Tíminn - 10.12.1940, Qupperneq 4

Tíminn - 10.12.1940, Qupperneq 4
192 W¥, þrigjndaginn 10» des. 1940 123. blaS Yfir landamærín X. Kommúnistablaðið segir að það sé tákn um öngþveiti burgelsastéttarinn- ar, að hún reyni ekki að sakfella and- stæðingana með rökum, heldur segi að „vitað sé“, að þeir bóu svona og svona, og eftir því séu þeir dæmdir til útskúfunar og glötunar. Samkvæmt þessu er rikjandi í Rússlandi hlð full- komnasta „öngþveiti burgeisastéttar- innar“, því að þar hafa hinir gömlu leiðtogar byltlngarinnar verið dæmdir til dauða fyrir sakir, sem allir vlssu að voru hreinn tilbúningur. 2. í „pistlum" ísafoldar er Eysteinn Jónsson hrakyrtur fyrir að hafa á fundi í Eyjafirði sumarið 1939 látið þau um- mæli falla, „að kommúnistar hefði gert bandalag við sorann í Sjálfstæðis- flokknum". Kallar ísafold þetta til- hæfulausan áróður. Að vísu mun E. J. ekki hafa orðað þetta þannig, en þessi ummæli hefði eigi að síður getað stað- izt. Bandalag íhaldsmanna við komm- únista í Hlíf í Hafnarfirði, Dagsbrún í Reykjavík og bæjarstjórninni á Norð- firði, svo nokkur dæmi séu nefnd.sanna þau fullkomlega. Eða vill ísafold halda því fram að það séu betri mennimir í SJálfstæðisflokknum, sem hafi gert bandalagið við kommúnista? 3. Kommúnistablaðið er mjög gleitt út af Eiðafundinum. Segir blaðið að kommúnistar séu reiðubúnir til sam- vinnu um sjálfstæðismálið. Það sögðu finnsku kommúnistarnir líka. En þeir gerðu allt, sem þeir gátu í Finnlands- styrjöldinni, til hjálpar árásarþjóðinni. Sama myndu kommúnistar hér gera, ef likt stæði á. Þess vegna geta þeir verið þess fullvissir, að þjóðin telur það eitt þýðingarmesta atriðið í sjálf- stæðisbaráttu sinni, að láta þá hvergi koma nálægt þeim málum. x+y. F erðasögur Marco Polo (Framh. af 3. síðu) ófriði milli Feneyja og Genúa. Marco Polo tók þátt í styrjöld- inni. Feneyingar voru gjörsigr- aðir, Marco Polo og 7000 land- ar hans voru teknir til fanga og honum varpað í fangelsi. í fangelsinu las hann ferðasögu sína, en meðfangi hans, Rusti- cano, skrifaði hana á bókfell á franska tungu. Eins og oft á sér stað um mik- ilmenni, var Marco Polo eigi skilinn eða viðurkenndur af samtíð sinnl Ferðasaga hans um Austurlönd náði ekki hylli almennings. Menn trúðu því blátt áfram ekkí, að í þeim hluta heimsins, er menn hugðu óbyggðan, væru ríki með milj- ónir manna, og að menning stæði þar framar en í löndum Evrópu á þeim tímum. En þetta breyttist. Þeir tím- ar komu, að menn fóru að trúa (JR BÆHCM Fundur Framsóknarfélaganna næstkomandi fimmtudag verður i Kaupþingssalnum og á að hefjast kl. 8,30. Flytur Jónas Jónsson stutt inn- gangserindi um sjálístæðismálið, en síðan verða umræður. Er þess sérstak- lega vænzt, að allir alþingismenn Framsóknarflokksins, sem í bænum eru, mæti á fundinum, en auk þess er skorað á Framsóknarmenn almennt að fjölmenna til að hlýða á og taka þátt í umræðum um þetta mikilsverða mál. Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík heldur skemmtifund í Oddfellowhúsinu tuppi) föstudaginn 13. þ. m. Mörg góð skemmtiatriði. Fé- lagar, fjölmennið með gesti. Farfuglafundur Ungmennafélagamia verður haldinn í Kaupþingssalnum í kvöld kl. 9. Séra Jakob Jónsson flytur erindl, sýnd verð- ur kvikmynd frá Finnlandi og fleira. Farfuglafundir ungmennafélaganna eru venjulega mjög fjölsóttar og á- nægjulegar samkomur og er líklegt að svo verði einnig í kvöld. Húnvetningafélagið heldur skemmtifund í Oddfellowhús- inu amrað kvöld. Ræður og upplestur: Sigurður Nordal prófessor, Skúli Guð- mundsson alþingismaður og Jón Pálma son alþingismaður. Bæjarráðið hefir ákveðið að láta umbæta lýs- inguna á gatnamótum Ingólfsstrætis og Bankastrætis, Lækjargötu og Banka- strætis og Pósthússtrætis og Austur- strætis, svo og á Lækjartorgi. Bátafélagið Björg hefir ritað bæjarráði bréf og kvartað mjög alvarlega yfir slæmum aðbúnaði smábáta á Reykjavíkurhöfn. Hafa smábátaeigendur lengi verið á sífelld- um hrakningum með íleytur sínar hér á höfninni. Líkön af hvölum. Nú um helgina voru sýnd í sýningar- glugga Málarans í Bankastræti likön af þeim hvalategundum, sem vart hefir orðið við strendur íslands, alls 20. Er steypireyður þeirra stærst, en hnýsa minnst. Hvalalíkön þessi voru 1:15 eðli- legrar stærðar, miðað við fullvaxna hvali. Líkönin eru eign náttúrugripa- safnsins, en gerð af Marteini Guð- myndssyni myndhöggvara. Er verið að koma líkönunum fyrir á safninu þessa dagana. Fjársöfnun til vetrarhjálparinnar er hafin í bænum. Nú í vikunni munu skátar fara um bæinn 1 þeim erindum að safna fé og flíkum meðal þeirra, er að mörkum vilja leggja til vetrarhjálp- arinnar. Skíðaferðir. Nokkrar síðustu helgar hefir fólk farið á skíði héðan úr bænum. Hefir færi verið misjafnt, fremur lítill snjór á stundum og frostleysa stundum. Um síðustu helgi fór venju fremur margt fólk. Skíðafæri var allgott á sunnu- daginn víðast hvar, þótt sums staðar væri snjórinn nokkuð blautur, einkum framan af degi. Ríkisskuldirnar (Framh. af 1. síðu) irnar inn í landið og myndi hljótast af því mikill gjaldeyr- issparnaður í framtíðinni. Fyr- ir þá menn, sem nú safna spari- fé, væri það líka mjög hag- kvæmt að geta varið því til kaupa á rikisskuldabréfum. Með því myndu þeir tryggja sér sæmilegan arð af fé sínu, án nokkurrar áhættu, en það er mjög áhættusamt að leggja fjármuni í ýmsar framkvæmd- i£ meðan styrj aldarástandið varir. Þannig gæti líka farið, að þetta fé yrði eyðslueyrir, ef ekki byðust möguleikar til að ráð- stafa því á þennan hátt. Þess ber því fastlega að vænta, að ríkisstjórnin dragi það ekki lengur að hefjast handa í þessu máli. Fjórðí htuti Albaníu . . (Framh. af 1. slðu) tryggja sér sem beztar varnar- stöðvar í Albaníu. Mun það vit- anlega fara eftir því mati, sem gríska herstjórnin leggur á hernaðarlega mótstöðu ítala. Grikkir hafa tekið mörg hundruð ítalskra hermanna til fanga seinustu dagana og mik- ið herfang. Mikið mannfall var í liði ítala í bardögunum um Ar- gyrocastro. Grikkir tilkynna, að þeir hafi nú hluta Albaníu á valdi sínu, þar sem búsettar eru 300 þúsund íbúar, en alls er ein milj. íbúa í Albaníu. Héruðin umhverfis Koritza og Algyro- castro eru ríkustu héruð Albaníu Aðrar fréttír. (Framh. af 1. síðu) ina. Brezki flugherinn hefix undanfarið gert stærstu loftá- rásina á þýzku iðnaðarborgina Dusseldorf, kafbátahafnar Þjóð- verja í Frakklandi og helztu flugvelli þeirra í hernumdu löndunum. í Haderslev í Suður-Jótlandi kom nýlega til mikilla óeirða. Nazistar efndu til útífundar og voru einkennisbúnir, en póli- tískir einkennisbúningar eru bannaðir í Danmörku. Lögregl- an skarst í leikinn og voru 350 nazistar fangelsaðir. Eftir róst- urnar safnaðist mikill mann- fjöldi fyrir utan fangelsið, þar sem nazistar voru geymdir, hyllti lögregluna og söng ætt- Stefna Roosevelts (Framh. af 3. síðu) um 56 cents á klst. í febrúar- mánuðí 1933 voru þau 45 eents. Þau eru nú 67 cents eða 11 cents hærn en 1929 og 22 cents hæi’ri en 1933. Þess ber ennfremur að gæta, að framfærslukostnaðurinn er nú 11% lægri en 1929. Það hefir ekki lítið að segja fyrir hina amerísku fjölskyldu. Þjóðartekjurnar hafa næst- um tvöfaldazt síðan 1932, eða aukizt úr 39 biljónum 1932 í 74 billjónir dollara, sem er áætlað að þær verði á þessu ári. Sé tek- ið tillit til lægri framfærslu- kostnaðar nú en 1929, eru þjóð- artekjurnar raunverulega meiri nú en þá. Árin 1918—28 urðu 600 bank- ar gjaldþrota á ári til jafnaðar. Svo kom bankahrunið mikla.sem var einn meginþáttur kreppunn- ar. Á síðastl. árj urðu aðeins 32 bankar gjaldþrota. Tíu af þess- um bönkum voru aðilar í banka- tryggingu þeirri, sem ríkis- stjórnin kom á laggirnar, og fengu þeir, sem áttu inneignir I í þessum bönkum, 99% af þeim ' greiddar. Það er eingöngu ráð- stöfunum núverandi ríkis- stjórnar að þakka, að komið hefir verið í veg fyrir hin mörgu og tíðu bankatöp. Árið 1932 nam tap hlutafé- laga og hringa fjórum biljónum dollara. Nú er áætlað að gróði þeirra nemi 4 billjónum dollara á þessu ári. Sé það satt, að ég og stjórn mín séu fjandmenn iðjuhöld- anna, en republikanir, sem skildu við allt í rústum, séu vinir þeirra, get ég ekki annað gert en að óska iðjuhöldunum þess, að þeir fáj áfram að vera undanþegnir stjórn vina sinna. Framleiðsla verksmiðja og námuvinnsla er nú 13% meiri en 1929 eða m. ö. o. meiri en nokkru sinni áður fyrr í sögu landsins. Þeir tímar eru liðnir, þegar hlutabréf og peningar voru eini mælikvarðinn á velmegun þjóðarinnar. Við vitum nú, að velmegun þjóðarinnar verður mæld eftir þvl, hvernig lífs- kjörin eru almennt og með hversu miklu öryggj almenning- ur getur horft til framtíðarinn- ar. Lífskjör almennings í Banda- ríkjunum eru nú langtum betri en á mestu gróðaárunum fyrir kreppuna 1929. Við lofum ekki „kjúklingi í hvern pott“ eða „tveímur bíl- um í hverja bílgeymslu". Við vitum að það er langtum áhrifa- meira að á þessu árj byggja Bandaríkj amenn miklu fleiri í- búðarhús og kaupa miklu meira af lífsnauðsynjum en 1929. Á þessu ári hefir verið meira smjör, meiri ostur og meira kjöt á borðum almennings í Banda- ríkjum en nokkru sini fyr. — Hér gefst ekki rúm til að rekja meira af ræðu Roosevelts. Þessi greinargerð Roosevelts sýnir nokkuð ljóslega aðalkjarnann i stefnu hans, auðjöfnunina og aukin réttindi þeirra, sem lægra hafa verið settir. Til þess að ná því markj heíir hann orðið að hækka skatta og að leggja ýms- ar aðrar nýjar byrðar á at- vinnurekendurna. Jafnframt hefir hann sett þeim og fjár- málamönnunum takmarkanir, sem hindra brjálæðisfullt gróðakapphlaup eins og það, sem varð orsök hrunsins mikla 1932. Ýmsir töldu, að allar þess- ar ráðstafanir myndu stuðla að því að lama framtak einstakl- inganna, en þær staðreyndir, sem Roosevelt nefnir í ræðu sinní, sýna að því fer fjarri. HESTUR, 6 vetra, jarpur að lit, tapaðist síðastl. október. Mark: Sneitt aftan hægra, biti framan vinstra. Sá sem kynni að verða hans var, er vinsamlega beðinn að gera aðvart í síma að Fífu- hvammi, Seltj arnarneshreppi. Ennþá er tækifæri að ná í örfá eintök af þessu stærsta og lang- merkasta smásagnasafni, sem til er á íslenzku. Bókamenn og lestrarfélög, Notið síðasta tækifærið og eignizt alla Dvöl frá byrjun. DVÖL. pósthólf 1044, Reykjavík. ttbreiðið Tímanu! frásögnum ferðmannsins. Mál- ið fór að skýrast og sann- leikurinn að ryðja séx braut. „Heimur sá .... sem hafði ver- ið lokaður, stóð nú öllum opinn, dýrleg, freistandi veröld, er beið kynslóða með nóga atorku og æfintýraþrá til að feta í fót- spor Feneyingsins mikla.“ Ég vil hvetja menn til að eignast og lesa umrædda bók. Einkum vil ég benda æskulýð landsins á, að kynna sér hana rækilega. Af henni má margt læra og hún geymir sígildan fróðleik, þó hún sé skrásett fyr- ir nær 700 árum. B. B. Aftakaveður hefir verið á Norður-Atlantshafi upp á síðkastið. Tvö skip, sem komið hafa til Reykjavíkur síðustu daga, hafa hlotið áföll af völdum sjógangs. Goða- foss kom frá Vesturheimi fyrir helgina. Björgunarbát tók út og skemmdir urðu á sjálfu skipinu, er alda reið yfir það á leíð þess heim. Botnvörpungurinn Sindri hlaut einnig hið versta veður og sjógang mikinn á heimleið frá Eng- landi um svipað leyti. Tók út annan björgunarbát skipsins, en hinn brotnaði í spón að kalla, er alda skall yfir það. Arreboe Clausen sýndi um helgina síðustu nokkur málverk í sýningarglugga Jóns BJöms- sonar í Bankastræti. Myndír þessar, sem munu hafa verið nýjar, vöktu at- hygli vegfarenda. jaroarsongva. Á krossgötum. (Framh. af 1. siðu) og Hellisheiði, en snjónum er mokað af veginum og leiðinni haldið færri á þann hátt. Vestan lands er hins vegar meiri snjór að sögn, sér í lagi norðan til á Vestfjörðum. Sömuleiðis mun vera nokkur snjór í uppsveitum, til dæmis norðan lands á Hólsfjöllum og í Þing- vallasveit á Suðurlandi. Hagar fyrir beitarfénað munu þó víðast góðir, en á stöku stað hefir snjóinn þó lagt illa, þótt lítil sé fönn, svo að storka og hörzl er til baga. 154 Robert C. Oliver: Æfintfjri blaðamannsins 155 meiri, vegna þess, að þeir höfðu fyrst komið inn í þetta fátæklega herbergi, en þarna inni voru góð húsgögn, dúkar á gólfi og myndir á veggjunum — eng- um hefði dottið slíkt í hug eftir að hafa farið gegnum hitt herbergið. Cabera tók tómlega á móti þeim. Hann tæplega heilsaði Bob, en spurðl Mody: — Er allt í lagi. Mody kinkaði kolli og rétti Cabera nokkur skjöl. Hann leit fljótt yfir þau og virtist ánægður. — Þér eigið að ferðast, Hollman, sagði hann. Nú heitið þér ekki lengur Hollman, heldur Braddon, og þér eruð leiðsögumaður dansflokks, sem er á leið til Parísar og Marseille. Þér skiljið? Cabera rétti honum vegabréf, sem hljóðaði á nafn Ernest Braddon, 27 ára. Heimilisfang: Leith. Staða: leiðsögu- maður listamanna. Sér til mikillar furðu sá Bob, að myndin af honum sjálfum var merkt með öllum hinum nauðsynlegu stimplum og undirskrift- irnar voru ekki falsaðar. — Þar að auki, hélt Cabera áfram, hafið þér hér 12 vegabréf fyrir dans- meyjarnar yðar, sem þér eigið að fara með til Parísar og Marseille. Þessi vega- bréf eru ekki fölsk — eruð þér með? — Fara stúlkurnar af fúsum vilja? spurði Bob. — Auðvitað — þær álíta allar, að þér séuð ráðnir sem fararstjóri fyrir flokk- inn. Og fyrir yður er hyggilegast að láta þær halda að svo sé! Hér fáið þér tvö heimilisföng. Þangað farið þér með hjöTð yðar. Annað er í París, hitt er í Marseille. Frá þeirri Stundu, er þér hafið komið stúlkunum á seinni ákvörð- unarstaðinn, berið þér enga ábyrgð lengur — þér skiljið? — Ég skil þetta prýðilega, svaraði Bob. — Ágætt. Þér verðið hér í nótt, en snemma í fyrramálið ekur Mody þér á stöðina, þar sem stúlkurnar verða einn- ig mættar. En um leið og þér hafið skilið við Mody, þekkið þér hann ekki framar, jafnvel þótt hann ekki aðeins ferðist með sömu lest, heldur einnig í sama klefa og þér og stúlkurnar, til Harwich. Mody fer aðeins með til þess að þér fremjið engin heimskupör, og í augnabliksæsingu þjótið ekki í að hríngja til Scotland Yard. Þér skiljlð, Hollman. Við höfum ekki ennþá kynnst yður nógu vel. — Ég mun spjara mig, sagði Bob, en mætti ég spyrja yður að tvennu. Mun ekki stúlkunum þykja það undarlegt, að “’-^-GAMLA bÍÓ°—* Kappaksturs* hetjan (Bum’em up O’Connor). Afar spennandi og skemmtileg amerisk kvik- mynd. Aðalhlutv. leika: DENNIS O’KEEFE, CECILIA PARKER og NAT PENDLETON. Aukamýnd með GÓG og GOKKE Sýnd kl. 7 og 9. -NÝJA BÍÓ 0— Dætur skilinna hjóna (Doughters Courageous) Amerísk stórmynd frá Warner Bros. Aðalhlut- verkin leika sömu leikarar og léku í hlnnl frægu mynd, „FJÓRAR DÆTUR" GALE PAGE, CLAUDE RAINS, MAY ROBSON, JEFFREY LYNN, DICK FORAN. gýnd kl. 7 og 9. Jefuu* stefituna ungui* og það ættuð þér einnig að láta börn- in yðar gera. Á unglings aldri ætti hver drengur að kaupa sér LÍFTRYGGINGU og þanníg að eignast DÝRMÆ-TAN SJÓÐ. Fyrsta sporið til réttrar stefnu er að eignast líftryggingu frá »SJÓVÁ' TRYGGING«. Sjóvátryqqi aqíslands? Húðir og skinn. Ef bændur nota ekkl til eigin þarfa allar HÚÐIR og SKINN, sem falla til á heimilum þeirra, ættu þeir að biðja KAUPFÉLAG sitt að koma þessum vörum í verð. — SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA selur NAUTGRIPAHÚÐIR, HROSSHÚÐIR, KÁLFSKINN, LAMBSKINN og SELSKINN til útlanda OG KAUPIR ÞESSAR VÖRUR TIL SÚTUNAR. — NAUTGRIPA- HÚÐIR, HROSSHÚÐIR og KÁLFSKINN er bezt að salta, en gera verður það strax að lokinni slátrun. Fláningu verður að vanda sem bezt og þvo óhreinindi og blóð af skinnunum, bæði úr holdrosa og hárl, áður en saltað er. Góð og hreinleg meðferð, á þessum vörum sem öðrum, borgar slg. —

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.