Tíminn - 18.04.1940, Blaðsíða 1
RITSTJÓRAB:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
FORMAÐUR BLAÐSTJÓRNAR:
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTGEFANDI:
FR,AMSÓKNARFLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 1 D.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hJ.
Simar 3D48 og 3720.
24. árg.
Reykjavík, fimmtudagiim 18. apríl 1940
43. blað
Lög um húsaleigu
Ráðstaianír þíngsíns til þess að koma í
veg iyrir að húsaleigan auki dýrtíðina
/ 'páskavikunni hittust þeir Mussolini og Hitler í Brennerskarði og rœddust þar við í nokkrar klukkustundir í járn-
brautarvagni Mussolinis— Fundur þessi kom flestum á óvart og vakti heimsathygli. Engín tilkynning var birt um
viðrœðurnar. — Myndin er jrá þessum sögulega fundi. Til hœgri sjást einrœðisherrarnir báðir, en til vinstri sést
Mussolini í skrifstofunni í jámbrautarvagni sínum, en þar fór viðrœðan fram.
Slyrjöidin um Narvik
Yíirráð Bandamanua í Norður-Noregi geta
haft mikla hernaðarlega pýðingu
Alþingi hefir nýlega af-
greitt lög um húsaleigu.
Samkvæmt þeim er m. a.
óheimilt að hækka húsa-
leigu, og leiga á nýjum hús-
um skal ákveðin af sérstakri
húsaleigunefnd í Reykjavík,
en annars staðar af fast-
eignanefndum eða sveitar-
oddvitum og úttektarmönn-
um í hreppum.
Samkvæmt gengislögunum, er
sett voru í fyrravetur, var bann-
að að hækka húsaleigu þangað
til 14. maí í vor. Mátti telja víst
— eins ög oft var bent á hér í
blaðinu i vetur — að þegar þess-
ar hömlur fellu úr gildi myndu
húseigendur reyna að hækka
leiguna. Ríkisstjórnin áleit því
rétt, að láta þær gilda áfram og
spörna þannig gegn aukinni dýr-
tíð: Lét hún því snemma á þing-
inu flytja frumvarp til framan-
greindra laga og hefir því lítil-
lega verið breytt í meðferð
þingsins.
Þar sem lög þessi snerta mjög
marga, þykir Tímanum rétt að
birta aðalefni þeirra:
„Óheimilt er að hækka leigu
eftir húsnæði frá því, sem gold-
ið og umsamið var, þegar lög
þessi öðlast gildi. Þó er heimilt
að hækka eftir mati leigu eftir
húsnæði, sökum aukins við-
haldskostnaðar, eldsneytis, sem
innifalið er í leigunni, vaxta- og
skattahækkana af fasteignum
og annars þessháttar, svo og
húsnæði, sem af sérstökum á-
stæðum hefir verið lægra en
sambærilegt húsnæði á hlutað-
eigandi stað. Verði hækkun met-
in á leigu, kemur hún til fram-
kvæmda 14. maí eða 1. október.
Lögin taka ekki til leigu á
einstökum herbergjum, sem
leigutaki eða húseigandi leigir
einhleypum út frá íbúð sinni.
Merkur Vestur-Is-
lendingur í kynnís-
ferð
Nýlega er kominn hingað til
bæjarins Sofonías Þorkelsson
iðjuhöldur i Winnipeg. Býr hann
á Hótel Borg og mun dvelja hér
í Reykjavík nokkrar vikur, en
mun síðar heimsækja frændur
og vini í Svarfaðardal, þar sem
hann er fæddur og uppalinn
Sofonías er á sjötugsaldri.
Hann lærði ungur járn-
smíði á Akureyri. Fór síðan
vestur um haf, og byrjaði með
því að flytja hreyfanlega vél-
sög milli húsa í Winnipeg, og
saga við í eldinn. En með fá-
dæma dugnaði og viljastyrk
tókst honum að koma á fót tré-
smlðaverkstæði, og vinna þar nú
(Framh. á 4. siðu.)
Leigusala er óheimilt að segja
upp leigusamningum um hús-
næði, nema hann þurfi á því að
halda fyrir sjálfan sig eða
vandamenn sína. Þó heldur
leigusali óskertum rétti sínum
til þess að slíta leigumála vegna
vanskila á húsaleigu eða ann-
arra samningsrofa af hálfu
leigutaka, svo og ef leigutaki
hagar sér þannig eða fremur
eitthvað það, er að mati húsa-
leigunefndar gerir leigusala
verulega óþægilegt að hafa hann
í húsum sínum.
í Reykjavík skal skipa húsa-
leigunefnd. Eiga sæti í henni
tveir skipaðir af ríkisstjórninni,
en hæstiréttur skipar þann
þriðja, og er hann íormaður
nefndarinnar. Þrir varamenn
skulu skipaðir á sama hátt.
Skylt er að leggja fyrir húsa-
leigunefnd til samþykktar alla
leigumála, sem gerðir eru eftir
gildistöku laga þessara. Skal
nefndin gæta þess, að leigan sé
í samræmi við ákvæði laganna
og hefir hún vald til þess að úr-
skurða úm upphæð leigunnar,
ef þörf gerist. Þá er skylt að
láta nefndina meta leigu eftir
ný hús og húsnæði, sem ekki
hefir verið leigt áður, og er
leigusala óheimilt að áskilja sér
eða taka hærri leigu en nefndin
metur. Ennfremur ber nefndinni
að framkvæma mat á hækkun
húsaleigu. Skjóta má þeim úr-
skurði nefndarinnar til dóm-
stólanna, en hlíta skal honum,
unz dómur fellur.
Heimilt er leigutaka, telji
hann húsnæðið leigt óhæfilega
hátt vegna ásigkomulags þess,
að beiðast mats húsaleigunefnd-
ar á húsaleigunni. Eigi er nefnd-
inni þó skylt að taka slíka
beiðni til greina, nema leigutaki
leiði líkur að því, að málaleit-
unin hafi við rök að styðjast.
Meti nefndin leiguna lægri en
umsamið hefir verið, skal færa
hana niður í samræmi við mat-
(Framh. á 4. síðu.)
Tímlnn hefir þær fregnir frá veður-
stofunni, að seint i gær hafi borizt
skeyti um hafís út af Homi, 20—25 sjó-
milur undan landi. Er þaS í fyrsta
skipti á þessum vetrí, er hafíss verður
vart. Enn eru ísfregnir þessar óljósar
og óvíst, hvort um miklar ísbreiður er
að ræða eða aðeins lítils háttar dreifar.
r t t
Karl Hjálmarsson kaupfélagsstjóri á
Þórshöfn hefir ritað Tfenanum á þessa
ieið: — Síðastliðið sumar var hér fisk-
afli' í bezta lagi, samanborið við það,
er verið hefir mörg úr undanfarin. Svo
var einnig i Bakkafirði og að Skálum,
enda gæftir góðar með fádæmum. Út-
gerð á þessum stöðum var einnig í
meira lagi. Á Þórshöfn fengu 3—7 smá-
lesta þiljubátar 320—350 skippund
fiskjar. Maður að nafni Ottó Þorsteins-
son hélt til fiskjar litlum hreyfilbát og
var einn á, beitti sjálfur línuna og
gerði að afla sínum. Hann fiskaði ails
um 70 skippund, og er það talinn með
fádæmum mikill afli. í Bakkafirði
sóttu bræður tveir, Njáll og Flosi Hall-
dórssynir, til fiskjar á litlum hreyfilbát
og öfluðu alls 100 skippund og er það
talinn sér sá mesti afli, er fólk veit
dæmi um hjá tveim mönnum. Þeir
gerðu allt að aflanum og línunni hjálp-
arlaust að kalla, og skiluðu fiskinum
í umbúðum til útflutnings. í vetur
hefir verið dágóður afli frá Þórshöfn,
en fáir bátar stundað fiskveiðar. Er
slikt sjaldgæft um þetta leyti árs, ef
Narvik virðist enn vera mið-
depill atburðanna í Noregi.
Bandamenn hafa sett her á land
í Norður-Noregi og munu hafa
náð öllum helztu stöðunum þar
á vald sitt, nema Narvik. Þaðan
eru fregnir, mjög ósamhljóða.
Þjóðverjar segjast enn halda
borginni, en Bandamenn telja,
að mestallur þýzki herinn þar
sé flúinn til fjalla og sé hann
innikróaður milli Norðmanna
og Bandamanna. Muni því ekki
líða á löngu þangað til hann sé
gersigraður. Foringjar Þýzka-
lands virðast líka vera að búa
þjóð sína undir ósigur Þjóð-
verja í Narvik, þar sem þýzkar
fregnir gera orðið mjög lítið úr
hernaðarlegu gildi staðarins.
Bandamenn benda á það í
þessu sambandi, að Þjóðverjar
hafi látið nokkra beztu tundur-
spilla sína gæta Narvikur og
hafi það borið vott um talsvert
ekki dæmalaust. Síðastliðið sumar og í
vetur hefir Kaupfélag Langnesinga
tekið á móti nokkru af fiski og flakað
hann og fryst til útflutnings. Voru á
vegum þess frystar um 100 smálestir
fiskflaka fram til áramóta. Skapar sú
verkun mikla vinnu í þorpinu, og út-
gerðarmenn fá nokkru hærra verð en
ella fyrir fiskinn. Fiskúrgangur, sem
fellst til hér í Þórshöfn, er jafnóðum
hirtur til áburðar, enda er túnrækt nú
í mikilli framför, og langsamlega flest-
ir þorpsbúar eiga túnblett, Íítinn eða
stóran. Bannað er, síðan byrjað var á
hafnargerð, að fleygja fiskúrgangi í
sjóinn, hverrar tegundar sem er.
r t t
Tíðarfar hefir verið mjög hagstætt
lengst af í vetur, og sauðfjárhagar
víðast góðir. Á sumum bæjum hefir
fullorðið fé komizt af gjafarlítið. í
byrjun febrúarmánaðar fóru tveir
menn inn á Tunguselsheiði að leita
kinda. Fundu þeir innarlega á heið-
inni eitt lamb óheimt, sem þar hafði
gengið fram til þess tíma. Var það í
sæmilegum holdum. í för þessari sáu
þeir á heiðinni örn, en örn hefir eigi
sézt á þessum slóðum í marga áratugi.
• t t
Síðastliðna viku hafa öll íslenzk skip,
sem komið hafa til hafnar í Englandi,
verið kyrsett þar. Voru íslenzku skipin,
er lágu þar og biðu eftir brottfararleyfi,
orðið allmörg, en einkum voru það þó
togarar. í fyrradag var öllum þessum
aðra skoðun þeirra fyrir fáum
dögum.
Ástæðurnar til þess, að Banda-
menn virðast hafa lagt megin-
áherzlu á hertöku Norður-Nor-
egs, virðast einkum þessar:
Óttinn við það, að Rússar
kynnu að reyna að taka Norður-
Noreg líkt og þeir tóku nokk-
urn hluta Póllands eftir innrás
Þjóðverja þar. Er það kunnugt,
að Rússar hafa löngum haft
mikinn hug á höfnum í Norður-
Noregi.
Með hertöku Narvikur er það
fullkomlega tryggt, að enginn
járnmálmur verður fluttur frá
Svíþjóð til Þýzkalands um
Noreg.
Með hertöku Narvíkur er það
einnig tryggt, að Bandamenn
geta flutt her til Norður-Sví-
þjóðar, ef þörf krefur, en það
(Framh. á 4. siðu.)
skipum veitt ferðaleyfi, og munu flest
þeirra hafa látlð þá strax úr höfn.
t t r
í stórviðrinu, er geisaði í byrjun
þessarar viku, varð nokkurt tjón á bát-
um við Eyjafjörð. Á Árskógssandi
slitnaði 8 smálesta vélbátur, Gideon,
upp og rak til lands, en skemmdist
fremur lítið. Þrír hreyfilbátar sukku,
en hinn fjórða rak á land. Við Flatey
á Skjálfanda sökk einnig 8 smálesta
vélbátur, Óli Bjömsson. Óvíst er,
hvemig tekizt hefir um björgun sumra
þessara báta, en sumir hafa náðst
lítið skemmdir.
r r r
Farfuglar þeir, sem fyrstir koma á
vorin, eru þegar famir að láta á sér
bóla, þrátt fyrir kuldann og þræslnginn.
Hefir fyrir nokkrum dögum síðan orðið
vart skógarþrastar hér í Reykjavík,
enda kemur hann hingað til lands um
mánaðamótin marz—apríl nær undan-
tekningarlaust. í fyrrra kom hann í
lok marzmánaðar. Lóan kemur venju-
lega dagana 10.—14. aprílmánaðar, en
ekki hefir þó Tíminn haft fregnir af
því að hennar hafi enn orðið vart, og
virðist svo sem hún muni verða síðar
á ferðinni í ár en hennar er siðvandi.
Tíðast verður hér suðvestanlands einn-
ig fyrst vart við hrossagauk og stelk
upp úr miðjum aprílmánuði, en um
næstu mánaðamót er að vænta marí-
etlunnar, sandlóunnar og spóans, og
þúfutittlingsins litlu síðar. Kria kemur
9.—12. maimánaðar.
TVISYN AFSTAÐA
ÍTALA 0G RÚSSA
FramkomaNorðmanna
heSir aukið kjark smá-
pjóðanna
í heimsblöðunum er nú mjög
rætt um afstöðu Ítalíu og Rúss-
lands og vekja fréttirnar þaðan
engu minni athygli en atburð-
irnir í Noregi.
Einkum hefir það vakið at-
hygli, að ítalski flotinn er nú að
miklum heræfingum í Adríahafi,
án þess að nokkuð sé sagt frá því
í ítölskum blöðum, en rússneski
flotinn er á æfingu í Svartahafi.
Eru flotar Rússa og ftala þann-
ig reiðubúnir sitt hvoru megin
við Baikanskaga. Þá segja
lausafregnir, að ítalir hafi flutt
mikið herlið til Albaníu, en
þaðan er tiltölulega auðvelt að
ráðast inn í Júgoslaviu.
Þá vekur það mikla athygli,
að ítölsk blöð deila orðið miklu
harðlegar á Bandamenn en þau
hafa gert um langt skeið og í
fréttum frá Noregi draga þau
mjög taum Þjóðverja. í rúss-
neskum blöðum er sú skoðun
látin í ljós, að innrás Þjóðverja
i Danmörku og Noreg hafi verið
eðlileg og sjálfsögð eins og á
stóð.
í löndum Bandamanna er
fréttunum frá Ítalíu og Rúss-
landi tekið með ró. Bandamenn
telja ólíklegt, að um nokkra
samvinnu sé að ræða milli Rússa
og ítala, heldur vilji báðir verða
viðbúnir til þess að reyna að
tryggja sér nokkurn hlut, ef
hinn aðilinn byrjar árás á Balk-
anlöndin. Þá segja þeir, að það
sé stórum óhyggilegra nú en
áður fyrir ítali að gQnga í lið
með Þjóðverjum, þar sem Þjóð-
verjar séu búnir að missa mikið
af flota sínum.
Það þykir öllu líklegra, að ít-
alir gangi fyrr I lið með Þjóð-
verjum en Rússar. Mussolini
óttast að ítalska fasismanum
verði hætt, ef þýzki nazisminn
verður sigraður, og ítalir geti
ekki gert sér von um neina
landvinninga, ef Bandamenn
sigra. Þess vegna kýs hann
kannske heldur að reyna að
vinna skyndistyrjöld með Þjóð-
verjum en að sitja hjá.
Bandamenn segja, að ráðstaf-
anir hlutlausu smáþjóðanna
beri þess merki, að fordæmi
Norðmanna hafi aukið þeim á-
ræði. í Belgíu, Hollandi, Sviss,
Rúmeníu og Jugoslavíu hafa
hervarnir verið stórum auknar
og einkum hafa þessi lönd kapp-
kostað að taka upp strangari
gæzlu með útlendingum. Hefir
Á víðavangi
í erlendum útvarpsfréttum
er öðru hvoru vikið að afstöðu
íslands til styrjaldarþjóðanna.
í brezka útvarpinu var t. d. ný-
lega skýrt frá því, að í brezka
þinginu hefði komið fram fyr-
irspurn um fyrirætlanir Banda-
manna um afstöðuna til ís-
lands. Aðstoðarutanríkisráð-
henann svaraði því einu, að
hún væri til athugunar og meira
gæti hann ekki sagt að svo
stöddu. Þá hefir brezki sendi-
herrann í Washington nýlega
flutt ræðu, _ þar sem hann
minntist á ísland og Græn-
land. Gaf hann til kynna, að
Bretland og Kanada myndi ekki
hafa nein afskipti af þessum
löndum, nema þeir fengju vitn-
eskju um, að Þjóðverjar ætluðu
að koma sér upp bækistöðvum
þar.
* * *
Frá Danmörku hafa engar
fregnir borizt frá íslendingum,
nema skeyti það frá Sveini
Björnssyni sendiherra, er skýrt
var frá i seinasta blaði. í sænska
útvarpinu var þó nýlega frá því
sagt, að Sveinn Björnsson hefði
skýrt Kristjáni konungi og
Munch utanríkisráðherra frá
samþykktum Alþingis um kon-
ungssambandið og utanríkis-
málin og hefðu báðir talið þær
eðlilegar eins og ástatt væri.
* * *
Vegna beinu ferðanna milli
Reykjavíkur og New York verð-
ur greiðara en áður um heim-
sóknir landa úr Vesturheimi.
Eimskipafélagsstjórnin bauð
þrem af þekktustu forgöngu-
mönnum félagsins að koma sem
heiðursgestir á næsta aðalfund.
Þessir gömlu forustumenn Eim-
skipafélagsins vestra eru Árni
Eggertsson, Ásmundur Jóhanns-
son og Jón Bíldfell. Kona Jóns
hefir símað Guðm. Vilhjálms-
syni forstjóra, að þau hjón muni
því miður ekki geta þegið boðið,
því að maður hennar sé í erind-
um fyrir stjórn Kanada norður
í heimskautalöndum. Hinir tveir
boðsgestir munu koma með kon-
ur sínar. Þá hefir stjórn Þjóð-
ræknisfélagsins í Reykjavík
boðið Gunnari Björnssyni rit-
stjóra heim. En hann hefir ekki
svarað ennþá. Þá mun ekki vera
vonlaust, að hinn mikli hugvits-
maður Hjörtur Þórðarson í Chi-
cago komi hingað í sumar, en
það mun þó enn ekki fullráðið.
það vakið nokkurn ugg, hversu
mikið hefir komið af þýzkum
ferðamönnum til sumra þessara
landa undanfarið, einkum Rú-
meníu og Jugoslavíu, en slíkt
átti sér einmitt stað í Noxegi
og Danmörku nokkru fyrir inn-
rásina þar.
Rúmenar hafa m. a. bannað
útflutning olíu og hveitis til
þess að koma sér upp nægum
birgðum.
í Svíþjóð eru nú ríkjandi
hálfgerð herlög. Herinn er hvar-
vetna viðbúinn. Verið er að
flytja fólk úr stærstu borgun-
um. Útlendingaeftirlitið hefir
verið stóraukið og er útlend-
ingum m. a. bannað að koma á
járnbrautarstöðvar eða skoða
verksmiðjur, nema brýn nauð-
syn beri til.
Aðrar fréttir.
Ingrid krónprinsessa eignaðist
dóttur í fyrradag. Er það fyrsta
barn krónprinshjónanna. Kon-
ur hafa ekki rétt til ríkiserfða
í Danmörku.
Anthony Eden samveldis-
málaráðherra flutti ræðu í gær,
þar sem hann lét svo ummælt,
að styrjöldin væri ekki fyrst og
fremst barátta um yfirráð yfir
löndum heldur miklu frekar
barátta um, hvort einræði eða
lýðræði ætti að setja svip sinn
á sambúð manna í framtíðinni.
Þjóðverjar berðust fyrir útrým-
ingu skoðanafrelsisins, en Bret-
ar vildu tryggja því æðsta sess
í stjórnskipulaginu.
A KROSSGÖTUM
Hafís undan Horni. — Frá Þórshöfn. — Tíðarfar á Langanesi. — íslenzk skip
fá brottfararleyfi úr brezkum höfnum. — Bátatjón norðan lands. — Koma
farfuglanna
%