Tíminn - 18.04.1940, Blaðsíða 4
172
TÍMEVrV, fiutmtndaglim 18. apríl 1940
43. blað
NÝJA BÍÓ"
Styrjöldín um Narvik
(Framh. af 1. sUSu.)
er kunnugt, að bæði Rússland
og Þýzkaland hafa mikinn hug
á járnmálminum þar.
Af framangreindu er ljóst, að
Norður-Noregur hefir mikla
hernaðarlega þýðingu fyrir
Bandamenn og þess vegna eðli-
legt, að þeir leggi á það mikið
kapp að tryggja yfixráð sín þar.
í brezkum fréttum er það við-
urkennt, að í her Bandamanna,
sem kominn er á land í Norður-
Noregi, séu Bretar, Frakkar og
Kanadamenn. Einkum er látið
mikið af 'útbúnaði Kanada-
manna og undirbúningi þeirra
til að heyja styrjöld í norðlægu
fjallalandi.
Styrjöldin
I Snður-Noregi.
Frá öðrum stöðum Noregs
hafa ekki borizt stórfelld tíð-
indi seinustu daga.
í nánd við Oslo sækja Þjóð-
verjar hægt fram. Hafa þeir
náð Kongsvinger á vald sitt og
öllum hluta landsins þar fyrir
sunnan, milli Oslofjarðar og
landamæra Svíþjóðar. Þýzku
hersveitirnar, sem sækja með-
fram Bergenbrautinni, hafa náð
Hönefoss. Þjóðverjar virðast
leggja á það megináherzlu, að
ná Elverum á vald sitt, en þar
verjast Norðmenn vasklega og
sömuleiðis við Hamar. Norski
herinn hefir hörfað skipulega
undan og eyðileggur vegi og
brýr á undanhaldinu. Norskar
smásveitir hafa oft valdið Þjóð-
verjum talsverðu tjóni úr laun-
sátri. Á nokkrum stöðum hefir
Þjóðverjum tekizt að hrekja
slíka smáflokka Norðmanna,
sem orðið hafa viðskila við að-
alherínn, yfir landamæri Sví-
þjóðar. Norski herinn hefir
iðuléga orðið fyrir flugárásum
og hefir honum heppnast að
skjóta niður nokkrar þýzkar
flugvélar. Hákon konungur er
sagður fylgjast með aðalhern-
um og hefir hann sagt í ávarpi
til þjóðarinnar, að flugvélar
Þjóðverja virðist kappkosta að
ráðast á þá staði, þar sem hans
sé helzt von.
Þjóðverjar virðast hafa alla
strandlengjuna frá Oslo til
Stavangurs á valdi sínu. Ensk-
ar flugvélar halda áfram árás-
um á flugvöllinn í Stavanger og
í gærmorgun var skotið á hann
af enskum herskipum. Stavan-
ger er hernaðarlega þýðingar-
mesti staðurinn, sem Þjóðverjar
hafa náð í Noregi. Þar er bezti
flugvöllurinn og þangað er því
auðveldast að flytja hernum
vistir og skotfæri loftleiðina frá
Danmörku. Sömuleiðis er þar
tilvalin stöð fyrir kafbáta og
flugvélar, sem halda uppi á-
rásum á ensk skip. Þaðan er
líka miklu styttri loftleið til
herskipalægis Breta í Orkneyj-
um og nyrztu borga í Skotlandi
en frá Þýzkalandi.
Við Bergen virðist þýzki her-
inn halda kyrru fyrir. í Þránd-
heimi hafa Þjóðverjar sótt fram
til sænsku landamæranna, en
Norðmenn hafa enn eitt virki á
þeirri leið á valdi sínu. Þjóð-
tJR BÆNUM
Aðalfundur Kron
var haldinn í Oddfellowhúsinu sl.
sunnudag. Var þar skýrt frá rekstri fé-
lagsins á síðastliðnu ári, en frá honum
hefir áður verið greint hér í blaðinu. Úr
stjórninni áttu að ganga Margrét
Björnsdóttir, Þorlákur G. Ottesen og
Hjörtur B. Helgason; voru Þorlákur og
Hjörtur endurkosnir, en Sigfús Sigur-
hjartarson var kosinn í stað Margrétar.
í varastjóm voru endurkosnir Guðjón
Jónsson og Guðjón Teitsson. Á aðal-
fund S. í. S. voru kosnir: Eysteinn
Jónsson, Jens Figved, Sveinbjörn Guð-
laugsson, Haukur Þorleifsson. Magnús
Kjartansson, Theodór Líndal, Vilmund-
ur Jónsson. í fundarlok minntist fund-
arstjórinn, Steingrímur Steinþórsson,
Norðurlandaþjóðanna og þeirra þrauta-
tima, sem þær ættu nú við að búa.
Lýstu fundarmenn samúð sinni með því
að rísa úr sætum sínum.
F. U. F. í Reykjavík
heldur fund í næstu viku. Verður
fundartími og fundarefni auglýst síðar.
Karlakórinn Fóstbræður
héldu samsöng í Gamla Bíó í gær-
kvöldi. Var þetta síðasta söngskemmt-
un kórsins að þessu sinni.
Kvikmyndahúsin.
Nýja Bíó hefir sýnt þessa viku
franska mynd, sem fjallar um ástir
Alexanders II. Rússakeisara. Er þetta
með beztu ástarmyndum, er hér hafa
sézt lengi, enda bera frönsku kvikmynd-
írnar af þeim myndum, sem hér eru
sýndar. — Gamla Bíó sýnir i fyrsta
sinn í kvöld ameríska mynd, sem fjall-
ar um óvenjulega vísindamennsku. Hef-
ir mynd þessi hlotið góða dóma erlend-
is, en þykir ekki holl taugaveikluðu
fólki.
Trúlofun.
Laugardaginn 13. þ. m. opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Lilja Tuomikoski
og Hjörtur J. Leó frá Hofsósi, til heim-
ilis í Skálmholti í Ámessýslu.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir skopleikinn Stundum og stund-
um ekki annað kvöld og verða að-
göngumiðar seldir í dag, en vegna mik-
illar aðsóknar verður ekki svarað í síma
fyrsta klukkutímann eftir að sala að-
göngumiða hefst.
Slys.
Verkamaður, Símon Njálsson að
nafni, varð í fyrradag fyrir slysi, er
hann var í kolavinnu við togarann
Gullfoss. Meiddist hann á höfði og
herðablaðsbrotnaði.
Menntaskólaleikurinn,
Frænka Charleys, verður leikinn i
Iðnó í kvöld. Leiksýningin hefst klukk-
an 8.
Tónlistarfélagið
heldur hljómleika í kvöld í Gamla
Bió og hefjast þeir klukkan 7. Verða
einvörðungu leikin lög eftir Karl Ó.
Runólfsson. Mun Karl sjálfur leika með
Hljómsveit Reykjavíkur, en karlakórinn
Kátir félagar syngja undir stjóm Halls
Þorleifssonar. Einsöngvarar verða Guð_
rún Ágústsdóttir og Sigurður Markan.
Guffspekifélagar.
Septímufundur annað kvöld. Erindi,
einsöngur, upplestur, músík.
Gunnar Gunnarsson skáld
var meðal farþega á Lyru í sfðustu
ferð hennar þingað. Hann dvelur nú
að Hótel Borg.
verjar hafa flutt aukiff lið til
;Þrándheims loftleiffina og eru
Bretar byrjaðir að gera loft-
árásir á flugvcllinn í Þránd-
heimi.
Þýzk flugvél, hlaffin skotfær-
um, varð að nauðlenda í Sví-
þjóð í gær. Gefur það bezt til
kynna, að sjóleiðin til Noregs
Log um húsaleigu
(Framh. af 1. síBu.)
ið, og gildir lækkunin frá 1.
næsta mánaðar eftir að matið
fór fram.
Við mat á húsaleigu skal
húsaleigunefnd kynna sér svo
sem föng eru á allt það, er áhrif
getur haft á leiguna, svo sem
verð húsnæðisins, viðhald þess,
ásigkomulag og legu, og taka
jafnframt tillit til húsaleigu al-
mennt i sambærilegu húsnæði á
þeim stað.
Utan Reykjavíkur skulu fast-
eignanefndir í bæjum og út-
tektarmenn i hreppum ásamt
hreppsnefndaroddvita gegna
þeim störfum, sem með lögum
þessum eru lögð undir húsa-
leigunefndina í Reykjavík, og
haga sér í störfum sínum svo
sem fyrir er mælt í lögum þess-
um um húsaleigunefndina. Rík-
isstjórninni er þó heimilt með
reglugerð að gera aðra skipan á
nefndum þessum í bæjum og
kauptúnum með 300 íbúum og
fleiri.
Ef samið hefir verið um hærri
leigu en heimilt er að taka
samkv. lögum þessum, skal sá
samningur ógildur að því er
fjárhæðina snertir, og er aftur-
kræft það, sem leigutaki kann
að hafa ofgreitt samkvæmt slík-
um samningi.
Sá, sem áskilur sér hærri
leigu eða brýtur ákvæði laganna
á annan hátt, skal sæta sektum
frá 500—2000 krónum.
Ákveða má með konunglegri
tilskipun, að ákvæði laga þess-
ara taki til annarra fasteigna
en húsa.
Þegar ekki þykir lengur þörf
fyrir lagaákvæði þessi, má fella
þau úr gildi rneð konunglegri til-
skipun.
Lög þessi öðlast gildi þegar í
stað.
Merkur Vestur-
Islendingur
(Framh. af 1. slðu.)
margir menn með miklum véla-
kosti. Hefir Sofonías smíðað
ýmsar af þessum vélum sjálfur
og endurbætt aðrar. Hann er nú
einn hinn mesti atvinnurekandi
meðal íslendinga í Vesturheimi.
Börn hans stýra nú fyrirtækinu,
þegar hann er ekki heima. Hér
eftir mun hann að líkindum
skipta æfinni milli Svarfaðar-
dals, Winnipeg, Florida og Los
Angeles. Sofonías er í einu hag-
sýnn og duglegur framkvæmda-
maður, og hugfanginn af and-
legum efnum. Hann er áhuga-
samur spíritisti, sannur íslend-
ingur og þá ekki sízt Svarfdæl-
ingur, en jafnframt fullur af
amerísku fjöri og trúr borgari
i Kanada. Tíminn býður Sofon-
ías velkominn til langdvala á
íslandi.
muni sama og lokuð Þjóðverj-
um, því að annars myndu þeir
ekki flytja slikan varning loft-
leiðina. — í Svíþjóð hafa fleiri
þýzkar flugvélar orðið að nauð-
jlenda og þrjár þýzkar flugvélar
| verið skotnar niður.
Vordagar
(Framh. af 3. síðu.)
og heimsvelda. Hann lýsir auð-
valdsböli samtíðarinnar, hvern-
ig það valdi styrjöldum milli
þjóða og stéttadeilum innan
landamæra, þar sem örfáir kúgi
fjöldann, öllum til ófarnaðar.
Ríður okkur mest á að fá allt
þetta hingáð, verksmiðjur og
stóriðjuver við fossana, fleiri og
stærri togara, járnbrautanet um
landið? Svarið er neitandi. Við
þurfum fyrst og fremst meiri
innri menningu, meiri þroska
manngildis og manndáða, betra
uppeldi æskunnar. Og atvinnu-
lífið þarf að þróast svo, að sem
flestir séu sjálfstæðir að at-
vinnu, en fæstir undirokaðir. Við
þurfum meiri ræktun, fleiri býli
og betur hýst, ný steinhús i
sveitum, betri hafnarlendingar
og vita, góð skip. En undirstað-
an að öllum framförum eru nýir
og betri vegir.
VII.
Framarlega í „Vordögum" er
lítil grein, sem nefnist „Áhugi“.
Greinin byrjar á tilvitnun I
enskan stjórnmálamann, Hal-
dane lávarð, þar sem hann talar
til ungra manna. Ég tek hér út-
drátt úr kenningum greinarinn-
ar: Verið áhugasamir. Hafið op-
in augun fyrir allri þeirri miklu
fegurð og göfgi, sem til er í
heiminum. Ekkert er eins
hættulegt og að vera trúlaus á
allt, sama um allt. Það skiptir
minna hver trúin er, hvert er
áhugamálið, en allt veltur á
hinu, „að vera úti á hinum djúpu
vötnum mannlífsins“,vera snort-
inn af stórri hugsjón, geta orð-
ið heitur, hrifinn og fullur lotn-
ingar. Það kveikir áhuga og
bjartsýni, sem gerir manninn
þúsund sinnum meira virði, að
hverju verki, sem hann gengur.
Ekkert er jafn kæfandi og drep-
andi og hið skilningslausa,
dauða sjálfstraust, er tilbiður
aðeins eigin venjur, lítur með
fyrirlitningu á alla þá dýrð og
fegurð, sem snilld og vizka hafa
skapað. Slíkir menn eru lifandi
dauðir. Frá þeim kemur enginn
andi, engin hugsun, ekkert nýti-
legt starf. Þeir, eru eins og dauð.
vél, er vantar hreyfiaflið. Þá
vantar tilfinninguna fyrir því,
sem vel er gert á undan þeim,
og löngunina til þess aff halda
lengra áfram í sömu stefnu.
Greinin endar á orðum Goethes:
„Opnaðu augu þín fyrir því, sem
er stórt og göfugt í samtíð þinni,
og þá munu verkin fylgja.“
Ritstjóri Skinfaxa hafði farið
víða um helztu menningarlönd
með opin augu og eyru. Hann
hafði kynnzt rækilega kenning-
um allra þeirra, er unnu af ein-
lægni og samúð að umbótum á
hag og menning hins fátæka
fjölda. En hann gleypir engar
kenningar, engan „isma“ ómelt-
an. Hann er hvorkí sósialisti,
kommúnisti, Georgisti eða an-
arkisti. Lífstrúin, sem hann
hafði með sér að heiman, stend-
ur óhögguð. Trúin á manngildi
einstaklinga, er byggi upp vax-
andi, gróandi þjóðlíf í frjálsri
samvinnu.
VIII.
Einn þátturinn í „Vordögum"
eru ritdómar Skinfaxa. Tvær
greinar eru þar um sögur af
íslenzkum snillingum, sem
skortur og ranglæti beygja til
jarðar. Greinar þessar loga af
samúð, þar er máttug rödd
hrópandans, að drepa ekki
manngildið og snilldina. Þar er
ritdómur um „Einfalt líf“. Sagt
er frá óhófi yfirstéttanna í
greininni, sem teygir mennina
langt frá heilbrigðri náttúru,
eftir tildri tízkunnar, gerir lífið
æ gleiðara og gisnara, unz hið
sanna, mannlega líf, er horfið,
manngildið etið innan frá, en
eftir verður tómt, en glæsilegt
hismi í kalkaðri gröf. í niðurlagi
er bent á leiðina, að leita ham-
ingjunnar í sjálfum sér og
hvergi annars staðar. Nátengd-
ur þessum ritdómi er annar um
„Mína aðferð", afarþörf hug-
vekja um líkamsrækt á þeim
tíma, þegar íslendingar stóðu
langt að baki allra annara um
allan þrifnað, og þó enn meir
um alla llkamsþjálfun. Manni
hvarflar í hug, að höf. hafi
fylgt þessum reglum sjálfur.
Hann virðist ekki hafa verið sér-
lega hraustbyggðuT maður, en
styrkt sig með íþróttum og heil-
brigðu líferni frá æsku, svo að
hann hefir þolað alveg ótrúlega
mikla áreynslu, vökur og vinnu-
GAMLA Btó’"*—"—■
Dr- Jekyll og
Mr. Hyde
Amerísk kvikmynd, gerð
eftir hinni frægu skáld-
sögu Robert L. Stevensons.
Aðalhlutv. leika:
FREDRIC MARCH
og
MIRIAM HOPKINS.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
Katía
Tilkomumikil frönsk stór-
mynd um ástir Alexanders
II. Rússakeisara og hinnar
fögru furstadóttur
Catliarine Dolgoruki.
Aðalhlutv. leika:
JOHN LODER
og fegursta leikkona
Evrópu:
242 Margaret Pedler: Laun þess liSna 243
hún og klappaði á makka folans. „Ég
má ekki láta strákinn minn standa úti
og ofkælast, svo hann fái kvef. Þess
vegna verður þú að koma inn, ef þú
þarft að tala við mig.“
Þau gengu hlið við hlið til hesthúss-
ins, og Jane lét folann inn, áður en
þau fóru heim. Eftir stutta stund voru
þau setzt sitt hvoru megin við arininn
og farin að tala saman í mestu mak-
indum.
Sutherland hvarf allt í einu og fyrir-
varalaust að því efni, sem hann hafði
verið að brjóta heilann um.
„Jane,“ sagði hann lágt, „ég þarf að
leita ráða hjá þér.“
„Mér, spekingur? Þetta er að hafa
endaskipti á hlutunum. Venjulega er það
ég, sem leita til þín.“
„Já, en nú er komið að þér að vera
ráðgjafinn."
„Jæja, ég skal gera eins og ég get.
Hvað er þá að?“
„Ég get ekki sagt þér hvað að er, af
því að það er leyndarmál annara. En
ég ætla að Ieggja fyrir þig hliðstætt
dæmi, og svo átt þú að segja álit þitt.“
Jane kinnkaði kolli. „Já, ágætt, haltu
bara áfram."
„Jæja, taktu þá eftir. Gerum ráð fyr-
ir að þú ættir gamlan og góðan vin,
sem væri í þann veginn að stofna til
vináttu við anpan kvenmann, — en 1
veruleikanum er það auðvitað við ann-
an karlmann, þar sem ég á hlut að máli.
Nú vill svo til, að þú veizt dálítið um
þennan „annan kvenmann“, sem er
þess eðlis, að það myndi fyrirbyggja alla
vináttu milli þeirra, ef vinur þinn fengi
vitneskju um það. Hvað myndir þú
gera?“
„Þetta er ekki sem allra ljósast," sagði
Jane hálf ólundarlega.
Sutherland gat ekki að sér gert að
hlæja.
„Já, það er satt. Ég skal reyna að setja
það skýrar fram. Við skulum segja að
vinur minn heiti Brown, og hann ætlar
að stofna til náinnar vináttu við —, ja,
við mann sem heitir til dæmis Robin-
son. Nú vill svo til, að mér er kunnugt
um dálítið atriði úr fortíð Robinsons,
og þetta atriði ber honum slæman
vitnisburð, eða er mjög niðrandi fyrir
hann. Brown myndi sennilega, — já, á-
reiðanlega, — láta Robinson sigla sinn
sjó, ef hann vissi það sem ég veit, og
hann myndi jafnframt ásaka mig fyrir
að hafa ætlað að leyna sig þessu. Hins
vegar lifir Robinson óaðfinnanlegu lífi
nú orðið, og það væri afleitur grikkur
gagnvart honum, að segja frá því sem
ég veit. Spurningin er, hvort ég á að
knésetja manninn með þvi að segja frá
DANIELLE DARRIEUX.
Tordagar
III. bindið í ritgerðasafni Jónasar Jónssonar, kom út i
vetur. Bókina er enn hægt að fá með áskriftarverði, 5
krónur óbundna, en 7,50 í bandi. Pöntun má senda til
Bókaútgáfu S.U.F., pósthólf 1044, Reykjavík, eða hringja
i síma 2353. — Fylgi greiðsla pöntun, veröur bókin send
burðargjaldsfrítt, en ella gegn póstkröfu. Hafi einhverjir
af umboðsmönnum bókaútgáfunnar enn eigi sent á-
skriftarlista sína, eru þeir áminnir um að gera það, sem
allra bráðast. — Tilgangslaust er að biðja um Merka
samtiðarmenn, þar eð upplag þeirrar bókar er með öllu
þrotið. Sennilega verða Vordagar einnig á þrotum um
þetta leyti næsta ár.
HAVNEM0LLEN
KAIJPMMAHÖFN
mælir meff sínu viffurkennda
RtíGMJÖLl OG nVEITI.
Melri vömgæði ófáanleg.
S. f. S. skiptir eingöngn við okknr.
afköst í ferðalögum og við rit-
störf fyrir áhugamál sín, svo að
allir, sem til þekkja, hafa undr-
azt þol hans.
Síðasti og langlengsti ritdóm-
urinn er um „TímaTit kaupfé-
laganna". Hann er rúmar þrjár
bls., en aðeins y4. úr bls. er um
ritið sjálft. Greinin er mjög
kröftug hugvekj a um samvinnu-
stefnuna. Kaupfélögin áttu á
þeim dögum hvergi athvarf í
dagblöðum landsins. Vegna aug-
lýsinganna þorðu ritstjórarnir
hvorki að æmta né skræmta af
hræðslu við kaupmenn. J. J. tel-
ur hina frjálsu samvinnu ekki
aðeins sem fálmandi tllraun
nokkurra fátækra bænda, held-
ur sér hann þar heimsstefnu.
Hún er „heims víðtæk barátta“,
„uppreisn framleiðandans gegn
milliliðum, fátæklinga gegn
auðmönnum, steðjans gegn
hamrinum". Ekki „villt upp-
hlaup hamslausra manna“. Hún
er barátta háð með stillingu,
festu og gætni, til þess að „í
fyrsta sinn á æfi mannkynsins
megi þeir, sem skapa daglegt
brauð, neyta þess, þeir sem föt-
in gera megi bera þau, að þeir
sem fæða þá, er skapa listir og
vísindi, megi bera skyn á og
njóta þessara gæða".
Samvinnan er með öðrum orð-
um það „sem koma skal“.
Vitur maður les sjaldnast sér
til dægrastyttingar. Lestur hans
er leit að gulli. Ritdómar Jónas-
ar í Skinfaxa voru ávisanir hans
til æskunnar, á gull það, er hann
fann í nýjum bókum. Þeir eru
engir venjulegir ritdómar með
sparðatinslu og umræður um
smáatriði, heldur jafnframt
merkilegar greinar um vanda-
mál samtiðarinnar.
Frh. Jón Sigurffsson.
Góð
NokkuS margir kaup-
endur Tímans munu
knlca.ka.un ?iga x- ár8- Dvaiar.
bOKaKaupt 2 og 3. árg- eru
samtals 58 hefti og 1 þeim m. a. yfir
100 stuttar skáldsögur. Þeir sem senda
10 kr. til afgr. fá 2. og 3. árg. buröar-
gjaldsfrítt til baka. Lika sendir ef ósk-
aö er gegn póstkr. Adr.: Dvöl, Rvík.
ÚtbreiSiS TÍMAHN
Auglýsið i Túnanmu!
Leihféla«t tleykjavíhur
,Stundum ogstundum
ekki‘
Sýning annað kvöld
kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun.
Ath. Vegna mikillar affsóknar,
verffur ekki svarað í síma fyrsta
klukkutímann eftir aff sala
hefst.
TÓNLISTARFÉLAGIÐ
Hljómleikar
í kvöld klukkan 7 i Gamla BIó.
Vifffangsefni: Tónsmíffar eftír
KARL O. RUNÓLFSSON.
Hljómsveit Reykjavfkur,
stjórnandi dr. Urbantschitsch.
Kátir félagar,
stjórnandi Hallur Þorleifsson.
Einsöngvarar:
Frú Guðrún Ágústsdóttir
og Sigurður Markan.
Ágóffinn rennur til tónskáldsins.
Aðgöngum. seldir í Bókaverzl.
Sigf. Eymundssonar og hjá Sig-
ríði Helgadóttur.
Tíl sumargjafa:
Mikiff úrval af
Rarnaleikfönguim
Hárkömbum,
Hárspennum,
Perlufestum,
Töskum
og ýmsum hlutum úr
KUNST KERAMIK.
— G°'nla ’tága verðið á öllu. —
K. EINARSSON & BJÖRNSSON
Bankastræti 11.
Vinnið ötullega fyrir
Timann,