Tíminn - 28.12.1939, Qupperneq 4
596
TÍMEVIV1. fimmtMdaglim 28. des. 1939
149. blað
Jólatrésskemmtun
Framsóknarmanna
verður í Oddfellowhiísinu 3. janúar og hefst
kl. 5 e. li. — Æskilegt að þátttaka sé tilkynnt
sem fyrst á afgr. Tímans. — Sími 3323.
Dans fyrir fullorðna hefst kl. 91/**.
Tilkynnin
Hér meö er vakin athygli á því, að þeir, sem enn hafa
ekki greitt tekju- og eignarskatt sinn og lífeyris-
sjóðsgjakl, verða að greiða þessi gjöld fyrir áramót, ef
að þau eiga að verða dregin frá skattskyldum tekjum
þeirra, þegar gjöld þessi verða ákveðin á næsta ári.
T ollst j ór askrí ístoían
Hafnarstræti 5.
Sparísjóður Reykjavíkur
og nágrenms
verður lokaður laugardaginn 30. des. 1939
vegna vaxtaútreiknings.
tlR BMUM
Stórbruni
átti sér staö hér í bænum aö morgni
aðfangadagsins. Klukkan 9—10 kom
eldur upp í frystihúsinu isbjörninn við
Skothúsveg. Var það áður ishús, en
nú búið frystitækjum og starfrækt á
vegum Fiskimálanefndar. Slökkviliðið
barðist í fjórar stundir við eldinn áður
en tækist að kæfa hann. Mikið af fiski
var í húsinu, alls um 80 þúsund króna
virði, og hefir allmikið af þeim fisk-
birgðum eyðilagzt eða skemmzt. Einnig
ónýttist þarna mikið af fiskumbúðum,
auk þeirra skemmda, sem urðu á bæði
húsi og tækjum.
J ólatr ésskemmtun
Framsóknarmanna
verður haldin í Oddfellowhúsinu 3.
janúar. Hefst hún klukkan 5. Þess er
óskað, að þátttaka sé tilkynnt sem
fyrst á afgreiðslu Tímans. Um kvöldið
verður skemmtun fyrir fullorðna fólk-
ið og hefst hún klukkan 9,30.
Kvikmyndahúsin
Nýja Bíó sýnir nú stórfræga sögulega
mynd, sem rekur æfiferil hugvits-
mannsins Alexanders Graham Bells,
er fann upp talsímann. Er myndin allt
í senn, fróðleg, viðburðarík og vel leik-
in. — Gamla Bíó sýnir ameríska mynd
og leika „söngstjörnurnar" Jeanette
Mac Donald og Nelson Eddy aðalhlut-
verkin. Myndin er ekki efnismikil, en
söngur og leikur þessara vinsælu leik-
ara ber hana vel uppi.
Fargjald til Vífilsstaða.
Sjúklingar á Vífilsstöðum hafa beðið
blaðið að benda á, að fargjald frá
Reykjavík til Vifilsstaða kostar 90
aura, þar af 40 aura frá vegamótum
Hafnarfjarðarvegar; er sú leið innan
við 2 kílómetra. Fargjald til Hafnar-
fjarðar, lengri leið, er 80 aui'ar og þar
af renna 25 aurar til bæjarsjóðs Hafn-
arfjarðar, og raunverulegt fargjald því
55 aurar. Vífilsstaðasjúklingar, sem
hafa leyfi til að fara í bæinn, verða
að borga 1,80 í ferðalagið fram og til
baka.ef þeir vilja hitta vini og ættingja,
er þeir kunna að eiga í Reykjavík. Nú í
vetur hækkaöi fargjald til Hafnar-
fjarðar um 5 aura, en til Vífilsstaöa
um 15 aura.
Vetrarh j álparstarfsemin.
Vetrarhjálpinni í Reykjavík bárust
fram til jóla alls rösklega 1200 beiðnir
um hjálp. Hafa því mun fleiri leitað
á náðir Vetrarhjálparinnar nú, heldur
en í fyrra. Af þessum 1200 hjálpar-
beiðnum reyndist unnt að sinna 965
að nokkru. En auk þess fengu. 100
gamalmenni á elliheimilinu og sjúk-
lingar á farsóttahúsinu jólaglaðning.
799 fjölskyldur eða einstaklingar fengu
matvæli á vegum Vetrarhjálparinnar,
787 fatnað, 65 smálestum af kolum var
deilt á 619 heimili og 8530 lítrar voru
látnir úti af mjólk á vegum Vetrar-
hjálparinnar. Alls safnaðist á 27. þús-
und krónur i peningum til starfsemi
V etrarhj álparinnar,
Leikfélag Reykjavíkur
hafði frumsýningu á annan í jólum
á sjónleiknum Dauðinn nýtur lifsins.
Var leiknum framúrskarandi vel tekið
og voru leikarar, leikstjóri og hljóm-
sveitarstjóri að lokum kallaðir fram.
Næsta sýning verður á morgun og er
alþingismönnum og bæjarráði boðið á
þessa sýningu. Leikdómur birtist bráð-
um hér í blaðinu.
Afgreiftsla ijárlaganna
(Framh. af 1. siöu.)
nefnd hafa borizt, nema á
fjórðu milljón króna.Dýrtíðin fór
einnig að hafa sýnileg áhrif á
ríkisreksturinn, ýmsar styrjald-
arráðstafanir höfðu aukin út-
gjöld í för með sér o. s. frv.
Nefndin taldi því ekki rétt að
fara að svo komnu máli aðra
leið en hún hefir gert, með til-
lögum sínum. „En ef svo fer“,
segir í álitinu, „að útlitið breyt-
Ungmeanaiélög
Islands
(Framh. af 2. siöu)
að koma upp félagsskap í skól-
unum, sem gæti komið í stað
Ungmennafélaganna, og jafnvel
hafa verið gerðar tilraunir til
þess í sumum skólunum. En
margir ágætir Ungmennafélag-
ar hafa litið á það sem
klofningstilraun á Ungmenna-
félagsstarfseminni, og að sá fé-
lagsskapur yrði til þess að draga
frá Ungmennafélögunum krafta
þeirrar æsku, sem líklegust væri
til þess að vera stoð og stytta
félaganna. En þar sem sú til-
raunastarfsemi virðist andvana
fædd að mestu, skal hún ekki
rædd hér.
Þegar sá, er þetta ritar, var
verkamaður á unglingsárunum í
Noregi, voru einhverjir mestu
hátíðis- og hrifningardagar á
meðal æskufólksins þar í sveit-
unum, þegar kennarar og skóla-
stjórar lýðháskólanna komu út
í Ungmennafélögin á fundi
þeirra og skemmtisamkomur og
héldu þar áhrifamiklar ræður,
þrungnar af eldmóði, til efling-
ar Ungmennafélögunum og
framförum norsku þjóðarinnar.
Og á eftir umræðunum og söng
ættjarðar- og framsóknarljóða,
stigu þeir syngjandi, fjörugan
„folkevisdans" langt fram á nótt
með sveitaæskunni, segjandi í
hléum inn á milli, sögur, m. a.
frá lífinu í skóla sínum og Ung-
mennafélagsskapnum þar og
starfsemi félaganna víðsvegar
um landið.
í lýðháskólunum hópuðust
ungmennafélög nágrennisins svo
öðru hvoru á skemmtisamkom-
ur skólanna. Þessar samkomur
fóru fram undir handleiðslu
kennaranna, sem a. m. k. stund-
um hylltust til þess, að þær efldu
sem mest félagsþroska æskunn-
ar og þá einkum, að þær yrðu
ungmennafélögunum að liði.
Við héraðsskólana starfa
margir ágætir kennarar, sem
vafalaust vilja mikið á sig leggja
fyrir æsku þessa lands. Ég býst
ekki við, að það sé almennur sá
hugsunarháttur hjá þeim, sem
kemur átakanlega fram — eink-
um á milli línanna — í harðri
og ósanngjarnri ádeilu eins
þeirra nýlega i ársriti héraðs-
skólanna, þ. e. að skólarnir eigi
aðallega að vera til fyrir kenn-
arana, sem við þá hafa atvinnu!
En því miður bendir nokkuð á,
að þessi, á margan hátt ágæti
maður, standi ekki einn uppi
með slíka skoðun. — En það var
ist til verulegra muna til hins
verra, mun Alþingi væntanlega
gefa ríkisstjórninni heimild til
að draga úr ráðgerðum vinnu-
framkvæmdum, eftir ákveðnu
hlutfalli, sem gangi jafnt yfir
alla. En ef meira þrengir að,
verður stjórnin hvort sem er að
kalla þingið saman, til að starfa
að þeim bjargráðum, sem upp
yrði að taka, ef stórlega dregur
úr útflutningi á næstunni. Það
er ekki hægt að gera fjárlög
fyrir hallærisástand, nema þing
og stjórn finni, að hallæri sé
komið i landinu.11
og er ósk okkar margra gömlu
Ungmennafélaganna, að hér-
aðsskólarnir hjálpi til þess að
auka líf og starf i Ungmenna-
félögunum. Það ætti blátt áfram
að vera eitt af meiri hlutverk-
um þeirra og skyldum. Væri vin-
átta og samstarf í verulega góðu
lagi milli héraðsskólanna og
Ungmennafélaganna, mundi það
vera líklegt til mikillar blessun-
ar í sveitum landsins.
í góðum Ungmennafélögum er
frjálst og vítt til veggja. Þar er
gott rúm fyrir margþætta starf-
semi æskunnar; þar eru tæki-
færin og hvatningin til að leggja
sameiginlega hönd á plóginn.
En að vera sjálfur starfsmaður
í heilbrigðum félagsskap, er
vinnur að góðum málefnum og
að eignast sjálfur góð áhugamál,
það er meðal þess helzta, er
gefur lífinu gildi.
Unga fólkið á að fylkja liði
i Ungmennafélög íslands og
skapa sér þar verkefni og
starfsþrótt. Skólarnir og við,
sem eldri erum en viljum
sporna á móti ellimörkunum í
starfi okkar, eigum að styðja
að eflingu þeirra. Þá verðskuld-
um við vináttu æskunnar og
verðskuldum betur að vera í
hópi hennar, þótt árin færist
yfir og hárin gráni. V. G.
ostarnir
frá Akureyri eru komnir aftur.
Samband ísl.
samvmnufélaga.
M.s* Helgí
fer héðan á föstudag 29. þ. m.
til Vestmannaeyja.
Flutningur óskast tilkynntur
fyrir hádegi sama dag.
Austur um Rangárpiog
(Framh. af 3. siöu)
ekki fólk annars staðar norð-
anlands. Hitt er svo annað mál,
að skoðanir eru mjög skiptar um
skáldið þar norður frá. í sum-
um sveitum má það nálega
heita undantekning að hann
eigi sér forsvarsmenn, og þeir
fáu sjá þá tíðum engin lýti á
verkum hans. Mér fannst að ná-
grannar mínir vestra kynnu
margir allvel að sjá kost og löst
á þeím, þó að hann eigi sér
allstaðar ákveðna aðdáendur og
andstæðinga. En . hérna syðra
finnst mér, að séu ýmsir, sem
láta eins og þeir viti ekki að
Halldór Kiljan Laxness sé til,
og skeyta engu hvað skrifað er
í bækur. Og myndi það ekki vera
í maklegu samræmi við sumar
persónulýsingar hans.
Framh.
Nýtt Framsóknarfélag
(Framh. af 1. síöu.)
son ritari og Jón Þorsteinsson
kennari, gjaldkeri. Varastjórn:
Gfsli Gíslason, Eugenius Þor-
steinsson og Randver Sæmunds-
son. Endurskoðendur: Ágúst
Jónsson og Vilmundur Rögn-
valdsson.
Auk þess sem félagið veitir
málefnum Framsóknarflokksins
brautargengi, hyggst það að
beita sér fyrir ýmsum velferðar-
málum héraðsins.
70 Margaret Pedler:
Elizabet drykkinn. Síðan blandaði hann
sér annan skammt eins og settist svo
á móti henni hinu megin við arininn.
Elizabet saup vel á blöndunni, en
gretti sig, þegar hún fann bragöið.
„En það bragð! Er það alvara, að ég
eigi að gleypa þetta allt,“ sagði hún og
leit með vanþóknun á stórt glasið, sem
hún hélt á í hendinni.
Hann kinnkaði kolli brosandi.
„Hvern einasta dropa. Ef þér verðið
þægar, skal ég gefa yður vindling þegar
þetta er búið.“
„Hvernig vitið þér að ég reyki?“ spurði
Elizabet brosandi.
„Þér voruð að reykja í bátnum áður
en hann skall á.“
Elizabet leit út yfir vatnið. Það var
ennþá úfið, að vísu, en mesti ofsinn var
auðsjáanlega lægður.
„Þér hafið varla getað séð það úr
landi,“ sagði hún og bætti svo við:
„Nema þér hafið notað sjónauka?”
„Það var einmitt það, sem ég gerði.
Þegar ég sá svona smá róðrarbát eins
og bátinn yðar, úti á vatninu, og jafn-
framt, að þessi hryna var að skella á,
þá náði ég mér í sjónauka til þess að sjá,
hvort það væri karl eða kona, sem léki
sér þannig að því að bjóða eyðilegging-
unni heim.“
„Og svo,“ sagði Elizabet áköf, þegar
Laun þess liöna 71
hann tók sér málhvíld.
„Nú, þá sá ég að óveðrið var að skella
á, fór niður að bátaskýlinu og kom vél-
bátnum á flot, því að ég vissi að á hon-
um þyrfti að halda, áður en langt um
liði.“
„Já, þess þurfti líka sannarlega,“ sagði
Elízabet ákaft, en bætti svo við hálf-
feimin: „Ég er ekki ennþá farin að
þakka yður fyrir, að þér hafið bjargað
lifi mínu í raun og veru.“
Yfir andlit hans leið skrítinn svipur.
„Þér skuluð ekkert vera að hafa fyrir
því,“ svaraði hann. „Maður getur aldrei
vitað, fyrr en eftir mörg ár, hvort líf-
gjöf sé þakkandi eða ekki. Það er undir
því komið hvort lífið er þess vÍTði að
lifa því.“
„Finnst yður það ekki?“ Þessi spurn-
ing slapp út úr Elizabet alveg ósjálfrátt,
vegna biturðarinnar, sem hún hafði
bæði séð og heyrt á honum, þegar hann
mæltist undan þakklætinu. En svo átt-
aði hún sig á því, að hún átti alls ekki
að segja þetta, og roðnaði. „Ég bið yður
afsökunar,“ sagði hún í flýti, „ég hefi
engan rétt til þess að spyrja slíkra
spurninga."
Hann brosti háðslega.
„Mér er alveg sama þó ég svari. Það
var sú tíð, að mér fannst lífið alls ekki
þess virði, að lifa því.“
—^..OAMLA o—o-
Jólamynd 1939
„Sweethearts”
Gullfalleg og hrífandi
amerísk söngmynd, öll tek-
in í eðlilegum litum, þeim
fegurstu, er sést hafa. Að-
alhlutverkin 1 e i k a og
sy n g j a uppáhaldsleik-
arar allra:
Jeanette MacDonald og
Nelson Eddy.
~NÝJA BÍÓ ■——”°
Sigur liuj»vits-
maiinsins.
Söguleg stórmynd frá Fox,
er sýnir þætti úr hinni
barátturíku en fögru æfi-
sögu hugvitsmannsins
heimsfræga, Alexanders
Graham Bell, er fann upp
talsímann. — Aðalhlut-
verkin leika:
DON AMECHE,
HENRY FONDA
og systurnar
POLLY, GEORGIANA
og LORETTA YOUNG.
Hlutverk mjólkurínnar
í mataræði voru
Dr. med. A. Tanberg, yfirlækni, farast m. a. orð á
þessa leið:
Mjólk er fullkomnasta næringarblanda, sem til er.
Engin önnur fæðutegund getur komist í hálfkvist
við hana. —
Ef gallar eru á mataræðínu, þá er engin önnur fæða
eins vel löguð til þess að bæta úr þessum misbresti,
eins og mjólkin. Hún gerir í raun og veru allt matar-
æði fullkomið.
Mjólkurfitan, rjómi og smjör, er auðmeltasta og
bragðbezta fita, sem við höfum, og þar að auki
hefir hún inni að halda A og D fjörefni.
Steinefni eða sölt mjólkurinnar eru mjög haganlega
blönduð innbyrðis, einkum er þar mikið af kalki —
en fæðan nú á. dögum vill oft vera of kalklítil og
getur því oft verið hættuleg börnum og unglingum.
Margvíslegar vísindarannsóknir hafa sýnt og sann-
að, að mjólkin hefir mikil og góð áhrif á andlegan
og líkamlegan þroska skólabarna. Þau börn, sem feng-
ið hafa % lítra mjólkur á dag, hafa tekið mestum
framförum, og verið ónæmari fyrir sjúkdómum en
börn, sem fengu sama fæði, án mjólkur.
Það getur ekki leikið tveim tungum, að rétt notkun
mjólkur og mjólkurafurða í daglegri fæðu, er eitt
áhrifamesta ráðið til þess að auka hreysti og heil-
brigði þjóðarinnar.
Auglýsing
iiui sinásöliiveril.
Camel cigarettur 1 20 stk. pk. . . kr. 1.80 pakkinn
One Eleven - 20 — — . 1.60
Happy Hit - 20 — — . 1.80
Three Kings - 20 — — . 1.80
Tuxedo reyktóbak í IV2 oz. blikkdósum — 1.50 dósin
Golfers smávindlar í 5 stk. pk.....— 1.32 pakkinn
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má leggja allt
að 3% á innkaupsverð fyrir sendingarkostnaði til út-
sölustaðar.
Tóbakseinkasala ríkisíns.
GÓÐ KI JÖICD
(höfuðból) á Suðurlandi til
sölu. Miklar og vandaðar bygg-
ingar. Mörg og mikil hlunnindi.
Rafstöð til suðu og ljósa. Bíl-
vegur heim i hlað. Einkasími.
Vatnsleiðsla í bæ og penings-
hús. Góð fjárbeit, engin mæði-
veiki eða garnaveiki.
Verð 35 þúsund krónur. Út-
borgun 12 þúsund krónur.
Eignaskipti geta komið til
greina.
A11 a r nánari upplýsingar
veitir
BJARNI PÁLSSON
lögfræðingur.
Vífilsgötu 9. Reykjavlk.
Kopar,
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
Leihfélay Reyhjavíkur
DAUÐINN
NÝTUR LÍFSINS
Sjónleikur í 3 þáttum eftir
ALBERTO CASELLA
Sýning á inorgun kl. 8
Hljómsveit aðstoðar undir
stjórn Dr. Urbantschitsch.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
HÆKKAÐ VERÐ.
Vinnið ötullega fyrir
Tímann.