Tíminn - 16.03.1940, Blaðsíða 4
124
fflí, langárdaginii 18« marz 1940
30. bláð
Yfir landamærin
1. Sigurjón Friðjónsson, íaðir Arnórs
í öllum flokkum, bauð sig eitt sinn
fram fyrir sósíalista og íhaldsmenn, og
ætlaðist til fylgis af báðum. Nú full-
yrðir Héðinn Valdemarsson, að líkt
sé ástatt með þá sambýlismenn hans,
Elnar Olgeirsson og Brynjólf, að þeir
vinni jafnt fyrir stefnu kommún-
ista og nazista. Þar sem Héðinn er
vel fær hagfræðingur, ætti hann að
fræða menn betur um hin andlegu
skilyrði, sem kunna að vera fyrir því,
að sami maður geti verið í einu naz-
isti og kommúnisti.
Brynjólfur Bjarnason
(Framh. af 1. siðu.)
svo vitlaus. Brynjólfur kvaðst
mundi kæra þetta, og sagði for-
sætisráðherra að sér væri það
ánægjuefni, að sem flestir fengu
að vita um löðrunginn. Pór
Brynjólfur síðan sneyptur og
reiður út úr ráðherraherberginu
til Einars Olgeirssonar og kæröi
þetta fyrir honum. Var hann síð-
an hljóður það sem eftir var
dagsins.
Síðan kommúnistar fengu á-
minninguna í þinginu í fyrra
hafa þeir verið mjög lúpulegir
þar og haft sig litið í frammi.
En þetta hefir þó breyzt nokkuð
eftir að friður var saminn í
Finnlandi. Einkum hefir Brynj-
ólfur verið derrinn og boru-
brattur seinustu dagana. Sést
þetta þó einna greinilegast á
því, að hann taldi sér fært að
fara inn í ráðherraherbergið og
ausa yfir forsætisráðherrann
hinum verstu svívirðingum. For-
sætísráðherra svaraði með kinn-
hestinum, sem er gamall ís-
lenzkur siður, notaður til að
svara ljótum munnsöfnuði
stráka og ruddaskap.
Skemmtilegur eftirleikur.
Brynjólf tókst að láta dá-
litið skoplegan eftirleik fylgja
þessum atburðum.
Áður en gengið var til dag-
skrár á þingi í gær, kvaddi hann
sér hljóðs og beindi þeim til-
mælum til meðráðherra forsæt-
isráðherra, að þeir vernduðu
hann gegn árásum forsætisráð-
herra í þinginu. Strax og Brynj-
ólfur minntist á þetta mál byrj-
uðu áheyrendur að skellihlæja.
Forsætisráðherra svaraði með
nokkrum orðum. Hann kvaðst
ekki samkvæmt góðri íslenzkri
venju hafa getað svarað rudda-
skap Brynjólfs með öðru en
kinnhestinum. Hann vildi ekki
eiga orðastað við þann mann og
sízt af öllu svara persónulegum
svívirðingum hans. Kinnhestur-
inn væri gamall íslenzkur siður,
sem aðallega væri notaður í
tveimur tilfellum: Til að refsa
orðljótum strákum, sem menn
vildu ekki eiga orðastað við, en
vildu samt ekki beita ofbeldi —
og til að sýna mönnum dýpstu
fyrirlitningu. í þessu tilfelli
hefðu báðar framangreindar á-
stæður verið til staðar.
Forsætisráðherra kvaðst ekki
þurfa að eyða mörgum orðum
til að svara þeirri firru Brynj-
ólfs, að hann hefði rétt honum
kinnhestinn í reiði. Ef hann
væri reiðux myndi hann áreiðan-
ÚR B^NPM
Um daginn og veginn.
Hinn finnski Otto Kuusinen sem
ráðstjórn Rússlancts skaut,
hann réttdræpur og svikari var talinn.
En Brynjólfur B. Kuusinen einn
kinnhest harðan hlaut,
svo Hermann er þó mildari en Stalin.
Z.
Messur á morgun:
í dómkirkjunni kl. 11, Ólafur Ólafs-
son kristniboði, kl. 2 barnaguðsþjón-
usta, sr. Fr. Hallgrímsson, kl. 5, sr. Fr.
Hallgrímsson. í fríkirkjunni kl. 2, sr.
Árni Sigurðsson. í Laugamesskóla kl.
5, sr. Garðar Svavarsson, kl. 10, barna-
guðsþjónusta. í kaþólsku kirkjunni
lágmessur kl. 6,30 og kl. 8-, pálmavígsla
og hámessa kl. 10 árd., bænahald með
prédikun kl. 6 síðd.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
lézt i nótt.
Afmælismót K. R.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur hélt á
dögunum myndarlegt sundmót í Sund-
höllinni. Nú í vikunni efndi félagið til
fimleikasýningar í Iðnó, er fram fór
við húsfylli. Fyrst sýndu 10—11 ára
gamlar telpur undir stjórn Benedíkts
Jakobssonar. Næst sýndi karlaflokkur
undir stjórn Vignis Andréssonar. Loks
Danmerkurfarar K. R., undir stjórn
Benedikts.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Fjalla-Eyvind annað kvöld og
verður það síðasta sýning fyrir páska.
Grein
eftir dr. Alexander Jóhannesson um
héskólabygginguna kemur í næsta
blaði.
Frumv. um brúarsjóð
(Framh. af 1. síðu.)
fyrir bætta afkomu þjóðarinnar
í framtíðinni. En að öðrum kosti
mun allt standa að mestu leyti í
stað.
Baráttan gegn því, að þjóðin
leggi á sig álögur, sem er varið
beint til gagnlegra framkvæmda,
er ekkert annað en barátta
gegn framkvæmdunum sjálfum.
Skrafið um álögurnar er aðeins
yfirskynsástæða, notuð til þess
að gera fjandskapinn gegn
framförunum áferðarbetri.
Hér er því um það eitt að ræða,
hvort menn eru með eða móti
þessum framkvæmdum. Afstaða
Sjálfstæðisflokksins til fram-
fara, sem sérstáklega snertu
dreifbýlið, er gamalkunn, og
sósialistar þykjast ekki hafa þar
neinna flokkshagsmuna að gæta,
en það sjónarmið er jafnan öllu
ráðandi um þeirra afstöðu. En
þessir góðu herrar skulu ekki
halda aðþetta mál sé hér með úr
sögunni. Það mun verða flutt á
ný og því fylgt eftir þangað til
það hefir unnið sigur eins og svo
mörg önnur mál, sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefir byrjað á að
vera á móti, en síðar reynt að
eigna sér.
lega ekki slá með flötum lófa!
Ræðu forsætisráðherra var
sérstaklega vel tekið af áheyr-
endum og sá Brynjólfur það ráð
vænzt, að lengja ekki umræð-
urnar. Mun langt siðan að á-
heyrendur hafa látið skoðun
sína eins glöggt í Ijósi og við
þessar umræður.
Einar Benediktsson
(Framh. af 3. síðu.)
innar, sést, hvað hann telur
hinn sanna haugaeld:
Hér finnst, hér skilst, hve íslands
auðn er stór,
hver ómur brims, er rís þess fljótasjór!
Þig konung vorra stoltu, sterku fossa,
eg stilla heyri forsöng í þeim kór.
Öll gljúfrahofin hljóma af gulli snauð
um héruð landsins undir sólarblossa.
Einar Benediktsson vill leggja
þennan mikla orkugjafa í fjötur
vélatækninnar og láta hann
vinna fyrir þjóðina:
Þú gætir unnið dauðans böli bót,
stráð blómaskrauti yfir rústir grjótsins,
steypt mynd þess aftur upp 1 lifsins mót
með afli því, frá landsins hjartarót,
sem kviksett er í klettalegstað fljótsins.
Skáldið sér fleiri sýnir við
Dettifoss. Hér var sú orkulind,
sem hann dáði mest, og eyddi
mikilli vinnu í mörg ár til að
beygja undir vald mannanna:
Hve mætti bæta lands og lýða kjör,
að leggja á bogastreng þinn kraftsins ör,
að nota máttinn rétt í hrapsins hæðum,
svo hafin yrði í veldi kraftsins skör.
Og frjómögn lofts má draga að blómi
og björk,
já, búning hitans sníða úr jökuls
klæðum.
Hér mætti leiða líf úr dauðans örk
og ljósiö tendra í húmsins eyðimörk
við hjartaslög þíns afls í segulæðum.
XLII.
Meðan Einar Benediktsson var
ritstjóri Dagskrár, átti hann í
allmiklum blaðadeilum við
nokkra af helztu leiðtogum
kaupfélaganna í Þingeyjarsýslu,
þar á meðal Jón Jónsson í Múla
og Pétur Jónsson á Gautlöndum.
Hann var mjög andstæður sam-
vinnustefnunni. Gulltrú hans
beindi honum á aðrar brautir
um hagfræðileg málefni. í kvæði
um Egil Skallagrímsson kemur
glögglega fram lífsskoðun
skáldsins um undirstöðuatriði
fjárhyggjunnar:
í gullbjarma sá hans glögga hyggja,
að gifta hins stærra er frelsi hins
smærra,
að þúsunda lif þarf í eins manns auð,
eins og aldir þarf gimstein að byggja.
Skyldleikinn með þessum
tveim víkingum og höfuðskáld-
um kom hér enn glögglega fram.
í augum Einars Benediktssonar
varð fjármagnið og vélatæknin
að hafa fullkomið frelsi. Hinir
sterku athafnamenn stýrðu fjár-
magr(inu og stóriðjunríi. Þeir
sköpuðu nýjan auð, og fyrir
þeirra tilverknað dreifðist fjár-
magnið síðan til iðjuhersins, og
bætti þannig lífskjör þegn-
anna í landinu. í ritgerðum
Einars Benediktssonar má sjá,
að hann áleit hinsvegar, að þeg-
ar vélamenningin væri búin að
hlaða saman miklum auði í
höndum nútímaþjóða, þá kæmi
til mála að skipta að nýju. Hann
hafði sýnt í íslandsljóðunum, að
hann mundi eftir verkamönn-
unum, sem vinna með vélunum
að því, að skapa stórauð ein-
stakra manna. Hann sá fyrir-
hin miklu átök, sem síðar myndu
koma fram út af skiptingu arðs-
ins, milli þeirra, sem áttu fram-
leiðslutækin og hinna, sem unnu
með vélunum. Fáum árum áður
en heimsstyrjöldin brauzt út,
var Einar Benediktsson staddur
194 Margaret Pedler:
Skömmu síðar fór hún að gá að Colin.
Þá sat hann við eldinn og var sýnilega
niðursokkinn í morgunblaðið. Hann
lagði blaðið frá sér, er hann heyrði hana
opna hurðina, og leit upp. Hún varp
öndinni léttara er hún sá að andlit hans
bar nú engin merki þeirra þjáninga, sem
hún hafði séð letrað þar áðan. Hann
var alvarlegur á svipinn og augun sýndu
hryggð, svo var hann að öllum jafnaði.en
hann fagnaði systur sinni með brosi.
„Er ekki allt gott að frétta að utan?“
spurði hann.
„Fremur það. Ungunum, sem komu
úr eggjunum i september, fer bara ágæt-
lega fram, þrátt fyrir kuldann. Það fólk,
sem mælir á móti hænsnaræktinni, veit
ekkert hvað það er að segja. Hænsna-
rækt er arðvænleg, ef hún er stunduð
af alúð.“ — Jane ræddi um svo hvers-
dagslegt efni af ásettu ráði. — „Það sem
bagar, er langsamlega oftast leti fólks-
ins sjálfs."
„Enginn gæti brugðið þér um leti,“
svaraði Colin alvarlega, og bætti svo við
dálítið biturt. „Hér er ég ómaginn."
„Bull og vitleysa! Hefir þú ekki alla
reikningsfæzlu og mestan hluta garð-
yrkjunnar og hirðir og gerir við vagninn
einn? Ég skyldi halda að þetta væri
nægur starfi fyrir einn mann!“
„Fyrir hálfan mann, ef til vill.“
Laun þess liðna 195
Jane nam staðar frammi fyrir bróður
sínum.
„Ég harðbanna þér að tala svona,
Colin! Hver sem lifði af heimsstyrjöld-
ina og hefir þolað jafn miklar þjáningar
og þú leiðst þá, og hefir ávallt liðið
síðan, hann er heill maður. Þess vegna
átt þú ekki að segja svona vitleysu."
„Jæja, Jane mín. En getur þú ekki
skilið það, að mann langi til þess að
geta tekið að sér einhvern starfa, —
almennilegan starfa, sem ekki hentar
neinum vésalingum, — þó ekki væri til
annars en vernda mann frá því að
hugsa.“
„Vernda frá því að hugsa?“ Jane
kraup á hné við hlið Colins. „En— finnst
þér þá stundum sárt að hugsa, Colin?“
Hún horfði beint í andlit honum og
augu hennar voru skær og innilega al-
úðleg, eins og augu í góðum og trygg-
um hundi.
„Já, stundum,“ svaraði hann játandi.
Jane herti upp hugann: „Er það, —
er það Elizabet?"
Hann kinkaði kolli og augu hans urðu
harðneskjuleg.
„Já. Það er eins gott að þú heyrir það
núna og einhverntíma seinna. Ég býst
við að hinni mizkunnsömu forsjón hafi
fundist byrðar mínar of léttar, og viljað
bæta úr því.“ Rödd Colins og svipur
Leikfélaq Reylcjjavíhur
„Fjalla-Eyvíndur4
Sýning á morgiin kl. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Vegna ísa
í Danmörku hleður skipið ekki
fyr en að öllu forfallalausu í
byrjun apríL
Sklpaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. — Sími 3025.
Kaupum kanínuskinn hæsta
verði.
VERKSM. MAGNI h.f.
Þingholtsstræti 23. — Sími 2088.
í miklum iðnaðarbæ, höfuð-
borg Belgíu. Þá orti hann kvæð-
ið Sólarlag. í því kemur fram
uggur hans um gullveldið. Skáld-
ið hefir hugboð um, að ný bylt-
ing sé yfirvofandi, miklu grimm-
ari heldur en frelsisbarátta
borgarastéttarmnar í Frakk-
landi hafði verið á sinni tíð.
Hann lýsir öreigahverfum Brúss-
elborgar:
Þar drúpa hin lágu, lútandi þök
yfir lesti og örbirgð, kvalir og sök —
meðan sólarlag kveður mörg
sökkvandi flök
í seinustu neyðarvörum.
Sú bylting, sem skáldið sá fyr-
ir, gerðist i Rússlandi en ekki í
Belgíu:
Nær verður hinn blóðugi draumur
að dáð,
sem dreymist er Briissel sofnar?
í tötrunum heiftin hulin og smáð
sig hvílir og leggur banaráð
fyrir sængumar silki ofnar.
Hér vofir i loftinu bylting brauðs,
banvænni en hin er sló Frakkann
til dauðs,
hér leikur sér bráðfeigur aðall auðs,
meðan ormétast félagsins stofnar.
Einar Benediktsson sá ekki að-
eins fyrir byltingu fjórðu stétt-
arinnar. Hann skildi auk þess
erfiðleika, öreiganna og að þeir
myndu steypa yfir höfuð sér
nýrri vargöld:
Hér gæti staðið vagga þess valds,
sem veltir harðstjóm hins almáttka
gjalds,
en verður sér sjálfri víst til íalls
á vargöld frelsaðra þýja.
Það má kalla gæfusaman spá-
mann, sem sér dagdrauma sína
og spásagnir rætast að mjög
verulegu eylti meðan hann á enn
heima hér á jörðu. Einar Bene-
diktsson var einn af þessum
giftudrjúgu mönnum. Honum
auðnaðist að vísu ekki að beizla
Dettifoss eða fallvötnin í Rang-
árþingi. En hann sá stefnu véla-
aldarinnar, gulltrúna, leggja ís-
land undir veldi sitt, og ger-
breyta þjóðlifinu. Hann sá
byggða höfn í Reykjavík og viða
annarsstaðar á landinu. íslend-
ingar fengu vélknúin skip og
urðu einhverir frægustu afla-
víkingar á miðum landsins.
Hann- sá sinumýrarnar gerðar
alS túnum, vegi lagða um landið
þvert og endilangt, stórfljót brú-
uð, þúsundir heimila reist að
nýju í byggðum landsins og í
nýbyggðinni við sjóinn. Útlent
fjármagn fluttist hingað og
fæddi af sér nýjan auð með
stuðningi vélanna. Út í löndum
gerðist þýðingarmikil bylting.
Jöfnuður skapaðist ekki þar,
helduT ný vargöld þeirrar stétt-
ar, sem hélt í fyrstu að hún
gæti skapað nýtt friðarríki á
jörðinni. Sennilega hefir Einar
Benediktsson fundið nokkra
fullnægingu í að hafa orðið höf-
uðskáld þeirrar hagfræðitrúar,
sem lagði undir sig lönd öll á
tuttugustu öldinni. Honum mun
hafa verið ljóst, að vélamenn-
ingin hafði feykt burtu miklu
af veldi Dana á íslandi, stöðvað
þjóðflutninga úr landinu, og eflt
þjóðina móti hungurvofu hafís-
áranna. En jafnvel í paradís
gulltrúarinnar var fólginn snák-
ur. Það var baráttuhugur fólks-
ins um afrakstur véla og tækni.
Skáldið fann.aðloftið í iðnhverf-
um Brússelborgar var blandið
lævi og þungir skýjabakkar
grúfðu yfir heimi véliðju og
stórgróða:
En dimmar og þungar sem þrælakurr
heyrast þrumunnar byrjandi dunur.
Frh. J. J.
—.QáMLá BÍÓ’****•—*-"
Tvíbura-
systurnar
Tilkomumikil og fögur ensk
kvikmynd. Aðalhlutverkin
tvö, tvíburasysturnar, leik-
ur einhver mesta leikkona
heimsins,
ELIZABETH BERGNER.
NÝJA BÍÓ
Karlson stýrímað
ur og kærusturn-
ar hans
Aaukamynd:
PADEREWSKI SPILAR
Þessar vinsælu myndir
verða eftir ósk margra
sýndar í kvöld.
Vartappar í raímagnslagnir
Rafmagnsveita Reykjavíkur vill kaupa af rafmagnsnotendum
brunna vartappa af gerðinni N. D. Z. fyrir 5 aura stk. Stærðir:
fi, 10, 15 og 20 Amp.
Utanmál þessara vartappa: Lengd 5 cm. Þvermál 1,2 cm. Afhend-
ist á skrifstofu Rafmagnsveitunnar, Tjarnargötu 12.
Rafmagnsveita Reykjavíkur.
Viðskiptaskráín 1940
er komin út.
E F N 1:
I. flokkur:
1. Kort af íslandi með bílvegakerfi. 2. Kort af vita-
kerfi íslands með tilgreindum fiskimiðum umhverfis
landið og dýptarlínum. 3. Kort af Reykjavík o. fl.
II. flokkur:
Skrá yfir götur og húseignir í Reykjavík, ásamt lóða-
og húsamati og þingl. eigendum o. fl.
III. flokkur:
Reykjavík. Stofnanir, embætti, félagsmálaskrá, nafna-
skrá o. fl.
IV. flokkur:
18 kaupstaðir og kauptún utan Reykjavíkur, sveita-
og bæjarstjómir, félagsmálaskrá, nafnaskrá o. fl.
V. flokkur:
Varnings- og starfsskrá Reykjavíkur og 18 kaup-
staða og kauptúna utan Reykjavíkur.
VI. flokkur:
Skipastóll íslands 1940. Skrá yfir eimskip og mótor-
skip 12 tonna og stærri.
VII. flokkur:
Sendiherrar og ræðismenn íslands og Danmerkur í
ýmsum borgum erlendis.
Viðskiptaskráin
er 565 bls. og kostar aðeins kr. 8.00 í bandi
Blóm o$* ávextir
Hafnarstræti 5. Sími 2717
MATJURTAFRÆ. — BLÓMFRÆ.
Fyrsta flokks vara. Margra ára reynsla.
Sendið pantanir, sem fyrst.
SENDUM GEGN EFTIRKRÖFU.
Látið blómin tala.
Sparísjóður Reykjavíkur og nágrennís
verðnr lokaður laugardaginn fyrir páska.
Athygli skal vakin á því, að víxlar, sem falla i gjalddaga þriðju-
daginn 19. marz, verða afsagðir miðvikudaginn 20. marz, séu þeir
eigi greiddir eða framlengdir fyrir lokunartíma sparisjóðsins
þann dag.
Stúdentafélag Reykjavíkur
boðar til tveggja umræðufunda um:
AFSTÖÐU ÍSLANDS TIL UMHEIMSINS.
Fyrri fundurinn verður haldinn í Kaupþingssalnum mánudaginn 18.
marz, og hefst kl. 8% e. h.
UMRÆÐUEFNI: ÍSLAND OG AMERÍKA.
Framsögumenn: Thor Thors alþm. og Ragnar Ólafsson lögfræðingur.
Síðari fundurinn verður haldinn um næstu mánaðamót.
UMRÆÐUEFNI ÞÁ: ÍSLAND OG NORÐURÁLFA.
Hreinar léreftstuskur kaupir Prentsmiðjan Edda Lindargötu 1 D. AUGLÝSING. Peysur og ýmsar prjónavörur, dömusokkar, nærföt o. fl. Hand- unnar hattaviðgerðir sama stað. KARLMANNAHATTABÚÐIN Hafnarstræti 18.
Útbreiðið TÍMANIV Anglýsið í Tímanuml