Tíminn - 28.12.1939, Qupperneq 3

Tíminn - 28.12.1939, Qupperneq 3
149. blað TÍMIOTi, íimmtadaginM 28. des. 1939 595 anmAll Dánardægur. Guðmundur Þorvarðarson 1 Litlu-Sandvík, lézt 16. des. 1939. Með Guðmundi í Sandvík er fallinn sá bóndinn, er búnað- ist einna bezt á Suðurlendinu og þótt víðar sé leitað. Hann byrjaði búskap á föður- leifð sinni jarðskjálftaárið (1896) með fremur litlum efn- um, en færðist það í álnir, að hann varð stórefnaður maður á landbændavísu. Jörð sína bætti hann og stækkaði ár af ári, svo að nú er hún eitt bezta og notadrýgsta býlið í Flóanum, með véltækum túnum og engj- um. En hann lét ekki þar við lenda, því á efri árum byggði hann jörðina upp frá stofni af svo mikilli rausn, að langt bar af öllum býlum sýslunnar, bæði íbúð og úthús, og reisti sér með þvi þann varða, er lengi mun halda nafni hans á lofti. Slíkur maður er að sjálfsögðu kjörinn sveitarhöfðingi, enda varð hann brátt allt í senn, hreppstjóri, oddviti og sýslu- nefndarmaður og hélt þeim störfum allan búskap sinn. Er því við brugðið, hve annt hann lét sér um hag sveitarinnar og hve farsæl stjórn hans reyndist í hvívetna og fyrir því naut hann fulls trausts sveitunga sinna, eins og mátti. Auk þess var hann drjúgum viðriðinn framfaramál héraðsins, sat lengstum í stjórn kaupfélags- ins Heklu og síðar í stjórn Kaupfélags Árnesinga, var og formaður Flóaáveitufélagsins og komu þar alstaðar hyggindi hans vel í hag, því að hann var ágætur félagsmaður, tillögugóð- ur og ráðhollur, og vildi í hvi- vetna láta gott af sér leiða. Bar hann að þvi leyti langt af flest- um ríkisbændum, sem ég hefi haft kynni af. Um stjóxnmál fékkst hann lítið önnur en þau, er til hags- bóta horfðu fyrir þændur, og þó staðar reyna þau að ala slíka leiðbeinendur upp í sveitunum, og víst er það takmarkið, sem verður að nást. Það var t. d. mjög ánægjulegt að koma að Heimalandi í sam- komuhús U. M. F. Trausta undir undir Eyjafjöllum 26. nóvember. Ungir menn úr sveitinni og nokkrir úr Austur-Landeyjum voru að koma sér þar fyrir til hálfsmánaðar dvalar á nám- skeiði í glímu og fimleikum. Þeir búa í húsinu og matreiða sjálfir fyrir sig. Ungmennafé- lagshúsið er heimavistar- íþróttaskóli þennan tíma og þar er starfað af alúð og kappi. Kennarinn, Sigurður Brynjólfs- son, er ungmennafélagi úr Aust- ur-Landeyjum. Nú er hann þó sjómaður í Reykjavík og skrepp- ur austur að þreyta fangbrögð við sína gömlu félaga og þjálfa þá milli vertíða. Auðvitað er ekki neitt sér- stakt við þetta námskeið. Það er fyllilega hliðstætt öðrum námskeiðum og samstofna ann- arri starfsemi ungmennafélag- anna í þjónustu sveitamenn- ingarinnar. Auðvitað er mest um það vert, að ungmennafé- lögin reyna að glæða ræktar- semi og átthagaást fólksins, — glæða ræktunarþrána og út- breiða ræktunartækni. Ég er alveg viss um það persónulega, að hið háa Búnaðarþing fór ekki rétt að ráði sínu í fyrra- vetur, þegar það neitaði U. M. F. í. um styrk til ræktunarstarf- semi unglinga og ég er glaður yfir því, fyrir hönd stéttar minnar, að styrkveitingin féll B Æ K U R Hagalín segir frá. Skemmti- legar og skrítnar minn- ingar frá Noregi. — ísa- fjörður 1939. 152 bls. Verð 5 krónur ób. í þessari bók segir Guðmund- ur Hagalín frá dvöl sinni meðal frænda okkar, Norðmanna. — Frásögnin er í sjö köflum. Þeir fjalla allir um norskt þjóðlíf og norska náttúru, en mynda þó ekki samfellda söguheild. Það er auðfundið, að hér er sagt frá frændþjóð og landi, sem er í mörgu líkt okkar eigin. Sumar persónurnar gætu verið íslenzkir kunningjar. Svo er til dæmis um Eirík gamla. í stuttu máli tekst höfundinum að bregða upp mjög skýrri mynd af fastheldni og hetjulund norsks bónda. En sú mynd gæti líka verið íslenzk. Þegar sonar- missirinn ætlar að buga Eirík, leitar hann fróunar í vinn- unni. Hann ryður land til rækt- unar, svo að jörðin hans verður miklu betri en áður. „Hún heitir bara Hansína“, er í rauninni heil saga, sérstæð og skemmtilega sögð. Það eru ekki á hverju strái mæður eins og sú, sem þar er lýst. Hún er hetja og framkoma hennar minnir á norræna víkingslund. Þessi móðir virðist vera nokkuð köld og hörð, jafnvel við son sinn. En undir þeim kalda hjúpi er hin heita og fórnfúsa móður- ást, eins og kemur svo fallega í ljós í lok sögunnar. Fyrsti kafli bókarinnar heit- í góðu hófi, eins og honum var lagið, og sízt gat hann hent þau endemi, að láta „tíkina“ teygja sig til að vera á móti sjálfum sér eins og nú er farið að tíðk- ast og það jafnvel með bænd- um. Guðmundur heitinn var heimaprúður og hjúasæll með afbrigðum, manna grandvarast- ur í viðskiptum og lofaði jafn- an minna en hann efndi, en það má nú heita forn dyggð, er löngum prýddi góðbændur þessa lands. Guðmundur var fæddur 11. júní 1870 og gekk 1896 að eiga Sigríði Lýðsdóttur frá Hlíð í Eystri-Hrepp, sómakonu eins og hún á ætt til. Með henni, er enn lifir mann sinn, eignaöist hann 5 börn, Þorvarð bókara við kaupfélagið á Selfossi, Lýð, sem nú býr i Sandvík, Harald vélfræðing, Aldísi, gifta Kristni Vigfússyni smið á Selfossi og Svanhildi, gifta Sæmundi sím- stjóra á Seyðisfirði, og eru þau öll mestu myndarmanneskjur. Blessi þeim minning hans. M. T. jöfnum atkvæðum, og það vegna þess, að tveir Búnaðarþing- menn voru veikir. En það, sem mestu varðar, er að hverfa huga hins unga fólks að við- fangsefnum sveitanna. Hitt kemur allt, þegar viljann vant- ar ekki. Ungmennafélögin beita sér fyrir bætum menningarskil- yrðum í sveitunum, styðja þar góða skóla og lestrarfélög og bókasöfn og auka ýmsiskonar kunnáttu og menntir. Þannig eru þau brjóstvörn í menning- arbaráttu fólksins í sveitunum. Og þótt að víða sjáist lítill á- rangur í þessari baráttu við of- urþunga öfugrar þjóðlífsþróun- ar, þá er hann sumstaðar góður. Og viðnámið er ómetanlegt að áhrifum og þýðingu, þó að ekki náist sigur að sinni. Árnessýsla og Rangárvalla- sýsla eru að koma sér upp hér- aðsbókasafni að Selfossi. Ung- mennafélögin eru þátttakendur í þeirri starfsemi. Héraðssam- bandið Skarphéðinn samþykkti að styrkja safnið með föstu til- lagi, sem næmi 50 aurum á hvern félagsmann á ári. Það er myndarlegt liðsinni við gott mál. Unga fólkið veit, að það verður að taka virkan þátt í því sjálft, að skapa sér skilyrði til að bíða eftir föstu, ákveðnu skipulagi á þeim málum víðast hvar. í hverri sveit verður lestr- arfélag, sem er borið uppi af af- notagjöldum lestrarhneigðra manna í sveitinni og styrkt úr sveitarstj óði og ríkissjóði. Þessi söfn kaupa allar sæmilegar bækur, sem út koma á íslenzku og skapa þannig fátækustu Sauðfjárböðun. Sart'.' ^væmt fyrirmælum laga nr. 58, 30. nóv. 1914, ber að framkvæma þrifaböðun á öllu sauðfé hér í lögsagnar- umdæminu. Út af þessu ber öllum sauðfjáreigendum hér í bænum að snúa sér NÚ ÞEGAR til eftirlitsmannsins með sauðfjárböðunum, herra lögregluþjóns Sigurðar Gíslasonar. Símar 3697 og 3944. Borgarstjórinn í Reykjavík, 21. desember 1939. Pétnr HalldorsNOii ir „Til fjalla“. — Höfundurinn hefir farið í skíðaferð með tveimur öðrum rithöfundum. Þeir sækja upp í fjallaauðnirn- ar og dvelja þar um stund í sæluhúsi. Frásögnin felur í sér hvatningu til útivistar og vetr- aríþrótta: Allir þurfa við og við að njóta hinnar ósnortnu, hreinu náttúru, sem há fjöll og víðáttumiklir skógar geta veitt. Slíkt er ágætt mótvægi gegn ýmsum ókostum nútímamenn- ingar okkar. „Til selja í Harðangri" er annar þáttur þessara frásagna. Þar kynnist lesandinn norsku seljalífi, eins og það er nú. Jafnframt er hann vakinn til hugsunar um, hversu íslenzkt sveitalíf „verður nú meira og meira rúið „rómantík." „Það eru fá orð í íslenzku máli, sem hafa svo mikinn æf- intýrablæ, sem orðið sel“. En seljalífið er horfið hér og margt fleira, sem gerði sveitalífið fjöl- breyttara og veitti því heillandi, „rómantískan“ blæ. Sveitirnar þurfa að endurvekja ýmsa gamla, þjóðlega hætti. Sumum þarf að breyta í samræmi við nýjar aðstæður. Kuldablær nýrr- ar járnaldar má ekki leggjast yfir sveitalífið, þótt vélamenn- ingin ryðji sér þar til rúms. Síðasti söguþátturinn heitir „Sunnudagskarlinn“. Iðnaðar- maður frá Stafangri er á leið til Kaupmannahafnar til að leggja krans á leiði ástmeyjar sinnar, sem hann hefir aðeins haft kynni af tvær kvöldstundir. Á hverju ári hefir hann farið slíka ferð til að heiðra minningu hennar. Nú er hann að fara í 39. skiptið. — — — Annars skal ekki efni þessara minninga rakið frekar hér. Þær munu verða lesnar með ánægju. Lesandinn nýtur skemmtilegr- ar og góðrar frásagnar og hnýt- ur hvergi um erlend orðskipti. Víða birtist í frásögninni gam- ansemi og glettni, eins og til Dregið var i happdrætti Sund- félagsins „Grettir" 1. des. s. 1. hjá sýslumanni Strandasýslu. Þessi númer hlutu vinning: 466 — 1496 — 781 — 1699 — 4227 — 5 — 2599 — 3851 — 2119 — 832 — 1477 — 4634 — 1709 — 2571 — 518 — 1575 — 368 — 4704 — 1584 — 2063. Vinninganna sé vitjað til Jóns Bjarnasonar bónda, Skarði, Strandasýslu. Sundfél. „Grettir“. Þótt þér haffð öllu gleymt, þá munið samt Raf t ækjj a ver zlun Eíríks Hjartarsonar Laugaveg 20, Reykjavík.-Sími 4690. Föstudagínn 29. desember og laug- ardagínn 30. desember verður ekkí gegnt afgreiðslustöríum í sparisjóðsdeild bankans. r Landsbanki Islands. r Aminning. Kaupendur Tímaus, sem enn hafa ekki greitt yfir- standandi árgang blaðsins, eru hér með minntir á að gera það nú þegar, svo framarlega sem þeir óska eftir að fá blaðið sent framvegis. Inuhetmtumeim eru jafnframt áminntir um að vinna vel að innheimtu blaðsins og senda skilagrein til inn- heimtu blaðsins í Reykjavík fyrir áramót. Geffð gaum að tilkynningunni frá útgáfu- stjórn Tímans, sem birtist í blaðinu. V Vaka er ódýrasta og vand- V A aðasta tímarit, sem gefið er A K út hér á landi. Árg. kostar K A kr. 5,00, og er um 300 bls. A prýddur fjölda mynda. — Gerist kaupendur nú um áramótin. VAKA, Aðalstr. 9, Reykjavík. unglingum aðstöðu til að lesa beztu bókmenntir tungunnar. Svo eru héraðasöfn, sem víðast munu verða sýslubókasöfn. Þau kaupa hin stærri og dýrari rit- verk. Þar eiga menn aðgang að úrvali heimsbókmenntanna og ýmiskonar vísindaritum. Á þennan hátt á að takast að skapa skilyrði fyrir dátlitla fræðimennsku víðar en í Reykja- vík. Þetta á að bera uppi menn- ingu allrar alþýðu og gera menntamönnum líft úti um land. Annars finnst mér, að bóka- hneigð og lestrarlöngun sé ekki eins almenn sunnanlands eins og norðan og vestan. Ungur og upprennandi maður úr Holtum varð mér samferða milli bæja. Ég innti hann eftir lestrarmál- um þar í sveit. Hann virtist vera vel ánægður með ástandið í þeim efnum. Annars væri lestr- arþráin mjög misjöfn, en víða góð heimilisbókasöfn, sem full- nægðu mönnum. Og svo sagði hann: „Ég á t. d. alltof mikið af bókum. Eitthvað hundrað stykki.“ Þetta er næsta lítilþægur maður og þetta undrumst við, þegar við gætum þess, að mað- urinn er greindur og ungur. En hann er ekki einn um þetta álit sitt. Mér finnst líka eins og t. d. Halldór Kiljan Laxness sé næsta þýðingarlaus persóna í lífi ýmsra Sunnlendinga, þver- öfugt við það, sem er um alla al- þýðu nyrðra, a, m. k. í Eyja- firði og Þingeyjarsýslu. Ég þekki (Framh. á 4. siSu.) dæmis í kaflanum „Kunnur maður.“-------- Við íslendingar höfum sér- staka ástæðu til að vilja kynnast vel norsku þjóðinni og landi hennar. Þar getum við talið til náinnar frændsemi og okkur ætti að vera kappsmál að vita sem mest um þetta heimkynni okkar gömlu forfeðra. Þessir sögukaflar Guðmundar Haga- líns geta einmitt hjálpað til slíks. í þeim er lýst norskri nátt- úru og sagt frá nokkrum merk- um þáttum í nútímalífi þessarar frændþjóðar okkar. J. E. G. ^mmmmmmmmmmmnmmmmmmmmmmmmmmmmmm Húðir og skinn. Ef bændur nota ekki til eigin þarfa allar HÚÐIR og SKINN, sem falla til á heimilum þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt að koma þessum vörum í verð. — SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur NAUTGRIPAHÚÐIR, HROSSHÚÐIR, KÁLFSKINN, LAMBSKINN og SELSKINN til útlanda OG KAUPIR ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUNAR. — NAUTGRIPA- HÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN er bezt að salta, en gera verður það strax að lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinnunum, bæði úr holdrosa og hári, áður en saltað er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum vörum sem öðrum, borgar sig. — wwtrtMMMtoiwwwwfciwwwwwwiiaitMwirtataiiiiHiiiifc ACCUMUL AT0REN-F ÁBRIK, DR. TH. S0NNENCHEIN. 72 Margaret Pedler: Laun þess liðna 69 „En finnst yður það núna?“ „Núna, já, á sinn hátt. Þegar allt kem- ur til alls, getur maður komizt gegn um hvað sem er, sem maður á annað borð vill komast í gegn um, en ef til vill með dálítið aðrar skoðanir en áður á því, hvað sé mannvit og dyggð.“ „Þér talið eins og þér eigið dökkleita fortíð," svaraði Elizabet glaðlega, eins og hún hefði alls ekki tekið eftir, hvað svör hans voru bitur og köld. „Það er undir því komið, hvað fólk kallar dökkleitt," svaraði hann stuttlega. Hún hristi höfuðið: „Nei, það er alls ekki. Annað „fólk“ skiptir engu máli. Það er aðeins undir því komið, hvort þér hafið gert nokkuð, sem þér skammist yðar fyrir. Hafið þér gert það?“ spurði hún hlæjandi. Maðurinn, sem á móti henni sat, horfðist í augu við hana. „Nú,“ sagði hann blátt áfram, en bætti svo vel: „En ég get ekki fallizt á þá skoðun yðar, að „annað fólk“ skipti engu máli. Það deilir einmitt út bæði himna- ríki og helvíti." Hann talaði með furðu- legri harðneskju, eins og þessi athuga- semd væri knúin fram af einhverju, sem aðstæðurnar hefðu þröngvað inn á hann. „Þér lærið þetta sennilega sjálf- ar, þegar þér eruð búnaT að lifa dálítið lengur. En ég vona samt, að það verði „Ég get sjálf nuddað þá,“ sagði hún og var fljótmælt. Hann leit á hana, og í bláum augun- um var skrítinn svipur. „Þér þurfið ekkert að vera feimnar,“ sagði hann. „Ég er það ekki,“ svaraði Elizabet og stokkroðnaði. „Jú, þér voruð það. En það er fullkom- inn óþarfi. Ég er alvanur berum fótum, þeir hafa engin truflandi áhrif á mig,“ hélt hann áfram og nuddaði ákaft með handklæðinu. „í sambandi við bera fætur tek ég ekki eftir öðru en því, hvort þeir eru fagrir eða ljótir í laginu.“ Elizabet rak upp óp alveg óviljandi: „En ég býst þó við að þér viljið held- ur að skinnið sé á þeim, eða er það ekki,“ sagði hún dálítið ónotalega. Maðurinn hætti að nudda og leit á hana dálítið harðneskjulega. „Nuddaði ég of fast? Ég bið afsökunar. Jæja, ég held að þetta ætti að nægja. Nú skuluð þér verma fæturna hérna við eldinn, meðan ég blanda drykkinn handa yður.“ Marietta var komin með allt, sem til þurfti. Hún hafði fært þeim sítrónur og sykur, whisky og heitt vatn, svo að ekkert þurfti að vera af vanefnum gert. „Drekkið þetta eins og það er,“ sagði karlmaðurinn um leið og hann rétti

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.