Tíminn - 03.04.1941, Blaðsíða 4
156
TÍMDíN, fimmtmlagiim 3. aprfl 1941
39. blað
tfR BÆHUM
F. U. F. í Reykjavík
heldur fund í Edduhúsi í kvöld.
Merkileg mál á dagskrá. Áríðandi að
félagsmenn mæti vel og stundvíslega.
Deildarfundir Kron.
í kvöld ki. 8,30 heldur 4. deild fundi
í baðstofu iðnaðarmanna. Annað kvöld
heldur 8. deild fund á sama stað.
Loftvarnaræfing
verður hér í bænum i fyrramálíð, að
ákvörðun loftvamanefndar.
Páll ísólfsson.
í gær voru liðin 25 ára síðan Páll
ísólfsson hélt fyrsta opinberan tónleik
sinn hér i bænum.
Nemendur frá Laugarvatni
höfðu fímleikasýnlngu í húsi Jóns
Þorsteinssonar síðastl. þriðjudagskvöld.
Sýndu um 40 piltar og 30 stúlkur fim-
leika undir stjóm kennaranna Björns
Jakobssonar og Guðjóns Ingimundar-
sonar. Pleiri nemendur gátu ekki tekið
þátt í sýningunni, sökum fjarveru. Á-
horfendur voru margir og vakti sýn-
ingin mikla aðdáun.
Togararnir,
sem voru í Englandi, þegar sigling-
arnar voru stöðvaðar, eru komnir helm
heilu og höldnu. Höfðu þeir samflot.
Mbl. og jarðræktarl.
Athngnn . . .
(Framh. af 1. síOu.)
öllum þykir æskilegt, að
kennslumálin verði tekin til
rækilegrar rannsóknar af hæf-
um mönnum, er síðar geri til-
lgur til ríkisstjórnarinnar um
þær endurbætur, er þeir telja
nauðsynlegar."
Á flokksþingi Framsóknar-
manna í marz var samþykkt
áskorun til fræðslumálastjórn-
arinnar um skipun slíkrar
nefndar.
Ætlazt er til þess, að nefnd
þessi athugi alla skólaskipun
landsins, allt frá barnaskólum
til háskólans.
Slík nefnd hefir nýlega verið
skipuð í Svíþjóð. Skipunarbréf
þeirrar nefndar ber með sér, að
ætlazt er til að hún geri tillögúr
um mjög víðtækar breytingar.
Einkum virðist það talið mestu
skipta, að nefndin leggi aukna
áherzlu á hina siðferðilegu hlið
námsins, meiri verklega kennslu
og íþróttir. Hins vegar verði
ekki kappkostað jafnt og áður
að troða í nemendurna ákveð-
inni þekkingu um fjölga margt,
sem aldrei kemur þeim að veru-
legum notum.
(Framh. af 1. síðuj *
stæði sínu, 2 af 3 stjórnarmönn-
um kosnir af Alþingi. Játaði S.
S., að hann hefði orðið að sætta
sig við þetta vantraust frá hálfu
Mbl.-manna til þess að fá
styrkinn handa bændunum.
6. Thor Jensen hafði engin
afskipti af jarðræktarlögunum,
nema að hann fékk þúfnaban-
ann ódýra hjá S. S. til jarð-
vinnslu á Korpúlfsstöðum. Mbl,-
menn kusu kunnan óvildar-
mann S. S. í stjórn Búnaðarfé-
lags íslands til að herða sem
mest böndin að búnaðarmála-
stjóra. Myndi S. S. hafa verið
ólíft í stöðunni eftir 1923, ef
Tímamenn hefðu ekki stutt
hann.
7. Að lokum ætti Mbl. að rann-
saka, hvað olli tregðu J. Þ. að
greiða jarðræktarstyrkinn ár-
ið 1924.
Erlendar íréttlr.
(Framh. af 1. síðu.)
fréttum segir, að Júgóslavar
sendi nú sem óðast herlið* til
landamæranna og láti mjög ó-
friðlega. Þýzk og ítölsk blöð
birta stöðugar fréttir um illa
meðferð ítala og Þjóðverja í
Júgóslavíu. Sendiherra Þjóð-
verja í Belgrad hefir verið
kvaddur heim.
Afstaða Bandaríkjam.
(Framh. af 1. síöu.)
Meðal almennings 1 Banda-
ríkjunum virðist nú, ef dæma
má af ummælum blaða og
stjórnmálamanna, vera að rísa
sterk áhugabylgja, sem setur
frelsið og endurreisn þess hjá
kúguðum þjóðum ofar öllu.
Þess vegna má á næstunni
vænta mikils skerfs frá Banda-
ríkjunum í þeim átökum, sem
nú eiga sér stað í heiminum.
Á víðavangl.
(Framh. af 1. síðu.)
ur er að byrja að gera vart við
sig hér á landi. Hafnbannsyf-
irlýsing Þjóðverja hefir haft
þau áhrif á ýmsa, að þeir vilja
helzt leggja árar í bát, hætta
siglingum og fiskveiðum,
hundsa ýms mikilsverðustu á-
kvæði stjórnarskrárinnar o. s.
frv. Aðrir tala um að fresta
þessu og þessu þangað til þetta
og þetta sé komið fram o. s. frv.
Útbreiddasta Reykj avíkurblað-
ið talar um að fresta eigi þing-
inu og sjá hvernig styrjöldinni
um Atlantshafið lýkur. Menn
virðast ekki hafa gert sér ljóst,
að þessi styrjöld getur staðið í
mörg ár, og það eru jafnvel
mestar líkur til þess að svo
veröi. Viðureignin á Atlants-
hafinu í sumar verður kannske
barnaleikur hjá þeirri viður-
eign, sem getur orðið þar síðar.
Þess vegna er bezt að vera ekki
að stinga þjóðinni svefnþorn
með orðum eins og frestur og
bið. Þjóðin verður að ganga
með fullri einurð og karl-
mennsku að venjulegum störf-
um sínum eins og ekkert hafi í
skorizt, meðan það er fært.
Það á ekki að fresta neinu eða
bíða eftir neinu, nema sérstök
atvik geri það óumflýj anlegt.
Vígorð forsetans: Aldrei a ð
víkja, á aldrei meiri rétt á sér
en á slíkum tímum. Það má
hvergi víkja af hólmi, hvar-
vetna verður að reyna að haldá
í horfinu, og meðan unnt er,
verður að halda 1 heiðri grund-
vallarreglum þess stjórnarfars,
sem við kjósum okkur helzt til
handa. Ef fyrri leiðir kunna að
lokast, verður að ganga að því
með fullri djörfungu, að reyna
að finna nýjar. Hvergi bilbug-
ur, hvergi undanhald, það er
krafan, sem íslenzka þjóðin
verður að gera til sín í dag.
Sjötta flokksþlng
Framsóknarmanna
(Framh. af 3. siðu.)
fyr en varir kemur vandinn að
byggja upp hið nýja riki. Sá
vandi er vitaskuld að mörgu
leyti því meiri, sem þjóðin er
minni. Til að tryggja framtíð
hins nýja ríkis og hins nýja
frelsis, þarf að sameina alla
nýtilega menn í landinu, alla
nema þá, sem tilheyra útlendu
og ættjarðarlausu flokkunum,
kommúnistum og nazistum.
Samþykkt frelsismálanna á
flokksþingi Framsóknarmanna
er að minni hyggju mikils-
verðast af því, að þar er bent
á leið, sem gefur tíma og tæki-
færi til að skýra frelsismálið,
lífga og hressa þjóðina, og
sameina hana í leitinni eftir að
öðlast hin helgustu og dýrmæt-
ustu af öllum réttindum: Full-
komið frelsi og fullkomið þjóð-
arsjálfstæði. Mesta hindrun á
þessum vegi er moðsuðublær-
inn, sem settur var á íslenzk
frelsismál með samningunum
1918. Hálfleikinn og tvöfeldnin
í þeirri framkvæmd kemur
fram í því, að í hverju stór-
landinu af öðru er ísland enn
nefnt „dönsk eign“ og „dönsk
eyja“. Stöðugt kemur í
ljós, hvílík fífla-paradís það
er, sem þeir menn hafa búið í,
sem halda að danska moðsuð-
an frá 1918 hafi gert íslend-
inga frjálsa.
Að þessu marki, lýðveldis-
myndun innan þriggja ára,
liggur ein'n vegur, og út frá
honum ein dimm og háskaleg
fjörtjónsgata.
Vegurinn að fullum skilnaði
er sá, að byggja á dómi heil-
brigðrar skynsemi. Stríðið hefir
gert pólitískt samstarf íslands
og Danmerkur að markleysu.
Danir annast hvorki utanríkis-
mál okkar eða strandgæzlu.
Konungur Dana getur ekki
framkvæmt konungsverk fyrir
íslendinga. Þeir þrír ríkisréttar-
fræðingar, sem mest hafa feng-
ist við skýringu á dansk-íslenzka
sáttmálanum: Bjarni Bene-
diktsson, Einar Arnórsson og K.
Berlin, hafa allir í fræðiritgerð-
um um málið talið vanefndir
miklu minni en þær, sem nú
hafa gerzt um samband íslands
og Danmerkur, nægilegt til
sambandsslita. Jafnframt því
hefir formaður Sjálfstæðis-
flokksins birt allmikið af fræði-
legum röksemdum ríkisréttar-
fræðinga í stórlöndum álfunn-
ar, sem hníga allir eindregið í
sömu átt og Bjarni Benedikts-
son hefir haldið fram í hinni
kunnu Andvaragrein um sjálf-
stæðismálið.
Það er ekki aðeins æskilegt,
heldur ófrávíkj anleg skylda Al-
þingis, að lýsa yfir niðurfalli
sambandsins við Dani vegna
vanefnda af orsökum styrjald-
arinnar. Framsóknarflokkurinn
hefir heitið eindregnum stuðn-
ingi við þessa leið. Hvort hin
endanlegu sambandsslit verða
tilkynnt i vetur, eða stuttu síðar
er komið undir því með hve
miklum hraða umræður og at-
322 Robert C. Oliver:
sér. Og ef ég vissi eitthvað skyldl ég
segja það.
— Hugsið yður nú vel um, Cabera. Það
er mikils virði fyrir yður, ef þér getið
gefið mér þessa bendingu. Graben-
horst sótti mikla peninga heim til sin
áður en hann hvarf. Með þessa peninga
ætlar hann sér að setjast að einhvers
staðar. Og hvar sá staður er, verð ég að
vita. Og þér vitið það!
Skyndilega kom glampi i augu Ca-
bera. Honum hafði dottið nokkuð i hug.
— Þér segið það — ég hafði alveg
gleymt því — nú man ég að hann sagði
einu sinni við mig:
Þegar ég er búinn að græða nóg, Ca-
bera, ætla ég að fara með auðæfi mín
heim í fæðingarbæ minn. Þar hefi ég
alizt upp eins og hver annar götu-
strákur — þar þekki ég hverja smugu
og hvern eínasta íbúa. Þar vil ég elga
heima.-
— Og hvað heitir fæðingarbær hans?
spurði Taylor ákafur og hallaði sér
fram í stólnum.
Cabera hugsaði sig um. — Það er
lítill, fátæklegur bær í Austur-Galizíu.
— Czernow minnir mig að hann heiti.
Taylor þaut á fætur.
— Þetta er nóg, sagði hann! Nú verð
ég að hafa hraðann á. Þetta voru mikl-
ar og verðmætar upplýsi'ngar.
Æfintýri blaðamannsins 323
— Nú megið þér taka við honum,
sagði leynilögreglumaðurinn um leið og
hann hraðaði sér fram hjá undrandi
lögregluþjónunum. — Ég er að flýta
mér.------Bon soir!
XXIV.
Eftir skamma stund sat John Taylor
í flugvél á flugvellinum, reiðubúinn að
leggja af stað. Áður en hann lagði af
stað, hafði hann sent Scotland Yard
skeyti um það, að hann væri að leggja
af stað frá Marseille til Czernow í
Austur-Galiziu. Einnig hafði hann sent
skeyti til Lissabon, en þar var ferða-
mannaskipið, sem Bob var með. Bað
hann Bob að hitta sig á „Hótel Albert"
í Berlín samstundis.
Skeytið kom i tæka tíð, hálfri klukku-
stundu áður en skipið átti að leggja af
stað.
Bob sýndi Lucy skeytið.
— Hvað finnst þér? sagði hann nokk-
uð hikandi.
Lucy las skeytið og varð hnuggin.
Þurfti hún þá að skilja við Bob svona
fljótt aftur. En hún minntist óskar föð-
ur hennar, og svo var Bob blaðamaður.
— Það er ekki nema um itt að velja
-----þú verður að fara.
— En hamingjan góða — á ég —
viltu að ég fari?
yAV-,
SMIPAUTCERÐ
iuilhi.xt
M.s. Esja
Áætlað er að skipið farai héð-
an f hraðferð til Akureyrar mið-
vikudag 9. apríl kl. 6 og komi
aftur að morgni þriðjudags 15.
apríl. Komið við á Patreksfirði,
ísafirði og Siglufirði í báðum
leiðum.
Farþegar á Skíðavikuna á
ísafirði fá merki Skíðavikunn-
-GAMLA BÍÓ-
Tónskáldlð
Victor Herbert
(The great Victor Herbert)
Amer. söngmynd um vin-
sælasta söngleikahöfund
Ameríku. — Aðalhlutv.
leika aðalsöngvararnir:
MARY MARTIN
ALLAN JONES
og „karakter‘;-leikarinn
WALTER CONNOLLY.
Sýnd kl, 7 og 9.
-------NÝJA BÍÓ--—-—
Tower
í London!
(TOWER OF LONDON)
Söguleg mynd frá „Uni-
versal Picturesöí, er bregð-
ur upp myndum af Lon-
don 15. aldar, og aldar-
hætti þess tíma.
Aðalhlutv. leika:
BASIL RATHBONE,
BARBARA O’NEIL,
NAN GREY
BORIS KARLOFF.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
Sýnd kl.7 og 9.
-—.——----------------
Innilegt þakklæti til allra vinanna nær og fjær, sem
sýndu mér samúð og gáfu gjafir við andlát og jarðarför
mannsins míns Kristinns Jóhannssonar.
Guð launi ykkur ölium.
ALDÍS SVEINSDÓTTIR, Sauðárkróki.
Eftirtaldar vörur
höfum v ið venjulega til sölu:
Frosið kindakjöt af
DILKUM — SAUÐUM — ÁM.
NÝTT OG FROSIÐ NAUTAKJÖT,
SVÍNAKJÖT,
ÚRVALS SALTKJÖT,
ÁGÆTT HANGIKJÖT,
SMJÖR,
OSTAR,
SMJÖRLÍKI,
MÖR,
TÓLG,
SVIÐ,
LIFUR,
EGG,
HARÐFISK,
FJALLAGRÖS.
Samband ísl. samvínnuíélaga.
ar, sem gildir sem aðgöngumiði
innifaiið í fargjaldi með skipinu
fram og til baka.
Skíðafélag ísafjarðar vill
reyna að greiða fyrir því, að
skíðafólk fái gistingu þar á
staðnum og óskar að fólk Iáti
vita, þegar það pantar far, hvort
það er aðstoðar þurfi í þessu
efni.
Vörur óskast afhentar og
pantaðir farseðlar sóttir í síð-
asta lagi á þriðjudag.
burðir þoka lýðræðisflokkun-
um, í óhvikula fylkingu um
málið.
VI.
Hver er blindgatan eða
háskavegurinn? Það er að
ganga til endurskoðunar á sátt-
málanum frá 1918. Þess er eng-
in þörf, þar sem sáttmálinn er
nú þegar fallinn úr gildi sam-
kvæmt dómsúrskurði heilbrigðr-
ar skynsemi og áliti lærdóms-
manna í þeirri grein. í öðru lagi
er þessi leið ófær Framsóknar-
mönnum, því að þeir eru
bundnir við framkvæmd skiln-
aðar innan þriggja ára, en end-
urskoðun, sem þó snertir ekki
konungsvaldið, getur auðveld-
lega tekið lengri tíma. í þriðja
og síðasta lagi er nú svo
breytt högum Dana, að þeir
fara ekki með sín utanríkismál,
heldur eru þau í höndum fram-
andi þjóðar. Ef við réttum hönd
til Danmerkur um málefni okk-
ar og Dana, þá er hinni is-
lenzku hönd mætt af járnuðum
glófa Þýzkalands. Það er naum-
lega hægt að hugsa sér meira
sambland af barnaskap og létt-
úð af hálfu íslendinga en að'
leggja þjóðarskútunni á þann
veg, að skuturinn liggi í fest-
um við hervald Englendinga á
sjónum og í sjálfu landinu, en
stefnið verði um nokkurra ára
skeið tengt með öruggum viðj-
um við mesta herveldi á megin-
landi álfunnar. Stærri ríki en
ísland hafa molnað mélinu
smærra milli enska flotavalds-
ins og hervalds Þjóðverja á
meginlandinu.
VII.
Þótt undarlegt sé, virðast
margir menn hér á landi ekki
vita, að Þjóðverjar ráku hinn
vinsæla og vitra dr. Munch úr
utanríkisráðherrastöðu í Kaup-
mannahöfn þegar í vor, og
settu í stað hans danskan
nazista að nafni Scavenius, sem
hefir um það bil sama mann-
gildi og sama sjálfstæði gagn-
vart Hitler eins og Guð-
brandur Jónsson myndi hafa
hér á landi, ef hér væri sterkt
þýzkt setulið og öllu stjórnað
af Þjóðverjum. Jafnframt var
Danmörk slitin úr öllu sam-
bandi við sendimenn sína
handan við höfin. Þjóðverjar
höfðu raunverulega tekið dönsk
utanríkismál í sínar hendur. 7.
júlí lýsti Scavenius hátíðlega
yfir opinberlega með hinu fúl-
asta smjaðri gagnvart Þýzka-
landi, að Danmörk væri einn
liður í hinu sigursæla kerfi
Stór-Þýzkalands. Litlu síðar
lýsti sendiherra Þjóðverja í
Danmörku yfir, að játning
Scaveniusar sannaði innlimun
Danmerkur í hina nýju skipan.
Sem stendur hefir Danmörk
enga sjálfstæða utanríkis-
stjórn. Ef við snúum okkur til
Dana með málefni okkar og
þeirra, þá kemur hin íslenzka
málaleitun í hendur þriðja að-
ila. Hann svarar fyrir Dani. Og
þessí þriðji aðili er hið volduga
Stór-Þýzkaland.
VIII.
Atburðir síðustu daga,
skothríðin á varnarlausa ís-
lenzka sjómenn á hafinu, yfir-
lýsingin um að ísland sé dönsk
eyja, ófriðaryfirlýsing á hend-
ur hverjum íslendingi, sem
leitar sér bjargar í landhelgi
íslands, allt eru þetta viðburðir,
sem skilja má út frá baráttuað-
ferðum þeim, sem stundaðar
eru á meginlandinu. En þess má
nú vænta, að héðan af langi
engan íslendlng til að hefja
umræður um isjálfstæðismál
þjóðarinnar gagnvart Dönum,
með því að snúa sér raunveru-
lega til óviðkomandi þjóðar, og
það þjóðar, sem hefir lýst land
okkar og þjóð í ófriðarástandi.
Ég hefi nú leitazt við að út-
skýra eðli og afleiðingar þeirr-
ar tillögu, sem flokksþing
Framsóknarmanna samþykkti í
sjálfstæðismálinu. Takmarkið er
glöggt og afmarkað. Öðrum
lýðræðisflokkum er boðið vin-
samlegt samstarf i þessu mesta
máli þjóðarinnar. Framundan
er sameining og einbeitlng
kraftanna til að gera ísland
frjálst, og tryggja öryggi þess
í framtíðinni. J. J,
Af hverju eru ekki
bimatSarrátfiinaiit-
arnlr bændur?
(Framh. af 2. siðu.)
mennina. Og þið búnaðarráðu-
nautar. Farið upp i sveitirnar
og búið þar fyrirmyndar búskap
ykkur til gagns og gleði og öðr-
um til eftirbreytni. Farið frá
mölinni til moldarinnar, en ekki
frá mold til malar.
G. Ólafsson.