Tíminn - 03.10.1940, Síða 4
376
TÍMIM, fimmtndagiim 3. okt. 1940
94. blað
lll BÆNPM
Sveinn Ólafsson í Firði
er fyrir nokkru kominn hingað til
bæjarins til að leita sér lækninga við
sjóndepru. Dvelur hann hér í bænum
á heimili sonar síns, Ólafs forstjóra.
Hann mun dvelja hér nokkurn tíma
enn.
Ófeignr Ófeigsson
læknir hefir flutt lækningastofu
sina af Skólavörðustíg 21 í Laugavegs
apótek, II. hæð.
Hjónaband.
Gefin voru saman síðastliðinn laug-
ardag á Blönduósi ungfrú Málfríður
Nanna Jónsdóttir frá Söndum 1 Mið-
firði og Haraldur Guðmundsson verzl-
unarmaður hjá Kaupfélagi Hvamms-
tanga. Heimlli þeirra verður á
Hvammstanga.
Frú Eiisabeth Göhlsdorf
leikkona óskar eftir, að þeir, sem
tryggja vilja sér aðgang að öllum upp-
lestrarkvöldum hennar, skrifi sig á
lista, er liggja frammi í Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssónar og í The
English Bookshop. Prúin kennir þýzku
eins og undanfarna vetur og er kennsl-
an nýbyrjuð.
V etrarstarf semi
Glímufélagsins Ármann er hafin.
Öll verður starfsemi félagsins rekin í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og
verður mjög fjölþætt eins og undan-
farin ár.
Hjónaband.
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Unnur
Dóróthea Haraldsdóttir og Einar
Sturluson póstmaður frá Fljótshólum.
Heimili þeirra er í nýju verkamanna-
bústöðunum nr. 8. Séra Garðar Þor-
steinsson framkvæmdi athöfnina.
Trúlofun
sína opinberuðu nýlega ungfrú Lalla
Erlendsdóttir, Ásvallagötu 17, og Þórður
Sigurðsson bifreiðastjórl, Baldursgötu
20.
Síðasta bindi Förumanna
eftir Elínborgu Lárusdóttur, kemur út
innan skamms. Sagan fjallar um
Efri-Ás-ættina, en jafnframt um ýmsa
förumenn. Sérstaklega kemur listamað-
urinn Sölvi Helgason mlkið við sögu.
Þetta bindi heitir Sólon Sókrates og er
hátt á fjórða hundrað blaðsíður að
stærð.
Skemmtikvöld Framsóknar-
Hjá KROW er verðið:
Strausykur 0,90
Molasykur 1,15
Hveíti 0,60
Haframjöl 0,80
Hrísgrjón 0,90
Rúgmjöl 0,45
5#|o í pöntiin, tekjiiafgaHgur eftfr áriö
Mun lægra í sekkjum og kössum.
pfélaq iá
Tilkynning
Samkvæmt reglugerð um skömmtim áfeng*
is, er gefin var út í gær, hefst afgreiðsla áfeng-
isbóka hjá sakadóiiiarauum í Reykjavík og
.....
bæjarfógetanum í Hafnarfirði í dag. —
Áfengisbækur kosta eina krónu.
D ómsmálar áðuney tið.
manna í Reykjavík
í Oddfellowhúsinu í kvöld hefst
klukkan 8,30. Þar verður spiluð Pram-
sóknarvist, ræður haldnar, sungið og
dansað. Pólk er hvatt til að sækja
þessa fyrstu Framsóknarskemmtun á
þessu hausti. Aðgöngumiðar verða
seldir á afgreiðslu Tímans í dag, með-
an hún er opin, en við innganginn í
Oddfellow, ef ekki verða. allir aðgöngu-
miðar uppseldir. Fólk er áminnt um
að koma stundvíslega á skemmtunina.
Leikfélag Reykjavíkur
ætlar að sýna skopleikinn Stundum
og stundum ekki í kvöld. Starfsár fé-
lagsins hefst æfinlega um þetta leyti,
og hefir verið æft af miklu kappi ágætt
leikrit eftir enska höfundinn, W. Som-
merset Maugham, sem heitir „Loginn
helgi“. Frumsýning hefði getað orðið
3. þ. m., ef ekki hefði vantað vinnu-
stofur, en félagið stendur í samningum
við brezka setuliðið um málarasal og
geymslu i þjóðleikhúsinu. — Nú gerir
félagið sér vonir um að geta haft þessa
frumsýningu í næstu viku, en af því
að tjöldin úr skopleiknum Stundum
og stundum ekki eru ennþá í Iðnó, frá
því i sumar, ætlar félagið að sýna
þennan skopleik í kvöld og ef til vill á
sunnudagskvöld.
KAUPUM kanínuskinn, lamb-
skinn, selskinn, kálfskinn.
Verksmiðjan Magni h.f.,
Þingholtsstræti 23.
SHIPAUTCERÐ
l;IÍH\HL10
SiíOin
vestur um til Akureyrar næst-
komandi laugardagskvöld sam-
kvæmt áætlun Esju. — Vöru-
móttaka til hádegis á morgun.
— Pantaðir farseðlar sækist
fyrir sama tíma.
Vb. Hermóður
hleður á morgun til Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð-
ar og Seyðisfjarðar. — Vöru-
móttaka í dag.
Sama dag hleður
Mb. Geír
TRÚLOFUNARHRINGANA
kaupa allir hjá Sigurþór, Hafn-
arstræti 4, Reykjavík. — Sent
gegn póstkröfu hvert á land
sem er. Sendið nákvæmt mál.
KAUPI GULL hæsta verði.
Sigurþór, Hafnarstræti 4, Rvík.
Tolluriim á stríðs-
farmgjöldum.
(Framh. af 1. síðu)
kvæmdum á undanförnum ár-
um, án þess að safna skuldum.
Þegar viðskiptaástandið batn-
ar eins og verið hefir undan-
GAMLA Bt&mmmm,memm
NINOTCHKA
Amerísk úrvals skemmti-
mynd, tekin af Metro
Goldwyn Mayer undir
stjórn kvikmyndasnillngs-
ins
Ernst Lubitsch.
Aðalhlutverkin leika:
GRETA GARBO
MELVYN DOUGLAS.
Sýnd klukkan 7 og 9.
NÝJA Bt6.~-~.~-~.
Eldur í
Rauðuskógum.
Spennandi amerísk kvik- i
mynd, gerð eftir hinni víð- !
frægu skáldsögu eftir Jack ■
London (Romance of the J
Redwoods). I
Aðalhlutverkin leika: I
JEAN PARKER
og
CHARLES BICKFORD.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
»Stundum og stundum ekkí«
Sýning í kvöld kl. 8.
AÐGÖNGUMIÐAR seldir frá kl. 1
ÍTtbreiðið Tímaim!
til Hornafjarðar, Djúpavogs og
Fáskrúðsfjarðar.
Auglýsið í Tímanum!
38 Róbert C. Oliver:
Hann hafði engan tíma til að hugsa
um fagurt kvenfólk eða mjúkt hár.
Það eina, sem gilti var að komast burt
sem allra fyrst. Lögreglan gat verið á
næstu grösum — lögreglan eða þessi
þrjótur, sem hafði skotið þeim ref fyrir
rass og „hnuplað" skríni Sir Reginalds
— en það hafði lögreglan ekki gert.
Það hlaut að vera einhver sem hafði
sérstakan áhuga fyrir innihaldi þess —
einhver, sem þekkti leyndarmálið.
Með hina fögru byrði í fanginu hljóp
hann út í anddyrið, sparkaði opinni
hurðinni, sem stóð í hálfa gátt og gekk
niður tröppurnar. Einhver kom hlaup-
andi í myrkrinu í garðinum. Hann
þekkti fótatakið, það var félagi hans.
— í hamingju bænum hraðaðu þér
maður! stundi hann. Við erum upp-
götvaðir. Þeir eru á hælum okkar, og
hafa gert eitthvað við vélina. Ég get
ekki komið bílnum af stað. Flýttu þér!
Fleygðu henni, asninn þinn, hér er um
lífið að tefla.
Heil runa af blótsyrðum streymdi
fram af vörum mannsins, sem án
augnabliks umhugsunar lagði Lucy frá
sér í grasbeðið.
Þeir hlupu sem fætur toguðu yfir
grasflötina bak við húsið. Nú var ekki
um annað að gera en flýja.
Þeir höfðu ekki hlaupið mörg skref
Æfintýri blaðamannsins 39
þegar þeir heyrðu fótatak á malar-
stígnum — tveir menn komu hlaup-
andi gegnum hliðið og upp að aðal-
dyrum hússins. Annar var berhöfðað-
ur — hinn var með skammbyssu í
hendinni — það var lögregluþjónn —
og hann var sýnilega viðbúinn að nota
vopnið, ef með þyrfti.
Flóttamennirnir skriðu bak við runna
meðan hinír hlupu framhjá þeim.
V.
Bob Hollman, glæpafréttaritari við
blaðið „Stjarnan“ var í raun og veru
mjög riddaralegur að eðlisfari og hon-
um þótti leitt að þurfa að yfirgefa
hinn fagra förunaut sinn, sem hann
hafði haft þann óverðskuldaða heiður
að aka til spítalans, með þeim hraða,
sem var margfalt brot á umferðaregl-
um og öryggi.
En Bob Hollman var blaðamaður —
og mjög duglegur. og sniðugur blaða-
maður — sem ekki vílaði fyrir sér að
nota öll hugsanleg brögð og meðöl til
þess að ná sínu marki.
Og í þetta skipti hafði efni í athygl-
isverða grein fallið af himnum ofan
beint í hendurnar á honum, eins og
ávöxtur ofan úr tré. „Leyndardómur-
inn við dánarbeðinn“ átti yfirskriftin
að vera, með stóru letri á fremstu síðu.
farið, hljóta tekjur ríkissjóðs
því að vaxa, ef tolla- og skatta-
löggjöfin helzt óbreytt. Þar sem
ríkið veitir nú líka minna fé en
áður til verklegra framkvæmda,
er falla niður sökum styrjald-
arástandsins, mætti búast við
talsverðum afgangstekjum rík-
issjóðs á næstunni. Ýmsum mun
því koma til hugar, hvort ekki
beri að lækka byrðarnar á
gjaldendunum meðan slíkt á-
stand varir. En þá kemur til
sögunnar það sjónarmið, að
æskilegt væri fyrir ríkið að
hafa búið eitthvað í haginn
fyrir verklegar framvæmdir,
þegar hægt er að hefja þæx aft-
ur. Slíkt má gera með skulda-
lækkun og sjóðsöfnun. Þetta
sjónarmið mun áreiðanlega
mörgum ríkara í huga en að
lækka álögur á gjaldendum,
þegar þeir eru kannske. fær-
astir um að bera þær. En batni
ástandið svo, að bæði verði hægt
að búa í haginn fyrir verklegar
framkvæmdir í framtíðinni og
að lækka byrðar gjaldendanna,
myndast það viðhorf, hvort
réttara sé að lækka skattana,
sem aðallega myndi koma þeim
ríku til góða, eða að lækka
toll á nauðsynjavörum. Þetta
viðhorf þarf alþýða manna
sérstaklega að gera sér ljóst.
Kopar, i
aluminium og fleiri málmar
keyptir í LANDSSMIÐJUNNI.
Framlengingarííjald
af vfxlum fellur niður frá og með 1. okt. 1940 að telja.
Sparísjóður Reykjavíkur og nágrennis.
Jarðarför móður minnar,
Kirstínar K. Pótnrsdóltur,
fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 4. okt.,
kl. 2% miðdegis.
F. h. vandamanna.
Pétur Lárusson.
Á forlagi Stalins
(Framh. af 2. síðu)
að hér voru þeir beittir hættu-
legum mótleik. Stalin skipaði
þeim að smjúga inn i hvers-
konar félagsskap og grafa í
kyrrþey undan hinni þjóðlegu
sjálfbjargarkennd. Nú hafði Al-
þingi tekið foxustu um að loka
hurðum þjóðfélagsins fyrir hin-
um lævísa innrásarher.
Kommúnistar fundu, að oft
hafði þeim verið þörf að dulbúa
sig vel, en nú var nauðsyn. Al-
þingi komst að því, að flokkur-
inn fékk á einum lið 160 þús.
kr. sér til framdráttar. Þjóðvilj-
inn tapaði kaupendum og aug-
lýsingum. Bækur Laxness voru
ekki nefndar og gerðust tor-
seldar. Arfur íslendinga gat
ekki komið út. Bækur Heims-
kringlu nutu lítilla vinsælda.
Mál og menning beið hnekki af
óvinsældum rússnesku stefn-
unnar, en útgáfa lýðræðisflokk-
anna fór sigurför um landið.
Frh. J. J.