Tíminn - 31.10.1940, Blaðsíða 1
24. árg.
Reykjavík, ffmmtudagmn 31. okt. 1940
106. blað
Togarínn Bragi fórst
við árekstur í gær
Tíu menn munu hafa farizt
♦
Geir Thorsteinsson útgerðarmanni barst í nótt skeyti
frá Englandi þess efnis, að togarinn Bragi hefði í gærmorg-
un orðið fyrir árekstri við enska skipið „Duke of York“ á
innsiglingunni til Fleetwood og orðið fyrir svo miklum
skemmdum, að hann sökk innan lítillar stundar.
1 í skeytinu var þess getið, að aðeins þrír menn af skips-
höfninni hefðu bjargazt. Voru það Þórður Sigurðsson 2.
stýrimaður, Guðmundur Einarsson 1. vélstjóri og Stefán
Olsen kyndari.
Skipshöfnin var alls 13. manns. Aðrir skipverjar, sem
virðast hafa farizt samkvæmt skeytinu, voru:
Ingvar Ágúst Bjarnason, skipstjóri, Valhöll, Reykjavík,
fæddur 3/8. 1892.
Sigurmann Eiríksson, 1. stýrimaður, Barónsstfg 60, Reykja-
vík, fæddur 17/10. 1899.
Lárus Guðnason, háseti, Kárastíg 11, Reykjavík, fæddur
16/7. 1895.
Elías Loftsson, háseti, Skólavörðustíg, fæddur 29/8. 1907.
Sveinbjörn Guðmundsson, háseti, Njálsgötu 50, Reykjavík,
fæddur 23/4. 1901.
Ingimar Kristinsson, háseti, Hafnarfirði, fæddur 6/3. 1900.
Ingimar Sölvason, loftskeytamaður, Njálsgötu 84, Reykja-
vík fæddur 20/12. 1910.
Þorbjöí'n Björnsson, matsveinn, Laugaveg 20B, Reykjavík,
fæddur 11/10 1902.
Stefán Einarsson, kyndari, Sólvallagötu 21, Reykjavík,
fæddur 13/1. 1911.
Ingvar Guðmundsson, 2. vélstjóri, Spítalastíg 5, Reykja-
vík, fæddur 26/7. 1898.
Flestir, — ef ekki allir, — þessir menn munu hafa verið
kvæntir.
Bragi var smíðaður í Glasgow 1918 og var 321 rúml. brúttó.
Nánari fregnir af slysinu eru enn ekki fyrir hendi.
Tilraunaráð landbúnaðarins
kvödd til staría
Nkipatjón Breta
Þad heSír færzt í aukana sein-
ustu vikurnar
Steingrímur Steinþórsson
búnaðarmálastjóri hefir
kvatt tilraunaráð landbún-
aðarins saman til hins
fyrsta fundar í Reykjavík í
næstu viku. Hefir Stein-
grímur látið Tímanum í té
eftirfarandi frásögn um til-
raunaráðin og væntanlegan
fund þeirra manna, er þau
skipa.
Tilraunaráð landbúnaðarins
voru sett á laggirnar samkvæmt
lögum, er samþykkt voru á síð-
asta þingi. Þau eru tvö. Á ann-
að þeirra að fjalla um viðfangs-
efni, er lúta að jarðrækt, og er
það skipað Ólafi Jónssyni fram-
kvæmdastjóra á Akureyri,
Klemens Kr. Kristj ánssyni til-
raunastjóra á Sámsstöðum,
Pálma Einarssyni ráðunaut, Ás-
geir L. Jónssyni ráðunaut og
Jakobi Líndal bónda að Lækj-
armóti. í hinu tilraunaráðinu,
sem fer með búfj árræktarmál,
eiga sæti Páll Zóphóníasson
ráðunautur, Níels Dungal pró-
fessor, Björn Símonar'son kenn-
ari á Hólum og Pétur Gunnars-
son landbúnaðarkandidat.
Tilraunaráðunum eru ætluð
þau verkefni að samræma og
leggja drög að því tilraunastarfi,
sem rekið er í landinu, og hafa
tilsjóð með því. Verða ákvarð-
anir tilraunaráðanna gerðar í
samráði við Búnaðarfélag ís-
lands og atvinnudeild háskól-
ans.
Á þessum fyrsta fundi til-
raunaráðanna, er nú stendur
fyrir dyrum, munu þau kjósa
sér formann, ráðgast um fram-
tíðastarfið og marka sér starfs-
línu.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að tilíaunum, sem orð-
ið gætu íslenzkum búnaði að
haldi, er næsta skammt á veg
komlð, og brostið hefir sam-
ræmi í það, sem gert hefir ver-
ið í þá átt. Með þessari ráð-
stöfun er að því stefnt, að bæta
úr þeim ágöllum, og taka til-
raunastörf í þágu landbúnað-
arins fastari tökum en verið hef-
ir. Bíða beggja ráðanna mikil
verkefni, sem ekki verða leyst
nema á mjög löngum tíma, bæði
varðandi ýma þætti jarðræktar-
innar og fóðrun, afurðagetu og
kynbætur búpeningsins og
fleira.
Pétur Jónsson bóndl á Egilsstöðum á
Völlum skrifar Tímanum: Heyfengur
mun hafa orðið í meðallagi hér um
slóðir að þessu sinni, en alls ekki þar
yfir. í septembermánuði var heyskap-
artíð ákaflega erfið, en ágústmánuður
var ágætlegá hagstæður til heyöflunar
allt fram undir höfuðdag. Kartöflu-
uppskera var víðast hvar mjög rýr, og
áttu hin miklu næturfrost síðast í
ágústmánuði og fyrra hluta september-
mánaðar mesta sök á því, hve upp-
skeran varð frámunalega lítil. Kart-
öflugrasið kolféll í þessum frostum.
Kartöfluræktun var hér í mikilli
blómgun og á allmörgum bæjum nam
uppskera 100 tunnum af kartöflum í
fyrrahaust, eða jafnvel á annað hundr-
að. Nú í haust mun uppskeran óvíða
eða hvergi hafa verið yfir 30 tunnur.
Haustveðráttan hefir verið góð. Slátrun
hófst hinn 17. september á Reyðarfirði,
hjá Kaupfélagi Héraðsbúa. Var það
heldur í fyrra lagi. Slátrun er lokið
og var alls slátrað 26 þúsund fjár.
Hefir aldrei áður verið slátrað þar svo
mörgu fé. Þó munu bændur yfirleitt
ekki hafa gengið á fjárstofninn, því að
víða er mikið sett á af gimbrarlömb-
umv, þrátt fyrir vonina um dágott verð
fyrir sauðfjárafurðirnar. Þótt ýmsir
sjúkdómar hafi herjað fjárstofn
bænda, virðist sauðfé þó vera í fjölgun
á Fljótsdalshéraði. Dilkar reyndust
verr en í fyrrahaust, og nemur sá mun-
m- allt að einu kílógrammi á hverjum
lambsskrokk tll jafnaðar. Hin síðustu
Athugfun á fram-
kvæmd mjólkur-
laganna
Forsætisráðherra kveður mjólk-
ursölunefnd og stjórnir mjólk-
urbúanna til fundar og felur
sérfræðingi aff g-era ítarlega
rannsókn
Hér í bænum hófst í gær
fundur um mjólkurmálið, sem
boðað hafði verið til að tilhlut-
un ríkisstjórnarinnar. Á fund-
inum mættu stjörnir mjólkur-
búanna á verðlagssvæðinu og
mjólkurverðlagsnefnd, auk for-
sætisráðherra og atvinnumála-
ráðherra.
Tilefni fundarins er að ræða
um framkvæmd mjólkurlag-
anna og skipulag mjólkursöl-
unnar í framtíðinni.
Forsætisráðherra lét svo um-
mælt á fundinum, að það gilti
fyrir hvaða skipulag sem væri,
og hversu vel sem það hefði
reynst, að jafnan þyrfti að at-
huga, hvort ekki stæði eitthvað
til bóta og hvort ný viðhorf og
nýjar aðstæður gerðu ekki
ýmsar breytingar nauðsynlegar,
Tilgangur fundarins væri m. a.
sá, að athuga mjólkurskipulag-
ið frá þessu sjónarmiði.
Allmiklar umræður urðu um
málið og voru menn ekki á einu
máli. Að umræðum loknum var
kosin nefnd og á hún að skila
áliti á framhaldsfundinum í
dag.
Jafnframt því að kveðja sam-
an þennan fund hefir landbún-
aðarráðherra falið Stefáni
Björnssyni, sem lokið hefir prófi
í mjólkurfræði við landbúnað-
arháskólann í Kaupmannahöfn
og síðan kynnt sér þessi máí í
Danmörku, að gera ítarlega
rannsókn á framkvæmd mjólk-
urskipulagsins og gera tillögur
um endurbætur, ef honum
finnst þeirra þörf. Stefán kom
hingað með Esju frá Petsamo.
„Empress of Britain", tíunda
stætsta skipi heimsins, var
sökkt af þýzkri flugvél síðastl.
laugardag. Áhöfn og farþegum
var bjargað.
ár hafa dilkar yfirleitt reynzt betur á
HéraSi en var um skeið.
t t t
Að undanförnu hafa bátar úr ver-
stöðvunum við Faxaflóa gengið til
síldveiða, en afli verið tregur. Síldin
er fryst til beitu. Jafnframt hefir
veiðzt talsvert að ufsa, og hefir það
bætt nokkuð, hversu síldaraflinn hefir
verið lítill. Hafa fiskimenn selt ufsann
til útflutmngs og fengið fyrir hann
dágott verð. Um skeið var veður ákaf-
lega stillt og hagstætt til sjósóknar,
en nú seinustu dagana hefir tíð spillzt
nokkuð og brugðið til vindasamari
veðráttu. Útlit er þó fyrir, að senn
stilli til nýju um veðurfarið, svo að
ekki hamli veiðiferðum næstu dægrin.
t t t
Þessa dagana og hina næstu mun
vera venja í flestum héruðum lands-
ins að taka hrúta í hús, hafi ekki vetr-
arharðindi lagzt svo snemma að og
hastarlega, að það sé áður búið af
þeim sökum. En vart mun því til að
dreifa nú, því að haustveðrátta hefir
víðast verið mild og góð. Víða er það
títt, að taka hrútana í síðasta lagi á
Allra-heilagra-messu, sem er 2. nóvem-
ber-mánaðar, þar eð þá má gera ráð
fyrir, að fyrstu ærnar fari að ganga,
hvað líður.
t t t
Landhelgigæzla hefir verið með
minnsta móti i ár, þar eð sárafá er-
lend skip hafa stundað veiðar við
strendur landsins, sökum óíriðarins.
Skýrslur brezkra hernaðar-
yfirvalda sýna, að kaupskipa-
tjón Breta og bandamanna
þeirra hefir aukizt síðustu vik-
urnar. Bretar og bandamenn
þeirra missa nú jafnaðarlega
mun fleiri skip á viku en raunin
var síðarahluta vetrar og fyrri
sumarmánuðina. Vikutjónið
hefir stundum orðið meira
undanfarið en það var fyrstu
mánuði styrjaldarinnar, þegar
talið var að kafbátahernaður
Þjóðverja hefði náð hámarki
sínu. í vikunni, sem lauk 20.
október, misstu Bretar og
bandamenn þeirra meiri skipa-
kost en í nokkurri annari viku
síðan styrjöldin hófst, að und-
antekinni Dunkirkvikunni í
júní, þegar brezka herliðið vjar
flutt heim frá Flandern. Skipa-
tjón Breta og bandamanna
þeirra vikuna 14.—20. okt. nam
171 þús. smál., en auk þess var
sökkt sex skipum hlutlausra
þjóða, og námu þau samt. 27
þús. smálestum.
í r'itstjórnargrein í „The
Times“ 5. þ. m., var nokkuð vik-
ið að þessum málum. Blaðið seg-
ir, að^það sé eðlilegt, að skipa-
tjón Breta hafi aukizt undan-
farið. Uppgjöf franska flotans
og þátttaka ítala í styrjöldinni
hafi skapað alveg breytt við-
horf og orðið þess valdandi, að
ekki hafi verið hægt að veita
verzlunarflotanum eins mikla
herskipavernd og áður. Jafn-
framt hafi það stórbætt aðstöðu
Þjóðverja, að fá umráð yfir öll-
um frönskum höfnum við At-
lanzhaf. Þýzkir kafbátar eigi
nú miklu skemmra að sækja á
helztu siglingaleiðirnar en áður.
Blaðið bætir því við, að þess
megi fastlega vænta, að Bretum
muni takast að auka svo hina
hernaðarlegu vernd, sem verzl-
unarflotanum sé nauðsynleg,
að aftur dragi úr skipatjóninu.
Blaðið telur að enn sem fyrr
stafi mest hætta af kafbátun-
um og verði því að kappkosta
að útrýma þeim. Blaðið segir,
að brezka flotanum verði stöð-
Aðallega hafa tveir vopnaðir vélbátar
annazt gæzluna. Á vetrarvertíðinni
annaðist varðskipið Ægir gæzlu við
Vestmannaeyjar. En í júnímánuði seint
vildi það óhapp til að Ægir tók niðri
á grynningum á leið milli Hafnarfjarð-
ar og Reykjavíkur og skemmdist mikið.
Hefir verið unnið að viðgerð í skipinu
í sumar og er henni nýlega lokið. Á
næstunni mun Ægir verða tekinn til
olíuflutninga, jafnhliða því, að hann
sinnir landhelgigæzlu. Þór hefir verið
leigður til fiskfiutninga allt frá því að
styrjöldin hófst.
t r t
Að undanfömu hefir farið fram at-
kvæðagreiðsla meðal sjómanna í
Reykjavík og Hafnarfirði um það,
hvort rifta skuli kaupsamningi þeim,
sem í gildi er nú. Atkvæði sjómann-
anna voru talin í gær. 523 menn
greiddu atkvæði alls. Vildu 473 segja
upp kaupsamningunum, - 37 að þeir
giltu framvegis um sinn, en 13 skiluðu
auðum seðlum. Atkvæðagreiðsla þessi
hefir staðið yfir i þrjár vikur rösklega.
Allmörg verklýðsfélög hafa áður sagt
upp gildandi kaupsamningum. Meðal
þeirra eru Verkamannafélag Akureyrar,
Verkamannafélagið Drífandi í Vest-
mannaeyjum, Sjómannafélagið Jötunn
í Vestmannaeyjum, Verklýðsfélag
Norðfjarðar, Félag bifvélavirkja í
Reykjavík, Verkamannafélagið Dags-
brún í Reykjavík og Verkamannafé-
lagið Hlíf í Hafnarfirði.
ugt vel ágengt í þeim efnum og
bendir á því til sönnunar, að á
fáum vikum hafi verið sökkt 7
Dýzkum kafbátum og 2 itölsk-
um kafbátum. Nokkrum dögum
síðar skýrði „The Times“ frá
iví, að sökkt hefði verið 22 ít-
ölskum kafbátum frá því ítalir
sögðu Bretum stríð á hendur.
Annars skýrir brezka flotamála-
ráðuneytið aldrei frá því jafn-
harðan, þegar óvinakafbát er
sökkt, til þess að andstæðing-
arnir fái ekki upplýsingar, sem
geta orðið þeim að gagni.
Þegar „The Times“ birti þessa
grein, var ekki búið að taka í
notkun tundurspillana, sem
Bandaríkjamenn seldu Bretum,
en þeir eiga fyrst og fremst að
vera verzlunarflotanum til að-
stoðar.
Ameríska blaðið „The Christi-
an Science Monitor" skýrði fyr-
ir nokkru frá því, að síðan Ev-
rópustyrjöldin hófst, hefði 825
skipum verið sökkt og voru or-
sakirnar þessar:
Kafbátar höfðu sökkt 219
skipum.
Tundurdufl höfðu eyðilagt
179 skip.
Flugvélar höfðu sökkt 117
skipum.
Herskip höfðu sökkt 54 skip-
um.
Sprengingar, sem voru ann-
aðhvort af völdum tundurdufla
eða tundurskeytis frá kafbát,
höfðu eyðilagt 44 skip.
Þýzkar og ítalskar skipshafn-
ir höfðu sjálfar sökkt 39 skip-
um til þess að þau féllu ekki í
hendur Bretum. Meðal þeirra
var þýzka skipið „Columbus",
sem var 32.500 smálestir.
Árekstrar höfðu grandað 29
skipum.
Strandvirki höfðu sökkt 5
skipum.
Af ótilgreindum orsökum
hafa farizt 139 skip, þar af fór-
ust 28 við brottflutningana frá
Dunkirk.
Samkvæmt upplýsingum enska
vikublaðsins „Fairplay“ 10. þ.
m„ misstu Bretar frá upphafi
styrj aldarinnar til 22. sept. síð-
astliðinn 444 verzlunarskip,
sem námu samtals 1.799 þús.
smál., bandamenn þeirra misstu
á sama tíma 113 skip, sem námu
511 þús. smál., og hlutlausar
þjóðir 266 skip, sem námu 810
þús. smál. Er þetta tjón vitan-
lega tilfinnanlegt fyrir Breta,
en geta ber þess, að þeir her-
tóku á þessum tíma 88 þýzk eða
ítölsk skip, sem námu samtals
419 þús. smál. eða sem svaraði
nær y4 hluta af skipatjóni
þeirra. Það, sem á vantar til að
(Framh. á 4. síðu)
Aðrar fréttir.
ítalski herinn hefir enn náð
litlum árangri í Grikklands-
styrjöldinni. Meðfram strönd-
inni hefir honum tekizt að kom-
ast nokkra km. inn í Grikkland,
en annarsstaðar á vígstöðvun-
um hefir honum ekki orðið á-
gengt. Brezkar fregnir telja, að
ítalir hafi ekki verið undir það
búnir að hefja stórfelída sókn,
þar sem þeir hafi gert sér vonir
um, að Grikkir myndu beygja
sig fyrir hótunum og gefast
upp orustulaust. Sömu fréttir
segja, að ítalir sendi nú stöðugt
lið til Albaníu. ítalski flugher-
inn heldur uppi talsverðum loft-
árásum.
Brezk flotadeild er komin til
Grikklands og hefir komið fyr-
ir tvöföldum tundurduflalögn-
um meðfram ströndum Grikk-
lands, þar sem helzt var von
árásar. Brezkar flugsveitir hafa
gert árásir á þær flugbækistöðv-
ar ítala, sem liggja næst Grikk-
landi.
(Framh. á 4. síðu)
A víðavangi
ÁRÓÐUR „FIMMTU HER-
DEILDARINNAR“ í MBL.
Það hefir verið mikilvægur
þáttur í áróðursiðju „fimmtu
herdeildarinnar“, að telja fólki
í hlutlausum löndum trú um, að
það væri brot á hlutleysinu, að
láta í ljós viðhorf sitt til styrj-
aldaraðilanna. Vitanlega er
þetta fjarstæða. Hlutleysið legg-
ur engin bönd á skoðanafrelsi
eða málfrelsi manna. Þessi á-
róður „fimmtu herdeildarinn-
ar“ hefir þó viða borið góðan á-
angur og orðið til þess að menn
hafa orðið andvaralausari og
gætt sín ver gegn yfirvofandi
hættu. Dæmin frá Danmörku,
Tékkoslovakíu og Hollandi eru
nærtæk í þessum efnum. Hér á
landi hefir „fimmta herdeildin"
ekki síður beitt þessum áróðri
en annars staðar. Meðal annars
hefir hún fengið rúm fyrir þenn-
an áróður sinn í Morgunblað-
inu. Síðastliðinn þriðjudag er t.
d. löng dulnefnisgrein í Mbl.,
þar sem þessari skoðun er hald-
ið fram og eitt dagblaðanna á-
fellt fyrir að hafa látið uppi
samúð með þeim málstað, sem
Bretar berjast fyrix. Tilgang-
urinn er alveg ljós. Það á að fá
blöðin til að þegja um viðhorf
sitt til lýðræðis og einræðis og
þannig að ryðja brautina fyrir
einræðisstefnuna. Er vissulega
sárt til þess að vita, að Morgun-
blaðið, sem seinustu vikurnar
hefir lýst yfir fylgi sínu við lýð-
ræðið, skuli standa opið fyrir
slíkri áróðursiðju „fimmtu her-
deildarinnar."
SAGA VESTUR-fSLENDINGA. v /
Fyrsta bindið af sögu Vestur-
íslendinga er nú að koma út.
Höfundurinn er Þorsteinn Þor-
steinsson rithöfundur. Sofonías*
Þorkelsson framkvæmdastjóri
dvelur hér I vetur og hefir ,lagt
fé og vinnu í að koma verki
þessu út. Bókaútgáfa Þjóðvina-
félagsins og menningarsjóðs
hefir beðið alla umboðsmenn
sína að safna áskrifendum að
þessari útgáfu . Útgáfan er öll
hin vandaðasta. Bókin kostar
10 krónur óbundin og 12,50 í
bandi. Landar vestra telj a lík-
legt að saga landnáms íslend-
inga í Vesturheimi eigi að verða
fimm bindi. Ef lán er með, ætti
því verki að geta orðið lokið á
næstu fimm árum.
NÝ ÍSLENDINGASAGA.
Menntamálráð hefir nú fal-
ið þrem sagnfræðingum að
rannsaka skilyrðin fyrir útgáfu
mikillar íslendingasögu. í þess-
ari nefnd eiga sæti Árni Páls-
son prófessor, Barði Guðmunds-
son skjalavörður og dr. Þorkell
Jóhannesson bókavörður. Mundi
rit þetta varla geta verið minna
en 12 bækur, og koma út á 5—6
árum. Sennilega yrðu höfund-
arniT að vera jafnmargir og
bindin. Það er beinlínis þjóð-
arminnkun, að ekki skuli vera
til rituð saga landsins, nema
kennslubækur harida börnum.
Tæplega er hægt að kalla þá
þjóð söguþjóð, sem hirðiT svo
lítt um sína eigin sögu.
NYTSEMI MBL.
Það er margviðurkennt af
Tímamönnum, að mótstaða
Mbl. gegn góðum málum er oft
hin gagnlegasti stuðningur. Ný-
verið boðaði Mbl. sókn frá sinni
hálfu til að afsaka drykkjuskap
í sambandi við námsþrautir.
Mun blaðið fyrst og fremst vilja
verja þann rótgróna gamla sið,
að það sé prýði fyrir mennta-
skólanemendur að drekka mik-
ið, þegar þeir ljúka stúdents-
prófi, til að halda á þann hátt
hátíðlega inngöngu sína í stétt
lærðra manna. Önnur hátíð,
sem blaðinu mun vera kær, eru
„rússagildin“, og þá mun Mbl.
þykja tilhlýðilegt, að sem flest-
ir af hinum ungu mönnum liggi
útúr drukknir undir borðum um
(Framh. á 4. siðu)
A KROSSGÖTITM
Af Héraði. — Faxaflóabátarnir. — Hrútar teknir í hús. — Landhelgigæzlan.
— Uppsögn kaupsamninga. —