Tíminn - 18.01.1940, Qupperneq 4
28
TÍMIM, flmmtndaginn 18. janúar 1940
7. blatS
Ylir landamœrín
1. Árni írá Múla er víst þeirrar
skoðunar, að menn fáist til að trúa ó-
sannindum, ef þau eru tuggin upp
nógu oft. Hann heldur því enn einu
sinni fram, að „útgjöld fjárlaganna
hafi hækkað meira en verið hefði, ef
Sjálfstæðismenn hefðu einir ráðið, en
minna en verið hefði, ef fyrv. stjórnar-
flokkar hefðu setið hér einir við völd“.
Þetta eru hin óskammfeilnustu ósann-
indi. Eins og áður hefir verið tekið
fram hér í blaðinu, voru engar sparn-
aðartillögur, sem komu frá Sjálfstæðis-
flokknum, hindraðar af hinum flokk-
unum, og heldur ekki hækkunartillögur
frá þeim hindraðar af honum. Fleipur
Árna er eins fjarri lagi og ef því væri
haldið fram, að Kaupmannahöfn væri
í Ameríku.
2. Vilji Ámi reyna að sýna það
svart á hvítu, að hann fari ekki með
ósannindi í þessum efnum, er honum í
lófa lagið, að nefna þær lækkunartil-
lögur, sem Sjálfstæðisflokkurinn bar
fram og hinir flokkamir komu í veg
fyrir, og þær hækkunartillögur, sem
Sjálfstæðismenn stöðvuðu fyrir hinum
stjómarflokkuniun. Geri Ámi þetta
ekki, mun öllum augljós sú nafnbót,
sem honum ber fyrir heiðarleika og
ráðvendni i blaðaskrifum.
3. Árni frá Múla reynir í gær að
þakka Ólafi Thors og Sjálfstæðis-
flokknum fýrir forgönguna að núver-
andi stjórnarsamvinnu. Það væri rétt
fvrir Árna áður en hann heldur lengra
á þessari braut, að rifja upp, hvemig
hann greiddi atkvæði um stjórnarsam-
vinnuna i þingflokki Sjálfstæðisflokks-
ÍJll BÆNIJM
Framsóknarfélögin í Reykjavík
héldu skemmtim á Hótel Borg í gær-
kvöldi og var hún mjög fjölsótt. Fyrst
var spiluð Framsóknarvist, en síðan
voru ræðuhöld. Minntist Sigfús Hall-
dórs frá Höfnum með nokkrum orðum
hins nýlátna þjóðskálds, Einars Bene-
diktssonar, og las upp nokkur kvæði
hans. Þá flutti Jónas Jónsson ræðu
og sneri hann máli sínu sérstaklega til
Guðbrandar Magnússonar, sem hefði
legið hættulega veikur og verið talinn
nær dauða en lífi um skeið, en væri
nú búinn að fá fulla heilsu aftur og
tæki orðið þátt i störfum samherjanna
sem fyrr. Minntist hann hinna marg-
víslegu starfa, sem Guðbrandur hefði
unnið í þágu Framsóknarflokksins og
fleiri gagnlegra samtaka og sagði að
þessi samkoma væri fyrst og fremst
haldinn til að minnast þess að G. M.
væri aftur kominn heill og hraustur í
hóp samherjanna. Hefðu þeir einnig
komið sér saman um að minnast þess
atburðar á annan hátt. Var Guðbrand-
ur síðan hylltur af áheyrendum og
þakkaði hann fyrir með nokkrum orð-
um. Að þessu loknu hófst dans og stóð
hann til kl. 2 um nóttina.
Hallgrímur Helgason tónskáld
heldur hljómleika með eigin verkum
eingöngu í Gamla Bíó kl. 7 í kvöld.
Leikur Bjöm Ólafsson verk fyrir fiðlu,
Páll ísólfsson, sem stjórnar útvarps-
kómum, verk fyrir kór, og sjálfur leik-
ur Hallgrímur verk fyrir píanó. Hall-
grímur hefir aflað sér góðrar mennt-
unar og er talinn mjög efnilegur í list
sinni. Er þetta hið ákjósanlegasta
tækifæri til að kynnast list hans.
Tillögur
F r amsóknar £ lokksíns
(Framh. af 1. síSu.)
Endurbætur í i'átækrafram-
færinu.
Bæjarstjórn felur bæjaxráði
að hefja þegar í stað undirbún-
ing að því, að komið verði í
framkvæmd eftirtöldum endur-
bótum á fátækraframfærinu:
1. AÖ komið verði á fót inn-
kaupastofnun, sem hafi á hendi
innkaup á matvælum, fatnaði
og öörum vöTum, sem styrkþeg-
um eru látnar í té, enda séu
látin fara fram almenn útboð
um þessi vörukaup.
2. Að stofnað verði almenn-
ingseldhús og mötuneyti fyrir
styrkþega.
3. Að gefin sé út árlega ná-
kvæm skýrsla með nöfnum og
heimilisfangi þeirra, sem eru á
framfæri á einn eöa annan hátt,
og tilgreint hve mikið kemur í
hvers hlut.
4. Aö fullvinnufærum styrk-
þegum bæjarins sé, eftir því sem
við verður komið, falin ýmis-
konar vinna, er bænum megi að
gagni koma, t. d. við leikvalla-
gerð, garðrækt o. s. frv. í stað
þess að veita þeim beina styrki.
5. Að haldið verði áfram að
árinu og hve miklu fé skuli
verja í hverja götu.
Ógreidd bæjargjöld.
Bæj arstj órnin leggur f yrir
bæjarráð, að láta nú þegar
semja skrá yfir alla þá gjald-
endur í bænum, sem skulduðu
útsvör, fasteignagjöld og önnur
bæjargjöld um síðustu áramót.
Séu í skrá þessari tilgreind nöfn
og heimilisföng skuldunauta og
skuldarupphæð hvers einstaks.
•Tafnframt sé tilgreint frá hvaða
ári eða árum skuldin stafar.
Viðskipti Rússa
og Þjóðverja
(Framh. af 1. síðu.)
rangur þeirra hefir enn ekkert
verið opinberlega tilkynnt.
Talsvert hefir verið um það
rætt, að Rússar gætu bætt
Þjóðverjum afleiðingar hafn-
bannsins að fullu. í þessu sam-
bandi ber að gæta þess, að
heildarútflutningur Rússlands
er ekki nema lítill hluti af
heildarinnflutningi Þjóðverja
(sennilega um 10%). Þetta
kæmi að minni sök, ef Rússar
flyttu út þær vörur, sem Þjóð-
verjar þarfnast mest. En þessu
er engan veginn til að dreifa.
Skulu hér nefnd nokkur atriði
þessu til sönnunar:
Olía. Þjóðverjar fluttu inn
4.307 þús. smál. af olíu árið 1937,
en meðalútflutningur þessarar
vöru frá Rússlandi 1935—37
nam 2.654 þús. smál. Árið 1937
keyptu Þjóðverjar frá löndum,
sem nú geta ekkert selt þeim
vegna hafnbannsins, 3.454 þús.
smál. af olíu.
Járnmálmur. Árið 1937 nam
innflutningur á járnmálmi til
Þýzkalands 20.621 þús. smál.,
þar af frá löndum, sem geta nú
ekkert selt vegna hafnbannsins,
8.869 þús. smál. Hins vegar nam
meðalútflutningur járnmálms
frá Rússlandi árin 1935—37 ekki
nema 179 smál.
Fosfatefni. Árið 1937 nam inn-
flutningur þessara vara til
Þýzkalands 1000 þús. smál., þar
af frá löndum, sem ekkert geta
selt til Þýzkalands vegna hafn-
bannsins, 848 þús. smál. Á ár-
unum 1935—37 nam meðalút-
flutningur þessara vara frá
Rússlandi 540 þús. smál.
Hveiti. Árið 1937 nam inn-
flutningur á hveiti til Þýzka-
lands 1.219 þús. smál., þar af
frá löndum, sem nú geta ekk-
ert selt til Þýzkalands vegna
hafnbannsins, 872 þús. smál.
Meðalútflutningur frá Rúss-
landi á árunum 1935—37 nam
484 þús. smál.
Fleiri dæmi mætti nefna
þessu lík og það getur náttúr-
lega aldrei orðið, að allur út-
flutningur Rússa fari til Þýzka-
lands. Enginn útflutningur
er frá Rússlandi á ýmsum vör-
um, sem Þjóðverjar hafa mikla
þörf fyrir í styrjöld, eins og t.
d. kopar, tin og blý. Hins vegar
er einnig rétt að geta þess, að
Rússar geta fullnægt þörfum
Þjóðverja fyrir trjávörur, segul-
málm, olíukökur, smjör o. fl.
vörur.
Þá er enn að gæta þess, að
notkun Þjóðverja á mörgum
framangreindra vara, er miklu
meiri á styrjaldartímum en frið-
artímum og hlýtur það að krefj-
ast aukins innflutnings þeirra.
Sérstaklega á þetta við um olí-
una. Margir telja, að olíunotk-
unin þurfi að þrefaldast eða
jafnvel meira, hjá styrjaldar-
þjóðunum. í þessu sambandi er
vert að gæta þess, að sökum
aukinnar neyzlu innanlands
hefir olíuútflutningur Rússa
farið stöðugt minnkandi undan-
farin ár, enda þótt framleiðslan
hafi vaxið stórum. Þörf Rússa
fyrir olíunotkun hlýtur að fara
vaxandi á næstunni, m. a. vegna
Finnlandsstyrjaldarinnar. Að
vísu geta Rússar enn stórum
aukið olíuframleiðsluna, en það
kostar mikla fyrirhöfn og tekur
talsverðan tíma að koma því i
lag. Það er því tæpast hægt að
gera ráð fyrir, að Rússar geti
látið Þjóðverja fá meiri olíu en
undanfarið svo nokkru nemi.
Þá er enn að gæta mikilvægs
atriðis í þessu sambandi. Það eru
hin lélegu flutningsskilyrði í
Rússlandi. Þótt Rússar hefðu
nægar vörur myndu þeir alls
ekki geta komið, nema nokkrum
hluta þeirra til Þýzkalands.
Flutningakerfi landsins full-
nægir enn illa þörfum innan-
landsflutninga, hvað þá heldur
meira.
Það er því tæpast rétt að gera
íns í fyrravetur, og hvemig Vísir skrif-
aði þá um þau mál.
x+y.
Sjö skáld leídbeina
Alþingi
(Framh. af 3. siSu)
ista vildu halda þessum mönn-
um í óbreyttri aðstöðu. Aðrir
menn álitu, að reynslan sýndi,
að ekki væri heppilegt að gera
lífstíðarsamning um störf við
listamenn og skáld. Flestir færu
að vísu vel með það vald, en
aðrir misnotuðu öryggið.
Ég álít að öryggi 18. greinar
hafi orðið til mikils tjóns fyrir
ýmsa menn, sem þar hafa átt
sæti. Sumir hafa 1 skjóli þessa
öryggis orðið aðgerðalausir hóg-
lífismenn, og ekki aðhafzt neitt,
sem kalla mætti þjóðnýta vinnu.
Aðrir hafa notað aðstöðu sína
til að brjóta allar meginreglur
í bókmenntastarfi sæmilegra
manna. Einn af þessum mönn-
um hefir ort hraklegt ádeilu-
kvæði um föður sinn. Annar hef-
ir lýst skólabræðrum sínum eins
og sérstökum úrhraksmönnum
og vesalingum. Þriðji lýsir því,
hversu vinnufélagi hans og
nauðleitarmaður stóð eins og
fábjáni í hörkufrosti nærri alla
jólanóttina utan við glugga
stúlku, sem hann þóttist vera
hrifinn af,en þekkti annars ekki.
Og loks kom fjórði maðurinn,
sem i skáldskap sínum hefir
ráðizt með auðvirðilegum, upp-
lognum sökum á pólitíska and-
stæðinga sína, en á þann hátt,
að þeir geta ekki varið sig. ís-
lenzkir blaðamenn og stjórn-
málamenn berjast hver við ann-
an á opnum leikvelli, þar sem
báðir aðilar hafa jafna aðstöðu
og sömu vopn. Slíka baráttu
hafa vestrænar þjóðir talið rétt-
mæta og leyfilega frá fornöld
og til þessa dags. En byltingar-
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó sýnir utn þessar mundir
ameríska mynd, Bamona. Er hún tek-
in í eðlilegum litmn í mjög fallegu
landslagi. Fyrir nokkrum árum var
gerð þögul kvikmynd um sama efni og
hlaut hún miklar vinsældir, m. a. hér,
en þessi þykir að ýmsu leyti betri. —
Gamla Bíó sýnir ameríska gleðimynd
og er hin vinsæla leikkona Irene
Dunne í aðalhlutverkinu.
„Þeir, sem vilja gefa Grímsey“.
í nokkrum hluta upplagsins af blað-
inu í dag, hefir misprentazt ártal i
greininni „Þeir, sem vilja gefa Grims-
ey“. Þar stendur: sem myntíu vilja
leika hlutverk Þórarins Nefjólfssonar
frá 1924, en á að vera 1024.
Guffspekifélagar.
Septima heldur fvmd á morgun kl.
8.30. Grétar Fells flytur erindi: Undar-
leg saga.
Gjafir
til Slysavarnafélags íslands á árinu
1939: Frá Ólafi Árnasyni, Karlagötu 24,
kr. 4; Ásvaldur Eydal, Hávallagötu 46,
kr. 5; Kvenfélag Gnúpverjahrepps, kr.
60; Sig. Ólafsson, Hverfisg. 71, kr. 4;
Kvenfélagið Bergþóra, V.-Landeyjinn,
kr. 40; N. N. kr. 1; Skipverjar á e.s.
Katla, kr. 167; E. P., Reykjavík, kr. 10.
Beztu þakkir. — J. E. B.
Áheit
á Slysavarnafélag íslands á árinu
1939: Frá G. B. kr. 5; H. V. kr. 20; Ei-
ríkur Einarsson, Þykkvabæ, Landbroti,
kr. 7.50; Ásta kr. 1; J. P. kr. 5; N. N.
Sandi kr. 5; Emma kr. 2; D. kr. 5; V.
kr. 5; A. J. kr. 5; Gamalt áheit kr. 1;
Ónefnd kona kr. 2; Ónefndur kr. 5;
Karl hinn ungi kr. 5; Ónefnd ekkja,
kr. 2; K. B. kr. 10. — Beztu þakkir.
— J. E. B.
menn hinna nýju tíma telja sig
ekki bundna af neinum dreng-
skaparreglum. Þeir telja stríð
Rússlands við Finnlands sína
sönnu fyrirmynd. í niðurlags-
kafla þessarar greinar verða
leidd nokkur rök að því, hvert
stefnir um bókmenntir íslend-
inga, ef ríkisverðlaunaður skáld-
skapur á að vera grímuklæddar
álygar um andstæðinga í þjóð-
málum.
Framh. J. J.
koma á fót vinnustofnunum eins
og byrjað er á með saumastofu,
svo að betur notist að vinnu-
afli atvinnulausra styrkþega til
framleiðslu ýmissa nausynlegra
hluta.
6. Að koma upp býlum á heppi-
legum stöðum úti á landi, þar
sem fullvinnufærum styrkþeg-
um verði kleift að reka sjálf-
stæða atvinnu á eigin ábyrgð.
7. Að hlutast til um það, í
samráði við ríkisstjórnina, að
framleiðendur úti á landi geti
fengið atvinnulausa bæjarbúa í
vinnu með viðunandi kjörum.
Fisksölumiffstöff.
Bæjarstjórn leggur fyrir bæj-
arráð, að hefja nú þegar undir-
búning að því, að reist verði
allsher j arf isksölumiðstöð fyrir
Reykj avíkurbæ á árinu 1940.
Fisksölumiðstöð þessi skal vera
með nýtízkusniði og hafa öll
tæki og umbúnað til þess að
gætt verði fyllsta hreinlætis og
í sambandi við hana frystiklef-
ar til fiskgeymslu. Sé fiskselj-
endum síðan seldir á leigu sölu-
staðir í byggingunni með þeim
skilyrðum, að þeir hlíti þeim
reglum, sem bæjarstjórnin set-
ur um fisksöluna á hverjum
tíma.
Gatnagerffin.
Bæjarstjórnin leggur fyrir
bæjarráð, að sjá um að teknar
verði upp heppilegri aðferðir en
nú tíðkast við gatnagerð í bæn-
um, m. a. með því að nota stein-
steypu í stað malbikunar á fjöl-
förnustu götum.
Nýjar götur.
Vegna þess, aðengar skýring-
ar eru gefnar á því í frumvarpi
til fjárhagsáætlunar fyrir 1940
hverjar götur skuli gera fyrir fé
það, sem áætlað er til nýrra
gatna, leggur bæjarstjórnin fyr-
ir bæjarráð, að útbúa fyrir
næsta bæjarstjórnarfund ná-
kvæma skýrslu um, hverjar göt-
ur eða götuhluta skuli gera á
102
Margaret Pedler:
Laun þess liðna
103
Læknirinn var að skoða blómakörf-
urnar og vasana með sýnilegri vel-
þóknun, þegar Elizabet kom aftur.
„En hvað þau eru falleg,“ sagði
hann. „Hvert eiga þau öll að fara? Get
ég ekki hjálpað yður að koma þeim
fyrir, „þar sem þau eiga að vera?“
Hún kinkaði kolli. „Jú, ef þér nennið.
Og þegar það er búið, þá býst ég við
að Sara verði búin að leggja á borðið.‘“
Læknirinn hjálpaði Elizabet að koma
blómakörfunum fyrir til og frá um
húsið, alúðlegur eins og eldri bróðir.
Þegar þessu var lokið, fóru þau út, gegn
um garðinn og út á hjallann.
„Hvernig haldið þér svo að yður muni
falla að vera hér í Waincliff, eftir öll
ferðalögin utanlands,“ spurði Suther-
land, um leið og hann hellti sódavatni í
glas sitt.
Elízabet sötraði teið.
„Mér fellur það áreiðanlega vel,“ sagði
hún ákveðin. „Ég sakna Candys auðvit-
að, við höfum verið ákaflega samrýmd,
eins og þér vitið efalaust."
„Já, ég veit það. Ég sannfærðist um
það í þessi tvö eða þrjú skipti, sem ég
hitti hann í London, þegar hann kom
þangað snögga ferð. Ég held,“ bætti
hann brosandi við, „að ég yrði dálítið
afbrýðisöm við dótturina, ef ég væri
konan hans.“
Hann hafði sagt þetta í mesta sak-
leysi, en hafði varla sleppt orðunum
þegar hann sá svipbreytingu á andliti
Elizabetar, sem sannfærði hann um, að
hann hefði komið við auman blett með
þessu.
„Aha!“ sagði hann og unglingsleg
hreinskilnin, sem var einkennandi fyrir
hann, skein úr svip hans. „Ég bið yður
innilega fyrirgefningar, — en ég er
hræddur um, að „ég hafi sagt það sem
ég átti ekki að segja.“
Elizabet brosti glaðlega.
„Já, eiginlega hittuð þér naglann á
höfuðið,“ sagði hún játandi, en bætti
svo við alvarlega: „Mér finnst þetta of-
ur skiljanlegt. Þér hittuð Fjólu einu
sinni í London, var það ekki? Hún sér
ekki sólina fyrir Candy og vill eðlilega
hafa hann út af fyrir sig. En það vildi
ég nú líka,“ hélt hún hlæjandi áfram,
„Svo að ég á auðvelt með að skilja vilja
hennar. Gerið þér það ekki líka?“
„Jú, afar vel. Ég gleðst af því að
heyra, að henni þykir vænt um hann,
þar sem það er auðséð, að hann er al-
gerlega á hennar valdi. Elskar hún
hann í raun og veru?“
Elizabet kinkaði kolli. „Já, það gerir
hún. Ef ég á að segja eins og er, þá
höfum við ekki margt sameiginlegt, ég
------- Btó-------
Lífsgleði
(Joy of Living).
Fjörug og fyndin amerísk
söng- og gamanmynd frá
RKO Radio Pictures.
Aðalhlutverkin leika:
IRENE DUNNE
og
DOUGLAS FAIRBANKS,
yngri.
Aukamynd:
WALT DISNEY-
teiknimynd.
——"—~*NÝJA BÍÓ
Ramóna
Tilkomumikil og fögur
amerísk kvikmynd frá Fox,
öll tekin í eðlilegum litum,
í undursamlegri náttúru-
fegurð víðsvegar í Cali-
forníu.
Aðalhlutverkin leika:
LORETTA YOUNG,
DON AMECHE,
KENT TAYLOR
og
PAULINE FREDERICK.
Fínnlandssöfnunin
óskar eftir sýnishornum og verðtilboði í eftritaldar vörur: Karl-
mannasokkar, Skíðahosur, Karlmannapeysur, Barnapeysur og
sokkar. — Vörurnar séu tilbúnar fyrir 1. febr. Sýnishornin séu
send til Haraldar Árnasonar kaupmanns, sem góðfúslega hefir
lofað að annast innkaup*in, en reikningar verða greiddir á skrif-
stofu Björns E. Árnasonar endurskoðanda, Hafnarstræti 5.
Norræna íelagði og
Ranði Kross fslands.
Tilkynning
um framvísun reikninga.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur beinir þeirri áskorun til þeirra
manna og stofnana, sem eiga reikninga á samlagið frá siðast-
liðnu ári, að sýna þá til greiðslu fyrir 25. þ. m. í aðalskrifstofu
smalagsins, Austurstræti 10.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
ráð fyrir miklum viðskiptaleg-
um stuðningi Rússa við Þjóð-
verja a. m. k. fyrst um sinn,
enda þótt ekki þurfi að efast um
góðan vilja Stalins. Ófarir Rússa
í Finnlandi munu líka draga úr
getu og áhuga Rússa í þessum
efnum.
tslenzk-ameríska
félagið.
(Framh. af 1. siBu.)
Bandaríkjunum og námsmenn
þaðan koma í sama skyni til ís-
lands. í slóð Ragnars Ólafsson-
ar hafa síðan farið í kynnisför
vestur um haf þrír kunnáttu-
menn, þeir Árni Eylands, Hörð-
ur Bjarnason og Árni Pálsson
verkfræðingur. Hafa þeir allir
sömu sögu að segja að vestan.
Þeir sjá óteljandi möguleika á
gagnkvæmum menningarsam-
böndum við Vesturheim.
J. J.
Á krossgötum.
(Framh. af 1. síðu.)
þar á meðal bókband, í annarri tré-
smíðar og málmsmíðar í hinni þriðju.
Gert er ráð fyrir, að í framtíðinni
starfi skólinn 7 mánuði á ári, frá byrj-
un októbermánaðar til aprílloka. Rík-
isstjórnin hefir nýlega ákveðið að veita
styrk til stofnunar og starfrækslu skól-
ans, svo að kleift verður að veita þar
kennaraefnum ókeypis kennslu. Ég
»Lagar£oss«
fer héffan á fimmtudag 18. janú-
ar síffdegis, austur og norffur
um Iand, til Reykjavíkur.
Kemur viff á öllum venjuleg-
um höfnum.
»Brúar£oss«
fer á laugardagskvöld 20. janú-
ar austur og norffur um land til
Reykjavíkur.
Hreinar léreitstuskur
kaupír
Prentsmiðjan Edda,
Lindargötu 1 D.
hefi nefnt skólann Handíðaskólann, en
íð, sem er í fleirtölu iðir, er fornt og
gott orð, sem merkir starfsemi.