Tíminn - 03.04.1941, Page 1
JÓNAS JÓNSSON.
ÚTOEFANDI:
FRAMSÓKNARPLOKKURINN.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Llndargötu 9A.
SÍMAR: 4373 og 2353.
AFGREIÐSLA, INNHEIMTA
OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Síml 2323.
PRENTSMIÐJAN EDDA hT.
Símar 3948 og 3720.
25. ár.
Reykjavík, fimmtudagiim 3. apríl 1941
Athngnn á keimslu
uppeldismálum
A 11> i n g i :
Ýms þingmál
Sparisjóðir
Ríkisstjórnin hefir lagt fram
frumvarp til laga um sparisjóði.
Frumvarp þetta er samið af
milliþinganefndinni í banka-
málum.
í frumvarpi þessu eru gerðar
allmiklar breytingar á núgild-
andi sparisjóðslögum. Aðal-
breytingarnar eru þrjár.
Fyrsta aðalbreytingin er sú,
að takmarka rétt sparisjóða til
áhættuútlána svo, að eigið fé
þeirra nemi minnst 8% af þeim.
Það, sem sparisjóði kann að ber-
ast af innstæðufé umfram það,
verður hann að geyma í sjóði, í
banka, í tryggum verðbréfum
eða lánum gegn góðu fasteigna-
veði.
Önnur aðalbreytingin er sú,
að sparisjöðir megi ekki lána
einum viðskiptamanni eða við-
skiptamönnum, sem eru fjár-
hagslega tengdir, meira en sem
svarar 35% af eigin fé og
ábyrgðarfé sínu.
Þriðja aðalbreytingin er sú,
að stofna skuli sameiginlegan
trygingarsj óð sparisjóða. Hver
sparisjóður skal greiða 2% af
nettóágóða sínum í þennan sjóð.
Tilgangur sjóðsins er að tryggja
innstæður í sparisjóðum og
greiðslur á þeim. Má hann veita
sparisjóði bráðabirgðalán, gegn
gildum tryggingum, til að full-
nægja skyldum sínum um
grelðslu á innlánsfé.
Allar þessar breytingar miða
að því að auka öryggi sparisjóða
og miðast við löggjafarákvæði,
sem vel hafa gefizt nágranna-
þjóðunum.
Brottflntnlngnr harna
Ríkisstjórnin flytur frv. um
heimild fyrir ríkisstjórnina að
taká á leigu skólahús, fundar-
hús og þinghús í sveitum, ef
þörf gerizt, að gera þessi hús að
dvalarstöðum fyrir börn úr
kaupstöðum og kauptúnum. Má
taka húsin leigunámi, ef sam-
komulag næzt. Stjórnin fer fram
á þessa heimild vegna styrjald-
arhættunnar.
Þ i n g sály kftunar lillaga
um að skípuð verði
nefnd sérfróðra manna
til að gera tillögur um
pau mál
Pálmi Hannesson og
Bjarni Bjarnason flytja í
sameinuðu þingi þings-
ályktunartillögu um skip-
un milliþinganefndar um
skólamál.
Tillagan er svohjóðandi:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að skipa milliþinga-
nefnd skólafróðra manna til
þess að rannsaka kennslu- og
uppeldismál þjóðarinnar og
gera tillögur um skipun þeirra,
þar sem stefnt sé að því að gera
skólana sem hagfelldasta, sam-
ræma skólakerfið, ákveða betur
en nú er starfssvið hinna ýmsu
skóla og sambandið þeirra á
milli.“
í greinargerðinni segir.
„Undanfarin ár hafa allmikl-
ar umræður orðið um skólamál
landsins. Margt hefir verið til
mála lagt, eins og vænta má, en
flestir virðast þó hallast að því,
að gera verði skólanám hag-
felldara en nú er það.
Ýmsar nýjungar í skólamál-
um og kennslu hafa verið reynd-
ar, flestar eftir erlendum fyrir-
myndum, en lítt mun hafa verið
rannsakað, hversu vel þær hafi
39. blað
Erlendar fréttir
Asmara, höfuðborg Eriteru,
gafst upp fyrir Bretum í fyrra-
dag. ítalski herinn hafði hörf-
að frá borginni og yfirvöld
borgarinnar tilkynntu þá Bret-
um uppgjöfina. Asmara hefir
nálægt 100 þús. íbúa, þar af
eru ítalir allstór hluti. Hún er
langstærsta borgin í nýlendum
ítala. Enn er ekki fullvíst, hvort
ítalir ætla sér að verja hafnar-
borg hennar, Massawa, en
þangað eru um 60 km. Er enn
ekki fullvíst, hvort leifar ít-
alska hersins hafa hörfað þang-
að eða inn í Abessiníu. Frá
Asmara liggur góður vegur, sem
ítalir hafa lagt, til Addis A-
beba. Þá leið fór ítalski herinn
til Addis Abeba í Abessiníu-
styrjöldinni. Opnast Bretum
því með töku Asmara ný leið til
Addis Abeba, en þangað kapp-
kosta þeir að komast áður en
regntíminn hefst.
Strandvarnarlið Bandaríkj -
anna hefir tekið í umsjá sína
öll þýzk, ítölsk og dönsk skip í
höfnum landsins. Þýzku og ít-
ölsku skipshafnirnar hafa jafn-
framt verið teknar til gæzlu, en
dönsku skipshafnirnar fá að
ganga lausar. Strandvarnarliðið
segist hafa gert þetta af ótta
við, að unnin yrðu skemmdar-
verk í skipunum. Strax eftir að
þessi ráðstöfun var kunn,
byrjuðu líka þýzkar skipshafnir
að eyðileggja skip, sem lágu í
höfnum Suður-Ameríku. Hafa
nú flest ríki Ameríku gripið til
sömu ráðstafana og Bándarík-
in, þar á meðal Mexikó og
Brazilía. Stjórnir Þýzkalands og
Ítalíu hafa látið sendiherra sína
í Washington mótmæla þessum
Afstaða Bandaríkjamanna
til þátttöku í styrjöldinni
Roosevelt hefir miklu sterkari adstöðu
en Wilson halði 1917
gefizt eða hvort ástæða sé til að aðgerðum, en þau mótmæli
taka þær upp sém fasta skipun
í skólahaldi hér.
Skólakerfi landsins er hvergi
nærri svo samfellt sem ýmsir
telja æskilegt og annars staðar
tíðkast. Hin síðari ár hafa vax-
ið upp skólar, sem ekki eru í
eðlilegum tengslum við aðra
skóla, og starfa þeir ekki undir
eftirliti fræðslumálastjórnar-
innar, nema þá að litlu leyti.
Þá hefir eigi verið rannsakað,
hvort þeir skólar, sem nú eru í
landinu, fullnægja fræðslu-
þörfinni. Af þessum ástæðum
(Framh. á 4. síðu.)
hafa ekki verið höfð að neinu.
Loftárásir á Bretland og
Þýzkaland hafa aftur færst í
aukana. Bretar telja sig vera
farna að nóta nýjar sprengjur,
sem séu fimm sinnum kröftugri
en þær tegundir, sem þeir hafa
notað áður. Jafnframt segja
þeir, að allar líkur séu til, að
bráðlega verði enn ægilegri
sprengjur teknar í notkun.
Bretar segja, að ítalir og
Þjóðverjar safni liði við landa
mæri Júgóslavíu, en í þýzkum
(FramJi. á 4. síðu.)
Bretar þurfa að fá hjálp og
þeir skulu fá hana ....
Þannig fórust Roosevelt for-
seta orð í ræðu, sem hann hélt
rétt eftir staðfestingu láns- og
leigulaganna. Vegna ræðu þess-
arar kölluðu þýzku og ítölsku
blöðin hann stríðsæsingamann-
inn nr. 1. Samkvæmt dómi
þeirra var hann orðinn verri en
sjálfur Churchill!
Það er nú rætt í heimsblöð-
unum, hvort Roosevelt forseti
geti efnt þetta loforð, án
beinnar styrjaldarþátttöku.
Eins og sakir standa þurfa
Bretar ekki á auknunT herafla
að halda, en þeir þurfa flug-'
vélar, skip, skriðdreka og her-
gögn. Þetta geta þeir fengið í
Bandaríkjunum. En þeir þurfa
meira. Þeir þurfa að koma her-
gögnunum til Bretlands. En
þá þrýtur bæði skip til flutn-
inga og herskip til að vernda
flutningaskipin.
Við seljum ekki Bretum her-
gögn til þess að Þjóðverjar
sökkvi þeim ....
Þessi ummæli eru einnig tek-
in úr framangreindri ræðu
Roosevelts.
Hér er komið að kjarna máls-
ins: Ætla Bandaríkin að láta
ameríska flotann og amerísk
kaupskip aðstoða við flutning-
ana til Bretlands? Verður það
gert án styrjaldar við öxulrík-
in?
Eins og nú standa sakir, sigla
ekki amerísk skip til Bretlands.
Það álit virðist stöðugt verða
útbreiddara, að Bandarikin
muni dragast inn í styrjöldina.
Með tilliti til þess er gerður
samanburður á því, hvort
Roosevelt hafi nú betri aðstöðu
en Wilson, þegar hann sagði
Þjóðverjum stríð á hendur í
seinustu heimsstyrjöld. Sá sam-
anburður er í stuttu máli þessi:
Fólk af enskum ættum er enn
hlynntara styrj aldarþátttöku nú
en 1917. Sama má segja um
Frakka.
WENDEL WILKIE,
áhrifamesti þýzkœttaði maðurinn í
Bandarlkjunum er einhver öflugasti
stuðningsmaður Breta.
Morgunblaðið og
jarðræktarlögin
Nýlega flutti Mbl. grein um
j arðræktarlögin frá 1923 og
taldi Framsóknarmenn ekki
hafa átt nokkurn þátt í þeirri
lagasmíð. Við þetta er að at-
huga:
1. Tíminn var 1 6 ár búinn að
berjast fyrir stórauknum fram-
lögum til landbúnaðarins.
2. Vegna þeirrar vakningar
var Búnaðarfélag ísland búið að
fá mikil fjárráð.
3. Það voru Framsóknarmenn,
sem gerðu Sigurð Sigurðsson að
búnaðarmálastjóra og studdu
íélagið og hann til fram-
kvæmda.
4. Lang þróttmesti hugsjóna-
og athfanamaður landsins,
Hallgrímur Kristinsson, var
aðalmaður í stjórn Búnaðarfé-
lags íslands þegar ráðizt var í
jarðræktarlögin. Frá honum
kom stórhugurinn í þessum að-
gerðum. Enn eru til frumdrætt-
ir að frumvarpi laganna með
hans hendi.
5. Mbl.-mönnum var svo lítið
um Sigurð Sigurðsson, að þeir
neituðu að styðja jarðræktar-
lögin nema með því, að Búnað-
arfélag íslands væri svift sjálf-
(Framh. á 4. siðu.)
Jk. KROSSGÖTTJM
Úr verstöðvunum. — Bifreiðakaupin. — Skipreika mönnum bjargað. —
nes sækir um kaupstaðarréttindi. — Öndvegistíð.
Akra-
Síðan siglingar til Englands tepptust
hefir aflinn í verstöðvunum hér syðra
verið saltaður. Saltleysi hefir þó verið
til mikils baga og jafnvel hindrað sjó-
sókn víða. Er útlit fyrir að algerlega
verði saltlaust mjög bráðlega. Afla-
brögð eru ágæt í Faxaflóa, einkum frá
Keflavík og Sandgerði, en Akranesbát-
ar hafa fengið öllu misjafnari afla.
Austan fjalls er nú fremur tregur afli.
trt
Tíminn hefir átt viðtal við Svein
Ingvarsson, forstjóra Bifreiðaeinkasölu
ríkisins. Hann greindi svo frá kaupum
þeim á vörubifreiðmn, sem nú eru á
döfinni: — Það hefir orðið að samn-
ingum, að brezka innkaupanefndin í
Vesturheimi festi kaup á 250 nýjum
vörubifreiðum handa íslendingum. —
Verða bifreiðar þessar afhentar i New
York, en þaðan eigum við sjálfir að sjá
um flutning á þeim heim. Enn er flest
í óvissu um það, hvaða skipakostur
verður til þess fenginn, en sökum þess,
hversu hér er um mikinn flutning að
ræða, verður ekki hægt að koma öllum
þessum bifreiðakosti í einu yfir hafið.
Sennilegt er, að það takist að koma
fyrstu bifreiðunum hingað i byrjun
júnímánaðar. Um þessar mundir er
allmikið talað um vörubifreiðar þær,
sem bjargað hefir verið úr strand-
skipi austur á söndunum í Vestur-
Skaftafellssýslu. í skipi þessu voru um
100 bifreiðar og hefir meginþorranum
verið bjargað á land þar eystra. Enn er
það eigi til lykta leitt, hvort þessar manna voru kínverskir, en hinir norsk-
bifreiðar verða seldar hér, þótt líkur ir. Það þykir i frásögur færandi, að
sé til að svo verði málum ráðið, né einum norska sjómanninum háfði tví-
hvenær sú sala gæti farið fram, ef að vegis áður verið bjargað af flaki eða úr
því ráði yrði horfið. En þótt þessar björgunarbátl af íslendingum.
bifreiðar verði seldar hér, er það óvið- ; tft
komandi bifreiðakaupunum vestan j Aa undanfömu hefir verið uppi um
hafs,ogmunsamibifreiðakosturkoma!þaö nokkur ^eyfmg á Akranesi að
þaðan, hvað sem afráðið verður iim
bílana úr strandsklpinu. Bifreiðarnar,
sem koma eiga frá New York eru flest-
ar Ford- og Chevrolet-bifreiðar, en I
strandskipinu voru G. M. C. bifreiðar.
Þeir, sem hug hafa á að festa kaup á
nýjum vörubifreiðum hafa að undan-
förnu verið að senda Bifreiðaeinkasöl-
unni umsóknir sinar. Eru þegar komn-
ar á sjöunda hundrað slíkar umsóknir,
og sjálfsagt bætast margar við enn. Er
þvi sýnt, að ekki geta allir, sem þess
óska, fengið nýjar vörubifreiðar í ár,
þótt allt gangi að óskum um kaupin
vestra og heimflutninginn.
t r t
Frá því að styrjöldin hófst hafa ís-
lenzkir sjómenn bjargað miklum fjölda
skipreika manna, er þeir hafa fundið
á hafi úti. Nemur tala manna, er þeir
hafa bjargað þannig, nokkuð á annað
þúsund. Nýlega björguðu skipverjar á
togaranum Hilmi tíu mönnum á leið
sinni til Englands. Voru þéir af norsku
sklpi, er kafbátur hafði sökkt úr skipa-
lest. Skipverjar á þessu norska skipi
voru alls 34 og fóru þeir í þrjá báta.
Báturinn, er skipverjar á Hilmi fundu,
varð fráslúla hinum. Tveir þessara sjó-
sækja um bæjarréttindi kauptúninu til
handa. Nefnd manna hefir fjallað rnn
málið og kynnt sér, hvort æskilegt
væri að öðlast slík réttindi. Niðurstað-
an, er nefndin komst að, var sú, að
hagfelldara væri að fá bæjarréttindi.
Síðastliðinn sunnudag fór fram almenn
atkvæðagreiðsla um það á Akranesi,
hvort æskja skyldi slíkra breytinga. Af
þeim, er atkvæði greiddu, voru 90 af
hverju hundraði þvi meðmæltir, að
bærinn fengi kaupstaðarréttlndi. íbúar
á Akranesi eru nú um 2000. Hefir ibú-
um þar fjölgað óðfluga hin síðari ár.
t t t
Hin mesta öndvegistíð hefir verið um
land aUt síðustu vikur, stUlur og blið-
viðri og mikið sólfar. Frost hefir verið
sums staðar, en þó vægt. Um mikinn
hluta landsins er snjólaust tU efstu
fjallabrúna og í öllum byggðarlögum
landsins snjólaust að kalla. Veturinn
hefir, svo sem að líkum lætur, verið
ákaflega gjafaléttur fyrir sauðfjár-
bændur o gsums staðar hefir fullorðnu
fé ekki verið gefin nokkur heytugga,
ekki sízt þar sem bændur hafa haft
sUdarmjöl tU þess að gefa með beitinni.
Fólk af Norðuxlandaættum
er nú hlynnt styrjaldarþátt-
töku, sökum hernáms Noregs
og Danmerkur, en það var mjög
fylgjandi einangrunarstefn
unni í seinustu heimsstyrjöld.
Miðað við fólksfjölda hafa
menn af Norðurlandaættum
mikil áhrif i Bandaríkjunum
írar, sem eru allfjölmennir i
Bandaríkjunum, voru mjög
fjandsamlegir Bretum í sein-
ustu heimsstyrjöld, en eru nú
yfirleitt hlynntir þeim og óska
þeim sigurs.
Þýzkættað fólk fylgdi Þýzka-
landi næstum óskipt í seinustu
styrjöld, en er nú mjög tvískipt.
Áhrifamestu þýzku blöðin í
Bandaríkjunum eru andvíg
nazismanum og svipað má segja
um helztu áhrifamenn af þýzk-
um ættum, t. d. Wilkie. Þýzku
nazistafélgin í Bandaríkjunum
hafa ekki náð miklu fylgi.
ítalir eru einnig tvískiptir, en
helztu áhrifamenn af ítölskum
ættum, t. d. La Guardia borg
arstjóri í New York, eru ákafir
fylgismenn Breta.
Japanir, Kínverjar og Svert
ingjar hafa ekki mikil áhrif í
Bandaríkjunum og má segja, að
Japanir og Kínverjar, sem eru
sitt á hvorum meiði, vegi salt.
Framangreind skilgreining
leiðir það ótvírætt i ljós, að
Roosevelt muni hafa miklu
sterkari aðstöðu nú, ef til styrj
aldar kemur, en Wilson hafði
1917.
Ýmsir kunna að benda á and-
stöðuna gegn láns- og leigulög
unum og segja, að hún sýni
annað. En þar er því að svara;
að aðalröksemd margra gegn
þeim var sú, að þau veittu for
setanum of mikið vald. Hins
vegar lýstu margir þeirra þing-
manna, sem greiddu atkvæði
gegn lögunum yfir því, að þeir
vildu hjálpa Bretum á allan
hátt.
Það virðist því hiklaust mega
fullyrða, að Roosevelt muni
njóta einróma fylgi meginþorra
bandarísku þjóðarinnar, ef að
stoð Bandaríkjanna við Breta
neyðir þau til beinnar þátttöku
í styrjöldinni.
Fyrir ári síðan myndi þetta
hafa verið talið ótrúlegt. En
það er nú orðin almenn skoðun
í Bandarikjunum, að Bandarík
in dragist fyrr eða síðar í styrj
öld, ef Bretar tapa, og að þá
verði barizt á vesturhelmingi
hnattar en ekki á austurhelm-
ingnum. Þess vegna sé betra að
skerast í leikinn fyrr en seinna.
Stimson hermálaráðherra hef-
ir orðað þetta þannig: Það
skiptir ekki mestu máli, að
halda Bandaríkjunum utan
styrjaldarinnar, heldur að halda
styrjöldinni utan Bandaríkj-
anna.
(Framh. á 4. síðu.)
Á víðavangi
HAUSTKOSNINGAR.
í Mbl. í gærmorgun er hreyft
leirri hugmynd, að Alþingi
verði frestað nú og það látið
koma aftur saman í september
næstkomandi. Er blaðið þessu
mjög meðmælt og færir fram
iá kynlegu röksemd, að orust-
an um Atlantshafið muni verða
hörðust næstu mánuðina og sé
ekki gott að ráða fram úr inn-
anlandsmálum okkar meðan
hún stendur sem hæst! Þessu
er því að svara, að þau mál,
sem Alþingi ber brýnust skylda
til að afgreiða, t. d. skatta-
málin, eru þannig vaxin, að þau
DOla ekki bið til hausts. Þing-
frestunin létti því að litlu eða
engu leyti störf þau, sem Al-
pingl þarf að vinna að þessu
sinni. Hins vegar hefði hún það
för með sér, að kosningar
myndu verða í haust. Haust-
kosningar eru stórhættulegar
fyrir dreifbýlið. Óhagstæð veð-
ur geta valdið því, að menn
komist þar alls ekki á kjörstað.
Þess vegna geta ekki þeir, sem
vilja unna kjósendum í dreif-
býlinu fulls réttar, sætt sig við
haustkosningar. Þessi tillaga
Mbl.manna lýsir vel hug þeirra
til dreifbýlisins og sýnir, að
hann er enn sá sami og hann
hefir áður verið.
FRESTUN KOSNINGA.
Þeirri hugmynd hefir einnig
skotið upp, að fresta ætti kosn-
ingu um ákveðinn tíma, t. d.
eitt ár, sökum hins óvenjulega
ástands. Er þetta m. a. rök-
stutt með því, að ef óvenjulega
atburði beri að höndum, sé
háskasamlegt, ef ráðherrar séu
fjarverandi í kosningaleiðöngr-
um. Þá séu menn heldur ekki í
kosningaskapi, ef ísland verði
þá orðinn frekari vettvangur
hernaðaraðgerða en þegar er.
Þeir, sem þessu halda fram,
hafa vissulega talsvert til síns
máls. En hér er líka um ráð-
stöfun að ræða, er menn mega
ekki hrapa að hugsunarlítið.
Frestun kosninga fer í bága við
stjórnarskrána, sem á að vera
þjóðinni helgur dómur. Frá
grundvallaratriðum hennar má
ekki víkja, nema í brýnustu
neyð. Ekkert lýðræðisland, sem
ekki er styrj aldaraðili, hefir
frestað kosningum síðan þessi
styrjöld hófst. Kosningar hafa
verið í Bandaríkjunum og Svi-
þjóð, og áttu þó Svíar váveif-
lega atburði yfirvofandi meðan
á kosningaundirbúningnum
stóð. Þess ber líka að gæta, að
ef einhverjir stórfelldir atburðir
gerðust, sem snerta verulega
störf og ákvarðanir Alþingis,
er það langtum öruggara að Al-
þingi standi á grundvelli
stjórnarskrárinnar og sé óum-
deilanlega löglegt þing. Það
virðist líka reynsla þess þings,
er nú situr, að samningar milli
flokkanna gangi erfiðlegar,
þegar þeir eiga kosningar fyrir
dyrum. Þetta verða menn að
gera sér Ijóst. Það má ekki gera
neitt, er dregur úr öryggi
stjórnarfarsins og getur haft
hættulegar afleiðingar, nema
brýnustu nauðsyn beri til, og
sem betur fer virðist hún enn
ekki fyrir hendi. '
HVERGI BILBUGUR EÐA
UNDANHALD.
Sá sjúkdómur fylgir styrj-
öldum, að margir menn gerast
bölsýnni og kjarkminni en ella,
vilja gjarna fleygja frá sér
allri ábyrgð og láta sig einu
gilda, hvert atvikin kunna að
bera þá. Þegar slíkur hugsun-
arháttur nær tökum á styrj-
aldarþjóð, er henni ósigurinn
vís. En þessi hugsunarháttur
er ekki síður hættulegur fyrir
þær þjóðir, sem eru ekki bein-
ir styrjaldaraðilar, en eiga þó
tilveru sína mjög undir hern-
aðaratburðunum. Þvl er ekki að
leyna, að þessi hugsunarhátt-
(Fratríh. á 4. siðu.)