Tíminn - 18.01.1940, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKN ARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hS.
Símar 3948 og 3720.
Reykjavík, fimmtiidagiim 18. janíiar 1940
24. árg.
7. Mað
Tillögur Framsóknarflokksins
í sambandi við íjárhagsáætlun Rvíkur 1940
Þær fjalla nm fnllkomnara Iiókhald bæjarins,
starfsmanisaskrá, bætta endurskoðnn, rann-
sókn og endurfoætur fátækramálanna, fisk-
sölumiðstöð, ógreidd bæjargjöld, bætta gatna-
g'erð, lokun hafnarinnar o. fl.
Fulltrúaráð Framsóknar-
félaganna í Reykjavík hefir
ákveðið að láta fulltrúa
sinn í bæjarstjórninni flytja
tillögur um allmörg bæjar-
mál í sambandi við 2. umr.
fjárhagsáætlunar Reykja-
víkurbæjar, en hún mun
fara fram í dag. Hinsvegar
gerir fulltrúaráðið mjög
fáar breytingartillögur við
fjárhagsáætlunina sjálfa.
Ástæðan til þess er þó engan
veginn sú, að Framsóknarflokk-
urinn telji þess ekki fulla þörf,
að gerðar verði verulegar breyt-
ingar á fjárhagsáætluninni. En
það er eðlilega mjög torvelt fyr-
ir þá, sem ekki hafa aðstöðu til
að fylgjast með rekstri bæjar-
ins og ýmsra fyrirtækja hans,
að gera nákvæmar tillögur um
niðurfærslu ýmsra útgjaldaliða,
enda þótt vitanlegt sé, að lækka
megi þá að vexulegu ráði, ef
fullra hagsýni og stjórnsemi er
gætt. Næstum allar tillögur full-
trúaráðsins miða líka að lækk-
un útgjalda og auknum sparn-
aði og hagsýni í rekstri bæjar-
ins. En fyrirfram er vitanlega
ekki hægt að áætla það ná-
kvæmlega, hver sparnaðurinn
verður, og þessvegna ekki hægt
að flytja þessi mál sem breyt-
ingartillögur við fjárhagsáætl-
unina sjálfa, þar sem allt þarf
að reiknast í tölum.
Við sjálfa fjárhagsáætlunina
Íslenzk-ameríska
félagið
Ragnar Ólafsson lögfræðing-
ur Sambandsins dvaldi við
framhaldsnám í Columbía-há-
gerir fulltrúaráðið þá breytingu.
að helmingi styrksins, sem varið
er til sumardvalar fyrir börn og
mæður í sveit, eða 6000 kr. verði
varið til „styrktar mæðrum, er
dvelja vilja með börn sín að
sumarlagi í tjöldum á jarðhita-
svæðinu að Reykjum f Ölfusi.“
Þá er lagt til, að fjárveiting „til
atvinnubóta eftir ákvörðun bæj-
arráðs" orðist þannig: „Til
framleiðslubóta og atvinnu-
aukningar“, og að niður falli
framlagið til ráðningastofu
bæjarins, sem er 25 þús. kr.
Ennfremur er gerð sú tillaga, að
framlaginu til nýxra gatna verði
ráðstafað þannig, að lokið verði
malbikun Ingólfsstrætis og lögð
verði gata frá Hringbraut suður
á móts við háskólalóðina.
Þá er gerð sú tillaga, að aftan
við fjárhagsáætlun sundhallar-
innar bætist eftirfarandi: „Til
að auka aðsókn að Sundhöllinni
og gera þannig tilraun til að
lækka reksturshalla þann, er
áætlunin gerir ráð fyrir, skal á
vissum dögum og vissum timum
dags, gefa verulegan afslátt frá
venjulegum aðgangseyri."
Lagt er til, að aftan við fjár-
hagsáætlun hafnarinnar bætist:
„Heimilt er hafnarstjórn að
verja af fé hafnarsjóðs því, sem
með þarf, til að koma upp full-
nægjandi girðingu, er útiloki
umferð að þeim svæðum hafn-
arinnar, þar sem útlend skip
hafast við. Sé gerð og fyrir-
komulag girðingarinnar ákveð-
ið í samráði við lögreglustj óra,
en bæjarráð samþykki kostnað
aráætlun.“
Aðrar tillögur, sem fluttar eru
að tilhlutan fulltrúaráðsins, eru
þessar.
Fullkomnara bókhald:
Bæjarstjórn ályktar að leggja
fyrir bæjarráð og hafnarstjórn,
að láta þegar í stað endurskipu-
leggja allt bókhald bæjarsjóðs,
stofnana bæjarins og hafnar-
sjóðs, þannig, að fyrir bæjar-
stjórn geti legið fyrir 15. hvers
mánaðar nákvæmt yfirlit um
rekstur næsta mánaðar á und-
an.
Starf smannaskár:
Bæjarstjórn leggur fyrir bæj-
arráð og hafnarstjórn að láta
þegar semja skrá yfir alla starfs-
menn bæjarins, stofnana hans
og hafnarsjóðs, þar með taldir
verkamenn í fastri vinnu. — í
starfsmannaskránni séu til-
greind föst laun þeirra fyrir að-
alstörf og hlunnindi, sem þeim
fylgja, ennfremur þóknun fyrir
aukastörf og yfirvinnukaup.
Bætt endurskoðun:
Bæjarstjórnin samþykkir að
láta framvegis fara fram dag-
lega endurskoðun á bókhaldi
bæjarsjóðs, stofnana hans og
hafnarsjóðs og sé sú endur-
skoðun framkvæmd af 2 löggilt-
um endurskoðendum, sem bæj-
arstjórn kýs með hlutfallskosn-
ingu.
Rannsókn framfærslumálanna:
Vegna hinna gífurlegu út-
gjalda, sem hvíla á Reykjavík-
urbæ sökum fátækraframfærsl-
unnar og þar eð hröðum skref-
um virðist stefnt að þvi að of-
bjóða gjaldgetu þeirra, sem
bæjargjöldin falla á, og þar sem
framfærslulögin hljóta einnig —
vegna sívaxandi skulda bæjarins
við Landsbankann — að varða
ríkið fjárhagslega, leggur bæj-
arstjórnin fyrir bæjarráð að
leita nú þegar samvinnu við
ríkisstjórnina um skipun fimm
manna nefndar til þess að rann-
saka ítarlega öll framfærslu-
málefni Reykjavíkur og gera til-
lögur um framtíðarskipulag
þeirra. Séu 3 nefndarmanna
kosnir með hlutfallskosningu af
bæjarstjórn Reykjavíkur, en
tveir skipaðir af ríkisstjórninni.
(Framh. á 4. slSu.)
Kallio Finnlandsforseti var nýlega í yfirlitsferS á Kyrjálaeiðinu. Hér á
myndinni sést finnskur hermaður vera a'ð sýna honum skó af rússneskum
hermanni, til marks um lélegan útbúnaö rússnesku hermannanna.
Viðskípti Rússaog Þjóðverja
Geta viðskiptín við Rússland
vegið á móti hainbanninu ?
Fyrir skemmstu síðan birtist
yfirlitsgrein um viðskipti Þjóð-
verja og Rússa í sænska blað-
inu „Mellanfolkligt Samarbete“.
Þar sem þessi mál eru nú ofar-
lega á dagskrá og ýmsir telja að
sigurvonir Þjóðverja byggist á
því, hversu mikið af hráefnum
og vörum Rússar láta þeim í té,
verða hér lauslega rakin nokkur
atriði þessarar greinar.
— Fyrir heimsstyrjöldina höfðu
Rússar meiri viðskipti við Þjóð-
verja en nokkra aðra þjóð. Um
47% af innflutningnum til
Rússlands voru frá Þýzkalandi
og Þjóðverjar keyptu 30% af
rússneska útflutningnum.
Heimsstyrjöldin lagði þessi
blómlegu og vaxandi viðskipti
að mestu leyti í rústir.
Fyrstu árin eftir sigur kom-
múnista var utanríkisverzlun
Rússa sama og engin. Eftir 1922
byrjaði hún að aukast aftur, en
hefir þó aldrei orðið eins mikil
og fyrir heimsstyrjöldina. Það
er t. d. talið, að 1935 hafi út-
flutningur numið 1% af allri
framleiðslunni í landinu, en fyr-
ir styrjöldina 10%. Samt hefir
framleiðslan aukizt verulega.
Er þessi afturför utanríkis-
verzlunar Rússa einkum fólgin
A.
Búnaðarnám íslendinga á skólanum í Sem. — Fiskimálanefnd og bjarg-
ráðanefnd fullskipaðar. — Nýr skóli í verklegum greinum.
Ragnar Ólafsson.
skólanum í New-York veturinn
1938—39. Meðan hann var þar
vestra undirbjó hann nokkurs-
konar námsmannaskipti rnilli
Bandaríkjanna og íslands. Rit-
aði hann grein um málið í Tím-
ann. Síðan undirbjó hann fé-
lagsstofnun í Reykj avík,\ í nánu
sambandi við Háskóla íslands,
til að standa fyrir framkvæmd-
unum. Var stofnfundur þess-
arar deildar haldinn fyrir
skömmu. Þessi framkvæmd
Ragnars Ólafssonar mun verða
mjög afleiðingarík fyrir íslenzku
þjóðina. Á vegum þessa félags-
skapar munu fjölmargir kandi-
datar héðan að heiman dvelja
árlangt við framhaldsnám í
(Framh. á 4. siöu.)
Þrír ungir íslendingar hafa nýlega
lokið prófi í landbúnaðarfræðum við
búnaðarskólann í Sem í Noregi. Eru
það Jóhann Jónasson frá Öxney á
| Breiðafirði, Edvald Malmquist frá
Stuðlum í Reyðarfirði og Bjami Fann-
! dal Finnbogason frá Stokkahlöðum í
Eyjafirði. Hefir Jóhann verið ráðinn
I ráðunautur Búnaðarsambands Kjalar-
nessþings, en Edvald Malmquist mun
ráðast til ferðar á búnaðarnámskeiðin
austan lands með þeim starfsmönn-
um Búnaðarfélags íslands, er þangað
fara. Munu þeir félagar fara með Lag-
arfossi í kvöld. Þrír íslendingar eru nú
sem stendur við nám í búnaðarskólan-
um i Sem. Eru það Ásgeir Bjamason
frá Ásgarði í Dölum, Guðmundur Guð-
mundsson úr Reykjavík og Friðjón
Júlíusson frá Hrappsey á Breiðafirði.
Námstíminn er þrjú ár.
t t t
Fiskimálanefnd og bjargráðanefnd
eru nú fullskipaðar. Eiga i fiskimála-
nefnd sæti Júlíus Guðmundsson út-
gerðarmaður frá Framsóknarflokkn-
um, Jón Axel Pétursson hafnsögumað-
ur frá Alþýðuflokknum og Þorleifur
Jónsson útgerðarmaður í Hafnarfirði
frá Sjálfstæðisflokknum. í bjargráða-
nefnd eru Jens Hólmgeirsson bæjar-
stjóri á ísafirði frá Framsóknarflokkn-
um, Kjartan Ólafsson bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði frá Alþýðuflokknum of
Sigurður Björnsson frá Veðramóti fá
tækrafulltrúi frá Sjálfstæðisflokknum.
t t t
Hinn 1, næsta mánaðar hefst hér í
Reykjavík nýr skólí, sem fyrst og
fremst er ætlað að veita kennurum og
kennaraefnum nauðsynlega sérmennt-
un í ýmsum greinum verklegs náms.
Lúdvig Guðmundsson skólastjóri hefir
stofnað skóla þenna og veitir honum
forstöðu. Tíminn hefir farið þess á
leit við Lúdvig, að hann skýrði frá
megínþáttum þessarar starfsemi og
fórust honum svo orð: — Um langt
skeið hefi ég i skólum þeim, er ég hefi
stýrt, fyrst Hvítárbakkaskóla og síðar
í gagnfræðaskóla ísafjarðar, lagt á-
herzlu á að vanda til hins verklega
náms. Fyrir tæpum tveim árum reyndi
ég að koma ungum, hæfum islenzkum
kennara til fullkomins framhaldsnáms
í verklegum greinum erlendis, með það
fyrir augum, að hann síðan kenndi út
frá sér hér heima. En fyrirætlun þessi
strandaði á fjárhagslegum örðugleik-
um. Þá datt mér í hug sú leið, að ráða
hingað til lands um nokkur ár vel
færan, alhliða menntaðan erlendan
kennara, i ýmsum helztu greinum
verklegs skólanáms. Með aðstoð eins
kunningja minna í Berlín, sem er pró-
fessor við verknámsdeild listaháskólans
þar, tókst mér að komast í samband
við ungan en reyndan, mjög færan
kennara í teikningu og ýmsum verkleg-
um námsgreinum (trésmíði, málm-
smíði og pappírs- og pappavinnu). Ár-
ið 1932 var hann ráðinn að Alþjóða-
skólanum í Genf (Ecole Internationale)
til þess að koma þar skipun á kennsl-
una í teikningu og verklegum grein-
um. Starfaði hann þar um hríð. Síðan
hefir hann mjög aukið við reynslu
sína og þekkingu i kennslugreinum
sínum. í samráði við og með sam-
þykki ríkisstjórnarinnar réði ég Zier
sl. vor hingað til lands um þriggja ára
skeið. Þenna tíma, sem hann er ráð-
inn hingað, er ætlunln, að hann haldi
uppí kennslu í kennslugreinum sinum
fyrir þá, sem ætla að gerast kennarar
í þessum greinum í íslenzkum barna-
og ungmennaskólum. Að þessum tíma
liðnum ættum við þannig að geta verið
búnir að koma upp allfjölmennu liði
innlendra kennara i þessum greinum.
Eins og áður er sagt, er höfuðtil-
gangur skólans, að veita kennaraefn-
um og kennurum kost hérlendrar sér-
menntunar í ýmsum kennslugreinum,
sem hingað til hefir orðið að nema
ytra, að mestu leyti eða öllu. En auk
þess verða haldin námsskeið fyrir al-
menning, þar sem kenndar verða ein-
stakar námsgreinar og námskeið, sem
ætluð verða atvinnulausum unglingum
í Reykjavík. Ákveðið er, að nemendur
kennaraskólans fái aðstöðu til náms
í skólanum. Fyrir þá, sem ætla að
gera kennslu í námsgreinum að æfi-
starfi, er gert ráð fyrir tveggja vetra
námi minnst, og allt aö þriggja vetra
námi. Til bráðabirgða mun kennsla
fara fram í húsinu Hverfisgötu 57.
Eru þar þrjár vinnustofur og verður í
einni kennd pappírs- og pappavinna,
(Framh. á 4. slðu.)
í því, að kommúnistar hafa lagt
kapp á, að gera landið sjálf-
bjarga í sem flestum greinum
og óháð innflutningi frá öðrum
löndum.
Á árunum 1922—32 var Þýzka-
land það stórveldið, sem ' átti
mest skipti við Rússland. Frá
Þýzkalandi fengu Rússar vélar
og verkfræðilega tilsögn í rík-
ustum mæli. Án þeirrar að-
stoðar, sem Þjóðverjar veittu,
hefðu Rússar aldrei getað kom-
ið fótum undir iðnað sinn.
Verzlun milli landanna mótað-
ist vitanlega af þessu. Hún fór
stöðugt vaxandi Og náði há-
marki sínu 1931. Þá var heildar-
umsetningin yfir 1000 milj.
marka. Um 46% innflutningsins
til Rússlands var frá Þýzka-
landi. Hins vegar nam þetta ekki
nema 11% af útflutningi Þjóð-
verja og má af því marka,
hversu utanríkisverzlun Þjóð-
verja er margfallt meiri en ut-
anríkisverzlun Rússa. Síðan
hefir þó utanríkisverzlun Þjóð-
verja stórum aukizt, en hins
vegar hefir utanríkisverzlunin
gengið stórum til baka hjá
Rússum, einkum olíuútflutning-
urinn, sökum aukinnar neyzlu
innanlands.
Síðan 1932 hafa viðskipti
Rússa og Þjóðverja minnkað
hröðum skrefum þangað til nú.
Árið 1938 var heildarumsetning
verzlunarinnar milli landanna
78 milj. marka i stað 1065 milj
marka árið 1931. Orsakirnar
voru einkum afleiöingar krepp-
unnar og pólitísk óvild, sem
myndaðist milli landanna, þeg-
ar nazistar komu til valda.
Það er tilgangur þýzk-rúss-
neska verzlunarsamningsins,
sem undirritaður var í ágúst-
mánuði siðastliðnum, að efla
viðskipti Rússlands og Þýzka-
lands. Síðan hafa farið fram
nánari viðræður um þessi mál
milli ríkisstjórnanna, en um á
(Framh. á 4. síðu.)
Á víðavangi
Fyrir nokkrum árum síðan
skrifaði Jónas Jónsson grein hér
í blaöið, þar sem hann varpaði
fram þeirri hugmynd, að reist
yrði einskonar tjaldborg í Ölf-
usi til sumardvalar fyrir fjöl-
skyldur verkamanna og sjó-
manna í Reykjavik. Benti hann
með glöggum rökurn á þá þýð-
ingu, sem það hefði fyrir mæð-
ur og börn á efnalitlum heim-
ilum, að geta notið slíkrar
dvalar, en þurfa ekki að eyða
sumardögunum á hinum rykugu
götum borgarinnar. Þessi mikli
munur er svo augljós, að ekki
þarf að fara um hann mörg-
um orðum. Engu að síður hefir
aetta mál fram til þessa mætt
mjög takmörkuðum skilningi
Deirra aðila, sem ættu að hafa
mestan áhuga fyrir því, en það
eru bæjarstjórnin og verka-
lýössamtökin.
* * *
Framsóknarflokkurinn lætur
nú flytja tillögu í bæjarstjórn-
inni um nokkra fjárveitingu í
Dessu skyni, og ætti vissulega að
mega vænta þess, að henni verði
vel tekið. Þótt mikil nauðsyn
hafi verið áður á framkvæmd
aessa máls, er hún áreiðanlega
enn meiri nú. Vistin á slíkum
sumardvalarstað ætti áreiðan-
lega að kosta minna en hér í
bænum. Að vísu mun verða um
nokkur flutningsgjöld að ræða,
en það ætti að vera hlutverk
bæjarfélagsins að tryggja þau
sem hófsamlegust. Hins vegar
ættu ýmsar innlendar afurðir,
t. d. mjólk, að verða ódýrari og
ýms aukakostnaður að sparast,
sem er óhjákvæmilegur hér í
bænum. Það gæti einnig kom-
ið til mála, að sumar fjölskyld-
urnar gætu sparað við sig hús-
næði yfir sumarmánuðina,
jannig, að þeir þrengdu að sér
iann hluta leigutímans, er þær
dveldu í bænum, með tilliti til
dvalartímans fyrir austan.
Kostnaður við upphitun ætti
ekki að verða neinn, þar sem
nóg er af heitu vatni á þessum
slóðum. Verður það að teljast
mjög furðulegt, . ef meirihluti
bæjarstjórnarinnar fellst ekki á,
að greiða fyrir framgangi þess-
arar hugmyndar.
* * *
Þá leggur Framsóknarflokk-
urinn til, að varið verði nokkru
fé til að hindra næturferðalög í
erlend skip, sem liggja hér í
höfninni. Er það kunnara en frá
Durfi að segja, að þessar nætur-
heimsóknir í erlend skip eru
sannarlegt lýti á menningu höf-
uðstaðarins. Hafa þær líka verið
harðlega gagnrýndar í öllum
blöðum bæjarins og ber aö
vænta þess, að bæjarstjórnar-
meirihlutinn hafi ekki aðra af-
stöðu í því máli en blöð hans.
Aðrar fréttir.
Óvenjulegir kuldar eru nú á
meginlandi Evrópu. Mestur
kuldi hefir verið mældur í Öst-
erdalen í Noregi, 48 stig. Viða á
norskum sveitabæjum hefir
orðið að gera sérstakar ráðstaf-
anir til að verja stórgripi gegn
kali. — í Danmörku hafa sigl
ingar stöðvast um sundin, sök-
um íslagningar, og er Eyrar-
sund byrjað að leggja. Við
vesturströnd Danmerkur er víða
3 km. breitt ísbelti. — Dóná er
lögð á stórum svæðum og eru
um 1200 skip teppt í þeim hluta
árinnar, sem er í Ungverjalandi
Veldur þetta Þjóðverjum mikl
um erfiðleikum, þar sem þeir
þurfa nú m. a. að flytja olíu frá
Rúmeníu um Doná. —
Moskva hefir verið mælt mesta
frost, sem þar hefir komið síð
astliðin 100 ár. Sjúkrahúsum
þar er haldið opnum til að taka
á móti fólki, sem kaliö hefir.
Árásir rússneskra blaða og
útvarps á Norðurlönd fara
stöðugt harðnandi og er nú á-
sökunum einnig beint til Dan-
merkur.
Um 800 tékkneskir liðsforingj-
ar hafa verið teknir til fanga í
Bæheimi, undanfarnar vikur og
hafa sumir þeirra verið líf-
látnir. Liðsforingjarnir eru á-
sakaðir um uppreisnarfyrirætl-
anii'. Þýzka leynilögreglan hefir
framkvæmt þessa hreinsun.
Þremur brezkum kafbátum
hefir nýlega verið sökkt af Þjóð-
verjum. Munu kafbátarnir hafa
reynt að komast inn á lægi
þýzka flotans. Þetta er fyrsta
kafbátatjón Breta í styrjöldinni.
í Finnlandsstyrjöldinni hafa
litlar breytingar orðið seinustu
daga. Rússar hafa haldið uppi
stöðugum loftárásum. Eru árás-
ir Rússa ekki að neinu leyti
bundnar við hernaðarlega mik-
ilvæga staði, heldur er það auð-
sjáanlega tilætlunin að gera
sem mestan usla meðal ó-
breyttra borgara og vekja
þannig sem mestan óhug meðal
almennings.