Tíminn - 20.03.1941, Side 4
132
TÍMIM, fimmtndagmn 20. marz 1941
33. blað
ilyktanir
6. flokksþíngs Framsóknarmanna
(Framh. af 1. síðu.)
2. Að þegar sé farið að vinna að stofnun áburðarverksmiðju
og leitast sé við að ná samkomulagi við Sogsvirkjun eða Laxár-
virkjun um sölu á rafmagni til verksmiðjunnar, enda aðstoði
ríkið við stækkun á þeim rafveitum, eftir því sem þárf til slíkra
framkvæmda.
3. Að nauðsynlegt sé, að hér á landi rísi upp hið fyrsta full-
komin skipasmíðastöð fyrir járnskip. Einnig að styðja beri, auka
og efla smíði báta af öllum stærðum, svo að allir þeir bátar, sem
landsmenn þarfnast, verði hér eftir smíðaðir í landinu. Þá séu
athugaðir möguleikar til að framleiða hér bátamótora.
4. Að fyrst og fremst beri að auka og efla þann iðnað, sem
notar innlend hráefni.
5. Að nauðsyn beri til að auka starfsemi iðnlánasjóðs til efl-
ingar hvers konar íslenzkum iðnaði.
6. Að áriðandi sé að þegar verði hafizt handa um endurskoðun
tollskrárinnar, sérstaklega með þarfir iðnaðarins fyrir augum.
7. Flokksþingið telur, að ráðstafanir þær, sem gerðar hafa
verið á undanförnum árum fyrir forgöngu Framsóknarflokksins
gegn lokun iðnaðarins, hafi gefizt vel og beri að halda áfram á
sömu braut í því efni, svo að séð verði fyrir eðlilegri þörf lands-
manna á hverjum tíma um fullfæra iðnaðarmenn.
8. Flokksþingið lítur svo á, að lögin um iðju og iðnað, svo og
lög um iðnaðarnám, þurfi rækilegrar endurskoðunar við og skor-
ar á þingmenn flokksins að gangast fyrir því þegar á þessu þingi,
að slík endurskoðun fari fram.
9. Athugaðir verði möguleikar til framleiðslu jarðyrkjuverk-
færa og fleiri búsáhalda í landinu.
10. Flokksþingið beinir því til Búnaðarfélags íslands, hvort
ekki væri ástæöa til að stofna ráðunautsstarf til eflingar heim-
ilisiðnaði og aukinnar hýbýlaprýði í sveitum landsins.
11. Flokksþingið skorar á Framsóknarmenn um land allt að
beita sér fyrir endurreisn og aukningu heimilisiðnaðar í sem
flestum myndum, með því m. a. að gangast fyrir sýningum og
koma á samræmingu og mati framleiðsluvaranna, svo að þær
verði söluhæf markaðsvara.
12. Flokksþingið skorar á rannsóknarráð ríkisins að hraða
sem mest hvers konar rannsóknum á möguleikum til nýs iðnaðar
í sambandi við náttúrugæði landsins.
13. Flokksþingið skorar á ríkisstjórn og Alþingi að láta fram-
kvæma á næstu árum ítarlegar jarðhitarannsóknir hér á landi
og veita nægilegt fé til kaupa á svo mörgum fullkomnum tækjum,
sem nauðsynlegt kann að teljast, til framkvæmda á slíkum rann-
sóknum. Enníremur að fengnir verði til rannsóknanna erlendir
sérfræðingar til að veita þeim forstöðu fyrst í stað.
Auk þessara ályktana hefir flokksþingið afgreitt tillögur um
menntamál, dýrtíðarmál o. fl. og í dag mun það afgreiða álykt-
anir um landbúnaðarmál og sjávarútvegsmál. Þessar ályktanir
verða birtar í næsta blaði. Flokksþinginu lýkur í dag.
ÚR B/ENVN
Kvöldfagnaður
flokksþingsfulltrúanna að Hótel Borg
hefst klukkan 8,30 í kvöld. Aðsókn er
mjög mikil og allir aðgöngumiðar
seldir, og hefir orðið að vísa frá fjölda
fólks, er óskað hefir eftir að taka þátt
í þessum kvöldfagnaði.
Leikfélagið
hefir I kvöld frumsýnlngu á leiknum
Á útleið. Hljómsveit undir stjórn Dr. v.
Urbantschitsch aðstoðar við sýnlnguna.
Sala aðgöngumiða hefst kl. 1 í dag.
Óperettan Nitouche
verður sýnd annað kvöld og hefst
sala aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Erlendar frétftir
Brezkt herlið hefir verið flutt
til Saloniki í Grikklandi. Bret-
ar hafa ekki áður haft landher í
Grikklandi.
Utanrikismálaráðherrar Breta
og Tyrkja, Anthony Eden og
Sarajoglu, hittust í gær á einni
Cypern. Sagt er að náðst hafi
fullkomið samkomulag og er nú
talið víst, að Tyrkir muni hjálpa
Síglíngar ísl. skípa
milli Islands og Bret-
lands stöðvaðar
Á fundi, sem ríkisstjórnin
hélt í gærkveldi með fulltrúum
sjómanna og útgerðarmanna,
var samþykkt að „beita sér fyr-
ir því, að íslenzk fiskiskip og
flutningaskip leggi að svo stöddu
ekki úr íslenzkri höfn áleiðis til
Bretlands, og heldur ekki úr
brezkri höfn áleiðis til íslands.“
Ríkisstjórnin hefir átt við-
ræður við enska sendiherrann
hér um þetta mál.
Grikkjum, ef Þjóðver.jar ráðast
á þá.
ítalir virðast vera í undirbún-
ingi að hefja stórsókn í Albaníu
í þeirri von, að geta náð nokkr-
um hernaðarlegum árangri í
viðureigninni við Grikki, án
þess’ að þurfa að njóta hjálpar
Þjóðverja. Mun Mussolini telja
þetta metnaðarmál.
Á orrustnvelll lífsins
(Framh. af 3. síðu.)
Það er aldrei svo mikið
myrkur, að Ijósið bjarta sjái
ekki í gegn. Það er okkur hugg-
un í sorgum, að vita vinina
okkar dána hetjudauða, er eng-
in verður fremri talinn með
þjóð okkar, eða öðrum þjóðum.
Orðin fá ekki gefið nema lít-
ilfjörlega og óglögga mynd þess
atburðar, sem við sjáum í hug-
anum. Færustu málarar væru
naumast færir að sýna með
málverki þá dáðríku fórnar-
lund, sem þessi atburður hlýtur
að hafa grafið í hjarta þeim, er
ekki eru með öllu tilfinningar-
lausir fyrir því, er stórvel og
drengilega er unnið.
Þeir, sem hafa þrek og
manndóm til að hugsa, munu
naumast svo viðstaddir fræki-
legt afreksverk, að þeim standi
þessi atburður ekki ljóslifandi
fyrir- hugskotssjónum. Hvað
getur drengilegra en að falla
við stjórnvölinn, í stefnu að
vinna landi sínu, þjóð og ást-
vinum lífsbjörg? Er það ekki
heilagt fall að falla vopnlaus
fyrir vopnum á leiðinni að því
marki, að vinna frelsi, friði og
mannréttindum það gagn, sem
verða má? Munu dæmi frábær-
ari karlmennsku og fórnlund-
ar en þeirrar, er skipstjórinn
sýndi? Helsæröur biður hann
dauðvona bróður sínum hjúkr-
unar, en hann sé látinn bíða.
Deyjandi heldur hann skipinu
til hafnar með þá.sem eftir lifðu.
Slíkt er frábærilega unnið.
Þannig deyja aðeins sannar
hetjur. Við eigum á bak að sjá
góðum drengjum og höfum eigi
afl við vinabana, enda værum
ekki að bættari, þó að hundruð
mannslífa kæmu fyrir sáran
ástvina missí. Þá gerum við hin-
um föllnu að skapi, ef við töpum
ekki trúnni á möguleika lífsins,
trúnni á fullkomnara og kær-
leiksríkara líf og að dæmi þeirra
beitum móti stormum lífsins- í
örugga höfn friðar og bræðra-
lags. Blessuð sé minnig þeirra.
Búnaðarsamband
Dala- og Snæíellsnesss.
(Framh. af 2. siðu.)
Lengsti þáttur minningarrits-
ins fjallar um sögu búnaðarfé-
laganna og búnaðarsambands-
ins. Hefir Magnús Friðriksson
ritað hann. Er hann allra
manna kunnugastur þessu efni,
en hann hefir verið formaður
sambandsins öll þessi ár nema
fyrsta árið, og jafnan látið sér
mjög umhugað um störf þess
og hag, enda mikilhæfur bóndi
og framkvæmdamaður sjálfur,
sem kunnugt er. Er hér skil-
merkilega með efni farið og skal
ekki orðlengt um það. Að lokum
ritar Þorsteinn Þorsteinsson á-
grip um bændaför úr Dölum og
af Snæfellsnesi um Suðurland
sumarið 1939, glöggan þátt og
skemmtilegan. Eru slíkar kynn-
isfarir efalaust næsta gagnleg-
ar.
Þorkell Jóhannesson.
288 Rdbert C. Oliver:
un fyrir því, að jafnvel sterkasta keðja
getur slitnað.
Augu hans urðu þokukennd, og and-
iitið varð eins og dauð gríma, þegar
henn stóð og horfði á fagnaðarlætin,
sem urðu, þegar fangarnir urðu þess
vísir, að þeir voru frjálsir á ný.
Hin kremjandi, sorgþunga þögn er
ríkt hafði í húsinu, breyttist nú í
gleðigrát og fögnuð.
En úti í einu horninu stófu tvær
manneskjur í faðmlögum. Þær stóðu
þar í hamingjuríkri þögn og augun
fljótandi í tárum. Loksins höfðu þau
Bob og Lucy hittst, án þess að fanga-
grindur væru milli þeirra — loksins
mættust varir þeirra í kossi, sem þau
hafði lengi dreymt um, en að síðustu
misst trúna á----------
En við fætur Lucy hafði Bob lagt
skrínið góða, sem nú var endurfundið.
Yfirvöldin fengu nú málið í sínar
hendur til frekari rannsóknar. Kom þá
í ljós, að málið var flóknara og yfir-
gripsmeira en nokkur hafði trúað í
upphafi. Meðal annars kom í ljós, að
ýmsir embættismenn voru bendlaðir' við
málið. En árangurinn varð þó sá, að
þetta hreiður spillingarinnar var
hreinsað og nýr blær kom á allt llf og
réttarfar í bænum.
Æfintýri blaðamannsins 299
Braddoch skipstjóri leysti sitt starf
prýðilega af hendi. Hann flutti dans-
meyjarnar heim til Englands með skipi
sínu en önnur fórnarlömb Grabenhorst
voru afhent viðkomandi sendiherrum.
Meðal farþeganna á skipi Braddocks
voru auðvitað Lucy og Bob, blaðamað-
^ urinn, sem án þess að vita um það, var
aðalumræðuefnl heimsblaðanna þessa
stundina.
Meðan skipið skreið út Miðjarðar-
hafið, kepptust blöðin um að birta frá-
sagnir af æfintýrum Bobs í Marseille og
NUorður-Afríku. Og hann, sem heiðar-
legur blaðamaður varð að fyrirgefa
starfsbræðrum hans það í þetta sinn
þótt þeir svo að segja stælu efninu
frá honum. En hann hafði nóg annað
að hugsa um. Hann og Lucy höfðu ým-
islegt að segja hvort öðru..
Strax þegar hún var orðin ein, opn-
aði hún skrínið, sem hafði orðið hið
upphaflega tilefni allra þessara hræði-
legu viðburða.
Hún mundi það, eins og það hefði
skeð í gær, hvernig Sir Reginald —
faðir hennar — hafði beðið hana, með
angistarglampa í augunum, að. gæta
vel skrínisins, sem væri í neðstu skrif-
borðsskrúffunni.
Lucy bað Bob að vera hjá sér, með-
an hún opnaði þetta litla, skrautlega
Tónlistafélagig og
Leikf élag Rey k j avíkur
»NIT0UCHE«
Operetta í 3 þáttum eftir Harvé
SÝNING ANNAÐ KVÖLD KL. 8
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag.
ATH. Fyrsta klukkutímann
eftir að sala aðgöngumiða
hefst, verður ekki svarað í síma.
GAMLA BÍÓ------
Galdrakarlínn
í Oz
(THE WIZARD OF OZ).
Stórfengleg söng- og æf-
intýramynd, tekin í eðli-
legum litum af Metro-
Goldwyn-Mayer.
Aðalhlutverkin leika:
JUDY GARLAND,
FRANK MORGAN og
RAY BOLGER.
Sýnd kl. 7 og 9.
---—------NÝJA BÍÓ----—-
Ósýnilegi maður-
inn kemur aftur.
(THE INVISIBLE MAN
RETURNS)
Sérkennileg og hrikalega
spennandi amerísk mynd.
Gerð eftir nýrri sögu um
Ósýnilega manninn, eftir
enska skáldið H. G. Wells.
Aðalhlutverkin leika:
Sir CEDRIC HARDWICKE,
NAN GREY
VINCENT PRICE.
— Sýnd kl. 7 og 9. —
Börn inan 16 ára fá ekki
aðgang.
Innilega þakka ég öllum, sem auðsýndu mér samúð og
hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns EYJ-
ÓLFS SVEINSSONAR, kennara, Lambavatni.
Vilborg Torfadóttir.
ENSKT MUNNTÓBAK
Smásöluverð má eigi vera hærra en hér segir:
WILL’S BOGIE TWIST í 1 lbs. blikkdósum (hvítum).
Kr. 20.40 dósin.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjárðar má verðið vera 3%
hærra vegna flutningskostnaðar.
Smíða trúlofunarhringa
o. fl. Jón Dalmannsson
Grettisgötu 6. Rvík.
Leikf élag Reyk javákur
Á ÚTLEIÐ
eftir SUTON VANE.
Tóbakseiukasala ríkisins.
Reykjavík. Sími 1249. Símnefni: Sláturfélag.
Frumsýning í kvöld
kl. 8.
Reykhús. — Frystihús.
Niðursuðuverksmiðja. — Bjúgnagerð.
Hljómsveit undir stjórn Dr. V.
Úrbantschitsch aðstoðar við
sýninguna.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl.
1 í dag.
Börn innan 16 ára aldurs fá
ekki aðgang.
L ® 1 1
Framleiðir og selur í heildsölu og smásölu: Niður-
soðið kjöt og fiskmeti, fjölbreytt úrval. Bjúgu og alls-
konar áskurð á brauð, mest og bezt úrval á landinu.
Hangikjöt, ávallt nýreykt, viðurkennt fyrir gæði.
Frosið kjöt allskonar, fryst og geymt í vélfrystihúsi, eftir
fyllstu nútímakröfum.
Verðskrár sendar eftir óskum, og pantanir afgreiddar
um allt land.
Egg frá E^jasölusamlagi Reykjavíkur.
Enskt
mnnntóbak
Smásöluverð má eigi vera hærra en hér segir:
WILLS’S L.S. TWIST í 1 lbs blikkdósum (grænum)
16 stykkja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30.
WILLS’S X TWIST í 1 lbs. blikkdósum (rauðum)
16 stykkja, dósin á kr. 20.40, stk. á kr. 1.30.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera
3% hærra vegna flutningskostnaðar.
Tóbakseinkasala ríkisins
LJÓSAPERIJR
15, 25, 40, 60, 75
og ÍOO Watt
T U S K U R.
Kaupum hreinar ullar- og
bómullartuskur hæsta verði.
Húsgagnavinnustofan,
Baldursgötu 30.
ÞtSUM)lR VITA
að gæfan fylgir trúlofunar-
hringunum frá
SIGLRÞÓR
Sent gegn póstkröfu. — Sendið
HVÍTPÁLKI
(F.r. candlcans. Gmelin).
landselur
(Ph. vitulina L.).
SNÆU GLA
(Nyctea scandiaca L.).
FUGLAR ÞESSIR OG SELUR ER SETT UPP AF KRISTJÁNI GEIRMUNDSSYNI
Samkvæmt úthlutun styrkja frá ríkisstjórninni fyrir árið 1941, er mér veittur styrkur til þess að setja upp dýr og
fugla fyrir Náttúrugripasafnið í Reykjavík og skólasöfn út um land, fyrir lægra gjald en nú tíðkast I þessari iðn.
Get ég því nú tekið að mér að vinna þetta verk fyrir þá hlutaðeigendur, sem þessu vilja sinna, og eru þeir beðnir
að láta mig vita sem fyrst. Akureyri, 22. febrúar 1941.
KRISTJÁN GEIRMUNDSSON, ao Au„reyr..