Tíminn - 24.10.1940, Blaðsíða 1
24. árg.
Reykjavík, fimmtudagmn 24. okt. 1940
103. blað
Helztu álvktanir aðalfundar S.D.F.
Ríkísvaldið verður að gera ráðstafanír sem tryggja að stríðs-
gróðinn fari ekkí forgörðum, heldur notizt til eflingar atvínnu-
vegunum og verklegum framförum í landinu
LiOslióu Hitlers
Þjóðverjar leita aðstoðar Frakka og
Spánverja vegna pess að peir urðu að
hætta við innrásina í England í haust
Aðalfundur stjórnar Samb.
ungra Framsóknarmanna
árið 1940, var haldinn hér í
bænum 19.—21. þ. m. Sóttu
hann alls 18 menn af 28, er
sæti eiga í stjórn S. U. F.,
auk nokkurra gesta. Þrettán
stjórnarmanna, er fundinn
sátu, voru utan af landi.
FormaSur S. U. F., Þórarinn
Þórarinsson, setti fundinn, en
að því búnu flutti Eysteinn
Jónsson viðskiptamálaráðherra
langa yfirlitsræðu. Lýsti hann
stjórnmálabaráttu síðustu ár-
anna og ræddi um framtíðar-
verkefni Framsóknarmanna,
einkum endurnýjun fiskiflotans,
rætkun og stórfellt landnám í
dreifbýlinu og raflýsingu í sveit-
um.
Á fundinum voru mörg mál
tekin til íhugunar og umræðu,
einkum sjálfstæðismál þjóðar-
innar, útvegsmál og ráðstöf-
un stríðsgróðans. Auk þess var
að sjálfsögðu fjallað um félags-
málefni sambandsins sjálfs og
meðal annars ákveðið að boða
til landsþings á vori komanda.
Fundarstjóri var Halldór
Kristjánsson á Kirkjubóli í Ön-
undarfirði.
Veigamestu landsmálatillög-
urnar, er samþykktar voru á
fundinum, verða birtar hér á
eftir:
RÁÐSTÖFUN
STRÍÐSGRÓÐANS.
Vegna núverandi ástands í
fjármálum íslendinga, þegar
þjóðinni safnast erlendur
gjaldeyrir og atvinnutekjur
ýmsra eru óvenjulega miklar,
Sambúd íslands
og Kanada
Á fjölmennri hátið Vestur-
íslendinga, sem haldin var að
Hnausum í ágústmánuði, var
flutt ávarp frá J. T. Thorson,
sem á sæti á sambandsþingi
Kanada. í ávarpi sínu komst
hann m. a. svo að orði:
Joseph T. Thorson.
„Allir Kanadabúar hafa sér-
staklega mikinn áhuga fyrir ís-
landi nú sem stendur, vegna
hinna mörgu kanadisku her-
manna, sem dvelja í gamla
landinu. Það er einlægasta von
mín, að ísland verði ekki víg-
völlur hræðilegra bardaga, og
ég vona líka, að íslendingar
skilji og meti þau grundvallar-
atriði, sem orsaka veru her-
sveitanna á íslandi. Hermenn
okkar á íslandi hafa ekki það
hlutverk á hendi að vera hat-
ramlegir innrásarhermenn eða
(Framh. á 4. slðuj
og með skírskotun til fjármála-
reynslu þjóðarinnar frá síðustu
heimsstyrjöld, ályktar fundur-
inn, að ríkisvaldið verði að sjá
svo um, að þessar tekjur hverfi
ekki í súginn vegna gálítillar
eyðslu líðandi stundar, heldur
notist til að mæta þeim erfið-
leikum, sem koma munu að
styrjöldinni lokinni,og til marg-
háttaðra endurbóta, sem fresta
verður nú vegna styrjaldarinn-
ar, svo sem ræktunar í sveitum
og bygginga og enjdurnýjunar
veiðiflotans.
Til þess að ná þessum árangri
telur fundurinn að þurfi:
1. Að hafa glöggt efirlit með
gjaldeyrisverzluninni, og þótt á-
standið leyfi nú nokkurra til-
slökun á innflutningshöftum
þurfi að herða á þeim aftur, ef
horfur versna í gjaldeyrismál-
um, enda þurfi stöðugt að fyrir-
byggja sem mest óþarfan inn-
flutning.
2. Að nota tækifæri yfir-
standandi tíma til að lækka er-
Iendar skuldir þjóðarinnar og
mynda innstæður til að mæta
erfiðleikum og aukinni gjald-
eyrisþörf síðar.
3. Að skattalöggjöfinni verði
þannig beitt, að ríkissjóður geti
veitt rífleg framlög til upp-
byggingar atvinnulífi lands-
manna á næstu missirum og að
stríðinu Ioknu.
4. Að skattfrelsi útgerðar-
innar verði afnumið og haft
verði strangt eftirlit með því,
að þeim varasjóðum, sem út-
gerðarfélögin kunna að safna,
verði varið á tilætlaðan hátt.
5. Að útlánastarfsemi bank-
anna verði í samræmi við fram-
angreinda stefnu og þess gætt,
að þeir láni ekki til einstaklinga
eða fyrirtækja án viðunandi
tryggingar.
Jafnframt þessu bendir fund-
urinn á, að vinna þurfi meira en
Að undanförnu hefir verið unnið að
lagningu nýs vegar upp á Vatnsskarð.
Er lokið við þann kafla vegarins, er
liggur upp brekkuna hjá Bólstaðahlíð
og var hann opnaður til utnferðar í
vikunni sem leið. Hefir þessi brekka
löngum verið erfið yfirferðar, en með
hinum nýja vegi er úr sögunni sú
hindrun, er hún hefir stundum verið
bifreiðaumferðinni. Vegamálastjóri tel-
ur, að þegar lokið er lagningu góðs
vegar yfir Vatnsskarð og Öxnadals-
heiði, muni þessar fjallleiðir verða fær-
ar bifreiðum að kalla vetrarlangt í snjó-
léttum vetrum, svipað og Holtavörðu-
heiði nú, síðan nýi vegurinn var lagður
yfir hana. Að sjálfsögðu á það nokkuð
langt í land, að þessum vegabótum
verði komið í kring. En vegarlagningin
upp brekkuna hjá Bólstaðarhlíð er
uphaf hins nýja Vatnsskarðsvegar.
r t t
í haust hafa verið breikkaðar og
endurbættar brýr á ræsum á vegum í
grennd við Reykjavík, bæði í Mosfells-
sveit og Kjalamesi. Löskuðust mörg
þessara brúarriða í sumar vegna hinn-
ar óvenjulega miklu bifreiðaumferðar,
sem stafaði af hérveru útlenda herliðs-
ins. í sambandi við þessar lagfæringar
á brúnum hefir vegurinn einnig verið
breikkaður og bættur sums staðar við
brýrnar. í Mosfellsssveit, í grennd
við Korpúlfsstaðaá, hefir dálítill vegar-
spölur verið breikkaður.
/ t t
í haust hefir Hólsá á Sólheimasandi
verið brúuð. Var hún oft slæmur farar-
gert hefir verið að því undan-
farið, að heimiLafjölgtin verði
þar, sem atvinnuskilyrði eru
fyrir hendi. Fundurinn leggur
því áherzlu á það, að framlög
verði stórum aukin til undir-
búnings nýbýla og samvinnu-
byggða í sveitum og til ræktun-
ar og annarra umbóta við sjáv-
arþorp, þar sem lífsskilyrði eru
góð til lands og sjávar. Telur
fundurinn sjálfsagt, að sé fé
veitt til atvinnubóta, verði því
sem mest má verða varið til
þessara undirbúningsstarfa.
LÝÐVELDI.
Aðalfundur stjómar S. U. F.
lítur svo á, að ísland eigi að
gerast lýðveldi, þegar tekin
verður framtíðarákvörðun um
æðstu stjórn landsins, og enn-
fremur, að sjálfsagt sé að vinna
að fullri lausn sjálfstæðismáls-
ins strax á næsta ári.
FÁNINN.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.
lýsir sig samþykkan því, að ís-
land taki upp aftur bláhvíta
krossfánann (Hvítbláinn) um
leið og endanleg ákvörðun verð-
ur tekin í sjálfstæðismálinu.
SJÁVARÚTVEGSMÁL.
Aðalfundur stjórnar S. U. F.
haldinn í Reykjavík 19.—22.
okt. 1940, telur nú eftirfarandi
meginverkefnin í sjávarútvegs-
málunum:
1. Að veita rífleg fjárframlög
til aukningar vélbátaflotans,
ýmist með hagstæðnm lánum
eða beinum styrkjum. Skuli
þess jafnan gætt, að samvinnu-
eða hlutarútgerðarfélög sitji
fyrir lánum og styrkjum þess
opinbera.
2. Að peningastofnanir þjóð-
arinnar hagi útlána starfsemi
sinni þannig, að atvinnútæki
(Framh. á 4. síSu)
tálmi. Hafa þar verið reistar trvær
járnbrýr, hvor brú ellefu metra löng.
Ekki er enn búið að ganga til fullnustu
frá uppfyllingum við brúarsporðana,
svo að umferð um brýrnar geti hafizt.
En áður en langt um líður mun því
verki lokið.
r t r
Hallgrímur Jónsson bóndi að Dynj-
anda í Jökulfjörðum var gestkomandi
í bænum síðustu daga. Tíðindamaður
Tímans átti tal við Hallgrím og
spurði tíðinda að vestan. Lét hann
meðal annars svo um mælt: — Síðan
í miðjum júlímánuði hefir tíð verið
ákaflega stirð. Heyskapur gekk því illa
og varð heyskapur minni en í meðal-
lagi. En þó munu menn eiga næg hey
í skepnur sínar, því að flestir búa að
fymingum frá fyrra vetri. Spretta í
görðum var víðast hvar mjög rýr, en
þó spruttu kartöflur ágætlega á stöku
stað, eins og í Reykjarfirði, þar sem
nægur jarðhiti er, svo sem kunnugt er.
— Skepnuhöld hafa yfirleitt verið góð;
þó heflr lungnaveiki í sauðfé stungið
sér niður á einstöku bæjum og dæmi
era um bændur, sem orðið hafa hart
úti af völdum hennar. — Um þessar
mundir eru allir fiskibátar að búa sig
undir veiðamar. Flestir sækja sjóinn
frá Grunnavík. Hefir þar verið unnið
að bryggjusmíð í haust við verkstjórn
Axels Sveinssonar. En séra Jónmundur
Halldórsson hefir allra manna bezt
gengið fram í því, að fá þessari umbót
hrundið í framkvæmd. Eins og kunn-
ugt er er þama hinn ákjósanlegasti
Seinustu dagana hafa tvö
umræðuefni skipað nokkum
veginn jafnháan sess í heims-
blöðunum. Hið fyrra eru skýrsl-
ur enska flugmálaráðuneytisins,
sem talið er að sanni, að Þjóð-
verjar hafi orðið í síðastliðnum
mánuði að hætta fyrirhugaðri
innrás i England, sökum hinna
stórfelldu árása brezka flug-
hersins á bækistöðvar innrásar-
hersins við Ermarsund og Norð-
ursjó. Hið síðara eru viðtöl
þýzkra og franskra stjórnmála-
manna, og nú seinast þýzkra og
spánskra stjórnmálamanna, en
talið er, að Þjóðverjar séu með
þessum viðtölum, að tryggja
sér fylgi Frakka og Spánverja,
þar sem þeir draga þær álykt-
anir af reynslu undanfarinna
vikna, að þeir séu ekki einfærir
um að sigra Breta. Bendir það
til þess, að framangreindar
skýrslur enska flugmálaráðu-
neytisins hafj við rök að styðj-
ast. Það er og talið, að Þjóðverj-
ar hafi snúið sér í þessa átt, þar
sem sókn þeirra á Balkanskaga
muni ekki ganga eins fljótt og
þeir vonuðust til, sökum mót-
stöðu Grikkja og Tyrkja.
Það fyxsta, sem vakti athygli
á auknum samdrætti milli Þjóð-
verja og Frakka, var útvarpsá-
varp til Frakka, sem Churchill
forsætisráðherra flutti síðast-
liðið mánudagskvöld. í ávarpi
þessu lagði Churchill áherzlu á,
að Bretar myndu veita Frökk-
um hlutdeild i sigri sínum, en
markmið Hitlers væri að undir-
oka Frakka um aldur og æfi.
Hann bað því Frakka að gera
ekki neitt, sem torveldaði Bret-
um sigurinn. Hann sagði, að á
næsta ári myndu Bretar verða
orðnir sterkari í loftinu, og gætu
allir séð hvaða afleiðingar það
hefði. Hann bað Frakka að
minnast vel frelsis síns og hinna
frægu orða Gambetta: Hugsið
alltaf um það, en talið ekki um
það. Ræða Churchill var mjög
snjöll og áhrifarík.
Næsta dag bárust svo fréttir
um, að HitleT, Ribbentrop og
staður til sjósóknar, stutt á veiðislóð-
irnar og lendingarstaður ágætur. En
vegna þess, að húsakynni vantar og
fleira það, sem óhjákvæmilegt er í ver-
stöð, verða sumir bátanna að leita til
annarra útgerðarstöðva. Fiskimenn eru
á þessum slóðum ötulir til sjósóknar og
dugmikiir og Grannavik frá náttúr-
unnar hálfu búin mjög góðum skilyrð-
um sem verstöð. Væri þess vert, að hið
opinbera gæfi þessum framtíðarstað
veralegan gaum.
t t t
Samkvæmt tilkynningu brezka sendi-
herrans hér, Mr. Howard Smith, til
ríkisstjórnarinnar íslenzku, munu allir
þeir Bretar, sem á sitt eindæmi hafa
tekið húsnæði á leigu í bænum, hverfa
úr þvi um miðjan næsta mánuð í síð-
asta lagi. Sendiherrann lætur þess get-
ið, að herstjómin muni einnig rýma
úr því húsnæði, er hún eða einstakar
deildir hennar hafa tekið á leigu, svo
fljótt sem unnt er. Mun þessi ákvörðun
hinnar útlendu herstjórnar talsvert
daga úr þeirri húsnæðiseklu, sem verið
hefir í bænum í haust. Eins og skýrt
var frá í Tímanum í byrjun þessa
mánaðar, var þá margt fólk húsnæðis-
laust og var gripið til opinberra ráð-
stafana til aðstoðar þessu fólki,. um
að útvega því húsaskjól. Þrátt fyrir
það mun enn lítið hafa rætzt úr fyrir
sumum, sem húsnæðislausir voru. En
þegar útlendu hermennimir hverfa úr
þeim húsakynnum, sem þeir hafa haft
til afnota, má ætla að vandræði hins
húsnæðislausa fólks leysist tU fuUs.
Laval hafi hitzt í París og hafi
Hitler þar lagt fram eftirfar-
andi skilmála:
1. Frakkar láti Þjóðverja fá
Elsass og Lothringen, ítali
Nizza, Korsíku og nokkurn hluta
Tunis og Spánverja nokkurn
hluta Marokkó.
2. Frakkar láti öxulríkin fá
allan flota sinn og flugher til
aðstoðar i baráttunni á móti
Bretum.
3. Öxulríkin lofi að gera ekki
frekari kröfur um landaafsal á
hendur Frökkum og veiti þeim
hlutdeild í sköpun hins nýja
skipulags í Evrópu.
Talið er, að Laval og Boudoin
utanríkismálaráðherra Vichy-
stjórnarinnar séu fylgjandi
slíku samkomulagi, en Petain
og Weygand séu því andvígir.
Laval er nú í Vichy, en mun
hitta Hitler fljótlega aftur.
Þegar Hitler hafði lokið við-
ræðunni við Laval, hélt hann
til Spánar og hittust þeir
Franco skammt frá San Se-
bastian í gær. Ræddust þeir
nokkrum sinnum við um daginn
og seint í gærkvöldi var talið,
að viðræðum þeirra væri enn
ekki lokið. Ribbentrop og Ciano
greifi taka þátt í viðræðunum.
Talið er, að Hitler hafi lagt fast
að Franco að ganga í lið með
öxulrikjunum, og jafnvel haft
hótanir í frammi. En Franco er
talinn mjög tregur til þátttöku
í styrjöldinni, þar sem þjóðin
hefir enn ekki náð sér eftir
borgarastyrjöldina og mikill
hluti hennar ber enn haturshug
til Þjóðverja og ítala. Auk þess
myndi ófriður við Breta tor-
veldá mjög hina efnahagslegu
endurreisn Spánar.
Þannig standa málin nú.
Engar opinberar tilkynningar
hafa enn verið birtar um þess-
ar viðræður, en fujlvíst þykir,
að Þjóðverjar leggi mikla á-
herzlu á hagkvæm úrslit og
reyni þannig að bæta upp þann
álitshnekki, sem þeir hafa orð-
ið fyrir, sökum þess, að ekkert
hefir orðið af innrásinni í haust.
Fyrst var talið, að Þjóðverjar
vildu fá Frakka til að segja
Bretum strið á hendur, en þeir
munu fljótlega hafa horfið frá
þvi ráði. Hvorki Þjóðverjum eða
Vichystjórninni mun hafa þótt
ráðlegt að fá Frökkum aftur
vopn í hendur, því að það hefði
vel getað snúizt gegn þeim
sjálfum. Virðast allar fregnir
frá Frakklandi benda til þess,
að andúð gegn Þjóðverjum og
Vichystjórninni, einkum Laval
og Boudoin, fari stöðugt vax-
andi, en samhugur með Bretum
vaxi að sama skapi. Það þykir
því ekki ótrúlegt, að sýni Vichy-
stjómin Þjóðverjum mikinn
undirlægjuhátt, að það geti
komið af stað byltingartilraun-
um, bæði í Frakklandi og ný-
lendunum.
AÍSrar fréttir.
í London var tilkynnt í gær,
að fyrstu þrjá ársfjórðungana
hefði útflutningur frá Bretlandi
numið 343 millj. sterl. pd., en
innflutningur til Bretlands 872
millj. sterl.pd. Er útflutningur-
inn 7 millj. sterl.pd. og innflutn-
ingurinn 217 millj. sterl.pd.
meiri en í fyrra. Bretar segja,
að þessar tölur sýni bezt hversu
hafnbann Þjóðverja hafi mis-
heppnast.
Pierlot forsætisráðherra Belg-
íu og Spaak utanríkismálaráð-
herra komu til London í gær.
Eftir ósigurinn' í Belgíu fór
belgiska stjórnin fyrst til
Frakklands og hélt áfram
stjórnarstörfum þaðan, en þeg-
ar Frakkland féll, komust ekki
nema nokkrir ráðherranna til
Englands. Þeim Pierlot og
Á víðavangi
TVENNSKONAR MÁLFLUTN-
INGUR í SAMA TÖLUBLAÐI
MORGUNBLAÐSINS.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir,
síðan Jón Þorláksson féll frá,
ekki haft opinberlega neina á-
kveðna stefnu. Vinnubrögð hans
hafa verið þau, að reyna að
fela hina raunverulegu stefnu
sína fyrir kjósendunum og tala
við hverja stétt eins og henni
kom bezt. Gott dæmi um þessi
vinnubrögð er að finna í Morg-
unblaðinu 11. þ. m. Á 5. síðu
blaðsins er grein, sem er skrif-
uð fyrir framleiðendur. Þar
segir: „Viff verffum aff muna
þaff, aff skipin í togaraflotanum
eru nálega öll gömul og úrelt.
Það fé, sem togaraflotinn aflar
nú umfram þarfir, verffur því
aff geymast og nota síðar til
kaupa á nýtízku skipum“. Á 6.
síðu blaðsins er svo önnur grein,
sem er ætluð neytendum. Þar
segir: „Ef við hefðum strax í
upphafi Safnaff í sjóff einhverju
af þeim stríffsgróða, sem falliff
hefir okkur í skaut, og sá sjóffur
veriff notaffur til þess aff halda
dýrtíffinni niffri, myndi betur
horfa fyrir atvinnuvegi okkar í
framtíffinni en nú gerir“. Ósam-
ræmið liggur í augum uppi.
Samkvæmt fyrri greininni á að
nota stríðsgróðann til að end-
urnýja flotann, en samkvæmt
síðari greininni til að halda
niðri dýrtíðinni! Það má með
sanni segja, að þarna sé meira
hugsað um að tala eins og öll-
um líki en að hafa ákveðna
stefnu. Og hvað segja menn svo
um það, að Mbl. skuli prédika
það fyrir neytendum, að strax
hefði átt að skattleggja striðs-
gróðann til að halda niðri dýr-
tíðinni, þar sem bæði Sjálf-
stæðisflokkurinn og blaðið
sjálft hafa jafnan haldið því
fram og gera það enn, að
stríðsgróðinn eigi að vera skatt-
frjáls! Það mun áreiðanlega
leitun á slíkri blaðamennsku
annars staðar í landi, sem er
byggt af hvítum mönnum.
NAZISTISKUR VERKNAÐUR.
Sá atburður gerðist hér i
fyrrinótt, að gluggi var brotinn
í búð Snæbjarnar Jónssonar
bóksala og skilinn eftir bréf-
lappi, sem á var skrifað: „Föff-
urlandssvikarinn mun deyja.
Níffingsverk hans mun lifa til
varnar bornum o g óbornum
íslendingum“. Atburður þessi er
af ýmsum settur í samband við
grein, sem Snæbjörn skrifaði í
enskt blað um innlimun ís-
lands í Bretaveldi. Þau skrif eru
vitanlega fordæmd af öllum
sæmilegum íslendingum, en eigi
að síður mun sá verknaður, sem
greint er frá hér að ofan, vekja
almenna fyrirlitningu. Hann
sver sig í ætt við Gyðingaof-
sóknir og önnur slik skemmdar-
verk, sem eru fordæmd af lýð-
ræðisþjóðunum. Þótt ekki haf-
ist upp á spellvirkjunum er það
samt víst, að þeir muni vera af
því sauðahúsi, að ekki mun
þeim fjarlægara en Snæb. Jóns-
syni, að erlent vald festi hér
rætur. Gefur þessi atburður
fullkomið tilefni til að reynt sé
að fylgjast betur með sliku fólki
en gert hefir verið fram að
þessu.
Spaak tókst ekki að komast fyrr
til Englands. Því er nú lýst yf-
ir, að belgiska stjórnin muni
halda áfram stj órnarstörfum,
nýlendurnar fylgi henni að
málum og barátta Belgíu gegn
Þjóðverjum haldi því áfram.
Bandaríkjastjórn hefir ákveð-
ið að fyrsta flotabækistöðin,
sem Bandaríkin byggja í lönd-
um Breta, skuli vera í Ný-
fundnalandi og verður vinna við
hana hafin þegar í stað.
í loftárásum Þjóðverja á Eng-
land í septembermánuði fórust
6954 manns, en 10,615 særðust.
(Framh. á 4. síðu)
A KROSSaÖTIJM
Vatnsskarðsvegurinn nýi. — Endurbœtur á vegum í grennd við Reykjavík.
Brú á Hólsá. — Úr Jökulfjörðum. — Húsnæðismálin.