum af mikilli andagift: Sú kemur tíð, að sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja skóga, brauð veitir sonum móðurmoldin frjóa, menningin vex í lundi nýrra skóga. Klemenz á Sámstöðum veit hvernig þetta getur orðið. Friðrik konungur VIII. sagði um Suðurlandsundirlendið, að það gæti verið heilt kóngsríki og þar gæti lifað miljón manns. Enginn veit hvað konungur vor hefir séð þegar hann sagði þetta, eða á hverju hann hefir byggt þessa skoðun, en sá, sem kemur að Sámsstöðum og tileinkar sér fræðilegar ályktanir af störfun- um þar, finnur, að hinn danski konungur hefir hér haft réttara fyrir sér en flestir innlendir menn í þá daga. Sámsstaðir sanna það, að Suðurlandsundir- lendið er til annars meira fall- ið en að vera bithagi útigangs- hrossa. Þar er nú á 28 ha. fram- leitt fyrir 20 þús. kr. Þannig er þá málum okkar komið, að þessar glæsilegu stað- reyndir eru fullsannaðar á sama tíma, sem þúsundir manna ganga atvinnulausir og fátækra- framfæri er að sliga mörg sveit- arfélög og bæjarfélög okkar. Ég hefi að sönnu ekki mikla trú á stórkostlegum þjóðflutningum úr kaupstöðum í sveitirnar, en mér sýnist, að líf þjóðarinnar liggi við, að sveitafólkið hætti að ryðjast í kaupstaðina til að berjast þar um hin ónógu lífs- skilyrði. Ég veit það vel, að í hópi okkar sveitamanna eru ýmsir, sem treysta sér til að ryðja frá sér af jötunni reyk- vísku, en nógu margir eru þar útundan í krónni, þó að ekki sé reynt að fjölga þeim. Hinsvegar á þjóðfélagið engan siðferðileg- an rétt til að heimta meiri sjálfs- afneitun af okkur en öðrum. Og það verður að flýta fyrir hinu nýja landnámi með þjóðfélags- legum aðgerðum. Hversu lengi ætlum við að láta vanhugsað og fánýtt blaður um persónufrelsi Þar hefir oft verið gleðskapur ágætur fram á nótt. En ég hefi aldrei séð nokkurn mann þar, hvorki karl eða konu, undir á- hrifum áfengis. í Reykjavík er þó mjög almennur drykkju- skapur á samkomum ungs fólks. — Fullorðnari Framsóknar- mönnum, sem mjög margir eru gamlir Ungmennafélagar, ætti að vera sérstaklega kært, að ungir Framsóknarmenn virðast ætla að eiga samleið með Ung- mennafélögunum í þessu máli, sbr. t. d. ályktun sem stjórn sambands þeirra samþykkti á aðalfundi sínum á Akureyri s. 1. vor: „Aðalfundur S. U. F. lýsir ánœgju sinni yfir baráttu margra Ungm.fél. fyrir útrýmingu drykkjuskapar af hér- aðsmótum sínum. Vill þó alveg sér- staklega þakka hið myndarlega átak borgfirzkra Ungm.fél. á s. 1. vori, og væntir, að það megi verða öllum þeim til fyrirmyndar, sem að almennum samkomum standa." Hefi ég ekki tekið eftir, að Tíminn hafi birt þessa ályktun, en tel að fari vel á því að hann birti frásagnir af gjörðum unga fólksins í landinu, þeim, sem miða í rétta átt. Eitt er það m. a., sem vert hefði verið að geta um Ung- mennafélögin. Þau hafa all oft, í sveitum, farið á sunnudögum á sumrin heim á bæi, þar sem hafa verið veikindi eða aðrir sér- stakir erfiðleikar og unnið frí- vinnu að heyskap hjá þeim, sem erfiðleikarnir hafa steðjað að. Sum félögin hafa einnig farið um helgar og unnið við að hjálpa duglegum ungum hjón- um í sveitinni við að reisa ný- býli, og er slík sköpunarstarf- semi einmitt mjög samboðin heilbrigðri æsku. Hvar sem leiðin liggur síðar í lífinu, mun fáa iðra þess, að hafa hjálpað til að reisa nýbýli, samkomuhús, sundlaug, eða að hafa verið með að gróðursetja tré eða laga til fyrir skrúðgarði heima í sveit- inni sinni á æskuárunum. Slíkt er í anda ungmennafélaganna. Og áreiðanlega má rekja áhrif- in til Ungmennafélaganna á ýmsan hátt, að mörg hríslan prýðir nú þegar, þar sem áður var auðn. Hitt er annað mál, að mörg félögin hefðu átt að geta unnið betur, bæði að skógrækt o. fl., heldur en þau hafa gert. En bendir ekki einmitt þegn- skaparvinna Ungmennafélag- anna leiðina, sem á að fara í lausn eins mesta vandamálsins, er bíður úrlausnar? í bæjunum þyrpist saman at- vinnulaust fólk, og sérstaklega stafar ungmennum bæjanna stór hætta af iðjuleysi og verk- efnaskorti. En í sveitunum vantar vinnuafl. Þingmenn og aðrir sjá öfugstreymið í þessu, en það vantar djörfung, dáð og víðsýni til þess að taka rösklega á og bæta úr mestu ágöllunum. En Ungmennafélögin hafa, og sjálfstæði aftra okkur frá því að koma á þegnskyldu? Við vit- um, að þúsundir úngra manna hefðu gott af því að fá að vinna uppbyggileg þegnskyldustörf undir lipurri og fastri stjórn og að þjóðin þarf að fá slík verk unnin. Og eftir hverju er þá beð- ið? Hversvegna tekur ekki þjóð- in iðjulausu börnin sín og lætur þau fá fæði og klæði við að girða sandana á Rangárvöllum og ræsa fram mýrar og leggja þannig grundvöll að lífsham- ingju og velmegun þúsundanna? Aðrar þjóðir gera út miljóna- heri í siðlausar styrjaldir til að berjast um landamærahéruð og nýlendur. Slíkt er á einn hátt til fyrirmyndar: Sérhvert þjóð- félag verður að heimta þegn- skap og þjónustu af fólki sínu til að skapa og vernda lífsskil- yrði framtíðarinnar. Og við skulum líka gera okkur annað Ijóst: Persónufrelsi, sem er heildinni til ills, er ranglæti. Svona er það, að ónotuðu lífsskilyrðin sunnanlands leiða hugann að þjóðfélagsmálum, svo að maður kemst í hita út frá frómustu hugleiðingum um búskap Klemenzar á Sáms- stöðum, sunnlenzkar mýrar og sanda. Annars munar minnstu að gróðurmoldin virðist vera of mikil og einráð um of á köflum. Víða eru vandræði að fá ofaníburð í vegi eða smá- grjót í steypuvegg. Ég hélt því að Sunnlendingar mættu fyrir skipta við okkur Vestfirðinga. Þeir létu okkur hafa nokkra ha. af mýrum fyrir nokkur þús. rúmmetra af grjóti og það ó- með þeim vísi að þegnskapar- vinnu, er þau hafa víða innt af höndum í frístundum félaga sinna, varðað veginn, sem á að fara. Það á að koma á allsherj- ar þegnskylduvinnu um allt land, eins og Ungmennafélögin hafa haldið fram frá því fyrsta. Þótt ekki væri nema örfáar vik- ur af æfi hvers manns, sem hann ynni þegnskylduvinnu, þá væri með samanlögðu því vinnuafli hægt að gera óhemju mikið til umbóta í landinu, sem annars væri ókleift með háu kaupgjaldi. En þó ætti atvinnan við það fremur að aukast fyrir þá, sem vinna daglaunavinnu, því marg- ir færu af vinnumarkaðnum um stundarsakir. En þegar til vinn- unnar kæmu allir, ríkir og snauðir, iðjulausir og hálfiðju- lausir menn, margfölduðust vinnuafköstin. Það er þröngsýni, svo ekki sé sagt meira, að ætla bláfá- tæku kaupstaðafólki að fara upp í sveit og búa þar hjálpar- lítið á óræktuðu landi, og það er mjög örðugt fyrir efnalítið sveitafólk að mynda heimili í sveit, svo að viðunandi sé. En eitt af aðalstörfum þegnskyldu- vinnumanna ætti að vera það, sem sum Ungmennafélögin hafa byrjað á í sínum litlu frístund- um, þ. e. að hjálpa mönnum til þess að rækta og reisa nýbýli. Væru forustumenn þjóðar- innar gæddir þeirri djörfung og framsýni að koma á allsherjar þegnskylduvinnu og láta hana fara skipulega og vel úr hendi, t. d. við að rækta og reisa ný- býli handa efnilegu fólki, sem líklegt væri á eftir að geta lifað af sjálfstæðum atvinnurekstri, þá væri hægt að stórauka holla velmegun í landinu, gera reglu- legt stórvirki á nokkrum árum, rækta og byggja upp landið og um leið að gera unga fólkið að ötulli og betri þjóðfélagsþegn- um. Jafnframt vinnufram- kvæmdum yrði alltaf að sjá menningar- og uppeldis- hliðinni vel borgið. Ungmennafélögin og Ung- mennafélagar áttu mestan þátt- inn í að koma upp héraðsskól- unum. Þegar þeir voru komnir upp og fátækir unglingar áttu að geta fengið þar almenna menntun, þroskað sjálfa sig lík- amlega og andlega, og þá ekki sízt aukið félagsþroska sinn, þá var einn af stærstu og fegurstu draumum gömlu Ungmennafé- laganna að rætast. Og margir þeirra bjuggust við auknum á- huga og krafti frá héraðsskól- unum til eflingar Ungmenna- félögum landsins. En þarna hafa orðið sár vonbrigði. Þegar frá er talinn einn héraðsskólinn, er varla úr þeirri átt áð ræða um verulegt liðsinni til handa Ung- mennafélögunum. Ýmsum mun hafa dottið í hug (Framh. á 4. síðu.) sviknu blágrýti. Og ég bauð þeim meira að segja eina vík eða smáfjörð, svo að þeir fengju eina góða höfn. Liklega stranda þó samningar á því, að hvor- ugir vilja taka að sér flutninga. Og það er ef til vill vorkunar- mál, en óheppileg eru skiptin frá hendi náttúrunnar. Eins og víðast á landi hér, er skortur á forystumönnum í sveitum Suðurlands. Þar vantar menn, sem geta leiðbeint fólk- inu í ýmsum greinum og sinnt trúnaðarstörfum fyrir sveitir sínar. Það er fjarri því, að þetta sé einkennandi fyrir Suðurland. Eins og Þorsteinn Erlingsson kvað, — þótt um annað væri kveðið: Mér er sagt hiö sama norðanlands, — og svona kvað það vera um allar jarðir. Myndarmaður einn sagði mér, að í sinni sveit væru fjórir menn, sem til nokkurra trún- aðarstarfa væri treystandi. Þó að ef til vill væru fleiri, sem kynnu að hafa hæfileika til að sinna slíkum störfum, þá væru þeir ófáanlegir til þess. Við sjá- um líka ískyggilega oft eftir- mæli manna, sem hafa verið allt fyrir sveit sína, hreppstjóri, oddviti, sýslunefndarmaður o. s. frv. Þeir menn, sem bezta hafa hæfileikana, eru fluttir burtu úr sveitunum, allflestri, burtu úr sveitunum, allflestir, kaupstöðunum, einkum í Reykjavík. Ungmennafélögin reyna að bæta úr þessari vöntun með því, að útvega kennara á smánám- skeið í söng og ýmiskonar í- þróttum og enda iðnaði. Sum-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.